Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2020

Púff... og horfið: Alþjóðavæddur miðdepill einskis virði án þjóðríkis

"RE-SHORING"

Níu mínútna yfirlýsing Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta um meðal annars Kína, Hong Kong og WHO, föstudaginn 29. maí 2020

****

Hong Kong virðist bara sí svona gufað upp, með meira að segja allan þann glóbal-galdrakassa innanborðs sem hefja átti borgríkið yfir vestræn ríki þjóðaríhaldsmanna, sem um tíma þóttu of rúgbrauðs- og hamsatólgarlega ómerkileg, er gauksheiður líberalista á Vesturlöndum tóku upp á því að halda að sagan hefði endað þegar Sovétríkið féll og Evrópusamband stofnað í þess æðri-stað. Að allt yrði svo ofsagott, jafnrétt og friðsamlegt í veröldinni til endaloka tímans. Að jörðin væri þar með orðin flöt, eins og þá var skrifað og peningar fyrir þau marklausu skrif teknir inn í búntum. Ja hérna. Í verkfærakassa Hong Kong fannst því miður engin hamsatólg, þegar að var gáð. Aðeins turnar fullir af Traders, en engin Thames. Þ.e. bara pappírsríkið

Dauði Hong Kong verður töluvert flókinn og smitáhrifa er að vænta. Sem dæmi má nefna að 300 þúsund íbúar þar eru með breskt aflands-vegabréf. Hvað á að gera við það fólk? Á að veita því breskan ríkisborgararétt eða ekki. Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands vinna nú saman í málefnum Hong Kong, ásamt hinum five-eyes ríkjunum, Ástralíu, Kanada og Nýja Sjálandi

Vissuð þið að Bandaríkjamenn skutu á loft NROL-151 gervihnetti frá Nýja Sjálandi í janúar. Nýja Sjáland er sem sagt með geimskotstöð, en ekki Ísland, því hér heima er það metnaður ríkisstjórnarinnar að steiktir verði fyrst og fremst hamborgarar. Til þess byggðum við jú háskóla, ekki satt

Og svipað er að gerast með Evrópusambandið ásamt hinum svo kölluðu alþjóðastofnunum á borð við WHO, þ.e. hið þjóðhættulega lygabæli Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, þar sem steinn stendur varla yfir steini lengur

En það er meira. Næstum allur hinn svo kallaði björgunar- og endurreisnarpakki Evrópusambandsins hefur á síðustu dögum verið afhjúpaður sem slagandi upp í sjónhverfingapakka Jean-Claude Junckers frá 2014, þá nefndur Juncker-áætlunin. Aðeins smá brotabrot af pakkanum er ekki lán, og uppgíruð lán, og þegar tölurnar eru lagðar saman þá stenst einfaldlega of lítið af því sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir. Pakkinn og planið er að mestu hókus pókus og útsent fréttaþvætti, sem aðeins fjölmiðlar falla fyrir

Og svo er það allt hitt sem kraumar og sýður og við munum koma að síðar. Mikið er að gerast víða án þess að tekið sé eftir. Til dæmis eru Bandaríkin að draga sig alveg út úr heimshluta er kallast Miðausturlönd. Í stað þeirra verða heimshlutaveldin þar, með Bandaríkin í bakið, látin um að hafa þar mest áhrif á gang mála. Þeir sem fara fyrir heimshlutanum frá og með nú, og fara með áhrifavöldin þar, er bandalag Ísraelsmanna, Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Tyrkland. Sádí, sem gjarnan vildi vera með, en hefur varla efni á því lengur, treystir nú orðið einna helst á Ísraelsmenn

Bandaríkin snúa sér þess í stað að Kína og Rússlandi – og þar með einnig óbeint að Evrópu og er ekki von á neinni skemmtiferð þar. Því nær grafarbakkanum sem hið nýja Rússland Pútíns færist, en þangað stefnir það, því hættulegra verður það sem ríki. Hið sama gildir um Kína og samspilið þar á milli, leikandi sér með loftlausa fótboltann Evrópu

Andlát: Just-in-Time supply-chain
Endurfæðing: Just-in-Case on-shore supply-chain

SIR HUMPHREY LÁTINN

"this misunderstands the core of the Johnson-Cummings project. It is not that they disagree with experts’ forecasts, or that they are attempting to be populist. They actively reject this model of government, believing it to be systemically and empirically flawed. They argue that Britain needs to free itself from centralized bureaucratic control, rather than rely on it, to be able to react both to domestic crises and the ever-changing international environment."Tom McTague

Fyrri færsla

Hnattrænt framleiðsluóöryggi og "útboð"


Hnattrænt framleiðsluóöryggi og "útboð"

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996

Mynd, Economist 1996: ESB - evran - EES - Schengen - glóbalismi - líberalismi - brunagildrur hagkerfa þjóðanna

****

Óteljandi lög og diktöt um íslensk verkútboð á hinu svo kallaða og nýlega hvelldauða "evrópska efnahagssvæði" í viðbrenndri Schengengervisúpunni, sem kokkar og sýður í gervigrasaheimi Evrópusambandsins, eru að reynast álíka firra og hinar svo-kölluðu hnattrænu framleiðslu- og afhendingarkeðjur, sem deyja um alla jörð ef bara einn hlekkurinn dettur í salernið hjá bara einum klaufhalanum í keðjunni. Þetta er Neanderdals-hugmynd glóbalista um gaddakeðjur úr tyggjó

Allt þetta fíflafyrirbæri glóbalista með hálmhrúgur í heilastað, er sennilega ein versta hugmynd sem fæðst hefur í alheiminum. Meira að segja jöklamýs vita betur og eru þær þó úr grjóti. Heilalaus her líberalista jarðar raðaði staðreyndum lífsins á borð fyrir stjórnmálamenn eftir hentugleikum og grjótinu þeir kyngdu. Nú er þetta allt saman búið að vera og þjóðlausir stjórnmála-glóbalistar standa eftir á brókinni einni saman, en með andlistgrímur, til að smitast ekki enn frekar af sjálfum sér. Allt í einu eru þeir hættir að vilja vera heimsborgarar

Meira að segja Svandís-Sovét í ríkisstjórn O3-jöklamúsa xD-orkuleysisins og svikulla Framsóknarmanna, kemur ekki einu sinni sovét-sjúklingum sínum til útlanda, nema þá með forsögulega lekum sovéskum kafbáti, í þrotlausri viðleitni hennar við að drepa einkaframtakið niður hér heima, í hennar eigin landi, svo að það megi lifa í erlendu kommalandi sem er á hausnum sökum hálf- og heilkommúnisma

Þetta er svo paþetískt að innlögn á svissneskt sjúkrahús myndi ekki einu sinni geta reddað henni og flokk hennar eins og þau björguðu lífi æðstu manna Sovétríkjanna á sínum tíma – á meðan almenningur heima var látinn éta skít og drekka blóðið úr hinu sovéska blóðhafi kommúnistaflokksins, sem ávallt var og er enn fyrirmynd Vinstri helgrænna hér heima, umhverfis rauð- eða grænglóbalisma: nallann sjálfan - rauðan eða grænan

Mikið mun ég skemmta mér á hinu komandi jöklamúsasafni. Það verður bara ansi stórt, segi ég

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland

Mynd: evruupptakari

Fyrri færsla

Hvað á hrun ferðaþjónustu sameiginlegt með hruni í banka- og fjármálaþjónustu?


Hvað á hrun ferðaþjónustu sameiginlegt með hruni í banka- og fjármálaþjónustu?

Er Tokkata ELP frá 1973 lýsandi fyrir ástand eða stemmingu alþjóðamála í dag? Á plötunni Brain Salad Surgery gat maður allaf huggað sig við að næsta lag á eftir tokkötunni er Still...You Turn Me On. En hljómplata er þó aðeins hugarfóstur. Hvernig verður sjálfur veruleikinn eftir Wuhan-veiruna sem kom ofan í hrun alþjóðlegra fjármála? Það er stóra spurningin. Tvö meiriháttar hrun á aðeins 12 árum – og allt glóbalisma að kenna...

****

BANKABÓLAN OG FERÐAMANNABÓLAN (SEM BÝR INNAN Í NÁTTÚRUBÓLUNNI)

Jú fyrir það fyrsta eru bæði fyrirbærin þjónustugreinar. Og fyrir það annað þá byggðust bæði fyrirbærin á því-sem-næst óheftu flæði yfir landamæri sem voru af tveimur gerðum og styrkleikum. Landamæri þjóðríkja og hins vegar landamæri hugarfóstursfyrirbæra prómilluelíta á borð við Schengenbrunagildru hagkerfa

Fyrir bankahrun var flæði fjármagns á milli landa næstum óheft um tíma. En svo kviknaði í vissum geymslustöðvum þess og þá fossaði fjármagnið til þeirra ríkja sem buðu mestu og bestu þjóðríkisábyrgðirnar. Ríkin í Evrópusambandinu yfirbuðu hvort annað með ríkisábyrgðum til að reyna að koma í veg fyrir að allt fé myndi flýja löndin og skilja þau eftir á borð við mergsogið lík sem vampíra hefur tæmt af blóði. Aðeins hársbreidd munaði að sum lönd í pappírstrúarfyrirbærinu Evrópusambandinu yrðu þjóðargjaldþota, því þau höfðu látið glepjast og leigt vopnabúr sín út til aðila sem notuðu þau síðan til að ráðast að þeim sjálfum. Þau voru algerlega varnarlaus og hlekkjuð

Næstu 5-10 árin frá fjármálahruni fóru síðan í að smíða varúðarráðstafanir af ýmsum toga sem koma eiga í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig. Mikið, stórt og nýtt lagaverk fæddist um þá þjónustugrein

Eins verður það með hina alþjóðlegu-ferðaþjónustu. Næstu árin munu fara í að smíða girðingar sem koma eiga í veg fyrir tryllingslegan hagkerfisbruna á borð við þann sem Kínverski kommúnistaflokkurinn kom af stað með frjálsu og óheftu flæði Wuhan-veira út yfir heimsbyggðina, innan í trójönskum líkömum ferðamanna, sem fluttu bálkestina á milli heimshvela á aðeins 14 tímum. Er Kínverski kommúnistaflokkurinn –og álíka gangster-pólitísk element jaðar– nú kominn á bragðið og sér hversu öflugt vopn hann hefur í höndunum til að beita á beinlausa grænfugla Vesturlanda af líberalistakyni, sem búa innan í náttúrubólu

Íslenska bankakerfið er aðeins svipur hjá sjón í dag miðað við árin 2000-2009. Það var minnkað því það reyndist þjóðhættulegt. Ferðaþjónustan mun einnig minnka mikið, því óheft flæði fólks yfir landamæri ektaríkja hefur sýnt sig að vera þjóðhættulegt fyrirbæri. Greinin verður enduruppsett á nýjum forsendum. Og einnig hún, verður ekki nema svipur hjá sjón miðað við ferðabóluárin 2010-2020. Þeir sem halda annað eru að bíða eftir síldinni eins og hún var, en varð aldrei aftur

Næsta lag á plötunni er því.. hvað?

Fyrri færsla

Rangt: Tapast ekki


Rangt: Tapast ekki

Þetta er beinlínis rangt. Engar gjaldeyristekjur tapast. Það kostar gjaldeyrisforðann ekkert að missa af komum erlendra ferðamanna

Og ef ferðanjálgur Íslendinga sjálfra til útlanda er dreginn frá, þá missum við sennilega ekki af miklu hér, eins og staðan er núna. Íslendingar þurfa ekki lengur að flýja sitt eigið land vegna erlendra ferðamanna hér heima

Þetta er eins og að segja að fyrst að ríkisbáknið hafi ekki lagaheimild til að hrifsa til sín öll laun launþega í landinu, að þá hafi ríkið tapað því fé. Það er ekki hægt að tapa því sem ekki var

Ég er ekki einu sinni viss um að nettójöfnuður gjaldeyrisviðskipta með ferðaþjónustu sé svo mikið síðri án hennar þegar að allt sem tengist framleiðslugetu hennar er reiknað með. Flugvélakaup og flugvélaleiga fara fram í erlendri mynt og kosta foss af erlendum gjaldeyri - og heimsendingar hins innflutta erlenda þrælavinnuafls greinarinnar af gjaldeyri (e. remittance) er stór hluti af útflæði gjaldeyris. Og markaðsfærslan erlendis kostar líka, plús slit á innviðum í landinu

Ferðaþjónustan er þess fyrir utan einn lélegasti skattgreiðandinn í hagkerfinu því henni hefur aldrei græðst fé. Hún er fyrst og fremst tapsgefandi veltugrein með ekkert eigið fé og sem leggur hald á vinnuafl til tapreksturs. Það er nú ekki beint til þess sem skattgreiðendur lýðveldisins fjármagna framhalds- og háskóla: til að útskrifa fólk til starfa í tap- og núllrekstri

