Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2016

Evrópusambandið er ógn við þjóðaröryggi

Hver sagði þetta? Jú fyrrum yfirmaður bandarísku öryggis- og leyniþjónustunna CIA og NSA, Michael Hayden hershöfðingi

Evrópusambandið er ekki, frá mannlegri náttúru séð, mögulegt framlag til þjóðaröryggis aðildarríkjanna. Sambandið grefur undan þjóðaröryggi með því að vera fyrir og hindra. Þetta sagði hann við breska ríkisútvarpið

Sem sagt: eðlislæg náttúra fyrirbæris eins og Evrópusambandsins er sú að það getur ekki, samkvæmt mannlegu eðli, aukið, stuðlað að né varðveitt þjóðaröryggi landa, því að sambandið er fjandsamlegt hinni náttúrlegu skipan sambýlis manna hér á plánetunni. Skipan sem aðeins Biblían hefur fært til bókar og bókunar um sambúð fólks í veröldinni: þ.e. þjóð-ríkið sem stofnun. En það, þjóðríkið, er í fremstu röð manngæskuberandi stofnana mannkyns nokkru sinni

Það er hinum heilögu ritningum að þakka að Vesturlönd (the West) eru meistarar "modernity" og eru einmitt af öðrum hötuð fyrir að vera það. Hötuð af meistara-töpurum modernity fyrir að hafa náð svona langt eins við höfum gert - með dyggri aðstoð ritninganna

Það sem Michael Hayden segir um þjóðaröryggi landa í Evrópusambandinu gildir einnig um peninga- og fjárhagslegt öryggi esb-landa og einnig um fullveldisöryggi þeirra. En fullveldi og sjálfsákvörðunarréttur þjóða er einnig framlag hinna heilögu ritninga til mannkynsins. Gjöf til mannkynsins ásamt landamærum þeirra sem meðal annar eiga að hindra að fyrirbæri eins og Evrópusambandið þurrki þau út með útþenslu til að reyna að drottna yfir allri veröldinni

Þeir sem þola ekki hinar heilögu ritningar Biblíunnar þola heldur ekki Vesturlönd því að þau eru byggð upp með og á þessum ritningum. Og Vesturlönd eru uppreisnin mikla og útgangan; Exodus - með sjálfan hornstein Vesturlanda í Jórsölum

Þeir sem vilja ekki verja Kirkju sína, vilja heldur ekki verja Vesturlönd og áttavita þeirra. Áttavita sem Evrópusambandið hafnaði sem tilvistar- og sáttmálalegum hornsteini. Því án hinna heilögu ritninga Biblíunnar geta Vesturlönd ekki haldið áfram að vera til sem Vesturlönd: sköpunarverk uppreinsnar og útgöngu: sjálfur Exodus með fjörutíu ára eyðimerkurgöngu til þrautavarna

Evrópusambandið þarf því að stöðva og leggja niður. Það er ógn við frið og áframhaldandi tilvist Vesturlanda og framfarir í veröldinni

Mér finnst lífið gott. Og hið góða líf mitt undir himni Vesturlanda vil ég verja - helst með kjafti en jafnvel klóm

Krækja

Former CIA Director: "EU is a Threat to Security" 

Fyrri færsla

Í dag gerðist þetta


Í dag gerðist þetta

Ung stúlka datt ekki af hestbaki. Almenningur þurfti ekki að borga

Fjórir eða jafnvel fimm menn vélsleðuðu ekki fram af hengiflugi við frístundaiðkun. Ekki þurfti að eyða milljónum af fé almennings í að bjarga þeim frá sjálfum sér

Nokkrar bifreiðar komust á höfuðborgarsvæðinu klakklaust í gegnum þrjár götur. Ekki þurfti að afskrifa eitt ár á einum degi af líftíma þessara bifreiða. Innflutningur minnkar því og gjaldeyri sem sjávarútvegurinn aflar þurfti ekki að ausa úr varasjóðum þjóðarbúsins sem handbærir voru og verða áfram er bankar bráðna og allir ferðamenn gufa upp innan fimm ára, þegar Ísland hefur verðlagt sig út úr veröldinni

Í dag var ekki byggt hótel og tvær fasteignir seldust ekki. Umferð tókst ekki að þyngjast og fjórhjól valt skilyrðislaust

Þetta voru fréttir dagsins. Allt er vel

Fyrri færsla

Aðvörun: Ríkisstjórn Bandaríkjanna varar bandaríska ríkisborgara við að ferðast til og um heimsálfuna Evrópu

 


Aðvörun: Ríkisstjórn Bandaríkjanna varar bandaríska ríkisborgara við að ferðast til og um heimsálfuna Evrópu

 

Lenín í gömlu Sovétríkjunum

Mynd: Evrópa 1918

-------------------------

Ríkisstjórn Bandaríkja Norður-Ameríku, þann 22. mars 2016 e.Kr

Bandarísk yfirvöld vara Bandaríska ríkisborgara við "að taka sér ferð á hendur til heimsálfunnar Evrópu og vara einnig við því að ferðast innan hennar, í kjölfar fjölda hryðjuverkaárása í löndum álfunnar, þar með talinni árás á borgina Brussel í Belgíu hinn 22. mars 2016 sem ISIL, þ.e. "ríki Íslams í Írak og á svæðum í löndum fyrir botni Miðjarðarhafs" (Levant), hafa lýst ábyrgð á. Hryðjuverkahópar halda áfram að skipuleggja árásir um gjörvalla Evrópu og eru skotmörkin meðal annars íþróttaviðburðir, ferðamannastaðir, veitingastaðir, samgöngur og vöruflutningar. Þessi aðvörun gildir til 20. júní 2016.

Bandarískir ríkisborgarar ættu að viðhafa aukna árvekni í opinberu rými og þegar þeir nota fjöldasamgöngur. Verið árvökul gagnvart umhverfinu á hverri stundu og forðist mannfjölda. Viðhafið sérstaklega varúð undir trúarhátíðum, fjöldahátíðum og atburðum", segir tilkynningin.

Íslensk yfirvöld hljóta einnig að vara Íslendinga og íslensk fyrirtæki við á sama hátt. Og vara þar með útlendinga við að koma til Íslands, þar sem öryggismál eru EES-beintengd inn í ESB-svarthol og á leikskólastigi. Og þar sem allt er píp-opið á alla kanta og gjörvallt landið opið fyrir hverju og hverjum sem er, hvenær sem er

Það hlýtur einnig að vera ábyrðarhlutur að hýsa erlenda gesti undir þannig vandlega barnalega sérhæfðum óviðbúnaði undir stjórnarfari ráðaleysis og óskhyggju um ekkert öryggi. Stefnu sem felst helst í hátt greiddu blaðri á kostnað skattgreiðenda, holum í strætum og vegum og varnar- og mannlausum landshlutum fremstu öryggis- og varnarmálanískupúka veraldar

Fregnir herma að belgísk ESB-lömuð yfirvöld reyni að hylma yfir eða þagga niður morð á öryggisverði í kjarnorkuveri landsins, sem öryggisskilríkjum- og tækni hafði verið rænt frá. Öryggisþjónustur Bandaríkja Norður-Ameríku hafa tilkynnt Evrópu að árásir á kjarnorkuver í Evrópu séu á hernaðaráætlun ISIL, sem ræður yfir jafnvel tugum þúsunda hermanna innfluttum af ESB-yfirvöldum sjálfum inn í Evrópu, áratugum saman. Í Frakklandi opinberuðust yfirvöldum einnig fyrirhugaðar árásir þessa innvortis hryðjuverkahers á fæðingardeildir í París í kjölfar árása þar sem hátt í 200 borgurum var slátrað í borginni á einum og sama degi í nóvember 2015.

Í október 2014 féll tæknimaður öryggisdeildar belgísks kjarnorkuvers sem íslamisti í bardögum í Sýrlandi. Belgíska ríkisstjórnin reyndi að þagga málið niður og tveim mánuðum eftir árásirnar í París í nóvember síðastliðinn, settu belgísk yfirvöld eftirfarandi áróðursmyndband í umferð: Heimsækið Brussel. Þessi tæknimaður innstu öryggismála kjarnorkuversins í ESB-Belgíu hafði staðist öll öryggispróf og uppflettingar, en féll svo sem vígamaður ISIL í Sýrlandi. Slík vanræksla og fúsk í svo mikilvægum öryggismálum er yfirþyrmandi áfall fyrir hundurðir milljóna Evrópubúa. Sama mun koma í ljós um allt í Evrópu, bankar og fjármálastofnanir eru þar meðtaldar, því ekkert virkar í Evrópu. Ekkert. Heimsálfan er ónýt

Árið 2007 fór síðasta landhreinsun Ísraelshers fram í Sýrlandi þegar lofther Ísraelsríkis sprengdi kjarnorkuvopna-framleiðslustað ríkisstjórnar Sýrlands, Norður-Kóreu og Írans í tætlur í Sýrlandi, með Operation Orchard. Þar áður hafði Ísraelsher þurrkað kjarnorkugetu Íraks undir uppbyggingu út árið 1981. Í Sýrlandi hafði ríkisstjórnin verið heil fimm ár gangi með kjarnorkuvopnagetu-framleiðslu- og smíði með aðstoð ríkisstjórna Norður-Kóreu og Írans, án þess að nokkur nema ríkisstjórn Ísraels uppgötvaði það í tæka tíð og tæki til sinna ráða, sem hún og gerði. Annars væri staðan önnur og mörgum sinnum verri en hún er í dag

Óska ég öllum góðra Páska

 

Kirkjugarður gyðinga í Evrópu 2015

Mynd: Evrópa 2015

-----------------------

E: Europe Travel Alert

The State Department alerts U.S. citizens to potential risks of travel to and throughout Europe following several terrorist attacks, including the March 22 attacks in Brussels claimed by ISIL. Terrorist groups continue to plan near-term attacks throughout Europe, targeting sporting events, tourist sites, restaurants, and transportation. This Travel Alert expires on June 20, 2016.

U.S. citizens should exercise vigilance when in public places or using mass transportation. Be aware of immediate surroundings and avoid crowded places. Exercise particular caution during religious holidays and at large festivals or events.

Nánar:U.S. Department of State: Europe Travel Alert

Fyrri færsla

Ófriðarbatterí ESB komið heim til hleðslu í Brussel


Ófriðarbatterí ESB komið heim til hleðslu í Brussel

Evrópusambandið hefur fært löndum þess ófriðarhættu, hryðjuverk, upplausn, atvinnuleysi, stöðnun, vonleysi, fjárkúgun, fjármagnshöft, peningaskömmtun, lömun, getuleysi, feigð og náttúruleysi, trúleysi á alla framtíð og niðurbrot þjóða. Siðferðilegur grundvöllur þess er hin stóra mannlega eyðimörk út í eitt án sérkenna og neins sérstaks, nema þurrks og auðna

Í gær náðist enn einn áfanginn í niðurbroti ESB-ismans á Evrópu. Í gær var hátt í fjörutíu manns slátrað og meira en tvö hundruð særðir skammt fyrir utan aðalstöðvar Evrópusambandsins í borginni Brussel í Belgíu á altari hórfrelsis sambandsins, sem á fagmáli þess kallast "fjórfrelsi": ég bý í landi X en drep í Y og er á framfærslu Z

Hve lengi getur þetta elítubatterí andskotans haldið áfram að hlaða sig endurgjaldslaust. Ekki mikið lengur. Ekki mikið lengur án endurkomu þið vitið hvers. En eins og ávallt, mun sambandið krefjast meiri þurrks og stærri auðna sem lækningu við minni þurrk og óbreyttri auðn

Evrópusambandið framleiðir hörmungar til þess eins að ofurlaunaður herafli þess geti starfað við að leiðrétta þær með nýjum og enn ömurlegri hörmungum. Og haldið því áfram þar til að Evrópa öll og þjóðir hennar liggja sem sá ákjósanlegi pólitískt sundurtætti glóðvolgi jarðvegur stjórnleysis er kallað getur úr sér brætt Frankensteinveldi álfunnar til lífs á ný. Kallað fram gamla heimsveldið með hina keisaralegu abstraktion við andþjóðleg völd sem aldrei rúmast geta innan lýðræðislegs stjórnarfars, sjálfsákvörðunarréttar og friðar á meðal ólíkra þjóða með ólíka menningu. Þá er sambandið loksins komið heim þegar óábyrg abstraktion langt úti við sjóndeildarhring er komin með full völd á ný

Þarna gengur allt samkvæmt áætlun. Og hér heima þurrka menn sér EES-lamaðir á friðþægingar reglugjörðum sambandsins til sjálfsblekkinga og iða sér í fótabaði lömunar á meðan þeir halda að einhver annar úti við sjóndeildarhring á fjarlægu EES- og esb-level, andi og hugsi fyrir þá

Út með EES! Inn með landamæri á milli lífs og dauða


Hittir ryðgaðan Erfðahreppsnagla á höfuðið

Ríkissjúkrahús er ekki hreppsmál

Kristinn Snævar Jónsson hittir naglann á höfuðið þegar hann segir: Kárna nú rökin fyrir katakombuklastrinu við Hringbraut

Já Kristinn, þú hittir þennan ryðgaða Erfðahreppsnagla á höfuðið. En ekki er við öðru að búast en svona skrifum frá nagladeild sem heldur að hún sé hreppshamar. Öllum má nú nokkuð ljóst vera að geðheilbrigðiskerfið að þrotum er komið, ef ég mætti vera svo djarfur að impra á því. Annars væri ekki verið að reyna flytja þetta mál á þennan hátt - eins og að um venjulegt hreppsmál væri að ræða. Katakombuklastur er einmitt réttnefni á því sem þegar er staðreynd og getur aðeins enn verra orðið

Nýtt ríkis-háskólasjúkrahús þarf um rúmlega einn ferkílómetra af frjálsu óbyggðu landrými til að vaxa í áratug eftir áratug. Það yrði í umsvifamikilli byggingu í að minnsta kosti heilan áratug og tekið í friðsæla notkun í áföngum. Það yrði stærsti byggingarstaður landsins í langan tíma með 500-1000 manns vinnandi við byggingu þess. Ef ekki, þá er einungis um viðbyggingu að ræða, en ekki nýtt sjúkrahús

Byrjunarþörf á bílastæðum væri ca 3000 stæði og fullbyggt yrði þörfin ca 6000 bílastæði og 30-40 þúsund bílferðir á dag. Það er sprenghlægilegt að menn skuli yfir höfuð láta sig dreyma um að hægt sé að troða og klaska svona framtíðarverkefni niður innan núverandi byggðar höfuðborgarsvæðisins

Eftir aðeins 50 ár verður íbúafjöldi landsins 450-500 þúsund manns og 130-150 þúsund íbúar hafa bólu-bæst við á höfuðborgarsvæðinu, vegna krónískrar fjarveru byggðastefnu fyrir Lýðveldið Ísland. Take that!

Nýtt ríkissjúkrahús þarf að geta þjónað öllu landinu um langa framtíð. Það mun einnig verða nálægðar-miðstöð lækninga fyrir næstu nágrannalönd: Færeyjar, Grænland, jafnvel Nýfundnaland og bandaríska sjóherinn, sem mun þurfa að hafa svakalega aukna viðurvist á Norður-Atlantshafi um langa framtíð, sem stigmagnandi óvissuþættir ríkja um

Menn þurfa að skoða sig um utan skotgrafa sinna. Ekki má byggja enn eina einbreiðu brúnna í viðbót í þessum málum

Eins og Sigmundur Davíð forsætisráðherra, þá hef ég einnig mikla og sterka trú á framtíð Íslands. Það hafa okkar báðir Davíðar Íslands haft, og barist hart fyrir henni. Þess vegna heyrast jú þessi urg

Hæstvirt Alþingi, æðsta stofnun Lýðveldisins, ætti svo að flytja inn í glæsilega virðulega gamla og hvíta byggingu gamla Landspítalans, með beinu flugi í öll kjördæmi. Andrúmsloftið í gamla Alþingishúsinu er orðið of þrúgandi lítið fyrir stjórnmálin. Þau þurfa á meira og betra súrefni að halda til að geta andað

Fyrri færsla

Landspítali Seltjarnarness á frímerki


Landspítali Seltjarnarness á frímerki

Höfuðborgarsvæði Íslands

Ekki út í sjó: Öll börn sjá hvar byggð getur numið nýtt land fyrir 120 þúsund manns í viðbót á næstu 50 árum

Það er ótrúlegt en satt, að margir -og mest af svakalega duttlungafullum persónulegum ástæðum, er dellu líkist- hafa farið fram á að nýtt Landsjúkrahús Íslands: Ríkissjúkrahús, verði byggt niður í flöskuhálsinn til Seltjarnarnesskaupstaðar, eins og að um aðalstöðvar fótboltafélags eins borgarhluta væri að ræða

Allir sem líta á landakortið sjá að þetta er furðulegur staður fyrir nýtt sjúkrahús, hvort sem um "háskólasjúkrahús" (sjúkrahús með rannsóknarstofum) er að ræða eða ekki. Nýtt sjúkrahús hefur ekkert með gamla sjúkrahúsið að gera, mannvirkjalega séð. Það yrði nýtt sjúkrahús, en ekki viðbygging við það gamla. Svo hvers vegna ætti að byggja niður nýtt sjúkrahús í trekt. Það skil ég ekki.

Nýtt stórjarðskjálfta-öruggt ríkisháskólasjúkrahús sem því rís ekki of hátt og sem á að duga næstu 50+ árin þarf að minnsta kosti 1,2 milljón fermetra pláss eða 120 hektara lóð (1,2 km2) til að vaxa í til að geta þjónað 400-500 þúsund manns, staðsett á höfuðborgarsvæði sjálfstæðs lýðveldis í miðju Norður-Atlantshafi. Það er landrýmið sem tryggja þarf sér undir nýtt ríkissjúkrahús. Svipað og Region Midt-Jylland hefur tryggt sér undir Aarhus Universitets Skejby Sygehus í heilsubætandi umhverfi fjarri miðborg og delludaðri (loftmyndir af byggingasvæðinu 2015). Þörf yrði fljótlega á 6 þúsund bílastæðum við Ríkissjúkrahúsið og umferð yrði mjög fljótlega 30-50 þúsund bílferðir á dag

Á Íslandi dagsins í dag er ekki lengur byggt. Nei nei, nýju bólu-hugtaki hefur verið komið fyrir í eyrum landsmanna, en það er hugtakið "uppbygging". Orðið "uppbygging" fer ásamt "heiminn um kring" og "heyrðu", eins og eldur í sinu um heilahveli þorra landsmanna. Afbökun ofan í afbökun og svo kemur hér bara einföld trekt - tja, kannski til afnota fyrir þá sem þjást af þessu meinta "heyrðu" heyrnarleysi

Nýja Alþingishúsið

Nýja Alþingishúsið - beint flug í öll kjördæmi lýðveldisins

Alþingi gæti síðan með sóma flutt inn í flott gamalt húsnæði gamla Landspítalans, þ.e.a.s verði trektin tekin frá vitum óvitanna sem fara fram á kyrkingarstaðinn við Hringbraut - sem ekki er hringbraut

Fyrri færsla

Rétti tíminn til að hertaka Þýskaland


Rétti tíminn til að hertaka Þýskaland

Núna er rétti tíminn fyrir Frakkland til að gera innrás í Þýskaland og hertaka það. Charles de Gaulle var ekki bara stjórnmálamaður heldur einnig hershöfðingi. Hann vissi --geng ég út frá-- að það sem stýrir stjórnmálum landa, er fyrst og fremst landfræðileg lega þeirra. Völd landa til handa sjálfum sér, mótast síðan út frá þeim grunni. Restin er grænmeti. Einu landamærin sem Frakkar þurfa að hafa verulegar áhyggjur af, eru þar sem norðursléttan, sem nær til Úralfjalla, mætir franska lýðveldinu á evrópska flatlendinu mikla

Já. Til að halda utanum þann grunn sem landafræðin frá náttúrunnar hendi býr löndum, notast menn í stjórnmálum við hernaðar- og efnahagsmátt. Þau eru tækin og tólin sem til umráða eru. Restin er að sjálfsögðu bara grænmeti eins og kunnugt er

Maður lokkar til dæmis löskuð og veiklynd græðgisríki inn í gildrur eins og Evrópusambandið er, og gerir þau hægt og rólega að aumingjum. Gerir þau að efnahags- og hernaðarlegum krypplingum. Þýskaland er orðið bæði efnahags- og hernaðarlegur aumingi. Það er einnig landfræðilega berskjaldað

Frakkaland getur kippt hinni lágu gervi-gengisskráningu þýskrar evru undan þýskum efnahag með því að innleiða frankann í Frakklandi á ný. Við það hækkar gengi Þýskalands um 97 prósent. Gámarnir í útskipunarhöfn Hamborgar myndu þá samstundis að saltstöplum verða. Engin innri eftirspurn er til í Þýskalandi sökum elli þjóðarinnar og erfðafræðilegrar nísku. Hana verður landið því að sækja til einstaklinga og fyrirtækja sem tímt og nennt hafa að eignast börn; þ.e. til erlendra neytenda

De Gaulle lagði einnig ofuráherslu á frjósemi í sínu landi. Það gerðu Þjóðverjar alls ekki. Þeir eru því flestir orðnir geldir sökum framskriðinnar elli út um allt. Ófrjósemi Þjóðverja er orðin líkamlegt vandamál sem engin lækning er til við. Frakkar verða því fjölmennari en Þjóðverjar eftir aðeins nokkur ár. Þetta vissi De Gaulle að yrði. Hann bjó því líka til kjarnorkusprengjur í passandi mæli með force de frappe áætluninni. Þær eru eldveggur mikill sem mark er takandi á

Þetta liggur í augum uppi. Maður býr til búr, til dæmis Evrópusamband, sem svalað getur erfðafræðilegri valdasýki Þýskalands um stund. Heimilar því að leika sér inni í búrinu um stund. Líta má einnig á búrið sem nokkurs konar sandkassa. Og lokar þá reyndar alveg af inni í búrinu því. En þegar óþægilegt er hins vegar orðið að búa í búrinu saman með frekjudýrinu, þá þarf Frakkland um leið að yfirgefa búrið á meðan það enn er óétið. Þegar Frakkland er farið úr búrinu, þá situr Þýskaland þar öskrandi eftir

Þetta gætu Frakkar gert núna. Þeir gætu jafnvel í leiðinni rúllað alveg yfir allt þýska elliheimilið og hernumið það til frambúðar. Þjóðverjar láta vel að stjórn og eru þess utan að hverfa á brott úr mannkynssögunni, sökum elli og nísku. Auðvelt er því að hernema þá og sitja á þeim. Þetta er eiginlega bráðnauðsynlegt, því ekki vill maður að neinn certain annar setjist að á þessum slæmu slóðum, er brátt verða bara eitt dautt mannhaf

Frakkar hafa ógnarvopnin, mannaflann og heraflann, gengið og reynslu af rekstri búrhænsna í höndum sér. Eitthvað á þessa leið hljóta menn að hugsa í fimmta franska lýðveldinu. Því að tilvera Frakka inni í Evrópusambandsbúrinu átti ekki að gera frönsku þjóðina að nýrri máltíð fyrir valdasjúkt Þýskaland

Höfundur er hægur höfgamaður og hafið er stórt!

Fyrri færsla

Innistæðutryggingakerfi Evrusvæðis drepið í fæðingu - þýskir bankar "fullir af eitri"


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband