Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Þýskaland að mjaka sér úr ESB?

Perspektíf Þýskalands

Mynd: Geopólitískur útsýnisgluggi Þýskalands

****

Mathieu von Rohr blaðamaður á þýska Spiegel skrifaði að mati Eurointelligence hrollvekju um aftaka Angelu Merkel sem formanns þýska kristilega demókrataflokksins (CDU), þ.e. sé litið burt frá misheppnaðri og tímabundinni örformennsku Annegret Kramp-Karrenbauer. Nýr arftaki Merkels var nefnilega kjörinn um daginn og heitir hann Armin Laschet:

Samkvæmt von Rohr er Laschet-maðurinn mikill stuðningsmaður Bashar al-Assad forseta Sýrlands. Árið 2018 hélt þessi nýi formaður CDU því fram að Bandaríkin væru stuðningsmenn Ríkis íslam (ISIS). Dreifði hann fölskum yfirlýsingum um að efnavopnaárásin á Ghouta 2013 hefði verið verk ISIS, þrátt fyrir að öll sönnunargögn bentu til þess að ríkisstjórn Assad forseta hefði verið þar að verki. Þá skrifaði Armin Laschet, nú formaður CDU, að eina lausnin í sýrlensku borgarastyrjöldinni væri þátttaka Rússlands

Mathieu von Rohr blaðamaður bendir einnig á að það sé óvenjulegt að stjórnmálamaður CDU-flokksins sé nákominn Valdímír Pútín forseta Rússlands. Hinn nýi formaður CDU-flokksins hefur einnig margsinnis kvartað yfir "and-Pútín stemmingu" í Þýskalandi

Armin Laschet hinn nýi formaður CDU er einnig mikill stuðningsmaður NordStream2 gasleiðslunnar milli Rússlands og Þýskalands. Hann dró einnig í efa og gerði lítið úr upplýsingum Bresku leyniþjónustunnar um að það hefði verið rússneska novichok eiturefnavopnið sem beitt var á Sergei Skripal og dóttir hans Bretlandi

Segir von Rohr að það sé óhugsandi að engar þessara yfirlýsinga Armin Laschet, nú formanns CDU, hafi verið ræddar þegar valið á nýjum formanni flokksins fór fram um daginn. En það endurspegli hins vegar eðli þorpsstjórnmálamenningar Þýskalands sem ríkis

Eurointelligence endar umfjöllun sína þann 19. janúar með þeim orðum að annað hvort sé um risavaxin mistök að ræða, eða þá, og það sé enn verra, að um komandi geópólitískt endurskipulag á stöðu Þýskalands í heiminum sé að ræða - og það án þess að þýska þjóðin viti neitt um það

Árum saman hef ég bent á að Þýskaland sé að endurreikna stöðu sína í heiminum. Að enginn hafi í raun vitað hver geopólitísk staða landsins frá stríðslokum sé, og allra síst undir blekkingartímabili þess í Evrópusambandinu, þar sem landið samkvæmt til dæmis ráðum Helmuts Schmidt íklæddist skikkju til að villa á sér heimildir

Fyrir þá sem áhuga hafa á forsögu málsins, sjá vefsetur stofnunar Margrétar Thatchers: 1) Britain and the origin of the EMS. 2) Bundesbank Council meeting with Chancellor Schmidt [declassified 2008] ásamt skjali númer 111553

Fyrri færsla

Wuhan-veiran finnst í kínverskum ís


Vatnaskil í alþjóðavæðingu tölvunargeirans. Pólland grípur til sinna netráða

Ross Perot og Steve Jobs

"Think different" [og þú verður tekinn úr sambandi] - var ekki það sem Steve Jobs meinti með þessu slagorði. Þarna sést hann á mynd með repúblikananum og um tíma óháðum Ross Perot, sem hjálpaði honum á fætur eftir eftir að Steve var rekinn frá Apple og byggði þá með aðstoð Perot upp Next, sem síðar varð kjarninn í Apple er Steve snéri aftur til að bjarga sökkvandi skútu sykurvatnsmanns, með einu stórkostlegasta "turnaround" fyrirtækjasögunnar. Steve hefði kosið Trump því hann trúði á framfarir og vissi vel að þeim fylgdu næstum ófrávíkjanlega umbrot. Í dag hefði hann sennilega rekið Tim Cook forstjóra Apple fyrir IBM-heimsku. Risa-EDS tölvunarmaðurinn Ross Perot er sá óháði forsetaframbjóðandi sem náð hefur mestum árangri í sögu Bandaríkjanna, fyrir utan Teddy Roosevelt. Hann felldi George Bush eldri í forsetakosningunum 1992. Einnig hann þekkti IBM-heimsku manna best, enda átti hann ávallt bara eitt par af skóm

****

ÁRÁS HEIMS-TÖLVUNARKLÍKU

Alþjóðavæddur gagna- og upplýsingageiri veraldar varð fyrir ofurfyrirsjáanlegri tölvuárás undanfarna daga. En í þetta sinn kom árásin innan frá. Var henni beint að eina landskjörna fulltúra bandarísku þjóðarinnar; forseta hennar. Hann skyldi tekinn úr sambandi við kjósendur, og þeim í staðinn stungið í einokunarsamband við þessa (NGO) klíku ókjörinna og fossríkra manna. Hvað gerist næst? er því ófrávíkjanlegt og augljóst mál. Sú alþjóðavæðing sem kom gagna- og upplýsingageirum þjóðríkja í einokunarsamband við þessa fámennu klíku plebba með háskólagráður, mun snúast við og taka enda eins og gerst hefur á öðrum sviðum veraldar, frá og með 2008; Tölvunar-Brexit-Trump mun eiga sér stað. Enginn er óhultur lengur með gögn sín og tölvunargetu í höndum umræddra gagna-baróna. Það er hér með bæði sannað og staðfest. Og engar ríkisstjórnir né stofnanir þjóðríkja geta lengur verið þekktar fyrir úthýsingu til annarra landa í þeim efnum. Heldur ekki fyrirtæki veraldar. Umrædd úthýsing reyndist verk plebba - eins og í bóluefnismálum. Eina ástæðan fyrir því að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni er komið á tröppur þjóða núna, er grjóthörð samkeppni milli landa og fyrirtækja þeirra. Lesið varir mínar: úthýsing er óafsakanleg á flestum sviðum. Hún festir afturfarir í sessi

PÓLLAND GRÍPUR TIL SINNA RÁÐA

Pólska ríkisstjórnin, sem rétt svo nýlega sloppin er undan síðasta þöggunar-skriðjökli kommúnista á borð við þá sem nú eru að reyna og hafa að hluta til gert bandaríska demókrataflokkinn að flokki hinna fossríku ríkisbubba aðeins, er hoppandi reið yfir því sem fram fer á veraldarvefnum núna. Hún er því að smíða ný lög sem veita framkvæmdavaldinu heimildir til að sekta til dæmis "félagsmiðla" um 1,5 milljón evra fyrir hvern þann tilburð netfyrirtækjanna til ritskoðunar á tjáningu Pólverja á netinu sem stenst pólsk lög. Hart verður látið mæta hörðu

TVÍÁLA ÁSTAND BEGGJA MEGIN ATLANTSHAFS

Aðgerðarsinnar stormuðu þýska þingið í ágúst í fyrra. Ástæðan var sögð aðgerðir stjórnvalda þýsku ríkjanna sem mynda sambandsríki Þýskalands í sóttvarnarmálum. Þar eins og í Ameríku eru það ríkin en ekki forsetinn eða kanslarinn sem ráða framkvæmd sóttvarna. Í Hollandi réðust bændur með dráttarvélum sínum á ríkisstjórnarbyggingar vegna samsæriskenningasmiðju stjórnmálamanna um "losanir" vegna áburðar. Ekki er þó átt við að heilabú ríkisstjórnarmanna hafi losnað og þau farin að skrölta sbr. losun, en það er þó ekki fjarri lagi

Samningar Angelu Merkel við kínversku alræðisstjórnina um 135 milljarða evru "fjárfestingar" mun ekki fara vel í landsmenn hennar og heldur engan annan í Evrópu og NATO, því það inniheldur engar varnir fyrir gögn borgaranna, og hún neitaði ennfremur að skilyrða þær því að þvingað þrælavinnuafl ríkisstjórnar Kína væri ekki hluti þess. Donald J. Trump forseti hefur til dæmis bannað kínversku Alipay greiðsluþjónustuna því gögn hennar eru nú á leið í vasa Kínverska kommúnistaflokksins, sem tekið hefur hana til meðferðar vegna valdaógnar hennar við alræðisveldi Kommúnistaflokksins

Í tannhjólandi Þýskalandi halda menn hins vegar bara áfram að stæra sig af því að vita sem minnst um tölvunar- og gagnamál, sem bera má saman við að monta sig af því að hafa ekki kunnað tal-í-síma-brölt er talsíminn komst í almenna notkun í þróaðri löndum veraldar fyrir 120 árum síðan

GOTT OFBELDI OG SLÆMT OFBELDI

Bandaríski demókrataflokkurinn virðist nú aðhyllast ofbeldi með því að flokka það í slæmt og gott ofbeldi. Þegar flokkurinn með aðstoð "félagsmiðla" –og peningagjafa frá forstjórum þeirra– hvetur til óeirða í landinu, þá er það samkvæmt þessu látið ganga óáreitt fyrir sig og alls ekki fordæmt þó svo að 700 bandarískir lögregluþjónar þjóðarinnar liggi í valnum, flestir meiddir og slasaðir, en sumir látnir. Byggingar og hverfi borgaranna hafa verið bæði hertekin og brennd niður, og einkafyrirtæki lögð í rúst og þar með ævistarf þeirra sem þau stofnuðu og ráku. Ástandið var orðið svo slæmt að versalnir og íbúar negldu krossvið fyrir gluggana rétt fyrir forsetakosningarnar í nóvember, vegna þess að þeir voru orðnir næstum vissir um að Trump myndi vinna þær. Takið eftir að fólk var ekki hrætt við stuðningsmenn Trumps, heldur þann skríl sem rasar á götum landsins með óformlegum stuðningi Demókrataflokksins, sem neitar að fordæma ofbeldi þeirra þegar þeir tapa, eins og þeir gerðu 2016 og sennilega 2020 líka, en það á þó enn eftir að koma í ljós því Trump hefur enn ekki játað sig sigraðan og þar með ekki viðurkennt úrlistin sem flokkur Joe Bidens ætlar að byggja forsetatíð hans á

NIÐURLAG (sólarósamkomulagið)

Alþjóðavæðingin, þ.e. tilraunir elíta til heimsstjórnunar, berst um á sama dánarbeðinu og Evrópusambandið hefur verið fast á síðastliðin 35 ár. Pendúllinn hefur nú flutt á þann stað í sveiflunni að hann getur ekkert annað farið en til hægri, segir Pat. Kannt þú hægri stjórnmálamaður góður? Eða ertu kannski bara að bíða eftir að þér sé skammtað bóluefni frá Evrópusambandinu samkvæmt bænaskjali  – og "mátt því ekki vera að þessu"

Fyrri færsla

Gagnaveitur í Bandaríkjunum loka fyrir Facebook og Twitter [u]


mbl.is Hvíta húsið birtir ávarp frá Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófriður í Washingtonborg [u]

Á sama tíma og Kínverski kommúnistaflokkurinn lét handtaka 53 virkustu og lýðræðis-hlynntustu stjórnmálamenn Hong Kong, þá eyddi Angela Merkel kanslari Þýskalands og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tíma sínum í að útdeila ákúrum á forseta Bandaríkjanna á meðan þær létu Peter Stano, sem er talsmaður Josep Borrell varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, um að tísta um framferði Kínverska kommúnistaflokksins, sem Merkel er nýbúinn að semja um "fjárfestingar" við

****

Skilaboð Trumps forseta síðdegis 6. janúar 2021

Þessi skilaboð Trumps forseta síðdegis í gær má sjá hér. Þessa færslu forseta Bandaríkjanna ritskoðaði Twitter burt

****

Vegna þess sem rætt var um í síðustu bloggfærslu og þess sem hefur verið að gerast í aðalstöðvum umboðsmanna bandarísku þjóðarinnar í dag, þá kom meðal annars þessi athugasemd:

"Gunnar; þinn maður er aldeilis að gera gott mót í höfuðborginni núna.

Þegar lögin virka ekki, þá er besta að taka þau í eigin hendur og þramma inn með stuðningsfólkið á þingið...."

ÞESSU SVARAÐI ÉG SVONA

Þakka ykkur fyrir Sigfús og Brynjar. Það er hægt að hafa ýmsar skoðanir á forsetakosningunum í Bandaríkjunum. En miðað við það sem þið vinstrimenn stóðuð fyrir hér á Íslandi eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna, eru þetta smámunir sem eru að gerast í Washingtonborg núna

Og þetta eru smámunir miðað við það sem Demókratar hvöttu til og heppuðu áfram í Bandaríkjunum síðasta vor og sumar, þar sem vinstriskríll hertók borgarhluta og brenndi niður einkaeigur og lífsverk saklausra borgara, mánuðum saman!

En staðreyndin er samt sú að 46 prósentur bandarísku þjóðarinnar trúa því í einlægni að kosningarnar séu svikin vara. ÞAРeitt og sér ER vandamál, og sem ætti ekki að gerast

Við erum líklega að horfa á stofnanakreppu (e. institutional crisis). En samt hafa Bandaríkin ekki fallið niður á planið sem Evrópusambandið hefur verið á í 30 ár: þ.e. að krefjast þess að kosið sé aftur og aftur þegar því líkar ekki úrslit kosninga og að vinna að því frá útlöndum að ógilda þjóðaratkvæði bresku þjóðarinnar í fjögur ár

Það góða er þó það að Bandaríkjamenn munu ekki leyfa stofnanakreppukepp á borð við Evrópusambandið að þróast óáreitt í 30 ár, án þess að nokkuð sé gert og aðhafast til að stöðva hann og bæta úr málum

Þetta núna og kosningarnar 2016 þar sem Demókratar heimtuðu líka rannsókn á kosningunum og reyndu að fá þær ógiltar í að minnsta kosti þremur ríkjum, er merki um að fólk sé hætt að treysta þeim stofnunum sem á að vera hægt að treysta

Að öðru leyti vísa ég ykkur á næstu verslun þar sem snuð fyrir smábörn fást. Væl ykkar er aumkvunarvert

Uppfært:

UM STOFNANAKREPPUR BANDARÍKJANNA

Ég myndi telja að kosningasvik séu mun alvarlegri árás á lýðræði en það sem gerðist við þinghús Bandaríkjanna í gær. Munurinn á því sem gerðist í gær og á kosningakerfissvikum, er sá að það sem gerðist í gær er sýnilegt, en kosningasvik fara ósýnilega fram eins og þegar Lehmansbræðrabankinn var tæmdur án þess að neinn stæði þar í biðröð fyrir utan. Sama má segja um það þegar íslensku bankarnir voru tæmdir innanfrá. Hingað til hafa allar athafnir stuðningsmanna Trumps verið friðsamlegar, og þetta sem gerðist í gær á eftir að rannsaka. Ekki er hægt að segja hið sama um það sem Demókratar hafa stutt við bakið á síðustu 12 mánuðina. Hafa ber í huga að 19 ríki Bandaríkjanna hafa reynt að fá hæstarétt landsins til að taka málið um kosningakerfissvik í fjórum ríkjum fyrir

3. Síðasta og þriðja stofnanakreppa Bandaríkjanna snérist um að endurskilgreina hlut og hlutverk alríkisstjórnarinnar í hagkerfinu og í stríðsrekstri á erlendri grund, og þá þýðingu sem slíkt aukið hlutverk hafði á allt hagkerfi þjóðarinnar og líf borgaranna

2. Þar á undan snérist önnur stofnanakreppa Bandaríkjanna um hvort væri æðra og réði málum við úrlausn vandamála: ríkin sjálf eða alríkisstjórnin, og kom hún í kjölfar borgarastyrjaldarinnar

1. Fyrsta stofnanakreppa Bandaríkjanna snérist hins vegar um sköpun alríkisstjórnarinnar, því uppsetning ríkjasambandsins (e. Articles of Confederation) virkaði ekki

4?. Í dag erum við sennilega að upplifa endalok þriðja stofnanatímabils Bandaríkjanna. Við tekur áratugur þar sem alríkisstjórnin mun þurfa að endurskilgreina samband sitt við sjálfa sig. Hún er farin að snúast of mikið um sjálfa sig og farin að lifa sínu eigin lífi (til dæmis með því að hýsa og ala við brjóst sér "djúpríkið")

Um þetta má meðal annars lesa í nýlegri bók George Friedmans sem kom út í ársbyrjun 2020: "The Storm Before the Calm", en Friedman er ansi glúrinn geopólitískur strateg. Segir hann að stofnanakreppur Bandaríkjanna komi á um það bil 80 ára fresti, og að í hvert sinn endurnýi þau sig og komi enn sterkari út að þeim loknum

En í þetta skiptið er staðan erfið, segir Friedman, því síðasta 50 ára félags- og efnahagslega hagsveifla Bandaríkjanna er að enda samhliða því að þriðja stofnanatímabilið er að enda líka. Þar á hann við að sjálf 50-ára hagsveifla örgjörvans er að enda samhliða því að síðasta stofnanatímabilið er að enda líka. Slíkt hefur aldrei áður farið saman. Þar á undan var það 50-ára hagsveifla bílaiðnaðarins sem endaði í kringum 1965. Og á undan henni hafði 50-ára hagsveifla rafvæðingar endað, er úr henni varð daglegt brauð og hún hætti að rúma alvöru nýjungar og vöðvaafl fremstu hátekju-fjárfestingartanka veraldar

Því miður drukknaði sjálf kynning bókarinnar í því írafári sem Friedman hafði spáð, og vegna heimsfaraldursins tók það Amazon hálft ár að koma henni yfir annan helming Atlantshafsins og hingað upp í Borgarfjörð til mín. En biðin var þó vel hennar virði

EFTIRMÁLI

Enginn veit enn hvað verður hið næsta og stóra "nýjasta nýtt", en það verða svo sannarlega ekki rafhlöður á hjólum né nýjungar úr tölvunarheiminum, því einnig hann er orðinn daglegt brauð og meira að segja daglegt rúgbrauð; hann er orðinn old-low-tech. Bandaríska þjóðin er kröfuhörð á nýjungar og framfarir og sættir sig ekki við stöðnun

Að setja hjól undir miðstýrðar ríkishlaðnar rafhlöður svarar ekki einu sinni til þess er vængir voru settir á vélknúin ökutæki, sem þá urðu að flugvélum. Rafhlöður svara í raun bara til Sovétríkjanna. Þarna er ekkert nýtt að gerast, bara gamalt. Sprengimótorinn sem mengar ekkert og skilar engu ónýttu út gæti þess vegna verið á tröppunum, án þess að neinn viti neitt um það. Slíkt skellur bara á, en breytir samt engu frekar en rafhlaða eða dísill breytti neinu nema því að ný ostategund bættist við á hillurnar. Og ef hillurnar verða of sovéskar þá er bara ostur fyrir ríkisbubbana á þeim, en fólkið áfram svangt

Fyrri færsla

Farið að fara um vélstjóra kosningasvikavélar Demókrata 


Dópstöðin EES

Vegna þessarar fréttar mbl.is

Helga Kristjánsdóttir skrifaði eftirfarandi athugasemd við síðustu færslu:

"Dálkahöfundur -NYT- Roger Cohen segir að Trump forseti geri atlögu að hjarta lýðræðisins og beri ekki virðingu fyrir sannleikanum....

Hér tökum við undir með Gunnari sem minnir okkur reglulega á hreint óþolandi framkomu stjórnvalda sem draga Ísland í aumingjaklúbbinn EES.

Af hverju svíkja menn þjóð sína? Sé það rétt að það séu peningar og völd, gerðum við bara í því að eyða hvorutveggja, jú allur heimurinn væri eftir allt með; Það finnast önnur ráð"

Svar mitt er þetta:

1. Ég les ekki New York Times og mun aldrei lesa það aftur, því það er ónýtt rusl og skólpveita

2. Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja er gert óverjanlegt með hálf-sovéskum samningum, sem stjórnmálamenn þola ekki að umgangast, þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið

Um þetta snýst Evrópusambandið og ekkert annað. Það er svarthol fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóða. Það er dópstöðin fyrir pólitíska dópista

Það er ekkert bóluefni til við ESB/EES-fíkninni, eins og svo greinilega sést á krónísku deleríum heilbrigðisráðherrans. Tremminn kemur næst

Já Helga, það finnast önnur ráð: AFVÖTNUN

Fyrri færsla

Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis


mbl.is Hafa ekki rætt veitingu bráðaleyfis á undan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis

Telegraph: "Europe’s vaccination fiasco threatens to become the EU’s biggest failure

The politicisation by Brussels of Covid vaccines is turning into an economic and political black swan event – with a huge price to pay"

Niðurlag greinar AEP: "Ef að elítur Evrópusambandsins skilja ekki enn að þetta mál [bóluefnismálið] mun vinda sig upp í einn mesta, alvarlegasta og misheppnaðasta atburð í sögu sambandsins, þá munu þær komast að því bráðum." – Ambrose Evans-Pritchard viðskiptaritstjóri Telegraph þann 23. desember 2020

****

UM EKKERT-FLOKKANA

Nú þegar ljóst er að nær allir stjórnmálaflokkar Íslands eru orðnir batik-kerlingaklúbbar umhverfis EES-klúðurelda ríkisstjórnarinnar í bóluefnismálum, þá er vert að taka eftirfarandi fram og undirstrika:

ÖRYRKJABANDALAGIРESB

Evrópa frá og með tilurð Evrópusambandsins 1992, er orðin meginland sem snýst ekki um neitt annað en innanríkismál. Og mun það jafnframt aldrei geta snúist um neitt annað. Heimsálfan hefur engin áhrif út á við í heiminum og er hún jafnframt algjörlega misheppnuð elítustappa innávið. Ekkert meginlandsríki Evrópu hefur áhrif á neitt sem er að gerast í heiminum og hafa þau jafnframt lítil eða jafnvel enn minni áhrif á gang eigin mála. Þau fljóta bara stjórnlaust um í ESB-skólpinu og eru öll að farast, hvert á sinn hátt. Varla er hægt að ímynda sér verra ástand fyrir neitt ríki veraldar en það að vera í Evrópusambandi og EES

Telegraph: "In my view we are heading into a year where German popular support for the European Project will be stress-tested like never before. Two grave matters will intersect. It will become clear to all that the fundamental health security of the country has been endangered by EU politics. At the same time, monetary union will go through another spasm of tension." – AEP

LANDLÆST

Einu lönd álfunnar sem nokkru sinni haft hafa heimsáhrif, eru þau ríki sem liggja út við Atlantshaf. En um leið og Spánn og Portúgal, þ.e. Íberíuskagi, gengu í ESB, hurfu þau eins og Svíþjóð hvarf inn í svarthol Evrópusambands Þýskalands og Frakklands, og urðu þar með landlæst ríki sem ekkert geta. En þau tvö, þ.e. Þýskaland og Frakkland eru æðstu prestar Evrópusambands í einskonar innvortis og útópísku Kant-þorpi, sem klemmt og lokað er inni á milli Rússlands í austri, Tyrklands og Miðausturlanda í suðri, og Bretlands og Bandaríkjanna í vestri. Því meira ESB, því meira líkjast ríkin í sambandinu ríkjum Norður-Afríku, eða eins konar kalífat-stöppum þess heimshluta

Þessi nú landlæsti og seigfljótandi massi af mestu töpurum mannkynssögunnar, er það sem eftir er af Evrópusambandinu eftir að Bretland fór. Athugið að brottför Breta jafngildir því að hagkerfi þessara 19 landa yfirgæfu sambandið sama daginn:

Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki

Það tekur sig ekki einu sinni að nefna Frakkland –þar sem búið var að bólusetja 125 manns í gær– á nafn lengur, því einnig áhrifamáttur þess á heimsvísu er orðinn að barmafullum og landlæstum afþýðingarbakka neðst í merkantílisma-ísskáp Stór-Þýskalands, sem er nýlenduherrann yfir þessu "öllu". Hefur Þýskaland heldur ekki nein áhrif í veröldinni önnur en þau að halda nýlenduherradæmi sínu saman með nýlendumyntinni evru, og að sjúga upp, en ekki skapa, eftirspurn frá borgurum annarra ríkja. Þýskaland er algjörlega ófært um að skapa sína eigin eftirspurn innanlands, svo getulaust og úrkynjað er það orðið sem sennilega mesti tapari mannkynssögunar, og er það því enn á örorkubótum frá Bandaríkjunum þegar að tilvistarlega mikilvægum málefnum lífsins kemur; þ.e. sjálfu lífinu og dauða

ESB og EES ER HEILABILUN

Það jafngildir því heilabilun að húkka sig EES-fastan við þennan sökkvandi ryðhrúgudall sem Evrópusambandið er. Og sést það skýrast á nýjasta nýlenduklúðri ríkisstjórnar Íslands þegar að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni kemur. Hvílík smán fyrir okkur Íslendinga að vera í EES. Já hvílík smán!

Ég óska lesendum gleðilegs nýs árs og þakka ykkur fyrir þau liðnu

Ég læt þó það standa áfram sem ég sagði um ríkisstjórn okkar í þessum málum á Þorláksmessu. Það var og er þetta hér:

****

Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er

Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?

ER ÞETTA HEILBRIGT?

Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni

Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum

Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar

Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?

Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?

ENN ALLT Í KLÚÐRI

Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB

Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf

Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast

Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina

Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi

HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR

Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!

Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis

Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar

AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI

Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma

Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt

HEFND

Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!

Fyrri færsla

Bjarni brýtur reglur og brýnir enn fallöxina á flokkinn


Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er

Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?

ER ÞETTA HEILBRIGT?

Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni

Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum

Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar

Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?

Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?

ENN ALLT Í KLÚÐRI

Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB

Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf

Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast

Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina

Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi

HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR

Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!

Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis

Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar

AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI

Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma

Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt

HEFND

Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!

Fyrri færsla

Jólagjöfin: Kórónuveiran breytist í EES-veiruna


mbl.is Bóluefni tryggt fyrir 127% Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjöfin: Kórónuveiran breytist í EES-veiruna

SAMSTAÐA ESB og EES UM FLEIRI DAUÐSFÖLL OG MEIRA HRUN

"Frá og með nú verða Wuhanveiru-dauðsföllin kannski ESB-dauðsföllin"

"From now onwards, Covid deaths may be EU deaths"
– Eurointelligence 21. desember 2020

Þetta skrifar teymi Wolfgangs Munchau á Eurointelligence í dag. Þar segir að svo virðist sem Evrópusambandið hafi fórnað lífi og heilsu íbúa ESB- og EES-ríkja á altari vangetu fyrirtækja sem þurfa á vernd ESB að halda gegn framförum frá Bandaríkjunum. Bóluefni voru ekki pöntuð hjá þeim sem hafa þau og eru best, heldur var ákveðið að bíða eftir því sem kannski kemur eða kemur ekki, og virkar kannski eða kannski ekki. Ákveðið var að enginn mætti vera bestur í bóluefnum gegn Wuhanveirunni og að bíða yrði eftir að franska fyrirtækinu Sanofi tækist að koma með sitt efni til að jafna út það sem þýska fyrirtækið Biontech í samstarfi við bandaríska Pfizer er að gera, og sem þess vegna var ekki hægt að panta því þar kemur einstakur árangur ljóshraða-áætlunar Trumps inn og það gengur ekki. Drepist fólkið frekar undir kvótakerfi okkar um ESB-dauðsföll

"We and others have already questioned why the EU is so late with the approval of the two vaccines that are ready to roll out: one is the German-developed vaccine by BioNTech. The other is a US-developed vaccine by Moderna. The UK started vaccinations on December 8. The first EU vaccine will not be deployed until December 28, almost three weeks later. Considering current infection and death rates, thousands of people could die because of this delay alone.

But, as Spiegel reports, the situation is even worse. The EU did not buy adequate supplies of the two vaccines currently ready for roll-out. Under the EU distribution key (sbr. að Bandamenn hefðu átt að bíða eftir að vanþróuðu ríkin hæfu vopnaframleiðslu svo að þau gætu verið með í því að frelsa heiminn undan oki nasisma og kommúnisma, GR), Germany will receive only 55.8m doses of the BioNTech vaccine. You need two doses per person. For Germany, with a population of over 80m, the estimate is that you need some 140m doses to reach herd immunity. But as Spiegel reports, there will not be enough vaccines unless governments start to go rogue, decouple from the EU, and buy their own supplies. This is something Germany had studiously hoped to avoid in order to preserve solidarity among member states.

Why is there a vaccine shortage? The reason, according to Spiegel, is that the European Commission wanted to achieve parity between the German BioNTech and the French firm Sanofi. We want to point that we have no means to ascertain the veracity of that accusation. Sanofi is also developing a vaccine, but its trial has not gone well. So, the article is making the serious accusation that the European Commission is risking the lives of people for the commercial benefit of a French company. The article also says that the Commission denied that it had been under pressure from Paris on this issue.

The publication of this story has already had one effect: As Bild reports this morning, the Germans are now starting to secure their own national supplies, bypassing the EU."

Grein Eurointelligence um hið nú banvæna bóluefnamál ESB og EES lýkur hins vegar á þessum orðum um svipað banvænt og umboðslaust fyrirbæri ESB:

"If the EU is less effective in a particular field than national governments, it is best to forgo European integration in that particular field. Especially if people die as a consequence. This is the reason why we are warning against ill-thought-through concepts of a European army. From now onwards, Covid deaths may be EU deaths." - Eurointelligence

Ríkisstjórn Íslands friðar veiruna og fórnar þjóðinni á EES-altarinu. Hún hefur ákveðið að sýna samstöðu með veirunni. Hún er hætt að gæta hagsmuna Íslands en gætir í staðinn hagsmuna togstreitufélags ESB, þar sem heilsu manna er fórnað fyrir hagsmuni hinna fáu og vonlausu - því með öryggi má segja að útópían um ESB hafi sannað sig sem vonlaust og illkynja nýsovéskt fyrirbæri, og sem versta efnahagssvæði sögunnar í hinum þróaða hluta veraldar, miðað við forsendur

Nú má líklega með öryggi segja að nær allir íslenskir stjórnmálaflokkar og flestir alþingismenn nema þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins séu slæmur félagsskapur manna. Við höfum ávallt vitað að vinstriflokkarnir byggja pólitík sína á slæmum kenningum slæmra manna, en nú virðist svo komið að jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn, minn flokkur, sé orðin slæmur félagsskapur í sjálfu sér, og þoli ekki lengur að umgangast sjálfan sig vegna vinstrimennsku þingmanna hans, sem hver á fætur öðrum sýna sig sem verandi nytsamir kjánar

EES-samningurinn mun á endanum murka lífið úr þjóðinni og standa einn eftir sem pestarkarlar Brussels. Þingmenn okkar þoldu ekki að umgangast þá umboðslausu mafíu og urðu sjálfir að hálaunuðum vesalingum undir Brussel, eins og raunin varð á nýlendutíma Íslands hinum svarta, undir erlendu valdi og ofríki

Þetta er nú meiri hryllingurinn. Evrópusambandið og tenging Íslands við það (EES) er að breytast í þriðja heims fyrirbæri eins og Sovétríkin voru, og skýrir það auðvitað áhuga vinstrimanna á Evrópusambandinu frá og með 1991. Þeir sáu náttúrlega strax að hið gamla EEC/EB-tollabanalag breyttist þá í nýtt yfirríkis-sovét þegar það varð að ESB með Maastrichtsáttmálanum það árið. Þá fyrst hoppuðu vinstrimenn um borð og tóku Evrópusambandið yfir og gerðu það að framhaldsríki hinna nýföllnu Sovétríkja kommúnista. En nytsamir kjánar hoppuðu auðvitað með þeim um borð í nýja sovétið, eins gerst hefur í sögu allra sovétríkja mannkyns

Við erum í virkilega vondum félagsskap með EES-samningnum. Þeir sem segja annað eru einungis nytsamir kjánar - og sannir bjánar

Tengt

Bænaskjal til nefndar um bóluefni í Brussel

Ísland í ESB-klúðrinu (staðfest)

Fyrri færsla

Já. Bandaríkjahatur ESB kostar mannslíf og hefur ávallt gert [u]


Já. Bandaríkjahatur ESB kostar mannslíf og hefur ávallt gert [u]

MBL: EVRÓPUSAMBANDIÐ MISSTI AF BÓLUEFNALESTINNI

Donald Trump að snæðingi 500 px

Mynd, Donald J. Trump. Eini maðurinn sem kunni og gat. Og afhenti vöruna í réttu ásigkomulagi á réttum tíma, og sennilega undir fjárhagsáætlun eins og hans er von og vísa. Hann stóð við sitt

****

ESB-HRYLLINGURINN HELDUR ÁFRAM

..."og sló ESB meira að segja hend­inni á móti mörg hundruð millj­ón­um skammta frá Bi­ontech og Moderna." - Mbl

Hinn sanni tilgangur með stofnun Evrópusambandsins sýnir sig. Sjálf stofnun og þróun sambandsins snérist aldrei um annað en að skaffa töpurum meginlandsins fjarvistarsönnun og sótthreinsunarmiðstöð frá eigin gjaldþrota fortíð, pólitískri úrkynjun og áhrifamissi á heimsvísu, og svo um að ná sér niðri á þeim sem komu meginlandi Evrópu fjórum sinnum til tilvistarlegrar björgunar 1917, 1942, 1949-1990 og síðar 2008-2015. Það þoldi Evrópuaðallinn ekki. Hann varð að hefna sín með stofnun Evrópusambands sem enginn vildi fá nema elítan, því engin þörf var nokkru sinni fyrir það. Þekur nú sovétjökull sambandsins allt meginlandið og ófriðarskýin hrannast upp yfir Evrópu

- uppfært

Innbyrðis valdabarátta ESB-ríkjanna er nú að hvell-herðast eftir að Bretland fór og einbeita ríkin sem eftir sitja sér að því að kúga og henda hvort öðru sem mest um koll og nauðga nýliðum. Valdabaráttan nú er svo hörð eftir að Bretland fór, að meira að segja Frakkland og Þýskaland tilheyra ekki lengur sömu landaklíkum innan bölvunarsambands ESB, því nú hafa Frakkland og Miðjarðarhafslöndin bundist bandalagi um að kúga foss fjár út úr norðrinu fyrir það eitt að vera áfram með nýlendumyntina evru, enda hefur hún lagt efnahag þessara ríkja í rúst og varpað þeim í skuldafangelsi. Styttist því í að skuldafangarnir kveiki í evruseðlum Þýskalands til að kynda upp kalda kofana í orkuskortsbandalagi ESB, sem virkar eins og bóluefnaskortsbandalagið. Bretland mun síðan á einn eða annan hátt –viljandi eða óviljandi– sjá til þess að fleiri ESB-lönd komi sér út úr kuldanum sem nú ríkir bak við járntjald Evrópusambandsins

Norðrið lemur á suðrinu sem reynir að lemja til baka. Tvö öndverð bandalög þar. Vestrið lemur svo á austrinu sem reynir að verjast, en á erfiðara með það eftir að Bretland fór. Önnur tvö öndverð bandalög þar. Innan norðursins eru síðan tvö öndverð undirbandalög þegar hentar og sem berja á hvort öðru. Og innan kjarna ESB er samstaða Þýskalands og Frakklands fallin í sundur og þau komin í tvær öndverðar afstöður til grunnleggjandi mála, og eru því tvö bandalög við lýði þar með tilheyrandi fjölda dagskráa. Ekkert þessara banda-banda-bandalaga hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta, nema þá þeirra að reyna að kúga sem mest af auðæfum og völdum út úr hvort öðru áður en allt hrynur og brennur til grunna. Enginn í Róm, París eða Berlín ætlar að koma Póllandi til aðstoðar ráðist Rússar þar inn, því löndin eiga ekki sameiginlegra hagsmuna að gæta. Og nýlendumyntin evra hentar að sjálfsögðu engu landanna því hún endurspeglar ekkert nema þá helst verð hrísgrjóna hinumegin á plánetunni í höndum spákaupmanna kínverska kommúnismans, sem nú eiga stóran hluta fyrirtækja meginlands Evrópu

Ekkert hefur breyst í Evrópu þrátt fyrir þá potemkim-fjarvistarsönnun og sótthreinsunarmiðstöð fyrir genetískan komma-nasisma sem sett var upp með sjálfri tilvist Evrópusambandsins, svo að stærstu ríkin gætu á auðveldari hátt kúgað þau minni án fjárfestinga í hergögnum og setuliðum. Land Þjóðverja sem ekkert þóttust sjá né vita er enn Þýskaland í felum og Frakkland er enn Frakkland, að eilífu 1789-sjóðandi að innan og á barmi upplausnar. Hafa stjórnmálin í öllu ESB því þegar verið þjóðnýtt. Þau mega aðeins snúast um samruna og nýlendustefnuna, sem eru uníversal-imperíal pappírspólitískur kommanasismi ESB

En eins og lesendur vita voru stjórnmálin í Sovétríkjum kommúnista og í Þýskalandi nasista þjóðnýtt í báðum ríkjum: þau máttu aðeins snúast um kommúnisma og nasisma og dómstólar þeirra dæmdu samkvæmt því. Í ESB dæmir æðsti dómstóll sambandsins samkvæmt hugmyndagloríunni um samruna. Ekkert má stangast á við hann og stjórnarskrá ESB sem snýst um samruna

Lou Dobbs ræðir við Brett P. Giroir hershöfðingja, einn af stjórnendum Ljóshraðaáætlunar Trumps um Bóluefni-strax, prófanir og dreifingu (e. Operation Warp Speed, Bandaríska varnarmálaráðuneytið)

****

Svona er að vera beintengdur við pólitíska úrgangsveitu hálfsovéskra ESB-komma og svokallaða "alþjóðlega samvinnu" um að ná sér niðri á Bandaríkjunum. Þarna finnur fólkið hvernig lyktin er í þeim tanki. Alþjóðleg samvinna snýst næstum alltaf um að ná sér niðri á öðrum og hafa ESB-kommar og SÞ-kommar hálaunaða atvinnu af því. Við byggjum enn í grjóthellum ef "alþjóðleg samvinna" hefði átt að sjá um framfarir mannkynsins. Allir væru enn að bíða eftir öllum

Ef við á Íslandi erum að lenda í þessu ESB-ógeði um bóluefni þá þarf að leysa alla ríkisstjórn okkar upp í hennar eigin óefnum og urða hana sem þjóðhættulegt efni. Kosningar strax, séum við að lenda í þessu þriðjaheims-kartelsukki Evrópusambandsins líka

Hvað er þessi tenging okkar við þetta ógeðslega Evrópusamband ekki búin að kosta Ísland. Jú: 1) Bankabrandara-bandalag sem leiddi til fjármálahruns. 2) Eitrunar stjórnmála á Íslandi. 3) Óheft innflæði ósjálfbjarga aumingja. 4) Markaði okkar í Rússlandi. 5) Innleiðingu á viðurstyggilegri, Guðlausri og þjóðtortímandi sovéskri löggjöf sambandsins. 6) Fullveldi okkar í orkumálum og fleiri málum. 7) Eurosclerosis og úrkynjun. Listinn er endalaus...

Þessu öllu þarf að segja upp! Samleið okkar er með Bandaríkjunum, Kanada og Stóra-Bretlandi. Við verðum að hafa beint samband við okkar eina tilvistarlega bandamann: Bandaríki Norður-Ameríku. Beint samband strax um bóluefni!

Það er algjörlega óþolandi að við séum hangandi föst aftan í nómenklattúru-misfóstri Evrópusambandsins

The Telegraph 5 desember 2020

****

Skjáskot: Breska Telegaph kom þegar þann 5. desember 2020 auga á toppinn á bóluefna-borgarískjaka ESB. En hann virðist þó miklu verri, stærri og lífshættulegri en þar er getið

Fyrri færsla

Svíþjóð misheppnuð. xD líka?


mbl.is ESB missti af bóluefnislestinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíþjóð misheppnuð. xD líka?

Úttekt á veiru-viðbrögðum sænska ríkisstjórnarhermisins í ESB kom út fyrr í þessari viku. Þar segir að Svíþjóð hafi mistekist að glíma við einu frumskyldur sérhverrar ríkisstjórnar í mannheimum; sem eru þær að vernda líf, limi og eigur borgaranna. Allt annað geta borgararnir sjálfir séð um sé út í það farið, nema dómsmálin og löggæsluna

Allt hefur mistekist í glímu ESB-ríkisstjórnarhermis Svíþjóðar við kínversku Wuhanveiruna: 1) smitvarnir, 2) meðferð sjúklinga, 3) rekstur sjúkrahúsa og 4) hvíldar- og hjúkrunarheimila. Sem sagt fullt sovét þar

Síðar í vikunni kom svo hugrakkur Karl Gústaf Svíakonungur fram og sagði hið sama, eftir að hafa ráðfært sig við pappírsbunka rannsóknarinnar, sem er rúmlega 300 blaðsíður, því aldrei bregðast Svíar pappírnum, þó svo að þeir bregðist á öðrum sviðum. Vilji maður losna við Svía þá hendir maður pappírsbunka fyrir hann og er hann þá úr sögunni. Ekkert þarf samt að standa í þeim og eru þeir þá sænsk tré, eins og Danir segja

Eftir að Sovétríkin féllu er Svíþjóð eina land heimsins þar sem hugtakið borgari vekur sjálfvirkar og genetískar grunsemdir um svik við alræði kommúnismans. Það eru því engir borgarar í Svíþjóð lengur, eins og sést

Á meðan hefur stór hluti þingamanna Sjálfstæðisflokksins gert sig að eins konar viðrinum þegar að kínversku Wuhanveirunni kemur. Bjarni Benediktsson formaður flokksins og stjórnarmaður í imperíal AIIB-banka Kínverska kommúnistaflokksins, hoppaði sem sannur ESB-vinstrimaður upp úr grunni sjálfstæðisstefnunnar er Donald J. Trump forseti lokaði á alla Schengen-stalínveituna, eins og hún hafði þá lagt sig sem stjórn,- ábyrgðar,- og umboðslaust viðrini Evrópusambandselíta, og mörgum sinnum verri en ekkert

Guðlaugur Þór utanríkisráðherra og fóstureyðingarfrömuður hinna hálfsovésku vinstrimanna pantaði í samskonar vitstola ESB-kommakasti símafund með utanríkisráðherra Bandaríkjanna og gerði sig að allsherjar gerpitrýni sem æðsti diplómat Íslands, ásamt fullkomlega clueless ferðamálaráðherra xD sem hafði mestar áhyggjur af komum ferðamanna þess ríkis sem flutti Wuhanveiruna út yfir heimsbyggðina á meðan öllu var skellt í lás heima og fólk logsoðið fast inni í híbýlum sínum eða sett í gúlag

Það er heldur betur munur á honum og Gunnari nafna mínum Braga, sem sá um að höggva af landinu okkar hina gerspilltu og ógeðslega illa fengnu umsókn Vinstri grænna og Samfylkingar inn í Evrópusambandið. Takk SDG og Gunnar Bragi! En Gunnar Bragi var æðsti diplómat Íslands og þar með Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sjálfstæðismanns er þá var æðsta pólitíska höfuð Íslands sem forsætisráðherra. Eins og menn eiga að vita þá dílar Evrópusambandið ekki við þjóðþing landa heldur aðeins við pólitísk yfirhöfuð ríkja (e. heads of States)

Aldrei hefðu Bjarni Ben og Guðlaugur Þór afrekað slíkt. Það er öruggt. Hundrað prósent öruggt. Þeir hefðu hummað allt fram af sér því um viðreisnarsjúkdóm kratismans er hjá þeim að ræða. Er hann smitsamur vinstrisjúkdómur í báðum flokkum xD-kratismans

Síðan koma Sigríður Á. Andersen og LoL-frístundastjórnmálarinn Brynjar Enn, sem ofan í Bjarna og Guðlaug hafa opinberað sig sem verandi álíka jarðsambandslaus viðrini og þeir. Það gerðu þau með því að afneita því eina sem hægt er að gera í veirumálinu, vilji menn koma í veg fyrir byltingar og stjórnlausan tréballaisma sem leiðir til myndunar nýrra sovétríkja

Winston hefði sennilega neyðst til að stinga þessu xD-fólki inn á stríðstímum, þar sem það gæti starfrækt kenningardeild eða leshring um einstaklingsfrelsi í Maófötum í friði

Hefði þetta fólk nú eytt bara einu grammi af orku sinni í það að koma í veg fyrir að fullveldi Íslands í orkumálum væri sent til útlanda, í stað þess að eyða henni í ofangreindar grasbjánasyrpur, þá hefði kannski verið hægt að kjósa þau næst. En nei; það gerðu þau ekki, enda er ekkert þessa fólks sjálfstæðismenn. Þau eru öll pólitísk viðrini og dómgreindarskertir allaballar í eins konar Mí Tú Plebbahöll

Enginn þessara þingmanna Sjálfstæðisflokksins veit hvað né hvar Íhaldsstefnan er, enda er flokkurinn okkar að sökkva sem botnlaust rekald undir þeim. xD er því orðinn botnlaus, raðdómgreindarskertur og fullveldistortímandi miðstöð viðrina. Sný ég mér því annað næst, eða að minnsta kosti á meðan sökk xD heldur áfram á vakt þessa vinstrisinnaða ESB-tvíburafólks í xD og Viðreisn

Fyrri færsla

Hver verður næsti dómsmálaráðherra Bandaríkjanna undir Trump?


Tvö komma sex prósent hagvöxtur á Íslandi núna

Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2020

Mynd, Hagstofa Íslands. Landsframleiðslan á þriðja fjórðungi 2020

****

Þegar þjóðhagsreikningauppgjör Hagstofunnar yfir þriðja fjórðung ársins er skoðað, stendur þrennt upp úr:

1. Hagvöxtur fjórðungsins varð minni en hann hefði þurft að vera vegna ótímabærrar landamæraopnunar þrýstihóps sem eyðilagði fyrir einkaneyslu í landinu öllu. Heil þjóð þurfti að skríða inn í skelina til þess að nokkrir erlendir ferðamenn, þrælar og flökkulýður hins glataða sovétjökuls Evrópusambandsins gæti náð að komast hingað inn til að eyðileggja fyrir hinum 93 prósentum hagkerfisins. Annars hefði einkaneyslan verið sterkari og lyft landsframleiðslunni meira upp, dregið úr áföllunum og bætt varnarstöðu ríkissjóðs þjóðarinnar

Leirdúfurnar við stjórnvölinn framlengdu framboðskreppunni með því að koma í veg fyrir staðfasta og pottþétta sótthreinsun við landamærin, og gott ef þeir hafa ekki eyðilagt jólafjórðunginn líka. Ekki er hægt að hafa mjöl í munni og blása á sama tíma. Einkaneyslan hefði átt að getað lyft sér um 20-30 prósentur og vöruskiptin væru mun betri ef leirdúfur stjórnmálanna hefðu ekki látið höfuð sín sogast inn í svarthol Schengen og EES-samningsins. Enginn eftirspurnarkreppa ríkir, heldur aðeins framboðskreppa stjórnmálamanna

2. Óheft flæði af innfluttum matvælum eyðileggur fyrir innlendri framleiðslu. Þeirri umræðu hafa fríverslunar-hagfræðingar um allan heim tapað og gert sig sjálfa og fag sitt að bergmálshelli fyrir 0,1 prósentu mannkyns. Enginn tekur mark á því fólki framar þegar að trúarbrögðum þeirra um "frjálsa verslun" milli landa kemur. Við erum að glíma við stórkostlegt innflæði frá sovét-styrktum láglaunalöndum Evrópusambandsins og sem aldrei verða annað en einmitt stálfátæk og strategísk láglaunalönd. Þetta verður að stöðva áður en EES-samningur Íslands við svarthol sem sogar allt til sín nær að eyðileggja okkur enn meira að innan en orðið er. Núll komma eitt prósentuliðið verður að loka inni í eins konar akademískum munkaklaustrum þar sem það getur talað innbyrðis um "fríverslunarkenningar" á himnum uppi án þess að eyðileggja efnahag þjóðarinnar sem býr í raunheimum

How economists lose the argument Eurointelligence 27 nóv 2020

Mynd: Skjáskot af Eurointelligence 27. nóvember 2020. Hvernig hagfræðingar töpuðu umræðunni um "frjáls viðskipti". Þau eru aldrei "frjáls", nema í bergmálshellum. En svo koma leðurblökurnar og þá...

****

Verndartollar eru komnir til að vera. Þið 0,1 töpuðuð gegn okkur 99,9. Og enginn hefur áhuga á innfluttum hagfræðingum, heldur ekki niðurgreiddum og allra síst trúarpólitískum - ófærum um að greina sjálfa sig sem dauðvona viðrini á langlegudeildum kratismans

3. Lækka verður skatta á fyrirtækum og einstaklingum, og það er meðal annars hægt með því að skattleggja til dæmis innflutta rafbíla til jafns við aðra bíla. Þeirri viðurstyggilegu og trúarpólitísku sovétstrategíu græna hálmmánans verður að linna áður en hún gerir landið okkar gjaldþrota, ekki bara fjárhagslega heldur andlega líka. Græn mygla í þjóðarhag og í höfðum manna er mygla, jafnvel þó svo að hún sé græn. Grænt er orðið hinn nýi litur alræðis-sovétríkja nútímans. Rautt að innan en grænn að utan. Enginn munur miðað við síðast, sama gamla sovétið og ávallt áður, en nú sem afturganga fáránleikans

Fyrri færsla

"We the People": Endurtalning ólögleg í Georgíu?


mbl.is Samdrátturinn miklu meiri á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband