Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021

Stóra-Bretland flytur alla bóluefnaframleiðslu burt af lögsögu ESB

Perspektíf Þýskalands

Mynd: Hin utanríkispólitíska tilvistarsýn Berlínar breytist ekki og liggur föst. Hún er algjörlega óháð tilvist pappírsbunka-stundarfyrirbæra á borð við Evrópusambandið. Pólitískar hugmyndir manna í hinum ýmsu löndum og á milli þeirra ferðast ágætlega um borð í flugvélum í 30 þúsund feta hæð yfir jörðu. En það gera þær hins vegar ekki á jörðu niðri. Þar ná þær ekki að hagga landfræðilegum og sögulegum staðreyndum. Enginn býr, lifir né sefur um borð í flugvél núna, og ei heldur á átakatímum. Átök vinnast aðeins á jörðu niðri, þar sem menn búa, og sem éta slíkar pólitískar hugmyndir hraðar upp en þær ná að (af)myndast, nema náttúrlega þær geopólitísku - og Útópía er verður aldrei geopólitísk hugmynd

****

BURT AF HÆTTUSVÆÐI ESB

Á meðan Angela Merkel kanslari frá DDR og Emmanuel Macron Frakklandsforseti funda með Vladímír Pútín fastaforseta Rússlands um Spútník bóluefnið, þá er löglegt land Borisar Johnsons forsætisráðherra að flytja alla bóluefnaframleiðslu burt frá löndum Evrópusambandsins og yfir til Stóra-Bretlands, eftir hótanir sambandsins (lesist: Þýskalands og Frakklands) um útflutningsbann. En hvað þá með hin rússnesku [eitur] efni sem verið hafa fréttamatur mörg hin síðustu ár í Evrópu og víðar? Skyldu þau efni ekkert hafa verið rædd á fundi Pútíns, Merkels og Macrons. Eða er það kannski markmið "leiðtoganna" þriggja að skaffa þau líka. Ég spyr. Fylgja þau kannski með í "pakkanum"?

Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í gær:

"Ursula von der Leyen’s loose talk about vaccine export bans belongs to the category of things that have an enormous long-term cost and fail to achieve anything in the short-term."

Hið breska GlaxoSmithKline mun sjá um það sem Þýskaland átti að sjá um (átöppun/áfylling/frágangur) fyrir Novovax bóluefnið og Fujifilm Diosynth Biotechnologies mun sjá um að framleiða það í norðaustur Bretlandi í verksmiðum fyrirtækisins í Teesside. Öll framleiðsla bóluefna fyrir hina síðari bresku bólusetningarumferð, sem hefst í lok sumars, mun fara fram í sjálfu Bretlandi og eiga þessar verksmiðjur að vera komnar á full afköst í september. Markmiðið er að byggja upp langtíma framleiðslugetu fyrir bóluefni innan landamæra Bretlands og sem hægt er að stóla á og séð getur landinu fyrir eigin bóluefnum, og náttúrlega flutt þau síðan út til annarra landa líka. Novovax er bandarískt fyrirtæki í Maryland í Bandaríkjunum sem þróar bóluefni. Ofan í þetta koma síðan Astra, Pfizer og Moderna

HEIMUR MANNA BREYTIST EKKI

Ég er næstum viss um að Frakkland spilar með til þess að reyna að keppa við og spilla fyrir sívaxandi pólitískum vinskap Rússlands og Þýskalands, og sem er gamalt franskt plott frá fyrri tíð um að reyna að koma í veg fyrir að Þýskaland geti haft öruggt bak í austri, ef það skyldi nú byrja að þjarma að Vestur-Evrópu á ný. Ýmislegt bendir nefnilega til þess: 1) NATO-svik Þýskalands og sem eru fordæmisgefandi fyrir þau ríki sem eru á fastri sporbraut um það. Og 2) hin nýja Molotov–Ribbentrop II gasleiðsla Rússlands til Berlínar núna (NordStream2). En um hana mun enginn umframdropi af gasi fara miðað við þær leiðslur sem nú þegar eru til staðar, en sem verða lagðar niður í Úkraínu og Póllandi, og þar með gera bæði þau ríki enn strategíkst berskjaldaðri gagnvart austri

Reyndar er Evrópusambandið sem Þýskaland er komið með í rassvasa sína núna, þegar byrjað að þjarma að Stóra-Bretlandi í vestri, Póllandi í austri, Ungverjalandi og Grikklandi á Balkanslóðum ásamt ríkjum Suður-Evrópu, plús það að Þýskaland mælist nú Ameríku-fjandsamlegasta ríki hins þróaða hluta veraldar

FYRIRBYGGJANDI ÁRÁSIR

Þessar stanslausu fréttatilkynningar um blóðtappa af völdum AstraZeneca miðast að því að spilla fyrir því bóluefni, því vel getur hugsast að Stóra-Bretland muni hætta að sjá ESB-löndum fyrir hátæknihráefnum til framleiðslu þess. Líklegt er því að ESB-Berlín-Parísar öxullinn viti nú þegar vel að það er að lokast á að AstraZeneca verði framleitt á meginlandi Evrópu, og að öxullinn neyðist því til að flytja það inn frá Bretlandi, Bandaríkjunum og t.d. Indlandi, en sem nú er bandamaður Bandaríkjanna í hinu óformlega Fjórbandalagi með Japan og Ástralíu - og þar með Bretlandi líka

Hin óhæfa Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er persónulegur skjólstæðingur Angelu Merkels og það voru þær sem plottuðu saman um að láta Evrópusambandið um bóluefnamálin, en sem sambandið er algjörlega ófært um. Þessar tvær persónur hafa reyndar reynst óhæfar til flestra verka líka. Til að láta ESB um málaflokk á borð við bóluefnamál, þyrfti 7-ára sáttmálabreytingarferli til að ESB gæti slíkt - og það vissu þær vel, nema að þær séu ekki með á nótunum, sem er líklegasta skýringin, nú sem fyrr. Afar ólíklegt er að slík sáttmálabreyting hefði fengist samþykkt - nema þá undir hótunum, áframhaldandi evruógnum og spellvirkjum

PÓLITÍSK UPPLAUSN

Fylgi CDU/CSU flokksbandalags Angelu Merkels er nú í frjálsu falli og komið niður í 25 prósentur, eða á par við fylgi hins nú misheppnaða Sjálfstæðisflokks míns hér á Íslandi, með svipaða óhæfa og sísökkvandi flokksblýklossa um borð þar líka

Hinn pólitíski stöðugleiki eftirstríðsáranna er horfinn í Þýskalandi. Stjórnmálaflokkar þar eru að leysast upp og nýir að myndast í þeirra stað. Enginn veit hvað gerist næst í Þýskalandi. Og það eitt og sér er ekki góðs viti, því þegar það kviknar í Þýskalandi þá geta hlutirnir gerst mjög hratt. Til dæmis fór verðlag úr verðhjöðnun og yfir í 400 prósent verðbólgu á minna en 12 mánuðum er þýski seðlabankinn fór með landið í þrot 192x. Slíkur var hraðinn í þessu eldfima landi þá og er því miður enn, nái réttu skilyrðin fyrir þýskum steppubruna að myndast

FLÓTTINN

Fjárfestingar lýðræðislanda á lögsögu Evrópusambandsins eru nú að komast í flokk með áhættufjárfestingum í húlabúla-löndum. Hætt er því við að vaxandi löng bið verði eftir þeim í hinni mjög svo ómögulegu framtíð Evrópusambandsins. Líkurnar á að aðeins Kínverjar og Rússar hafi áhuga á fjárfestingum á lögsögu Evrópusambandsins, aukast í takt við að áhugi lýðræðislanda minnkar. Og nú er kominn nýr valkostur sem heitir frjálst og fullvalda Stóra-Bretland. Hækkar því sterlingspundið sífellt gagnvart evru og hefur gert það síðustu 12 mánuðina. En það eru fleiri lönd en Bretland sem ekki munu sætta sig við að vera lokuð inni í ESB. Íslensk fyrirtæki sem fjárfest hafa á meginlandi Evrópu munu nú þurfa að hugsa sig alvarlega um, áður en það er um seinan. Löggjafinn í ESB er óútreiknanlegur, enda hefur enginn kosið hann

Fyrri færsla

Ekki slys - og þær voru svartar


Ekki slys - og þær voru svartar

Screen Shot 2020-06-07 at 07.13.15

Mynd: Apaplánetan réðst að styttu af Winston Churchill í Lundúnum síðasta ósumar

****

Þær, stúlkurnar, voru svartar (má ekki segja það, sjá frétt neðst) og yfirfalsfréttastofan CNN kallar þetta "slys" (e. accident). Það gerir hún af ásettu kynþáttahatandi ráði hins nýja rasisma andrasista. Þetta var ekkert "slys". Þetta var virkilega ógeðslegt ránmorð framið af nútíma villimönnum

Það eina sem stúlkurnar höfðu áhuga á eftir að bíllinn fyrir þeirra tilstuðlan hafði brunað á ofsahraða fyrir horn og oltið, með bílstjórann að mestu hangandi utan á, var hvar síminn þeirra væri staðsettur á meðan bílstjórinn lá í hrúgu og var að deyja. Búið er að má yfir staðinn á myndinni við fréttina þar sem tveggja barna faðirinn liggur og er að deyja af völdum blábjána. Öll hans fyrirhöfn og viðleitni í lífinu var þarna gerð að engu, fyrir hann sjálfan og konu hans, fyrir ekki neitt

Þegar ég sá upptökuna datt mér apaplánetan í hug og varð virkilega illt. Ég hvet engan til að horfa hana á sundurfélagsmiðlum sem nú hafa breytt sér í mjúkt alræðistól í höndum ofsakjána með lyklaborð og hálmhrúgur í heilastað

Og nú er komið í ljós að hinn margumtalaði George Floyd dó vegna eign eiturlyfjaneyslu af tvennu tagi og þar af leiddu uppblásnu hjarta, en ekki af völdum lögregluþjóns sem fór eftir starfsreglum lögreglunnar. Hafði hinn látni þegar verið að kafna löngu fyrir handtökuna

Hve lengi skyldi þessi sjálfsútskúfun í boði Demókrataflokksins fá að ganga fyrir sig þarna vestanhafs? En þetta virðist vera einhvers konar 100 ára árangur þess flokks, sem fyrr á tímum varði þrælahald með vopnum, kjafti og klóm

Barnfóstruríkið þar sem fræga fólkið skeinir sig á bandaríska fánanaum og fær fyrir það klapp hjá CNN, er virkilega komið í ógöngur. Það styttist í að þolinmæði hins hvíta manns þrjóti. Og þá þýðir lítið að kalla elsku mamma loksins þegar það gerist. Ákalla verður þá þann stóra sem á Bandaríkjadal er áletraður

Þingsályktunartillaga um "upplýsingaóreiðu" sem lögð hefur verið fyrir á Alþingi myndi að sjálfsögðu (heldur betur ekki) koma því til leiðar að bent yrði á að hér var ekki um slys að ræða heldur ránmorð. Og einnig (ekki) koma því á framfæri að morðingjarnir eru þeldökkar táningastúlkur, ásamt (ekki) því að það sem kom óeirðunum af stað í Bandaríkjunum síðasta vor og sumar voru falsaðar fréttir, sundurfélagsmiðlar og pólitísk aðför fréttamiðla landsins að þáverandi forseta Bandaríkjanna. Og sem massíft voru bergmálaðar á öllum Norðurlöndunum fimm, einnig í þeim löndum sem á sínum tíma töluðu máli Adolfs Hitlers í "Gyðingamálinu" - hér í málgagni sænska sósíaldemókrataflokksins - enda var þýski nasistaflokkurinn vinstriflokkur - og nokkuð skyldur þeim sænska - og hét því Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei

Fyrri færsla

ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]


mbl.is Táningsstúlkur ákærðar fyrir morð á Uber-bílstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland

Mynd: pólitískur evruupptakari

****

Stjórnmálamenn og ríkisstjórnir framleiða ekki bóluefni

Evrópusambandið framleiðir ekki bóluefni. En það hindrar framleiðslu þeirra og drepur fólk þannig óbeint

Nei. Það eru fyrirtæki sem framleiða bóluefni

Og þau gera það til að græða peninga og þekkingu á því. Annars hefðum við engin bóluefni í dag. Græðgi einkaframtaksins skaffaði okkur bóluefni gegn kínversku Wuhanveirunni

Hagnaðarvonin til lengri tíma litið skaffaði okkur bóluefni, ásamt grjótharðri samkeppni milli einkafyrirtækja, sem nutu stuðnings þjóðkjörinna ríkisstjórna þjóða, en ekki óþjóða

Ísland er án bóluefna vegna þess að stjórnmálamenn okkar gátu ekkert og gerðu ekkert. Gátu og gerðu ekkert ekkert og ekkert í bóluefnamálinu. Ekkert er svo gott sem það eina sem þeir hafa sýnt að kunna þar. Heilbrigðisráðherra þjóðar ætti aldrei að vera hvorki hálf- né heilkommi. Hann ætti umfram allt að vera stórkapítalisti og helst að hafa prófað gjaldþrot

Evrópusambandið er andkapítalistísk og umboðslaus elítusamsteypa hinnar stjórnlausu pólitísku elítugræðgi, sem er hundrað sinnum verri en flest annað

Sambandið er umboðslaus ófreskja sem ekki hægt að kjósa burt. Sú græðgi á ekkert skylt við hina góðu græðgi eiginhagsmuna og framfara þjóða, og einstaklinga hennar, sem oft eru hluthafar líka, fyrir utan það að vera bólusettir ríkisborgarar, sinni stjórnmálamen störfum sínum og standi við sitt

Geri þeir ekki það, verða þeir kosnir burt

Viðtal Telegraph við kapítalistann Kate Bingham sem sá um bóluefnismál Stóra-Bretlands, þ.e. var verkefnisstjóri bresku ríkisstjórnarinnar í bóluefnamálum, og stóð fyrir öllu frá A til Ö, er mjög svo athyglisvert og lærdómsríkt fyrir okkur öll - en þó einkum fyrir heilbrigðisráðherra sem er kommi. Hún var ráðin með einu símtali og enginn annar var spurður né hvað þá leitað til bráðdrepandi ráðningarnefndar um neitt: Kate Bingham exclusive interview: "EU leaders undermining the vaccine are completely irresponsible"

Hún býr í Wales, uppi í sveit, og á ekki sjónvarp, en hins vegar mann og þrjú börn. Þaðan vann hún verkið stóra fyrir Boris Johnson og Stóra-Bretland, á næstum núll komma fimm

Stjórnsýslan í 101 allra borga og Wall Street, eiga það sameiginlegt að framleiða lítið annað en hávaða og læti. Nóg er að koma þangað einu sinni á ári

NÝR FORSETI VESTANHAFS?

Hinumegin Atlantsála hefur nýr(?) Joe Biden forseti nú setið við sennilega illa fengin völd í 46 daga. Um nýja tegund forseta Bandaríkjanna virðist vera að ræða. Man hann til dæmis hvorki hvað Pentagon er, né hvað það gerir. En þar eru aðalstöðvar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna til húsa. Og forsetinn man heldur ekki hvað yfirmaður hersins sem hann sjálfur fer fyrir heitir. En ekki nóg með það, þá tókst þessum nýja forseta úr röðum Demókrata ekki að komast um borð í flugvél sína nema með því að detta þrisvar sinnum á hausinn á leiðinni upp í hana

Hvað skyldu valdamenn Kínverska kommúnistaflokksins hugsa núna? Að stofna til óþarfa freistnivanda í utanríkismálum hefur ávallt reynst hættulegt og sérlega slæmur fyrirboði. "Ég hitti þá, og ég sá þá, og þeir voru ormar" sagði Hitler eftir fundinn í München þann 30. september 1938. "Ég hefði getað lamið hann [Chamberlain] í hausinn með regnhlíf hans. "Vesalingar og ormar" var það eina sem kom út úr þeim fundi eins og þessum þarna í Alaska um daginn. "Þarna er ekkert að óttast" hugsaði herra Hi á síðustu öld - og sennilega líka herra Xi á þessari

Séu frammistöðutölur Rassmusen Reports um Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í forsetaembættinu skoðaðar, og bornar saman við sömu tölur um Donald J. Trump á hans fyrstu 46 dögum í sama embætti, þá fæst sú niðurstaða að samanlagt eru bandarískir kjósendur næstum tvöfalt meira umfram-óánægðari með Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í embættinu, miðað við 46 fyrstu daga Donalds J. Trump sem forseta Bandaríkjanna

Sé daglegur mismunur á mjög ánægðum kjósendum og mjög óánægðum (e. approval index) lagður saman og deilt í með fjölda daga, þá fær Trump töluna mínus 3,22 en Biden mínus 5,63. Þarna, eins og annars staðar, virðist Biden forsetinn þegar kominn að minnsta kosti tvöfalt meira á hausinn miðað við fyrirrennara hans, og færist nú hraðinn niður þann stiga líka mjög svo í aukana

Hve lengi skyldi þessum lygum verða leyft að standa? Svar: Sennilega jafnlengi og allir stórir fjölmiðlar og félagsvefir halda bandarískum kjósendum í jafn öflugri einangrun frá forseta Bandaríkjanna eins og Evrópusambandið hélt nýlendunni Austurríki í einangrun frá umheiminum vegna stjórnmálamannsins Jörg Haider

Hvernig skyldi annars ganga með Molotov–Ribbentrop II gasleiðsluna til Berlínar núna? Um hana mun enginn umframdropi af gasi fljóta miðað við það að nota þær leiðslur sem þegar eru fyrir hendi, þ.e.a.s komist hún í notkun, og þökk sé þá stigamanninum Biden

Fyrri færsla

ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]


mbl.is Boða aukna framleiðslugetu á bóluefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]

Bólusetningar í Bretlandi 24 mars 2021

Mynd: Í Stóra-Bretlandi var í dag búið að bólusetja 55 prósent þeirra sem eru 18 ára og eldri, vegna þess að Bretland er hvorki í Evrópusambandinu né EES. Það er nefnilega fullvalda og sjálfstætt ríki. Útgangan borgaði sig strax

****

EINANGRUNARBÚÐIR EVRÓPUSAMBANDSINS

Ríkisstjórnin hefur einangrað Ísland með tengingu þess við ESB

[Sjá frétt neðst: ESB bannar flutning bóluefna til Íslands]

Þarna er ESB að þurrka vandamálinu sem það sjálft skapaði yfir á okkur. Og hér heima er aularíkisstjórn okkar náttúrlega þegar komin á klósettið vegna þessa máls, fyrir að hafa látið lífshættulegt Gangster-samband ESB um bóluefnamálið

Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í morgun (leturbreyting mín)

"The blanket export ban is off the table - despite of what you may read in some reports this morning. The purpose of the discussion is deflection - an art mastered by the rulers of the EU. It constitutes another way of not solving the problem. FAZ reports this morning that the Commission will now propose a transparency mechanism, according to which countries have to notify the Commission before they impose export bans. But EU countries already have to do this. What’s new is that the countries of the western Balkans, Switzerland and Norway would have to do so too, which is of course irrelevant for the current situation."

En hér með er ríkisstjórn Íslands hins vegar komin í sjálfa salernisskálina, og verður að öllum líkindum sturtað niður í kosningunum í haust. Nema að Bjarni Ben taki dúkkulísu-ráðherra ríkisstjórnarinnar og sendi þær fastnegldar á skítakamri Evrópusambandsins til tunglsins, og fái í staðinn fullorðið fólk til liðs við sig, áður en öllum xD-flokki okkar verður skotið sömu leið

1. Við erum með einn heilbrigðisráðherra sem enn er því sem næst þvottaheldur gamall Sovét-kommi, 30 árum eftir hrun Sovétríkjanna

2. Við erum með einn ráðherra sem er eins konar Hamborgaraofstækisáðherra með löngu nafni og sem virðist vera eineygð

3. Við erum með dómsmálaráðherra sem er eins konar MeToo dúkkulísa, án vits og ára

4. Og við erum með sjálfan Bjarna Ben formann xD sem er eins konar bimbó-haldari og ætti í reynd að vinna við afgreiðslu í banka eða á bílasölu, þar sem hann myndi njóta sín og vegna vel

5. Og við erum með forsætisráðherra sem er einfeldningur og krónískur miðstjórnarkommi, græn að utan en rauð að innan. Einu landvarnirnar sem hún þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar

Grrrrr....

Þetta er nú meira skrímslasafnið. En það versta er að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn eru enn verri. Já enn verri!

En verst af öllu er þó sjálft Evrópusambandið. Leiðari Wall Street Journal komst ansi vel að orði um þann kamar í vikunni sem leið:

"Europe’s Gang That Couldn’t Shot Straight

It’s hard to think of a recent fiasco that can match the European Union’s Covid vaccine rollout. Protectionism, mercantilism, bureaucratic ineptitude, lack of political accountability, crippling safety-ism—it’s all here. The Keystone Kops in Brussels and European capitals would be funny if the consequences weren’t so serious"

Myntbandalagið sekkur

**** 

Uppfært 25. mars kl 06:50

EN ÞAÐ KOM MEIRA VONT Í BUXUR ESB Í GÆR

Samkvæmt fréttum Telegraph gerðist einnig það í gær að NAS sérsveitir ítölsku herlögreglunnar á vegum Evrópusambandsins stormuðu áfyllingar- og pökkunarstöð AstraZeneca nálægt Róm. Hið tómhöfða elítustóð hins umboðslausa getuleysissambands ESB í Brussel hafði nefnilega hafi fengið fregnir af því að miklar og faldar brigðir af Oxford/Spitfire bóluefninu frá AstraZeneca væru faldar í þeirri verksmiðju, og að senda ætti þær til Bretlands. Storma því sérsveitir herlögreglunnar verksmiðjuna sem er í eigu bandarísks fyrirtækis og komast að því að 29 milljón skammtar af bóluefninu eru þar, eða helmingur þess sem AstraZeneca hafði ekki enn afhent til ESB

Og eftir að hafa farið í gegnum pappíra verksmiðjunnar lekur ESB því í ítölsku La Stampa pressuna að þarna séu loksins komnir í leitirnar þeir skammtar sem ekki hafði verið staðið við og að þeir hefðu ábyggilega verið á leið til Bretlands, leynilega!

En síðan byrjar lygavefur blábjánahers Evrópusambandsins að hrynja, en þó fyrst eftir að hafa farið eins og eldur í sinu upp allt fársjúkt meginlandið, sem er að sökkva undan ESB, því í fyrsta lagi gat breska ríkisstjórnin strax staðfest (já það er ríkisstjórn í Bretlandi og hún virkar) að ekkert kæmi til Bretlands frá þessari verksmiðju á Ítalíu og kæmi aldrei og hefði aldrei gert það. Og í öðru lagi kom í ljós 16 milljón skammtar af birgðunum voru ætlaðir Evrópusambandinu sjálfu og aðrir 13 milljón vanþróuðum ríkjum undir Covax-áætluninni

Sagði AstraZeneca að þessir 16 milljón skammtar ESB biðu þess að fá grænt ljós frá gæðaeftirliti fyrirtækisins áður en hægt væri að senda þá áfram til verksmiðju fyrirtækisins í Belgíu - og að það væri fullkomin rangfærsla að kalla þetta "birgðir" eða "birgðastöð"

Bruno Macaes fyrrum evrópumálaráðherra Portúgals lýsti þessu framferði Evrópusambandsins sem skammarlegasta augnabliki í sögu þess

En þegar hér var komið í lygasögu Evrópusambandsins í gær, neitaði blábjánaher þess þó að gefast upp og hóf að útvarpa því að hafa krafið AstraZeneca um enn frekari upplýsingar um hvar hin virku innihaldsefni í bóluefnunum sem stödd voru í framleiðsluferlinu þarna á Ítalíu væru framleidd, og gaf blábjánaher ESB jafnframt út þær yfirlýsingar að þau gætu hafa verið framleidd í margumræddri Halix lyfjaverksmiðju AstraZeneca í Hollandi. En hingað til hefur sú verksmiðja ekki afhent bóluefni til ESB-landa einfaldlega vegna þess að hún hefur ekki leyfi til þess fyrir lyfjastofnun ESB. Gat þá AstraZeneca upplýst blábjánaher Evrópusambandsins um að bóluefnið sem væri á Ítalíu til pökkunar hefði komið frá löndum utan sambandsins (les; sennilega frá Bretlandi)

Ég get upplýst lesendur hér um, að þarna er Evrópusambandinu rétt lýst. Ef horft er fast í andlit þessa fólks þá sjást heiladordinglar skíðandi fram og til baka á bak við annað auga og yfir í hitt, og að á bak við þau bæði er ekkert annað en gamlir köngulóarvefir. Það sama sést þegar horft í augu ríkisstjórnar Íslands í þessum efnum og hið sama sést þegar horft er í augu fylgismanna sambandsins og EES hér á Íslandi eins og úti. Þar inni er ekkert annað en einmitt þetta. Helber skríðandi heimska sem drepur fólk og eyðileggur lönd og ríki þess

1. Evrópusambandið hefur eyðilagt stjórnmálin í Evrópu

2. Evrópusambandið hefur eyðilagt sambúð ríkja í Evrópu

3. Evrópusambandið hefur eyðilagt efnahag ríkja Evrópu

4. Evrópusambandið hefur stórskaðað menningu ríkja Evrópu

5. Evrópusambandið er að eyðieggja friðinn í álfunni

6. Stofnmarkmið og tilgangur Evrópusambandsins var aldrei annar en valdarán og þjófnaður

Fyrri færsla

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt


mbl.is ESB bannar flutning bóluefna til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt

Eurointelligence 20. mars 2021


Skjáskot: Grein Wolfgangs Münchau í Eurointelligence á laugardag

****

BÓLUEFNI ASTRA-ZENECA DÆMT ÖRUGGT Í BANDARÍKJUNUM

Niðurstöður eru komnar úr klínískum prófunum á bóluefninu frá AstraZeneca í Bandaríkjunum. En bóluefnið er kennt við háskólann í Oxford í Stóra-Bretlandi, þar sem það var fundið upp

Í frétt Wall Street Journal í gærkvöldi kemur fram að klínískum prófunum sé nú lokið þar vestanhafs og að bóluefni AstraZeneca sé öruggt. Það er talið 80 prósent verndandi fyrir 65 ára og eldri, en sá aldurshópur í klínísku prófununum vestanhafs var mun stærri en þegar efnið var prófað austanhafs. Fær bóluefnið einkunnina 100 prósent í því að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar og sjúkrahúsinnlagnir hjá fólki á öllum aldri og kynþáttum

Engin vandamál með blóðtappa komu fram í prófunum. Hefur bandaríska ríkisstjórnin þegar pantað 300 milljón skammta af bóluefninu og þar af mun varnarmálaráðuneytið fá 200 milljón skammta. Um það bil 32.500 manns sem eru 18 ára og eldri tóku þátt í prófinu og var fimmtungur þeirra eldri en 65 ára

Framleiðandinn AstraZeneca segist muni halda áfram að rýna í niðurstöðurnar og ætlar að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum. En Donald J. Trump forseti lét Bandaríkin veita 1,2 milljarði dala til þróunar þess er hann setti Ljóshraðaáætlun sína til þróunar, framleiðslu og dreifingar bóluefna gegn kínversku Wuhanveirunni á laggirnar í mars 2020. Hátt í 20 milljarðar dala voru settir í áætlunina og hóf hinn fámenni en velmannaði vinnuhópur sem að áætluninni stóð, þegar greiðslur úr þeim poka af peningum í mars 2020. Þremur vikum síðar tók hinn litli vinnuhópur Borisar Johnsons til starfa við sama verk, austan Atlantsála í Bretlandi

En þá var hið helsjúka Evrópusamband, sem lífshættulegt er heilsu manna, ekki einu sinni vaknað í málinu og drattaðist það síðan síðast allra í veröldinni af stað í þessum málum. Varla hefur eins viðurstyggilegt og lífshættulegt fyrirbæri og Evrópusambandið skriðið um á evrópskri jörð á friðartímum, síðan að Adolf Hitler kanslari Þýskalands undirbjó sig þar síðast. Evrukreppan sem hófst 2008 var 10 ára hryllingur þjóðpyntinga og varir enn; Flóttamannamisfóstrið 2014 er enn að rústa Evrópu; Og núna síðast er það massadauði íbúanna vegna misþyrminga Evrópusambandsins á sjúkdómavörnum í löndum sambandsins. Tugir og aftur tugir þúsunda manna munu láta lífið af völdum Evrópusambandsins á þessu ári

Fáir nema vesælir og veiklunda menn og vitsmunaskertir einfeldningar leggja lag sitt við Evrópusambandið

Fyrri færsla

Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík


Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík

Tónverkið Charmaine í byltingarkenndri útsetningu hljómsveitar Mantovani 1951 - og sem kom í stereó-útgáfu hjá Decca í Lundúnum 1959. Þarna var um eina stærstu byltingu í hjómtækni nútímans að ræða. Hin svo kallaða strengjahrina (e. cascading strings) þar sem örlítil seinkun er viðhöfð á fiðlubogum hljómsveitarinnar, fær strengina til að magnast upp og mynda þennan ótrúlega stóra og breiða hljóm, ekki svo fjölmennrar strengjasveitar. Þarna fæddist brautryðjandi síðari tíma geimferðatónlistar, og það áður en rafmagnshljómborðin komu til sögunnar sem eftirhermur. Já, fiðlan er ótrúlegt hljóðfæri. Verkið passar ágætlega við eldgos (í myrkri) og jafnvel við álframleiðsluna í Straumsvík líka. Hljómborð Chopin eru samt uppáhald mitt, en þá verður viss herra Horowitz helst að sitja við þau og spila verk hans, bremsulaus

****

30 TONNA FRÉTTAGOS Á SEKÚNDU

Já þetta er "lítið" og "ræfilslegt" eldgos, eða um það bil ca. 30 tonn á sekúndu núna (10 m3 á sekúndu með eðlismassa hrauns á ca. 2,7) og er þetta litla og krúttlega eldgos þá búið að framleiða hálfa milljón tonna af hrauni síðan í gærkvöldi. Það er tvöföld þyngd ársframleiðslu álversins í Straumsvík. Síðast þegar gaus á Reykjanesskaga, þá var það víst á tímum Snorra í kringum árið 1240 og þá gaus í ca. 30 ár. Þessu gosi núna aflýstu "sérfræðingar" hins vegar klukkan 18 í gær, eða áður en það hófst. En virðist sú aflýsing þó ekki hafa tekist alveg, þannig að úr varð fréttagos

Séótveir eða Co2 frá þessu fréttagosi mun náttúrlega drepa jörðina á núll komma fimm, samkvæmt helgi-trúarritum Rauðu lofthita-kirkjunnar, því lofttegundin Co2 er samtals 0,04 prósent af gufuhvolfi jarðar. Rosalegt maður! Sem sagt: búið ykkur undir dauða alls og allra um alla eilífð, þvi massi allra 7,8 milljarða manna á jörðinni er 0,0000000000078 prósent af þyngd hennar - og eru þá heilabúin talin með og hver lifandi maður því settur á 60 kílógrömm. En massi jarðar er 5.973.600.000.000 milljarðar tonna (5,9736×10 í 24. veldi kg.) Allur massi manna á jörðinni vegur því hlutfallslega 213 þúsund sinnum minna á jörðinni en ein 1-milligramma höfuðlús vegur á höfði eins manns

Framleiðsla áls í heiminum er 64 milljón tonn á ári og þar af framleiðum við tæpa milljón tonn hvert ár hér heima og þar af er Straumsvík ca. 0,25 milljón tonn á ári. Þetta litla hobbýgos núna myndi þá framleiða alla þyngd þess heims-brædda massa á einum mánuði, eða 65 milljón tonn. Eldgosið í Holuhrauni 2014 var 100 m3 á sekúndu, eða tæp 16 þúsund tonn á mínútu, og hefði verið þrjá daga að gubba upp 64 milljón tonnum af bræddum massa, eða hér um bil

Já það má reyna að vona að fólk fari sér ekki að voða núna. En þar sem massíft of margir halda að þeir séu með snjallsíma-heiminn í hendi sér og því ódauðlegir, þá má búast við öllu

Og nú gæti einhver kverúlantinn með háskólagráðu, og sem því kallar sig "vísindamann", fundið upp á því að segja að "nýtt gat í ózonlaginu" sé að myndast yfir Íslandi vegna gossins, og hrætt fólk upp úr (vegan-plast) skónum næstu 20 árin og fengið okkur (ykkur, en ekki mig) til að hætta að nota-eða-gera A, B eða C. En þannig var það með síðasta "gat" í því lagi, sem þá varð mikið spilað dægurlag í hinum rauðu miðaldahöllum nýSovét-vísindanna seint á síðustu öld. Allt saman eitt stórt fís, kjaftæði og histería, en þó samt ekkert miðað við allsherjarþvælu hinna rauðu loftslags-kirkjutrúarmanna núna

Nú hljóta líka allar síður hinnar rauðu Wikipedíu að verða uppfærðar og settar í stílinn, því þetta eldgos breytir auðvitað öllu, ekki satt? Til dæmis mætti klína þar inn tengingu við hvað við menn eru vondir, og að við höfum kallað þarna fram reiði Rauðu loftslagsguðanna. Ja hérna...

En ef þetta verður eins og síðast á tímum Snorra, þá er ansi líklegt að fólk verði orðið frekar þreytt á gosinu eftir 30 ár og því búið að flytja höfuðborgina til Akureyrar og flugvöllinn líka. Hmm kannski hugmynd að spekúlasjón á fasteignamarkaði... tralla la la....

Fyrri færsla

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?


mbl.is „Pínulítið gos“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í Vickers VC10

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í breskt framleiddri Vickers VC10. VC10-þotan var uppáhaldsflugvél Margrétar Thatchers og var hún í 50-ár í loftinu. Bæði voru þau knúin Rolls-Royce Conway, eða því sem næst. ESB veit því miður ekki enn út í hvílíkt fen það hefur verið leitt

****

P-PILLAN?

(Sjá frétt neðst.) Ef um karlmann er að ræða þá er hann sennilega orðinn karlkerling á hinum norsku aurahaugum volmenningarinnar þar og því kominn á P-pilluna, sem þar með fengi nafnið P-transvestítatranstranskynskiptapilla v.68bíómiði

En P-pillan hefur ávallt legið undir einmitt þessum grun sem nú í æðiskasti er kastað á Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca, bara vegna þess að Evrópusambandinu er illa við það sökum þess að það kemur frá fullvalda Brexit-Bretlandi. En þar borgaði útgangan af Evrópusambandinu sig heldur betur frá og með fyrsta degi, því Bretar eru búnir að bólusetja nærri helming þjóðarinnar og nálgast nú hinn margumtalaða þorra hennar. Og ofan í það kemur síðan flótti alþjóðlegs fjármagns frá Evrópusambandslöndum yfir til Stóra-Bretlands. Hálf billjón evra yfirgaf lögsögu sambandsins á síðasta fjórðungi síðasta árs, og er það hvorki meira né minna 20 prósentur landsframleiðslunnar á ársgrundvelli

Í dag sagði Boris Johnson forsætisráðherra að hann myndi svo sannarlega láta dæla Oxford/Spitfire bóluefninu í sig um leið og kemur að honum í röðinni. Hann undirstrikaði það, fast og með hörðum penna. Hyggst hann einnig hefja þróun á hraðfleygustu eldflaugum jarðar í sínu nýfrjálsa landi, á meðan íslenskir ráðherrar halda sig við hamborgasteikingar ofan í fljúgandi fátæklinga

Í Bandaríkjunum, sem mér skilst að samþykki ekki útlenskt lyfjaeftirlit, bíða 100 milljón skammtar af bóluefninu þess að stórskalaprófun AstraZeneca á efninu ljúki þar í landi. En Donald J. Trump forseti veitti 1,2 milljörðum dala til þróunar þess. Til Pfizer lét hann tæpa tvo milljarða dala af hendi (1,95) og 4,1 milljarð dala til Moderna. Samtals 13 milljarða dala létu Bandaríkin af hendi rakna til þróunar og framleiðslu á bóluefnum. Síðan kemur dreifing og skipulag. Í Bandaríkjunum var það fjögurra stjörnu hershöfðingi og forstjóri úr lyfjabransanum sem látnir voru sjá um bóluefnaaðfangamálið þar. Í Bretlandi var lítill hópur manna úr atvinnulífinu látinn sjá um aðföng bóluefna. En í Evrópusambandinu voru hins vegar vanvita og algjörlega fávísar tröllskessur í skriffinnsku látnar um að klúðra málinum svo hryllilega að sennilega er þar um heimsmet í vanhæfni, vanræslu og getuleysi að ræða - reyndar eins og í flestu því sem sambandið kemur nálgæt

HAMBORGARASTEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR OG ÞÓRÓLFUR

Ríkisstjórnin getur ekki bara hent sér í það allt í einu núna að ganga gegn Þórólfi nú þegar hann er kominn með sitt á hreint og búinn að læra mikið og jafnvel nóg. Það getur hún ekki fyrst að hún þóttist ekkert vit hafa á neinu allt síðastliðið ár. Slíkar tilraunir til að viðhafa skítugt kosningatrix munu aðeins virka öfugt. Og nú þegar það er ríkisstjórninni sjálfri að kenna að ekki er búið að bólusetja alla þjóðina, þá verður hún að súpa seyðið af eigin getuleysi í þeim efnum. Hefði heilbrigðiráðuneytið ekki verið svona algjörlega vita vonlaust í bóluefnismálum og ekki svona hryllilega fjandsamlegt einkaframtakinu, þá væri Kári búinn að redda þessu máli fyrir langa löngu með hámark fjögurra-manna vinnuhópi úr atvinnulífinu. Ríkið er auðvitað ófært um lítið annað en að sólunda tíma og peningum annarra. Það getur ekkert frekar en Svandís sjálf. Þetta eru nú meiri vesalingarnir. Skyldi Katrín grænkommi enn vera í símanum uppi í bedda að redda?

Reyndar held ég að Þórólfur myndi fá 70% af öllum greiddum atkvæðum í kosningunum í haust ef hann byði sig fram sem eins-manns flokkur. Jafnvel 75% prósent. Hvað ætla menn að gera við því. Fremja kannski pólitískt sjálfsmorð. Harakiri um ágústnótt?

****

Bretar eru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi Síðari heimsstyrjaldarinnar til síðasta dags hennar, og ekkert hagkerfi neinna annarra landa afkastaði eins miklu og það breska á meðan á stríðinu stóð, miðað við mannfjölda. Hér minnast menn stíflusprengjuleiðangurs flugmanna hins Konunglega breska flughers

Tengt

Lyfja­stofn­un Evr­ópu [18. mars 2021]: Bólu­efni AstraZeneca ör­uggt

Fyrri færsla

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]


mbl.is Sterk ónæmissvörun hafi valdið blóðtöppunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]

USSE

LÍFSBJÖRG BÖNNUÐ

Ekkert lát er á árásum ESB-landa á breska Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca. Tvö gervihnattalönd, Danmörk og Austurríki, með allt niður um sig í bóluefnismálum á sporbraut þeirra um Þýskaland, riðuðu fyrst til hins pólitíska falls á vaðinu sem frussast nú upp um allt og alla í Evrópusambandinu, og er að breytast í jökulhlaup. Þar næst riðu Þýskaland, Frakkland og Ítalía út, og lýstu pólitískt munnfrussandi yfir stundarfrests banni á bóluefnið, til að kaupa sér tíma frá kjósendum sem þola orðið ekki lengur að heyra minnst Evrópusambandið í hinum bólupólitískum efnum krónískrar ESB-klikkunar meginlandsins. En hún er í ætt við málatilbúnaðinn sem á sínum tíma var viðhafður og byggður upp í kringum evru, sem flestir hagfræðingar töldu geðbilun (e. economic lunacy) og hefur sannað sig sem verandi einmitt það

Hér heima tók sá Þórólfur-sótti* er gerði allt rangt í byrjun faraldurs (til þess eins að þýðast faraldur ESB-þvættingsins sem þá stjórnlaust geisaði um Schengensvæðið þar til Trump drap hann) undir hinn nýja gaskút ESB-þvættingsins í gær og át ofan í sig allt það sem hann á ævi sinni hafði lært, og lítur því út sem uppblásinn ESB-gaskútur fyrir vikið, eða alveg eins og firrt Svandís-sovét gerði í DDRÚV Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar í gær

En bæði eru uppblásin og þungt haldin af ESB-þvættingi og viðstöðulausum ESB-pólitískum hneigingum. "Vísindin" látin lönd og leið og hysterían ein og rógburður Evrópusambandslanda gegn bóluefninu höfð að leiðarljósi. Singularity svartnættis breyttist í belgmyrkur hins þýska svarthols sem gervilöndin í ESB eru á sporbraut um. En þar inni er Þórólfur því miður villtur og að ærast úr hlátrarsköllum Kára, sem stendur fyrir utan, trúr sínum vísindalegu kenndum

SÖKKIÐ

"Þessu verður ekki gleymt" skrifar Eurointelligence um aðförina í dag. En þar hefur af hreinskilni verið fjallað um allsherjarklúður Angelu Merkels og Evrópusambandsins í bóluefnismálum og rógburðarherferð þýska kanslarans og franska forsetans gegn bóluefninu frá AstraZeneca. Ástæðan er velgengni Stóra-Bretlands í bólusetningum með bóluefni fullveldisins og sem þolir ekki dagsins ljós, því hún er sönnun þess að Brexit-útgangan af egyptalandi Evrópusambandsins virkaði frá og með fyrsta degi. Þar var nefnilega búið að bólusetja 24.453.221 manns, eða um það bil 40 prósentur þjóðarinnar með fyrstu stungu bóluefna og þar af 11 milljón manns með efninu frá AstraZeneca í gær, og engin vandamál. Beint fyrir framan nefið á örkumla meginlandi Evrópusambandsins

Þar sannast að það er lífsbjörg fyrir lönd að standa utan Evrópusambandsins og að stóla á fullveldi og sjálfstæði í eigin málum. Þetta þola svo kallaðir "leiðtogar" Evrópusambandsins ekki. Og níða verður læknavísindin niður í leiðinni. Eðli Evrópusambandsins er það, að vera álíka banvænt og Sovétríkin voru síðustu áratugina sem þau héngu uppi, áður en þau og hið trúarpólitíska altari þeirra féllu saman og ofan á fólkið

==== uppfært kl. 20:25

* PS: Í upphafi faraldurs var þríeyki okkar í faraldursfræðum og sóttvörnum ekki með frumforsendu-mikilvægi landamæra Íslands á hreinu. Hvergi nándar nærri. Mikilvægi landamæra höfðu hins vegar allir dýralæknar anno 1965 á hreinu. En þá kom í ljós að Schengen bannaði að viðhafðar væru sóttvarnir á svo kölluðum innri landamærum svæðisins og pólitískur aulafarsi hófst í málinu. Þeir ráðamenn á Ítalíu sem þá vildu loka landinu eða héruðum þess voru vændir um rasisma af kverúlöntum Evrópusambandsins og Schengen-heilastöppunnar. En þangað barst veiran til Evrópu með beinu flugi frá Wuhan í Kína. En þarna voru tillögur mínar þær að loka bæri landamærum Íslands strax og leggja hald á Miðnesheiði sem sóttvarnarsvæði, og að enginn fengi að koma inn í landið án þess að hafa verið þar í sóttkví í tvær vikur og að svipað yrði látið gilda um millilandaskip. Þá mátti ekki heyrast minnst á neitt slíkt. En síðan uppgötvaði þríeykið smám saman landamærin, tók upp vissa karlmennsku í málinu og hætti að hlusta á söng örvita um að veiran virti ekki landamæri ríkja. Og fyrst þá fóru kjarnakostir Þórólfs að njóta sín; en þeir eru að geta talað við þjóðina og fengið hana til að hlusta, því Þórólfur er fyrst og fremst samskiptamaður og þar liggja hans sterkustu hliðar í málinu. Hann á hins vegar ekki að taka þátt í hvaða dansi sem er. Sérstaklega ekki í pólitískum villimannadansi örvita ESB-klíku gegn bóluefnum. Ísland verður að losna úr þessum heljarviðjum ESB-ómennskunnar

Fyrri færsla

Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt


Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt

Þessu er ég sammála. Að hætta eigi að flytja inn ESB-fátækt sem Íslendingar eru síðan settir í að reyna að útrýma. Nú er svo komið að ESB-fátæklingar hanga hér í nær endalausum röðum um háls íslenskrar þjóðar. Bæði sem atvinnulausir, og sem hælisleitendur flýjandi lönd og nánasta nágrenni Evrópusambandsins

Sennilega hanga um 15-25 þúsund manns þannig um háls ríkissjóðs Íslendinga núna. Þetta er allt saman ESB-framleidd fátækt - og ánauð. Heil erlend hersveit af ESB-sviðnum útlendingum á stærð við Akureyri hangir því um háls þjóðarinnar núna

Enginn bjargar neinum með því drekkja björgunarsveitinni fyrst, og hella síðan vatni á bensíntanka hennar

Og ekki nóg með það að vextir á bankainnistæðum í evrulendum Evrópusambandsins séu neikvæðir, og að þýskir fjölmiðlar segi því að verðbólgan sem þeir gera ráð fyrir að verði komin í þrjú prósent í því landi á næstunni, muni því ásamt neikvæðum vöxtum á sparnaði verða ein stærsta eignaupptaka sem sést hefur í Þýskalandi um langan tíma. Það segja þeir og skrifa. Þrjú prósent verðbólga í næstfremsta óðaöldrunarhagkerfi veraldar er ofsapólitísk verðbólga. Hún er óðaverðbólga á elliheimili

Um 16.000 manns voru atvinnulausir í janúar og þar af voru 41 prósent frá ESB eða 6560 manns. Og ofan í það dæmi koma síðan 10-15 milljarða útgjöld á ári í peningahælisleitendur, sem flýja en taka því miður með sér fátæktina í ESB, til að láta Íslendinga um að glíma við hana hér heima. Síðan rotnar vinnumarkaður okkar eigin launþega vegna þessa innflutnings á ESB-þrælum. Þessu dæmi þarf að loka. Loka verður á þessa innfluttu ESB-fátækt

Sendum því Loga út í Wuhan-veiruleiðangur til Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Spánar, Portúgals og Danmerkur. Sendum hann í leit af bóluefni og ríkidæmi, þar sem hvorugt er að finna. En það er einmitt í þannig leiðangur sem Logi og ESB-kórfélagar hafa sent kjósendur Samfylkingarinnar í samfellt 20 ár

Ég er næstum því viss um að Logi og félagar eru að rugla ríkidæmi saman við ríkisdæmi - og réttlæti saman við ólæti og tortímingu, þar til ekkert er eftir handa neinum, nema honum sjálfum og ríkisdæmi hans,... eins og í ESB

Fyrri færsla

Dauðsföll Angelu Merkels kanslara


mbl.is Misrétti, ójöfnuður og því miður fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðsföll Angelu Merkels kanslara

DIKTAT MERKELS

Wolfgang Münchau og teymi hans á Eurointelligence skrifar í dag um dauðsföll Angelu Merkels. Lausleg þýðing:

****

"Enn sem komið er hefur þetta ekki gerst á stórskala (að talað sé um Wuhanveiru-dauðsföllin sem dauðsföll Merkels, GR). Enn sem komið er er Angelu Merkel og öðrum forsætisráðherrum ekki kennt persónulega um aukin dauðsföll vegna sameiginlegar óhæfni og getuleysis í krísustjórnun vegna kínversku Wuhanveirunnar

En Karl Lauterbach varaþingflokksformaður SDP (þýskir sósíaldemókratar í samsteypustjórn Merkels, GR) og sem einnig er prófessor í heilbrigðismálahagfræði og faraldursfræðum við háskólann í Köln, gerir það hins vegar, á varfærinn hátt, og afleiðingarnar eru augljósar: því ný rannsókn sýnir að breska B117-afbrigðið af kínversku Wuhanveirunni veldur 64 prósent aukningu í dauðsföllum, og það þýðir að mikill fjöldi fólks mun láta lífið áður en það nær því að hlotnast bólusetning gegn veirunni. Með öðrum orðum þá eru þetta dauðsföll af völdum Angelu Merkels, því það var hún sem ákvað að Evrópusambandsvæða bóluefnisinnkaupaferlið

Gögnin (Þýskaland, GR) sýna fall í fjölda smita frá því í lok desembermánaðar fram í miðjan febrúar, og óverulega aukningu í fjölda smita síðan þá (reyndar 9 prósent, GR). Og vegna þess að útbreiðsla breska B117-afbrigðisins er í gangi núna (það er í 46 prósentum nýrra tilfella, GR), þá búast faraldursfræðingar á borð við Karl Lauterbach við aukningu í smitum þegar litið er fram á veginn. Með aðeins 5,7 prósentuhluta þjóðarinnar nú þegar bólusettan með fyrstu stungunni, þá er sviðsmynd Lauterbach klárlega raunhæf. Á kjördag í september (þjóðþing, GR) mun meirihluti þjóðarinnar hafa verið bólusettur (kannski og kannski ekki, gæti verið 40-51 prósent, GR), en stjórnmál þessa pólitíska stefnustórslyss munu hins vegar enduróma í langan tíma fram yfir þann dag. Enginn er enn sem komið er að tala um dauðsföll Angelu Merkels. Þýska pressan reynir að forðast alla hugsanlega persónulega gagnrýni á kanslarann. En þessu máli hefur hún ekki stjórn á"

Tengt: Coumo er fallandi stjarna demókrata | Hvað varð um kínverska sendiherrann?

HRUN Í FJÁRFESTINGUM Í ESB

Nú er komið í ljós að neyðarlánin í ESB-löndum síðasta sumar hafa næstum öll farið í að bæta lélega eiginfjárstöðu fyrirtækja og í að fjármagna birgðahald. Fjárfestingar í ESB hafa hrunið næstum algjörlega og hafa ekki tekið við sér og munu ekki taka við sér nokkru sinni að ráði úr þessu, eða svo lengi sem Evrópusambandið er á lífi, því kjarnastaðan í heild í flestum löndum Evrópusambandsins er það ömurleg vegna tilvistar sambandsins og myntar þess, að ekki verður úr bætt. Um er að ræða skipbrot eða "depression" þar sem fyrirtæki og hagkerfin eru svo löskuð að aukið aðgengi að fjármagni getur ekki úr bætt. Þau geta ekki nýtt sér nýtt ferskt fé að ráði nema þá helst í þjóðargjaldroti, 70 prósent gengisfellingum, eða 65 prósent hækkun á gengi þýska marksins. Upphafstaða landanna var það vonlaus er þau tóku upp evru eftir að hafa samþykkt Maastrichtsáttmálann og fóru þaðan inn í convergence tímabilið (samræmingin) frá 1993-2001. Þetta lagast ekki. Það eina sem var samræmt þá voru ófarir, eins og í bóluefnastórslysi Evrópusambandsins í dag, þar sem upptaka bóluefnis getur ekki farið fram sökum ESB-eyðni

Fyrri færsla

Bóluefnaklúður ESB: Stalín er ekki hér, segja Rússar


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband