Leita í fréttum mbl.is

Hæstiréttur Bandaríkjanna aftur á réttri leið

Oath Ceremony - The Honorable Brett M Kavanaugh

Mynd, Hæstiréttur Bandaríkjanna: Ashley eiginkona Brett M. Kavanaugh heldur á Biblíunni á meðan eiginmaður hennar sver embættiseið hæstaréttardómara. Dætur þeirra fylgjast með

****

Í fyrsta sinn frá því í Kreppunni miklu 1934, er hæstiréttur Bandaríkjanna nú skipaður íhaldssömum dómurum að meiri hluta til. Allar götur frá því að New Deal stefna Roosevelt forseta var sett, hefur rétturinn að meiri hluta til verið skipaður dómurum sem hölluðu sér meira til vinstri og gerðu ríkinu mögulegt að þenja sig meira og meira út og yfir líf borgaranna. Fyrir Bandaríkin hefur þetta þýtt meiri völd til alríkisstjórnarinnar í til dæmis efnahagsmálum, með þeim afleiðingum að ríkið blés út, skattlagning, opinber eyðsla og skuldasöfnunum jókst, því rétturinn jók völd ríkisins yfir þeim málum. Margir, en samt of fáir, vita að stjórnarskrá Bandaríkjanna gengur að miklu leyti út á að halda ríkisvaldinu í skefjum. Það mun líklega gerast í meira mæli en verið hefur hin síðustu 84 ár, frá og með í gær, þegar efri deild þingsins skipaði Brett Kavanaugh sem nýjan hæstaréttardómara. Þetta mál er ein af ástæðunum fyrir því að Donald J. Trump var kjörinn 45. forseti Bandaríkjanna í nóvember 2016, þrátt fyrir reynsluleysi í stjórnmálum og opinberum störfum

NATO

Fastafulltrúi Bandaríkjanna í NATO, frú Kay Bailey Hutchison frá Galveston í Texas, sagði að Bandaríkin myndu íhuga með fyrirbyggjandi hernaðaraðgerðum að granda meðaldrægum eldflaugum Rússlands á jörðu niðri í Rússlandi, haldi Rússar áfram að brjóta 1987-ABM INF-eldflaugasáttmálann með þróun nýrra meðaldrægra eldflauga sem ná til landa Evrópu. En það er það sem Rússar hafa verið að gera. Fyrirbyggjandi hernaðaraðgerð gegn Rússlandi í Rússlandi er því á borðinu. Þarna eru Bandaríkin að segja við NATO-lönd Evrópu og sérstaklega Þýskaland; takið ykkur saman og leysið þetta mál sjálf, eða við sláum til, og þá er úti um viðskiptahagsmuni ykkar og Rússlands

KÍNA

Screen Shot 2018-10-05 at 09.10.42

Mynd: Wall Street Journal

Fréttir um að kínverski herinn hafi komið fyrir njósna- og hryðjuverkabúnaði í tölvuvélbúnaði sem framleiddur er í Kína og sem seldur er um allan heim, geisa nú víða um jörð. Hlutabréfin í kínverska Lenovo tölvuframleiðandanum hrundu samstundis um 20 prósent á markaði í Hong Kong. Um er að ræða örgjörva á stærð við hrísgrjón á tölvumóðurborðum og sem er á valdi kínverska hersins, sem nær þannig algerlega valdi yfir tölvubúnaði og stýrikerfum, reynast fréttirnar réttar. Tæknileg forskrift og forsendur nútíma-tölvunar eru fyrir löngu brostnar. Þar hefur lítið tæknilega nýtt gerst síðan 1950 er bandaríski herinn fann tæknina upp. Framtíðin mun ekki byggja á þeirri tölvun sem uppfundin var í Kalda stríðinu

GAMLI HEIMURINN

Allar þrjár meiriháttar pólitísku einingar á landmassa Evrópu-Asíu eru nú runnar inn í óafturkræft upplausnarferli, að Indlandi undanskildu. (1) Rússland sem leystist upp 1918 og 1991 er á ný að leysast upp sem ríki. Því er spáð að Rússland leysist upp á ný sem ríki árið 2025, eða jafnvel fyrr. Hvort að Rússland endar þá lífdaga sína sem misheppnað ríki, er ekki gott að segja, en of margt bendir því miður til þess. (2) Haustrið 2008 afhjúpaði, eins og hendi væri veifað, tilgangs- og getuleysi Evrópusambandsins sem pólitísku yfirríkis- og efnahagslegu misfóstri yfir flestum löndum Evrópu. Sambandið rann þá inn í óafturkræft upplausnarferli og sem er að verki hvern einasta dag ársins í öllum löndum þess núna. Þannig verður ástandið þar áfram, þar til sambandið að mestu leyti er uppleyst. Styttist í að aðvörunarmerki eins og eru á sígarettupökkum prentist á evruseðla í hugum fólksins. (3) Kína fór inn í upplausnarferli sitt í beinni útsendingu á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Þar valdi Kommúnistaflokkurinn skilgetið afkvæmi sitt án samráðs við fólkið. Kína er því komið inn í upplausnarferli sem endar með því að landið klofnar í minni einingar. Það ferli er að verkum hvern einasta dag ársins núna og næstu mörg árin. Einkennin eru meðal annarra sívaxandi einræði, kúgun, efnahagsleg eyðni og upplausn, fjármagnsflótti og hersýningar gagnvart nágrannalöndunum. Svo seint sem í síðustu viku var blaðamanni hins evrópska brandarablaðs Financial Times um efnahagsmál, neitað landgöngu í Kína

STRAUMHVÖRF

Bandaríska hagkerfið hefur nú kúplað sig frá þeirri efnahagsþróun sem ríkir á hinum pólitískt misheppnaða landmassa Evrópu-Asíu. Engin vötn Bandaríkjanna renna nú til sjávar þar. Svona klár aðskilnaður hins Nýja heims frá Gamla heiminum í stjórnmála- og efnahagsþróun, hefur ekki sést frá því að Ronald Reagan var forseti Bandaríkjanna. Leita þarf jafnvel enn lengra aftur eftir samanburði. Margt bendir til að krypplandi afturhaldsfjötrar hnattvæðingar hafi nú þegar að töluverðu leyti slitnað. Landmassar hins Gamla og Nýja heims eru því að skiljast að. Gamli heimurinn er brotna upp og er byrjað að rjúka úr honum einu sinni enn. Frámunalega barnaleg stefna íslenskra stjórnvalda í utanríkismálum, hina síðustu áratugi, liggur því sem ein samfelld og rjúkandi rúst núna

Fyrri færsla

Repúblikanar að vakna upp við 1984-ástand?


mbl.is Kavanaugh samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Repúblikanar að vakna upp við 1984-ástand?

Donald J Trump

Mynd: Forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump

****

Flestum þótti sögulega öruggt að þar sem Repúblikanar hafa Hvíta húsið, að þá myndu þeir ekki hafa mikinn áhuga á þingkosningum núna í nóvember. Þetta öryggi virðist nú vera að slettast á vegg og gufa upp. Vegna 1984-legra tilrauna vinstrisinnaðra fjölmiðla og Demókrata til að myrða persónu tilnefnds manns í stöðu hæstaréttarfdómara án dóms og laga, eru Repúblikanar að vakna upp við vondan draum og segjast í mun meira mæli hafa áhuga á að mæta á kjörstað og kjósa til þings í næsta mánuði. Þetta segir ný NPR/PBS NewsHour/Marist könnun sem kom út í gærkvöldi. Full 80 prósent Repúblikana segja nú að kosningarnar séu mikilvægar. Aðeins 68 prósent þeirra sögðu það sama í júlí. Hjá Demókrötum er hlutfallið 82 prósent núna -og munurinn á flokkunum því vel innan fjögurra prósenta skekkjumarka- en það var hins vegar 78 prósent í júlí. Tölfræðilegur munur á flokkunum tveimur er því enginn, samkvæmt könnuninni

Repúblikönum líst sem sagt ekki á blikuna lengur. Þeir sjá stjórnmálaflokk Demókrata í rúst eftir forsetatíð Barack Obama. Og sú rústun hefur reitt næstum alla stærri fjölmiðla í Bandaríkjunum til reiði, því þeir eru flest allir vinstrisinnaðir. Og þar sem flokkur þeirra er getulaus (mamma biluð), þá hafa þeir allar götur frá sumrinu 2015, háð kosningabaráttuna fyrir Demókrataflokkinn, vegna hinna miklu skemmdarverka sem Barack Obama vann á honum. Ekki nóg með það að Obama skilaði flokknum af sér í rúst, heldur var flokkurinn svo kyrfilega eyðilagður undir honum að enginn nema allra lélegasti forsetaframjóðandinn, Hillary Clinton, hafði séns á að sigra, því hún var næstum jafn lélegt forsetaefni og Obama. Flokkurinn og fjölmiðlar hans fyrirlitu hana og allt það sem Obama hafði gert flokknum. Svo það sem við sjáum núna, er vinstrisinnað fjölmiðlaveldi Bandaríkjanna í kosningabaráttu

Það voru sem sagt ekki fjölmiðlar sem bjuggu til kosningasigur Donalds J. Trump, eins og margir hafa haldið fram. Það var Barack Obama sem eyðilagði stjórnmálagrundvöll Demókrata og gerði öllum þeim sem á eftir honum komu ómögulegt að halda merkjum flokksins á lofti meðal bandarísks almennings. Vinstrisinnaðir fjölmiðlar tóku því við keflinu og sú sundrung sem við sjáum í dag, er einmitt kosningaherferð þeirra. Og hún er ekki beint glæsileg, eins og sést. Hún er fullur Obama-pakki pólitískt sundrandi auðkenna

Eini forsetaframbjóðandinn sem skildi allt það fólk Bandaríkjanna sem ekki bjó í þremur glóbalista-stórborgum landsins, var Donald J. Trump. Hann var eini framjóðandinn sem yfir höfuð gat sigrað á landsvísu

Wall Street Journal skrifar í morgun að Hvíta húsið hafi eftir að sjöundu rannsókn FBI á Kavanaugh dómara er lokið, ekki fundið neitt sem styður nýlegar ásakanir á hendur honum. Málið fer því hina réttu boðleið áfram til öldungadeildarinnar

Fyrri færsla

Angela Merkel nálgast fylgi Sjálfstæðisflokksins


Angela Merkel nálgast fylgi Sjálfstæðisflokksins

Svona er einnig að verða umhorfs í svo kölluðum "vísindaheimi" umhverfismála. Kukl og meira kukl

****

Nú skilur aðeins ein prósenta á milli fylgis Bjarna Ben og Merkels. Hún hefur lækkað sig úr 32,9 prósentum niður í 26 á tólf mánuðum. Þetta kemur. Já þetta kemur. Fylgi þýskra sósíaldemókrata mælist 16 prósentur í sömu könnun, sem birt var í gær. Í kosningunum fyrir ári, var það 20,5 prósentur. En fylgi AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) er hins vegar komið upp í 18,5 prósentur, samkvæmt sömu könnun. Það reyndist 12,6 prósentur í kosningunum fyrir ári. Tuttugu og sex er rúmlega helmingur af því sem Merkel fékk 2013. En þá fékk hún 41,5 prósent atkvæða. Sem sagt: úr 41,5 niður í 26. Fylgi kommúnista í Austur-Berlín mælist nú 29 prósent. Í Vestur-Berlín mælist það hins vegar 16 prósentur

Fylgi Vinstri grænna mældist 10,3 prósent í Gallupkönnuninni sem birtist í gær. Það er fallið þangað, úr 16,9 prósentum á minna en ári (það er vinstri villa í mynd DDRÚV). Kuklstefnu Vinstri grænna í umhverfismálum er þar með hafnað ásamt Austur-Þýskum biðlistum Svandísar

Okkur Halldóri verkfræðingi og hörðum Hákotsmönnum xD, tókst að leiða þá rafmögnuðu eldingu sem þarna sló niður úr kjósendum, samkvæmt Gallup, burt úr innstungum Sjálfstæðiflokksins og yfir í flokksmaskínu Vinstri grænna, sem okkur sýnist vera að bræða úr sér. Áslaug er þó enn föst í pólitískum sleik við innstunguna sem leiddi eldinguna yfir í Vinstri græna, með kolbrúnan rjúkandi humar í hendi. Og þá er Bjarni í Icesavematinu búinn að létta skýrslu Hannesar af sér í hendur staðgengils Theresu May forsætisráðherra á flokksráðsstefnu breskra Íhaldsmanna í Birmingham. En þar sagði Jeremy Hunt utanríkisráðherra í gær að Evrópusambandið væri að því leytinu eins og Sovétríkin, að enginn mætti þaðan út sleppa. Meginlandinu sló út í bræði

Vinstrimenn þola ekki Hannes vegna þess að honum gæti hafa yfirsést í því efni að handlangarar Stalíns héldu ekki alltaf með hægri hönd um byssuna sem þeir skutu saklaus fórnarlömb sín með til bana, heldur notuðu þeir stundum þá vinstri. Sé þetta atriði ekki rétt með farið, þá skal Hannes felldur allur og sagður Sjibbólet. Annað og meira hafa þeir yfirleitt ekki um stórvirki Hannesar að segja. Áfram Hannes!

Fyrri færsla

Ísland viðurkenni Taívan


Ísland viðurkenni Taívan

Tsai Ing-wen forseti Taívan talar við Donald Trump

Mynd: Tsai Ing-wen forseti Taívan talar í síma við Donald J. Trump, forseta Bandaríkjanna

****

Öngþveiti og leiðrétting

Hvaða leiðréttingarkerfi slær inn þegar ný stefna er að leysa gamla stefnu af hólmi á heimsvísu. Jú, þá er það öngþveitið sem slær inn, sem hið sjálfgefna leiðréttingarkerfi. Öðruvísi gerast breytingar ekki. En nú er þokunni byrjað að létta. Það leiðréttingarkerfi sem sló inn þegar árið 2008 sló heiminum næstum út, er byrjað að skila niðurstöðum. Það sem við sjáum í dag eru síðustu krampaköst hins gamla heims sem hófst árið 1945. Á næstu örfáum árum er hann svo farinn. Í staðinn verður margt af því sem gagnaðist nítjándu öldinni nógu vel, tekið í notkun á ný og endurbætt. Flestir ismar 20. aldarinnar voru sannkölluð plága fyrir mannkynið og þar með talinn er glóbal-isminn, sem var síðasta isma öskur hins gamla heims sem til varð árið 1945

Og nú er búið að fóðra kommúnista-Kína á öllu því sem hægt var að fóðra það á áratugum saman. En ekkert hefur samt breyst. Landið er eina ferðina enn sokkið enn dýpra niður í það einræðis- og alræðisstjórnarfar sem einkennt hefur Kína frá því að fámenn glæpaklíka kommúnistaflokks tók þar völd og hrakti síðustu réttkjörnu ríkisstjórn landsins frá völdum og út í eyjuna Taívan, þar sem sæti hennar er enn þann dag í dag. Tók svo kommúnistaklíkan til við að tortíma lífum allt að 60 milljónum manna af sínu eigin fólki uppi á meginlandinu. Það klíkufólk kommúnistaflokksins er nú að sauma sér herafla utan um það fé sem Vesturlönd fóðruðu það á, og sem byrjað er að beita á nágrannaríkin, langt út á höf og þar á meðal með Rússum í Eystrasalti

Af hverju hefur Ísland ekki viðurkennt Taívan sem sjálfstætt Kína og ríki á ný, eins og við gerðum fram til ársins 1971. Og af hverju hefur Ísland ekki tekið upp stjórnmálasamband við landið? Þetta er frekar óskiljanlegt í ljósi þess sem gerðist við Eystrasalt þegar kommúnistamúr Evrópu féll. Á Taívan er þó lýðræði og kosið er til bæði forsetaembættis og löggjafarsamkundu, með fjöldann allan af glæsilegum stjórnmálaflokkum og forsetaefnum í framboði

Í Kínverska lýðveldinu á Taívan búa tæplega 25 milljón manns með miklar tekjur og tæknikunnáttu og tæknigetu. Taívan er sjöunda stærsta hagkerfi Asíu og hagtölur þess eru þar að auki réttar. Samvinna við þá í til dæmis sameiginlegu átaki með Bandaríkjunum, gæti jafnvel að hluta til leyst af hólmi þann ferðamannaiðnað sem hér er byrjaður að anda út sem kólnandi hamskiptur óborgari

Ísland ætti að ráðfæra sig við sinn besta bandamann í þessu máli: þ.e. Bandaríki Norður-Ameríku. Margt bendir til að þau séu að endurskoða afstöðu sína til kommúnista-Kína, alveg niður í kjölinn og jafnvel enn dýpra. Það eru ekki bara tollar sem Bandaríkin eru með í smíðum á Kína, heldur einnig heilir hafstraumar af viðurlögum og breiðsíðum

Hér gæti Ísland orðið fyrst til, í stað þess að reyna að vera fyrst til með gamla rauðgræna alræðisstefnu í samgöngumálum, sem á endanum mun kosta okkur borgarana dýrmætt ferðafrelsið og enn meira

Þingmenn frá Taívan komu hingað í heimsókn árið 1998 og varaforseti Taívans kom hingað árið áður og ræddi við íslenska ráðamenn. Það ferli ætti að setja í gang á ný. Árið 1971 er liðið

Fyrri færsla

Eyðileggjandi fólksflutningar að rústa Evrópu 


Eyðileggjandi fólksflutningar að rústa Evrópu

Svíþjóð er komin í pólitíska kreppu sem ekki sér fyrir endann á um langa og svarta framtíð fyrir Svía, sem einu sinni voru þjóð í sínu eigin landi. Í dag er það stjórnarkreppa sem er nýjasti tilvistar-kreppuréttur dagsins í landi hnefarétta sænskra sósíalista

Þar sem Svíþjóð, eins og Evrópa, er byggð á Biblíunni, þá hefði þetta ekki átt að geta endað svona, því þar segir í Rutarbók: "þitt fólk er mitt fólk og þinn guð er minn guð"

Það er stór og mikil ástæða fyrir því að þetta stendur í Gamla testamentinu. Þetta er hvorki meira né minna en niðurstaðan úr þeim hörmungum sem stjórnlausir fólksflutningar leiddu til. Þetta er aðvörun til þeirra sem á eftir komu

Það fólk sem fær að gerast borgarar í nýju landi verður að skipta um bæði þjóð og guð ef hið nýja heimili á ekki að enda eins og það heimili sem farið var frá. Bandaríkin eru eina landið á jörðinni þar sem ein ósundrandi þjóð af mörgum ættbálkum og litum varð ein velmegandi heild og þjóð. En jafnvel því tókst Obama að reyna klúðra með því að byrja að tala um "týpískan hvítan borgara". Slíkt hugtak hafði ekki verið notað í bandarískum stjórnmálum frá því á forsetatímum Wilsons, sem var einn misheppnaðasti forseti Bandaríkjanna. Þarna atti Obama öllum upp á móti öllum með þeim ættbálkaauðkennum sem eru að leika bandarísk stjórnmál svo grátt í dag

Í Evrópu verður hryllingurinn hins vegar hundraðfaldur. Evrópa þolir ekki svona innflæði eins og vakúm-pökkunarvélin Angela Merkel frá Austur-Þýskalandi lifir í og pakkar þeim vandamálum inn með, sem hún á að leysa, en getur ekki, vegna þess að hún sjálf er pólitískt tómarúm af verstu sort sem hugsast gat. Hún er uppgjafarvélin sem framleiðir þær útópísku þvælur sem koma af því að sökum þess að við (Vesturlönd) erum ekki fullkomin, að þá erum við ónýt ef við erum það ekki

Það eina sem Vesturlönd þurfa á að halda er að vera eru nógu góð en ekki fullkomin, og það er það sem Donald Trump er. Hann gerir og framkvæmir á meðan hún getur ekkert nema fórnað Svíþjóð, og svo fórnað Póllandi fyrir að vera ekki vesalingaland eins og hún er sjálf, og sem Svíþjóð er á leið með að verða. Þegar svona vakúmpökkunarvélar eins og frú Merkel eiga ekkert eftir til að fórna og henda fyrir úlfana, þá stígur lítill maður með yfirvaraskegg inn á leiksviðið til að brenna þær Biblíur sem hún hvorki skildi né hugsaði um. Þetta hlýst af að láta þann sjálfsákvörðunarrétt og það fullveldi þjóða sem Biblían boðaði, af hendi. Slíkt er banvænt og þess vegna er Evrópusambandið að kveikja í álfunni eins og sér-evrópskir ismar gerðu á 20. öld. Evrópuisminn er sama þvæla

Pólitískar lausnir Íhaldsmanna byggja á Biblíunni þar sem það er mögulegt, eins og til dæmis stofnun og stjórnarskrá Bandaríkjanna gerðu. Að öðrum kosti er lausnir fundnar með sögulegum fordæmum sem staðist hafa þrotlaust álag tímans og virka. Evrópusambandið er einungis enn eitt imperíal misfóstrið sem Biblían varar við, með því að sýna fram á hörmungar þeirra sem hús fjötranna, og með því að setja þjóðum landamæri og fá þeim sjálfsákvörðunarrétt til að vera nógu góðar, en ekki fullkomin þvæla eins og frú Merkel og ESB. Þegar Trump er búinn að framkvæma nógu gott fyrir Bandaríkin, þá verður Evrópa enn fullkomin þvæla evrópskar líberalisma-heiðni sósíalista á borð við ESB, Merkel, Pútín, Lenín, Hitler, Stalín, Mússó og annarra biðstofumanna útópískrar fullkomnunar. Rúst eða himnaríki og ekkert þar á milli, það var lagið. Eftirstríðsfriðurinn er því búinn, hann þótti nefnilega ekki nógu góður fyrir þetta vesæla imperíal-valdapakk

Fyrri færsla

Lygaferð Pútíns að enda á vegg sanninda


Lygaferð Pútíns að enda á vegg sanninda

Klesst

Til að gera langt mál stutt þá vísa ég á endursögn Varðbergs um þá frétt í gær að sannleiksást Pútíns Rússlandsforseta í Skrípalmálinu hafi nú klesst á vegg. Reyndar segi ég sjálfur að allt frá byrjun alls hans ferils, hafi sú ást verið komin langt fram yfir síðasta söludag. Hér má líka sjá frétt Telegraph um málið

Næst

Leiðari Morgunblaðsins vitnar í Václav Klaus annan forseta Tékkneska lýðveldisins. Sá segir að Trump sé að gera það sem þarf að gera. Svo kemur þetta hjá honum eins og hjá flestum á hinum bónuðu gólfum:

"Klaus segir að Trump sé sennilega ekki maður sem hann myndi sækjast eftir að fá sér kaffibolla eða bjórkollu með. „Stíll hans og nálgun er ekki endilega að mínum smekk. En stefnumál hans og skilningur á stöðunni var nauðsyn fyrir Bandaríkin og reyndar heiminn allan."

Sem sagt

Við hér í húsinu erum að kafna út skít, klósettið er stoppað, vaskurinn flæðir yfir og amma er hætt að geta andað því lyktin er svo hrikaleg. Píparinn er kominn, við verðum þakklát, en við getum svo sannarlega ekki drukkið með honum hvorki kaffi né bjór

Ef um Pútín hefði verið að ræða þá kæmi rullan um að "mér líkar ekki pólitík hans" en hann er svo geðþekkur maður að við dönsum samt valsinn með honum. Pútín er of landfræðilega nálægur til að fá ekki það kaffi sem Trump er neitað um, vegna þess að píparinn Trump lyktar

Hér er sama gamla evrópska friðþægingartuggan á ferð og 1930. Staðreyndin er auðvitað sú að Rússlandsforseti, sama hvert nafn hans er, mun alltaf taka allt það sem Vesturlönd leyfa honum að taka. Og inn á milli mun hann taka það með vopnum. Svo klárast kakan, kaffið er tekið af borðunum og sovétið dekkar það til með sínu stelli. Eru menn fæddir í gær, eða hvað?

Ekki minn fyrsti valkostur, en..

Um daginn kom Bandaríkjamaður í heimsókn á góðan stað og spurði hvert álit Íslendinga væri á Trump. Þá var honum sögð frá persónulegri skoðun einnar persónu: Sú sagði "hann er að gera margt gott fyrir Bandaríkin, en ég er ekki hrifinn af persónu hans" (lyktinni)

Daginn eftir sagði ég við Íslendinginn: engin persóna sem getur gert það sem Trump er að gera, getur verið það sem öllum fellur við. Það er ekki hægt. Enginn með þessa hæfileika, getu og orku mun falla í geð þeirra sem vilja fá verkgetu píparans en ekki lyktina

Ég myndi drekka kaffi með Trump alla daga ef ég gæti. Svona elítu-snobb þoli ég ekki

Svíþjóðarklessan

Enn ein Svíþjóðar-heimtunin birtist sem grein blaðamanns í Mogganum í dag. Sama er á ferðinni þar. Ekkert er að í Svíþjóð og desímaltölur þínar passa ekki. Þar náði ég þér

Allir vita að Svíþjóð er ein klessa. Landið er óþekkjanlegt miðað við 1980. Landið stiknar af hinni gömlu nasistapólitík sænskra Sósíaldemókrata, sem eins og sósíaldemókratískur rúmfélagi þeirra, gorgonsólaður borgarstjórinn í Reykjavík, rústuðu öllum meiriháttar borgum og bæjum Svíþjóðar með eyðileggingu og illvilja. Þar hefur flestu verið tortímt og þar er hið nakta torg veraldarhyggjunnar svo nakið að fólk þarf að loka sig inni á heimilum sínum til að spyrja hvað klukkan sé. Trúmal, pólitík eða allt það sem með skoðanir hefur að gera, er bannað á hinum nöktu torgum Svíþjóðar. Þar er það RÍKIÐ sem er guð. Til fjandans með þennan nýmarxisma, segi ég bara. Svona naktir ryðdallatogarar sökkva þegar á þá reynir. Svíþjóð er að sökkva og slíkt kemur aldrei fram í gagnabönkum sænsku hagstofunnar, þvi ef það gerði það þá væri heiminn ekki eins klesstur og hann varð 2008, - af öllum fjandans sérfræðingunum sem klessu honum: Jáh, það voru þeir!

Næstum allt það meginland Evrópu sem Htiler hernam ekki, var pró-nazi, þ.e. aðhylltist stefnu Hitlers, ljóst og leynt. Öll Íbería, Sviss, Svíþjóð og svo Tyrkland og stór hluti Norður-Afríku og Mið-austurlanda. Þessi Evrópa er enn sú sama og þá. Og hún er að staðfestast í gömlum gloríum í dag. Þar er flest enn vont og ekki gott. Jafnvel Þýskaland er að bakka inn í gamla og mislita fjóshauginn sinn á ný. Það er byrjað á að gefa út diktöt til hægri og vinstri á ný um; efnahagsmál, peningamál, skuldamál, stjórnarfar og hvaða skoðanir löndum leyfist að hafa eða ekki. Hver á þá að vera Píparinn þegar salernið fyllist?

Já Winston var kallaður öllum illum nöfnum og er það enn. Þannig er það með þá sem brjóta samhljóminn í heimi taparanna. Evrópa er meginland taparanna

Hmpf! Hvort er það. Gott eða slæmt?

Afstæðiskenning meginlands Evrópu, Rússlands og Kína um muninn á Guði (gott/rétt) og Djöflinum (rangt/slæmt), er að kála þeim öllum. Og sú gamla kálun 20. aldar hefur verið áratugi í smíðum. Ekkert getur stoppað afstæðiskenningar landmassa Evra-Asíu lengur. Hið opinbera torg er nakið. Þið vitið hvað kemur næst

Fyrri færsla

Bretland hefur skellt á Evrópusambandið


Bretland hefur skellt á Evrópusambandið

Ávarp Theresu May, föstudaginn 21. september 2018

****

Breski forsætisráðherrann átti erfitt með að leyna reiði sinni eftir prússneska fundinn með Evrópu-diktat-sambandinu í Salzburg í síðustu viku. Andúðin og hrokinn sem hún mætti af hálfu ESB og sérstaklega Donalds Tusk -sem steig eins og fíll til jarðar á svo kölluðum (sam)félagsmiðlum- var hreint ótrúlegur. Siðaðar þjóðir haga sér ekki svona. Aðeins ókjörnir veruleikafirrtir embættismenn í vösum annarra gera það. Og það er það sem Evrópusambandið snýst nú um

Theresa May forsætisráðherra er hér að segja að Bretland sé hætt samningaviðræðum. Þar með hefur hún líklega sameinað flokk sinn á ný að baki sér. Nú fer Bretland á fullt með að undirbúa útgöngu úr Evrópusambandinu sem þýðir tolla á til dæmis eina milljón innflutta þýska bíla á ári. Enginn alþjóðleg fjármálastofnun í Bretlandi með fullu viti vill flytja sig úr fullvalda og öruggasta stjórnarskrárbundna lýðræðislega stjórnarfari veraldar, yfir til sértrúarsafnaðar á borð við Frankfurtborg Þýskalands, eða Parísarbyltingar Frakklands, þar sem enginn er samkeppnishæfur nema í miðbæjum annarrar hvorrar þeirra borga. Áttatíu prósent allra viðskiptadómsmála sem koma fyrir breska dómstóla, innihalda málsaðila á erlendri grund. Í fjörutíu prósentum þeirra eru allir málsaðilar af erlendri grund. Bresk lög eru ómetanleg útflutningsverðmæti

Viðskipti Bretlands við fyrrum nýlendu þess sem fékk nafnið Bandaríki Norður-Ameríku, hófust árið 1784 með átta böllum af bandarískri baðmull á ári. Fimmtán árum síðar voru þeir orðnir 40 þúsund og árið 1900 voru þeir orðnir sjö milljón stykki á ári. Bretland getur selt ýmislegt bandarískt gott til breska samveldisins, sem Bandaríkin geta ekki. Singapúr, Hong Kong og Tokyo gætu einnig þurft að skerpa á bankalingum sínum þegar City of London Bretlands er komið í gírinn, með alla bresku þjóðina sér að baki, loksins lausa úr viðskiptahlekkjum ESB. Norðvestrið og norðaustur Lundúnir eru klár og að þessu sinni í sameiginlegu átaki með City, um allan heim. Evrópusambandsaðildin reyndist Bretlandi ávallt sem fleygur á milli alls baklands Bretlands og City of London. Hagsmunir Liverpool, Manchester, Aberdeen, Glasgow, Grimsby og Hull annars vegar og hins vegar City of London, fara loksins aftur saman, eins og á tímum heimsveldisins. Og Bretland er enn stærsti erlendi fjárfestir Bandaríkjanna

Nýtt skattaumhverfi fyrir alþjóðleg fyrirtæki gæti þess vegna verið í smíðum hjá frú May, sem flutt gæti fjöll frá meginlandinu yfir í virkilega alþjóðlegt viðskiptaheimsveldi Bretlands í smíðum, og sem sett verður í gang þegar útgöngunni er lokið. Viðskipta- og fjármálaleg prússnesk diktöt eins og ESB hefur lagt stund á frá því að Þýskaland sameinaðist, getur Evrópusambandið sparað handa sjálfu sér, því það mun þurfa á öllu hinu svarta rúgbrauði Þýskalands að halda á hið sísúrnandi umhverfi þeirra landa sem eftir sitja í sambandinu. Þau munu vita hvert á að leita þegar þau ætla út. Og valkosturinn við aðild að ESB er þar með kominn fyrir Danmörku, þegar Bretland er komið út, eins og Kristian Thulesen Dahl, formaður danska Þjóðarflokksins sagði á flokksfundi 8. ágúst 2018. Það eina sem við þurfum er valkostur, sagði hann. Þá leggjum við útgöngu til

Fyrri færsla

Þýska ríkisstjórnin lifði helgina af [u]


Þýska ríkisstjórnin lifði helgina af [u]

Það sortnaði seinni part föstudags. Skoðanakönnun ARD-ríkissjónvarpsins úthlutaði þýskum sósíaldemókrötum (SPD) aðeins 16,5 prósentum. Límósína var í hættu. Formaðurinn Andrea Nahles sá strax að um alvarlega kynferðislega óáreitni kjósenda var hér að ræða og annúlleraði því samstundis þriggja daga gömlu ríkisstjórnarsamkomulagi við CDU-Merkel og CSU-Seehofer um að njósnameistari Maassen yrði hækkaður í tign upp í aðstoðar-innanríkisráðherra, vegna þess að sá maður hafði drýgt þann ofurglæp, að segja að upptökur sem sýna áttu "hægri öfgamenn" í Karl-Marx-Stadt Chemnitz ráðast á innflytjendur, vera falskar fréttir. Í staðinn, samkvæmt þriggja daga gömlu samkomulaginu, að kröfu SPD, léti hann af embætti yfirmanns þýsku innarnríkis-leyniþjónustunnar, sem verja á stjórnarskrá landsins gegn til dæmis árásum stjórnmálamanna

Afneitun SPD-Nahles féll á þurran blett því frú CDU-Merkel mældist með síst minni aukna kynferðislega óáreitni í sömu könnun. Aðeins 27,5 prósent kjósenda gátu hugsað sér að kjósa hana og flokksbandalag hennar með bæverskum. 72,5 prósent vildu það ekki

Svo var sest að samsæri á ný og nýtt næturfyllt samkomulag hamrað saman seint í gær og sem gerði fyrrverandi njósnameistara Maassen að fyrrverandi aðstoðarráðherra og að núverandi alþjóðlegum og ESB-málalegum ráðgjafa innanríkisráðuneytisins. Stjórnarskránni var þar með borgið í bili. Stóra skrefið niður í forsetastöðu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hlýtur að styttast enn frekar um næstu helgi, því þá kemur ný skoðanakönnun út. En svo er aldrei að vita hvað gerist með þýsku ríkisstjórnina eftir hádegi í dag, eða á morgun

AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) mælist því annar stærsti stjórnmálaflokkurinn í Þýskalandi í dag. Njósnameistara Maassen hafði með einni setningu tekist að sameina þrjá ríkisstjórnarflokka um að halda AfD niðri. Gera má því ráð fyrir að AfD njóti heldur betur frekara góðs af þessu eina máli sem þýska þriggja flokka ríkisstjórnin getur sameinast um; að minnka öryggi borgranna með þöggun. Hið sama gildir um stjórnarskránna sem Merkel lætur höggin dynja á til að halda sér á floti, en þjóðinni niðri. Sú skrá nýtur líka góðs af því, eða hitt þó heldur

Uppfært: Ný könnum sem birtist áðan hækkar óáreitni kjósenda enn frekar. SPD mælist þar með 16 prósentur og Merkel lækkar niður í aðeins 27 prósentur. Aðeins níu prósentur skilja nú CDU/CSU-flokksbandalagið og AfD að. Samkvæmt formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benedikssyni, er ekkert að marka svona mælingar, enda ekki um ísjaka- og lofslagsspár að ræða

Aðeins er ár síðan að helstu kynferðislausu -en nú allslausu- blaðamenn veraldar krýndu Angelu Merkel sem verandi "leiðtoga hins frjálsa heims"

Á meðan á þessu stóð í Þýskalandi, hélt Donald J. Trump samkomu með kjósendum sínum í Missouri. Hún var haldin í stærsta íþróttaleikvangi sem hægt var að fá, en samt þurfi að vísa 20 þúsund manns frá vegna plássleysis, en sem fylgst gátu þó með á stórskjáum utandyra. Hafði fólk byrjað að bíða í röð klukkan tvö um nóttina

Fyrri færsla

Leikurinn í Kína að verða búinn


Leikurinn í Kína að verða búinn

Apollo 11 Saturn V  - Bandaríki Norður Ameríku 16 júlí 1969

Mynd: Apollo-11 á skotpallinum árið 1969. 64 milljón hestöfl. Enginn annar en Bandaríkjamaður hefur tekið sér frí frá Jörðu á öðrum hnetti

****

Í síðustu bloggfærslu kom Sigurður Antonsson í heimsókn og minntist á Kína - og eftirfarandi eru hugleiðingar mínar um það mál. Nýjasta tiltak kínverskra stjórnvalda virðist samkvæmt frétt Reuters á fimmtudaginn vera það að banna eigi fréttir frá útlöndum í Kína, sérstaklega frá Vesturlöndum og flest afþreyingarefni þaðan. Höfum við séð þetta áður? Já það höfum við

Í Kína er leikurinn að verða búinn fyrir vesturlensk fyriræki. Eins og eldri en pelagjafamenn muna, þá geisaði kalt stríð við Sovétríkin áratugum saman. "Heimsveldi mannvonskunnar" voru þau á endanum kölluð, og var það meira en réttnefni á Sovétríkjunum og þeim isma sem þau stóðu fyrir. Og hollt er að leiða hugann að þeim nýju ismum sem eru að festa sig í hugum fólks í dag. Má þar nefna umhverfisisma sem allur kemur frá þeim vinstri væng stjórnmála sem aðhylltist Heimsveldi mannvonskunnar hve mest síðast. Svo hér þurfa menn að vera á vopnuðum verði

Kalda stríðið kostaði Bandaríkin ofboðslega fjármuni. Það var þó ekki sjálfgefið að það stríð skyldi yfir höfuð vera háð, né hvað þá unnið. Um tíma reyndu "sérfræðingar" í Bandaríkjunum að segja við bandarísku þjóðina að Sovétríkin væru komin til að vera og að Bandaríkin yrðu að sætta sig við tilvist þeirra, völd þeirra, áhrifa- og hernaðarmátt, sem á tímabili taldi 12 milljón manns undir vopnum og hafði 200 herdeildir miðandi á Vestur-Evrópu. En bandaríska þjóðin vildi það ekki. Hún vildi ekki sætta sig við Sovétríkin og lokaði fyrir þennan boðskap sérfræðinganna, fyrst og fremst vegna Guðleysis Sovétríkjanna og alls þess vonda sem þau stóðu fyrir. Afstaða bandarísks almennings gegn Guðleysi mótaðist ekki af krónum, aurum né viðskiptum, heldur af siðferðislegum ástæðum

Ný útópía svipaðs sérfræðingaveldis varð til á ný þegar múrinn féll og hún var sú að halda það að Kína myndi verða eitthvað annað en öflugt Guðlaust (sovét)ríki, væri það fóðrað á nógu miklu fé og viðskiptum við Vesturlönd. Það tók einungis vissan tíma að komast að þeim erfiða og kalda sannleika, að slíkt myndi aldrei gerast. Nú er að renna upp fyrir bandarísku þjóðinni, sem er Kristni-trúaðasta þjóð Vesturlanda, að hún var göbbuð. Sífelldur straumur frétta af ofsóknum kínverskra stjórnvalda á hendur Kristnum og útlegð manna úr opinberu lífi og samfélagi vegna hverskyns trúarskoðana í Kína, eru að blasa meira og meira við bandarísku þjóðinni. Sérstaklega þeim stóra hluta þjóðarinnar sem býr ekki í glóbalista-mannþyrpingar-bólunum tveimur við norðaustur-ströndina og suðvestur-ströndina. Það er að segja; allt meginland Bandaríkjanna hefur fært ofboðslegar fórnir vegna útskipunar atvinnulífs til Kína og þar á undan til Japans. Detroit lítur í dag út eins og Hirosima gerði 1945, á sama tíma og vissir hlutar Kína við sjávarsíðuna í suðri líta út eins og Detroit leit út árið 1945

Bandaríkin hjálpuðu Evrópu, Japan og Suður-Kóreu að komast á fætur á ný eftir Síðari heimsstyrjöldina. Og þau höfðu ekki ásælst né tekið land neinna þjóða þó svo að þau stæðu þá sem sigurvegarinn. Slík framkoma gagnvart hinum sigruðu hafði aldrei áður sést í sögu mannkyns. Bandaríkin vildu einfaldlega ekki verða heimsveldi

Það var þetta fólk sem kaus Trump. Það er búið að fá nóg og það segir; við fórnum ekki meiru af Bandaríkjunum fyrir hvorki Kína né bandarísk fyrirtæki í Kína. Þetta verður að stoppa og við verðum að tæknivæða okkur út úr þessu hér heima, eins og þegar við fórum til tunglsins í Apollo-11 prógramminu. Það krafðist 400 þúsund verkfræðinga. Við getum sjálf. Við höfum allt sem til þarf, en við þurfum pólitíska forystu á borð við þá sem byggðu Bandaríkin upp eftir borgarastyrjöldina sem lauk 1865. Þess vegna er Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna núna

Risaeðlan Bandaríkin er að vakna. Síðast þegar hún sló halanum til, var það vegna Spútnik. Sovétríkin hentu Spútnik í hausinn á Bandaríkjunum og fengu hið gerræðislega Apollo-11 svar í haus sinn til baka og gátu ekkert annað gert en blaffrað eftir það sem blautur þvottur á forhertri Lenín-snúru í sovétvindum og þornað upp að innan og steingerst. Öllu var umbylt í Bandaríkjunum, menntakerfinu líka. Svarið var algerlega hrikalega massíft

Ég er orðinn nokkuð sannfærður um að tímar bandarískra tæknifyrirtækja í Kína séu brátt á enda og hið sama gildir um hagkerfi WalMart í Kína, sem er sjötti hver gámur sem fer frá landinu. Leikurinn er að verða búinn

Þetta snýst ekki bara um botnlínur fyrirtækja. Heldur snýst þetta um líf fólksins í Bandaríkjunum. Þau þola ekki meira af glóbalisma sem fór úrskeiðis. Forsendan fyrir frjálsum viðskiptum á milli landa var alltaf sú að viðskiptajöfnuðir milli landa væru í jafnvægi. Sú forsenda er heldur betur brostin, áratugum saman, og það er ekki bara Kína sem verður tekið fyrir, heldur Þýskaland líka, Japan og Suður-Kórea og Mexíkó

Þetta sem Reuters skrifaði á fimmtudaginn um að Kína væri að undirbúa bann á fréttum frá útlöndum, ásamt erlendu skemmtiefni, kemur ekki á óvart. Xi forseti Kína veit að landið hans er við það að renna inn enn eitt upplausnarferlið vegna innvortis mótsagna, eins og svo oft áður hefur gerst í sögu Kína þegar sjávarsíðan opnar sig gagnvart erlendum áhrifum og auði frá umheiminum og innlandið er ekki þátttakandi í því. Þá rifnar landið í sundur og splittast upp í landshluta sem falla frá og inn í önnur ríki. Kannski tekst honum að hindra upplausn Kína. En kostnaðurinn við það verður hrikalegur. Hann verður líklega eins konar ný Norður-Kórea á -vonandi- mýkri nótum fyrir alla íbúa Kína

Fyrri færsla

Google-KGB gæti aðstoðað


Google-KGB gæti aðstoðað

 

Bein krækja á þessa frétt og myndskeið á Breitbart um pólitískt Google

****

Ráðabrugg Google um að hanna leitarniðurstöður svo þær vinni gegn bandaríska forsetaembættinu afhjúpað. Í þessu tilviki hér, er um að ræða svo kallað "ferðabann" á borgara vissra vafasamra landa inn í Bandaríkin í fyrra, og sem hæstiréttur þeirra svo staðfesti. En þetta er bara byrjunin og bandarískur þingheimur er byrjaður að hlusta. Næstu vikur, mánuðir og ár, munu fara í að rannsaka Google-heimsveldið. Allt það versta sem ég hugsaði um Google er að reynast sem verandi smámunir miðað við það sem er að koma í ljós. Og þetta á ekki bara við um stjórnmálin heldur einnig fjármálamarkaðina sem ég hef fylgst með í meira en 13 ár alla daga ársins. Wall Street Journal ásamt Breitbart og Fox, hér að ofan, taka ráðabrugg Google fyrir. Aðeins fólk sem elst upp í firrtu umhverfi firrts fyrirtækis og sem þykist vera Lávarður jarðar, er fært um að fá hugmyndir um til dæmis "sjálfkeyrandi bíla" og sturtuklefa á Mars. Þetta mál verður mjög svo skemmtilegt. Og það hófst meira að segja ekki í dag, þó svo að íslenskir vinstrikrónískir fjölmiðlar reyni að þegja það með humarhölum sínum í kaf. Því að um síðustu helgi komst Breitbart í feitt. Það fékk nafnlaust sendar upptökur úr aðalstöðvum Google þar sem undarbörn Lávarðar jaðrar gráta saman vegna kjörs Donalds J. Trump sem hins 45. forseta bandaríska lýðveldisins. Strax hefst ráðabrugg Google um hvernig fyrirtækið geti komið í veg fyrir setu forsetans og hvernig draga megi úr henni umboð kjósenda og hvernig Google geti á heimsvísu komið í veg fyrir að þjóðir jarðar kjósi sér þjóðarleiðtoga sem stangast á við pólitískar lávarðar-hugmyndir Google. (Sjá einnig frétt Morgunblaðsins um ráðabrugg á öðrum vígstöðvum: Neitar ráðabruggi um að koma Trump frá)

Burr vs Brennan

Mynd: Fjölmiðlafár vinstrimanna um öryggisheimildir: Það var Richard Burr (óvinveittur Trump) formaður leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins sem þrýsti á að öryggisheimildir Brennan fyrrverandi forstjóra CIA yrðu fjarlægðar, því Brennan hafði logið tvisvar að þinginu, jafnvel þrisvar, og geðveikisleg ummæli hans um sitjandi forseta fylltu mælinn. Sviptingin hafði engin áhrif á "málfrelsi" Brennan eins og sá hélt fram. Rúmlega fjórar milljónir Bandaríkjamanna hafa öryggisheimildir

****

Þetta með "Rússana" og bandarísku kosningararnar er eins og mýfluga við hlið fílsins Google í kjörklefanum. Var annars einhver sem sagði að Google og Facebook væru það "nýjasta nýtt" en Moggabloggið gamaldags og úrelt? Aðeins veiklunda persónuleikar á borð við þá sem helltu sér umhugsunar- og gagnrýnislaust á bólakaf í síðustu bólu, bankabóluna, tala þannig, og svo þeir sem eru á kafi í byltingar-bólu-glundri svo kallaðra félagsvefja í dag. Þetta er reyndar alveg öfugt, því KGB í nýjum umbúðum er hvorki nýtt koncept né ný bylting. Og hvorki Google né Facebook eru það sem meint var með hugtakinu Veraldarvefur. Facebook H/F er einungis hið innra og lokaða fyrirtækjanet eins venjulegs einkafyrirtækis, sem er dulbúinn fjölmiðill, á meðan Google H/F er fjölmiðill dulbúinn sem leitarvél, og sem finnur upp, já hvað annað en sjálfkeyrandi bíla og nýja forseta. Njótið endilega keisarans og undrabarna hans í aðalstöðvum Google á meðan laun þeirra eru svo há, að flytja verður inn tíu þúsund erlenda nörðandi og stjórnarfarslega vangefna lyklaborðsþræla, til að vinna þar á landvistarleyfi þess lands sem fyrirtækið hatar hve mest: Bandaríkjanna sjálfra, sem með frelsi og stjórnarskrárbundinni ríkisstjórn fæddu af sér allar kræsingar þessa fólks

Punktar úr upptökunni í aðalstöðvum Google vegna kjörs 45. foresta Bandaríkjanna:

* (00:00:00 – 00:01:12) Google co-founder Sergey Brin states that the weekly meeting is "probably not the most joyous weve had" and that "most people here are pretty upset and pretty sad."

* (00:00:24) Brin contrasts the disappointment of Trumps election with his excitement at the legalization of cannabis in California, triggering laughs and applause from the audience of Google employees.

* (00:01:12) Returning to seriousness, Brin says he is "deeply offen[ded]” by the election of Trump, and that the election "conflicts with many of [Googles] values.”

* (00:09:10) Trying to explain the motivations of Trump supporters, Senior VP for Global Affairs, (og Chief Legal Officer) Kent Walker concludes: "fear, not just in the United States, but around the world is fueling concerns, xenophobia, hatred, and a desire for answers that may or may not be there.”

* (00:09:35) Walker goes on to describe the Trump phenomenon as a sign of "tribalism thats self-destructive [in] the long-term.”

* (00:09:55) Striking an optimistic tone, Walker assures Google employees that despite the election, "history is on our side” and that the "moral arc of history bends towards progress.”

* (00:10:45) Walker approvingly quotes former Italian Prime Minister Matteo Renzis comparison between "the world of the wall” with its "isolation and defensiveness” and the "world of the square, the piazza, the marketplace, where people come together into a community and enrich each others lives.”

* (00:13:10) CFO Ruth Porat appears to break down in tears when discussing the election result.

* (00:15:20) Porat promises that Google will "use the great strength and resources and reach we have to continue to advance really important values.”

* (00:16:50) Stating "we all need a hug,” she then instructs the audience of Google employees to hug the person closest to them.

* (00:20:24) Eileen Naughton, VP of People Operations, promises that Googles policy team in DC is "all over” the immigration issue and that the company will "keep a close watch on it.”

* (00:21:26) Naughton jokes about Google employees asking, ‘Can I move to Canada? after the election. She goes on to seriously discuss the options available to Google employees who wish to leave the country.

* (00:23:12) Naughton does acknowledge "diversity of opinion and political persuasion” and notes that she has heard from conservative Google employees who say they "havent felt entirely comfortable revealing who [they] are.” and urged "tolerance.” (Several months later, the company would fire James Damore allegedly for disagreeing with progressive narratives.)

* (00:27:00) Responding to a question about "filter bubbles,” Sundar Pichai promises to work towards "correcting” Googles role in them

* (00:27:30) Sergey Brin praises an audience members suggestion of increasing matched Google employee donations to progressive groups.

* (00:34:40) Brin compares Trump voters to "extremists,” arguing for a correlation between the economic background of Trump supporters and the kinds of voters who back extremist movements. Brin says that "voting is not a rational act” and that not all of Trumps support can be attributed to "income disparity.” He suggests that Trump voters might have been motivated by boredom rather than legitimate concerns.

* (00:49:10) An employee asks if Google is willing to "invest in grassroots, hyper-local efforts to bring tools and services and understanding of Google products and knowledge” so that people can "make informed decisions that are best for themselves.” Pichais response: Google will ensure its "educational products” reach "segments of the population [they] are not [currently] fully reaching.”

* (00:54:33) An employee asks what Google is going to do about "misinformation” and "fake news” shared by "low-information voters.” Pichai responds by stating that "investments in machine learning and AI” are a "big opportunity” to fix the problem.

* (00:56:12) Responding to an audience member, Walker says Google must ensure the rise of populism doesnt turn into "a world war or something catastrophic … and instead is a blip, a hiccup.”

* (00:58:22) Brin compares Trump voters to supporters of fascism and communism, linking the former movement to "boredom,” which Brin previously linked to Trump voters. "It sort of sneaks up sometimes, really bad things” says Brin.

* (01:01:15) A Google employee states: "speaking to white men, theres an opportunity for you right now to understand your privilege” and urges employees to "go through the bias-busting training, read about privilege, read about the real history of oppression in our country.” He urges employees to "discuss the issues you are passionate about during Thanksgiving dinner and dont back down and laugh it off when you hear the voice of oppression speak through metaphors.” Every executive on stage – the CEO, CFO, two VPs and the two Co-founders – applaud the employee.

* (01:01:57) An audience member asks if the executives see "anything positive from this election result.” The audience of Google employees, and the executives on stage, burst into laughter. "Boy, thats a really tough one right now” says Brin.

Krækjur:

Fyrri færsla

Andaglasvirkjun I og II


mbl.is Neitar ráðabruggi um að koma Trump frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband