Færsluflokkur: Evrópumál
Mánudagur, 7. maí 2018
Ný innheimtustofnun Þýskalands heitir evra og esb. Völdin á höfum veraldar
Dr. George Friedman leggur fram óþægilegar staðreyndir
****
Höfin og völdin
Forseti Frakklands er að leggja af stað í heimsókn til Nýju Kaledóníu, sem er franskur eyjaklasi í Suðvestur-Kyrrahafi. Þar búa 270 þúsund manns sem greiða munu atkvæði um sjálfstæði eða ekki sjálfstæði frá Frakklandi í þjóðaratkvæðagreiðslu í nóvember. Þjóðaratkvæðið gæti í reynd snúist um að vera áfram hluti af Frakklandi, ellegar að verða brátt Kínversk nýlenda. Ástralía leggur mikið upp úr því að Frakkland sinni Nýju Kaledóníu vel, til þess að varðveita vestræn áhrif í heimshlutanum. Hún hefur lagt sitt á þær vogarskálar með því að láta Frakka um smíði nýrrar kynslóðar kafbáta fyrir ástralska sjóherinn. Þannig reynir Ástralía að toga franska lýðveldið sterkar til heimshlutans, en Frakkland ræður yfir stærstu efnahagslögsögu heimsins
Í athugasemdum við frétt í síðustu bloggfærslu um skyndilega endurræsingu Norður-Atlantshafsflota Bandaríkjanna, veltum við einnig fyrir okkur því sem er að gerast, eða ekki að gerast, á Kóreuskaga. Það skemmtilega við höf heimsins er að þau fljóta úr og í hvort annað. Það sama gildir um athafnir manna á höfunum. Þess vegna er mikilvægt að ráða höfunum, því þá ræður maður hver fær að ráðskast með eða ráðast á hvern, eða ekki, sjóleiðina
Kórea: sameining við Japanshaf?
Málin á Kóreuskaga eru komin á vissa hreyfingu vegna þess að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur, þvert á elítuálit sérfræðinga veraldar, sýnt diplómatíska hæfileika og forðast hernaðarátök, þó svo að hann haldi á stórri sleggju. Ef Kórea verður eitt ríki á ný (sem ég trúi ekki á að geti gerst á næstu árum) þá yrði það eitt mesta herveldið í Austur-Asíu. Og sú sameining gæti orkað mjög svo tvímælis á þann hluta heimsins. Við það myndi valdajafnvægið í Asíu riðlast og þar með einnig á nokkrum höfum heimsins í leiðinni. Bandaríkin hafa tvenn lífsmikilvægi:
1. Bandaríkin yfir Atlantshaf og öfugt.
2. Bandaríkin yfir Kyrrahaf og öfugt.
Viðskipti yfir leið-2 fóru fram úr viðskiptum yfir leið-1 árið 1984
Jón Þórhallsson spyr: Ef að Kóreu-ríkin sameinast hver yrði þá þeirra líklegasti óvinur?
Svar: Sjálft samrunaferlið yrði hættulegasti óvinur Kóreu. En ef við gefum okkur að sameining geti gengið friðsamlega fyrir sig, þá er það Kína sem yrði hættulegast fyrir sameinaða Kóreu, því Kína myndi reyna að toga Kóreu á sporbraut umhverfis sig, og nota það sem stuðpúða eða hjálendu, eins og Rússland reynir að hafa samband sitt við Úkraínu. En fyrir Kína er um enn meira að ræða þar sem Kórea er með aðgang út á Japanshaf og getur spilað úr þeirri stöðu gegn Kína, ef svo ber undir. Að öllu óbreyttu yrði sameinuð Kórea með fjórða stærsta her heimsins og þar að auki kjarnorkuvopnaveldi, ef landið óskaði þess
Jón Þórhallsson spyr aftur: Það hlýtur að vera stóra spurningin hvort að Kórea sem eitt ríki gæti sameinast um 1 forseta í næstu forsetakosningum? Ef svo; hvort yrði sá forseti meira hallur undir Suður-Kóreu, Bandaríkin eða Kína?
Svar: Mikilvægasta spurningin er herinn, eða réttara sagt herirnir. Tveir öflugir herir sem miðað hafa gerræðislegum vopnum á haus hvors annars í samfellt 70 ár. Kosningar eru eitt, en hverjum munu tveir herir fylgja og treysta. Hvernig á traust að geta skapast til að leggja þá niður og stofna nýjan, því sameinuð Kórea þarf vissulega á öflugum her að halda. En það verður að vera bara einn her, ekki tveir. Kosningar eru hér frekar litið mál miðað við þetta. Hvernig á að skapa traust til að leggja niður varnirnar gegn hvor öðrum. Annar helmingur er heilaþveginn og hinn er stjarfur af ótta við heilaþvegna fátæklinga sem nærst hafa á hata Suðrið í 70 ár
Mín skoðun er sú að algerlega er óvíst hvort þetta geti yfirhöfuð gerst. Það þarf svo mikið hugrekki til. Hugrekki stjórnmálamanna. En þjóðin er samt sterk, það hefur hún sýnt í 70 ár. En sameiningar þjóða geta þó stundum endað alveg hroðalega illa, eins og sést á Yemen. Meira að segja er sameining Þýskalands svo ömurleg að landsframleiðslan í austurhlutanum er enn ekki nema 70 prósent af því sem hún er á hvern mann í vestri. En samt tala menn um "vel heppnaða" sameiningu þar. En það gera hins vegar ekki þeir Þjóðverjar sem lögðust gegn henni og þeim aðferðum sem yfirvöld beittu
En svo ég svari spurningu þinni um "Suður-Kóreu, Bandaríkin eða Kína" þá er það þannig að kóreanska þjóðin hefur ekki þraukað í 70 ár til þess svo að renna undir hæl Kína. Það hefur hún ekki gert. Hún krefst sjálfsákvörðunarréttar og ætlar að ráða sér sjálf. Flestum þjóðum í nágreni Kína er illa við Kína. Víetnamar óska til dæmis frekar eftir bandarískri nærveru heldur en kínverskri, þrátt fyrir Víetnamstyrjöldina.
Sameinuð Kórea mun finna þá bandamenn sem gagnast henni best. Stundum hefur það verið Japan, þrátt fyrir sögulegar mótsagnir í þeim efnum. Og Kórea hefur stundum ráðið yfir stórum hluta Kína í langri sögunni. Ég tel víst að Bandaríkin myndu gagnast þjóðinni ef sameiginlegir hagsmunir eru skoðaðir. Því án Bandaríkjanna væri um lítið nema holu í jörðina að sameinast núna, því 50 sinnum ríkara Suðrið er afrakstur þeirrar samvinnu
En hvort að Norðrið líti þannig á málin er óvíst. En ætli þeim báðum vanti ekki öryggisaðstoð og siglingafrelsi meira en þeim vantar viðskiptaleg samskipti við Kína, til lengri tíma litið. Framtíð Kína er mjög svo svört. Ég tel víst að Kína líti sameiningu Kóreu afar illum augum. Hún hentar þeim illa, því þeir eiga á hættu að missa Norðrið sem stuðpúða sem hallur er undir alræðislegt stjórnarfar, sem er morkinn hornsteinn Kína
Það er nú það. Ég þakka fyrir spurningarnar. Þær eru aðalsmerki hinna Heilögu ritninga Vesturlanda, sem kenna ungdómnum að spyrja spurninga í anda Ísraelsríkis hins forna. Grikkir tóku Sókrates hins vegar af lífi fyrir að spilla ungdómnum með því að kenna honum að spyrja. Gamla og Nýja testamenti Biblíunnar standa enn fyrir sínu: Þau eru Vesturlönd = framfarir, vísindi, velmegun og heimspeki
Ný innheimtustofnun Þýskalands heitir ESB og er evra
Í nágrenni okkar hér heima á verndar- og áhrifasvæði Norður-Atlantshafsflota Bandaríkjanna -og á meðan Rússland undirbýr næstu aðgerðir í Austur-Evrópu- er að koma betur og betur í ljós að Þýskaland notar nú Evrópusambandið og evruna sem innheimtustofnun, bæði fyrir fjárhag og sívaxandi völd. Síðasta innheimtustofnun Þýskalands hét Þriðja ríkið (og það gerði á sínum tíma pakt við Rússland). Wolfgang Munchau bendir á að Þýskaland geti brátt orðið eins og sú Rúmenía sem Nicolae Ceausescu skildi við þegar almenningur tók hann af lífi: þ.e. land í rúst með hagnað á fjárlögum. Við skulum ekki minnast á viðskiptahagnað Þýskalands við umheiminn, því hann er svo pervers:
"Mr Scholz ambition is to push the budget into a surplus of 1 per cent of GDP or higher. Such a surplus would, over time, eradicate all public debt. At that point Germany will have reached ordo-liberal utopia: it will have become like Nicolae Ceausescus Romania, which boasted a surplus of $9bn in 1989, just before the dictator was overthrown"
og
"But, after having done the numbers, their conclusion is that Scholz is now unofficially shifting the fiscal target from Wolfgang Schäubles "Schwarze Null" to a "Schwarze Eins" - from a fiscal surplus of a little over 0% of GDP, to more than 1%. The idea is that Scholz wants to go down in history as the Red Hawk, as they call him, the biggest deficit hawk in modern German history. We would like to add to this observation that the SPD supported the austerity policies chancellor Heinrich Brüning in the early 1930s. The SPD embraced Keynesian policies in the 1940s and until the 1970s, but has now returned to its pre-Keynesian roots"
Skjáskot: Kjarnaverðbólgan á evrusvæðinu. Tölur 4. maí 2018
Nýtt Þriðja ríki er í smíðum og það heitir Evrópusambandið, þar sem foringinn er uppskriftin að einræðinu. Ég vona að Frakkland taki brátt tappann úr þessari vitleysu áður en hún leggur meginlandið í rúst. Því rúst er það að verða, því ekkert gengur með að koma kjarnaverðbólgu evrusvæðis upp að yfirlýstu marki ECB-seðlabankans, sem í reynd er aukaseðlabanki Þýskalands
Eftir örvunaraðgerðir upp á þrjár billjónir evra er kjarnaverðbólgan aðeins 0,7 prósent eftir sjö ára barning seðlabankans, langt langt undir markmiði ECB. Og þegar næsta kreppa sem er að skella á evrusvæðinu kemur, þá getur sá seðlabanki ekkert gert til að bjarga neinu, því hann sjálfur er að sökkva. Vextina getur hann ekki lækkað því þeir eru engir. Þeir eru hrikalegir faldir skattar sem eru að drepa heimilin á evrusvæðinu. Lágir vextir eru faldir skattar á heimilin því þau eru stærsti lánveitandinn í hagkerfunum. Og þeir rústa líka framleiðni, því ókeypis peningum er fjárfest í þvælu, og þeir halda ónýtum fyrirtækjum á lífi
Mynd WSJ: Þróun framleiðni í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu hins vegar: The Riddle of the Eurozone Missing Inflation
Fyrri færsla
Bandaríkin endurræsa Norður-Atlantshafsflotann
Evrópumál | Breytt 8.5.2018 kl. 04:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. maí 2018
Angela Merkel laug að forseta Bandaríkjanna
Níu mínútna viðtal: Michael Pettis sker litlu gulu hænuna um Kína út í pappa og þar með einnig þess sem býður Þýskalands, sem er með stærsta viðskiptahagnað í heimi, á kostnað Bandaríkjanna. Það kæmi mér ekki á óvart ef Pettis fengi Nóbelsverðlaunin fyrir hið einstaka framlag hans til útskýringar á því hvað gerist í alþjóðavæddum heimi undir offramboði sparnaðar. Slíkar aðstæður hafa aldrei áður ríkt í hagsögu mannkyns. Hér má sjá einn heilan fyrirlestur hans á gamla vinnustað Alberts Einstein í Bandaríkjunum: Princeton, Advanced Studies
****
Í fyrradag samþykkti Angela Merkel fjárlög fyrir Þýskaland. Hún situr sem kanslari Þýskalands í ríkisstjórn með sósíaldemókrötum, sem stýra fjármálaráðuneyti landsins. Þingið mun greiða atkvæði um fjárlögin í júní. En fyrir sitt leyti hefur Angela Merkel samþykkt fjárlögin og lagt blessun sína yfir þau
En það eru tvö vandamál. Það fyrra er grafalvarlegt, en hið síðara sprenghlægilegt:
1. Hún lofaði forseta Bandaríkjanna, þegar hann las yfir hausamótum hennar í aðalstöðvum NATO, að Þýskaland myndi taka sig á svo að bandarískir skattgreiðendur þyrftu ekki að halda 75 prósent af NATO uppi með fé úr sínum vösum. Bandaríkin hafa skuldbundið sig til að koma Þýskalandi til varnar. Til að svo megi verða, hefur Þýskaland skuldbundið sig til að nota tvö prósent af virði landsframleiðslunnar í varnarmál. En það hefur Þýskaland bara ekki gert, en svikist svo heitftarlega um að landið á enga herþotu sem tekið getur þátt í NATO-aðgerðum. Þýskaland á enga herþotu sem flogið getur í myrkri. Og nú hyggst Angela Merkel lækka framlag Þýskalands til NATO enn frekar, eða úr 1,3 prósenti landsframleiðslunnar og niður í 1,23 prósent, fram til ársins 2022. Kanslarinn laug sem sagt að forseta Bandaríkjanna síðasta sumar. Og sá heitir Donald J. Trump. Það verður fróðlegt að fylgjast með þróun þessa máls. Í reynd er Angela Merkel orðin valdalaus í kanslarasætinu. Flokkurinn hefur tekið af henni öll völd og gert hana að ritaraínu - á skilorði
A mess
2. Hið síðara en sprenghlægilega mál er það, að ekkert, núll, nada, zero ætlar Þýskaland að gera til að standa við þær skuldbindingar sem landið gaf út á hendur sér í andrúmsloftinu sem ríkti í hlátursgasklefanum í París. Framlög Þýskalands til umhverfismála verða skorin niður! Heiðarleg var afstaða Donalds Trump forseta Bandaríkjanna. En sérgrein Þýskalands er að segja eitt, en gera allt annað. Það gildir einnig í því sem kallað er Evrópusambandið í dag, en sem í reynd er bara svartholið Þýskaland, eins og það alla tíð hefur verið frá stofnun þess 1871. Evrópa er að sogast inn í svartholið sem hún er hlekkjuð við með tilkomu esb og evru. Þetta þurfti ekki að fara svona, en hlaut að gera það. Horfið ekki til þess sem Trump segir, heldur til þess sem hann gerir
Leyf mér yfir um!
Mynd: Segðu Sjibbólet
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 1. maí 2018
Gjaldmiðill ASÍ sigrar í Grikklandi
Evran hefur gert það að verkum að halda þarf Grikklandi í einangrun svo það taki ekki allt evru-myntsvæði ASÍ og Samfylkingarinnar niður og loki því
Fullvalda þjóðir nota hins vegar gjaldeyrishöft til að bjarga því sem bjargað verður í áföllum. Þá er átt við að það sé skylda hverrar þjóðar að vinna að sínum málum sér í hag, en ekki óhag, því enginn annar gerir það fyrir þær
En þessu er ekki þannig farið þegar lönd taka upp Samfylkingarevrur ASÍ. Þar setur Samfylkingarevran lönd í fangelsi til að vernda þá sem eru utan landsins, en ekki innan þess. Um eins konar fangabúðir evrusósíalismans er hér að ræða. ASÍ-Samfylkingarevra Viðreisnarmarxista verður að geta haldið löndum í einangrun og hún má ekki sleppa þeim lausum fyrr en þau eru því sem næst örkumla, eða geld, og geta ekki lengur gert neitt sjálfum sér til hagsbóta. Það er draumur ASÍ, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á Dagsferðadekkjum þeirra um ónýtar götur Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar
Það eru því stórfréttir fyrir kröfugöngulið evrunnar á Íslandi að slakað var í síðasta mánuði á peningaskömmtun í Grikklandi, 10 árum eftir hrun. Nú mega evruþegar landsins taka út 2300 evrur á mánuði í stað 1800 evra. Með þessu áframhaldi munu Grikkir geta tekið út 2800 evrur á mánuði árið 2028. Segið svo að Samfylkingarevra ASÍ virki ekki. Hún verndar svarthol evrunnar eins og Gúlag sósíalismans verndaði Sovétríkið gegn frelsinu
Skyldi hamar/sigð nasistamerki verkalýðsbossanna sjást á götum Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar í dag, á Dagsferðadekkjum nýmarxismans?
Og hér með legg ég til að DDRÚVið í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar og ríkisstjórnarsjónvarp Norður-Kóreu verði sameinuð í eitt. Það eiga þessar stöðvar skilið, því enginn sem notar þær getur haft minnistu hugmynd um hvað er að gerast í heiminum fyrir utan. Kjarnahæfileikar beggja stöðva er að stöðva. Þær eiga samruna skilið
Ég óska engum til hamingju með verkalýðsbossa Íslands á ofurlaunum. Þeir eru óþolandi og óferjandi kommissara-fornminjar sósíalismans og ekkert annað. Orðnir lítið annað en fórnarlömb kynferðislegrar óáreitni
****
Höfundur er örvhentur og því kúgaður minnihluti hins nýja próletaríats nýmarxisma ASÍ, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar. Gamla próletaríatið varð ríkt og þar með ónothæft, svo búa varð til nýtt, þ.e. "kúguðu minnihlutana", svo að klessurnar fjórar gætu haldið launum sínum. Reyndar er höfundur minnsti minnihluti íslenska lýðveldisins - einn maður. En við því er ekkert að gera, er það?
Fyrri færsla
Evran að verða sértrúarmynt. Að reikna sig í hel
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 26. apríl 2018
Evran að verða sértrúarmynt. Að reikna sig í hel
Sjálfspyntingar evrulanda
Níu af hverjum tíu gjaldeyrisviðskiptafærslum í heiminum eru í Bandaríkjadölum. Umfangið er 5,1 billjón dala á dag, segir í grein Wall Street Journal í dag
Tveir þriðju allra forða seðlabanka heimsins eru í Bandaríkjadölum
Evran hefur sem forðamynt seðlabanka fallið úr 28 prósentu hlutfalli niður í 20 prósent eftir að í ljós kom að hún leiðir þau lönd sem tóku hana upp frekar inn í þjóðargjaldþrot, en til hagsældar
Hin kínverska mynt undralands á leið í japanskt hrun er 1,2 prósent af gjaldeyrisforðum seðlabanka heimsins og hún er notuð í 1,6 prósentum af greiðslum. Það undraland ásamt Íran bindast nú samtökum um að skáka Bandaríkjadal. Með hverju, veit ég hins vegar ekki
Fyrir evrulöndin snýr málið með evruna þannig að þeim var kastað á bál pólitísks rétttrúnaðar. Á því báli er efnahag evruríkja fórnað svo að pólitísk elíta í ESB-klaustrum geti baðað sig í ösku þeirra við bál rétttrúnaðar, og pískað sig daglega með evrum. Sjálfspyntingar í nafni rétttrúnaðar eru enda evrópsk sérfræði
Næsta skref evrulanda niður til botns er þegar tekið. Heimilum evrulanda var rústað svo að stærstu evruríkin gætu flutt út. Eru þau nú svo útflutningsháð að troll alþjóðavæðingar sem verið er að draga inn, áður tog þess tekur togaraflota heimsins niður, mun koma ESB endanlega fyrir sem hinum nýja þriðja heimi evruríkis. Evrusvæðið sjálft er í trollinu. Ekkert efnahagssvæði veraldar er eins fast í vösunum á viðskiptavinum sínum eins og evrusvæðið. Bara smávægileg pólitísk stefnubreyting í alþjóðaviðskiptum hefur afgerandi áhrif á evrusvæðið
Hinn svokallaði "innri-markaður" ESB var hættuleg tálsýn
Og það sem er enn verra, er að nýjustu rannsóknir á hinum svokallaða innri-markaði Evrópusambandsins (EU-single-market, og þar með einnig EES), sýna að efnahagslegur ávinningur við sameiginlegt markaðsvæði hans er í mesta lagi 1,2 prósent aukning landsframleiðslunnar í heild fyrir þau ríki sem gerðust aðilar að honum fyrst. Hér er átt við uppsafnaðan ávinning. Og fyrir þau ríki sem gerðust aðilar síðar, er ekki um nein jákvæð áhrif að ræða - og í sumum tilfellum eru áhrifin neikvæð. Sem sagt: sé tekið tillit til skekkjumarka er hægt að segja að hinn innri markaður Evrópusambandsins hafi ekkert jákvætt haft í för með sér. Og ef efnahagsleg einangrun í rústum Evrópusambandsins og útflutningsfíkn eru afleiðingar hans, þá hefur svæðið frekar málað sig út í horn heimsins, heldur en hitt
Það dýrmætasta sem til er í heiminum í dag er eftirspurn. Hana hefur Evrópusambandið ekki, því henni var fórnað á altari ESB-trúar. Sambandið er krónískt háð eftirspurn ríkja utan sértrúarprestakalls evrunnar og esb. Og þau segja stopp
Á fullu við að reikna sig í hel
Nú er hinn auglýsingaháði hluti tæknigeira veraldar sennilega á fullu við að reikna sig í hel. Alphabet (Google) kom með uppgjör sitt í fyrrakvöld og þar var kostnaðaraukningin svo hrikaleg að Wall Street sendi virði fyrirtækisins samstundis 5 prósent norður og niður. Þeim ofbauð. Kostnaður í gagnaverum og strengjum til að reikna út gagnslausa taugaveiklunarkippi manna við skjáinn -kallað stórgögn- er sennilega að rekast á vegg tækninnar sem getur ekki lengur fylgt taugaveiklun fólks með mús og fingur eftir. Þessi svo kölluðu tæknifyrirtæki sem byggja alla sína afkomu á auglýsingum eru að reikna sig í hel:
Auglýsingaháð (hlutfall tekna frá auglýsingum)
Google: 86%
Facebook: 98
Twitter: 86
Yelp: 90
Snap: 97
Pandora: 73
Zillow: 71
Ekki auglýsingaháð
Apple: 0%
Netflix: 0
Dropbox: 0
Amazon: 2,6
Microsoft : 7
Spotify: 10
Bookings: 6,6
En bitakeðjan (e. blockchain) er samt verst
Það sama er að gerast í gagnavera-bransa rafmynta. Ekki nóg með að virðisgeggjun rafmynta er orðin verri en túlípana-geggjunardellan var á 17. öld, þá hafa glöggir menn einnig komist að því að sú tækni sem kölluð er bitakeðja er í sjálfri sér enn verri en sjálf hugmyndin um rafmynt, og sem byggir á; jú geðbilun! Og allt bendir til að niðurstaða útreikninga á rafbílum verði sú sama. Þar er allt að verða kolsvart, en ekki grænt, undir húddinu
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 25. apríl 2018
Alvöru kona fer í framboð
Mynd: Repúblikaninn og Íhaldsmaðurinn Christina Hagan býður sig fram í 16. kjördæmi Ohio-fylkis. Hún vill setja fyrrverandi lögreglu- og hermenn við öryggisgæslu í skólum og hætta fjáraustri til útlanda
****
Það er sennilega erfitt fyrir marga Íslendinga -sem hvort eð er þurfa ekki byssur, eins og er, því þeir eru enn 330 þúsund kóngar sem lúta ekki neinni stjórn nema sinni eigin- að skilja hlutverk vopnsins í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þau eru þarna fyrst og fremst til að verjast ríkisstjórninni og yfirvöldum
Það versta er að kóngaveldi hvers Íslendings minnkar í takt við fjölgun þeirra sem búa í landinu. Þegar faðir minn fæddist 1921 vorum við Íslendingar ekki nema 94 þúsund kóngar í ríkinu. Og sá eini danski var að missa öll þau völd sem sum ESB-fífl landsins fengu svo í vöggugjöf, en vilja samt af með á ný í dag
Brautryðjendum Íhaldsstefnunnar tókst loks að koma einræði konungs fyrir kattarnef á Englandi með því að segja að jafnvel hann væri ekki hafinn yfir lögin, - sem nýtt stjórnarskrárbundið þingræði setti. Ljósgeisli Vesturlanda. Þetta var mikið afrek. Konungurinn gat ekki lengur sent heri sína um landið, heimtað ókeypis gistinu og frítt fæði fyrir þá hjá bændum og búaliði, og hann gat ekki aflað tekna með þvinguðum lántökum, ósanngjörnum sektum og sköttum og bara stungið mönnum sem honum líkaði ekki við í Turninn. Og borgararnir fengu því loksins komið inn í stjórnarskrá að þeir hefðu rétt til að bera vopn sér til varnar. Maður veit jú aldrei hvenær kóngar, ríkisstjórnir, sýslumenn og önnur veraldleg kaskett breyta sér í sértrúar-ófögnuð eins og næstum óendanlega mörg dæmin sýna: Keisaraveldi; Sovétríki; Þriðja ríkið; Einræðisríki; Kína; Norður-Kórea; Evrópusamband; Venesúela; Icesave esb-níðstjórn og stjórnarskrár-kollvarpara; og Kúbur. Allt saman sértrúarsöfnuðir af verstu sort
Sem sagt. Þessi réttindi Englendinga fóru svo beint inn í bandarísku stjórnarskránna, því þau voru góð. Ríkisvaldinu er sjaldan treystandi til fulls
Mynd: Skilaboð til kjósenda
Christina Hagan býður sig fram til þings í einu kjördæmi Ohio-fljótsdalsins, vestrið, þaðan sem U.S. Grant hershöfðingi Abrahams Lincoln kom einnig frá. Hann, Ulysses S. Grant, var síðan kjörinn forseti Bandaríkjanna stuttu eftir dauða Linconls (sjá þættina um Grant: hermaður (I) og forseti (II)). Ég mæli líka með að menn horfi á það sem sagnfræðingurinn Jean Edward Smith hefur að segja um stjórnartíð Grants og um fullveldið. Vinstrisinnaðir sagnfræðingar reyndu lengi vel að skrifa Grant út úr sögunni sem einn lélegasta forseta Bandaríkjanna, en tókst það ekki. Sjálfsævisaga Grants forseta fæst ókeypis í íslensku iTunes rafbókhlöðunni. Lincoln og Grant skildu hvorn annan mjög vel, því báðir voru vestrar eða vesturfarar (Westerners), sem í dag eru kallaðir mið-vestrar (Mid-Westerners). William McKinley sem varð forseti Bandaríkjanna 1897 kom einmitt úr kjördæmi Christinu Hagan. Hann hækkaði innflutningstolla til verndar bandarískum iðnaði og Theodore Roosevelt tók svo við af honum. Segja má að sex til sjö Repúblikanar, ef ég man rétt, hafi sem forsetar byggt Bandaríkin upp úr rústum borgarstyrjaldarinnar, sem lauk 1865, yfir í það að framleiða helming alls þess sem framleitt var í veröldinni þegar Fyrri heimstyrjöldin skall á, með sínum keisaradæmum á meginlandi taparanna 1914
Hér fyrir neðan er á ensku brot af bakgrunni málsins sem Christina Hagan er með á hjarta sínu í framboði. Þessi bakgrunnur hverfur aldrei. Hann er úr ritgerðinni: What Is Conservatism? Og hér heima á Íslandi ættu menn að muna betur tímana tvenna á 100 ára afmæli fullveldis okkar Íslendinga. Það er íslenska þjóðin sem er fullvalda, en ekki einhver abstrakt stofnun, blettur eða bygging
Mynd: Og hún er móðir og eiginkona
Þessir straumar sem Hagan er með á skilti sínu hverfa ekki í bráð. Og í fyrradag heyrði ég í fyrsta sinn ESB-hólista í ESB-ríki tala um að Evrópusambandið væri orðið allt of háð hnattrænum afhendingar-keðjum (e. EU excessive dependence on global supply chains). Þ.e. birgjar eru staðsettir út um allan heim og allt á síðustu mínútu í afhendingum (e. just-in-time), þ.e. fáir eða engir innlendir birgjar og enginn lager í landinu
****
Mynd: V8-hælar við Hvíta húsið. Stríðsyfirlýsing Melaniu Trump
Frönsku forsetahjónin voru í heimsókn hjá forseta Bandaríkjanna og frú. Að hætti ameríska draums millistéttar, þá bætti Melania Trump 400 hestöflum við hælana, fötin og eyðsluna, og settist bókstaflega ofan á frönsku forsetafrúnna, sem vegna fjarlægðar gat ekki haft Versalahallirnar með sér í ferðatöskunni, til að berja Melaníu niður með. Drifskaftið bara brotnaði hjá þeirri frönsku og hún komst ekki þar sem Melania hafði 400 hestafla V8-hælana. Hvað skyldi Merkel á Sonderweg 27 (sem er sögulegt plat) segja við þessu?
****
Bakgrunnurinn
(úr ritgerðinni: What Is Conservatism?)
[..] When this question finally came to a head, most of the members of the English Parliament and common lawyers proved willing to risk their careers, their freedom, and even their lives in the defense of Fortescues "political and royal rule." Among these were eminent names such as Sir John Eliot and the chief justice of the Kings Bench, Sir Edward Coke. But in the generation that bore the full brunt of the new absolutist ideas, it was John Selden who stood above all others. The most important common lawyer of his generation, he was also a formidable political philosopher and polymath who knew more than twenty languages. Selden became a prominent leader in Parliament, where he joined the older Coke in a series of clashes with the king. In this period, Parliament denied the kings right to imprison Englishmen without showing cause, to impose taxes and forced loans without the approval of Parliament, to quarter soldiers in private homes, and to wield martial law in order to circumvent the laws of the land.
[..]
Selden thus offers us a picture of a philosophical parliamentarian or jurist. He must constantly maintain the strength and stability of the inherited national edifice as a wholebut also recognize the need to make repairs and improvements where these are needed. In doing so, he seeks to gradually approach, by trial and error, the best that is possible for each nation.
Seldens view of the underlying principles of what was to become the Anglo-American traditional constitution is perhaps the most balanced and sophisticated ever written. But neither his intellectual powers nor his personal bravery, nor that of his colleagues in Parliament, were enough to save the day. Stuart absolutism eventually pressed England toward civil war and, finally, to a Puritan military dictatorship that not only executed the king but destroyed Parliament and the constitution as well. Selden did not live to see the constitution restored. The regicide regime subsequently offered England several brand-new constitutions, none of which proved workable, and within eleven years it had collapsed.
In 1660, two eminent disciples of Selden, Edward Hyde (afterward Earl of Clarendon) and Sir Matthew Hale, played a leading role in restoring the constitution and the line of Stuart kings. When the Catholic James II succeeded to the throne in 1685, fear of a relapse into papism and even of a renewed attempt to establish absolutism moved the rival political factions of the country to unite in inviting the next Protestants in line to the throne. The kings daughter Mary and her husband, Prince William of Orange, the Stadtholder of the Dutch Republic, crossed the channel to save Protestant England and its constitution. Parliament, having confirmed the willingness of the new joint monarchs to protect the English from "all other attempts upon their religion, rights and liberties," in 1689 established the new king and queen on the throne and ratified Englands famous Bill of Rights. This new document reasserted the ancient rights invoked in the earlier Petition of Right, among other things affirming the right of Protestant subjects to "have arms for their defense" and the right of "freedom of speech and debates" in Parliament, and that "excessive bail ought not to be required, nor excessive fines imposed, nor cruel and unusual punishments inflicted"the basis for the First, Second, and Eighth Amendments of the American Bill of Rights. Freedom of speech was quickly extended to the wider public, with the termination of English press licensing laws a few years later.
The restoration of a Protestant monarch and the adoption of the Bill of Rights were undertaken by a Parliament united around Seldenian principles. What came to be called the "Glorious Revolution" was glorious precisely because it reaffirmed the traditional English constitution and protected the English nation from renewed attacks on "their religion, rights and liberties." Such attacks came from absolutists like Sir Robert Filmer on the one hand, whose Patriarcha (published posthumously, 1680) advocated authoritarian government as the only legitimate one, and by radicals like John Locke on the other. Lockes Two Treatises of Government (1689) responded to the crisis by arguing for the right of the people to dissolve the traditional constitution and reestablish it according to universal reason. (útópía Locke)
Fyrri færsla
Spurt er: Hvers vega var sameining Þýskalands bölvun fyrir Evrópu?
Evrópumál | Breytt 26.4.2018 kl. 06:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 18. apríl 2018
Alþjóðavæðingin að detta í sundur næstu 40 árin
Lýðræðisþjóðir þoldu ekki alþjóðavæðinguna vegna þess að hún tætti þær í sundur með ójöfnuði í tækifærum og þar með einnig í tekjum
Alþjóðleg viðskipti munu dragast saman næstu marga áratugina og engu máli skiptir hvert nafn neins forseta eða ráðherra er, því það er eina leiðin til að hækka laun og láta neyslu heimilanna en ekki utanríkisviðskipti knýja hagvöxt. Skuldasöfnun ríkja í fjárfestingaskyni og þar með í hagvaxtaskyni í þannig umhverfi, er útilokuð. Þvert á móti þá þurfa ríki að minnka ríkisskuldir sínar. Og útilokað er að reiða sig á viðskiptahagnað við útlönd, það gefur auga leið á meðan alþjóðavæðingin er dregin í land á næstu 40 árum. Hún fór of geyst og gekk allt of langt
Stuttbuxnatímabil veraldar, frá 1991 til 2008, er liðið og kemur aldrei aftur. Það var útópía. Við tekur viðskiptastríð, áratugum saman
Nú er annar skórinn dottinn af Kína og hinn er við það að fara sömu leið. Á meðan báðir voru á landinu þá notaði það 63 prósent af allri stálframleiðslu í heiminum. Aðeins kommúnistar geta framleitt þannig efnahagslega geðbilun. En það gerir Kína ekki lengur, heldur hendir það framleiðslunni í hausinn á heiminum, svo ekki þurfi að reka neinn í Kína, því þá er spilastokkur flokksins búinn og breytist í gapastokk
Já. Kommúnistaflokkurinn heldur framleiðslunni gangandi. Flokkurinn ákveður fyrirfram hver ársfjórðungslegur haghagvöxtur í landinu skuli vera. Honum er náð með því að pumpa upp skuldir og framleiða með þeim flugvelli sem enginn nokkru sinni mun nota. Skuldunum er hellt á könnuna sem kokkar hagvöxtinn, þannig að vöxturinn er afleiða, en ekki orsök. Og ekkert af glötuðu fjárfestingunum er afskrifað út úr landsframleiðslunni aftur, eins og gert er á Vesturlöndum. Skuldir eru inntakið (input). Þær nálgast nú 350 til 400 prósent af landsframleiðslu, hröðum skerfum. Og þegar veggurinn stöðvar skuldasöfnunina, þá fer loftið úr landinu og það mun aldrei á ný vaxa meira en 1-3 prósent á ári. Kína verður hálfköruð bygging um aldur og ævi. Þeir sem hugsa, munu líklega sjá hvert hráefnaverðið fer þegar þetta gerist. Og hvað gerist með útflutningsháðustu ríki veraldar. Þau fara á salernið og sturtast niður
Þýskaland er til dæmis útflutningsháðasta ríki veraldar, þegar horft er til stærri hagkerfa heims. Tilfelli þess er algerlega einstakt og hrikalega svæsið. Þar munu hlutirnir varla fara vel og Evrópa er tjóðruð við þann staur, eins og Frakkar eru farnir að lýsa leiðtoga Evrópu. Hún er staur, segja þeir. Við erum bundnir við staur
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. apríl 2018
Límdu sig við Rússana
Fum og fát einkenndi atganginn á jörðu niðri í Sýrlandi um leið og Donald J. Trump tísti að tauga- og efnavopnahernaði á saklaust fólk yrði svarað með enn öflugri aðvörunarárás en í fyrra. Tóku þá strax hernaðarlegar eigur Assads-liðsins að líma sig fastar við samskonar eigur Rússlands í Sýrlandi. Þannig átti að redda sér
En hversu lengi mun þannig sjónhvarf út af af síbreytilega sviðinu duga. Það er ekki gott að segja, því bandaríski forsetinn vildi að slegið yrði til gegn rússneskum og írönskum stríðstólum líka. Pentagon og James Mattis varnarmálaráðherra réðu forsetanum frá því, sökum mögulegrar "stigmögnunar"
Hinum nýja þjóðaröryggisráðgjafa Hvíta hússins, John Bolton, sem líklegt er að vildi sjá meira, tókst að sögn Wall Street Journal að hamra saman áætlun sem miðlaði málum á þann hátt að það skotmark sem ráðist yrði á, yrði rústað svo tryggilega að ekkert stæði eftir. Að það sem eyðilagt væri yrði þar eftir algerlega handónýtt. Og það var eins við manninn mælt: skotmörkin litu út eins og bílastæði fyrir utan súpermarkað að árás lokinni, tilbúin til malbikunar, þannig að bréfin í Caterpillar lækkuðu strax á mánudag
Þar sem Þýskaland á ekkert fljúgandi farartæki sem flogið getur í myrkri, og heldir ekkert slíkt sem uppfyllir til dæmis kröfur fyrir NATO-leiðangra, þá sat það að venju heima, enda ná nýjustu eldflaugar Írans nú til Saxlands í Þýskalandi
Og með dyggari aðstoð Norður-Kóreu ná þær brátt til Íslands og lengra. Það styttist í það og næstu tilrauna-sprengingar Norðursins, að loknum komandi platfundi, nema að eitthvað sem máli skiptir verði að gert
Eldflaugasýnigin á laugardag:
Bandaríkin: 88
******************************************** ********************************************
Frakkland: 9
*********
Bretland: 8
********
Þýskaland:
einn kínverji (rautt ekkert)
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 14. apríl 2018
Bandaríkin, Frakkland og Bretland tíndu upp rusl í nótt
Merkel svaf í bankanum í nótt og Katrín í Útópíu
Sagt er að Angela Merkel hafi sofið með rúblusæng yfir sér inni í hvelfingu þýska seðlabankans í nótt, sem kyntur er upp með rússnesku gasi. Í dagbók sína skrifaði hún að þýski gullforðinn væri líklega of þungur til að hægt sé að varpa honum á efnavopnaframleiðslu Sýrlands. Og að slík aðgerð myndi bara fjölga "flóttamönnum" inn í Þýskaland og þar með þrýsta kjósendum samstundis út úr CDU-flokki hennar líka. Inn og út jafnan, debet og kredit. En CDU-flokkurinn hennar er nú aðframkominn af (ó)gleði yfir gangverandi Tyrkjaráni Merkels í Þýskalandi
Það voru sem sagt burtflogið Bretland úr ESB, Frakkland og Bandaríkin sem tóku til í heiminum í nótt, en ekki Angela Merkel. Fyrir Frakkland er Bretland nú að verða betri strategískur samstarfsaðili en Þýskaland
Háð sumra þýskra manna er svo mikið og sárt að sumir þeirra hafa sagt, að Þýskaland sé ekki með í neinu, en ef hins vegar nógu hart sé þrýst, þá væri jafnvel mögulegt að kreista þá játningu fram í Berlín, að Þýskaland haldi jafnvel enn að það sé bandalagsþjóð með þeim þjóðum sem það ætlist til að verji sig
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands er hins vegar of hrædd við lífið til að geta tekið þátt í því. Hún hefur því valið sér og flokki sínum fasta búsetu í Útópíu, þar sem lífið er gamli góði marxisminn og fólkið andar sjálfviljugt að sér grænu eiturgasi nýmarxismans, því það rauða varð skyndilega uppselt
Seinkuð árásin hefur afhjúpað að Rússland er nakið á hundasundi sínu um heimshlutann. Eina sundfæra leiðin fyrir það núna er heim, þ.e. ef Trykir hleypa þeim heim á Bosporussundinu. Rússneski rað-kúnninn Assad-Sýrland kemst ekkert og Íran mun ekki gefa nýfengið klerkavald sitt eftir á landbrú þess yfir til fastrar sjía-íslam návígis-skotstöðu á Ísrael, sem yrði þá nýtt Gaza-svæði á útidyratröppum Ísraels í Suður-Sýrlandi. Rússlandi er hér með komið fyrir í föstu sæti á kamri, sem ekki verður tæmdur á næstunni. Norður-Kórea svitnar og líst ekki vel á að rauðlínuvarsla Trumps komi bara sí svona til framkvæmda eins og lofað var. Fyrirrennarar hans voru ekki svona. Og heldur ekki fyrirrennarar Macrons
Hér gerir bandaríska varnarmálaráðuneytið grein fyrir atburðum næturinnar, með frönskum og breskum bandamönnum sínum
Fyrri færsla
Svefngenglar koma ekki af stað styrjöld
![]() |
Eins og best verður á kosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. apríl 2018
Uppruni rússneska eitursins að koma í ljós
Mynd; Auðlegð þjóðanna kom til Víetnam um daginn
****
Þær fregnir berast nú frá Bretlandi, að rannsóknir MI6 á því rússneskt uppfundna eiturefni sem notað var í eiturvopnaárás á Salisbury -sem tilheyrir Wiltskíri í Englandi- sé að skila niðurstöðum um framleiðslustað efnisins
Rannsóknarstofur hafa nú með miklu -en þó ekki fullkomnu- öryggi staðsett hvar og í hvaða eiturefnastofum efnið er framleitt. Enn vantar þó búta í niðurstöðurnar. Rannsóknin er flókin því greina þarf uppruna allra efnanna, einnig mengunar- og aðskotaefna, og svo einnig þess burðarefnis sem ber eitrið í gegnum húðina og inn í líkama fórnarlambanna. Ljóst er, segja sömu fréttir, að rússnesk yfirvöld létu rannsaka hvort að Novichok-efnið væri nothæft sem efni til banatilræða. Bæði rannsóknarstofur á staðnum og leyniþjónustur Bretlands úti í mörkinni vinna saman að því að þrengja hringinn sem nálin með ör á endanum mun falla, og þar með benda á
Athygli vekur að Kína og Íran styðja Rússland í þessu máli. Kínverski varnarmálaráðherrann, Wei Fenghe, fundaði með rússneska kollega sínum Sergei Shoigu í Moskvu í fyrradag. Þar lagði Fenghe mikla áherslu á að Bandaríki Norður-Ameríku ættu að taka sérstaklega eftir aukinni strategískri samvinnu Kína og Rússlands í hermálum
Margir fjölmiðlar heimsins hafa í kjölfar Salisbury-árásarinnar lagt mikið upp úr því að túlka það sem er að gerast í heimunum núna, sem upptakt til einhverskonar endurtekins kalds-stríðs. Það álit er þó firra. Kalda-stríðið snérist um hugsjónir. Þar stóð þungvopnað alræði kommúnista og ógnaði veröldinni með heimsbyltingu. Andspænis honum stóðu frjálsir menn Vesturlanda með Biblíuna í höndum og boðuðu allt annað líf en helvíti kommúnismans gerði. Hugsjón var á móti hugsjón. Bilbíla Vesturlanda sigaði, auðvitað
Í dag hefur hins vegar enginn hugsjónir, þó svo að menn leiti eftir þeim á til dæmis samfélagsmiðlum og í alþjóðlegum fjóshaugum multilateral guðleysis. Meira að segja Páfinn virðist ekki vera með Helvíti á hreinu lengur. Velskilgreint helvíti vantar í jöfnuna, þó svo að í þykkum þokubökkunum sjáist annað veifið glitta í útlínur hins næsta helvítis á jörð manna
Lykilorðið hér er ekki nýtt-kalt-stríð, heldur Fyrri heimsstyrjöldin, sem skall svo gott sem fyrirvaralaust á. Hún snérist um 1. hagsmuni, 2. bandalög, 3. sökkvandi og hins vegar rísandi veldi. Sem sagt; hvaða ríki eru sökkvandi og rísandi í dag. Hvern vilja menn helst senda til helvítis, vegna öfundar og eigin veiklunar, innvortis sem útvortis. Það er spurningin. Og hún er stór, en þó ekki svo stór að svar við henni sé of erfitt að finna
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. apríl 2018
Með kveðju frá Rússlandi
Mynd: tímaritið Economist. "Olíuverð og sovésk/rússnesk stjórnmál". Nánar hér
****
Það er greinilegt að fyrir dyrum í Rússlandi standa stórir og alvarlegir hlutir. Rússland skildi nafnspjald sitt eftir í Salisbury í Bretlandi um daginn, til að tryggja hamrandi fréttaflutning og aðgerðir sér í útvortis óhag, en innvortis í hag. Á rússneska nafnspjaldinu stóð: svona fer fyrir þeim Rússum og fjölskyldum þeirra sem svíkjast undan merkjum á næstu mikilvægu árum. Við erum að skrifa reglubókina upp á nýtt, þar sem gömlum óskrifuðum reglum er hent út. Það er að okkar mati nauðsynlegt því svo mikið og stórt stendur fyrir dyrum á næstu árum. Á komandi árum berst Rússland fyrir tilvist sinni í núverandi mynd. Við stöndum afar illa. Okkur hefur mistekist að umbylta hagkerfinu, við erum enn að mestu í vösum afla sem við sjálfir ráðum engu um; þ.e. heimsmarkaðsverði á olíu, sem Bandaríkjamenn hafa rústað með enn einni af sinni nýju fjandans tækni. Almenningur er í sívaxandi mæli að missa þolinmæðina og trú hans á framtíð landsins er orðin mjög slöpp, miðað við bóluárin þegar olíuverð fór hækkandi í samfellt 15 ár. Undanfarið höfum við einungis haft efni á lyklaborðsaðgerðum í utanríkismálum og einni lágvöru-hersýningu í Sýrlandi. Ef olíuverð hefði ekki tekið upp á því að byrja að hrynja í september 2013 og fara fram af brúninni sumarið 2014, þá hefðum við haft efni á meiru. Við hefðum þá haft meiri peninga á milli handanna til að senda út í jaðra sambandsríkisins (stuðpúðana) og við hefðum þá sennilega nú þegar haft efni á Úkraínu, undir okkar formerkjum. Tveir þriðju hlutar ríkisfjárlaga okkar komu frá orkugeiranum
Mynd: Olíuútflutningur Bandaríkjanna, þúsundir tunna á dag: Banabiti OPEC og félaga. Um leið og olíuverð hækkar koma bandarískir olíubrunnar on-line og þrýsta því niður á ný. Og break-even kostnaðarmark þeirra fer sífellt lækkandi
****
Allir menn vita að um leið og Vladímír Pútín komst til valda árið 2000, þá breyttist Rússland og varð nokkuð samt við sitt gamla á ný. Það varð á ný hart og stjórnmálin urðu harðneskjuleg. Á komandi árum verða tónarnir sem frá Rússlandi koma, mjög svo harðir. Mikið liggur við og þeir sem svíkja það stóra prógramm sem við erum við það að gangsetja, já, svona fer fyrir þeim. Þetta tilkynnist hér með öllum. Rússland er og verður alltaf harðbýlt land og ríki, haldið saman af KGB-stofnunum
Og nú er loftið líka að fara úr Kína. Það mun hjaðna eins og Japan hjaðnaði frá því að vera 17 prósent af heimshagkerfinu 1989 og niður í sex prósentin sem það er í dag. En Japan stendur þó betur að vígi en Kína, því það hefur ekki þúsund milljón fátæklinga hagandi um háls stjórnvalda, sem ofaní kaupið byggja allt sitt á einræðisvaldi
Rússland et. al. eru þrjú misheppnuð ríki sem komin eru með eilífan forseta sem er sonur sólarinnar: Rússland, Kína og Norður-Kórea. Þvílík þrenna maður
Fyrri færsla
Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 0
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 63
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008