Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013

Uppkast mitt á hinn versta mögulega stað eins þess versta sem við höfum séð

Á meðan DDRÚV og Áfram hópurinn slétta spor sín - kasta ég hér nokkrum endurminningum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra upp á veg hennar og þáverandi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra vegagerðar Samfylkingar Vinstri grænna - frá sunnudegi hins 10. apríls 2011 - og hins vegar sunnudegi Steingríms þann 10. mars 2010
 
Berlingske Tidende sunnudaginn 10. apríl 2011
Þetta er fyrirsögn Berlingske Tidende þann 10. apríl 2011. Þar segir Jóhanna Sigurðardóttir ESB-Samfylkingarforsætisráðherra Össurar ESB Skarphéðinssonar og Steingríms ESBJ. Sigfússonar, hins Vinstra græna, að íslenska þjóðin hafi kosið það versta yfir sig með því að standa á rétti sínum og verjast fjandsamlegum árásum og ofríki stjórnmálamanna erlendra ríkja —sem öll eru í uppleysandi Evrópusambandi við og gegnum hvort annað— gegn Íslandi. Það versta sem gæti gerst er að rétt skuli verða rétt fyrir íslensku þjóðina. Að með lögum og reglum Stjórnarskrár Lýðveldis Íslendinga, skuli lýðveldi það, standa til handa og fyrir alla Íslendinga sem bjargfast heimili að eilífu.

Í hverju málinu á fætur öðru er ríkisstjórnin opinberuð sem öflugasti fjandmaður þjóðarinnar, en ekki talsmaður hennar. Ríkisstjórnarlaust land væri betra en þessi verri helmingur þess versta sem stjórnmál geta mögulega boðið upp á. Ríkisstjórnin er fullkomlega umboðslaus og þjáist af dómgreindarskorti sem gerir hana óhæfa við stjórnun ríkisins. Hún er þjóðhættuleg. Jafnvel geðbiluð. Hugsið alvarlega um það. Sá frelsandi möguleiki virðist líklegri með degi hverjum sem líður. Slíkum möguleika ber öllum að taka alvarlega og jafnframt fagnandi. Rannsóknar ætti að krefjast. Stjórnarskrá Lýðveldisins þolir ekki að slíkri rannsókn sé slegið á frest endalaust.
 
Forsætisráðherra Íslands í nokkrum erlendum fjölmiðlum þá:
 
======
Johanna Sigurdardottir said the results were disappointing but she would try to prevent political and economic chaos ensuing. She said the repayment dispute would now be settled by a European trade court—which could impose harsher terms on Iceland than those rejected in Saturday's vote | Wall Street Journal 
======
Prime Minister Johanna Sigurdardottir called the results disappointing.  She has said a "no" vote would result in political and economic chaos (Þvert á það sem hún sagði á árinu áður) | Voice of America.
======
The Icelandic Prime Minister Johanna Sigurdardottir has predicted "political and economic chaos as a result of this outcome", but did not say if the government would resign | Sky News
======
Johanna Sigurdardottir, Iceland's Prime Minister, said the rejection meant "the worst option was chosen" and had split the country in two | BBC
======
“This matter will now be settled in the European Free Trade Association’s court,” Prime Minister Johanna Sigurdardottir said in comments broadcast by RUV, immediately after the first results were published | Bloomberg 
======
The worst option was chosen. The vote has split the nation in two,” Jóhanna Sigurdardóttir, prime minister, told state television, saying it was fairly clear the “no” side had won. [. . ] The prime minister, who had predicted a No vote would cause economic uncertainty for at least a year or two, did not say whether the government planned to resign | Financial Times
====== 
 
Um það bil 1000 aðrir fréttamiðlar vitnuðu í orð forsætisráðherra Íslands þennan apríl mánuð árið 2011.
 
Árinu áður sagði Steingrímur J. Sigfússon allra herja ráðherra gegn Íslandi — og sem þá óvart var fjármálaráðherra — eftirfarandi:
  • Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist ekki hafa kosið um Icesave í dag
  • Hann beri meiri virðingu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum en svo
  • Steingrímur benti á að það væru fáir sem vildu taka að sér að vera fjármálaráðherra á Íslandi á þessum tímum
  • Nú þyrfti að endurreisa landið og klára Icesave málið því fyrr kæmi fjármagn ekki inn í landið.
  • Jóhanna sagði þessa töf á málinu vera dýra og tilefni væri til að rannsaka hversu mikið hún hefði kostað.
Og Áfram-DDRÚV sléttar spor sín
 
Framhaldið á þessum ógeðfellda farsa á árinu 2010 má lesa hér: Hjónin Honecker snúa aftur og stórframkvæmdir hefjast loks á Íslandi
 
Það nýjasta er þó Castro.
 
Fyrri færsla
 

Tímakaup

Í fjögur ár hefur ríkisstjórnin keypt sér tíma. Keypt sér fjögurra ára tilvist fyrir sjálfa sig með fullkomlega ráðhertum svikum við kjósendur Lýðveldisins. Keypt sér til sólundunar fjögur ár af dýrmætum líftíma Lýðveldis Íslendinga, sem stofnað var til á Þingvöllum þann 17. júní 1944.
 
Keypi ríkisstjórnin svikin fyrir einmitt hart skaffaðan sjálfstæðispening þjóðríkis Íslendinga. Og hefur þar með misnotað og sólundað helstu auðæfum þess, sem er sjálft hart unnið frelsi, fullveldi og sjálfstæði það er forfeður okkar sköffuðu. Ríkisstjórn Samfylkinga og Vinstri grænna er tvísleginn svitabaðaður túlípani í vaxtarækt aumingjaskapar og svika.

Botnfrosið skautavell hinnar pólitísku kreppu, sem með svikum varð til í kjölfar eins bankahruns, dansar ríkisstjórnin um á illa fengnum skautavöldum. Forsætisráðherrann er botnfrosið skautasvellið sjálft og sem dag fyrir dag í fjögur ár hefur þykknað með pólitísku froðugubbi Steingríms J. Sigfússonar og Ögmundar Jónassonar í botnlausri —en vottaðri— heimskuleðju Össurar Skarphéðinssonar utan ríkis ráðherra. Skaðræðið er daglega baðað með kastljósi kommúnistaávarps DDRÚV.

Í lítilli smámunnalegri allzheimsvök skautasvellsins, siglir um sjálfa sig hér-stubbuð flokksforysta Sjálfstæðisflokksins, sem þar með í engri stöðu heldur engu. Hún er fleytt gúmmíönd. Bótoxbundin hún sjálfvirkt blés út sjálfa sig; er bankinn sökk. Hún unni ekki afkomu sjálfsins. Því er dividentinn eitt þrotið núll. Ein andvök
 
Við þurfum andvörn.
 
Fyrri færsla
 

Slæm hönnun og enn verra útlit

Hönnun snýst um sköpun einhvers sem virkar vel. Þessu má ekki rugla saman við útlit. Illa hannaða sköpun er ekki hægt að gera betri með bættu útliti. Vond hönnun er og verður vond, sama hversu vel hún lítur út. 

Evrópusambandið er vond hönnun. Ríkisstjórn Íslands er vond hönnun. Í það heila má segja að öll tilbrigði sósíalisma sé sama slæma hönnunin með mismunandi ljótri ásýnd. Virkar alltaf illa ef hún á annað borð virkar. Virkar þó aldrei í reynd. Skaðar hins vegar alltaf fólkið og tortímir þolanlegri tilvist mannanna í sköpunarverkinu. Erfðafræðilegt misfóstur.
 
Barátta frjálsra engilsaxneskra hægri manna sýnst alltaf um þetta. Baráttuna gegn heimsveldi hins slæma - og fyrir því góða.
 
Fyrri færsla
 
 

Evrópusambandið krabbameinsvaldandi mein

Hlutfall atvinnuleysis í 28 löndum ESB október 2012

Mynd: Úr svartbókhaldseríu hagstofu ESB.
Nýjasta myndin í þessari fjöldaseríu Evrópusovétsambandsins er útkomin; out now! 
 
Fyrstu tíu árin efaðist maður. Á fimmtánda árinu varð efinn að vissu. Evrópa er virkilega með krabbamein og það heitir Evrópusambandið. Næstu tíu árin fóru í að loka niður, pakka saman og að læra að lifa með tuttugu og fimm ára tómið og koma sér burt. Já, ég eyddi tuttugu og fimm árum á meginlandi Evrópu. Þessi heimshluti varð að einu stóru æxli undir og fyrir tilstilli fótaburðar nómenklattúru Evrópusovétsambandsins. Og ekki mátti heimshlutinn við meiru af því sama sem þar hafði svo oft farið fram - og alltaf aftur - upp á bak hennar. Restin, fimm hundruð milljónir manna, komast þó ekki. Svo mikið er víst. 

Stofnfélagar í Vinstri grænum hvelli eru nú að komast á fjórtánda árið í sjúkrasamlagi sínu við formann þann. Þeir eru að nálgast fimmtán ára vonbragðið. Bráðum verður líkneskið byggt og leshringlaga bekkur stofnaður; bæði fyrir framan og aftan samfylkt kremlið. Umhverfis blámennin úr glæplygasagnfræðum Maxíms af Gortkví er byggt.

Írinn Kevin O’Rourke segir einmitt í bloggfærslu þriðjudagsins að Evrópusambandið sé krabbameinssjúklingur. Atvinnuvonleysið er þar svo algert, svo krónískt og svo ólæknandi. Sjúkrahús Evrópusambandsins var hins vegar opinberlega útskýrt fyrir almenningi sem meðferðarstofnun við hjartaáföllum. Þar liggur hún öll í meðferð við hjartadauða á meðan krabbameinið breiðir sig út um allan líkama hinna tuttugu og átta útlima sem verið er að skera af, því þeir standa á útendaborðhaldi ESB-ríkisstjórnar Össurar Jóhönnu Steingríms. Fyrirmyndin er Coma. Lygaþvættingur frá upphafi. Evrópusambandið er upphafið handfangið á endaloki Evrópu.

Á meðan skriftar einn og oft sami evrusjúklingurinn í skyggnilýsingum fyrir lesendum hins eina dagblaðs landsins, að allir þeir sem læsir eru, séu einmitt fábjánasöfnuðurinn sjálfur. Að það sé íslenska krónan sem sé satan (í oss). Ekki kom nú meira í ESB-bleyju þeirra í þetta skiptið. Þessa þrúgandi útskitnu. Í tveggja herbergja vosbúð sambandsins, með tuttugu og sex klósettum, lyktar illa

"I was interested to see a Bible by your bed. You actually find time to read it?"
 
"I sure do. Every goddamn day."
 
- George S. Patton 
 
Fyrri færsla
 

. . some of you, . . some of you . .

 
Gleðilegt nýtt ár. Hinn innsiglandi ókeypis markaður er hratt vaxandi og það þýðir að lýðræðið mun þurrkast út.
 
the new "free" market
Ultimately, it takes two to make a monetary-based economy:
investors and spenders 
 
Izabella Kaminska á Financial Times hittir vel í mark á byrjunarreit ársins. Þegar allt er orðið "ókeypis" (enska: free; danska: gratís) og allt of margir hafa depónerað sjálfum tilvistargrundvelli sínum ofan í ríkissjóði og stofnanir ríkisstjórna; sem meðal annars mergsýgur hratt fækkandi skattgreiðendur sem lifa á launum frá verðmætaskapandi fyrirtækjum; og sem síðan deilir þaðan út dópi narrhertra stjórnmálamanna til gratísistanna; þá er endirinn vís. Þegar allt er orðið ókeypis, mun ASÍ þá sjálft geta lagt sig niður og sagt sig á þann bæinn sem það alltaf hefur borað sig ofan í inni í seinni-tíma bandalagi við t.d. DDRÚV'ista —nær sem fjær— og sem samkvæmt eðlisskilgreiningu málsins eru eilífir gratísistar sem vinna sér þar til þeirrar skemmtunar sem Kaminska m.a. fjallar um í greininni? Og sem fara svo þaðan út í "gratís-pólitík"? Ekkert lýðræði þolir að nær allir kjósendur standi með annan eða báða fætur fast steypta ofan í kössum hins opinbera, sem þá afmyndast í dópsölu stjórnmálamanna.
 
Financial Times: What these safe asset investors fail to recognise, however, is that the process actually transfers the capital allocation decisions to government instead — since the other side of any safe asset investment is almost always government, meaning its existence is almost entirely dependent on government spending.

Þess vegna verða menn ávalt að muna orð frú Margrétar Thatchers; "if you pay nothing, you care nothing". Annars verður þú og vinnuafl þitt —frekar fyrr en síðar— ókeypis og einskis virði.

Að starfa sem verðmætaskapandi fyrirtæki á svo aðframkomnum og hratt vaxandi gratís-markaði af öllu, eins og Isabella Kaminska fjallar um í grein sinni, er eins og að reka fyrirtæki sem verandi Evrópusovétsambandið í Brussel; sem er alhöll narrriðinna gratísista. Sem er eins konar Open ESB Office orgía full af gratísistum þar sem "bug ridden shitware" í formi reglu- og lagakóða í endalausum textarunum eru framleiddir af endalaust launalausum ung- og miðaldursmennum sem kompæla sig gratís í skemmmtihel fyrir nomenklattúru elítuveldisins. Allt saman ókeypis. Af hverju lætur fólk stinga framtíðinni svona undan sér?

Og þegar götusteinahendandi lýður með steininn í annarri hönd og velferðartékkann frá ríkissjóði í hinni, sækir að lögum og rétti Lýðveldisins, þá má giska á að stutt sé í að the gangster elements hefji sig til valda í því örugga skjóli sem kastið veitir. Hvað var ASÍ að gera þann dag? Og hvað er ASÍ að gera í málum hins þverrandi launaða vinnumarkaðs sívaxandi gratísista. Af hverju er ASÍ ekki búið að verkfella óverknaði nómenklattúrunnar sem straujar út hinn launaða vinnumarkað í alhöllum Brusselveldisins í öllum tuttugu og átta lendum Evrópusovétsambandsins?

Suckers!
 
Nixon á að hafa nefnt hin umræddu "gangster elements"
En hvernig skyldu pólitísk "gangster elements" líta út?
Um þau eru til dæmis starfræktir leshringar
 
 
Fyrri færsla
 
 
Tengt;
 
Bernard Connolly; The International Economy, veturinn 2011;

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband