Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2014

Að vera einn peningur

Rússnesk rúbla - breskt pund - íslensk króna - miðað við Bandaríkjadal

Mynd: Rússnesk rúbla - breskt pund - íslensk króna - miðað við Bandaríkjadal. Vísitölusamanburður gengis þeirra

• • •

Útflutningur Rússlands árið 1995 var að andvirði samtals 53,7 miljarðar Bandaríkjadala. Árið 2011 er útflutningur Rússlands hins vegar að andvirði orðinn 508 miljarðar Bandaríkjadala. Þetta er nálægt tíföldun á 16 árum

Heil 7 prósent af þessum tífalda útflutningi Rússlands árið 2011 fara enn til Kína. Sá útflutningur hefur tólffaldast á tímabilinu

Eystrasaltsríkin sem nú eru handjárnuð við vitlausa mynt Evrópusambandsins, geta sjálf upp á eigin spýtur enga viðskiptasamninga gert við nein lönd. Þau hafa misst fullveldið í þeim efnum. Þau hrundu ófullvalda niður úr Sovétríkjunum og ófullvalda inn í Evrópusambandið. Þau fóru úr og í aftur; reboot

Þau hafa einnig misst fullveldi sitt í orkumálum til Rússlands. Og það hefur Finnland líka. Eystrasaltsríkin eiga því enn, fyrst og fremst viðskipti við hvort annað og við Rússland

Merkilegt er nú að hugsa til þess að rússneska rúblan skuli hafa ráðið við þetta allt. Ekkert af þessu hefði verið hægt ef Rússland hefði ekki haft sinn eigin gjaldmiðil. Og ekki nóg með það. Rúblan kom Rússlandi í gegnum hrun Sovétríkjanna. Og það sést

Af þessu hefur Evrópusambandið mikið lært. Sambandið hefur lært að maður getur ekki orðið nýtt sovétríki án drottnandi myntar

Og eins og lesendur sjá og heyra gengur smíði hinna nýju sovétríkja Evrópusambandsins bara ansi vel. Hagfræðingurinn Jacques Rueff sem vann fyrir ríkisstjórn Frakklands sagði henni strax árið 1949 að; "L’Europe se fera par la monnaie ou ne se fera pas" - eða - "Evrópa verður byggð með einum gjaldmiðli; annars ekki". En þá voru hinir fyrrverandi þrír-til-sex þegar farnir að vinda uppá sig og gramsa eftir sundursprengdu gulli sínu ofan í hinu gamla ruslatunnuveldi meginlandsins á öskuhaugum þess eftir heimsstyrjaldirnar tvær, plús allt það lausa

Helmut Schmidt (D) og Valéry Giscard d'Estaing (F) fóru stuttu síðar eftir steypustöðlum Jacques Rueff og byggðu skotpall evrunnar, sem heitir ERM. Sem var og er enn tröllskessa, efnahagslegt viðriðni og drápsvél velmegunar í Evrópu. Afurð fyrirbærisins sést mjög vel á Spáni á Steingrími, Jóhönnu og Össuri. Og í Danmörku (atvinnuleysi 7%). Og í Lettlandi (11,5%). Og út um allt evrusvæðið (12%) og allt ESB (10,8%)

Þó svo að allir borgarar Spánar (26%), Portúgals (15,3%) og Írlands (12%) dræpust undir evrunni þá verður ekki hætt við þetta brjálsemisverk Evrópusovétsambandsins. Enginn sem komið hefur inn í evruna mun lifandi út sleppa. Hið nýja sovétríki Evrópu er komið beyond point of no return

Það er því nokkuð sprenghlægilegt að verið sé að veita peningaverðlaun fyrir að koma með bestu uppskriftina á því hvernig hægt sé að brjótast út úr evrunni. Það er ekki hægt. Betra væri að veita mönnum verðlaun fyrir að sjá inn í sálir fólks

Til að brjótast úr úr evrunni þarf gífurlegan herafla og mátt kjarnorkuhótunar. Eða vernd Bandaríkjanna. En sú vernd er því miður ófáanleg. En kannski verður hún það síðar - er logarnir sleikja meginland evrunnar á ný

Og af hverju tók Evrópa ekki bara upp Bandaríkjadal fyrst eigin-mynt þjóðríkis samkvæmt Brussel er banvæn? Hvað er að?

En svo eru til þeir, sem á stundum segja að "lífið sé ekki bara einn peningur". Það segja reyndar flestir nema þeir sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þeir eru sem einn peningur í framan en sem skrifaður er út í gegn að aftan

• • • 

Project Syndicate 25. mars 2014

Rífið evruna niður

Deconstructing the Euro 

Strategy;

João Ferreira do Amaral

Brigitte Granville

Hans-Olaf Henkel

Peter Oppenheimer

Jean Jacques Rosa

Antoni Soy

Jean-Pierre Vesperini

- for Saving the European Union from the Euro

• • • 

Fyrri færsla

"dwell upon its horrors"

Tengt

Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983


"dwell upon its horrors"

Above all

Þann 16. nóvember 1934 sagði Winston Churchill í ræðu að margir héldu því fram að besta leiðin til að komast hjá styrjöldum —þið vitið; að varðveita friðinn— væri sú að dvelja ætti stanslaust non-stop við myndina af hryllingi þeirra

Það er einmitt það sem lævísir áróðursmenn Evrópusambandsins hafa gert. Þeir hafa stanslaust viðhaldið þeirri mynd að þjóðríkið sem stofnun (e. institution) hafi verið orsakavaldur síðustu heimsstyrjaldar og að þjóðríkjum meginlandsins þurfi því að tortíma, svo að halda megi friðinn

En þegar nánar er að gáð sést að Evrópusambandið var í ruslahrúgum fyrst og fremst stofnað til að skaffa Þýskalandi og Frakklandi fjarvistarsönnun frá brennuvörgunum sjálfum sér. Því sem eitt stykki Evrópusamband væri betur hægt að komast hjá því að framtíðin kæmi og segði; "sjáið þið, þarna fara brennuvargar meginlandsins, samir við sig, eins og áður". Framtíðinni er hins vegar af blekkingunni ESB gert skylt að dvelja non-stop við gamlar hryllingsmyndir á meðan hið sama samband kemst á ný til keisaralegra valda yfir hinum gömlu elitæru og útjöskuðu vígvöllum meginlandsins

Ostpolitik Helmuts Schmidt sem gekk út á túkall og tvíkall var eitt af fyrstu krampakenndu ósjálfráðu taugaviðbrögðum hins fyrrverandi af öllu fyrrverandi í dulbúningi þess sem verandi eitthvað annað en einmitt hið sama gamla brunalið Þýskalands og síðast —en bara nú— brunandi smáskammtafræðilega fram á nýjum brautarteinum Evrópusambands yfir meginlandið

Ostpolitik Helmuts Schmidt gerði hinum fremsta og pólitískt erfðafræðilega sanna fjandmanni Evrópusambandsins númer eitt —Bandaríkjum Norður Ameríku— einungis erfiðara fyrir við að varðveita og tryggja friðinn á einmitt þessu eina og sama megnlandi tapranna í Evrópu. Schmidt lagði gömlu símalínur Þýskalands austur til þess að tryggja sér samvirðingu Frakka, sem þá voru Ameríku-hatarar meginlandsins númer absolut eitt og sem eru það jafnvel enn. Tækifærið í átt til "sambands" via stofnun ERM sem svo átti að byggja upp ESB var notað á meðan hvítinginn Carter ó bambi var varla við völd

The Time of the Nation-State is Over

Tími þjóðríkisins er búinn

- "forseti" leiðtogaráðs Evrópusambandsins, Herman Van Rompuy, í ræðu þann 9. nóvember 2010

Nú er í annað skiptið barið að dyrum hjá dyravörðum þvaður-sannleikans um Evrópusambandið. En enginn kemur þar til dyra, frekar en í fyrri skiptin. Nema auðvitað sjálfur nefstubbur Evrópusambandsins í búningi forseta þess. Sá hinn sami "forseti" og hélt fimm þúsund orða ræðu um "friðinn" á meginlandi Evrópu frá árinu 1945 til loka kalda stríðsins. Það gerði hann í Berlín árið 2010 er þess var minnst að 21 ár var liðið frá falli múrsins. Og það gerði hann alveg án þess að minnast einu orði á þá staðreynd að það var þjóðríkið Bandaríkin í Norður-Ameríku sem tryggði og varðveitti þann frið sem fáráðlingurinn þessi og hinn fyrsti "forseti" leiðtogaráðs ESB, Herman Van Rompuy, hélt þarna í kringum sjálfan sig undir föllnum múr í Berlín árið 2010

Það sem sögunnar menn eiga eftir að velta alvarlegum vöngum yfir um ókomna framtíð er þetta; hver styggði friðinn sem þjóðríki Bandaríkjamanna í Norður-Ameríku kom á og tryggði með meira en algerlega lögmætu valdi sínu í Evrópu. Friðinn sem þjóðríkið Bandaríkin komu á og tryggðu með milljón sinnum meira lögmæti en alla aðra gat látið sig dreyma um, fyrr og allar götur Evrópu síðar 

Og hver var það sem strax varð svo veruleikafirrtur árið 1947 að hann fór að gramsa ofan í hinu gamla ruslatunnuveldi meginlandsins á öskuhaugum þess. Hver er þessi sá er nú blæs þar af öllu sínu afli lífinu í gamlar glæður brennandi rústa tapranna á meginlandi Evrópu!

Það að geta kastað af sér svona aðsvifsræðu um friðinn í Evrópu án þess að minnast einu orði á þjóðríki Bandaríkjamanna í Norður-Ameríku —né hvað þá að þakka því fyrir hann— er einungis á færi elítuveldis Evrópusambandsins. Það eitt er fært um slíkan hroka og gerræðislegar sjálfsbekkingar. Enda er Evrópusambandið fyrst og fremst stofnað til höfuðs þjóðríki Bandaríkjamanna. Fyrst og fremst og svo er enn. Og svo er enn . . 

Fyrri færsla

Hagvöxtur í Rússlandi gæti orðið Evrópusambandslegur 


Hagvöxtur í Rússlandi gæti orðið Evrópusambandslegur

Í yfir 35 ár hefur ERM-I-II-III gengisfyrirkomulag Evrópusambandsins kyrkt og kæft hagvöxt og sprengt til langtíma upp atvinnuleysi í löndum Evrópusambandsins á miðstýrðan sovéskan hátt. Hinn þriðji fasi ERM-fyrirkomulagsins er sjálft pólitíska málgagnið evran

Ekkert hefur verið eins varanlega örkumlandi fyrir Evrópu og þetta ERM-elítusamsæri embættis- og stjórnmálastétta ESB gegn hinum efnahagslega raunveruleika í ofangreindu tímarúmi, sem lengist bara og lengist fyrir núlifandi kynslóðir í handjárnum sambandsins

Til hroðalegs hryllings geta menn sér nú til þess að hagvöxtur í Rússlandi gæti —vegna einangrunaraðgerða Evrópusambandsins— jafnvel fallið niður á ESB-level. Að hagvöxtur í Rússlandi gæti jafnvel orðið Evrópusambands-hryllingur sökum ytri efnahagsþvingana. Þá væri nú illa fyrir Rússlandi komið, því ERM-skrúfstykki Evrópusambandsins hefði sjálft KGB varla getað fundið upp

Allt sem ESB snertir á deyr. Enda hefur Evrópusambandið úti í Evrópu hlotið nafngiftina kirkjugarður ríkisstjórna fólksins. Þar hefur ESB-elítum heils meginlands tekist að innleiða varanlegar efnahagsþvinganir sem verandi "framfarir"

Fyrri færsla

Þýsk Evrópa gengur brátt (og illilega) aftur

Tengt 

Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983


Þýsk Evrópa gengur brátt (og illilega) aftur

Krímskaga-aðgerðir sambandsríkis Rússlands  —the Russian State Union—  munu strax og ákaft verða notaðar til að rumpa upp leiktjöldum heima fyrir og framkalla sviðshlutverk sameinaðs Þýskalands sem verandi sívaxandi og stigmagnandi mikilvægara á hinni voflegu framköllunarstofu þess yfir Evrópu, þ.e.a.s, sem drottnandi afli yfir Evrópusambandinu. Og helst að sambands-hlutverk þess verði frá og með nú framkallað enn hraðar en í gær, frá og með hinu varanlega 2009-hruni myntbandalags ESB talið, eins og við þekktum það 

Eins og allir sjá eru landamæri ríkja og sambandríkja Evrópu aðeins föst svo lengi sem valdhafar festa þau, halda þeim föstum og svo lengi sem borgararnir líta á þau sem landamæri ríkja uppi í heilabúum sínum. Falli hugmyndin um landamærin uppi í höfðum valdhafa eða fólksins, já þá falla þau, landamærin

Landamæri eru aðeins huglægt fyrirbæri; þau eru hvorki líkamleg, landfræðilega föst, ríkisfasteign né neitt í þá átt. Þau eru huglægt fyrirbæri er hvílir á hollustu einnar þjóðar við liti þjóðfána þjóðríkis þeirrar einu og sömu þjóðar

Hefjast nú nýsteikingar og niðursuður Evrópu fyrir alvöru á ný. Kallað verður; "Þýskaland, ó þú verður að taka að þér leiðtogahlutverkið og gera Evrópusambandið" að nýju . . já, þið vitið hvað; gera það að hinum fjórðu ferlegheitum meginlandsins - heimsveldinu; the Empire. Og því munu sjálfkrafa fylgja hörmungar miklar. Verri en grískar
 
Fyrri færsla
 

Evrópusambandið verður Úkraína

Þjóðernisbrota- og tungumálakort af Úkraínu

Mynd; þjóðernisbrota- menningar- og tungumálakort af pólitískri púðurtunnu Úkraínu

Úkraínuvæðing og Balkanisering Evrópusambandsins

Að mörgu leyti má segja að Evrópusambandið sé Úkraína og að Úkraína sé eins og smækkuð mynd af Evrópusambandinu undir framköllun þess er stanslaust skerpist sem yfirríkisleg umboðslaus ófreskja á framköllunarpappír Brusselveldisins. Sem fjöl-hegningar-samfélag* með hroðalegum mannlegum framtíðarhorfum

Þannig er útópíusamband ESB að verða. Það er orðið yfirríkisleg samsteypa elítuvelda þar sem heilar sex fimm-ára áætlanir í stíl Sovétríkjanna sálugu hafa nú þegar spilað sig algerlega fallít í formi hinna þriggja tíu-ára áætlana Evrópusambandsins umhverfis "Lissabon markmiðin" frægu. Þau eru hin marklausu mið sem meðal annarra ESB-fíklar á borð við fyrrum forsætis- utanríkis- allsherjar- og menntamálaráðherra Íslands staupuðu sig svo lengi á. Sem sú lygi er um tíma hélt pappírsfljótum sambandsins rennandi til áfangastaðar lyganna í Brusselskógum ESB. Þeir sem sögðu "þetta er þvaður", voru hins vegar sendir í intellektuelt gúlag í aðildarlöndunum

Allar þessar þrjár 10-ára Lissabon-áætlanir ESB eru fyrir löngu orðnar elítuvátryggt ESB-misfóstur gegn framförum og hagsæld. Þær urðu að herjandi fíaskói á fólkið í Evrópusambandinu, eins og við mátti búast

* Fjöl-hegningar-samfélag er hægt að skilgreina sem samsull "esb-samhæfinga" og svo kallaðra "esb-umbóta" (coordination & structural reforms). ESB-samhæfing og ESB-samþvættið fer ávallt og einungis fram í nafni elítu- og klíkuvelda, ekki ósvipað peningaþvætti. Algerlega framhjá fólkinu

ESB-samhæfing felst í því í að lofa yfirríkislega að gera landi sínu og þjóð í heild eitthvað slæmt í þágu elítu landsins, gegn því að annað ESB-land lofi yfirríkislega að gera sínu landi og fólki eitthvað sem í heild er jafn slæmt fyrir það land og þá þjóð, en eins og í fyrrnefnda landinu, einungis í þágu elítu hins síðarnefnda lands

Allir tapa nema ESB-elítan og ESB-hagsmunaklíkan. Svona er Evrópusambandið byggt upp um leið og AngloSaxon PaxAmerican-Evrópa er rifin niður og sjálfstæði og fullveldi aðildarríkjanna dælt úr þeim yfir í hið nýja allsherjandi sovét ESB

Fyrri færsla

Austurvöllur orðinn Wall Street sósíalista og stjórnleysingja?


Austurvöllur orðinn Wall Street sósíalista og stjórnleysingja?

Flestir misskilja hlutverk Wall Street. Eina hlutverk Wall Street er að bjóða fram þjónustu sína; þ.e.a.s kaup- og söluþjónustu, afgreiðsluþjónustu

En sumir veraldlegir eru svo illa að sér að þeir halda að Wall Steet hafi á sínum höndum einhvers konar ráðgjafahlutverk um hvenær hvað sé keypt og hvað sé selt. Þeir sem halda að svo sé eru sannir afglapar. Enginn er eins ömurlega illa fær til ráðgjafar um kaup og sölur eins og Wall Street er

Kæri þjóðkjörni stjórnmálamaður: hlustar þú á ráðgjöf Wall Street? Ert þú seldur? Ert þú keyptur? Mikið meira get ég varla mælt í bili vegna ógurlegrar reiði, því svo hörmulega er mér misboðið

Ríki —og alveg sérstaklega smá ríki— þola ekki að opinber skömm brjótist til valda undir áföllum og taki sér stöðu við hásæti æðstu lýðræðisstofnunar landsins, til þess eins að fremja þar þá opinberu skömm sem umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið er. Hún er ekkert annað en opinber skömm. Þetta þolir Ísland ekki sem lýðræðisríki. Þetta verður að afmá. AF-MÁ!

Þeir sem fara fram á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort stolinni bifreið Lýðveldisins sé áfram nauðugri ekið til Brussel af próflausum þjófum, hafa engan skilning á því að þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt

Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin

Umsóknina verður umsvifalaust að afturkalla og draga alveg til baka. Óhæfuna og svikin gagnvart þjóðinni verður algerlega að afmáð og þau verða að hætta. Umsóknina á því umsvifalaust að draga til baka, fella niður og afmá

Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann

ESB-umsóknin: Þá opinberu skömm verður að afmá af Lýðveldinu

Fyrri færsla

Þýskaland sparar sig og evruþrælabúðir sínar í hel


Þýskaland sparar sig og evruþrælabúðir sínar í hel

Reallohnindex = laun mínus verðbólga (Verbraucherpreisindex)

Þróun kaupmáttar launa í Þýskalandi

Statistisches Bundesamt, Veröffentlichung Reallohn, 3. Q 2013

Mynd: þróun raunlauna, kaupmáttar, í Þýskalandi síðustu 19 ár. Raunlauna-vísitalan hefst árið 1992 á vísitölunni 103,4 og endar árið 2013 á enn lægri vísitölu. Kaupmáttur féll í fyrra.

Launþegar í Þýskalandi hafa ekki fengið kauphækkun í nítján ár. Raunlaun í Þýskalandi hafa ekki hækkað í nítján ár. Kaupmáttur í Þýskalandi hefur ekki hækkað í nítján ár. Engin velmegunaraukning hefur átt sér stað hjá launþegum í Þýskalandi í nítján ár. Þetta er vél Evrópusambandsins. 

Þessi innvortis gengisfelling Þýskalans í meira en nítján ár —fyrst undir ERM-II ömurleika fyrirkomulaginu sem sprakk í loft upp árið 1992 og svo síðar undir innvortis evrustyrjöld ESB— er það sem er að drepa Evrópu og hefur verið að drepa Evrópu áratugum saman

Ekkert bendir til að þessi þróun —sem er innbyrðis kapphlaup evrulanda niður á botninn— hætti, þar sem engar líkur eru á að raunlaun —kaupmáttur— hækki í Þýskalandi eftir þessar samfelldu innvortis gengisfellingar landsins í meira en nítján ár. Innvortis gengisfelling gagnvart þeim löndum sem eru í læstu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland; kínverja Evrópu

Þessi þróun hentar elítuhagkerfi Þýskalands ákaflega vel. Leiguliðarnir, þýska þjóðin, er áfram handjárnuð á klafa og mun aldrei uppskera neitt nema eitt; elítustýrðar hörmungar þýskrar export- banka- og ESB-mafíu

Það eina sem svona land skilur á samkeppnismörkuðum, er gengisfelling beint í andlitið á því

Það er sko munur að láta svona vel að stjórn. Er það ekki ASÍ? Þetta eru blautir draumar útópíuforystu ASÍ, Viðskiptaráðs og Samtaka Atvinnulífsins: elítuvæddar ERM II og evruþrælabúðir

Fyrri færsla

Evrópusambandið lokar álfunni niður - til frambúðar


Evrópusambandið lokar álfunni niður - til frambúðar

Ungverjaland - breytilegir vextir til eins árs á húsnæðislánum
Mynd; Ungverjaland - breytilegir vextir til eins árs á húsnæðislánum 
 
Fjöldi nýbygginga í Ungverjalandi hrundi um 31% á síðasta ári þannig að úr urðu aðeins 7239 nýjar íbúðir í öllu landinu, sem telur tæplega tíu miljón íbúa

Þetta er minnsti fjöldi nýbygginga í Ungverjalandi frá því að mælingar hófust 1920 og er þá tímabil hinnar seinni heimsstyrjaldar sem meginland Þýskalands yfir Evrópu stofnaði til þar með talið, ásamt tíma landsins undir Sovétríkjum Evrópu í útgáfu þeirra númer 1. Ekkert rústar löndum að mörgu leyti eins illa og Evrópusambandið gerir

Ógerlegt er að fá húsnæðislán í Ungverjalandi og vextir á þeim eru 8 til 10,2 prósent á ári í núll prósent verðbólgu sem er að breytast í króníska verðhjöðnun. Vextir á neytendalánum —fáist þau— eru 24,49 prósent á ári. Heimili landsins eru skuldsett vegna falskra væntinga til ESB-aðildar landsins
 
Atvinnuleysi í Ungverjalandi frá 1999
 
Atvinnuleysi í landinu er einn allsherjar krónískur Evrópusambands-hryllingur eins og á mestöllu meginlandi þess. Enginn fær lán í erlendri mynt í Ungverjalandi nema elítan, samkvæmt reglusetti XC frá 14. ágúst 2010 (sjá línurit efst). Eins er með ESB- og evrulandið Austurríki. Og fyrir evruinnistæður í ungverskum banka er borgað 1,3 prósent innlánsvextir á ári gegn eins árs bindingu
 
Vert er að minnast þess að í evrulöndum eru ÖLL húsnæðislán í erlendum gjaldmiðli, því ekkert evruland á sína eigin mynt. Það sést vel á vaxtaokrinu og lánaskilmálunum á húsnæðislánum á Írlandi sem og annars staðar á evru- og ERM-II svæði Evrópusambandsins. Um er að ræða lánaskilmála í stíl við evrópska mafíustarfsemi. Eins og að hér á Íslandi fengju aðeins þeir lán sem vinna skattfrjálst hjá Brusselelítunni og OECD á sama tíma

Árið 2008 féll raunverð húsnæðis í Ungverjalandi um 5,7 prósent. Árið eftir hrundi það um 15,7 prósent og 2010 féll það 4 prósent í viðbót. Árið 2011 hélt húsnæðisverð í Ungverjalandi áfram að falla og féll um 6,7 prósent að raunvirði og árið 2012 hrundi það á ný um 10,36 prósent. Þetta er Evrópusambandsleiðin til örbyrgðar fyrir húsnæðiseigendur og almenning

Ungverjaland gekk í Evrópusambandið árið 2004 og hefur nú verið í meðferð hjá stóðelítum Evrópusambandsins í 10 ár. Hrikalega slæm reynsla allra Austur-Evrópulanda af ESB-aðild mun líklega verða Úkraínu enn eitt ESB-vítið til varnaðar ásamt fullframinni 30 ára sjálfsmorðsaðild Grikklands að Evrópusambandinu. Það land liggur nú sem rúin rúst
 
Ungverjum fækkar hratt. Frjósemi kvenna er þar aðeins 1,23 lifandi fætt barn á ævi hverrar konu. Landið er að geldast eins og öll lönd Austur- Mið- og Suður Evrópu —ásamt frjósemislega gjöreyddu Rússlandi— eru orðin. Er eins og að endurnýjaður Svarti-Dauði herji í Evrópu á ný. Stjórnarfarslegum misfóstrum og ónýtum stofnunum meginlandsins er um þetta að kenna. Meginland Evrópu er að deyja

Fyrri færsla
 

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband