Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015

Spurningatíminn: Helferð ESB gegn þjóðríkjum Evrópu

Að gefnu tilefni:

Í athugasemd við bloggpistil minn í gær varpaði Ómar Ragnarsson þessum spurningum til mín.

Eftirfarandi er svar mitt við spurningum Ómars. Það á einnig erindi við alla aðdáendur ESB helferðarinnar gegn þjóðríkjum Evrópu og sem næstum allir eru sósíalistar.

Þakka þér innlitið og skrif Ómar

Nasisminn var og er sósíalismi. Bæði kommúnismi og nasismi eru sósíalismi. Og þessi stjórnmálastefna- og pólitíska hreyfing hatar þjóðríkið (Nation State) sem verandi sú fremsta manngæskuberandi stofnun veraldarsögunnar sem hún er og hefur staðið mannkyninu til boða

Alveg sérstaklega er þjóðríkið sem stofnun hatað af sósíalistum vegna þess að koncept þjóðríkisins kemur úr Gamla testamentinu; Biblíunni okkar

Þetta sést einnig ágætlega á sósíalistunum hér á Íslandi sem alltaf hafa hatað þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun

Fremst á dagskrá morðóðrar sósíalistískrar ríkisstjórnar Adolfs Hitlers var að útrýma þjóðríkjunum og að bakka Þýskalandi burt af leið þess inn í þjóðríkið og aftur út í heimsveldið (Imperial State). Svipað má segja um morðóða sósíalistana í Kreml. Þeir hötuðu einnig þjóðríkið

Og já, Helförin var sósíalista-skipulagt morð á heilli varnarlausri þjóð og hún er sönnun þess hvað verður um þjóðir án ríkis. Þjóðir án heimils

Hefði hið sósíalisíska morðgengi Nasista sigrað í styrjöld þess gegn frelsi mannanna, þá hefði ríki þeirra orðið nákvæmlega eins og Austur-Þýskaland kommúnistanna varð. Terrorríki. Svona er sósíalisminn

Það er skrautlegt og ber vitneskju um naivisma að þú skulir halda því fram að þjóð-kjörin stjórnmálaöfl í löndum Evrópusambandsins séu og sitji þar við einhver völd. Það gera þau ekki. Það er Evrópusambandið sem situr þar við völd

Um lítið sem ekkert er að kjósa af því sem svo miklu máli skiptir í tilveru þjóðanna í ESB. Flest hefur verið tekið frá þeim og flutt yfir til ókjörins Evrópusambands sem varð sjálfstætt yfirríki yfir aðildarlöndunum frá og með 1. nóvember 1993. Markmið Evrópusambandsins er að útrýma þjóðríkjunum. Hinn sami sósíalistíski draumur eins og áður er um getið

Til að ESB geti loksins komið út úr skápnum sem fullvalda einræðisríki og heimsveldi með gervilýðræði, þá er eins og er, stanslaust verið að dæla fullveldinu hægt og rólega úr aðildarríkjunum og yfir í yfirríki Evrópusambandsins, sem þá verður bæði fullvalda OG sjálfstætt ríki

Já, segja má að Finnland, Svíþjóð og Danmörk séu í rústum. Framtíðin og sjálfsákvörðunarrétturinn hefur verið tekinn frá þeim. Þau eru tæmd undir-ríki. Enda sést það langt að

Ef fólkið hefði vitað hvernig Evrópusambandið yrði árið 2015, þá hefði ekkert þessara þriggja ríkja gengið í þetta yfirríki ESB. Ekkert þessara ríkja hefði gengið í Evrópusambandið í dag, væri verið að kjósa um það núna og væri fólki sagt hvernig ESB í raun er innréttað

Þetta sést ákaflega vel hér heima, þar sem t.d. þú veist of lítið og jafnvel ekkert um ESB. En væri þér hins vegar sagður sannleikurinn um ESB, þá myndir þú neita að trúa honum eins og aðrir ESB-trúandi sósíalistar

Og svo til að kóróna kransakökuna  þá hefur þetta ógeð stofnað sovéskt þing sem kallast Evrópuþingið. Þar sitja 75 prósent sósíalistar sem gúmmístimplar framkvæmdastjórnarinnar sem er hroðalegt gengi, og þar sem sjálfur formaður framkvæmdastjórnarinnar er yfirlýstur atvinnumaður í lygum og falsi

Evrusvæði ESB er nú versta efnahagssvæði veraldar. Og öll framtíð Evrópusambandsins er svo kolsvört að segja má að þar sé engin framtíð og enn fremur, að engin viðreisn geti átt sér þar stað. ESB er komið beyond point of return og ekkert mun geta bjargað því

Kveðjur

 

Fyrri færsla

Ísland af lista yfir umsóknarríki að ragnarökum Evrópu


Ísland af lista yfir umsóknarríki að ragnarökum Evrópu

MORGUNBLAÐIÐ 29. MAÍ 2015:

 Krækja: Ísland af lista yfir umsóknarríki.

****

Hefðu Samfylkingarflokkar sósíalismans ráðið ferðinni hér eins og í svo gott sem ónýtum teppasprengdum löndum Evrópusambandsins —sem þeir skilvirkt og stanslaust hafa eyðilagt hin síðustu 45 ár— þá hefði það lið umfram allt annað, já allt annað, kosið að allir Íslendingar segðu sig úr þjóðríkinu Íslandi til þess eins að ryðja blessað landið okkar autt og frelsislega gerilsneyða það til þess eins að gera Ísland að esb-grafreit frelsis og velmegunar

Svo ömurleg eru þau esb-sósíalistískt pólitísku öfl. Ekkert eyðileggingarafl eins og Samfylkingarafl sólsíalistanna hefur verið eins sterkt og innanfrá eyðileggjandi í sögu Evrópu eins og þetta Evrópusamband sósíalistanna er. Og sem lifir á því að eyðileggja alla Evrópu eins og hún hefir NÚ lagt sig til hinstu hvílu undir fargi banvæns ESB-sósíalisma þeirra. Stendur álfan nú esb-húðflett og bíður endalokanna. Allir björgunarbátar aðildarlandanna hafa verið gerðir upptækir og brenndir

Á meginlandi álfunnar er þetta samband nú óvinsælla meðal alls almennings en það var á Stóra-Bretlandi árið 2007. En ekkert geta borgararnir þar gert. Lýðræði er ekki lengur til á meginlandinu í eiginlegri merkingu þess orðs. Einræðið er hins vegar orðið ríkjandi í formi esb-gervilýðræðis undir fjár- og reglugerðarkúgunum

Mottó Samfylkingarafla sósíalismans er þetta: “Ég skal svíkja þjóð mína ef þú ESB firrir mig ábyrgð gagnvart kjósendum mínum í staðinn. Þá mun ég geta setið fastar í sessi og án ábyrgðar ofan á kjósendum mínum. Þegar ég hef smám saman selt og gefið burt fullveldi þjóðarinnar, þá mun ég geta sagt við kjósendur mína; sorry, sem þjóðkjörinn fulltrúi ykkar neyðist ég til að segja við ykkur að þetta er því miður ekki hægt, því þetta er ekki lengur á okkar höndum"

"Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða öllu um “þetta”, væni minn"

Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu ESB sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

Það er svona sem elítuvætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með svörtum og hvítum lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu

Til fjandans með þetta hyski allt og ESB-afglapastjórnarfar þess

Næst er það EES-samningurinn. Hann verður að fara. Í því ferli þarf að endurmóta hinn alþjóðlega viðskipta- og utanríkisþátt lýðveldisins og senda laga- og reglugjörðina í K-25 ormahreinsun. Engin þörf er á EES lengur. Engin. Sá samningur gerir okkur meira ógagn en gagn og hann er finnskt skaðlegur til framtíðar

Fyrri færsla

Sífellt kaldara veðurfar síðustu þrjá áratugi


mbl.is Ísland af lista yfir umsóknarríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sífellt kaldara veðurfar síðustu þrjá áratugi

Vísindi og veðurfar 

Time Magazine logo

Síðustu þrjá áratugi hefur þróun veðurfarsins í gufuhvolfi Jarðar verið þannig —já, veðrið er víst staðsett þar, en ekki í hausnum á fólki— að vísindamenn velta fyrir sér hvort að ný ísöld sé í smíðum hér á Jörðinni. Flökt veðurfarsins hefur verið þannig

Þykknun hafíss við Ísland er staðreynd sem enginn vísindamaður getur litið framhjá. Vísbendingar um þessa skuggalegu þróun má sjá víða, til dæmis á flótta dýrategunda suður á bóginn

"The trend shows no indication of reversing. Climatological Cassandras are becoming increasingly apprehensive, for the weather aberrations they are studying may be the harbinger of another ice age [..] Telltale signs are everywhere—from the unexpected persistence and thickness of pack ice in the waters around Iceland to the southward migration of a warmth-loving creature like the armadillo from the Midwest. Since the 1940s the mean global temperature has dropped about 2.7° F"

Hitastig hefur fallið um 1,5 gráðu frá 1940. Þess ber þó að geta að sú mæling er ei nákvæm, en þróunin er studd af fjölda annarra sannfærandi gagna

Hrikalegir þurrkar í Afríku í samfellt sex ár og hungursneyðar sem afleiðingar, tala sínu máli. Stórfelldar metrigningar í hlutum Bandaríkjanna, Pakistan og Japan 1972 ullu þar verstu flóðum öldum saman. Í hveitibelti Kanada hafa köld og úrkomusöm vor valdið afar lélegri uppskeru. Hið venjulega vætusama Bretland hefur hins vegar mátt þola óvenjulega þurrkakafla síðustu vorin. Og röð óvenjulega kaldra vetra hefur verið í austustu hlutum Bandaríkjanna

Jörð í Afríku?

Þá vitum við það. Ný ísöld er að koma. Hvernig ætla stjórnvöld að bregðast við þessu? Umhverfið er greinilega að umhverfast. Vonandi umhverfist fólk ekki með því. Verða það kannski fjölmiðlar einir sem grípa hér í taumana?

Fréttin er nýleg í veðursögunni og vísindi eru jú vísindi. Menn verða að muna það

Krækja: Frétt tímaritsins Time

Fyrri færsla

Þrælabúð ASÍ


Þrælabúð ASÍ

Samkvæmt sjónvarpsauglýsingum ASÍ verslar ASÍ með þræla. Til að viðhalda verslun sinni með þræla þá halda þeir þrælum sínum ávallt sem þrælum. Og auglýsa þá svo í sínu DDR-sjónvarpi. Þessi búð verður aldrei gjaldþrota

Eftir 99 ára lúxuslíf yfirstéttar ASÍ á kostnað þræla sinna, þá lítur verslun þeirra eins út og hún leit út árið 1916. Sem full búð af þrælum. Svo er að sögn þeirra enn. Hugsið ykkur; öll þessi 99-ár þrælanna til einskis í þrælabúð ASÍ. Þeir eru og verða bara þrælar ASÍ. Skiptimynt ríkisjötuelítu BAHAMAS ASÍ sem er í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar á leið í gjaldþrot sósíalisma ASÍ

Þetta er svona, því að æðsta markmið elíta verkalýðshreyfingarinnar er að viðhalda sjálfri sér fyrir sjálfa sig. Það versta sem getur komið fyrir ASÍ er að þrælar þeirra gerist sjálfstæðir atvinnurekendur eða vinni fyrir sjálfa sig. Þá mun eldi og brennistein rigna ofan í tómt tómt elítu ASÍ sem því vill halda þrælum sínum áfram sem bara sínum þrælum og engra annarra. Og auglýsa þá svo í DDRÚV! Útsala, útsala, útsala

En það fjarar þó hratt undan þrælabúð ASÍ samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem vel mörg eru skær og sameinuð einræðisríki með hnefa ASÍ-elíta sinna á lofti. Aðeins minnkandi hluti fólks á jarðkringlunni vill áfram vera þrælar. Fólk nennir hreinlega ekki að vera ráðið af ASÍ. Því ekkert kemur út úr því, nema hærri laun handa elítum ASÍ. Þrælar þeirra borga

Þetta segir 99-ára sagan okkur af ASÍ. Án þræla sinna væri ASÍ ekki neitt. Þeir eru því dregnir fram og stillt út í búðarglugga ASÍ á stund örbirgðarinnar. Gjörið svo vel. Aldrei hafa þrælar ASÍ verið eins miklir þrælar og nú. Það hlýtur að vera


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband