Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2020

Tvö komma sex prósent hagvöxtur á Íslandi núna

Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2020

Mynd, Hagstofa Íslands. Landsframleiðslan á þriðja fjórðungi 2020

****

Þegar þjóðhagsreikningauppgjör Hagstofunnar yfir þriðja fjórðung ársins er skoðað, stendur þrennt upp úr:

1. Hagvöxtur fjórðungsins varð minni en hann hefði þurft að vera vegna ótímabærrar landamæraopnunar þrýstihóps sem eyðilagði fyrir einkaneyslu í landinu öllu. Heil þjóð þurfti að skríða inn í skelina til þess að nokkrir erlendir ferðamenn, þrælar og flökkulýður hins glataða sovétjökuls Evrópusambandsins gæti náð að komast hingað inn til að eyðileggja fyrir hinum 93 prósentum hagkerfisins. Annars hefði einkaneyslan verið sterkari og lyft landsframleiðslunni meira upp, dregið úr áföllunum og bætt varnarstöðu ríkissjóðs þjóðarinnar

Leirdúfurnar við stjórnvölinn framlengdu framboðskreppunni með því að koma í veg fyrir staðfasta og pottþétta sótthreinsun við landamærin, og gott ef þeir hafa ekki eyðilagt jólafjórðunginn líka. Ekki er hægt að hafa mjöl í munni og blása á sama tíma. Einkaneyslan hefði átt að getað lyft sér um 20-30 prósentur og vöruskiptin væru mun betri ef leirdúfur stjórnmálanna hefðu ekki látið höfuð sín sogast inn í svarthol Schengen og EES-samningsins. Enginn eftirspurnarkreppa ríkir, heldur aðeins framboðskreppa stjórnmálamanna

2. Óheft flæði af innfluttum matvælum eyðileggur fyrir innlendri framleiðslu. Þeirri umræðu hafa fríverslunar-hagfræðingar um allan heim tapað og gert sig sjálfa og fag sitt að bergmálshelli fyrir 0,1 prósentu mannkyns. Enginn tekur mark á því fólki framar þegar að trúarbrögðum þeirra um "frjálsa verslun" milli landa kemur. Við erum að glíma við stórkostlegt innflæði frá sovét-styrktum láglaunalöndum Evrópusambandsins og sem aldrei verða annað en einmitt stálfátæk og strategísk láglaunalönd. Þetta verður að stöðva áður en EES-samningur Íslands við svarthol sem sogar allt til sín nær að eyðileggja okkur enn meira að innan en orðið er. Núll komma eitt prósentuliðið verður að loka inni í eins konar akademískum munkaklaustrum þar sem það getur talað innbyrðis um "fríverslunarkenningar" á himnum uppi án þess að eyðileggja efnahag þjóðarinnar sem býr í raunheimum

How economists lose the argument Eurointelligence 27 nóv 2020

Mynd: Skjáskot af Eurointelligence 27. nóvember 2020. Hvernig hagfræðingar töpuðu umræðunni um "frjáls viðskipti". Þau eru aldrei "frjáls", nema í bergmálshellum. En svo koma leðurblökurnar og þá...

****

Verndartollar eru komnir til að vera. Þið 0,1 töpuðuð gegn okkur 99,9. Og enginn hefur áhuga á innfluttum hagfræðingum, heldur ekki niðurgreiddum og allra síst trúarpólitískum - ófærum um að greina sjálfa sig sem dauðvona viðrini á langlegudeildum kratismans

3. Lækka verður skatta á fyrirtækum og einstaklingum, og það er meðal annars hægt með því að skattleggja til dæmis innflutta rafbíla til jafns við aðra bíla. Þeirri viðurstyggilegu og trúarpólitísku sovétstrategíu græna hálmmánans verður að linna áður en hún gerir landið okkar gjaldþrota, ekki bara fjárhagslega heldur andlega líka. Græn mygla í þjóðarhag og í höfðum manna er mygla, jafnvel þó svo að hún sé græn. Grænt er orðið hinn nýi litur alræðis-sovétríkja nútímans. Rautt að innan en grænn að utan. Enginn munur miðað við síðast, sama gamla sovétið og ávallt áður, en nú sem afturganga fáránleikans

Fyrri færsla

"We the People": Endurtalning ólögleg í Georgíu?


mbl.is Samdrátturinn miklu meiri á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"We the People": Endurtalning ólögleg í Georgíu?

Lin Wood lögfræðingur hélt blaðamannafund í Georgíuríki þann 6. nóvember 2020. Það er gott að "við fólkið" er enn til, ásamt Jr

****

Þetta gerist varla betra, hafi maður á annað borð áhuga og álit á We the People eða "okkur fólkinu" sem gert er ráð fyrir að sitji við stjórnvölinn og stjórni í reynd lýðræðisríkjum. Að fólkið ráði og stjórni ríkjum sínum sjálft, en ekki elítur embættismanna, fjölmiðlar og erlendar "alþjóðastofnanir" eða ESB-helvítið

Lin eða L. Lincoln Wood Jr er lögmaður einn frá Georgíu sem margir kannast við úr Vestrum og bandarískum kvikmyndum með Jimmy Stewart og félögum, nema það að Lin Wood er ekki bíómynd. Hann er alvöru, og gott betur en það, eins og sést hér á myndbandinu fyrir ofan, þegar hann samþykkir að "hjálpa" kosningateymi Donalds J. Trump í glímu þess við kosningasvik

Og hér fyrir neðan er síðan upptaka þar sem Lin Wood ræðir við Jeanine-dómara Pirro í síma um málið. Og viti menn; nokkrum dögum eftir að hann og Jeanine-dómari töluðu saman, hefur áfrýjunardómstóll (11) tekið undir lögmæti málflutning Woods um að kosningarnar í Georgíu séu ólöglegar og að allar endurtalningar atkvæða hafði þar með verið ólöglegar líka

Lin Wood ræðir við Jeanine-dómara í síma þann 22. nóvember 2020. Aðvörun: bæði Helvíti og húsbóndi þess Djöfullinn koma við sögu hjá Lin Wood Jr

****

Á meðan á þessu stóð hafa þingmenn og fulltrúar að minnsta kosti þriggja "swing" ríkja Bandaríkjanna samþykkt að taka málin fyrir og hlusta á eiðsvarin vitni og sönnunargögn lögfræðiteymis Rudy Giuliani, sem fer fyrir lögfræðiteymi Trump-framboðsins. Hér má sjá það sem fram fór Gettysburg í Pennsylvaníu í gær. Eiðsvarinn vitnisburður rúmlega áttræðrar konu um ferð hennar á kjörstað er átakanlegur áheyrnar fyrir þau yfirvöld sem standa að kosningunum þar vestra, svo ekki sé meira sagt

Málshöfðun Giuliani í Pennsylvaníu: Framsögn, áheyrn og vitnaleiðslur í Gettysburg í Pennsylvaníu í gær

****

Og svo síðar sama dag sendi Sidney Powell lögfræðingur tvær stórar bombur af ákærum inn til réttarins í Georgíu og Michigan, þar sem tekin eru fyrir kosningamisferli og sjálfar kosningavélarnar sem notaðar voru við forsetakosninguna, ásamt hugbúnaði þeirra

Þarna er sem sagt allt á fullu, og eru málin vegna kosninganna heldur betur farin að vinda upp á sig. Stóru smámenna-fjölmiðlarnir keppast þó enn sem komið er við að þegja, og það svo mikið að súr svitinn lekur af þeim og ritskoðunarfulltrúum þeirra, ásamt hálf-sovésku netrisunum sem einnig hamast við sín sprenghlægilegu ritskoðunarborð, eftir að svo gott sem allt internetið í vasa þeirra rann

****

En hvað sem öllu þessu líður, þá þýða svo kallaðar "staðfestingar" ríkjanna á kosningunum (e. certification) ekki neitt endanlega sérstakt, eins og sjá mátti til dæmis í bandarísku forsetakosningunum 1960. En þá þóttust menn vissir um að Hawaiieyjar hefðu fallið í hlut Nixons og staðfesti ríkið þá kosningu og kjörmenn þess líka, nema það að kjörmenn Demókrataflokksins kusu Kennedy þó svo að þáverandi "staðreyndir" sögu að Nixon hefði sigrað. En svo var endurtalið og í ljós kom þann 28. desember að Kennedy hafði sigrað með 115 atkvæðum. Neyddist Hawaiiríkið þá til að staðfesta þau úrslit, og þar með að ógilda hin fyrri, og senda nýju staðfestinguna inn til Bandaríkjaþings sem samþykkti úrslitin er það kom saman í janúar, þrátt fyrir áðurgengna kosningu kjörmanna Repúblikana. Sendu Hawaiieyjar því tvær staðfestingar á sömu kosningunum, innihaldandi tvær ólíkar niðurstöður kjörmanna. Þannig að þegar Trump forseti segir við fréttamann að hann lúti auðvitað dómi kjörmanna, þá á hann að sjálfsögðu við hinn endalega dóm þeirra og Bandaríkjaþings. Slíkt ætti jafnvel hvert fréttamannabarn að geta lesið út úr orðum forsetans

Þetta er sem sagt langt því frá búið þarna í Bandaríkjunum núna. Donald J. Trump getur enn hlotið kosningu sem réttkjörinn næsti forseti Bandaríkjanna. Þeir sem segja annað, gera það gegn betri vitund. Og í þetta skiptið er ekki bara um eitt ríki að ræða, heldur að minnsta kosti sex - ásamt fossi af póstgreiddum atkvæðum sem ekki voru til þá, en eru mun stærri stafli en heilt, himinhátt og torgreinanlegt fjall Machiavellis núna

Fyrri færsla

Ný endurtalning í Georgíuríki. Kröfur um að Pólland og Ungverjaland séu rekin úr ESB


Ný endurtalning í Georgíuríki. Kröfur um að Pólland og Ungverjaland séu rekin úr ESB

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Georgíuríki, þar sem aðeins 0,26 prósent eða 12670 atkvæði í því fimm miljóna atkvæða og tíu milljón manna ríki Bandaríkjanna, skilja á milli Trumps og Biden í vil, hefur nú lokið handvirkri skylduendurskoðun- og endurtalningu á öllum vitanlega greiddum atkvæðum. Og hefur Brian Kemp innanríkisráðherra samkvæmt lagaskyldu sinni nú staðfest kosninguna. En sú staðfesting opnar –lögum samkvæmt– samtímis fyrir leið að nýrri endurtalningu sé hennar krafist, sagði ráðherrann, þar sem minna en hálf prósenta skilur á milli frambjóðenda, eða eins og lög Georgíuríkis segja fyrir um. Og þess hefur framboðsteymi Trumps þegar krafist, eins og sjá má hér. Sú endurtalning verður ekki eins og sú fyrri sem fram fór vegna formlegheita, því nú verða undirskriftir vegna póstgreiddra atkvæða skannaðar, bornar saman og reynt að sannreyna lögmæti þeirra. Gera má ráð fyrir að sú endurtalning geti skilað Trump sigri í ríkinu, því sú tegund atkvæða liggur berskjölduðust við kosningamisferli. Hið sama gæti gilt um hvert swing-ríkið á fætur öðru í þessum kosningum - og skilað Trump sigri í þessum forsetakosningunum. Ótímabærir fjölmiðladómar og fjöldi spékoppa ákveða ekki úrslit bandarísku forsetakosninganna. Það gerir hins vegar fjöldi löglegra atkvæða

KRÖFUR UM AÐ PÓLLAND OG UNGVERJALAND SÉU REKIN ÚR EVRÓPUSAMBANDINU

Tveir sænskir þingmenn á gúmmíþingi Evrópusambandsins hafa nú opinberlega sett fram þær kröfur að Póllandi og Ungverjalandi verði vísað úr Evrópusambandinu, haldi þau áfram að fara eftir landslögum sínum og ennfremur sáttmálum sambandsins um að ríkin í því geti beitt neitunarvaldi. Um er að ræða deilu þar sem Pólland og Ungverjaland segja að verið sé að þvinga þau til að samþykkja lögleysu í innflytjenda- og flóttamannamálum með sovéskum aðferðum, með því að halda til baka fé til þeirra á fjárlögum ESB sem þau samkvæmt sáttmálum ESB eiga rétt á, þ.e. sem minna þróuð ríki, nýkomin undan örkumlandi jökulfargi kommúnisma Sovétríkjanna

Forsætisráðherra Póllands, Mateusz Morawiecki, segir að Evrópusambandið noti sömu áróðursbarefli og kommaklíkuveldi Sovétríkjanna notaði á lönd þess undir fallbyssuhlaupum Kremlar. Að verið sé að reyna að neyða Pólland til að samþykkja svo kallaðan "endurreisnar og björgunarpakka ESB" sem verið er að reyna að koma saman og setja í framkvæmd sem hluta nýrra fjárlaga, vegna afleiðinga kínversku Wuhanveirunnar, gegn því að Pólland og Ungverjaland hætti að fara eftir sínum eigin landslögum og þeim sáttmálum sem löndin skrifuðu undir er þau gengu í Evrópusambandið. Engin heimild sé fyrir þess konar aðförum að innanríkismálum Póllands og Ungverjalands, segja löndin tvö. Les; að Agnela Merkel kanslari Þýskalands og Emmanuel Macron forseti Frakklands geti ekki bara upp á eigin spýtur fossað milljónum af svokölluðum "flóttamönnum" inn í Evrópusambandið og krafist þess að þeim sé dritað niður í aðildarríkin með sovéskum aðferðum - og síðan að fjárlaga-bankareikningum þeirra ríkja í ESB sem neiti að hlýða sé bara lokað. "Þetta er ekki það Evrópusamband sem okkur var sagt að við værum að ganga í á sínum tíma" segir Morawiecki

Ekkert samþykki annarra þjóða sambandsins lá fyrir né heldur var sóst eftir því er hinum fyrrum járntjaldslöndum Sovétríkjanna var hleypt inn í ESB. Olígarkaveldi ESB ákvað það bara upp á eigin spýtur. Og eru þær spýtur sovésku bareflin sem pólski forsætisráðherrann talar um núna

Danmörk fékk að kenna á þessum bareflum er hún reyndi í þjóðaratkvæðagreiðslu að nota sáttmála Evrópusamandsins til að stöðva samþykkt Maastricht-sáttmálans, sem þótti þá og þykir enn jaðra við veruleikafirringu og geðbilun. Mistókst sú sáttmálabundna neitunarvaldsstöðvun –er sögð var sjálf frumforsendan fyrir því að ríkin gengu í Evrópusambandið á sínum tíma– hrapallega og hafa engar svo kallaðar neyðarbremsur ríkjanna í ESB nokkru sinni virkað þegar ríkin hafa togað í þær. Evrópusambandið er eins og gamla Sovétið orðið Notbremsenresistent ófreskja. En þannig endar imperíal-ríkishönnun ávallt daga sína; sem rjúkandi rúst ofan á borgurunum. Svipað má segja um EES-samninginn ömurlega

Fyrri færsla

Verður Trump forseti áfram?


Verður Trump forseti áfram?

Blaðamannafundur lögfræðiteymis Tump-framboðsins í gær. Nefna má: 1) Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóra New York og þriðja æðsta mann bandaríska dómsmálaráðuneytisins í stjórnartíð Rögnvalds Reagan. 2) Sidney Powell fyrrum alríkissaksóknara Bandaríkjanna. 3) Jenna Ellis prófessor í lögum og 4) Boris Epshteyn strateg Trumps

****

Hafa ber í huga að Trump-teymið er enn sem komið er bara með tvær málsóknir í gangi. Þeirri þriðju var hætt því teymið vann hana. Aðrar málsóknir sem nefndar eru í fréttinni eru frá almennunum borgurum og var mörgum málum þeirra höfðað fyrir kosningar, en ekki eftir þær

Trump-teymið er rétt að byrja, enda ekki liðnar nema rúmlega tvær vikur frá kjördegi, sem sumstaðar virðist hafa varðað í nokkra sólarhringa. Enn er verið að telja atkvæðin, þó svo að fjölmiðlar séu búnir að kveða upp sína venjulegu blaðadóma um niðurstöður kosninganna, og kannski eins ranglega og þeir fíaskó-dæmdu þær fyrir kjördag og gerðu sjálfa sig að aðhlátursefni um aldur og ævi. Öllum er óhætt að trúa ekki fjölmiðlum lengur. Það hafa þeir sannað. Meira að segja "og" og "að" orðum þeirra er ekki óhætt að trúa lengur, hvað þá blaðsíðutölum

Minna má lesendur á að Demókratar notuðu Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins til að keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna í Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu eftir kosningarnar 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með þessum svo kölluðu kosningavélum sem notaðar eru við atkvæðagreiðslu og talningu. En þegar ekkert hafðist upp úr því létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016. Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna, því í þetta sinn er það einnig hinn ótrúlegi, einstaki og tröllslegi fjöldi póstgreiddra atkvæða sem hrúgast hefur á bálið sem Demókratar bjuggu til: Lögin og bandarísku forsetakosningarnar

Þegar búið er að telja atkvæðin eru það ríkin sem staðfesta verða úrslit kosninganna og fyrst þá er farið í það að velja kjörmenn. Og fari innanríkisráðherrar ríkjanna út í það að staðfesta vafasöm kosningaúrslit og sem fyrirsjáanlegt er að óvíst sé hvort látin verði standa, þá grípa kjörmenn til sinna ráða, en það eru þeir sem kjósa forsetann

Minna má einnig á að Íslendingar kjósa ekki æðsta pólitíska höfuð sitt í beinum kosningum. Það eru stjórnmálamenn sem kjósa forsætisráðherra Íslands, en ekki kjósendur

Bandaríska kjörmannakerfinu var meðal annars ætlað að koma í veg fyrir að forseti Bandaríkjanna kæmist til valda fyrir tilstilli kosningasvika og óheiðarlegra afla, innlendra sem erlendra

Victor Davis Hanson sagnfræðingur og bóndi fjallar hér fyrir neðan um bandarísku forsetakosningarnar og líkurnar á því að Trump fari með sigur af hólmi

Victor Davis Hanson: Um forsetakosnigarnar og líkur Trumps á sigri

****

Fyrri færsla

Kva? "Sænska leiðin" var þá bara eins og hin "finnska leið" Jóhönnustjórnarinnar


mbl.is Málsókn eftir málsókn hefur engu áorkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kva? "Sænska leiðin" var þá bara eins og hin "finnska leið" Jóhönnustjórnarinnar

Um frétt mbl.is: "Sænska leiðin kvödd"

Verðbólguspár ECB

Mynd; Eurointelligence: Verðhlýnunarspár verðbólguspár ECB-aukaseðlabanka Þýskalands í ESB. Blá lína er veruleikinn. Rauðar línur eru spár seðlabankans (út í loftið). Um það bil 100 þúsund manns starfa í seðlabankakerfi evrunnar í andaglasinu. (PS: ég er þó ósammála niðurstöðu W.M., því vélaspádómskerfi kerfisarkitekta og forritara verða heldur aldrei betri en þetta hrafnaspark prófessora þarna á myndinni, með broddgölt í bakgrunni)

****

Hvurslags er þetta!

Er sænskum langlegu-krötum hætt að líka "fjölbreytileikinn" í veirumálum? Ætla þeir virkilega að fara gera upp á milli veira og reyna að útiloka kínversku Wuhan-veiruna sem lenti með beinu flugi kínverskra þræla frá Wuhan á Norður-Ítalíu í september 2019, og blés sér síðan óheft yfir í 50 önnur lönd Evrópu með aðstoð Schengen-útópíunnar? Í Schengen-heilastöppunni þar sem þeir á Ítalíu sem vildu gera eitthvað í málunum voru ásakaðir um að vera "rasistar"

En þegar þann 13. janúar 2020 gerði Trump forseti ljóshraða-samkomulag við hið bandaríska Moderna um þróun bóluefnis – og var svo stuttu síðar einnig ásakaður um "rasisma", því hann skellti í lás á kínversku Wuhan-veiruna um þær mundir - meðal annars með þeim afleiðingum að Bjarni Ben og Guðlaugur Þór hoppuðu út úr veruleikanum, og hafa varla sést síðan. Trump sá að vitleysingjahælið ESB-Schengen myndi ekki aðhafast neitt og lokaði því á það eins og það hafði lagt sig sem ein heilsteypt blokk bjána

Síðan þegar ESB lokaði þá lokuðust Bjarni Ben og Guðlaugur Þór inni í sjálfum sér og sprautuðust inn í veruleika Schengenfangaklefans, þar sem þeir höfðu fætt af sér þriðja orkupakkann árinu áður - á meðan álíka galinn ferðamálaráðherrann hafði mestar áhyggjur af fækkun kínverskra ferðamanna til Íslands. Það er ekki einu sinni hægt að láta sig dreyma firru þessa fólks í miðjum tremma. Maður skammast sín fyrir að þetta fólk skuli þykjast vera í flokki með okkur sjálfstæðismönnum Íslands

Og nú þegar búið er að kála sex þúsund Svíum á heimavígstöðvum sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins í Stokkhólmi, á þá bara sí svona að gefast upp?!! Af hverju ekki að kála fleirum en þeim sex þúsund Svíum sem þegar eru látnir, þannig að staðan í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar verði meira en 4,7 sinnum verri en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs - á sama tíma. Plús það að vera með mesta efnahagssamdrátt þessara fjögurra landa á öðrum fjórðungi ársins. Hvað er að?

Aftonbladets Hitler-hyllande

Mynd, Fria Tider: Minnisblöð málgagns sænskra sósíaldemókrata

****

Hvað!

Ætla hinir sænsku sossar góða fólksins og sem studdu svo dyggilega við bakið á Adolf sameiningarmanni Evrópu, bara sí svona að gefast upp á "sænsku leiðinni" núna?! Hvað með Stalín? Af hverju ekki prófa hann fyrst, áður en gefist er upp á sænsku þvælunni

Og; af hverju þraukuðu sænsk "stjórnvöld" að minnsta kosti ekki jafnlengi og hinn þýski ECB-sogrörsseðlabanki Evrópusambandsins ofan í önnur evrulönd hefur þraukað í útgáfu verðbólguspáa, sem allar hafa reynst algjörlega út í sama hrópandi hallelúja-hött og spár svo kallaðra talnavísindamanna um fjármálamarkaði, Brexit, tvennar kosningarnar í Bandaríkjunum, loftslag jarðar og heimsfaraldurinn núna. Spár sem allar hafa reynst hinn fullkomni og ýtrasti últra-þvættingur. Allt saman hámenntaðir "vísindamenn" með tölvur og líkön sín þar innanborðs, en sem öll hafa reynst allsherjar ónýt og ofborgarður húrrandi þvættingur af allra hugsanlegu verstu sort. Algjör þvæla frá upphafi til enda

Ja hérna

Fyrri færsla

Lögin og bandarísku forsetakosningarnar


mbl.is Átta manna samkomubann í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögin og bandarísku forsetakosningarnar

Donald Trump að snæðingi 500 px

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Nú er komið í ljós að svo kallaðir leiðtogar Demókrata (maður getur varla borið það heiti fram lengur) gerðu í fyrra miklar og stórkostlegar athugasemdir við kosningavélarnar og hugbúnaðinn sem notaður er við talningu atkvæða. Það má sjá hér

Og í september leiddi rannsókn í ljós að 1,8 milljón fleiri skráðir kjósendur voru í 353 sýslum í 29 ríkjum Bandaríkjanna en fjöldi manna á kosningaaldri var þar í september: fréttatilkynning 16. október 2020

NYTSAMIR EN EINNOTA KJÁNAR

Demókrataflokkurinn lét Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna í Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu eftir kosningarnar 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með þessum svo kölluðu kosningavélum sem notaðar eru við atkvæðagreiðslu og talningu. En þegar ekkert hafðist upp úr því létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016. Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna, því í þetta sinn er það einnig hinn ótrúlegi, einstaki og tröllslegi fjöldi póstgreiddra atkvæða sem hrúgast hefur á bálið sem Demókratar bjuggu til

REYKUR OG SPEGLAR

Taka ber ei mark á því sem íslenskir langlegu-kratar segja um þetta mál og fjölmiðlar. Þeir vita ekkert nema það sem þeir lesa í speglasalnum hjá kollegum sínum og á esb-fyrirbærum á borð við lygaveitu Der Spiegel. Það tekur sig ekki að hlusta á þá menn. Það sjá menn ákaflega vel í ljósi hinnar afar erfiðu reynslu þjóðanna af langlegu-krötum allar götur frá 2007 - og jafnvel alla leið frá 1989, er þeir hugðust opna Harward í Moskvu og kratfletja plánetuna út

Vel getur hugsast að Trump hafi þegar verið kominn með nægan atkvæðafjölda til að vinna kosningarnar er kjörstaðir áttu að loka að kvöldi kosningadags. Það er hugsun sem leitar á marga. En eftir lokun héldu atkvæði bara berast og enginn veit enn hvernig fara á með þann fjölda kvæða sem bætt var þannig í bunkann. Kannski fer málið á þann veg að það lendi á borði þingsins að skera úr um lögmæti umboðs kjörmanna. Nokkur ríki þurfa að gera upp hug sinn núna og taka ákvörðun um að standa við það sem gerst hefur með fjölda atkvæða eftir að kosningum lauk, eða útnefna nýja kjörmenn til að endurkjósa Trump sem forseta

GAAR DEN SAA GAAR DEN

Mörg ríki Bandaríkjanna og dómstólar þeirra eru þekkt fyrir tilraunir til að reyna að sér-stjórna Bandaríkjunum öllum á ýmsa vegu, bæði með löggjafanum á heimavelli eða með dómstólum ríkjanna. Nýlegt dæmi um það var þegar ríkisdómstóll reyndi að taka sér það vald að stjórna því hver fengi að koma inn í öll 50 ríki Bandaríkjanna eða ekki. Um var að ræða ferðabann sem Trump forseti hafði sett á íslamista inn í Bandaríkin. Eitt ríki reyndi þá taka sér vald yfir öllum aðkomuleiðum inn í öll Bandaríkin með því að setja forsetann til hliðar, en þeirri tilraun var auðvitað kollvarpað. Ekkert eitt ríki stjórnar öllum forstofum og dyrum inn í öll Bandaríkin. Eins er það með ríkin og kosningar núna. Þau reyna. Málin munu að sjálfsögðu enda á þeim stöðum sem stofnendur Bandaríkjanna ætluðust til og verða afgreidd þar, fyrst að löggjafinn í sumum ríkjum Bandaríkjanna getur ekki komið að borðinu með lögleg kosningaúrslit

2016 og 2020 EÐA 2024+2028 - TÓLF EN EKKI ÁTTA?

Þar sem framtíð Bandaríkjanna er talin liggja, þ.e. í ríkjum eins og Flórída og Texas og á hinu risavaxna upptakasvæði Mississippifljóts –en það er stærsta samhangandi landbúnaðarsvæði veraldar og gæti hæglega brauðfætt heiminn allan– féll boðskapur Trumps mjög svo vel í geð kjósenda hjá öllum hópum manna af öllum kynþáttum af báðum kynjum. Þykir það ágætis vegvísir um hvert stefni í Bandaríkjunum. Langlegu-kratismi hins barnlausa útrásar-stórborgarvinstris í háhýsakompum með veirulyftum og garð í potti, er að úrkynjast og deyja út. Útdáningarkvöl þess hluta atvinnulífsins hófst með miðflótta hins góða fólks til Kína. Og hin stafræna "hátækni" Kísilsdalsins er ekki lengur hátækni heldur aðeins vara á borð við sæmilegan en tóman ísskáp. Og fjármálageirinn? - já hann fór með sjálfan sig í skammarkrókinn í byrjun aldar og er ekki lengur svipur hjá sjón. Bankavísitalan virðist orðin varanlega marflöt. En þar eins og núna snéru fagmenn sig og fag sitt úr hálsliðnum í trúarpólitískum tilgangi einum. Núna eru það svo fjölmiðlarnir og akademían sem standa hálsbrotin á brókinni sem hífð verður til aðhláturs við hún í Hvítu húsi - skyldu kosningarnar að lokum skila nöktum og barnlausum borgarkompu-Demókrötum í varanlegri útrýmingarhættu þangað inn núna

DING-DONG (OG SVO HIÐ NÍUNDA KÍNVERSKA TÓNVERK?)

Og nú er komið í ljós að þingmenn Demókrata og fjölskyldur þeirra eru stóreigendur í því fyrirtæki sem býr til hugbúnaðinn sem notaður er við atkvæðatalninguna. Það er ekki að því að spyrja. Langlegu-kratar eru alls staðar eins. Og sannið til: ef dómstólar og þingið komast að þeirri niðurstöðu að Trump sé réttkjörinn forseti núna, eins og síðast, þá mun Evrópusambandið samstundis hringja öllum kjósum-aftur bjöllum og hvítan reyk leggja út um eyru langlegudeildarmanna kratismans. Hressilegir tímar eru því framundan og okkar maður er ekki krati, eins og sést. Bara alls ekki!

Og nú fæ ég mér heimagerðar og heitar fiskibollur úr fiski frá Rifi í morgunmat, restar frá því í gær, og franskar með því

Fyrri færsla

Minna en helmingur Bandaríkjamanna telur Biden hafa sigrað


Minna en helmingur Bandaríkjamanna telur Biden hafa sigrað

Trump-Rally-Butler-PA-Oct-31

Mynd: Kosningasamkoma vonda fólksins í Butler í Pennsylvaníu nokkrum dögum fyrir kosningar. "Og ég var ekki einu sinni með gítar" sagði Trump. Um það bil 57 þúsund manns sóttu samkomuna

****

Ef stemmingin er almennt eins og lýst er í nýjum könnunum hjá tveimur af þremur trúverðugum fyrirtækjum landsins á því sviði - og eins og leikarinn Jon Voight fer með hana hér, þá held ég að svo geti farið að Trump og teymi hans muni fylla bakpokann og halda í nýjan kosningaleiðangur um að minnsta kosti 10-20 ríki Bandaríkjanna til að hitta stuðningsmenn sína á sömu flugvöllum og fyrir kosningar. Og að þar verði mynduð fjöldahreyfing sem krefst þess að sá hluti atkvæðanna sem liggur beinast við svindli, þ.e. póstatkvæðin, sé tekinn til gagngerrar endurtalningar og viðamikilillar rannsóknar á framgangsmáta þeirra

Aðsókn yrði án efa rosaleg, einkum í þeim ríkjum í hjarta Bandaríkjanna þar sem staða hvítu millistéttarinnar, sem byggði upp Bandaríkin, en varpað var á fjóshaug glóbalismans, er svipuð í dag og staða blökkumanna var árið 1970 í Bandaríkjunum. En það fólk ásamt minnihlutahópum fékk mikinn atvinnu- og efnahagslegan framgang í stjórnartíð Trumps. Maðurinn lyfti þar Grettistaki og afsannaði á núll komma fimm að slíkt væri ekki hægt. Forsetinn er venjulega fljótur í förum og á þess utan sinn eigin þotuflota, með Rolls Royce hreyflum

Engar staðreyndir á jörðu niðri liggja enn sem komið er til grundvallar sigursyfirlýsingar Bidens. Hann hafði reyndar lofað alþjóð að bíða með allt slíkt þar til atkvæði hafa verið talin og úrslit staðfest á jörðu niðri. Atkvæði hafa enn ekki verið talin og úrslit hafa enn ekki verið staðfest. Þannig að Biden gengur þar á bak orða sinna, sem er ekki góð byrjun skyldi hann verða kosinn, en þarna fyrir kosningar eru hann og Hillary enn að kafna úr frekju. En kjörmenn Bandaríkjanna koma saman í desember til að kjósa forseta þeirra. Þeir kjósa forsetann, ekki fjölmiðlar

Trump mun ekki geta viðurkennt fullyrðingu Bidens, því hún er enn sem komið er ekki rétt og margt virðist vafasamt við sjálfar kosningarnar. Biden er enn ekki með 270 kjörmenn á jörðu niðri, heldur aðeins í kratafjölmiðlum og allir vita hversu mikið rusl þeir eru í bankasamstæðum vinstrimanna

****

Klassíkerinn: Gestur þáttarins er Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur og efnið er kosningarnar og eftirleikur þeirra. Njótið

Fyrri færsla

Forsetakosningarnar orðnar mesta hneyksli sögunnar


Forsetakosningarnar orðnar mesta hneyksli sögunnar

Victor Davis Hanson er gestur John Batchelor-þáttarins. Efnið er fjölmiðlar, og kannanabransi snjalla og góða fólksins. Njótið

****

Mánuðum saman fyrir kosningar, lýstu nær allir fjölmiðlar því fyrir bandarísku þjóðinni og heiminum öllum, hvernig Joe Biden væri með yfirburðarstöðu í forsetakosningum. Mánuðum saman kyrjuðu sérfræðingarnir og fjölmiðlar þá "staðreynd" að Biden væri með algjöra yfirburðarstöðu. Kjósendur máttu vita að engin séns var á öðru en sigri Bidens. Sögulegum yfirburðarsigri

En nú eru liðnir heilir sex dagar frá kosningum og enn vita menn ekki hver næsti forseti Bandaríkjanna verður. Svo mikil og stór var lygi fjölmiðla, kannanabransans og háskólamenntaðra greiningardeilda góða fólksins

Aldrei hefur eins stór stétt eyðilagt sjálfa sig eins mikið og núna. Litlu og jafnvel engu er að trúa sem frá þessum sérfræðingum og fjölmiðlum kemur. Ekki einu sinni síðunúmerum. Nú eru stéttir þessa fólks lítils og sennilega einskis virði

Og síðan er það hitt hneykslið: sjálft kosningamisferlið. Það verður vonandi lagfært. En það er ekki hægt að lagfæra fjölmiðlana, sérfræðingana og skoðanabransa góða fólksins. Þeir eru ónýtir. Enginn trúir því fólki aftur

Fyrri færsla

Óskar engum til hamingju [u]


Óskar engum til hamingju [u]

Trump-Rally-Butler-PA-Oct-31

Mynd: Kosningasamkoma vonda fólksins í Butler í Pennsylvaníu nokkrum dögum fyrir kosningar. "Og ég var ekki einu sinni með gítar" sagði Trump. Um það bil 57 þúsund manns sóttu samkomuna

****

Forseti Mexíkó, Andres Manuel Lopez, segist ekki vilja óska neinum til hamingju með sigur ennþá, fyrst að lagalegar athugasemdir hafa verið gerðar við forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Hann segist bíða með það þar til búið er að leysa málin, segir hann. Hann er greinilega ekki eins langt í burtu frá nágranna sínum og Guðni og margir í Evrópu, sem þegar eru búnir að óska Biden til hamingju - með "sigurinn". Lopez þekkir söguna líklega of vel og segir að "the establishment" hafi reynt að ræna kosningunum frá sér 2006. Þá óskaði Spánn andstæðingi hans til hamingju með sigurinn, en varð síðan að draga þá ósk til baka

Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri segir að "fólki sé létt" yfir því að Biden virðist hafa verið kosinn, enn sem komið er. Styrmir á ef til vill við að hans fólki sé létt, það er establissimentinu í Bandaríkjunum og hinum vonlausu fjölmiðlum þess

En hinum helmingi þjóðarinnar, þ.e. "vonda fólkinu", er ekki skemmt og sérstaklega ekki eftir þá svínslegu meðferð sem hið fegna fólk sem Styrmir talar um, veitti Donald J. Trump forseta síðustu fjögur árin. Henni mun bandaríska þjóðin ekki gleyma og hún mun hefna sín rækilega

Ég minni menn á forsetakosningarnar 1876 í Bandaríkjunum. Þær líkjast þessum núna einna mest, af þeim forsetakosningum sem endað hafa í harðhnút, og þær eru margar. Um áramótin þá var Grant forseti því önnum kafinn við að undirbúa herlög og útgöngubann til að reyna að koma í veg fyrir að það yrðu framkvæmdar tvær innsetningarathafnir (e. inaugurations) í Washington á sama tíma

Fólki er mjög heitt í hamsi í Bandaríkjunum núna. Aðeins veruleikafirrtir menn halda að eitthvað batni með tilkomu umboðslauss Bidens og hinni róttæku Harris. Þau vita vel að þau töpuðu þó svo að þau ef til vill komist í embættin. Þess vegna er þetta flaður núna og flugeldar. Til að breiða yfir þá höfnun sem þau urðu fyrir hjá hryggsúlu Bandaríkjanna. Enginn sitjandi forseti Bandaríkjanna hefur fengið eins mörg atkvæði frá þjóð sinni og Donald J. Trump fékk núna, þrátt fyrir ofsafenginn mótbyr

Nauðsynlegum breytingum mun bara seinka. Þetta mun taka allan þennan áratug. Staðan er þannig og hún hefur ekkert sérstakt með Trump að gera. En hann ruddi brautina fyrir þær breytingar sem verða að eiga sér stað. Mun hann renna inn í söguna sem einn dugmesti forseti Bandaríkjanna nokkru sinni. Sem jarðýtan mikla. Brimbrjóturinn

Ég geri ekki ráð fyrir að "góða fólkið" með aðstoð ESB og Obama muni hvetja til að kosið verði aftur í Bandaríkjunum eins og það gerði eftir Brexit, fyrst að það er bara "vonda fólkið" sem virðist enn sem komið er hafa tapað - og kannski með því að svindlað var á því

Demókratar reyndu 300 sinnum að kæra fram breytingar á kosningalögnunum í mörgum ríkjum Bandaríkjanna síðustu mánuðina fyrir þessar kosningar og tókst það í sennilega of mörgum tilfellum. Um er að ræðra breytingar á kosningalöggjöf ríkjanna um póstkosningar og talningu þeirra. Hvað mun hæstiréttur segja um þær breytingar sem þeim tókst að þvinga í gegn? Hvað mun rétturinn segja um allt þetta mál í heild sinni? Það verður fróðlegt að heyra

Al Gore fékk 37 daga í bara einu ríki árið 2000. Ágætt er að muna það. En ríkin eru sennilega mun fleiri núna

Þetta er ekki búið - og Trump er jarðýta

Uppfært: mánudagur, 9. nóvember 2020 kl. 14:25:30

Victor Davis Hanson er gestur John Batchelor-þáttarins. Efnið er vangaveltur um fyrstu hugsanlega daga Joe Bidens í Hvíta húsinu með tilliti til kínversku Wuhan-veirunnar, efnahagsmála og Kína. Njótið

Fyrri færsla

Hvað vakir fyrir forseta Bandaríkjanna?


Hvað vakir fyrir forseta Bandaríkjanna?

Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna hélt stuttan upplýsingafund um kosningarnar seint í gærkvöldi. Á laugardag mun hann funda með öldungadeild Bandaríkjaþings. Markaðir önduðu léttar síðustu tvo daga er ljóst varð að Repúblikanar munu áfram hafa meirihluta atkvæðanna í öldungadeild bremsuklossanna á neðri deild þingsins, sem lýtur hinum ofsafengna og vinstriróttæka meirihluta Demókrata, en sem nú helmingaðist og er sá minnsti í 20 ár, þökk sé parinu Nancy Pelosi og Chuck Schumer. Bandaríki Norður-Ameríku verða því sennilega aldrei notbremsenresistent, eins og esb

****

Þetta er eðlileg spurning núna, þar sem nú þegar hafa verið gerðar alvarlegar athugasemdir við meðferð og talningu atkvæða kjósenda í þessum kosningum – og þýða mun seinkun á viðurkenndri niðurstöðu

Forsetinn og framboðsteymi flokks hans er ekki að gera hér neitt af gamni sínu. Það fólk Repúblikanaflokksins sem nú eru umboðsmenn helmings bandarísku þjóðarinnar, hefur að líkindum miklar og gildar ástæður fyrir að véfenga framgangsmáta kosninganna og talningu milljóna og aftur milljóna póstsendra atkvæða. Teymið álítur að grunsemdir, gögn þess og sannanir séu það stórar, sterkar og miklar að þau haldi fyrir rétti. Annars væri ekki lagt upp í þá vegferð sem nú virðist liggja fyrir; að endurtelja og skaffa staðfestingar á lögmæti póstsendra atkvæða. Þverspýtulegheit bara þversumsins vegna myndu einungis skaða Repúblikanaflokkinn, sé ekki innistæða fyrir þeim

Svo er annað. Að gefast upp og lyppast niður án þess að láta reyna á gögn hins rökstudda gruns, myndi ekki færa flokknum neitt gott né neina virðingu meðal kjósenda í næstu kosningum. Og ef Trump tapar kosningunum eftir að hafa valdið usla án innistæðna, þá mun það ekki hjálpa honum er hann býður sig fram á ný árið 2024. En hann hefur einhent flutt Repúblikanaflokkinn á sinn gamla stað, sem flokk hins dæmigerða vinnandi manns bandarísku millistéttarinnar

Donald Trump hafði einungis fólkið í landinu með sér í nú tvennum kosningum

Á meðan höfðu Demókratar bankana, Wall Street, fjölmiðlana, hugveiturnar og skoðanakannanaiðnaðinn, sem nú er notaður sem pólitískar háþrýstiþvottadælur er ávallt hafa rangt fyrir sér og læra ekkert nema það að eyðileggja sitt eigið fag og fagmennsku í pólitískum tilgangi einum. Þannig enda ávallt yfirstéttir ubermanna líf sitt sjálfar. Demókratar höfðu líka tæknirisana og örgjörvakónga þeirra –sem haga sér eins og 19. aldar járnbrautarbarónar er sögðu þinginu að halda kjafti– háskólafólkið, akademíuna, fræga fólkið og Hollywoodplastið með klof límd föst á andlitin - og tunguna

Fólkið í landinu var hins vegar það eina sem kom Trump á þann stað sem hann nú er. Sigur hans er stór og flokkurinn mun hans vegna uppskera ríkulega næstu mörgu áratugina. Jafnvel í heila öld

Það er ekkert að því að þurfa að bíða eftir að atkvæði séu talin. Það er í hæsta máta eðlilegt. Það sem hins vegar er óeðlilegt, er að hrópa þurfi upp úrslit jafnvel áður en þau eru komin í hús. Og ef mörg þeirra eru ólögleg, þá þarf að henda þeim út. Kannski þarf að telja mörg ríki upp á nýtt og með nýju fólki. Svo gæti farið. Ekkert liggur á, því Donald J. Trump er forseti Bandaríkjanna fram í janúar

Við hina úr sér bræddu af gremju vegna árangurslauss háþrýstiþvættis hinna duglausu, segi ég þetta: Þar sem þú ræður ekki för þessarar ferðar forseta Bandaríkjanna, reyndu þá að minnsta kosti að njóta hennar. Framboð hennar boðar betri, öruggari og klassískari kosningavenjur í framtíðinni

Fyrri færsla

Úrslit enn ókomin vestanhafs [u]


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband