Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Ítalir í ESB hafa ekki lengur efni á ítölskum mat

Útbreiðsla myntar sovétríkja Evrópusambandsins yfir stærsta hluta meginlands Evrópu hefur haft þá mikilvægu samevrópsku þýðingu á Ítalíu, að borgarar landsins hafa ekki lengur efni á þeim matvælum sem ítalska þjóðin er vön að nærast á.

Ítölsku neytendasamtökin, Codacons, segja að kaupmáttur borgaranna til matvælainnkaupa á Ítalíu sé nú kominn niður á það stig sem hann var árið 1979. Evruupptaka á Ítalíu hefur bæði endurreist Berlínarmúrverkið og skipað Leonid Ilyich Brezhnev sem aðalritara kommúnistaflokks bræðrabandalags Evrópusambandsins á ný, á meðan vorið í Prag sprakk loks út sem pakk.   

Ellilífeyrisþegar á Ítalíu reyna að sporna við þessum framförum hins upplýsta og vellaunaða skítapakks Evrópusambandsins í Brussel, París og Berlín með því að stofna eigin innkaupafélög, því aðeins þöglar grafhvelfingar lágvörudraslsverslana standa þeim nú opnar. Fjárhagur Ítala er orðinn það bágborinn að almenningur neyðist til að hætta að kaupa þann mat sem ítalskir matvælaframleiðendur hafa svo lengi séð þjóð sinni fyrir. 

Grafhvelfingar lágvörudraslsverslana eru þeir einu á nauðsynjavörumarkaði sem hafa náð að komast hjá miklu veltufalli. Á boðstólum grafhvelfinganna er hin dæmigerða samsoðna, samrunna og samevrópska discountruslatunna; til dæmis þýskt drasl úr þýskum þrælabúðum, belgískar bílaolíur úr smurstöðvum, hollenskar skólptunnur og hinar ævinlega óætu dönsku afpyslur úr beinamjölsúrgangi sem fátækustu Rússar geta ekki einu sinni horft á án þess að kasta upp.  

Fallið í matvælakaupmætti Ítala virðist óstöðvandi, segir Verslunar- og viðskiptaráðið á Ítalíu. Confcommercio segir að fallið á þessu ári verði það mesta í sögu ítalska lýðveldisins sem stofnað var til í byrjun sumars árið 1946; sem í tímarúminu var frekar stuttlega eftir að launlækkunar-diktat Mussolini á Ítalíu hafði tvívegis brugðist honum við ESB-hagstjórnina árin 1928 og 1934. Míster Mussolini leitaði sér því stuttu síðar svo nefndrar þýskrar ráðdeildar og launalækkkunaraðstoðar hjá herr þjóðkjörnum kanslara Hitler, sem þá hafði auðvitað með mikilli ordnung komist til þýskra ráðdeildarvalda uppi í gjörvöllu Þýskaralandi — og jafnvel víðar — í kjölfarið á og í gegnum Hans & Grétu þensluskapandi sjálfsmorðs-niðurskurðaraðgerða kanslara herr Brüning af afglöpungzigi.

Ufficio Studi: "Il 2012 dovrebbe presentare la peggiore variazione negativa dei consumi pro capite della storia della Repubblica (oltre il -3 per cento)". Sempre meno i piccoli esercizi al dettaglio mentre crescono discount e media e grande distribuzione.

Hin mikla og grunnleggjandi vanþróun í sovétríkjum Evrópusambandsins á hinum síðustu þrjátíu árum hefur enn frekar stutt við ömurlegar framtíðarhorfur fyrir ungt fólk á Ítalíu. Meira en 60 af hverjum 100 ungmennum á aldrinum 18-29 ára neyðist til að búa áfram á heimili sífellt aldraðri og hratt fækkandi foreldra landsins. Þessi vanþróun hefur versnað mikið síðan Ítalía tók upp evru. Ungt fólk á svo litla framtíð fyrir sér í þessu evrulandi að það hvorki getur né hefur efni á að stofna til fjölskyldu sem bera á framtíð landsins uppi. Um þriðjungur allra Ítala búa heima hjá mömmu sinni. En þær eru við það að klárast því svo fáar nýjar verða til. Já. debitorar landsins búa heima hjá mömmu. Þið getið því ímyndað ykkur styrkleika kreditora þessa evrulands.
 

Komst aðeins til valda undir rústaáfalli

Hafa tengsl bankakerfis fólksins og ríkisvaldsins orðið nánari og skaðlegri borgurum landsins eftir hrun bankakerfisins en fyrir hrun þess? Eitt einkenni bankakerfis og fjármálastofnana sem eru að kafna í öndunarvél stjórnvalda, eru auknar kröfur um svo kallaðan "móral" sem ríkisvaldið hefur einkaútgáfurétt á og t.d. kröfur um aukna bindiskyldu og/eða eiginfjárstöðu í bönkum, svo að sogrör ríkisvalds án lánstrausts hafi auðveldari aðgang að því. Hafi auðveldari aðgang að fé til að halda sér áfram við völdin.

Í dag ná tengsl ríkisvaldsins ekki aðeins inn í innstu afkima bankakerfis og fjármálastofnana fólksins í krafti reglu- og haftafrumskóga, heldur er ríkisstjórnar-ríkisfjölmiðill borgaranna þar að auki alfarið og enn frekar kominn í vasana á ríkisvaldinu. Báðir aðilar virðast komast upp með það í krafti liðinna en sögulegra áfalla. Það mætti því halda að við værum þegar komin inn í sovétríki Evrópusambandsins.
 
Fólkið í landinu á betra skilið. Frelsis-dýnamík hagkerfisins sem bera á framtíð borgaranna uppi, fjarar nú út. Áhifin inn í framtíð fólksins verða eins og þegar steini er kastað í blauta steinsteypu. Ekkert haggast. Engar bylgjur og engir straumar munu ná að myndast.
 
Að þessu leyti er ríkisstjórnin sennilega verri fyrir landið okkar en verstu bankar voru fyrir hrun. Hún gerir fólkið og framtíð þess að öreigum fyrir völdin í landinu. Þessi ríkisstjórn komst auðvitað aðeins til valda undir rústaáfalli í brunarústum og undir svo kallaðri "byltingu".
 
Sagan endurtekur sig víða, en allra mest í Evrópu. Þess má geta hér í leiðinni að nasisminn komst aðeins til valda í brunarústum fallinna keisaravelda. Og nú er verið að endurbyggja hin föllnu veldi á meginlandi Evrópu. ESBið rís. Ríkisstjórn Íslands er að sjálfsögðu þegar kappklædd til þátttöku í draumnum.
 
Austur er alltaf blindgata.

Skrifta-skýrsla Seðlabanka Íslands um snúð

Það er ekki bara stórfurðulegt, heldur einnig geðsjúkt, hvernig hámenntaðir menn fjalla um myntmál fullvalda þjóðríkja eins og að um uppstillingu á snúðum í búðargluggaborði Hérastubbs bakara væri að ræða. Öll er þessi umræða komin úr einu og sama bakaríkinu á meginlandi Evrópu. Hún er til jafns við þá umræðu sem á sjaldgæfum stundum fór fram á bekkjum stilltum upp við fimm þúsund tonna líkneski af Stalín og Lenín um gjörvöll Sovétríkin v1.
 
Á bekkjum þessum ræddu rétttrúandi einsflokksmenn —ESBmenn þeirra daga og þess ríkis— um hvað væri nú hægt að gera til að auka stöðugleika byltingarinnar og óhagsæld fólksins í sovétríkinu án þess að þurfa að stroka út stytturnar tvær sem stanslaust hertu drykkjuhraða þeirra úr flöskunni. Kæmi aðvífandi til þeirra allsgáður maður sem segði þeim að nóg væri að fjarlægja einræðið og að láta frelsið renna til borgaranna; já, þá var viðkomandi umsvifalaust lokaður inni á geðveikrahæli og komst þaðan sjaldnast út aftur án þess að verða að fyrrverandi manneskju. Þetta er einnig svona í Evrópusambandinu. Og svona er skýrsla Seðlabanka Íslands um myntmálin unnin því vanir menn iðka þar skriftir sem engar fóru um nokkurn liðinn tíma til neinna afskrifta. Áfram er heilaþvegið.

Vestar á meginlandi Evrópu sáu hinir innfæddu þrír-til-sex fljótlega að afbaka mætti frelsi, uppbyggingu og efnahagslegar framfarir undir þeim PaxAmericana-friði sem þegar hafði þar náðst — en sem þeir sjálfir urðu að lúsum undir — á öllu hinu rústalagða meginlandi taparanna þegar árið 1953. Þessi friður gerði þar með alla tilurð og falskt útbásúnaðan tilgang Evrópusambandsins algerlega tilgangslausan og void frá upphafi. En með því að troða friðaregginu aftur inn í hænuna og berja hana síðan til að verpa páskaeggjum úr valdasúkkulaði á borð við stytturnar hér að ofan, þá var það von þessara þriggja-til-sex að þeir þyrftu ekki mikið lengur að sitja sem ruglaðir dallar í rústum sjálfra síns á þessu blessaða meginlandi hinna stórkostlegu en krónísku evrópsku tapara. 

Þegar PaxAmericana friðaregginu hafði verið troðið inn í hænuna var henni síðan skipað að verpa füleggi zem von zíðar fékk nafnið ERM á meðan hinir þrír-til-sex undu áfram uppá sig á öxlinum. Þetta ERM-fyrirbæri var fundið upp til þess að hægt væri að byggja eins konar nýtt Ottómanskt dreifingarkerfi fyrir landbúnaðarstryki og margt annað, sem síðan sá um að reisa upp Mörfjöll og stytturnar sem þessi elíta meginlandsins nú stendur á. 

Vinnupallarnir umhverfis báknið sem þessir þrír-til-sex ætluðu sér alltaf að byggja allar götur frá því fyrir asnareið Hitlers um Evrópu, varð alveg bráðnauðsynlega að reisa umhverfis ríki Evrópu. Án vinnupalla á borð við ERM yrðu engar styttur nokkurn tíma byggðar. ERM var notað til að dæla peningaskólpinu í gegnum styrkjakerfið sem auðvitað þóttist ekki án þess geta reiknað út hlutfallslega heimsku í líkneskjuríki því sem verið var að hlaða upp innan í þessum múr af vinnupöllum sem ERM smám saman varð. Ekkert hefur drepið Evrópu eins mikið og þetta áveitu ERM-kerfi peningaskólpsins. Og sem er Evrópusambandsbákninu og elíturótum þess jafn mikilvægt og Gúlag-fangabúðakerfi Sovétríkjanna varð brjálæðingunum og vinum Más í Moskvu svo hratt.

Og nú finnst mér brátt tími til kominn að íslenskir Þýskalandsfetistar fari að splæsa í nýjan búning. Dulbúningur þeirra fer brátt að verða algerlega óþarfur. Mér þykir þetta (af)leitt.
 

600 taumlausir sjónarmiðar á gjaldeyrisuppboði

Gasbrak & Skýrslubrestaframleiðsla Seðlabanka Íslands tók óvænt við sér um leið og handverks dugmanninum og Íslendingnum mikla, Davíði Oddssyni og jarðbundnum kraftliðsmönnum hans tveim, var pólitískt gasað út úr æðstu peningastofnun íslenska lýðveldisins sem stofnað hafði verið til í fullkominni sátt og sameiningu allra Íslendinga svo seint sem árið 1944.
 
Þetta gasverk gerðist undir stjórn krónískra ríkiskommúnista og ríkissósíalista sem sjálfir heimtuðu að tími þeirra væri loksins kominn til að hefna frelsisins sem fryst hafði þá úti frá völdum svo lengi. Þetta gerðist og allt undir lítilmannlegri umsjá gestapólísu kommakrata og ESB-karlkerlingaveldis hinnar hundraðfalt getulausu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kosningasvikarans Steingríms J. Sigfússonar, sem loksins tókst að smygla sér til valda, með hörmulegum afleiðingum fyrir hið nýja lýðveldi Íslendinga.

Þessir 622 taumlausu blaðsíðu sjónarmiðar á gjaldeyrisuppboði Seðlabankans gilda allir inn á happdrættis spurninguna um hvers vegna best sé að taka gírkassann úr öllum bifreiðum allra micro-agenta og gerenda íslenska macro-hagkerfisins. Skýrslan, sem greinilega er úr DDR-lúsugu tölvuherfi heilasamstöppu stofnunarinnar, inniheldur einnig leiðbeiningar um notkun nýs skotvopns fyrir alla þessa sömu gerendur hagkerfisins. Vopnið heitir Einn séns, og er aðeins einn séns. Það lítur svona út.

Katalógurinn yfir þessi nýju frysti- og verkfælnitækni Seðlabankans út úr raunveruleikanum, er á sama formi og 600 blaðsíðna svo gott sem í KEA leiðarvísi fyrir uppsetningu drasls og meira drasls út um allt og alltaf.
 
Þetta er því ekkert Patton-plan til viðureignar við þeirri eyðileggjandi fjármálalegu og pólitísku borgarastryrjöld sem nú geisar og sem stofnað var með fullum vilja til á evrusvæðinu eftir upphrópan sérfræðinga afglapaherveldis Brussels, sem bæði er í höndum og ofan í djúpum vösum þýskra kanslara og franskra forseta, sem stanslaust og klofvega húka sem kommissarískir púkar á Lotharingen-öxli þeim er vegur saltið sem fyrirbærið stráir stanslaust í sár Evrópu og sem því alltaf eru opin og hafa opnast mest undir vaxandi völdum Evrópusambandsins af Lotharingen.
 
Í ljósi þessa öxulveldis Lotharingen ber að skoða frönsku hrópin "frekar Hitler en Blum" og heimsókn Henri Ardant aðalstjórnanda franska stórbankans Société Générale nokkrum árum síðar — en þá undir hernámi nasista í Frakklandi — þegar hann lýsti þeirri "björtu von" út yfir allt Frakkland sitt að þriðja ríki Adolfs Hitlers myndi sem fyrst setja á laggirnar "tollabandalag og sameiginlega mynt" þessara tveggja ríkja.
 
Þess vegna rúmast skýrsla Seðlabankans mjög vel í tóma hyldjúpinu undir hásætisstól heimskunnar hjá ríkisstjórn ríkiskommúnista, ríkissósíalista og DDRÚVista, þar sem flestu öðru hefur verið drekkt á meðan ráðherraínan í stólnum horfir blá í framan út í ESB-loftið og mábar.
 
Það eru alltaf grundvallarmistök að blanda peningum og Þýskalandi saman, því það þýðir aðeins eitt stórt og mergsogið ríkisgjaldþrot, fátækt og endalausar hörmungar fyrir alla. Það verður gaman — eða hitt þó heldur — fyrir Frakka að sjá herr Hollande af Frankíu koma sem fallin spýta og rúinn öllu kosningafleski sem gangandi beinagrind kjósenda útaf útskurðarnámskeiði hjá Gerhard Schröder jakkafatastjórnanda þýska elítufræsarans af Treuhandanstaltinu. Allar gerðir kapítalisma meginlands Evrópu eru erfðafræðilega dæmdar til að enda sem ný misfóstur og sovétríki. Hann er algerlega frá fæðingu af gerónýtur, gagnslaus og mun aldrei rúmast innan veggja frelsis og hvað þá lýðræðis. Meginland Evrópu er því miður varanlega ónýtt. 

Hver greiðir fólki fyrir að fara í turnháskóla á kostnað skattgreiðenda til að verða síðan að tólf manna heilastöppustelli? Bein og beinhörð peningastefna seðlabankastjórans á ríkissjóð lýðveldisins heldur því áfram. Þessi sogrör eru með ólíkindum. Bráðum mun allt hafa verið tæmt og tjónið eitt sitja eftir.
 
 
 
 

Rotinn bakgarður Þýskalands nær nú loksins yfir alla Evrópu. Gandreið hestakerru með franskri svipu

 

SuperBundesbank

Jæja. Nú er draumurinn að rætast. Þykjustu-andstaða seðlabanka Þýskalands sem allar götur frá upphafi hefur rammlega blöffað fólkið í sínu eigin landi, svo bankinn geti ávalt náð fram markmiðum sínum, hefur nú tekist að komast til stóraukinna valda í gegnum nýja stofnun sem kalla má SuperBundesbank Europas; eða Mittelpunkt. 
 
Krónískt geðklofinn seðlabanki Þýskalands, sem snemma í sögunni varð einn stræsti happa- og glappa lygavefur meginlandsins, hefur leikið sikkópatahlutverk sitt vel á hinu monetrary-transvestít klæða-tímabili frá árinu 1974 og fram til dagsins í dag. Nú eru geggjuðustu draumar þessarar einræðisstofnunar loksins að rætast. SuperBundesbanki Þýskalands ræður nú svo að segja yfir allri Evrópu; óháður öllum ríkisstjórnum; óháður öllum lýðræðisstofnunum allra ríkjanna, og hefur náð völdum sem eru langt umfram það sem brjáluðum stjórnmálamönnum meginlandsins hefur nokkurn tíma tekist. Og trúið mér; þeir hafa verið margir - og reynt mikið. 

Gúmmídúkkan Draghi var góður í Tietmeyerskum puppet-búningi sínum í gær. Fjármálastofnanir- og markaðir á myntbrjálsemissvæði Evrópusambandsins munu brátt skilja hvaðan þessi óstjórnlegi en óstöðvandi skjálfti þeirra á tökkunum kemur.
 
Ógnvekjandi tímar eru í vændum á meginlandi taparanna í Evrópu. Gráasvæðið er að sortna upp og stækka út yfir allt peningalandslag samsærisins.
 
Fyrri færsla
 

Hinn fermetra stóri haus á títuprjóni


Hrávörudeildarskrifarar J.P. Morgan bankans hafa óafvitandi hitt hinn fermetra stóra haus á títuprjóni þeim sem ferlegur og fastur hefur setið á þeim svera stað er veitt hefur skrifurum bankans viðnámsþrótt og vernd gegn þyngdarlögmáli sjálfra síns í tímarúminu. Ég er ekki að segja að þeir séu enn komnir á nálapúða. En að minnsta kosti er þarna kominn einn prjónn. Og peran blikkar. Þeir segja hér: "Alarming parallels between current Middle East tensions and events leading up to WWI"

Þeir eru að gera sér grein fyrir því að sumar aðstæður í dag minna óþægilega mikið á þá atburðarás sem leiddi til þess að meginland taparanna í Evrópu rann á sínum glæsitíma með hátíðleg andlit sín ofan í forrétt þann sem nú kallast Fyrri heimsstyrjöldin. Það var auðvitað ekki hægt að kalla hana "hina fyrri" fyrr en eftir að sú "síðari" hafði skilað þeim aðalréttunum á borðið. Og sem þá ranglega voru strax nefndir Hinir síðari.

J.P. Morgan hefur áhyggjur af ýmsum hernaðarlegum aðstæðum sem leitt gætu til þriðja réttarins, eða réttara sagt, endurtekið forréttinn í nýrri og breyttri útgáfu. Þeir segja meðal annars og réttilega að:
  • 8) significant economic integration is insufficient inoculation to prevent total war and prosecution of war can persist even if it means economic devastation (hah!)
  • 9) appeals to national pride are insufficient to prevent political backlash to and moral condemnation of voluntary war, and
  • 10) random events in proxy conflicts can be the catalyst for general war.
Atriði númer átta stendur í mínum huga alveg upp úr sem sú púðurtunna eldglæringa er nú blossar, tifar og telur niður á meginlandi taparanna í Evrópu. Og það sem meira er: samhæfingar- og samrunaflétta Evrópusambandsins stendur brátt ljóslifandi fyrir og meðal borgaranna á götunni, sem ein stór og illræmd samsærisflétta elítuembættis- og stjórnmálamanna Evrópusambandsins; sem orðið er ósnertanlegt.
 
Þrír helstu stórerindrekar tortímingar hagsældar, velmegunar, lýðræðis og frelsis í Evrópu eru þrjár valdastofnanir hins meira en ekki minna Evrópusambands. Hin fyrsta stofnun er auðvitað kengseðlabanki Þýskalands sem er eins konar geðklofinn ERM-dreymandi tvíhöfða útungunarvél hörmulegs einveldis. Og sú önnur er auðvitað aukaseðlabanki Þýskalands sem heitir ECB-seðlabanki Evrópusambandsins. Hann er bæði í vasanum og í höfðinu á númer eitt sem virkt sogrör hins aðframkomna Þýskalands niður í fullveldissafn þjóðríkjanna, sem hanga nú ormétin á snögum þessa félagsskapar evrópskra asna í lofvarnarbyrgjum Brussels gegn fólkinu. Þriðja stofnunin er helvítis-dómstóll sambandsins, European Court of Justice (ECJ), sem er allur lagarammi og allt lagasafn hans sem sótt var af embættismönnum til heljar, og sem kom hreint ekki af himnum ofan til borgaranna, heldur fæddist lagaheimsspeki dómstólsins sem pervers hugmyndafræði á borð við þá sem leiddi til þeirrar Síðari; til aðalréttarins.

En það sem hrávörudeildarskrifurum J.P. Morgan bankans sést þó yfir er sjálft aðalatriðið og jafnvel staðsetning þess; Samhæfingar- og samrunaflétta embættis og stjórnmálamanna með tréhestinn frá Lyon í fararbroddi trójansks hestastóðs, hefur frá árinu 1984 verið að leiða heiminn inn í það ferli sem til dæmis hrávörudeildarskrifarar hafa nú áhyggjur af. Samhæfing og samþætting er búin að eyðileggja efnahag heimsins að miklu leyti. Tortíma ávöxtun fjármuna í heiminum og tortíma þar með afkasti og arði af nánast hverju sem er. Rentability (ávöxtun eigna) er horfið úr heiminum eins og einnig gerðist í aðdraganda hinnar Fyrri heimsstyrjaldar. Það er horfið vegna samráðs og samhæfingar stjórnmálamanna þvers á landamæri, sem í praxís er samsæri þeirra gegn þjóðum og þjóðríkjum og þar með á kostnað fólksins. Við erum að glíða inn í slæma tíma og Evrópa er — eins örugglega og sólin kemur upp á morgun — að springa í loft upp og lenda sem nýtt sovétríki. Evrópusambandselítan er búin að eyðilegga Evrópu.

*** 

“Coordination” is an excuse for proto-Marxists, or at least statists, corporatists, and market-phobes, to impose a centrally planned economy and an anti-democratic polity. This nightmare is now very visibly playing out in Europe, coordinated by the two arch market-phobes, the French and German governments. This has been a very predictable development (indeed I predicted it fifteen years ago in my book, The Rotten Heart of Europe) but it is no less alarming for that.

*** 

One does not have to be a Marxist to see the strains created by a rigid global monetary system in the face of dynamically changing geographical patterns of comparative advantage and rates of return as being a major contributory factor in the slide into the First World War. Similar rigidities today would probably destroy not only capitalism but peace.

 

- Bernard Connolly; The International Economy, winter 2011 PDF

*** 


Það eru sorgleg mistök flestra að halda það að bara smá pínulitlu broti af skynsemi og góðum vilja hafi verið til staðar þegar myntbandalag Evrópusambandsins var stofnað. Ekkert er fjarri sanni. Réttnefnið á þetta illræmda og eyðileggjandi myntbandalag Evrópusambandsins er í raun og veru þetta: "Hið brjálaða myntsvæði Evrópusambandsins". Í Evrópusovétsambandi Stalíns á Balkanskaga var á sínum tíma eins konar ESB komið á til að "tryggja friðinn" sem Bandaríkjamenn þurftu svo að tosa líkin út úr.  Rotin hámenning heimskuveldis þess er Bismarck reisti yfir Berlín fyrir elítu Þýskalands hefur aldrei gefið af sér annað en tortímingu, ófrið og apatí. Evrópa er því ónýt frá rótum og upp. Ekkert hefur breyst. 

Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er einföld. Þungi hennar í dag rúmast innan einnar setningar og einfaldrar laglínu: Fullt tungl af vondu er að rísa. Við raunverulegir sjálfstæðimenn erum hins vegar af hugmyndafræðilegu ætterni hins góða og bjarta tungls. Því tungli ætlum við örugglega að halda á lofti eins og áður. Alveg sérstaklega eins og áður í stuttri lýðveldissögu þjóðríkis okkar. Og það vita allir góðir menn að við munum gera. Frelsið er forsenda lýðræðis, sem síðan er forsenda farsæls kapítalisma; sem tekur niður slæm tungl og tekur þau síðan í nefið.

Átta villtir hægri menn verða að snúa sér á mottunni, umfaðma þjóðríkið og ávalt muna að frelsi þeirra er private Ryan að þakka, sem gegndi skyldum sínum undir einni — og bara einni — mynt þjóðríksins.

Fyrri færsla
 


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband