Fimmtudagur, 6. september 2018
Einangrunar-forseti Bandaríkjanna
Mynd: WSJ Daily Shot í gær: Mælaborð Credit Suisse fyrir Bandaríkin lítur vel út um þessar mundir
****
Þeir sem kallast stundum bestu íslensku höfuð pólitískrar greiningar og sem oft segjast vera blaðamenn líka, en eru þó alveg sérstaklega háskólaðir nýmarxistar, já þeir hafa sagt að Donald J. Trump 45. forseti Bandaríkjanna sé einangrunarsinni sem er að einangra Bandaríkin frá heiminum sem þetta fólk lifir í og of oft á kostnað skattgreiðenda. Þetta mál skulum við kíkja aðeins á, launalaust:
1. Donald J. Trump er að endursemja um viðskipti milli Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada. Þau eru stærri en öll viðskipti í Evrópusambandinu og um er að ræða 500 milljón manna markaði. Samið er um þessi viðskipti upp á nýtt. Þessu lofaði Trump kjósendum. Slíkt er óhugsandi í Evrópusambandinu, því það tæki sambandið 20 ár og myndi kosta það lífið, samkvæmt nýjustu hótunum Carls Bildt um að ESB gæti hrunið ef Svíar kjósa rangt nú um helgina. Þar má ekkert útaf bera, því þá hrynur allt
2. Donald J. Trump er að endurskilgreina viðskiptasamband Bandaríkjanna við Kína. Kína hefur stundað óheiðarlega viðskiptahætti miðað við alþjóðasamninga, sturtað grjóti á viðskiptagötur í formi viðskiptahindrana og stundað dulda gengisfölsun. Þetta sættir Donald J. Trump sig ekki við og bregst við með tollum. Þessu lofaði hann kjósendum
3. Donald J. Trump hefur sett Bandaríkin í viðbragðstöðu gagnvart Norður-Kóreu, sem er að reyna að þróa eldflaugatækni sem sent getur kjarnorkusprengjur beint á Bandaríkin. Trump hefur haldið fund með leiðtoga Norður-Kóreu til að reyna að tala hann á sitt band. Árangur þess fundar gæti verið að gufa upp eða ekki. Það er ekki hægt að vita enn. Bandaríski flotinn er því í viðbragðstöðu í Japan, á Guam og í Suður-Kóreu eru 30 þúsund bandarískir hermenn á vakt. Barack Obama skildi þetta vandamál eftir handa Trump og sagði honum að það yrði erfitt, vegna þess að það reyndist of erfitt fyrir hann sjálfan. Sambandi hefur nú verið komið á milli hins diplómatíska starfsliðs ríkjanna. Forsetinn þarf því ekki að standa í öllu sjálfur, eins og til dæmis Carter og hinn breski Wilson með reiknistokk
4. Á þessari stund eru 86 af 284 bardagaskipum bandaríska flotans á sjó um allan heim. Þau sjá meðal annars um að alþjóðaviðskipti geti farið fram með siglingum á heimshöfunum
5. Donald J. Trump hefur aukið og hert siglingafrelsisaðgerðir í Suður-Kínahafi. Hann hefur einnig rétt Taívan hjálpandi hönd og stutt við bakið á Ástralíu og Nýja Sjálandi í viðleitni þeirra við að halda aftur af Kína þar um slóðir eyjaþjóða eins og Tonga. Á sama tíma hefur forsetinn stutt byrjun fjórhliða samstarfs Indlands, Japans, Ástralíu og Bandaríkjanna. Víetnam og Bandaríkin eru enn fremur að samhæfa heri sína fyrir samvinnu í varnarmálum, því öll þessi ríki óttast Kína
6. Donald J. Trump stendur í samningum við Taliban um að enda einhvern vegin 17 ára stríð í Afganistan
7. Donald J. Trump er að endurskilgreina stefnu Bandaríkjanna gagnvart Íran og er á fullu stími með öðrum þjóðum í heimshlutanum við gerð slíkrar stefnu. Því lofaði hann kjósendum
8. Donald J. Trump á í nokkurri glímu við Tyrkland sem er að reyna að egna Rússlandi og Bandaríkjunum saman, sér sjálfu til framdráttar, því spenna hefur lengi ríkt í samskiptum Tyrklands og Rússland. Trump hefur ekki gengið í gildru Tyrklands og er nú að móta samband landanna til með tollum. Halda þarf Tyrklandi á mottunni, því það hefur því miður pólitíska framtíð helstu leiðtoga Evrópu nokkuð mikið í sínum vösum. Og sem kunnugt er hafa Bandaríkin skuldbundið sig til að verja nánast alla Evrópu, en þó ekki gegn sjálfri sér
9. Donald J. Trump er með bandarískt varnarlið í Póllandi og Rúmeníu til varnar löndum Austur-Evrópu . Sá herafli er þar samkvæmt sömu strategíu og viðhöfð var í Kalda stríðinu: að kaupa með því tíma til að geta sent hernaðarlegt ofurefli yfir hálfan hnöttinn frá Bandaríkjunum og lent því þar. Bandaríkin eru með 90 þúsund menn staðsetta í Evrópu núna. Um 70 þúsund hermenn og 20 þúsund borgaralega starfsmenn á vegum Bandaríska varnarmálaráðuneytisins
10. Donald J. Trump tók Bandaríkin út úr svo kölluðu Parísarsamkomulagi, því hann vissi að það var einskis virði og myndi virka einangrandi fyrir Bandaríkin. Þýskaland er að guggna á þessu samkomulagi líka og er á leið út. Og Kína hafði aldrei neinar áætlanir um að halda það
11. Donald J. Trump bað um og hélt fund með forseta Rússlands til að reyna að bæta samskipti ríkjanna. Því hafði hann lofað kjósendum. Ekki er enn vitað hvort það takist
12. Donald J. Trump berst í því að styrkja grundvöll NATO. Hann hvílir á því að um fullmannað og fjármagnað hernaðarbandalag sé að ræða, en ekki sjálftektar-hlaðboð annarra ríkja á kostnað Bandaríkjanna. Takist það ekki, verður NATO lagt niður, veikir hlekkir þess bræddir úr keðjunni og ný varnarkeðja viljugra þjóða smíðuð
Þetta voru 12-fréttir af einangrunar-forseta Bandaríkjanna, Donald J. Trump. Og nú snúum við okkur yfir til Séð-og-heyrt háskóla- og fræðimannaliðs íslenskra fjölmiðla, þar sem þeir njóta launa sinna í friði sem Bandaríkin halda, á meðan beðið er eftir læknisaðgerðum marxismans í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar
Fyrri færsla
40 prósent evru-svæðis með lægra lánshæfnismat en Ísland
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 4. september 2018
40 prósent evru-svæðis með lægra lánshæfnismat en Ísland
ESB er á leið niður, en Ísland upp
Nú er lánshæfnismat 8 af 19 evrulanda lægra en lánshæfnismat ríkissjóðs íslenska lýðveldisins. Þessi 8 evrulönd standa fyrir 40 prósentum af íbúafjölda allra evrulanda. Malta er með lægra mat en Ísland hjá Standard og Poors, en sömu A3-einkunn hjá Moodys og einn plús fram yfir Ísland, fyrir aftan einfalt A hjá Fitch, svo ég tel það ekki með í þessum bunka 8 evrulanda með lægra mat en Ísland. En í þann bunka fer Malta brátt, þrátt fyrir áróðursherferð DDRÚV á styrjaldarárum okkar Íslendinga við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna - og ríkisútvarp þessara flokka
Þetta þýðir að aðeins 31,5 prósent af landsframleiðslu allra evrulanda, til samans, verður til hjá 40 prósent af íbúum þeirra. Þriðja stærsta hagkerfi evrusvæðis, Ítalía er með lægra lánshæfnismat en Ísland. Sömu sögu er að segja um fjórða stærsta hagkerfi evrusvæðis, Spán. Í heild eru 13 af 28 löndum Evrópusambandsins með lægra lánshæfnismat en Ísland. Þessi munur á Íslandi annars vegar og ESB og evrusvæðinu hins vegar, mun bara versna þeim í óhag, því Ísland er að ná sér á meðan esb- og evrulöndin sökkva æ dýpra í fen sambandsins
Evrulönd með lægra mat en Ísland
Kýpur (peningaskömmtun)
Grikkland (peningaskömmtun)
Ítalía (peningaskömmtun á byrjunarstigi)
Lettland
Litháen
Portúgal
Slóvenía
Spánn
(Malta?)
Önnur ESB lönd með lægra mat en Ísland
Ungverjaland
Pólland
Rúmenía
Búlgaría
Króatía
Evrópusambandið er á leið niður en Ísland er á leið upp og út úr EES. Það er rökrétt niðurstaða þessa máls, því það er ekki hægt að byggja upp hagkerfi á sporbraut umhverfis svarthol
Í Evrópusambandinu og á evrusvæðinu virkar Þýskaland eins og svarthol. Það land hefur aldrei getað staðið á eigin fótum frá því að það var stofnað og það hefur sýnt sig ófært um að hvíla í jafnvægi í sjálfu sér. Þýskaland virkar því ávallt sem þeytivinduafl á Evrópu og mjaltavél á jaðra hennar. Singularitet Þýskalands í milliríkjasamstarfi er best lýst með eftirfarandi nýlegu dæmi; Áratugum saman hefur Þýskaland neitað að inna sinn samningsbundna skerf af hendi til NATO, sem er varnar-bandalag. Um daginn var landið því rukkað um að uppfylla NATO-skuldbindingar sínar. En í stað þess að standa við loforð sín, þá hótaði Þýskaland að smíða kjarnorkusprengjur. Sama gildir um skuldbindingar Þýskalands í ESB og um viðskiptahagnað þess á kostnað annarra ríkja -sá stærsti í heimi- enda er sambandið að leysast upp. Sjálf frumforsenda frjálsra viðskipta í heiminum er að viðskiptajöfnuður sé í jafnvægi. Svona hegðun þarf að stöðva því öll ríki á sporbraut um svartholið Þýskaland, taka einmitt upp hegðun þess í bæði Evrópusambandinu og NATO. Leikur Þýskaland í alþjóðlegu samstarfi er ávallt þessi; ef þið haldið ykkur ekki saman þá breytist ég í villimann. Og ekki nóg með það, þá viðhefur þýska valdastéttin sömu aðferðir gegn sínu eigin fólki. Hún er í engu sambandi við fólkið í landinu
Fyrri færsla
Lögregluþjónar heilsa með nasista-kveðju í Bæjaralandi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 3. september 2018
Lögregluþjónar heilsa með nasista-kveðju í Bæjaralandi
Fréttir frá "innri markaði" ESB
Tveir þýskir lögregluþjónar í miðju hins svo kallaða "innri markaðar ESB" í Bæjaralandi (í Þýskalandi; nánar tiltekið í bjórgarði í Rosenheim) hafa verið handteknir fyrir að heilsa aðild Evrópusambandsins að Þýskalandi, með nasistakveðju. Yfirheyrslur fara nú fram, segir Reuters. Þetta atriði verður örugglega tekið með og varla talið EES-aðild Íslands til tekna í nýrri trúarlegri rannsókn á EES, þar sem EES snýst fyrst og fremst um aðgang Íslands að markaði fyrir pólitískt-trúarlegar skoðanir Brusselveldisins. Við getum þá líklega ekki stækkað fánasaumastofuna á Hofsósi og Össur heldur ekki framleitt varanlegar stoðir undir uppréttar hendur, sem annað hvort heilsa hinum nýja fána ESB eða bara þeim gamla
Þið eruð ekki lengur til, segir Macron við Dani
Forseti Frakklands á að hafa tilkynnt Dönum í síðustu viku að danska þjóðin sé ekki lengur til og að danska sé ekki lengur tungumál Dana, heldur sé það "evrópska". Sagði hann jafnframt að franska væri ekki lengur til sem franska, heldur einungis sem evrópska. Allt er sem sagt orðið eingöngu evrópsk, nema náttúrlega viðskiptahagnaður Þýskalands og skuldir Grikkja, Ítala, Spánverja, Kýpurbúa, Portúgala og Íra. Allt í ESB er því orðið "óháð þjóðerni", nema útkoman úr áföllum og svo því sem kemur bráðum aftur: útkoman úr ESB-styrjöld í ESB, þökk sé einmitt tilvist ESB, þar sem útkoman úr kosningum er nú þegar orðin háð því að hún sé eingöngu uppréttar hendur
Moskva hlýtur bara að vera í þann mund að hefja útrás með gömul sovésk geðveikrahæli til ESB. Eftirspurnin eftir þeim þar, hlýtur svo sannarlega að vera staðar - og gott betur en það. Tveir geldir, ást- og barnlausir keisarar í ESB virðast nú byrjaðir að berjast um innlögn á slík; Merkel og Macron
Fyrri færsla
EES og ESB að verða kirkjugarður Sjálfstæðisflokksins
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 2. september 2018
EES og ESB að verða kirkjugarður Sjálfstæðisflokksins
Sannir skriffinnar spyrja aldrei af hverju þeir eru að þessu. Hendir þú í haus þeirra pappírum þá grúfa þeir sig skilyrðislaust yfir þá og kafna. Já-já forysta Sjálfstæðisflokksins virðist vera að kafna í því sem hent er í haus hennar frá útlöndum
Pólitískir óvinir fullveldisins sjá kærkomið verkfæri í orkumála-pakka-pólitík ESB til að koma gangverandi fjárfestingum í stóriðju í uppnám hér á landi, og grafa undan öryggi slíkra fjárfestinga. Þeir sjá líka það sem Bjarni Jónsson bendir á: Icelink-inn sem endanlega sleggju á þær fjárfestingar
Bara það eitt að snerta á einhverju sem viðkemur orkumálabáknum Evrópusambandsins, hefur vissan dauða í för með sér fyrir þá stefnu sem við sjálf höfum haft í orkumálum. Það sér maður undir eins á því sem þegar hefur verið innleitt hér á landi, og skapað hér skriffinnskulegt erfiðleikalandslag fyrir þann einfalda hlut að fá eitt stykki rafmagn afhent inn á eitt venjulegt heimili. Tveir reikningar, tvöföld skriffinnska, tvöfeldni, tvöfalt bákn og hálfdauða víra úr skriffinnsku. Heill her af þessu ESB-rusli er nú að myndast á meginlandi Evrópu, sem er að tærast upp í Evrópusambandinu. Neytendur borga og borga og lönd þeirra verða smám saman að nýlendupökkum
Eldflaugaárás þjóðfrelsisafla Sjálfstæðismanna á Valhöll á fimmtudag, kom sem aðvörun til þeirra í flokknum sem beita pólitískum eiturefnavopnum á íslenska lýðveldið og stjórnarskrá þess. Það eitur er upprunamerkt Brussel, sem er í vösum tveggja hálf misheppnaðra ríkja á meginlandi Evrópu
USS Newport News (SSN-750) hefur nú siglt um Gíbraltarsund inn í Miðjarðarhaf, en hér er um að ræða harðskreiðan árásarkafbát bandaríska flotans. Viðvera hans þar núna, fylgir auknum ótta um að önnur eitur-efnavopnaárás með aðstoð Rússlands sé í bígerð í Sýrlandi
Bandaríkin réðust inn í Þýskaland fyrir 74 árum, settust ofan á landið, létu það gleypa pólitískar pillur sem Íslendingum líkaði þá vel. Pillurnar hétu valkostur. Sama gerðu Bandaríkin í Japan og Suður-Kóreu. En nú er Þýskaland byrjað að flosna upp aftur, vegna Evrópusambandsins, og byrjað aðhyllast rússneska samninga á ný. Hvernig halda menn að Þýskaland væri stjórnarfarslega séð statt í dag ef Bandaríkin hefðu ekki sest ofan á landið og látið það gleypa. Jú, það væri pólitískt villimannaland enn þann dag í dag. Þar er enn stutt í gömlu pólitísku villimennskuna, eins og sést best á meðferð Þýskalands á Grikklandi og Suður-Evrópu - auðvitað í krafti Evrópusambands, sem orðið er rafmagnsstólaveldi
En þessum nauðsynlegu setum voru margir vesturlendingar búnir að gleyma, þegar tilraun var gerð til að setjast ofan á Írak um stund og láta það gleypa, eftir að landið hafði ráðist á fimm nágrannalönd. Þar er því allt í steik enn, og sömu sögu er að segja af Mið-Austurlöndum öllum, nema Ísrael
Upprunalegu styrkleikamerkin sjást vel á Bandaríkjunum í dag. Um þessar mundir eru þau að tæta út gamlar innréttingar og skipta um lagnir í húsinu, með ofboðslegum hávaða. Þetta er styrkur Bandaríkjanna; Að taka til á fullum útblæstri og klára það verk sjálf. Þau eru fyrst og mest
Fyrri færsla
Bandaríkin senda landgönguliða til Taívan. Hjólastígar, nei takk!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 31. ágúst 2018
Bandaríkin senda landgönguliða til Taívan. Hjólastígar, nei takk!
Samtal við söguna árið 2004: Viðtal við bóndann og sagnfræðinginn Victor Davis Hanson um mikilvægi sögunnar. Heilræði Victors til ungdómsins í lokin eru að sjálfsögðu klassísk
****
Eitt-Kína-stefnan að falla?
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ákveðið að senda hermenn bandaríska landgönguliðsins til að gæta Bandarísku stofnunarinnar í höfuðborg kínverska lýðveldisins Taívan, sem er Tapei, segja bæði SCMP og Stratfor. Eitt-Kína-stefna Bandaríkjanna er hér með varla lengur sú sem hún varð frá og með Richard Nixon. Á Taívan ríkir eina lýðræðislega kjörna ríkisstjórn Kína, yfir þeim hluta landsins sem kommúnistum tókst ekki að leggja undir sig með vopnaðri byltingu. Þegar kínverski kommúnistaflokkurinn var stofnaður 1921, voru meðlimir hans fimmtíu. Sú passandi stærð bíður flokksins á ný
En hvenær það gerist veit þó enginn, því veruleikafirrt samgöngumálaráðuneyti Eistlands (já í NATO) hefur snúið sér til Rússlands til að biðja þá um að greiða götur kínverskrar járnbrautar frá höfninni í Paldiski í Eistlandi til Changchun í Kína. Rússneski minnihlutinn í Eistlandi er um 25 prósent af íbúum landsins og klappar. Forseti Frakklands sagði líka í gær að "Evrópa" (hann meinar Brusselveldið, og helst undir hans stjórn) þyrfti að "nútímavæða" samband sitt við Rússland, sérstaklega á sviði öryggismála, til að styðja við "stöðugleika" í heimshlutanum (lesist: Evrópa er að hrynja vegna tilvistar ESB). Forseti Tékklands krefst einnig að slakað verði á kröfunum til Rússlands. Lesist; við í vösum Þýskalands erum að kafna og sú köfnun mun síst batna við það að gjaldmiðlar tveggja miljarða manna á útflutningsmörkuðum hins útflutningsháða Þýskalands, og ESB, hafa verið í næstum frjálsu 10 til 50 prósent falli frá áramótum; Indland (-10%), Tyrkland (-40), Brasilía (-20), Argentína (-45)
Í kosningabaráttu sinni sagðist Donald J. Trump ætla leggja pressu á Kína í þeim tilgangi að endurskilgreina samband ríkjanna tveggja, undir nýjum skilmálum. Samband ríkjanna hefur kallað fram félagslega krísu meðal stórs hluta bandarísks almennings og mjög svo víðar í hinum vestræna heimi
Fyrsta jarðsambandslausa kynslóð sögunnar? Náttúrubólan að springa?
"For example, he said, people who make their living on farms understand the nature of weather and seasonsall the cycles and elements involvedand do not over-romanticize the outdoors to the point where they would create dangerous situations for themselves or others. The more privileged urbanite, on the other hand, takes an abstract or romantic view when it comes to experiencing the outdoors that are not a part of the struggle to survive."
Fyrsta kynslóð fábjána flýgur nú um Vesturlönd í formi náttúru-ferðamanna sem stofna sér og öðrum í hættu. Engin önnur kynslóð í mannkynssögunni hefur vitað eins lítið um lífið utan borgarmúra Vesturlanda. Og engin önnur kynslóð í sögunni hefur eins abstrakt og rómantískar hugmyndir um náttúruna. Það er eignlega þetta sem Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur segir hér: Hanson: Struggle Between Elites And Masses Defines US Policy
Toppliðið í þessari kynslóð heldur meira að segja að heimurinn sé að farast, bráðna, þorna upp, gufa upp, steikjast og bara farast á alla mögulega vegu, eftir að hann átti að vera að frjósa í hel 1975. Efnahagslegar afleiður fáviskunnar sjást sem ferðamannabólur og þyrluflotar við björgunarstörf, þar sem bjánum er bjargað frá náttúru sem þeir halda að sé að verða uppseld
Í borgum sjást þessi fyrirbæri líka þeysast um í teygjubuxum á reiðhjólum, þar sem hvorki er pláss fyrir innkaupapoka með mjólk og mat fyrir fjölskylduna, né sæti fyrir börnin. Þegar ég sjálfur hjólaði í samfellt fimm ár, þá var ég oft með tvö börn mín á hjólinu, eitt í barnasæti á stöng, og annað í sæti ofan á bögglaberanum og með innkaupapokana hangandi um stýrið og að sjálfsögðu með dýnamó (rafal) til að hafa ljós í öllum veðrum. Bílar voru ekki á færi námsmanna og verkafólks, enda bjó ég í bílafjandsamlegri Danmörku DDR-Light, þar sem 180 prósent koma ofan í FOB-verð bíla, þannig að konan á búðarkassanum sem afgreiddi mig, neyddist til nota það sama og ég, til sinna ferða, og greiddi hún þó fulla skatta. Þarna kynntist ég manni sem átti Jagúar, af því að honum fannst Jagúar fallegasti bíll heims. En hann neyddist til að hafa fallega Jagúarinn sem punt inni í stofu hjá sér, því skráningargjaldið er eins og ég sagði: hvorki meira né minna en 180 prósent ofan í FOB, og því myndi hann aldrei í lífi sínu hafa efni á. Það er því ekki neitt skrítið að margir Danir kalli Danmörku fyrir DDR-Light (vægari útgáfan af Austur-Þýskalandi)
Ég hét því þá, að þegar þessu tímabili lífs míns væri lokið, að þá myndi ég aldrei nokkru sinni hjóla aftur. Og við það hef ég staðið. Egóistahjólandi bjánar í borgum heimta meira að segja í dag sérstaka gatnagerð úr vösum skattgreiðenda til sinna einkaafnota. Slík er teygjubuxna-geggjunin í borgum orðin, enda missa karlmenn náttúruna og þar með vitið á því að hjóla þannig. Þessir menn þurfa engar sérstakar hjólabrautir. Þeir geta bara hlaupið í vinnuna og stofnað mér sér hjólaklúbb og byggt þar sínar hjólabrautir sjálfir, fyrir sitt eigið fé. Annars heimta ég sjálfur sérstakar reiðbrautir fyrir hesta og einnig skíðabrautir á kostnað skattgreiðenda
Í dag ek ég um á 420 hestafla Jeep Cherokee SRT8 2007 og ætla aldrei að hjóla aftur. En ég geng og hleyp, og það er hægt að gera hvar sem er. Ég hef aldrei komið inn í svo kallaða líkamsrækt og mun aldrei leggjast svo lágt að stíga þar fæti mínum inn, að minnsta kosti ekki á meðan ég hef ókeypis rok og rigningu úti. Og svo er það bylurinn maður, og allt sveitamyrkrið góða. Kostar hvorki mig né skattgreiðendur neitt, og hefur ekki gert síðastliðin 30 ár. Verst hvað mér líst vel á nýja 2018 og 700 hestafla módelið af Jeep Cherokee SRT8 sem sjá má hér, undir heitinu Trackhawk. Samt grunar mig að ég endi á Wrangler eða RAM. Auðveldara að koma keðjunum undir
Fyrri færsla
Ráðherra Macrons segir af sér í beinni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 29. ágúst 2018
Ráðherra Macrons segir af sér í beinni
Skjáskot: Forsíða Wall Street Journal leiddi mann inn á þessa glæsilegu síðu blaðsins á mánudag
****
Frá franska hræðslubandalaginu í ESB
Fyrirvaralaust sagði Nicolas Hulot umhverfismálaráðherra Frakklands af sér í beinni útsendingu í gær. Hann segir að Emmanuel Macron sé orðinn bara enn einn áhrifalausi franski forsetinn í viðbót við þá sem sátu sem brusselskir prúðuleikarar á undan honum og töluðu hallamál, sem er eina löglega málið sem tala má, því annars hrynur evran, og þá hrynur "Evrópa", segir merkantelistínan Merkel, sem því aðeins heimilar innflutning á lifandi vandamálum inn í Þýskaland
Lítið gengur með neitt af kosningaloforðum Emmanuel Macrons. Þar er flest við það sama og síðast: stöðnun, stöðnun og meiri stöðnun. Franskur almenningur bíður enn eftir áhrifum þess á heimilisbókhaldið að hafa verið hræddur frá því að kjósa Marine Le Pen, sem talar bara frönsku en ekki hallamál. Þarna haggast lítið og ekkert bólar á bata í buddum fransks almennings. Og það þrátt fyrir að Macron hafi lofað að gera alla plánetna mikilfenglega á ný, þá virðist hann ekki einu sinni hafa getu til að gera hvað þá næstu götur við Élysée-hallarkynni sín neitt betri en þeir sem sátu þar síðast. Þetta mál kemur ofan í Benalla-málið þar sem Élysée-kontor Macrons neyddist til að hvorki neita né játa að sá öryggisvörður forsetans sem barði mótmælendur svæfi hvorki þar né vakti á götum úti. Franska þjóðin spáir því enn í hvers konar sambandi Macron sé við eiginkonu sína, og veltir vöngum. Mörgum frönskum finnst orðið að forseti þeirra sé ofvaxið barn
Karl-Marx-Stadt lifir enn í ESB
Hinn 30. mars 1990 mælti seðlabanki Þýskalands með því að gengi austurþýska marksins (GDRmark) yrði metið þannig að það fengist eitt Dmark fyrir hver tvö GDRmörk. Þessu var hafnað 1. apríl og hinn 2. maí var gengið sett fast á 1:1 fyrir fjármuni allt að 6.000 GDRmark og 1:2 fyrir hærri upphæðir. Seðlankinn beið lægri hlut | frá: Seðlabankinn og þjóðfélagið
"Sértu G20-velkominn til helvítis-ástands" er nú að breiða úr sér í Þýskalandi. Sumir muna kannski eftir því hversu gersamlega þýska lögreglan brást G20-fundinum í Hamborg. Framhaldsfundur var því haldinn í Karl-Marx-Stadt Chemnitz í Þýskalandi um helgina. Allt er þetta þýska teboð haldið í boði Angelu Merkel, sem í losti frá CDU-súrefnistjaldi sínu í bunker gegn þýsku þjóðinni, vinnur nú að gerð hjálparpakka til handa Tyrklandi, sem hætt er að geta keypt útflutning hennar vegna gengisfalls líru, en þó fyrst og fremst vegna þess að hún gerði samkomulag við djöfulinn (WSJ), sem hún þarf að greiða Erdogan fyrir, til að halda aftur af fjórum til fimm milljón flóttamönnum í Tyrklandi, sem hann að öðrum kosti sigar á þjóð hennar - og annarra, sem hún stjórnar gegnum ESB, eins og þegar hún gekk frá Grikklandi - og svo er það aðhlátursvirkið Schengen
- WSJ: Berlin fears a meltdown of the Turkish economy could spill over into Europe, cause further unrest in the Middle East and trigger a new wave of immigration toward the north. "We would do a lot to try to stabilize Turkey, a senior German official said. We dont have much choice."
Komið er nefnilega í ljós að þar sem Angela Merkel hefur drepið Grikkland alveg, þá er kannski hægt að senda Tyrklandi pakkann sem komst ekki í póstkassa Grikkja. Aðstoð við hið rússneskt eftirhermda ríki Erdogans í Tyrklandi, mun svo tryggja AfD-flokkinum völdin í Austur-Þýskalandi öllu og moka CDU-flokki Merkels út úr bunker. Og svo eru það október-kosningarnar í Bæjaralandi, þar er CSU-systurflokkur hennar nú fallinn úr 47,7 prósentum í kosningunum 2013 og niður í 36 prósent fylgi, eins og það mælist í dag. Og þessa dagana mælist AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) næst stærsti flokkurinn í öllu landinu. Flokkur Angelu Merkel er hins vegar fallinn niður í aðeins 28 prósent flokk í fylgi og SPD-flokk þýskra sósíaldemókrata tekur sig varla að nefna á nafn lengur
Austur-Þýskaland er enn svo gott sem fast á efnahagslegu klósetti miðað við Vestur-Þýskaland, þrátt fyrir endursameininguna 1990. Það mun taka 200 ár að jafna muninn, ef það þá nokkru sinni tekst. "Sértu G20-velkomin til helvítis-ástands" Þýskalands, hverfur ekki í bráð, heldur mun það bara versna, ofan í allt annað vont sem Merkel hefur framleitt af vandamálum handa Þýskalandi og flestum ríkjum ESB
Mattis segir (án ESB)
Að sögn "fjölmiðla" sagði James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í gær, að engar áætlanir væru um að fresta fleiri stórstíluðum heræfingum með Suður-Kóreu, af tillitssemi við Norður-Kóreu
Fyrri færsla
Búið ykkur undir nýja flugeldasýningu Norður-Kóreu [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 27. ágúst 2018
Búið ykkur undir nýja flugeldasýningu Norður-Kóreu [u]
Já
Vel getur hugsast að Bandaríkin séu í ró og næði að búa sig undir hernaðarátök við Norður-Kóreuútibú Kína. Það segja sum þau kínversku dagblöð sem koma út undir merkjum Norður-Kóreu í Norður-Kóreu. Sumir ríkisfjölmiðlar Norðursins þar sem allir fjölmiðlar eru ríkisfjölmiðlar, ásaka Bandaríkin um að vera þjálfa heri sína fyrir innrás, með innrásaræfingum frá japönsku Okinawaeyju yfir til Lúzon sem er stærst Filippseyja. Fjarlægðin þar á milli er svipuð og fjarlægðin er frá Okinawa til Pyongyang höfuðborgar Norður-Kóreu. Enn fremur halda ríkis-þeir því fram að liðsafli bandarískra sérsveita sé nú kominn til Jinhae í Suður-Kóreu, til þjálfunar þar. Suðurkóreönsk blöð segja að Moon Jae-in forseti Suðursins og Donald J. Trump (með Pattonían snilld "hvern einasta helvítis dag" (1. hluti er hér)) hafi ekki talað sama í tvo mánuði. Talsmaður Moon segir að hvell-aflýsing Donalds J. Trump á fyrirhugaðri ferð Mike Pompeo utanríkisráðherra hans til Norðursins, komi í veg fyrir fyrirhugaða opnun málalengingarskrifstofu Moons milli Suðurs og Norðurs. Líklegt er því að Norðrið munu kynna nýja kínverja á fyrirhugaðri hersýningu þar í ríki bráðum
Fjárfestar flýja nú Kína í stórum stíl, bæði erlendir en þó sérstaklega innlendir. Lítið fer fyrir því að lög og reglur gildi í Kína, svo best er að pakka saman áður en allt verður gert upptækt. Það er reynsla James D. Jameson, aðstoðarviðskiptaráðherra Bush forseta hins fyrsta. Jafnvel hann lét glepjast
Já já
En - já en - verðið á kínverskum dagblöðum er samt mörgum sinnum lægra en á íslenskum dagblöðum. Og ekki er víst að eingöngu sé við mismun á pappírsgæðum að sakast. Íslendingar eru því hvattir til að lesa kínversk dagblöð umfram þau íslensku, því þau kosta mörgum sinnum minna. Enginn getur látið slíkan verðmun fram hjá sér fara. Og ef þau fást ekki, þá er hægt að tala við utan ríkis ráðherra Íslands og hann mun greiða götur lesenda með innfluttum kínverskum dagböðum undir fána "frjálsra viðskipta"
Uppfært: Með hverjum deginum sem líður er mörgum að verða það æ meira ljóst að Bandaríkin geta ekki lengur verið aðili að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO á meðan Kína er það líka. Komið er að kaflaskiptum, því Bandaríkin og nánustu engilsaxnesku bandamenn þeirra, sem með baráttu sinni í Síðari heimsstyrjöldinni bjuggu til til þann frjálsa heim sem Kína var veittur aðgangur að, ætla ekki að láta taka sig og þann heim í nefið. Sárt er einnig fyrir þau ríki að horfa upp á Tyrkland afrita Rússlandsstjórnarfar Pútíns og innleiða stjórnarhætti hans í landi Erdogans. Nógu sárt var að horfa upp á hinn fyrrverandi rússneska bandamann sinn nota ekki tækifærið á meðan það gafst, til að ganga þeim aftur á hönd, er hlekkir Sovétríkjanna um ökkla þjóðarinnar loks féllu
Og já
Í fréttum í gær kom fram að aðeins einn aðili kann að reka matvöruverslun á Íslandi. Og það eru Fjarðarkaup. Allir hinir leggja stund á sóun fjármuna eigenda
Fyrri færsla
Staða vinstrimanna í dag er vond
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Sunnudagur, 26. ágúst 2018
Staða vinstrimanna í dag er vond
Páll Vilhjálmsson benti á súrrealískan Egil Helgason í gær. Sú ábending átti einkar vel við. Af aðdáendunum skulu menn þekkja góðu fréttamennin. Time bað líka um að fá að taka mynd af Steve Bannon, ráðgjafa Donalds Trump, sem er fyrrum starfsmaður á öskuhaugum, sjóliðsforingi og bankamaður, og fékk það. En svo birtist hins vegar myndin af Steve sem stafræn afbökun á forsíðu tímaritsins, þar sem húð og andlit fórnarlambsins voru hönnuð til með hatri og fyrirlitningu Time á kjósendum Trumps. Það þarf jú að selja þetta tímarit góða fólksins
Þegar vinstrimen ruddu sér til rúms sem stjórnmálaflokkar sósíaldemókrata og vinstrimanna í byrjun 20. aldar, var allt vont í þessum heimi hinum efnuðu og ríku að kenna. Þá voru það kapítalistarnir sem voru þeir vondu. En svo urðu vinstrimenn efnaðir -oft sem opinberir starfsmenn og menntamenni úr miðaldalegu heiðnikirkjuveldi háskólanna- og þá breyttist pólitísk stefna þeirra í það, að allt vont í þessum heimi væri minna efnuðu og fátæku fólki að kenna, það er að segja, kjósendum Trumps, Brexit og andstæðingum landráðalegra Icesave samninga. Allt vont er þeim að kenna
Þetta er staða vinstrimanna í dag. Þeir vondu í dag, eru fátæklingarnir sem stefna vinstrimanna bjó til. Það eina sem hræsni-stefna vinstrimanna gat yfir höfuð búið til
Fimm auðveldar fyrri færslur
- Breytingaöldin mikla er hafin
- Lýðræði hefur sín takmörk
- Nú segjast þeir geta í evrum í ESB
- Bandarískir fjölmiðlar í dauðadansi
- Áhlaupið á íslensku krónuna (ritgerð)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. ágúst 2018
Breytingaöldin mikla er hafin
Breytingar
Sovétríkin hrundu => Breyting
Múrinn féll => Breyting
Maastricht kom => Breyting sem hefði ekki gerst án þessa
NATO hætti að skipta Þýskalandi máli => Breyting
NATO hætti hins vegar ekki að skipta önnur ríki máli => Óbreytt staða þar
Afleiðingar
Rússland breyttist
Þýskaland breyttist
Tvö breytt evrópsk stórríki byrja að hugsa sig um og endurmeta stöðu sína í breyttum heimi. Staða þeirra í heiminum er breytt, vegna þess að þau-sjálf breyttust
Mikilvægast
En það sem er þó mikilvægast að hugsa hér, er að afstaða þessara tveggja ríkja til hvors annars er gerbreytt. Enginn veit með vissu hvað þau hugsa með tilliti til hvors annars
Er Þýskaland á leið austur? Já sennilega. Óútreiknanleiki hefur einkennt tilvist Þýskalands öll árin frá 1871. NATO er byrjað að þvælast fyrir hagsmunum Þýskalands. Fyrir þau ríki í Evrópu sem heita ekki Þýskaland, er NATO því byrjað að virka sem verndarstofnun þeirra gagnvart Þýskalandi
Spennið beltin, því hagsmunir Þýskalans liggja ekki lengur á sama stað. Evrópa er byrjuð að óttast Þýskaland á ný og það með réttu, því frá og með nú eru helstu hagsmunir Þýskalands þeir að skapa stöðugleika í Þýskalandi, sem hægt er að nota til að skapa óstöðugleika í Evrópu. Og það hefur Þýskalandi tekist mjög vel, verður að segjast
Bandamaður þeirra landa í Evrópu sem heita ekki Þýskaland eru Bandaríki Norður-Ameríku - og það á einnig við um Frakkland. NATO stendur frá og með nú frammi fyrir nýjum ógnum í fæðingu
Fyrri færsla
Ástralía bannar kínverska tækni - Þýskaland og Trump - Microsoft og Trump
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 24. ágúst 2018
Ástralía bannar kínverska tækni - Þýskaland og Trump - Microsoft og Trump
Mynd: Forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump
****
Ástralska ríkisstjórnin heftur bannað að tæknivörur frá kínverska Huawei fyrirtækinu séu notaðar í tæknilega innviði nýs 5G-netverks Ástralíu, sem er í smíðum. Þetta er gert vegna þjóðaröryggis Ástralíu, sem þar með flygir Bandaríkjunum að máli í þessum efnum og ríkisstjórnin reynir samhliða að minnka eyðnivægi stjórnmála kínverskra kommúnista í heimshlutanum
Þegar Ástralía lagði inn pöntun á nýjum kafbátum fyrir flota sinn á síðasta ári, áttu flestir von á því að Ástralir myndu velja bandaríska kafbáta, því þeir smella sem innfæddir inn í varnarmálakerfi landanna. En ástralska ríkisstjórnin ákvað hins vegar að kaupa nýju kafbátana frá Frakklandi, til að reyna þannig að viðhalda áhrifum Frakklands í heimshlutanum. Ástralir lögðu þar með lykkju á leið sína vegna þjóðaröryggis landsins. Hið sama ræður för í uppbyggingu ástralskra innviða. Þetta mun í sívaxandi mæli eiga við í fleiri löndum. Kínverskri tækni er ekki treystandi í innviðum Vesturlanda
Donald J. Trump er nú farinn að líta á Evrópusambandið sem tollrænt fjölþjóðafyrirkomulag (e. multilateral) sem af prinsippástæðum er ekki hægt að gera tvíhliða viðskiptasamninga við. Eðlislægur og þar með fastbyggður viðskiptaójöfnuður milli ESB-landanna sjálfra, innan ESB, og svo út á við, en þá sem ein heild, gagnvart umheiminum, kemur í veg fyrir það, því þar með er ljóst að viss lönd í sambandinu nota það til að dulbúa sig í heiminum á kostnað annarra. Þetta fékk hann margstaðfest er hann þráspurði Angelu Merkel um möguleikann á tvíhliða viðskipasamningum milli Bandaríkjanna og Þýskalands. Landamæratollar og gengisfölsunar- og virðisaukaskattamótvog er því sennilega það sem Trump mun grípa til gagnvart Þýskalandi, sem er í þann mund að senda út fréttatilkynningar um stærsta viðskiptahagnað nokkurs lands á kostnað annarra í sögu mannkyns
Ríkisstjórn Donalds J. Trump er einnig að rannsaka viðskiptahætti Microsoft í Evrópu. Fyrirtækið er grunað um að hafa selt hugbúnað sinn á gjafverði til aðila í austurhluta Evrópusambandsins, sem selja hann síðan til ríkisstjórna í þeim hluta ESB fyrir fullt verð, en nota hins vegar mismuninn til að múta hinum sömu ríkisstjórnum í ESB til kaupanna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 151
- Sl. viku: 730
- Frá upphafi: 1404479
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 472
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008