Fimmtudagur, 20. september 2018
Andaglasvirkjun I og II
Már Wolfgang Mixa skrifaði skemmtilega grein um verðmætustu fyrirtæki heims. Vinkill Más á flest er mun skemmtilegri en fjárfestingabragur Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins er í Andaglasvirkjun I og II vinstrimanna á þingi, þar sem slegist er um hlutabréfaeign kjósenda með því að bjóða þeim fleiri og fleiri sopa út andaglösum stjórnmálamanna, sem rúlla augum eins og geðsjúklingar í subbufötum í pontu og gera sig að fíflum í apabúri á kostnað annarra þegar minnst er á varnir landsins. Heimur þessa fólks er að deyja í dag, þess vegna lætur það svona, eins og til dæmis Benedikt evru-bimbó Viðreisnar gerði líka í gær. Útfararstjóri hins útópíska heims frá 1945-2008, er Donald J. Trump. Hann drap þennan heim ekki, því hann var þegar dauður, heldur stjórnar hann bara útförinni, eins og bóndinn Victor Davis Hanson segir þar
Umræða okkar Más snérist að hluta til um fjarverslunarmarkaðinn (e. remote sales). Vefverslun tilheyrir þeim hluta smásöluverslunar. Þegar fjarverslun var upp á sitt besta á Íslandi frá 1980-1995, voru vöruhús þess hluta smásöluviðskipta landsmanna staðsett í Bretlandi og Þýskalandi. Verslunar-frontarnir voru katalógar úr pappír þar sem það tók fjölskylduna bara brot af þeim tíma sem það tekur að fletta í gegnum vöruúrvalið á tölvuskjá í dag, og það þurfti ekki annað en rómó kertaljós, en ekki rafmagn, til að komast í gegnum allan katalóginn uppi í rúmi, sem venjulega lifði hálft ár í senn, sem er mun styttri líftími en hjá flestum hálffrosnum vefverslunum í dag. Stærstu fjarversalnir þessa tíma þurftu 45 þúsund blaðsíður til að kynna allt vöruframboð sitt, þar sem vörunúmer skiptu milljónum að tölu (dæmi: þýska Otto). Þarna var íslenska þjóðin um það bil 250 þúsund manns og vörupantanir hennar voru í kringum 80 til 100 þúsund pantanir á ári þegar best lét. Hver pöntun innihélt um það bil þrjár til fjórar vörur og líklegt er því að samanlagt hafi Íslendingar pantað um hálfa milljón vara á ári frá útlöndum á þessum tíma. Ekkert slíkt magn í þeim hluta fjarsölumarkaðarins (tískuföt) er í gangi í dag. Þeir sem versluðu mest bjuggu ávallt í þéttasta þéttbýlinu, þeir voru mest tískumeðvitaðir, því það voru mest tískuföt og skór sem fólk pantaði. Hefðbundin smásöluverslun á Íslandi kvartaði mikið yfir þessari samkeppni á þessum tíma, en hún tók sig á og bætti sig og tókst að halda sínu. Svo kom Kringlan og það fór að harðna á dalnum í fjarverslunargeiranum á Íslandi. Og svo kom dot.com bólan og þá riðlaðist uppsetning fjarsölumarkaðarins til frambúðar
Fjarverslun í Bandaríkjunum verður sennilega aldrei meiri en ca 5-8 prósent af allri smásöluverslun. Hún er um 3 prósent núna (vefverslun meðtalin) af öllum neysluvarningi. Einhverra hluta vegna vill fólk frekar múrsteinabúðir en póskassaverslanir. Þetta er svipað hlutfall og þegar JC Penny og aðrar katalóga-fjarverslanir Bandaríkjanna gengu hve best. Bretland er með tæplega 7 prósent núna og er það sama hlutfall og þegar bresku katalóg-fyrirtækin gengu hve best í kringum 1980-1990, en sem eru að mestu dauð í dag vegna þess að þau höfðu ekki efni á að endurnýja sig á sama tíma og þau voru með búðarfrontinn á pappírsformi, og fjárfestingarfé til þeirra þornaði upp þegar vef-fyrirtækin komu og bjuggu til dot.com bóluna. Boo.com fékk t.d. 130 milljón USD fjárfestingafé til að þróa vefverslun þar sem spritt-nýtt miðlægt IBM-rauntímakerfi þeirra átti að geta annað 300 kúnnum á sekúndu. Aldrei varð þörf á meiru en einni PC-tölvu til að anna pöntunum. En Boo var svo selt gjaldþrota í brotajárn fyrir minna en 2 milljónir USD. Öllu fé fjárfesta var brennt til ösku á minna en tveimur árum
Fjarverslun er með stærstu markaðshlutdeild sína í skrifstofuvörum (50%) í Bandaríkjunum, svo koma bílavarahlutir (30%) og síðan stórmagasín (department stores) (20%). Fjarverslun er með sína lægstu hlutdeild í súpermörkuðum (1%). Yfir alla línuna er þetta um tæplega 3 prósent. Já Amazon er með rúmlega 50 prósent af þessum tæplega þremur prósentum og til að ná þeim þurfa þeir kannski margar milljónir vörunúmera. Apple er með 4 prósent af þessum markaði og nær honum með sennilega ekki fleirum en 50 vörunúmerum. Amazon verður brátt eins konar Samsung á sterum, með síma, uppþvottavélar, bækur, brækur og jarðýtur í sömu samsteypu. Mjög spennandi fyrir þá fjárfesta sem hafa áhuga á til dæmis hverju sem er
Ég sé engan mun á pappír og pixel, starfrænt séð (e. operational), nema það að búðarfrontur pixel-verslana kostar mörgum sinnum meira en það kostaði að reka DTP-hönnunardeildir og djúpprentun katalóga. Og svo er markaðsfærslan hjá stafrænum pixel-fyrirtækjum enn meira rautt-haf í dag en hún var þá. Margin fjarverslana með allskonar af öllu, er alltaf lægra en hjá hefðbundnum smásölum. Gott dæmi til að útskýra það mál er að Apple er bara með brot af allri snjallsímaverslun í heiminum (lófatölvur) en þeir eru hins vegar með meira en 90 prósent af öllum hagnaðinum, og þar með nóg markaðspláss til að vaxa í. Hér er hollt að minnast orða Warren Buffets um að það er mind-share (hugarhlutdeild) sem skiptir meira máli en market-share (markaðshlutdeild). Veltuhraðinn í birgðastöðu hjá Apple er nú meiri en hjá McDonalds, þar sem hamborgarinn liggur lengur á lager en iPhone gerir hjá Apple
Amazon er með alla þá þungu innviði sem gömlu póstverslanirnar urðu að hafa og gott betur en það. Og 21,7 milljarða dala sendingarkostnaður Amazon á síðasta ári er... já hve margar meiriháttar múrsteinsverslanir á ári gerir það? Enda er það þangað sem fyrirtækið stefnir og verður að stefna til að lifa af
Ég er svo nýgamaldags að segja að hér er engin bylting í gangi önnur en sú sem við ávallt höfum fyrir augum okkar, þ.e. hin svo kallaða "skapandi eyðilegging" þar sem forminu á fjarverslunarbransanum er umbylt og nýir aðilar koma í stað þeirra gömlu til að bítast um sömu markaðahlutdeildina. Það er ekkert konceptuelt breytt í þessum hluta smásölubransans: þ.e. í fjarverslun. Það eina sem er nýtt og gengur virkilega vel í fjarsölu, er sala á stafrænum tækjum og bílavarahlutum. Restin er gos í andaglösum
Komandi bók Más Wolfgang Mixa verður spennandi lesning. Við þurfum fleiri svona ekta kapítalista eins og Má í dag, því þeir geta kennt ungdómnum góðar umgengisvenjur við peninga. Galdurinn við peninga er að hafa þá. Ekki tapa þeim
Fyrri færsla
ESB: Peningaþvottastöðin Danske Bank [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 19. september 2018
ESB: Peningaþvottastöðin Danske Bank [u]
Þá hefur rannsókn Danske Bank á sjálfum sér í Evrópusambandinu fætt af sér skýrslu. Bankinn lét lögfræðifyrirtækið Bruun og Hjejle rannsaka sig í ESB. Aðeins er um eins árs rannsóknarvinnu að ræða og birti fyrirtækið skýrslu yfir hana í morgun. Þar kemur fram að Danske Bank í ESB hefur í bankastarfsemi sinni í Danmörku og Eistlandi möndlað með 200 milljarða dala færslur sem flestar liggja undir grun um að vera tengdar peningaþvætti. Af þessum 200 milljörðum dala eru 100 milljarðar dala með mikilli vissu peningaþvottur í Evrópusambandinu. Já en sérfræðingar sögðu..
Uppfært: Skýrslan bendir til dæmis á að árið 2007 þegar Danske Bank útrásar-keypti Sampo Bank í Finnlandi ásamt útibúi hans í Eistlandi, að þá hafði bankinn alla möguleika á að afla sér þekkingar á því sem bankinn í Eistlandi hafði innanborðs. En þá var Björn Wahlroos núverandi stjórnarformaður Nordea Bank stjórnarformaður Sampo og toppmaðurinn í Sampo-stamsteypunni um svipað leyti. Danske Bank gerði ekkert í málinu þrátt fyrir rauð ljós og aðvaranir og lét rannsóknar-tækifærið renna sér úr greipum, skrifar Berlingske
Forstjóri Danske Bank hefur nú sagt af sér og stórhluthafinn Mærsk froðufellir af bræði. Þetta er sennilega stærsta peningaþvættismál mannkynssögunnar, enda staglast ESB stanslaust á því að vera mjög stórt. Og þetta þvættismál á líklega eftir að vinda hressilega upp á sig. Holan ofan í jörðina þar sem danska fjármálaeftirlitið stóð, sést alla leið frá Helgenæs. Hlutabréfin í Danske Bank í Evrópusambandinu falla og falla. Bréf sem ég aldrei nokkru sinni myndi snerta, ekki frekar en hlutabréfin í Deutsche Bank í Evrópusambandinu. Hvernig skyldi annars ganga með hið nýja greiðslukerfi ESB í smíðum, sem koma á í stað Bandaríkjanna. Það væri fróðlegt að vita. Er þetta kannski það?
Uppfært: Hollt er að muna að Perestroika-armur sovéska kommúnistaflokksins keypti olíu af ríkinu á 1 prósent af heimsmarkaðsverði, og seldi hana úr landi á heimsmarkaðsverði, og flutti hagnaðinn til baka inn í Rússland með aðstoð 100 nýrra banka sem Perestroika-armur kommúnistaflokksins hafði stofnað innanlands og svo 600 banka sem hann hafði stofnað erlendis til að þvo svona peninga sem "vestræna fjárfestingu" inn í Rússland. Bara þetta eina atriði þýddi 30 prósent tap í landsframleiðslu Rússlands. Perestroika-armur sovéska kommúnistaflokksins og Glasnost gluggarnir sem opnaðir voru vestur til að hrinda henni í framkvæmd, var að miklu leyti í KGB-umsjá núverandi forseta Rússlands. Engar umbætur fóru fram á KGB þegar það var umskírt FSB. Perestroika gekk út á að framlengja lífi Sovétríkjanna. Það tókst og heita þau Rússland í dag. Þökk sé að mestu Perestroika-hagkerfinu, sem Danske Bank sést hér glíma við í dag
Forseti Póllands var í heimsókn í Hvíta húsinu í gær. Þar var meðal annars rædd varanleg bandarísk herstöð í Póllandi sem pólska ríkisstjórnin hefur boðist til að borga tvo milljarða dala fyrir að fá. Donald J. Trump bandaríkjaforseti sagðist vera að íhuga málið. Sé Varsjáryfirlýsing Trumps skoðuð, sérstaklega með tilliti til þróun mála í Rússlandi og Þýskalandi, þá er slíkt ekki ólíklegt
Angela Merkel lét verða af því að reka njósnameistara Maassen eftir hádegi í gær. Hér er fyrir hádegi. Hvað gerist hins vegar í þýsku ríkisstjórninni eftir hádegi í dag, er enn ekki vitað. Þetta er jú Evrópusambandið
Fyrri færsla
Þýska ríkisstjórnin enn við það að springa í tætlur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 18. september 2018
Þýska ríkisstjórnin enn við það að springa í tætlur
Angela Mekel hefur samkvæmt þýskum fréttum ákveðið að reka Hans-Georg Maassen forseta BfV-innanríkis-leyniþjónustu Þýskalands, sem meðal annars á að vernda stjórnarskrá landsins
Þetta má Merkel samkvæmt stjórnarskránni ekki gera. Aðeins innarnaríkisráðherrann má reka njósnameistara Maassen. Og sá maður heitir Horst Seehofer. Eftir að þetta komst upp, hafa aðstoðarmenn þýsku kanslaraínunnar ekki átt sjö dagana sæla. Merkel spyr þá pólitískra frétta á tveggja mínútna fresti, niðri í bunker hennar gegn þjóðinni
Maassen er eini maðurinn sem gengið hefur í það verk að reyna að upplýsa um glæpagengi þeirra milljóna manna sem Merkel vinkaði inn í landið og allt esb. Honum tókst meira að segja að kría út peninga til þess og að koma á fót samvinnu við bandaríska kollega sína í vestri í þeim efnum, Merkel til mikillar gremju
Og svo framdi njósnameistari Maassen þann ofurglæp að segja að upptökur sem sýna áttu "hægri öfgamenn" í Karl-Marx-Stadt Chemnitz ráðast á innflytjendur, vera falskar fréttir. Slíkt er náttúrlega jafn ófyrirgefanlegt og að spyrja af hverju "fjölbreytni" ætti að vera af hinu góða, nú þegar hið upprunalega latneska heiti þess orðs segir að hún sé af því slæma. Kúrdar styrkja ekki Tyrkland, þvert á móti, og Sýrland á í borgarastyrjöld við sig, vegna einmitt fjölbreytni
AfD andar hér í hnakka ríkisstjórnarinnar og eru jafnframt að éta fylgið í Bæjaralandi frá CSU-flokki Horst Seehofers, en þar fara fram fylkiskosningar í næsta mánuði
Kannski springur þýska ríkisstjórnin núna, eða ekki. Það veit enginn. En Merkel leitar nú stuðnings hjá þýskum sósíaldemókrötum sem sitja með henni í ríkisstjórn og eru of veikir til að hafa neina skoðun sem stangast á við þá stóla (svipuð staða og Bjarni hefur komið Sjálfstæðisflokknum í hér heima). Kannski labbar CSU út núna eða ekki. Hver veit. Þetta er jú Evrópusambandið mikla: stöðugtlekinn sjálfur
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. september 2018
Vesturlönd voru auðtrúa
Þegar hið svo kallaða hrun Sovétríkjanna varð, létu Vesturlönd blekkjast. Sovétríkin dóu ekki, heldur lifðu þau áfram sem Rússland. Sovéska lagakerfið lifði áfram. Skrifstofubáknið lifði áfram. Leyniþjónustan lifði áfram. Herinn lifði áfram. Miðstýringin lifði áfram. Rússland hélt einfaldlega áfram að vera landið sem aldrei fékk iðnbyltingu og hefur ekki fengið hana enn. Rússland hafði heldur aldrei haft frjálsa markaði og hefur það ekki enn. Rússland hafði aldrei verið lýðræði og er það ekki enn. Og Rússland hafði aldrei verið réttarríki - og er það ekki enn
Við hverju búast menn af svona ríki? Jú, ef maður er raunsær þá býst maður við Sovétríki. Miðstýrðu sovétríki, sem heitir Rússland í dag. Lítið gott er í vændum þaðan. Enda keyrir það á kínverska kommúnistamódelinu núna og laðar til sín fjárfestingar nytsamra kjána. Nóg er til af þannig rómantískum kjánum í dag. Sérstaklega í Þýskalandi. Það var reyndar einmitt þetta sem Perestroika gekk út á; að framlengja lífi Sovétríkjanna
Fyrri færsla
ESB reynir að hanga á nöglunum í klerkaveldinu Íran
![]() |
Skripal smáseiði með valdamikinn óvin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 14. september 2018
ESB reynir að hanga á nöglunum í klerkaveldinu Íran
Mynd: Uppleyst mynt Austurrísk-ungverska keisaradæmisins, með stimplun. Sömu aðferð var beitt til að leysa upp myntbandalagsmynt Tékklands og Slóvakíu eftir að Tékkóslóvakía hætti að vera til (PDF)
****
Diktat í smíðum
Evrópusambandið reynir í örvæntingu að klóra með nöglunum í bakkann í Íran, svo að evrópsk fyrirtæki geti haldið áfram að eiga viðskipti við íslamíska klerkaveldið. Þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran taka gildi eftir tvo mánuði. Eftir þann frest geta þau evrópsku fyrirtæki sem eru í viðskiptum við klerkaveldið ekki verið í viðskiptum við Bandaríkin á sama tíma. Markmiðið er að reyna að hefta og koma í veg fyrir kjarnorkuvopnaþróun íslamíska klerkaveldisins
Hugmynd Frakklands er sú, að það, Þýskaland og Bretland, og jafnvel Ítalía, noti Evrópusambandið til að koma á fót greiðslukerfi sem hvergi snertir Bandaríkin né bandarísku myntina dal og sem þannig myndi gera evrópskum fyrirtækjum mögulegt að sneiða hjá öllum bandarískum kerfum sem sjá um (i) greiðslumiðlun, (ii) uppgjörslok færslna og (iii) peningajafnvægi á alþjóðlegum mörkuðum. Telja ESB-menn sig geta gert þetta með einföldu diktati eins og Mússolini notaði til að stýra framkvæmd fasisma á Ítalíu, eða með tilskipunum
Sést á þessu hversu mikil örvænting Evrópusambandsins er orðin vegna evrunnar. Lítið gengur með að gera hana að alþjóðlegum gjaldmiðli vegna vantrausts heimsins á evrópskum stofunum eins og til dæmis stjórnarskrárbundnu þingræði hvílandi á þjóríkislegum stofnunum sem frumforsendum fyrir framkvæmd lýðræðis í lýðveldi. Og þess utan er stutt síðan að seðlabanki Bandaríkjanna bjargaði mynt Evrópusambandsins í tvígang með gjaldmiðlaskiptasamningum í fjármálakreppunni. Heimurinn veit að Bandaríkjadalur er ekki vafningur. Þeirri staðreynd var slegið fastri með þeirri niðurstöðu sem fékkst úr bandarísku borgarastyrjöldinni, sem lauk 1865 og kostaði Bandaríkin hálfa milljón mannslífa. Þar var því slegið föstu að bandaríska þjóðin er ein órjúfanleg heild og það er sú heild ein, sem er fullvalda, en ekki einstakir hlutar hennar. Ekkert fylki getur því yfirgefið Bandaríkin. Þau geta ekki leysts upp. Þau eru ekki vafningur og mynt þeirra er því ekki vafningur, eins og mynt Austurrísk-ungverska keisaradæmisins var, og sem leystist upp í margar myntir
Frekar furðulegt er að sjá Bretland í þessum hópi. Annaðhvort er um einhverskonar fjárkúgun að ræða vegna Brexit, eða þá að örvænting Bretlands vegna 200 alþjóðlegra banka í því landi er orðin meiri en hún ætti að vera. Heimurinn vill einfaldlega ekki hafa peningalega mikilvægar stofnanir sínar í Evrópusambandinu
En hér sést greinilega hluti hins undirliggjandi geopólitíska þema sem er í gangi á Vesturlöndum. Bandaríkin eru ábyrgðarmaður Vesturlanda og það þola gömlu stórveldin á meginlandi Evrópu ekki. En þau eru samt getulaus og geta hvorki varist né unnið saman. Meginlandið er að klofna því sameiginlegir hagsmunir eru of litlir til að geta borið tilvistarlega samvinnu uppi. Lönd Austur-Evrópu eru að skilja sig frá löndum Vestur-Evrópu. Austur-Evrópa óttast Rússland og hugsanlegt hjónaband sérstaklega Þýskaland og Rússlands, því lýðræðisstofnanir Þýskalands hafa aldrei haldið um stjórnvölinn í því landi, heldur eru það fyrst og fremst banka- og viðskiptahagsmunaöfl sem halda um stjórnvölinn í Þýskalandi, því Þýskaland verður að hafa jaðarsvæð þess undir sínu áhrifavaldi, og í dag er það hinn innri-markaður-ESB sem er stuðpúða- og jaðarsvæði Þýskalands, en sá markaður er hins vegar kominn í upplausnarhættu og er reyndar kominn í upplausnarferli líka, sbr. Brexit. Stjórnmál í Þýskalandi mótast að miklum hluta til af landfræðilegu varnarleysi Þýskalands í austri, norðri og vestri. Suðurtappinn einn er landfræðilega öruggur. Þau öfl horfa til Rússlands og það veit Austur-Evrópa vel og Bandaríkin líka. Þess vegna fara hagsmunir Austur-Evrópu meira saman með Bandaríkjunum en hagsmunir Þýskalands og Frakklands passa við hagsmuni Bandaríkjanna. Bandaríkin munu ekki líða hjónaband Rússlands og Þýskalans því þannig samsteypa myndi ógna þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Þátttöku Bandaríkjanna í tveimur heimsstyrjöldum á meginlandi Evrópu ber að skoða í þessu ljósi
Meginland Evrópu, það er að segja Evrópusambandið, er bæði varnarlaust og orkulaust. Það sækir í ódýra orku og það var von sambandsins að frá Íran fengist ódýr olía í skiptum fyrir sameiginlegt hatur beggja á Bandaríkjunum. En hér spilar Austur-Evrópa ekki með og það er að verða stórt vandamál fyrir Evrópusambandið. Og Austur-Evrópa getur neitað að spila hér með, þrátt fyrir hættuna frá Rússlandi, vegna þess að tilvistarlegir hagsmunir Bandaríkjanna og Austur-Evrópu fara mjög svo vel saman. Þess vegna kom Varsjáryfirlýsing Donalds J. Trump síðasta sumar. Hún var staðfesting á því að bygging Intermarium, sem er hugmynd hins pólska Józefs Pilsudski, er í smiðum. Varsjá verður með tíma eins konar ný Berlín fyrir Bandaríkin á meginlandi Evrópu. Bretland er enn að melta nákvæma staðsetningu sína í tilverunni eftir Brexit. Enginn nema breski almúginn hafði gert ráð fyrir Brexit. Og breska valdastéttin var ekki í sambandi við almúgann. Brexit-niðurstaðan kom valdastéttinni því algerlega í opna skjöldu
Engin evrópsk fyrirtæki nema smáfyrirtæki munu halda áfram í viðskiptum við Íran. Það er að segja, bara þau fyrirtæki sem eiga ekki í neinum viðskiptum við neitt annað land í heiminum nema Íran og ESB, munu taka diktat-tilboði Frakka, Þjóðverja og ?Breta. Viðskipti við Íran eru örverpi miðað við viðskipti við Bandaríkin, sem standa fyrir þremur til fjórum hlutum af hverjum tíu sem verða til í hagkerfum heimsins. Og svo er það þannig, að það eru fyrst og fremst Bandaríkin sem búa til raunverulega eftirspurn í heiminum. Evrópusambandið og Kína skapa ekki raunverulega eftirspurn í heiminum heldur nærast þau á henni. Það sést á viðskiptajöfnuði þeirra við umheiminn
Fyrri færsla
Macron missir stuðning hægrimanna eins og Bjarni [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 13. september 2018
Macron missir stuðning hægrimanna eins og Bjarni [u]
Mynd EIA: Bandaríkin eru nú stærsti olíuframleiðandi veraldar og það styttist í að þeir verði einnig stærsti gasframleiðandinn
****
Tap Macrons
Því skal leitað á mið sósíalista því stuðningur þeirra mið-hægrimanna sem leiddu Macron til koma-í-veg-fyrir-sigurs (við kjósum þig til að koma í veg fyrir eitthvað í stað þess að kjósa það sem við vildum fá) er gufaður upp og vinsældir Macrons eru nú minni meðal frönsku þjóðarinnar en hjá skellinöðrunni Hollande, sem fékk skrjóðinn Schröder í heimsókn til að kenna sér þýska láglaunastefnu fyrir Frakkland. Af fátæklingum er nóg í frönsku landi en þangað hefur herra Macron bara aldrei komið. Vandamálið er stórt því ríkisfjármál Frakklands eru hallamæld búrhænsni evrópusambandsins, þar sem þiggja gráðu halli særir þá-hrynur-evran-og-evrópa fallöxina fram. Fátæklingar og Macron, passar svipað vel saman og elítuupplitun Hillary Clintons passar á Patton-andlit Donalds Trump
Uppfært: Mynd: WSJ 20. apríl 2018: Framleiðsla rafmagns og hita stendur fyrir stærsta einstaka hluta framleiðslu svokallaðra gróðurhúsalofttegunda í heiminum á milli eldgosa. Ökutæki, flug, siglingar og flutningar standa hins vegar aðeins fyrir 15 prósentum af nýju hjátrúarbrögðum Sjálfstæðisflokksins. Rafbílavæðing dræpi samkvæmt þessu allt líf á plánetunni. Það er eins gott að við finnum aldrei neitt af olíu eða gasi í okkar landi. Tap, tap, tap, og meira tap. Stjórnmálamenn Sovétríkjanna dæmdu einnig fólk sitt til fátæktar með hjátrúarbrögðum kommúnismans. Fífl!
****
Og meira tap
Lykilorðið í tap-strategíu Bjarna Benedikssonar var hins vegar ísjaki, sem hann sagði fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Pólitískir jarðfræðingar vita að þegar átökin í jarðskorpunni koma fram sem brot, þá hefur sterkari hluti jarðskorpunnar mélað veikari hluta hennar undir sig, þar sem flekarnir eigast við á átakasvæðum sem kalla má átakalínur. Bjarni lýsti sig sem málafræslumann ísjaka sem brotna frá sterkari heild og bráðna. Hann er því kominn í klúbb þeirra sem bíða lægri hlut í átökum við sterkari krafta. Með svona hegðun hefur Bjarni ávallt komið í veg fyrir þá pólitísku jarðskjálfta sem færa sterkum flekum sigurinn yfir hinum veikari. Bjarni tálgar úr sterkri heild til að fóðra öfl upplausnar. Hann er því á leið undir, til að leysast upp. Orðið ísjaki þýðir tapari sem brotnaði frá til að leysast upp
Og niðurlag
Maðurinn af lágsléttum Garðabæjar kann greinilega ekki að berjast í fjöllum Íslands. Hann er því aðeins samkeppnishæfur á lágsléttum þar sem lærleggir sjónfrárra fjallabúa sigra sjóndapra lágsléttumenn. Aðeins lítill hluti íslensku þjóðarinnar eru orðin lágmenni. Þjóðin tengist því ísjakapólitík lágsléttufólks illa. Bændur og sjómenn vita vel hvað ísjakapólitík þýðir. Sjálfstæðiflokkurinn er þess vegna að missa stuðning hægrimanna, sem að erfðum og í anda eru fjárhirðar í fjöllum og halda lífi með því að halda hjörð sinni saman og fiska íslausan sjó
Stefnuræðu WOW-lofttegunda nennti ég ekki að hlusta á. Færið okkur hlýindin
Fyrri færsla
Byltingarráð Sjálfstæðisflokksins stofnað
![]() |
Forseti hinna ríku ræðst gegn fátækt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. september 2018
Byltingarráð Sjálfstæðisflokksins stofnað
Ísland að komast í fremstu röð pólitískra bjána heims
Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins kom saman á mánudag og kynnti fyrir þjóðinni Alþjóðabyltingu-II (umhverfisisma)
Það hafðist með því að forysta Sjálfstæðisflokksins setti flokkinn aftur fyrir sig, eins og síðast þegar forystan hélt að hún væri þjóðin Jóhanna og Steingrímur. Öll þau mál sem flokkurinn var stofnaður um, hefur þurft að troða í stíflaða forystuna með teskeið fyrir smábörn. Að meðtaka einföld sannindi á hverju einasta mikilvæga sviði, tók minnst átta ár
"Þú skilur þetta ekki Halldór verkfræðingur" sagði ég við þrautreyndan Sjálfstæðismann er hann reyndi að brydda upp á röksemdafærslu í sambandið við þátttöku Sjálfstæðisflokksins í Alþjóðabyltingu-II. Og ég hélt áfram:
- "Þetta snýst ekki um Ísland, þjóðina, skynsemi, rök, efnahag né vísindi. Þetta er ný alþjóðabylting, sagði ég við hann. Sjálfstæðisflokkurinn gengur frá og með nú fyrir Alþjóðabyltingu umhverfisisma. Þú hefur verið hreinsaður út. Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins, xDkomintern, var í ríkissjónvarpinu í gær. Þú sást það. Þetta er ekki plat. Byltíngin er hafin. Hinum mannlegu aðstæðum á plánetunni verður bjargað úr klóm kapítalismans og aðalstöðvar Alþjóðabyltingar-II verða í París. Ísland verður fyrirmyndarland byltingarinnar. Bjarni ætlar að tryggja það. Ekkert mun fara úrskeiðis, því hann er með þetta í excel og glærum frá Vinstri grænum"
Síðasta byltingartilraunin, Alþjóðabyltingar-I, þá undir fána kommúnista, gekk fyrir því hugmyndafræðilega eldsneyti að mælingar og spádómar sérfræðinga (gáfumenna) kommúnista á aðstæðum mannkyns á plánetunni (e. the human condition) sýndu að aðeins alþjóðabylting gæti lagað og bjargað mannkyninu frá svo kallaðri tortímingu kapítalismans. Til að hún tækist varð hún að gerast á heimsvísu. Fyrirmyndarlandið, Sovétríkið, átti að vísa veg
Hin nýja alþjóðabylting umhverfisista, Alþjóðabylting-II, gengur út á nákvæmlega það sama. Að vísindalegir spádómar gáfumenna þeirra sjálfra á mannlegum aðstæðum á plánetunni (the human condition), sanni að aðeins ný (nú græn, en ekki rauð) bylting geti lagað og bjargað heiminum frá tortímingu kapítalismans. Lífsskilyrði alls mannkyns á plánetunni eru undir, eins og síðast. Hvorki meira né minna
Í báðum þessum byltingartilraunum er því trúað að þjóðfélög geti ekki innréttað sig sjálf, heldur verði sérstakir sérfræðingar og gáfumenni að innrétta þau á þann hátt að þau lúti fyrirfram ákveðnum niðurstöðum Reiknistofu alþjóðabyltinga. Svæsinn, stigmagnandi og lúmskur ÓTTI knýr úrverk Alþjóðabyltingar-II, og að því leytinu gengur hún betur ofan í þá sem vit eiga að hafa. Plánetan er að farast út lofttegund, er nýjasta niðurstaðan úr Reiknistofu alþjóðabyltinga. Það er að segja ekki plánetan sjálf, heldur aðstæður mannkyns á plánetunni, the human condition
Engir slíkir spádómar hafa nokkru sinni staðist. Mannkynið varð ekki hungurmorða 1975, ný ísöld kom ekki 1980 og gatið í ózonlaginu var eðlilegt. Reyndar er það svo að landbúnaður hefur óendanlega getu til að fæða óendanlega margar manneskjur. Olían sem átti að vera búin 1980 á enn árhundurð eftir. Sama gildir um kol og sjaldgæfa málma. Japan var rétt í þessu að finna í sinni lögsögu slíka málma sem duga því þriðja stærsta og útflutningsháða hagkerfi heims í mörg hundruð ár. Á aðeins einu ári tókst að auka framleiðslu B-29 sprengjuflugvéla frá einni flugvél á viku upp í eina flugvél á klukkustund. Vesturlönd hafa alltaf vanmetið getu sína. Kommúnistar hafa hins vegar alltaf ofmetið sína getu, enda eru bestu lönd þeirra grafreitir
Plánetan er ekki að farast. Mannkynið er ekki að farast, heldur gæti svo verið að það sé Sjálfstæðisflokkurinn sem sé að farast - úr einmitt vinstrimennsku. Hún er sú mennska sem menn ættu að óttast, því hún hefur sannað sig sem verandi af hinu frekar vonda, en þó ekki af hinu alslæma alltaf. En útblástur hennar þarf að hefta áður en hundruð milljón manna farast úr henni á ný
Hættan á að það gerist er orðin töluverð. Sjálfstæðismenn verða að hafa í huga að heiðnikirkjuveldi háskóla okkar í dag, er miklu stærra en kirkjuveldi Kaþólsku kirkjunnar var á miðöldum. Miklu stærra og voldugra. Var plastpoki í íbúðinni? er farið að skipta bara fjandans miklu máli, jafnvel í höfði formanns Sjálfstæðisflokksins. Indoktrineríngin er orðin það mikil. Slíkt ætti ekki að geta gerst sé flokknum fylgt að málum
Ef menn vissu hvað kemur af hlutum og orku út úr einni tunnu af olíu, þá myndu þeir ekki tala svona um hana eins og of margir gera. Ekkert á sjálfri skrifstofu forsætisráðherra né á skurðstofum myndi virka án þess sem fæst úr olíu. Ekkert!
Út með þessi hindurvitni og út með andaglas umhverfisismans. Enginn í dag stefnir að því að tortíma lífsskilyrðum mannkyns á plánetunni, nema sjálf útópísk stefna harðlínu-umhverfisista, sem gera þjóðir að nytsömum bjánum
- Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Sovéski Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýja 10-ára áætlun
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 10. september 2018
Sovéski Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýja 10-ára áætlun
Þarna slær endanlega út á þeim perum sem enn virkuðu í forystunni. Með þessu getur flokkurinn orðið fyrstur slíkra flokka í heiminum til að leggja sig alveg orkulaus af. Hann gæti þar með orðið það sem aðeins örverpi geta boðið upp á; að vera fyrst í heiminum til að hætta að draga andann
Engar langdrægar eldflaugar (e. intercontinental ballistic missiles) voru heldur á hersýningum í tilefni 70 afmælis Norður-Kóreu um helgina. Þær hafa annars verið fastar eldhúsinnréttingar þar. Kannski að Kim sé genginn í Sjálfstæðisflokkinn
Síðasta 10-ára áætlun flokksins var kynnt af þáverandi menntamálaráðherraínu hans og hét hún -sennilega áætlunin- Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins, þar sem sambandið átti að vera orðið ríkasta hagkerfi heimsins árið 2010. Síðan það markmið átti að nást, eru liðnir 3175 dagar, en ekkert hefur gerst nema stórkostlega aukin fátækt þar
Og ég sem vonaði að eitthvað annað, til dæmis heilaþvottur yrði bannaður
Bjarni, þú gætir þjóðinni alveg að kostnaðarlausu orðið fyrstur í heiminum til að gera eitthvað annað en þetta. Til dæmis að segja af þér formennsku. Það kostar þjóðina ekkert. Þar með gætir þú orðið fyrsti stjórnmálamaðurinn í heiminum til að gera eitthvað fyrstur af öllum á þinn eigin kostnað áður en þú eyðileggur Sjálfstæðisflokkinn alveg. Ekkert rafmagn getur bjargað krónísku sambandsleysi þínu við íslensku þjóðina, né hvað þá heldur við Sjálfstæðismenn hennar
FÍFL!
Fyrri færsla
![]() |
Stefna að bensín- og dísilbílabanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Sunnudagur, 9. september 2018
Sveik NATO Rússland?
SUNNUDAGUR
Svik?
Sumir segja það, því þegar verið var að reyna að komast til botns í því hvað fyrirvara- og umsvifalaust fall Sovétríkjanna myndi hafa í för með sér, þá minna sumir okkur á að Vesturveldin lofuðu því að Rússland þyrfti ekki að óttast NATO í túnfæti sínum. Í leiðinni má minna á að Helmut Kohl lofaði Bandamönnum því að þýsku löndin tvö, yrðu ekki eitt sameinað ríki, heldur ríkjasamveldi
Útópía
En hvað gerðist svo. Jú hin gamalkunna útópía bjartsýnismanna tók við. Nú átti hinn eilífi-friður, frelsandi og pelsklæðandi hnattvæðing að taka við og Kína skyldi meira að segja einnig mótað til, samkvæmt útópíu hins nýja eilífðar-friðar. Evrópusambandið notaði tækifærið til að breyta sér úr tollabandalagi í yfirríki, og fékk til þess verks hluta úr gömlu stjórnarskrá Sovétríkjanna að láni, þar sem kommúnismi var hið eina löglega lífsskipulag, innan landamæra þess ríkis. Evrópusambandið breytti þeim köflum hennar í að; innan hins nýja Evrópusambands væri það Evrópu-samruni sem væri hið eina löglega lífsskipulag innan landamæra þess. Að ýmsu öðru leyti var stór hluti sovéska réttakerfisins tekinn upp í ESB og hæstiréttur þeirra líka. Þetta ferli endaði sem Maastrichtsáttmálinn, sem aðeins 51 prósent Frakka samþykktu. Það var þarna sem flestir kommar Evrópu stukku um borð í ESB, því verandi þeir kerfiskarlar sem þeir eru, þá sáu þeir þarna mikla og nýja möguleika komandi ESB-ofríkis í nýju ljósi. Í ljósi nýs totalitarian alræðis með gúrkuaðferð. Allt þetta vissu og skildu ekki þau lönd í Austur-Evrópu sem flúðu öskrandi þegar Sovétríkin hrundu. Þau vildu því ganga í Evrópusambandið. En þau skilja þetta samt núna, en komast að sjálfsögðu ekki út aftur
En svo kom það
En svo gerist þetta: Rússar drepa 300 þúsund manns í Téténíu, sem í tvígang reyndi að komast undan hinu nýja Sambandsríki Rússlands. Þetta skelfir löndin í Austur-Evrópu sem um þær mundir voru rétt svo að sleppa undan rússneskum áhrifum. Og þær ríkisstjórnir í Austur-Evrópu sem skildu og studdu ekki óskir og áhyggjur borgara sinna um aðild að varnarbandalaginu NATO, voru einfaldlega kosnar út. Þær voru kosnar frá völdum. Átti þá nýfenginn sjálfsákvörðunar-réttur þeirra kannski bara að vera upp á punt? Ég spyr. Þegar Jeltsin og Pútín ganga svona til verks heima hjá sér, hverju megum við þá ekki eiga von á hér heima, í túnfæti svona manna, hugsaði fólkið sem þekkti Rússland bara af slæmu. Segja má að sá svo kallaði fjölbreytileiki sem háskólareykt uxahalamenni dýrka á Vesturlöndum í dag, sé risavaxið vandamál í Sambandsríki Rússlands sbr. 300 þúsund manna slátrun í Tjéténíu. Og hamingja fjölbreytileikans í Sýrlandi sem Rússland hefur nú stokkið til að bjarga, er ekki beint það sem menn hoppa hæð sína af hamingju yfir þar. Sama má segja um Tyrkland sem hoppar ekki um af hamingju yfir því að hafa líka Kúrda í sínu ríki. Við skulum ekkert vera að minnast á sjálft Evrópusambandið í þessum efnum. Tölum frekar um fjölbreytileika í steinsteypu, til dæmis um hin yfirþyrmandi jákvæðu áhrif alkalívirkni sem beina afleiðingu fjölbreytileika
Hrunið
Og svo eru það Mið-Austurlönd: Það var múr Sovétríkjanna sem skildi að þau ríki. Það var sovéski múrinn frá Balkanskaga til Indlands sem hélt þeim ríkum aðskildum sem frosnum einingum. Og þegar hann féll rann ríkjaskipan þeirra inn í upplausnarferli sem ekki sér enn fyrir endann á. Við fall sovétmúrsins hófust íslamistar handa við að reyna að mynda jihadistaríki og kveiktu í Bandaríkjunum, til að reyna að efla samstöðuna um málstað sinn innan hins íslamíska heims. Bandaríkin brugðist við með því að reyna að koma á einhverskonar lýðræði eins og þau gerðu í Þýskalandi, Japan og Suður-Kóreu. Það mistókst að miklu leyti, en samt ekki að öllu. Staðan í Mið-austurlöndum er því enn frekar óbreytt. Tuggan um að Bandaríkin hafi "sáð þessum fræjum" er byggð á vanþekkingu. Varla eru menn búnir að gleyma innrás Sovétmanna í Afganistan á hátindi olíuverðs á aðfangadag jóla 1979. Þá stóð olíuverð í 110 dölum á 2013-verðlagi og Sovétmenn héldu að þeir gætu keypt heiminn. Svo tók verðið upp á því að hrynja viðstöðulaust næstu tíu árin. Þetta hrun olíuverðs átti stóran og oft vanmetinn þátt í hruni Sovétríkjanna tíu árum síðar. En olíuverðið heldur svo áfram að hrynja og skolar bæði Gorbachev og Jeltsin út á öskuhauga sögunnar og kallar Pútín til valda rétt fyrir aldamót. Vill svo til að þá byrjar olíuverð Eyjólfs að braggast og Vladímír Pútín ríður á hækkun olíuverðs frá árinu 2000 og fram til sumarsins 2014, þegar það byrjar að hrynja á ný, og er enn að hrynja í dag. Þarna klessir Rússland á vegg og hugsanleg innrás í Úkraínu verður að minnsta kosti að bíða betri tíma og olíuverðs. Peningarnir eru búnir í bili. Þetta er staða Rússlands í dag. Rússneski ríkiskassinn er er næstum tómur. Landið er hætt að geta greitt opinberum starfsmönnum laun, langt fjarri Moskvu og það sem verra er, það er hætt að geta sent lífsnauðsynlega peninga út í jaðrana (stuðpúðana). Alveg þveröfugt við Þýskaland, þá sendir Rússland aðstoðarfé út í jaðarríkin, á meðan Þýskaland mergsýgur sín jaðarríki í Evrópusambandinu
Móðgandi?
Hvort að þetta hafi verið móðgandi framkoma við Rússland, þetta með NATO-aðild Austur-Evrópu, er spurning sem á frekar lítinn rétt á sér. Rússar sviku alla samninga við alla í Síðari heimsstyrjöldinni. Það var til dæmis olía frá Rússum sem knúði loftárásir Nasista á Bretland. Rússland neitaði löndum Austur-Evrópu um að kjósa um sína eigin framtíð eftir stríð. Þá sögðu þau sínu eigin fólki, til heimabrúks, að þeir væru enn að berjast gegn fasisma Vesturlanda í Evrópu, vel vitandi það að Nasistar voru ekki fasistar heldur sósíalistar. Rússum féll illa að Bandaríkin og Bretland skyldu bjóða Þýskalandi og Ítalíu sem nýjum vinum inn í samfélag vestrænna þjóða og fyrir að þvinga Frakka til að samþykkja það. Fyrri heimsstyrjöldin hafði nær kostað Frakkland lífið, og enginn hirti um að standa með hamar yfir Þýskalandi í kjölfar Versalasamninganna. Því fór sem fór. Bandamenn hefðu átt að setjast ofna á Þýskaland þá og láta það éta Weimarlýðveldi næstu 80 árin. Fara alla leið til Berlínar. Þess vegna kom ekkert annað til greina í Síðari heimsstyrjöldinni en skilyrðislaus uppgjöf og hernám
Landfræðilegar staðreyndir lífsins
Rússland verður alltaf Rússland, því það getur einfaldlega aldrei orðið annað en það sem landfræðileg staðsetning landsins þvingar það til að vera. Rússland er hart, landlæst og risavaxið ríki sem mun aldrei geta notað stóran hluta landsvæðis síns til neins annars en sem stuðara, því Rússland skortir náttúrleg landamæri, sérstaklega í suðri og vestri. Síberíu er haldið sem óplægðu feni til að torvelda innrásarherjum yfirferð til Moskvu. Dreifing matvæla í þessu tröllvaxna ríki er næstum ómöguleg sökum víðfeðmi og innviða sem geta ekki orðið góðir sökum skorts á náttúrulegum landamærum. Þeim verður að halda fumstæðum og litlum, svo að illa gangi fyrir innrásarheri að komast fram. Rússland á mörgum sinnum auðveldara með að flytja út matvæli til annarra landa en að fæða og klæða sína eigin borgara fjarri Moskvu, sökum innvortis fjarlægða á vísvitandi lélegum innviðum. Og að stjórna þessu ríki pólitískt séð, er ekki hægt nema með terror, hörðu eftirliti og litlu frelsi, sem kallar á enn meiri terror til að koma í veg fyrir að heilu stuðarasvæðin í jöðrum Rússlands yfirgefi ríkið. Það er náttúran sem mótar rússneskt stjórnarfar og lítið annað
Dæmi
Sem einstakt útskýringardæmi er hægt að taka Bandaríkin. Ef að landnámsmenn hefðu komið að því landi úr vestri, Kyrrahafsmegin, þá hefðu þeir rekist beint á hin hrikalegu Klettafjöll. Sú ríkisstjórn sem þar hefði myndast og mótast hefði þurft að vera miklu harðari og óvægari sem stjórnvald í þannig landfræðilegum aðstæðum. Vatnsskortur, eyðimerkur, illa klífanlegir fjallgarðar og harðneskja kallar á harða ríkisstjórn. En Bandaríkin voru sem betur fer numin frá austri til vesturs. Stigið er á land sem er opið og að stórum hluta til siglanlegt á ofboðslegum og lygnum fljótum. Stigið er svo að segja beint inn í stærsta samhangandi og frjósamasta landbúnaðarsvæði jarðar í einu ríki, sem er svo stórt og gjöfult að það eitt og sér gæti brauðfætt allan heiminn í dag. Bóndi inn í miðju landi, þúsundum kílómetra frá sæ, getur skipað afurðum sínum út til annarra landa, ef honum þóknast það. Meira en sex hundruð milljón tonn eru flutt um þessi 40 þúsund kílómetra löngu siglanlegu fljót á ári, fyrir bara smábrot af því sem það kostar með járnbrautum. Lengd siglanlegra fljóta Bandaríkjanna er meiri en lengd allra annarra siglanlegra fljóta heimsins samanlagt. Allar ár renna í réttar áttir, til sjávar úthafa, og einstaklingsfrelsið blómstrar því Bandaríkin eru eyja, með bæði Atlantshaf og Kyrrahaf sér til varnar og verndar. Þau eru því örugg og með veika og milda ríkissstjórn eins og sést svo vel í dag. Það eina sem koma þurfti stjórn á var Karabíska hafið. Ef að norður-endinn á Bandaríkjunum væri ekki einn risavaxinn frosinn tappi, þá væri Kanada ekki sjálfstætt ríki í dag. En vegna þessa frosna norðurenda, fær Kanada meira að segja að tala frönsku í einu fylki. Annars myndi ríkisstjórn Kanada ekki heimila slíkt. Kanada er ríkt vegna þess að það er vinur Bandaríkjanna og Ísland er ríkt vegna þess að það er vinur Bandaríkjanna. Og Rússland er fátækt af því að það er staðsett þar sem það er. Og það er oftast óvinur of margra, vegna landfræðilegrar legu þess. Þar er allt frosið fast mestan hluta ársins og landið er of norðarlega staðsett fyrir of margt, og flest fljót þess renna til vitlausra staða
Hart kallar á hart
Rússland verður aldrei annað en Rússland, vegna þess að það er staðsett þar sem það er. Þetta þarf að virða, því landið verður aldrei annað en það sem það er í dag; harðstjórnarríki. En þau ríki sem búa við hlið Rússlands verður landið einnig að virða. Og Rússland þarf að muna að það var fyrir tilstilli Bandamanna að þeir urðu stórveldi á sínum tíma. Geopólitísk staða Rússlands árið 1945, var bein afleiðing stuðnings og trausts Bandaríkjanna og Bretlands. Og Síðari heimsstyrjöldin var að miklum hluta til bein afleiðing svika Rússlands. Þeir sviku bestu banamenn sína og þeir sviku sitt eigið fólk. Ávallt þarf að mæta hörðu Rússlandi með hörðu. Annars tekur útópían völdin og milljónir manna missa frelsi sitt og líf. Hið sama á við um Stór-Þýskaland. Hin gamla pólitíska villimennska Þýskalands sést nú þegar á Evrópu í dag. Sú staða hefði þótt óhugsandi á tímum Margrétar Thatcher. Algerlega óhugsandi. Þess vegna kemur friðþægingarstefna af hálfu Vesturlanda gagnvart Rússlandi ekki til greina. En það var þannig stefna sem gaf Þýskalandi banvænar hugmyndir í aðdraganda Síðari heimsstyrjaldarinnar. Aðeins öflugur fælnimáttur kemur í veg fyrir að ríki fái þannig hugmyndir
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Föstudagur, 7. september 2018
Pantaðir þú þessa jarðýtu?
Leiðari Wall Street Journal í gær var á sama máli: "Skrifarinn sem þorir ekki að segja til nafns er engin hetja"
****
Húsið titrar, blómavasar skjálfa. Glerið glamrar og kyrrðin kyrkist. Stokkið er til og kíkt út um glamrandi gluggana. Þetta er rosalegt. Tröllsleg Caterpillar jarðýta er komin, mætt á staðinn og byrjuð að framkvæma. Geggjunarsvipur nágrannanna í glamrandi gluggum, leynir sér ekki. Þeir horfa vantrúa á jarðýtuna sem ryður öllu því sem óhagganlegt var talið bara burt, eins og sméri
Pantaðir þú þessa jarðýtu er spurt. Já, einginlega, en hún var samt ekki minn fyrsti valkostur. Síðast pöntuðum við mann með andaglas, en ekkert gerðist. Þar á undan pöntuðum við (sálar) rannsóknarmann með reipi, en með litlum árangri. Eitthvað varð að gera, því annars hrynur fjallið ofan á okkur og allur bærinn ferst. Auðvitað kostar þetta sitt, en það varð að gera þetta. Við biðjumst afsökunar á blómavösunum og skökku málverkunum á stofuveggnum. Þetta með mini-styttuna af Eiffelturninn í garðinum, sem hann rak sig í, hana verður líklega erfitt að rétta úr. En þetta klárast sennilega á réttum tíma, því hefur hann lofað og hann stendur víst alltaf við það sem hann segir. Og við erum eiginlega öll strax byrjuð að græða á þessu, því fasteignaverðið er byrjað að hækka og fyrirtækin sem flúðu þora að opna hér á ný
(1.) Diplomats who loathe Trump find their good cop talk and soft power has more resonance once it is backed up by a better military, a better national security team, and an unpredictable commander-in-chief who might just be capable of doing anything at any time to anyone anywhere in the defense of American interests and sovereignty.
Tvær krækjur, (1.) Trump on the Ground - Victor Davis Hanson bóndi um Trump áhrifin í lífi venjulegs fólks í næsta nágrenni hans. Og (2.) Grein Victors "Þegar jarðarfarir breytast í stjórnmál" - When Funerals Become Politics
Fyrri færsla
Einangrunar-forseti Bandaríkjanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.9.2018 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 124
- Sl. viku: 730
- Frá upphafi: 1404479
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 472
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008