Þess utan er ferðaþjónustan að mestu komin niður í undanrennuna erlendis, þannig að hver erlendur ferðamaður núna gefur lítið af sér miðað við þá sem komu á árunum áður en geirinn bólugróf sig með aðstoð misvitra stjórnmálamanna

Á mektarárum Nokia í Finnlandi, GSM-símar, varð viðskiptajöfnuður vegna framleiðslugetu þess neikvæður, því flytja þurfti íhlutina inn og framleiðsluapparatið líka. Álverið í Straumsvík er til dæmis þjóðhagslega mikilvægara fyrir okkur en Nokia var fyrir Finnland

Engir erlendir ferðamenn vaxa í íslenskri langhelgi. Og þeir vaxa ei heldur neins staðar úr íslenskri mold. Það verður að flytja þá alla inn. Hvernig væri nú að læra loksins að gera út á Íslendinga sjálfa - og leyfa hinu innflutta að grasrótarspretta af sjálfu sér og að halda þessari atvinnugrein eins og hún var hugsuð, sem fyrst og fremst aukabúrgrein sem allir geta verið án ef út í það er farið. Þetta verður hvort sem er ávallt láglaunabæli og taprekstrargeiri með lítið sem ekkert eigið fé

Sjálfum líst mér betur á að beita milljón eða tveimur af sauðfé á landið og vera með hátæknivæddan ullar og tískuullariðnað og alþjóðlegar tískusýningar og stefnur á íslenskri ullarframleiðslu, hönnun og litum. Þetta gæti orðið sérgrein sem til dæmis Marel tæki tæknilegan þátt í. Sauðkindin græðir landið og betra er að veita ríkisstyrk í góðar girðingar en í salernispappírsrúlluvöxt af asparkyni út í loftið

Fyrri færsla

Ríkisstjórnin að smíða fallöxi á restina af ferðaþjónustunni?


mbl.is 1,5 milljarðar tapast á hverjum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin að smíða fallöxi á restina af ferðaþjónustunni?

VANVITAR?

- Halda mætti að afglapahátturinn innan ríkisstjórnarinnar sé vegna hagsmunatengsla ráðherra sjálfra og embættismanna inn í ferðaþjónustuna

Manni ofbýður heimska ráðamanna í sambandi við ferðaþjónustuna sem atvinnugrein. Þeir hafa gert hana að eins konar útgerðarfélagi í ætt við nektardansmeyjarekstur rússnesku ólígarkanna upp úr 1995

Íslensk ferðaþjónusta –samkvæmt eðli málsins um Ísland– á að vera alger aukabrúgrein og sem hagkerfið vel getur lifað án, já, en hún er fyrir vikið orðin lággildis fyrirbæri sem kostar orðið þjóðina meira en hún nokkru sinni mátti. Ekki nóg með það að greinin sé efnahagslega ein hættulegasta grein í heiminum í dag, þá hefur hún skrumskælt og vanskapað hagkerfið okkar á hinn versta veg

Allur bransinn sem heild er á hausnum eins og hann leggur sig, og það sem verra er, hann hefur alltaf verið því sem næst á hausnum og frekar tapað fé en að græðast það. Eiginfjárstaðan er núll og engir peningar eru til til að mæta áföllum og allra síst til fjárfestinga í niðurslitnu bambuskofadrasli sem lán voru tekin fyrir svo velta mætti fé en ekki græða það, þ.e. ferðaþjónustan er að mestu veltugrein með enga arðsemi

Öll lönd sem eiga eitthvað undir þessari atvinnugrein komið í dag, munu fara verst úr úr hamförunum núna og búa við hæsta atvinnuleysi um mörg ókomin ár (sjá nýja rannsókn BIS). Þessi lönd voru flest á hausnum fyrir og er ferðaþjónusta samnefnari fyrir þau. Hún er í senn bæði orsök og afleiðing fátæktar og fellibylja gjaldþrota næstum hvert einasta "normal" ár, fyrir utan hryllingsstöðuna núna og næstu árin

Veitingahús WSJ DS 8 maí 2020

Mynd WSJ 8. maí 2020: Hrun í bókunum veitingageirans í nokkrum löndum í aðdraganda lokunar-aðgerða stjórnvalda. Það voru því ekki stjórnvöld sem lokuðu þessum bransa. Það voru kúnnarnir. Um engar náttúruhamfarir er að ræða, ekki frekar en þegar tilkoma internetsins og glóballarseríngin tók milljónir fyrirtækja af lífi um alla jörð

****

Staðreyndin er sú að í aðdraganda aðgerða stjórnvalda vegna Wuhanveiru-faraldursins í mars 2020, höfðu pantanir og sala á til dæmis veitingahúsum í mörgum löndum þegar hrunið um 50-90 prósent. Það þurfti ekki aðgerðir stjórnvalda til. Fólk kunni alveg að hugsa sjálft og það hætti því sjálft að koma

WSJ DS 18 maí 2020. Hvers hlakka Bandaríkjamenn mest til að geta gert

Mynd: WSJ-DS 18. maí 2020. Hvers hlakka Bandaríkjamenn mest til að geta gert þegar landið opnar

****

Það sem Bandaríkjamenn hafa saknað allra minnst og hlakka minnst til að gera þegar hagkerfið opnar á ný, eru utanlandsferðir. Aðeins 17 prósent landsmanna hlakka til þess að slíkar ferðir verði mögulegar. Á sama tíma hlakkar 40 prósent þjóðarinnar til að geta ferðast innanlands í sínu eigin landi. Svona er staðan líklega í flestum löndum. Fólk kann enn að hugsa sjálft

Meira að segja tapararnir Demókratar með Trump á heilanum trúa á landamæri og lokun þeirra núna, en það gerðu þeir ekki áður en kínverska Wuhanveiran skall á landi þeirra. Þá hötuðust þeir út í alla og allt sem hafði með landamæri þjóðríkja að gera og fólk að sunnan flæddi stjórnlaust inn í landið og ekkert mátti gera í því. Nú heimta þeir hins vegar að öllu sé haldið læstu og lokuðu til helst eilífðarnóns

En landamæri virka og það hafa þau alltaf gert, sé þeirra gætt. Þeirra vegna erum við þjóðin komin með næstum 100 prósent Wuhanveiru-öruggt umhverfi hér í okkar ríki og þjóðin er að endurheimta þjóðfrelsið til athafna í sínu eigin landi, eftir að hafa fært miklar fórnir. Þeim fórnum á ekki að kasta fyrir róða eins og að þær hafi ekkert kostað og séu einskis virði. Schengen virkar hins vegar ekki, og mun aldrei gera, eins og sást og sést enn

Ef að íslensk stjórnvöld ætla að opna fyrir erlenda ferðamenn til Íslands í sumar þá mun það þýða að Íslendingar halda sig heima við og kaupa ekki þessa þjónustu, því einnig þeir kunna að hugsa. Erlendir ferðamenn útiloka Íslendinga

Með því að opna fyrir erlenda ferðamenn sem næstum allir koma frá löndum sem ekkert hafa skimað fyrir veirunni miðað við Ísland, þá eru ráðamenn að hætta því sem Ísland getur ekki verið án, þ.e. flestum öðrum atvinnuvegum landsins, fyrir það sem þegar í ljós er komið að missa má sig og við getum vel verið án – og verðum þar að auki að geta verið án í framtíðinni miðað við furðutímana fyrir faraldur

Og fyrst við erum að þessu, þá var það fáránleg heimska að skattleggja ekki erlendu gæsirnar inn í helvíti á meðan þær voru hér. Nú sitja ráðamenn hins vegar tómhentir með burtflognar gæsir í loftsósu, gapandi upp í gnauðandi vindinn – plús atvinnubransa sem í heild aldrei græddi krónu

Hið strategíska efnahagslega þrotabú einkum ráðherra Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum, getur varla verra orðið. Hið sama virðist gilda um geopólitíska staurblindu þess forystulausa flokks. Hún fer að jafnast á við staurblindu Samfylkingarflokkanna, þ.e. krataplágur

Fyrri færsla

NATO-afneitunardæmi Vinstri grænna nálgast landráð


NATO-afneitunardæmi Vinstri grænna nálgast landráð

Þetta NATO-afneitunardæmi Vinstri grænna nálgast það að vera landráð. Og er það því miður einnig enn eitt dæmið um eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins undir núverandi gervigrasrótarforystu hans, og sem gólfmottudregill undir gamla vinstripólitíska ruslatunnusöngnum sem sunginn hefur verið alla tíð frá upprisu vestrænnar menningar

Í Rómarríki hinu forna voru það Vinstri-grænir sem kenndu lýðveldinu um að það væri að eyðileggja umhverfið, byggjandi þetta og hitt út í loftið og að Róm væri svo svifryksmettuð af skít, rusli og spillingu að allt væri þar handónýtt, og ráðlögðu því fólki að líkjast frekar frumbyggjum utan lýðveldisins, sem væru í nánara sambandi við náttúruna og tilbáðu tré og voru því ekki að eyðileggja umhverfið. Svertingjar í bambuskofum eða villimenn austan Rínarfljóts voru fyrirmynd Vinstri grænna þeirra tíma

Kvenþjóðin undir Vinstri fóstureyðingargrænum á Rómartímanum varð svo úrkynja að hún fór að meika og mála sig hvíta eins og barbararnir í norðri og barnsburðargetan fór niður í núll, og dó hún því úr sjálfri sér

Þetta endurtók sig á ný þegar hinn franski vinstrikammerkór Upplýsingarinnar komst í samband við frumbyggjana í hinum nýju nýlendum Vesturlanda beggja megin Atlantsála, því þá voru það Indíánar og endurfundnir bambuskofar svertingja, nákvæmlega eins og þeir gömlu, sem urðu fyrirmyndin, því íbúarnir þar föðmuðu tré, átu gras, gengu um í "náttúruklæðum" og voru því allt það sem hinir gráðugu fjárfestar Vesturlanda –sem bjarga munu okkur upp úr veiruhernaðarkreppu Kínverska kommúnistaflokksins í dag– voru ekki, sagði Voltaire, hinn útópíski yfirstrumpur sem afneitaði jarðskjálftanum mikla í Lissabon

Þessu þverhausa lýðveldi útópískra blábjána hefur innheimsk núverandi aulaforysta Sjálfstæðisflokksins gifst meira eða minna og má þar varla sjá hvort gerpitrýnið hefur tætt örfoka heilabúið úr sér hraðar og troðið því upp í afturendann á hvort öðru, þannig að út kemur lítið nema endalaus grænmygluð þvæla af allra verstu sort, og sem er svo bambuskofasvört að landið og lýðveldið okkar er komið í stórkostlega útrýmingarhættu

Til fjandans með svona útópísk sníkjudýr vinstrisins sem hanga jafnvel enn fastar á ríkisjötunni en hin grábölvaða veruleikafirrta alþjóða verkalýðshreyfing nalla, á leið úr lúxusferð erlendis í sóttkví hér heima, og sem aldrei framleitt hefur annað en vandræði á ofurlaunum, og hangir nú sem forhert sýkla- og hernaðarplága aumingja á launþegum. Allt má þetta missa sín og enginn myndi sakna þess

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Wuhan-veiran: Schengensvæðið mun opna síðast í heiminum


mbl.is Þungt högg að verða af hundruðum starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wuhan-veiran: Schengensvæðið mun opna síðast í heiminum

Þýska FAZ hefur komist yfir 21-blaðsíðna skjal framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem lagt verður fram miðvikudaginn 13. maí 2020

Þar verður tilkynnt –úr abstrakt og fjarlægu miðstýrðu austri– að Schengensvæðið mun líklega opna síðast allra svæða í heiminum, sökum þess að innan þess eru ríki sem hvorki eru á sömu blaðsíðunni né heldur að lesa sömu bókina. Þau eru jafnvel ekki á sömu plánetunni þegar að Wuhan-veirufaraldrinum kemur. Það sama gilti að sjálfsögðu um fjármálakreppuna 2008, sem þess vegna þróaðist yfir í varanlega kreppu innan ytri landamæra Evrópusambandsins, og geisar hún þar því enn

Hvorki Evrópusambandið né Schengensvæðið eru klár til opnunar á ytri landamærum þeirra. ESB og Schengensvæðið munu ekki opna ytri landamærin fyrr en að öll landamæri landanna innan þeirra hafa verið opnuð og það mun taka marga mánuði. Og sú opnun mun ráðast af lægsta sameiginlega nefnaranum innan svæðisins, sem er mjög lágur því að um síversnandi gjaldþrotasvæði á hnjánum er að miklu leyti að ræða

Byrjað verður á því að opna aðeins örfá og sérstök landamærahlið þar sem til dæmis árstíðavissum farandverkamönnum í landbúnaði ásamt fólki sem vinnur utan heimalands síns verður heimilað að komast til og frá vinnu. Hið sama mun gilda um heilbrigðisstarfsmenn

Þarna er aðeins um að ræða brotabrot þeirrar umferðar sem var áður en heimurinn hóf Whuanveiru-hamskiptin, sem að miklu leyti eru komin til að vera. Lönd verða einfaldlega að koma sér upp veiruþolgóðum atvinnuvegum og hætta að gera þjóðarbú sín út á tapsgefandi engisprettufaraldra, með ekkert eigið fé og sem aðeins fáir vilja starfa við úr þessu

Eitt mikilvægt atriði sem horft verður til, er að hægt sé að fylgja eftir sóttvarnareftirliti með farþegum í lestum yfir landamæri; til dæmis að tryggja að þeir séu með andlitsgrímur alla leið frá upphafi til enda ferðar

Engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi stærstu sumarfrísmánuðina ágúst og september. Enn fremur mun Schengensvæðið ekki heimila að fólk á ferð um svæðið sé látið undirgangast skimun eða sýnatökur á ferð þess um það, því lögin um Schengen banna að sóttvarnareftirlit sé viðhaft við innri landamærin

Þetta hefðu stjórnmálamenn átt að kynna sér áður en þeir gengu í Schengengildruna og lokuðu lönd sín af inni í því svartholi ESB-elíta

Allt þetta þýðir að Evrópusambandið og Schengen verða lokaður heimshluti lengur en flestir aðrir hlutar jarðar, því innan þess er óreiðan, getu- og stjórnleysið slíkt að þar hefur aldrei neitt virkað til eins né neins; ekki frekar en að hinn svo kallaði "innri markaður" ESB hefur virkað umfram það að vera alls ekki aðili að honum [hann er einungis kenning á blaði]. Hann er aðeins geðþótta- og kúgunartól þýsk-franskra elíta, sem veifa þurfa bara litla fingri og lokast þá markaðurinn allur þegar þeim einum sýnist svo eða ekki – enda er Stóra-Bretland að breyta hafnarinnviðum sínum á austurströndinni svo að hægt verði að skrúfa Dover-Calais hlekkinn sem liggur inn í sósíalisma Frakklands og hins hnignandi Þýskalands úr sambandi við hinn innri gervimarkað ESB, og þar með auka viðskiptaöryggi Bretlands gagnvart umheiminum öllum

Og flestir Íslendingar vita einnig allt of vel hversu ömurlegar bankageira-reglurnar voru og eru enn innan EES+ESB. Ekkert ríki með fullu viti getur lengur átt neitt mikilvægt undir Evrópusambandinu né Schengensvæðinu komið og sem Bandaríkin neyddust til að loka á vegna getuleysis beggja við að hefta útbreiðslu kínverskra Wuhanveira. Loka varð á það allt til að ná til nokkurra fárra landa sem náðu að smita meira en 50 önnur lönd

Allt þetta ófrelsi og meira til virðist forysta Sjálfstæðisflokksins ganga hve mest upp í af öllum hugsanlegum málum, á meðan hún buktar sig og kyssir afturendann á Kínverska kommúnistaflokknum. Ég skammast mín orðið fyrir flokkinn minn og það fólk sem afflutt hefur hann í kaf. Það hefur fórnað þjóðfrelsinu fyrir ekki neitt

Aðeins þjóðfrelsið gerir okkur Íslendingum kleift að lifa Wuhan-veirufríu lífi í okkar eigin landi, á meðan þjóðir sem litla eða jafnvel enga stjórn hafa í sínu eigin landi, falla vegna farsótta og pólitískra plága

INNRI PLÁGUR VESTURLANDA

Þegar forsætisráðherra vor kemst upp með að ávarpa þjóð sína og taka sér aldrei í munn orðið þjóðfélag hennar, en staglast hins vegar 13 sinnum á tísku- og gufuhugtakinu samfélag, þá veit maður að kommagrænmeikuð pólitísk tískudrós er við völd í landinu. Hún er að sjálfsögðu úr fóstureyðingarliðinu mikla er kvartar hve mest yfir Vesturlöndum, og heimtar í sífellu skilnað um leið og eitthvað bjátar á. Gefum VDH orðið:

UM GAGNRÝNENDUR VESTURLANDA

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur segir frá

Hafi menn frekari áhuga, má horfa á bóndann frá Selma í Kaliforníu og prófessor í klassískum fræðum og hernaðarsögu útskýra hvers vegna heimsveldi glóbalista Rómar féll, eftir að það flæddi út fyrir hið upphaflega lýðveldi; fall Rómarveldis

Fyrri færsla

General Motors kreistir hagnað út úr heimsfaraldri


General Motors kreistir hagnað út úr heimsfaraldri

Mér líst betur og betur á pallbílinn. Kannski verður það þetta sem tekur við af gamla SRT8 Jeep mínum

****

Hagnaður GM á fyrsta fjórðungi 2020 var 292 milljón dalir og er fyrirtækið eini bílaframleiðandinn sem skilar hagnaði á tímabilinu

"GM was the only Detroit auto maker to report a quarterly profit, while it, Ford and Fiat Chrysler seek to manage cash crunch and plunging demand." WSJ

Eins og Apple sem tókst hið ómögulega á fimmtudaginn í síðustu viku, þá tókst bílaframleiðandanum General Motors í Detroit í Michiganríki að að kreista framgang og hagnað úr úr fyrsta fjórðungi núverandi pestar-helvítis-árs, þökk sé góðri sölu á pallbílum sem hægt er að nota til bæði raunverulegra hluta og í neyðarástandi. Betra að vera um borð í pallbílnum sínum en að vera læstur inni í tveggja herbergja íbúð á 31. hæð með tvö börn í stórborg. Þarna kom pallbíllinn sér vel þegar flýja þurfti pestarvíti stórborganna og koma sér burt, því öll þekkingin sem átti að vera svo mikil þar, reyndist aðeins vera hlutfallsleg heimska. Íbúðarháhýsi með garð og sundlaug á þakinu í ofurþéttum heilabyggðum stórborga og þeirra borgar-stjóra sem þar sarga úr sér vitið, varð skyndilega það allra versta sem nokkur lifandi frjáls maður gat hugsað sér. Pestin lokaði túllanum á háskólunum sem ekkert höfðu fram að færa í faraldrinum, nema þras og fjas. Hinir fyrirlitlegu e. deplorables sem kusu Trump héldu í þeim lífinu með því að skaffa matinn á borðið og sem þeir hlóðu verslanir fullar af á nóttunni, beint frá heildsölum, trukkum, bændum og afurðarstöðvum. Sjómenn sáu um fiskinn

Mér líst betur og betur á þetta fyrirbæri, þ.e. ameríska pallbílinn. Kannski mun hann koma í stað flugvéla á næstu árum. Hver veit?

En það er þannig með hana blessaða Ameríku, að allt sem þeir taka til sín þar og sem Evrópa frussar við næstu tíu árin, tekur gamla Evrópa til sín á endanum og kennir Ameríku um - og súrmúlast yfir því, þar til það næsta nýjasta nýja kemur að vestan

Gott hjá ykkur hjá GM. Svona á að fara að því!

En fyrir nokkrum árum ákvað fyrirtækið að draga sig að mestu út úr framleiðslu á litlum fólksbifreiðum, því þar er samkeppnin öll um lægsta sameiginlega nefnarann –vörusvik og pretti– og því eitt stórt blóðrautt haf. GM ákvað að loka miklu af þessu niður, draga sig út úr gjaldþrota Evrópu og einbeita sér í staðinn að því sem allir Ameríkanar elska; þ.e. að stórum og dýrari bílum með mikið notagildi þar sem pláss er til að komast að með verkfærin í bílskúrnum. Allir Ameríkanar kunna að skipta um þetta og hitt í svona tækjum og gera við stóra bíla, skriðdreka líka. Sú kunnátta er þeim í blóð borin. Þetta vissi GM og þetta veit bandaríski herinn. Hver þýskur Tiger skriðdreki þurfti 7-10 tíma viðhaldsvinnu miðstýrðs sérfræðiteymis fyrir hverja klukkustund sem hann var í notkun

Er þetta ekki frábært?: Nú hafa Íslendingar nefnilega lært að panta vörur og í matinn á netinu, og þurfa því aldrei aftur að koma niður í þéttibyggð Reykjavíkur, þar sem aðeins veirur hafa það best. Nú er bara að panta pallbílinn, stækka bílskúrinn og stofna fyrirtæki með pallbílinn sem stjórnarformann - og hefja bílskúrskapítalismann til vegs og virðingar á ný, því þetta með háskólana gengur ekki upp. Enga háskólamenntun þarf til

Fyrri færsla

Wuhan-veiran: hvað er að frétta?


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband