Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Á þessum stað er Samfylkingin og Vinstri grænir orðin þreytt. Við viljum ekki þreytta menn

 
Morgunblaðið laugardaginn 20 maí 1944 forsíða
 
Morgunblaðið laugardaginn 20. maí 1944, forsíða - Tímarit.is
 
Tæpum sjö áratugum seinna 
 
Eftir 67 kraftaverkaár frelsisins stendur íslenska lýðveldið í fremstu röð hvað flest varðar. Á aðeins 67 árum hafa vöðvar frelsisins unnið kraftaverk sín á Íslandi af fullum og óþreytandi krafti. Athugið: Þetta eru aðeins tæplega sjö áratugir. Sjö áratugir. Án frelsis og fullveldis hefði þetta ekki getað gerst og aldrei orðið.  

Frelsið er og verður alltaf vöðvabúnt heilastarfsemi mannsins. Það knýr heilann til sköpunar og verka. Við erum menn en það er þó aðeins heili okkar sem getur búið til velmegun. Í spennutreyju ófrelsis og ósjálfstæðis visna vöðvar frelsisins sjálfkrafa og velmegun hættir að geta orðið til. Þjóðfélög sem einu sinni voru frjáls samfélög manna hrynja og deyja í fátækt ef þau missa vöðvaafl frelsisins, og sérstaklega ef þau hætta að nota það. Litlu munaði hérna á Íslandi fyrr á öldum. Þrauka og þrauka þurfti, öldum saman. Íslenska moldin er full af svita og tárum örbyrgðar fyrri alda. Þetta hefði getað verið öðruvísi en það var það ekki því við vorum svo lengi án frelsis.    

Já við frelsinu
Afrakstur mannanna í ófrelsi og ósjálfstæði verður alltaf lítill og oft enginn. Hið opinbera getur ekki búið til velmengun. Þess vegna dóu Sovétríkin. Þau dóu í fullum rekstri áætlunarbúsakpar í faðmi hins opinbera og sem skilaði engu því ekkert getur orðið til í þannig faðmlögum. Evrópusambandið er að verða eins. Það er að deyja í æ fastara faðmlagi ófrelsis og í kossi dauða þeirra sem sest hafa á ný í opinberunarstóla nýrra konungsdæma miðstýringar sem stanslaust skrifa út lyfseðla með öndunar- og lömunarveiki og reglum sem svipta þjóðir Evrópu frelsinu á ný. Lýðræði er þar á undanhaldi og velmegunin er það líka. Fátæktin er þegar byrjuð að sverfa að því frelsi þjóðanna í ESB er að visna. En þá er bara beðið um mjúka fæðu því tannlaus eru löndin orðin og Brussel heldur á pelanum sem einu sinni var fullur, en sem hratt er að tæmast á ný. Endalokin verða ekki fögur, en löng og ströng.    

En Samfylkingin og Vinstri grænir, sem eru einn til tveir og stundum þrír stjórnmálaflokkar í vasa fámennrar valdaklíku setuliðs Alþingis, og sem eru á stanslausri framfærslu skattgreiðenda í einu ríkasta lýðveldi heimsins, eru því miður orðin þreytt á frelsinu og þreytt á að axla ábyrgð á framtíð lýðveldis okkar. Þessi hafa gefist upp og eru byrjuð að æla í askana. Tilhugsunin um að fá ekki kollvarpað stoðum lýðveldis okkar á örstuttum örvæntingarvaldatíma er að verða Samfylkingunni óbærileg, og valdagræðgi Vinstri grænna hefur heltekið forystu þeirra. Gin- og klaufaveiki Samfylkingarinnar hefur smitað út frá sér. Nú á að sæta lagi og hrifsa fullveldið af þjóðinni aftur í skjóli áfalla- og hræðslukasta sem ríkisstjórnin býr að miklu leyti til sjálf. Það sem þessir flokkar krefjast - nú sjö áratugum seinna - af Íslandi er þetta;   

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í peninga, vaxta og myntmálum

Að okkur verði skylt að leggja niður okkar eigin mynt

Að við megum aldrei aftur gefa út okkar eigin peninga

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í fiskveiði- og landbúnaðarmálum. Grunnatvinnuvegum okkar. 

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í viðskiptum og yfir viðskiptalöggjöf

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í yfirráðarétti okkar yfir æðstu löggjöf sem þá verður samin, smíðuð og dregin yfir höfuð okkar af erlendum ríkjum

Að við töpum æðsta fullveldi og lokaorði Íslands yfir eigin lagasmíðum

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir okkar eigin refsilöggjöf

Að við töpum næstum öllu fullveldi Íslands yfir löggjöf atvinnumarkaðar

Að við töpum næstum öllu fullveldi Íslands yfir viðskiptaeftirliti 

Að við töpum hluta af fullveldi Íslands í skattamálum. Þetta fullveldistap fer vaxandi með hverju árinu sem líður.

Að við töpum öllu fullveldi Íslands yfir utanríkisstefnu

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir varnarmálum

Að við töpum stærstum hluta fullveldis Íslands í innflytjenda og flóttamannamálum

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir ríkisfjármálum og þar með fullveldi okkar í velferðarmálum. Þetta tap mun fara hratt vaxandi á næstu árum og áratugum. 

 
Hvað er þá eftir? Dauði íslenska lýðveldisins að kröfu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. 

Þetta er gersamlega óþolandi hundsfrekja. Ætlum við að láta þetta ganga yfir okkur eina ferðina enn? 
 
Fyrri færsla

Evruríkjaskuldir orðnar tapsgefandi fyrir alþjóðlega fjárfesta

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland 
Mynd. Skoðað í pakkann; Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland
 
Fyrsta fjármálafyrirtækið hefur nú tilkynnt að það bókfæri hér með fjárfestingar sínar í ríkisskuldabréfum evru-ríkis Evrópusambandsins sem tapsgefandi fjárfestingu og væntir þar með ríkisgjaldþrots evru-ríkis. Um er að ræða austurríska fjármálafyrirtækið Vienna Insurance Group og fjárfestingar þess á hinu svo kallaða örugga myntsvæði Evrópusambandsins sem nú þokast hægt en örugglega nær brún hengiflugs fjöldaríkisgjaldþrota og upplausnar; DJ Newswires
 
Vienna Insurance Group álpaðist til að kaupa ríkisskuldabréf evruríkis Grikklands.
 
Listi hálf- og heilþrota ESB-ríkja í skuldatryggingaálögum myntbandalags Evrópusambandsins
  • EVRURÍKIÐ GRIKKLAND: 906 PUNKTAR   
  • EVRURÍKIРÍRLAND: 618 PUNKTAR
  • EVRURÍKIÐ PORTÚGAL: 456 PUNKTAR
  • EVRURÍKIРSPÁNN: 266 PUNKTAR
Þökk sé heilræði og aðgerða Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra og Geirs H. Haarde forsætisráðherra í bankahruninu, er samsvarandi skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands nú aðeins 258 punktar. Spá Davíðs haustið 2008 hefur því ræst að fullu. Alþjóðlegir fjárfestar telja öruggara að Ísland geti greitt ríkisskuldir sínar en ofangreind evruríki sem njóta Evrópuvaxta Össurar M. Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Ríkissjóður Grikklands greiðir nú sömu vexti og almenningur fær á VISA-yfirdrætti glóandi greiðslukorta.
 
Reynið svo að ímynda ykkur hversu hagstætt það verður landi okkar þegar núverandi ríkisstjórn Íslands fer loksins öll alveg frá öllum völdum. Vonandi er stutt í fall ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Út-mánuðir eru rétt að renna upp. 
 
Fyrri færsla

101 erlendur sérfræðingur - og ekkert gerist nema slæmt


Erlendir sérfræðingar
Allt svo gott í útlöndum í augum kjánanna í 101
 
Erlendir sérfræðingar
Kóngar Evrópu tók völdin, allt svo gott
 
Erlendir sérfræðingar
Nýlenduvæðing Evrópu tók völdin, allt svo gott
 
Erlendir sérfræðingar
Kommúnismi Evrópu tók völdin, allt svo gott
 
Erlendir sérfræðingar
Nasismi Evrópu tók völdin, allt svo gott
 
Erlendir sérfræðingar
Fasismi Evrópu tók völdin, allt svo gott
 
Erlendir sérfræðingar
Evrópusambandið er að taka völdin, allt svo gott

Kjósið ykkur erlenda sérfræðinga úr hópi þessarar arfleiðar. 

Sérfræðingarnir í 101 verða ekki í askanna látnir, nema þrálátnir og kæstir. 

Á meðan landsmenn halda áfram að fjármagna geðsjúkdóma forsætisráðherra Íslands, Jóhönnu Sigurðardóttur, þá dettur sérfræðingum 101 ekkert annað í hug en að halda áfram að gefa henni pillurnar sem koma brjálæðisköstunum af stað. Stokkhólmur. 

Engum erlendum sérfræðingi hefur nokkurn tíma tekist að blása lífinu aftur í dauðan þorsk.
  • Sjómenn og útgerðarmenn sigli í land. Ykkur er ekki óhætt lengur. Þetta er ekki til neins.
  • Allir eiga að leggja bílum sínum og horfa síðan á ríkiskassa okkar með 101 sérfræðingi innanborðs fara á hausinn á 60 dögum.
  • Allir bændur fari strax í ESB-frí og stundi bara pappírsvinnu. 
  • Allir hætti að græða peninga, alveg
  • Allir hætti að anda
  • Allir hætti öllu
  • Allt hætti alveg
Svona áður en ríkisstjórnin rústar alveg öllu landi voru, ráðlegg ég mönnum að éta og drekka allt sem að tönn og tungu kemst og á meðan maginn þolir. Engir betri tímar eru í nándar vændum fyrir landið okkar. Aðeins dauði ríkisstjórnarinnar getur bjargað okkur núna.
 

Gengið um Skálkaskjól: húsaskoðun.

Á göngu okkar um Skálkaskjól mættum við strax eyríki Bergmanns. Hæ Bergmann. Kva? Ert þú hér? Átt þú ekki að vera á stjórnlagaþingi? Hvað er að? Þögn. Hurðarskellur.  

Næst héldum við upp á Almannagjá Boulevard, sem er langstærsta og breiðasta gatan í Skálkaskjóli. Við gengum undir Sigurbogann sem þar stendur rétt handan við Skjaldborgir og skipamálningar verksmiðjur ríkisins, sem staðsettar eru norðan og neðan við slippinn en fyrir framan nýju Icesave braggaborgina. 

Það lagði svartan og mikinn reyk upp úr skorsteinum byggingar númer eitt við þessa götu. Margt frægt fólk býr þarna inni. Svo frægt að enginn hefði átti að vera heima á þessum tíma sólarhrings. Út um glugga komu fljúgandi fúkyrði og við heyrðum töluna þrjú prósent nefnda. Talað var um "skíthaldið". ESB var einnig nefnt um leið og sagt var að tölvustýriskráin, krónan og aðalrétturinn væru búin að eyðileggja "þetta allt". Sennilega illilega misheppnuð máltíð á borðum þarna. Fólkið hefur kannski verslað hráefnin í vitlausri búð og notað stafræna eldavél sem enginn kann á. En greinilega var líka um tölvuvandræði og stíflað klósett að ræða.

Svo fórum við heim og fengum okkur popp og kók.

Þegar heim var komið sáum við forseta Frakklands á skjánum. Þar var hann af mikilli alvöru að segja heiminum að hann og fröken Merkel frá Þýskalandi myndu aldrei láta "Evrópu sökkva" með því að "sleppa evrunni". Mér leist ekki á þetta. Ef það er bara einn peningur sem heldur Evrópu uppi við bryggjuna þá gætum við farið að sjá það sama og gerðist með Titanic. Ef ég væri um borð í Evrópu núna, myndi ég flýta mér í land.
 
Var annars ekki sagt að evran átti að bjarga Evrópu? Hún kom árið 1999. Það er 2011 núna. Bara svo menn viti það.
 
Fyrri færsla

Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð: Mynd af sömu svörtu framtíð og bíður Evrópusambandsins

Þar kom að því
 
Morgunblaðið skrifar; 
 
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur lækkað lánshæfismat japanska ríkisins um einn flokk, úr AA í AA-. Segir fyrirtækið, að ástæðan sé miklar skuldir ríkissjóðs Japans. Fram kemur í umfjöllun S&P að skuldahlutfalla Japans sé þegar eitt hið hæsta í heimi og skuldirnar muni aukast enn næstu 10-15 árin.
 
 
Mannfjöldaspá Japans 
Mynd af svartri framtíð. Lífið eftir japönsku 
 
Mannfjöldaspá fyrir Japanska hagkerfið næstu 95 árin. Þessi spá jafngildir því að Íslendingar allir yrðu aðeins um 100.000 talsins eftir 95 ár. Þegar faðir minn góði og nú sálugi fæddist árið 1921 voru Íslendingar um það bil 94.000 talsins. Þetta var fyrir aðeins 89 árum. Þegar ég fæddist árið 1956, eða 35 árum seinna, voru Íslendingar orðnir 159.000 talsins. Í dag eru þeir um 315.000. Þetta kallar maður framfarir og að eiga bjarta framtíð.
 
Evrópusambandið er eins og jafnvel enn verr sett
 
Það leiðinlega við þessa japönsku mynd er eðlilega það, að fyrir Japani þýðir þetta endalok velmegunar. En svona verður ástandið í flestum ríkjum Evrópusambandsins einnig. Ömurlegt framtíð er í vændum fyrir flest ríki ESB. Það er ógerningur að snúa þessari þróun við nema á hundruðum ára. Þannig virkar útsæðislíkan bænda (e. farmers seed model) fyrir Homo Sapiens. Að finna eina konu á frjósemisaldri á þessari mynd mun kosta mikla leit. Ef þær geta flúið svona samfélag þá munu þær örugglega gera það. Þær munu að minnsta kosti ekki vilja fæða börn inn í svona ruglað samfélag. Þær fara í verkfall. Japanskar konur fóru í verkfall. Nútíminn kom aldrei til þeirra; Life After Japanese (uppfært: það er sennilega nauðsynlegt að taka það fram að þessi færsla er ekki 1. aprílgabb
 
Vísitala raunverðs húsnæðis frá 1. ársfj 1970 = 100  til 4. ársfj. 2008 Japan - Þýskaland - OECD lönd 
Mynd; raunverð húsnæðis í ÞÝS, JAP og OECD frá 1970
 
Þróun fasteignaverðs í öldrunarhagkerfum Evrópusambandsins á næstu 40 árum 
 
Svona mun þróun fasteignaverðs verða í Evrópusambandinu á næstu 40 árum ef marka má rannsóknir Bank for International Settlements (BIS) á síðasta ári:
 
BIS Demographic impact on housing
 
Lækkun á næstu 40 árum:
  • Portúgal: 85 prósent lækkun
  • Spánn: 75  prósent lækkun
  • Grikkland: 75 prósent lækkun
  • Þýskaland: 75 prósent lækkun
  • Ítalía: 70 prósent lækkun
  • Austurríki: 60 prósent lækkun
 
Athugið að hér er þróun fasteignaverðs í Austur-Evrópu ekki með í myndinni en þar verður ástandið ennþá skelfilegra en í gömlu kjarnalöndum Evrópusambandsins.
 
Hér er skýrslan frá BIS
 
1000 gjaldþrota verslunargatan í Japan 
Svona líta sumar verslunargötur úr í öldrunarhagkerfum. Myndin er frá bakhlið gjaldþrota verslunargötu í einu fremsta öldrunarhagkerfi heimsins; Japan - og er fengin að láni úr greininni: þúsund gjaldþrota verslunargatan.
 
Óðaöldrun (e. hyper ageing) hinna barnlausu samfélaga Þýskalands, allrar Suður-Evrópu, allrar Austur-Evrópu, Eystrasaltsríkja og Japan er ekkert grín. Hver vil fjárfesta í deyjandi eignum?

Úr þættinum dauði Evrópu í dr.dk 
Svona lítur niðurrif þriggja miljón þýskra íbúða út. Glæsileg þróun í hinu útflutningsháða öldrunarhagkerfi Þýskalands. Myndin er úr þættinum "dauði Evrópu" sem sýndur var í danska DR2 sjónvarpinu 2009. Hin eina óendurnýjanlega náttúruauðlind Evrópusambandsins er að deyja: fólkið í ESB. Mikið verða þingkosningar spennandi í svona samfélögum þar sem 70 prósent kjósenda verða komnir yfir sextugt. Um helmingur kjósenda í Þýskalandi eru orðnir sextugir nú þegar. 
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 2 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Tengt efni

Fyrri færsla

mbl.is Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá síðasta samtali Ögmundar Jónassonar og Steingríms J. Sigfússonar við þjóðina

Þingmenn sækja umboð sitt til þjóðarinnar. Þessir gerðu það ekki 
 
Ögmundur Jónasson: já, þessi bróðurpartur Steingríms J. Sigfússonar sem í sameiningu áttu mjög sérstakt samtal við íslensku þjóðina í síðustu Alþingiskosningum. Þær kosningar eru herðarnar sem bera höfuð lýðræðis í lýðveldi okkar. Hærra verður ekki komist í skiptiborði þjóðarinnar. Ekkert númer er þar fyrir ofan. 

Í þessum kosningum sóttu ráðstjórnarbræðurnir Ögmundur Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon umboð sitt til kjósenda. Umboðið frá kjósendum var og er ennþá þetta: þeir lofuðu að sjá til þess lýðveldinu Íslandi yrði haldið utan við allt sem hét Evrópusambandið og umsókn þar inn. Að ekki kæmi til greina að sækja um inn í Evrópusambandið. Þessum áróðurs skilaboðum þeirra ráðstjórnarbræðra til kjósenda í kosningabaráttunni var tekið af mikilli ákefð á kjördegi Alþingiskosninganna. Og fyrir vikið fékk ráðstjórnarflokkur þeirra stóraukið kosningafylgi og mörg fleiri sæti á Alþingi. Flokkurinn komst í ríkisstjórn.

Nokkrum mánuðum seinna er þetta samtal ráðstjórnarbræðranna við þjóðina notað til að senda inn umsókn Íslands inn í Evrópusambandið. Og ekki nóg með það; í fullum gangi er líka aðlögun Íslands að lögum Evrópusambandsins. Algerlega í andstöðu við kjósendur Ögmundar J, Steingríms J og Vinstri grænna  og þorra þjóðarinnar allrar. 

Þessir tveir menn breyttu línum sínum á skiptiborði þjóðarinnar í símavændisstöð. Samtal þeirra við þjóðina var misnotað á hinn grófasta hátt. Með þessu og með orðum Ögmundar Jónassonar á Alþingi í dag sýnir hann þjóðinni virðingu sína. Þetta er hrein veruleikafirring.
 
Ekki nenni ég, eftir daginn í dag, að eyða orðum á fáráðlinginn sem liggur nú í forsætisráðherraembættinu. Tillögur hennar eru súrrealistískar. 
 
Fyrri færsla

regluverkið: Evran hangir á bláþræði - og um háls hverra?

Fregnir berast af fyrirlestrarferðum klappþorska fjármálageirans út í þau íslensku fyrirtæki sem enn eru á lífi og sem fjármálageiranum tókst ekki að kála í 2008 hruni sínu. Þar messa karl- og kvenkerlingar regluverk og ESB. Já, rotturnar í rústum fjármálageirans eru búnar að finna sér nýjan starfsvettvang; ráðgjöf til starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum. En nú er messan pólitísk og dulbúin sem þekking. 

Messan: Jú sjáið þið kæru starfsmenn, okkur vantar svo bráðnauðsynlega ESB-regluverkið sem kom 5 af 27 löndum ESB í fang Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins. Gjaldþraut 2 af 15 evruríkjum, instant, og fleiri evruríki eru sennilega á leiðinni í regluverkja-þrotið. Þjófnýtti 2 af 6 kerfislega mikilvægum bönkum Austurríkis sem voru gjaldþrotnir í umsjá opinberra starfsglanna. Húrraði á hausinn öllu Landesbankakerfi Þýskalands í höndum stjórnmálamanna. Hengdi allt bankakerfi Írlands um háls þjóðar þess lands sem nú á þennan svo reglulega góða seðlabanka Desperados of Ireland sem í óða önn er að breyta evru-myntsvæðinu í nýtt rúblusvæði með peningaprentun í skjóli myrkurs og gaddavíra í kjöllurum Írlands sem er að sökkva.
 
Örvæntingin er svona mikil því búið er að loka á allt evru-bankakerfi Írlands í aðalstöðvum þeirra sem eiga útgáfurétt evru-peninga Íra. Búið er að loka á þá með regluverki Masokistastricht sem reyndist Írum verr en 100 ára gömul gaddavírsgirðing umhverfis afrétt ánamaðka Álfhóls. Allur heimurinn stendur nú á öndinni í reglubundum evru-verkjum.  

Eitt get ég þó ábyrgst: þegar yfirmenn fyrirtækja eru farnir að halda fyrirlestra í öðrum fyrirtækjum og á opinberum vettvangi, þá er þess aldrei langt að bíða að fyrirtæki fyrirlesarans fari í gjaldþrot. Þannig er eðli málsins. Þó er hér ekkert regluverk sem bannar klappþorskum þessum að birta ársreikninga sína, sem auðvitað þola ekki dagsins blindandi ljósareglur.
 
Fyrri færsla
 

Daglaunamenn vinna kraftaverk í ESB

Samtök þýskra verkalýðsfélaga, DGB, segja að það séu daglaunamenn í Þýskalandi sem borgi fyrir þann efnahagsbata sem um þessar mundir er umtalaður sem þýskt kraftaverk því atvinnuleysi í Þýskalandi hafi í fyrsta skiptið á síðustu 18 árum mjakast undir 7 prósentin.

DGB segir að 900.000 daglaunamenn fái 30 prósent lægri laun en þeir sem eru fullráðnir: EFN
 
Milljón eða fleiri þýskar fjölskyldur í fullri atvinnu þurfa einnig hreppa- og bæjarhjálp samhliða fullum launum til að komast upp fyrir ómagaframfærslu. Það eru engin lágmarkslaun í Þýskalandi og tímalaun eins og 4 evrur eru greidd með glöðu geði.
 
Fátækt hefur aukist mikið í Þýskalandi og þjóðverjum fækkar hraðar og hraðar næstu áratugina eins og fréttir sögðu hér í febrúar 2010.  
 
Rannsóknir Bank for International Settlements (BIS) á öldrunarútdauða Þjóðverja og þróunar fasteignaverðs í Þýskalandi og ESB, gerir ráð fyrir 75 prósenta lækkun fasteignaverðs í Þýskalandi á næstu 40 árum. Frá árinu 2000 hefur raunverð fasteigna í öldrunarhagkerfi Þýskalands þegar fallið um 15 til 20 prósent og engin húsnæðisbóla gat náð að myndast í þessu nær-dauða-en-lífi hagkerfi.
 
Í Þýskalandi og á evrusvæðinu hefur ríkt alkul í efnahagslegum framgangi síðustu 10-15 árin og er sú ísöld núllvaxtar og mannlegrar hnignunar enn verri en sam- og óbærileg þróun hefur verið í týnda japanska öldrunarhagkerfinu; Daniel Gros janúar 2011 krækja
 
Launamyndun í öldurnar- og útdauðahagkerfum Evrópusambandsins verður ungu fólki svo erfið að þorri þessa sjaldgæfa fólks mun - þegar til kastanna kemur á næstu áratugum - flýja samfélögin, sé sá möguleiki fyrir hendi (hint Berlínarmúr II, reverse).
 
En það sem er jafnvel enn verra er þetta; Það unga fólk sem ekki getur flúið neitt, mun neita að fæða fleiri börn inn í þennan vígvöll skattpíningar, hningunar og 24/7 jarðarfara ósjálfbjarga Þjóðverja sem þá deyja einir og yfirgefnir í hinu komandi ný-viktoríanska samfélagi ESB. Hrunþróun ESB mun þá ná tröllaukinni snjóboltavirkni. Restin af ungmennunum mun ganga í nýjan samþrætandi kommúnista- og nasistaflokk ESB.
 
Þegar það verður orðið líkamlegt vandamál að finna eina konu á frjósemisaldri í sínu ESB-gettó-hverfi, þá fer vandamálið að verða sjálfleyst.
 
Fyrri færsla

Eru sum lönd ESB þegar orðin "hálf-nýlendur?"

Aðalritari samtaka evrópskra verkalýðsfélaga, John Monks, hefur krafist fundar með stjórnanda mynt & efnahagsmála ESB, Olle Rehn, samstundis. Ástæðan er grunur írskra sem annarra verkalýðsfélaga um að það hafi verið framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem stóð fyrir því að lágmarkslaun á Írlandi voru skyndilega lækkuð um 12 prósent með ákvörðun meirihluta ESB-væddrar ríkisstjórnar Írlands á þingi landsins, eða um 40 evrur á viku fyrir þá lægst launuðu í samfélagi Íra. Þetta er "dagur skammarinnar" sögðu írsk verkalýðsfélög fyrir jólin. 

Einn af helstu ráðherrum írsku ríkisstjórnarinnar sagði fyrir jól að það hafi verið framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem krafðist lækkunarinnar. Samskonar fréttir hafa borist frá Grikklandi og er vitnað í ströng skilyrði hins svo kallaða hjálparpakka sem á að bjarga myntbandalaginu frá upplausn.

John Monks aðvarar um að þessi þróun þýði að ESB-löndin fái stöðu innan Evrópusambandsins sem eins konar "hálf-nýlendur": EFN
 
Fyrri færsla

Forsætisráðherra og forseti Alþingis stofna Noxin hálspillur & pípulagnir ehf.

ERICH HONECKER 
Frá þáverandi skjaldborg Evrópu 
 
Þagga - ljúga - svíkja - undirförulast - pukrast - frekjast - blöffa - farvegast - skoða - koma að - borðlegan - bolabrögðin - nefndirnar - skjaldborgirnar - aumingjahátturinn - ráðin - veit ekki annað - veit ekkert - ESB -ESB - ESB -píípp - píípp - píípp - píípp - píípp. 

Þetta eru einkunnarorð ríkisstjórnarinnar sem Jóhanna Sigurðardóttir situr eða liggur fyrir (því ekki stendur hún) nú, en vonandi bráðum bara á ljósmyndum. 

Keyrir Alþingi kannski innviði sína um á Windows tölvukerfi? Ef já: þá áttuð þið þetta dálítið skilið. En bara pínku ponsu.  

En enginn, alveg sama hvað, og alveg sama hver niðurstaða þessa máls verður, á þennan forsætisráðherra skilið. Enginn!

mbl.is Þingmenn vissu ekki um tölvuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband