Leita í fréttum mbl.is

Donald J. Trump gerbyltir heilbrigðiskerfum Vesturlanda

Þetta er með eindæmum. Eftir að sérfræðingaveldi Vesturlanda -og einræðisherra eindæmi Evrópusambandsins- missti algerlega tökin á öllu því sem það hélt að það héldi traustum tökum um, með því að klessa veröldinni og kollvarpa henni algerlega í mörgum löndum, með hruni mest laga- og regluvædda bransa sama hluta heims -á eftir óheilbrigskerfunum- það er að segja sjálfum fjármálageiranum, já þá standa menn nú á öndinni yfir því að aðeins einn maður geti umbylt öllum óheilbrigðiskerfum sama heimshluta yfir í það að vera alvöru heilbrigðiskerfi

Maðurinn sá eini heitir að sjálfsögðu Donald J. Trump. Hann, já bara hann, getur þetta. Hann er búinn að spara skattgreiðendum þessa heimshluta ofboðslegt fé með því að taka heilbrigðisgeirann svo í gegn, að nú þurfa sérfróðir læknar (já sérfræðingar) ekki lengur að hitta sjúklinga sína né hvað þá heldur að tala við þá. Það er nóg að senda þeim bara mynd af sjúklingnum í snjallsíma. Sérfróða geðlækna- og sálfræðingastéttin er hér með orðin fær um að gefa út sjúkdómsgreiningu á fólki bara við það eitt að sjá ósamsetta og jafnvel samsetta ljósmynd af sjúklingnum. Sjúkdómsgreiningin kemur síðan í kvöldfréttum og hún er endanleg. Þetta er ofboðsleg framför, því nú þarf enginn lengur að efast um að 100 milljarðar drepnar klukkustundir Sigmundar Freud, voru einmitt bara fraud (svindl). Og var sú þekking þó þegar orðin óhagganleg staðreynd. Freud var tóm tjara

En það er þó strax komið að minnsta kosti eitt babb í bátinn. Stéttarfélag algerlega sérfróðra "geðlækna- og sálfræðinga" í Danmörku, hefur ávítt þar í landi búandi slíkan "lækni" fyrir að grafa undan sérfræðingaveldi "heilbrigðisstéttanna" með því að fjargreina þann eina mann sem umbyltir hér stétt þeirra með þessum hætti

Hvað skyldu þeir forhertu þorskhausar er hanga til þerris í hjalli íslenska utanríkisráðuneytisins segja við þessu?

Einu sinni voru til hellismenn. Þeir bjuggu í hellum. Og þeir krotuðu heimsmynd sína á hellisveggina og þær hafa fundist og jafnvel verið gefnar út í prentuðum bókum. Ekkert hefur samt breyst síðan þá. Allt er við það sama þrátt fyrir fossandi mikið meira fé. Enn hakka menn á sömu blaðsíðunni og selja fólki sömu gömlu snákaolíuna og þeir gerðu í hellunum. Og undir hinu sama gamla verndaða vörumerki: snákaolía sérfræðinnar

Fyrri færsla

Tölvuárásum verði svarað með kjarnorkuvopnum. "Fjórða iðnbyltingin" skollinn á


Tölvuárásum verði svarað með kjarnorkuvopnum. "Fjórða iðnbyltingin" skollinn á

Nýr þáttur í þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna

Bandaríkin eru að uppfæra þjóðaröryggisstefnu landsins. Gefið er til kynna að breyting verði á því hvernig tölvuárásum sé svarað. Frá og með nú geta þeir sem gera tölvuárás á Bandaríkin átt á hættu að þeim sé svarað með hefðbundnum vopnum (off-line), en ekki stafrænum aðgerðum. Kemur nú einnig til greina að þannig árásum verði svarað með kjarnorkuvopnum, ef þær valda það umfangsmiklum skaða að hann sé hægt að setja í flokk með þeim skaða sem víðtæk hefðbundin hernaðarárás veldur. Þeim flokki árása getur því undir nýrri þjóðaröryggisstefnu verið svarað með kjarnorkuvopnum

Dæmi: Norður-Kórea gerði tölvuárás á innviði Bandaríkjanna með því að taka hluta þeirra í gíslingu og krefjast lausnargjalds sem greitt var með tölvumyntinni bitcoin. Talið er að árásin hafi aðeins verið forsmekkur eða sýnishorn -eins og sum eldflaugaskot landsins undanfarið- á því sem það land er í standi til að gera við önnur lönd og innviði þeirra, með tölvum. Með því að segja að kjarnorkuvopn verði ekki aðeins notuð sem svörun og vörn gegn þeim sem gera kjarnorkuvopnaárás á Bandaríkin, eða stórtæka árás með hefðbundnum vopnum, er verið að segja að hlutfallsleg svörun með bæði hefðbundnum vopnum og kjarnorkuvopnum eigi einnig við um árásir á innviði landsins með tölvum. Umfang skaðans mun ráða til hvaða vopna verður gripið. Þetta fær kannski einræðisherra Norður-Kóreu til að hugsa sig aðeins um áður en hann sleppir stafrænum herdeildum sínum lausum næst, með aðstoð annarra ríkja

Kínverski einræðisherrann fær innanríkisher til einkaumráða

Ákveðið hefur verið að 1,5 milljón manna innvortis herlögregludeildir Kína falli ekki lengur undir hefðbundna herstjórn landsins né heldur undir nein önnur ráðuneyti eða stofnanir aðrar en sjálfan einræðisherrann Xi Jinping. Nú þarf einræðisherrann ekki lengur að deila völdum yfir þessum her með neinum öðrum í ríki sínu. Áður fyrr gátu ríkisstjórnir landshluta kallað á þennan lögregluher. En þar sem hann hefur nú verið færður undir æðstu pólitísku miðstjórn hermála, sem Xi Jinping stýrir sjálfur, þá er hann sá eini sem sigað getur hernum á hvern sem er, hvenær sem er og hvar sem er í landinu. Og það mun hann þurfa að gera næstu mörg árin. Xi Jinping er nú orðinn fullhertur einræðisherra Kína. En sennilega þó ekki jafn hertur og þeir þorskhausar sem hanga til þerris í hjalli íslenska utanríkisráðuneytisins, því þeir hljóta einnig að hafa verið forhertir fyrst

EXTRA: Fjórða "iðnbyltingin" er skollinn á

Komið er í ljós að allir þeir örgjörvar sem sitja í nær öllum tölvum veraldar, innihalda framleiðslu- og hönnunargalla sem gera þær að gapandi ónýtu drasli með öryggislegum eldglæringum, sem einungis er hægt að tryggja sig gegn með því að henda þeim á öskuhaugana. Þessu greinir Financial Times frá í dag. Þar mun þessi tölvunartækni svo iðnbylta heimsbyggðinni í sjálfkeyrandi ruslahrúgur með rottur við stýrið. Sérstaklega á þetta við um nýjustu föt nakta tölvunarkeisarans, sem kölluð eru "skýjatölvun" (e. cloud computing)

Svar svo kallaðra "sérfræðinga" við þeim göllum sem eru í nær öllum örgjörvum er knýja tölvu- og snjallsímatækni veraldar, ásamt ótal mörgu fleiru er það, að eina vörnin gegn þessari fjórðu eða jafnvel fimmtu iðnbyltingu sé að skipta öllum tölvukerfum heimsins út. Hvorki meira né minna. Henda þeim á haugana

En það er samt ekki hægt að skipta út vélbúnaðinum, segir svo annar "sérfræðingur", því kostnaðurinn við að skipta honum út myndi koma flestum fyrirtækjum á hausinn. Þetta er sem sagt alveg ný og sjálfkeyrandi iðnbyltíng

Það er ekki að ástæðulausu að ég hef lengi sagt; Tölvunarbransinn kominn í dauðastríð

 

Fyrri færsla

Vandamálin á Kóreuskaga í hnotskurn


Vandamálin á Kóreuskaga í hnotskurn

Í reynd er erfiðasta vandamálið ekki sjálf Norður-Kórea. Það mál er að sjálfsögðu mjög slæmt, en verra er að það er Suður-Kórea sem allt snýst um, ef ráða á niðurlögum þeirrar bráðu hættu sem heimshlutanum og jafnvel veröldinni allri stafar af Norður-Kóreu

Norður-Kórea á nokkuð voldugan bandamann og hann heitir Kína. Hernaðaráætlun Norður-Kóreu gengur út á að þrýsta Bandaríkjaher burt af Kóreuskaga og þar með að raska valdahlutföllunum sér í hag og láta síðan tímann vinna með sér við að sameina Kóreu undir merkjum einhverskonar Norður-Kóreu. Og þarna renna hagsmunir Norður-Kóreu og Kína saman í eina allsherjar geopólitíska fullnægingu

Suður-Kórea hefur hingað til neitað að samþykkja hernaðarlausn sem leggja myndi veldi Norður-Kóreu í gips og fatla, með því að kjarnorkuvopnaáætlun hennar sé endanlega stöðvuð. Þarna er Suður-Kórea að vinna gegn trúverðugleika Bandaríkjanna í heimshlutanum og sem eru eina aflið er verndað getur heimshlutann gegn síseytlandi, æ meira umfaðmandi og ömurlega neikvæðum ógnaráhrifum einræðisríkis Kína. Þetta er sérstaklega ógnvænleg þróun fyrir Japan, því ef Bandaríkjunum er þrýst af Kóreuskaga, þá stendur ekkert lengur á milli Japans og annars vegar Kína og Norður-Kóreu. Miklu fleiri ríki í heimshlutanum eru einnig í hættu, ef valdahlutföllin raskast Bandaríkjunum verulega í óhag. Höfin í heimshlutanum verða ekki lengur örugg. Og enn sunnar eru Ástralía og Nýja Sjáland, sem hugsa sitt. Öndunarfæri beggja eru Kyrrahaf, þ.e. þau eru utanáliggjandi. Japan þarf til dæmis að flytja á þessum höfum inn öll hráefni sem það notar og svo skipa öllu út sömu sjóleiðir

Bandaríkin eiga afar erfitt með að vaða yfir vilja núverandi ríkisstjórnar Suður-Kóreu og hefja einhliða eyðileggingu á kjarnorkuvopna-apparati Norður-Kóreu, því höfuðborg Suður-Kóreu er í gíslingu stórskotaliðs Norðursins. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur þó gefið til kynna að hægt sé að komast hjá borgaralegu mannfalli, þó svo að Bandaríkin grípi til vopna til þess einhliða að vernda þjóðaröryggi sitt óháð öllu öðru, sem er frumskylda hvers einasta þjóðkjörins forseta er þar situr, sama hvaða nafni hann nefnist. Úti er um þann forseta sem hættir sér of langt í þolinmæði vegna eins bandamanns sem stendur í vegi fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjamanna. Og hernaðargeta Bandaríkjanna til að glíma við þetta mál er margföld. Hún er þarna til ráðstöfunar í einmitt svona málum

En það er meira. Suður-Kórea mun snúa sér í átt til Kína ef Bandaríkin missa þolinmæðina eftir lausn án ofbeldis. Og þar með gengi draumur Norður-Kóreu í uppfyllingu án þess að hún sjálf hafi þurft að lyfta litla fingri til að koma brottför Bandaríkjahers af Kóreuskaga í kring. Sunnar svitnar Japan vegna þessarar hættu og þróunar mála í ógæfuátt fyrir sig. Japan er því að vígbúast vegna þess að það efast meira og meira um að nógu öruggt sé að vera einungis undir varnarregnhlíf Bandaríkjanna, fyrst þau standa og geta lítið aðhafst vegna ríkisstjórnar Suður-Kóreu. Bandalag Suður-Kóreu og Bandaríkjanna er komið í verulega hættu

Allt hjal um þýðu vegna íþróttaleika er svæsin veruleikafirring. Þeir skipta hér engu máli og eru fullkomið sjónarspil eins og flest annað hingað til í þessu máli

Á meginlandi Evrópu er svipaður undirliggjandi valdahlutfallaleikur í gangi og þar er stóri óvissuþátturinn Þýskaland. Því landi hefur nú allt í einu dottið í hug að líta ekki lengur á Úkraínudeiluna sem verandi í djúpfrosti. Hvað gengur Þýskalandi til, spyrja menn. En sú spurning er einungis framkomin vegna fávísi. Þýskaland hefur alltaf verið og er enn algerlega óútreiknanleg stærð í Evrópu. Enginn veit í reynd hvar landið stendur. Þarna mun einnig hættuleg þróun valdahlutfalla verða, eins og sú sem við sjáum í Suðaustur-Asíu. Landmassi EvrópuAsíu og Austurlanda nær er að brotna upp. Það er að segja: Austurhvel jarðar er allt að riðlast, nema Indland. Spennið beltin

Fyrri færsla

Bandarísk verðbólga í Íran?


Bandarísk verðbólga í Íran?

Vesturlöndum: Um það bil er klerkaveldið tók völdin í Íran 1978/79 - og Margaret Thatcher þingmaður Íhaldsflokksins nýorðin forsætisráðherra Stóra-Bretlands. Gúlag þræla- og fangabúðakerfi sérfræðingaveldis Sovétríkjanna enn full af föngum. Samtals sextíu þúsund kjarnorkuvopn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna stóðu klár andspænis hvort öðru

****

Það var svo sem auðvitað. Peningasekkirnir sem manngerður Obama losaði yfir Íran, hafa nú komið af stað mótmælum í landinu. Svo virðist sem seðlabrottkast Obama hafi valdið svo mikilli Friedman-verðbólgu (losun!), að algerlega ljóst er hvaðan hún kom; þ.e. frá sjálfum Obama! Þetta átti samt að vera órekjanlegt. En er það svo?

Nei. Það er náttúrlega auðvitað ekki svo, sillí ég

Lítið fjörleg mótmæli, eðli málsins samkvæmt, hmmm, hafa farið fram í landinu undanfarna sólarhringa. Hverju er verið að mótmæla? Jú verðbólgu og atvinnuleysi og sjálfri ríkisstjórninni. Og nú er úr vondu að ráða fyrir stjórnvöld landsins, því þeim hefur ekki enn tekist að sannfæra allan almenning um að verðbólgan sé óvininum Ameríku að kenna. Fólkið veit nefnilega vel að hún er heimatilbúin. Og sama er að segja um atvinnuleysið. Mun Íran detta í sundur? Nei, það þarf líklega mikið og miklu meira til

Allt í einu langar mig í dagatal með PinUp stúlkum. Sérstaklega þegar ég hugsa um þetta hér fyrir ofan. Hvað er að mér? Að banna svona dagatöl finnst mér jaðra við klerkaveldi. Er verndaðasta, öruggasta og velsælasta kynslóð mannkynssögunnar nokkuð að breytast í taugahrúgur af aulum. Ég bara spyr

Hvað er flottara en glæsileg PinUp stúlka sem hallar sér upp að nýjasta skrúfstykkinu frá Caterpillar, sem varð Dow Jones hlutabréf ársins 2017, númer tvö - á eftir Boeing

Æææi..

Fyrri færsla

Óútreiknanlegur kuldi


Óútreiknanlegur kuldi

Ef maður bíður aðeins, þá er sjálf biðin óútreiknanleg, en útkoman úr henni er hins vegar ávallt fyrirsjáanleg. Kuldinn kemur á ný og bítur frá sér. Hlýnunin hættir og verður að kólnun. Það er þá sem grýlukertin steypa sig sterk, til að geta stungist fastar

Sovétríkin áttu aðeins einn banvænan óútreiknanleika og hann kostaði þau lífið. Hann hét lágt olíuverð í einræðisríki, sem engu gat stjórnað um einmitt það verð, því það var utanríkislega sett. Og það sem kostaði sovéska einræðisríkið lífið, hefur nú þegar kostað Rússland svo mikið, að á næstu árum mun kostnaðurinn koma þannig fram, að sagan getur hæglega endurtekið sig á ný, en samt og að sjálfsögðu í breyttri mynd

Raunverð hráolíu er valdaklíka Leonid Brezhnevs var að festa sig í sessi var 15 dalir á tunnuna, en það náði hámarki árið 1980 þegar það var 105 dalir tunnan, á verðlagi ársins 2013. Valdaklíkan hafði þá notið þess að allar götur frá 1970 hafði olíuverð farið mjög svo hækkandi. Árið 1979, rétt áður en olíuverð hrundi, ákvað valdaklíkan að ráðast inn í Afganistan, með Brezhnev gamla heilabilaðan á fjarstýrðu skafti. Svo hrundi olíuverð ári síðar og það hrun gerði útaf við efnahag landsins og einnig pólitíska þolinmæði fólksins sem í því bjó og var þá enn á lífi. Og olíuverið hélt áfram, þrotlaust, að hrynja næstu 17 árin. En um leið og það rétti úr kútnum upp úr 1998, stökk Pútín upp til valda og reið á hækkun þess fram til ársins 2013, með fjögurra ára valdafráviki til Medvedevs, sem tók á sig alþjóðlegu fjármálahrunsdýfuna 2009. Í millitíðinni eða frá og með 2013, höfðu Bandaríkin drekkt OPEC og Pútín fann lík þess persónulega sjálfur í tómri tunnu, er hann mætti til leiks á ný. Tómri tunnu sem enn reynir að hafa hátt. Nú er allt líf hans og ríkisins bara breið brekkan niður

Olían var helsta afurð Sovétríkjanna og hún stóð fyrir allt að 70 prósentum af allri gjaldeyrisöflun. Sovétríkin voru eiginlega byggð upp í kringum olíu. Þau stóðu fyrir 70-90 prósentum af þeirri hráolíu sem CMEA-löndin notuðu og allt að 10-20 prósentum af olíuvöru- og gasnotkun Vestur-Evrópu. Verðlagning til CMEA var háð heimsmarkaðsverði, en þó með vissri seinkun

Já, lýðræðisríki eru óútreiknanleg - en einræðisríki eru það hins vegar ekki. Og fólkið í þeim skilur ekki hvort annað, eins og sést vel í dag. Rússar skilja ekki af hverju Donald Trump þarf að hlusta á fulltrúa- og öldunadeildir þingsins, dómstólana, stofnanir og allskyns "rannsóknarnefndir" (pólitískar ofsóknir). Bandaríkjamenn skilja ekki hvað það er sem heldur Sambandsríki Rússlands saman; þ.e. "öryggisstofnanir" ríkisins og peningayfirfærslur út í jaðra þess (öfugt við ESB sem mjólkar jaðrana inn til miðstjórnar með erfðafræðilega geðklofnu miðflóttaafli Þýskalands sem tortímandi lokaorgasma ESB). Rússland eins og Kína verða alltaf fátæk ríki svo lengi sem þau heita þessum tveimur nöfnum. Landfræðilegur hæstiréttur hefur dæmt þau til eilífrar fátæktar svo lengi sem þau reyna að halda sér saman sem þessi tvö ómögulegu ríki. Og það munu þau gera, því þannig gera auðvitað öll ríki, með sögulega misjöfnum árangri, svo vægt sé til orða tekið

Það eru viss vonbrigði að sjá talandi höfuð í lýðræðisríkjum tala um önnur lýðræðisríki sem óútreiknanleg. Þeir sem sætta sig ekki við óútreiknanleika lýðræðisríkja eru kannski í raun að leita sér að einhverskonar einræði. Eitthvað fast til að halda sér í. Eitthvað sem komið getur í veg fyrir til dæmis Donald Trump sem ruggar bát þeirra og þeim þykir því óútreiknanlegur. Fátt bendir til annars en að úrslit fyrirstandandi kosninga í Rússlandi verði algerlega fyrirsjáanleg. Talandi lýðræðishöfuð stöðugleikans hljóta því að gleðjast ákaft

Í einræðisríkjum er flest fyrirsjáanlegt: sá sem faglega forhertastur er kemst til valda; þar með hefjast úthreinsanir og gúlögin fyllast (aðgangsorðið inn í þau heitir "spilling"). Þar næst er boðað til neyðarfunda um þá ógn sem að ríkinu steðjar frá ófyrirsjáanleika hvers konar frelsis. Það er því afnumið eða fósturdrepið í fæðingum og allt fer smám saman að verða algerlega fyrirsjáanlegt

Hvenær Rússland fellur veit enginn, en það er ekki langt í það. En falla mun það og Evrópusambandið líka, ásamt Kína. Það verður hlýnun. Og henni fylgja geigvænlegar umhleypingar. Tvö kjarnorkuvopnaveldi í upplausnarferli er ekki beint stöðugleikinn frægi. Hvar enda þá þau, vopnin. Í hverra höndum

Fyrri færsla

Léttir: "Fyrirsjáanlegur" forsætisráðherra


Léttir: "Fyrirsjáanlegur" forsætisráðherra

Það var varla að maður þyrfti að hlusta. Varalestur hefði sennilega verið nóg. En ég hlustaði nú samt. Engar bombur. Bara á okkur þá vondu. Allt sem hún sagði var fyrirsjáanlegt. Alt for damerne, næstum. Góð góð góð, voðalega góð. Næstum ógnandi góð. Hvernig fer hún að þessu?

Hinum megin, þ.e. frá heitasta helvítis helvíti, berast þær fréttir að James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafi ekki séð sér fært að hafa meðferðis viðurkenningarpeninga til hermanna sinna er hann sótti fund um hryðjuverkastarfsemi í Aqaba í Jórdan í desember. Hann sagðist nefnilega vera að spara peninga fyrir sprengjum

"I am saving money for bombs", saggði hann

Að hugsa sér. Hann ætlar að verja "mennskuna". Fyrir hverju skyldi forsætisráðherra okkar vera að spara. Vörnum Íslands?

Gleðilegt nýtt ár

Jú, hún snýst víst!

(hvenær?)

Fyrri færsla

Tölvunarbransinn kominn í dauðastríð


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband