Leita í fréttum mbl.is

Sovéski Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýja 10-ára áætlun

Þarna slær endanlega út á þeim perum sem enn virkuðu í forystunni. Með þessu getur flokkurinn orðið fyrstur slíkra flokka í heiminum til að leggja sig alveg orkulaus af. Hann gæti þar með orðið það sem aðeins örverpi geta boðið upp á; að vera fyrst í heiminum til að hætta að draga andann

Engar langdrægar eldflaugar (e. intercontinental ballistic missiles) voru heldur á hersýningum í tilefni 70 afmælis Norður-Kóreu um helgina. Þær hafa annars verið fastar eldhúsinnréttingar þar. Kannski að Kim sé genginn í Sjálfstæðisflokkinn

Síðasta 10-ára áætlun flokksins var kynnt af þáverandi menntamálaráðherraínu hans og hét hún -sennilega áætlunin- Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins, þar sem sambandið átti að vera orðið ríkasta hagkerfi heimsins árið 2010. Síðan það markmið átti að nást, eru liðnir 3175 dagar, en ekkert hefur gerst nema stórkostlega aukin fátækt þar

Og ég sem vonaði að eitthvað annað, til dæmis heilaþvottur yrði bannaður

Bjarni, þú gætir þjóðinni alveg að kostnaðarlausu orðið fyrstur í heiminum til að gera eitthvað annað en þetta. Til dæmis að segja af þér formennsku. Það kostar þjóðina ekkert. Þar með gætir þú orðið fyrsti stjórnmálamaðurinn í heiminum til að gera eitthvað fyrstur af öllum á þinn eigin kostnað áður en þú eyðileggur Sjálfstæðisflokkinn alveg. Ekkert rafmagn getur bjargað krónísku sambandsleysi þínu við íslensku þjóðina, né hvað þá heldur við Sjálfstæðismenn hennar

FÍFL!

Fyrri færsla

Sveik NATO Rússland?


mbl.is Stefna að bensín- og dísilbílabanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Getur hann sýnt þjóðinni og flokknum þá tillitssemi að segja af sér?

En kannski hann taki nú upp einarða stefnu gegn Þriðja orkumálapakkanum frá Evrópusambandinu og komi í veg fyrir (eins og hann sem forsætisráðherra og leiðandi í ríkisstjórn sannarlega getur), að það mál fari í gegnum Alþingi.

Jón Valur Jensson, 10.9.2018 kl. 16:49

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Síðasti fíflagangur stjórnmálastéttarinnar var áróður hennar fyrir dísilfólksbílum. Það kostaði það að olíuverð rauk upp í hæstu hæðir árum saman á meðan þessi stétt jós út niðurgreiðslum til kaupa á "umhverfisvænum" dísilbílum í Evrópu og íslenskir stjórnmálamenn smituðust líka og töluðu eins og þráðbeinar ESB-gúrkur um það mál

Þetta er hlutur sem stjórnmálamenn eiga ekki að koma nálægt. Bara ekki snerta. Ein af ástæðunum er sú að raforkuframleiðsla er mjög svo víða á höndum ríkisins því enginn vill fjárfesta í þeim geira sökum þess að ríkið -heiladofin höfuð á framfærslu skattgreiðenda- yfirstýrir algerlega öllum raforkumálum. Enginn vill heldur ríkisrekinn olíumarkað.

Og í öðru lagi vita allir hugsandi menn að öllu umhverfi jarðar yrði að rústa ef knýja ætti öll ökutæki með rafmangi, sem stendur fyrir 75 prósentum af því sem verið er að reyna að minnka.

Ofan í þetta koma þúsund önnur atriði, stór og smá, sem mæla algerlega á móti þessu. Einkafjárhagslega (micro) og þjóðhagslega (macro) og svo rústun markaða og rústun akkerisfesta væntinga á markaði og rústun fullkominnar tækni sem virkar. Og sem heldur áfram að virka þó svo að allar stíflur Íslands séu sprengdar í loft upp. Ekkert öryggi er þarna um að ræða. Heldur aðeins útópísk þvæla úr forheimskuðu fólki sem veit ekkert hvað það er að gera. Ekkert!

Eitt er að núverandi innviðir á þessu sviði virka fullkomlega vel og geta varla virkað betur, vegna þess að það tók langan tíma að þróa og fullkomna hann, með tilraunum og þróun sem gaf okkur bestu hugsanlegu útkomuna í passlegum skrefum. Þessum reglum um þróun og fullkomnun á vegum markaðsafla verður að fylgja.

Þetta hindurvitna rugl umhverfisfasista á vinstri-grænum-sterum nýmarxista er það sem menn eiga að óttast. Enginn þarf að óttast neitt annað en einmitt það. Fólk á hér að óttast eyðileggingu stjórnmálamanna og tortímingu auðs að þeirra forskrift. Ég endurtek: Tortímingu auðs! 

Það er EKKERT sem mælir með þessu. EKKERT nema rugl úr höfðum vafasamra manna. 

Aðeins FÍFL falla fyrir þessum söng.

Fyrst var það kjarnorkan sem átti að bjarga öllu. Enginn vill fjárfesta í þeirri tækni í dag. Síðan kom vetnisrugl Íslendinga sem er algert fíaskó. Svo kom dísilþvaður fyrir fjölskyldubíla og sem var einnig fullkomið þvaður og geðbilun.

Burt með kámuga fingur ykkar frá ferðafrelsi fólksins. Burt með fingur ykkar frá grunnfrelsi fólksins.

Burt með ykkur!

Gunnar Rögnvaldsson, 10.9.2018 kl. 17:29

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sjálfsmorð núverandi stjórnarflokka í beinni. Vel af sér vikið.

Kolbrún Hilmars, 10.9.2018 kl. 19:11

4 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞEIR FINNA ALTAF eitthverja aumingjaflokka til að skríða aftur inná þing !

 OG HEFJA SVO AÐFÖR AÐ LANDSMÖNNUM- AFTUR- OG AFTUR- MAFÍNA Á ISLANDI  !

Erla Magna Alexandersdóttir, 10.9.2018 kl. 19:23

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Erla það fer nú aðverða lítið eftir af þeim,fáum einhvern okkar til að stökkva.

Helga Kristjánsdóttir, 10.9.2018 kl. 19:52

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Las viðtal við þingflokksformann Framsóknar, þar sem hann sagði að á næsta þingi yrðu stjórnarþingmenn að standa þétt saman, af einurð. Þegar hann var spurður, í sama viðtali, um orkupakka ESB, sagði hann að á honum væru tvær hliðar, svona eins og menn segja þegar þeir eru röklausir.

Því var ekki annað hægt að skilja, á þingflokksformanninum, en að stjórnarþingmenn þyrftu að standa þétt saman gegn kjósendum sínum.

Þessi frétt var reyndar ekki í Bændablaðinu, svo vonandi er þetta bara falsfrétt!

Varðandi fréttir dagsins, sem pistill höfundar þessarar síðu er um, þá er ljóst að þar hefur ein skelfilegasta falsfrétt sögunnar náð að sýkja allan þingheim!!

Gunnar Heiðarsson, 10.9.2018 kl. 19:53

7 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sæll Gunnar

Alltaf á að gera betur en aðrir. Minnimáttarkenndin ríður ekki við einteyming heldur birtist hún í óþoli. Nýlega burstuðu Svisslendingar "okkar fótboltamenn." Ósköp gott að kenna nýjum þjálfara um. Á örríkið alltaf að vera í fréttum stærri ríkja fyrir að skora? Í raun og veru er verið að gera misheppnaðar tilraunir til að vera ofurmenni. Sýnast í útlandinu.

Í fréttum RÚV í kvöld var mannsalsræða íslensk fulltrúa á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna ein aðalfréttin. Muna ekki fréttamenn RÚV eftir falsaðri mannsalafrétt á Akureyri fyrir nokkrum misserum. Líklega ekki, því þeir bera enga ábyrgð þótt þeir leggi fyrirtæki í rúst með tilbúnum "sovétfréttum."

Von að þú hafir áhyggjur af "sovésku" flokkunum í ríkisstjórninni.

Sigurður Antonsson, 10.9.2018 kl. 20:51

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir öll.

Þetta fer að minna á Icesave-tímabilið þar sem meirihluti íslensku stjórnmálastéttarinnar skreið niður í vasa erlendra elíta og snéri þar bökum saman í samsæri gegn þjóðinni.

Að horfa á varaformann Sjálfstæðisflokksins í Kastljósi DDRÚV, var eins og að horfa á hana sem pottinn og pönnuna í miðilsfundarhaldi sértrúarsafnaðar kuklara. Það var beinlínis óhugnanlegt. Hún er greinilega ekki nógu gömul til að hafa vit. Hún virðist vera eins og formaðurinn hefur því miður allt of oft verið: talsmaður gjaldþrota sérfræðinga sem segja hvað á að hugsa og hvaða skoðun á að hafa. Ég get varla með góðu móti stutt þetta veruleikafirrta Parísar-lið lengur, því það er greinilega að verða sömu beinlausu fuglarnir og í Icesave.

Og svo gaf hún í skyn að hún vildi losna við fólk yfir 25 ára aldri úr Sjálfstæðisflokknum og láta fyrstu kynslóð Íslandssögunar sem kemur fávísari út úr skólunum en hún fór inn í þá, um að halda fylgi hans uppi (þ.e. niðri). Síðasti varaformaður Sjálfstæðisflokksins af sama kyni var af sama skúffelsi - og meira að segja pólitískur fábjáni.

Það eina sem þessari forystu Sjálfstæðisflokksins tekst virkilega vel er að halda fylgi flokksins niðri. Það tekst henni vel. Hún mylur fylgið undan flokknum, það má hún eiga.

Af hverju opnar þetta fólk ekki krúttlegan ferðamannaskúr úr gömlu drasli og heldur þar sýningu á hinu gamla flygi flokksins, sem afi og amma stóðu fyrir.  Það er IN í dag.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.9.2018 kl. 21:06

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er orðinn munaðarlaus greinilega. Ég á ekki samleið með þessu liði þengur

Halldór Jónsson, 10.9.2018 kl. 21:41

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já það er að verða þannig Halldór.

Mig langar mest að keyra þriggja hásinga steypubíl upp að stjórnar,- iðnaðar,- umhverfis,- og fjármálaráðuneytinu, þynna, láta renna og steypa þetta lið fast í stólana - og aldrei að slá utan af. Það væri að minnsta kosti viturlegra og nytsamra en að fylla upp í skurði.

Þvílíkt apabúr sem þetta er orðið!

Gunnar Rögnvaldsson, 10.9.2018 kl. 22:04

11 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sammála flestu hér að ofan.

Aldrei hefði ég trúað því að horfa uppá annað eins

apaþing og við höfum núna.

Flestir sem þar sitja, hafa aldrei unnið handtak

í venjulegri vinnu sem almúginn þarf að gera.

Búnir/in að vera á jötunni frá því þeir/þau

ústskrifuðust úr skóla og þykjast vita manna

best hvernig almennileg vinna eigi að fara fram.

Það er sama hvert er litið á Íslandi, það er allt í

allgjörri klessu vegna fólks sem er búið er að koma

sér fyrir í embættismannkerfinu og tala nú ekki

um í pólitíkinni.

Flest allt fólk sem þykir sjálfsagt að þiggja laun

fyrir ekkert.

Gylfi hafði kannski rétt fyrir sér í þessu, þegar

hann lýsti því yfir að Ísland yrði eins og Kúba

norðursins ef ICESAFE yrði ekki samþykkt.

Það þurfti ekki þá samþykkt til.

Allir trojuhestar og landráðamenn eru nú

þegar búnir að sanna hans kenningu.

Sigurður Kristján Hjaltested, 12.9.2018 kl. 02:22

12 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Forsetinn; "Til hvers er fullveldi þegar fólkinu líður illa"
Honum er tíðrætt um hamingju sem getur ekki tengst stjórnmálum.

Helga Kristjánsdóttir, 12.9.2018 kl. 05:34

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir innlitið Sigurður.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2018 kl. 06:04

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga.

Forsetinn er bara dæmigerður vinstrimaður. Sama sögðu menn í undirbúningsnefnd síðustu Alþjóðabyltingar.

Allar þjóðir hafa rétt á því að láta sér líða illa og allar þjóðir hafa rétt á því að kjósa sér þann forseta sem þeim sýnist.

En þjóð er ekki persóna. Hún er þjóð.

Grikkjum leið oft vel þegar þeim leið illa.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2018 kl. 06:10

15 Smámynd: Jón Valur Jensson

Guðni var kosinn forseti Íslands með aðeins 39,08% atkvæða, litlu meira en Salvador Allende fekk í kosningu sinni til forsetaembættis í Chile 1970 (36,2%).

Allende átti sína samúð skilda, en hefði mátt vera þrefalt meiri stjórnvitringur til að takast það sem hann ætlaði sér.

Við skulum bara vona, að Guðna verði gefin stjórnvizka til að standa aldrei í vegi íslenzkra fullveldisréttinda (þrátt fyrir undarleg ummæli hans um fullveldi í þingsetningarræðu í gær), og fyrir þessu  biðjum við í raun í sérhverri sunnudagsmessu. smile

Jón Valur Jensson, 12.9.2018 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband