Leita í fréttum mbl.is

Dópstöðin EES

Vegna þessarar fréttar mbl.is

Helga Kristjánsdóttir skrifaði eftirfarandi athugasemd við síðustu færslu:

"Dálkahöfundur -NYT- Roger Cohen segir að Trump forseti geri atlögu að hjarta lýðræðisins og beri ekki virðingu fyrir sannleikanum....

Hér tökum við undir með Gunnari sem minnir okkur reglulega á hreint óþolandi framkomu stjórnvalda sem draga Ísland í aumingjaklúbbinn EES.

Af hverju svíkja menn þjóð sína? Sé það rétt að það séu peningar og völd, gerðum við bara í því að eyða hvorutveggja, jú allur heimurinn væri eftir allt með; Það finnast önnur ráð"

Svar mitt er þetta:

1. Ég les ekki New York Times og mun aldrei lesa það aftur, því það er ónýtt rusl og skólpveita

2. Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja er gert óverjanlegt með hálf-sovéskum samningum, sem stjórnmálamenn þola ekki að umgangast, þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið

Um þetta snýst Evrópusambandið og ekkert annað. Það er svarthol fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóða. Það er dópstöðin fyrir pólitíska dópista

Það er ekkert bóluefni til við ESB/EES-fíkninni, eins og svo greinilega sést á krónísku deleríum heilbrigðisráðherrans. Tremminn kemur næst

Já Helga, það finnast önnur ráð: AFVÖTNUN

Fyrri færsla

Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis


mbl.is Hafa ekki rætt veitingu bráðaleyfis á undan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gunnar minn það skal ég muna og létti svo við það sem þú skrifaðir. Ástæða þes að ég byrjaði svona var að ég las það í Mogganum og ætlaði mér miklu meira,en svo  minntist ég puttans á gula miðanum þá er hróið farið að skjálfa enda ein í þessu og engan að tala við 86 ára hró í eldúshjólastóli,Það er eins og ég se vöktuð (móðursýki!?) því stundum kemur skrattinn rétt þegar ég byrja,tilfing min er eins og einhver geti lesið það sem ég er byrjuð að skrifa.- Þetta hættir þegar ég kemst oftar út ég gefst ekki upp,því aðaláhugi minn er að geta stoppað þetta fólk. 

Helga Kristjánsdóttir, 3.1.2021 kl. 02:29

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Helga.

AMEN!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2021 kl. 02:36

3 identicon

Nú, þegar Bretar hafa yfirgefið ESB, þá er með ólíkindum að lesa pistil Styrmis um að Nonnabækurnar veiti okkur sérstaka velvild frá Þýskalandi, í krafti EES samningsins.

Þetta skrifar hann á sama tíma og nær öll smærri ríki innan ESB óttast vaxandi yfirgang Þýskalands, eftir að Bretar hafa yfirgefið ESB.

Allir þekkja svo til Schengen og EES ástríðu Björns Bjarnasonar.

En það er sem þú segir Gunnar, að það virðast fá bóluefni vera til við EES/ESB fíkninni. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 12:54

4 identicon

Eina flokknum sem treystandi er til að vinna af einurð og festu í þágu sjálfstæðis og fullveldis lands og þjóðar er Miðflokki SDG.

Það ætti öllum sjálfstæðismönnum að vera orðið fullkomlega augljóst.

Þetta hef ég margsagt, með tilliti til Icesave, hrægammasjóðanna, 600 milljarðanna; koma landi og atvinnulífi þjóðar aftur í gang eftir Hrunstjórnina og Helferðarstjórnina og svo einarða baráttu gegn ESB Orkupakka 3. 

Engum er betur treystandi en SDG og Miðflokki hans til að koma landi og atvinnulífi þjóðar aftur í gang og vinna landi og þjóð til gæfu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 13:44

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur

Já það er kostulegt að fylgjast með viðhorfum og söguskoðunum manna þegar að næst minnstu heimsálfu jarðar kemur, þ.e. Evrópuskaganum sem stingst út úr meginlandi Rússlands. Aðeins Ástralía er minni en Evrópa.

Styrmir gagnrýndi Bandaríkin fyrir að draga sig út úr Miðausturlöndum, til að geta beint kröftum sínum betur að Kína og komandi útrás Rússlands lengra vestur á bóginn, og suður. En það var og er utanríkisstefna Donalds J. Trump að; með því að draga sig til baka, myndi hann þvinga fram tilvistarlegt-bandalag milli þeirra þjóða sem þar sjá Íran sem sinn sameiginlega óvin. Fyrir vikið er Ísraelsríki nú helsta stórveldi Miðausturlanda og sem flest arabaríkin vilja vinna saman með og treysta mun betur en til dæmis Tyrklandi og Íran. Þetta virðist engum nema Trump hafa dottið í hug og er þetta strategía sem hann mótaði fyrir áratugum síðan og fjallaði um í bók sinni sem kom út árið 2000.

Hefði Trump unnist tími til að koma svipaðri stefnu til skila og framkvæmda í Evrópu, þar sem Þýskaland hefur hagað sér sem félagslegur ómagi á framfærslu Bandaríkjanna áratugum saman, þá er aldrei að vita nema að annað hljóð kæmi í strokkinn hjá Þýskalands-fetistum Íslands.

Þýskaland er ástæðan fyrir því að ekkert gengur upp í Evrópu, því landið skilar frá sér miðflótta- og þeytivinduafli út í heimsálfuna, en ekki aðdráttarafli.

Þýskaland getur ekki staðið eitt sem ríki lengur og er það því komið með nýlendusvæðið "innri markaður" á sitt vald og mergsýgur það. Á aðeins 30 árum frá síðustu sameiningu er Þýskaland komið í útistöður og deilur við alla hluta Evrópu. Það hefur sett suður-Evrópu í skuldafangelsi með ósamvinnuhæfri merkantílismastefnu þess innan ESB, og það lemur á nágrönnum sínum í Austri, eins og það lamdi og barði á löndunum í kringum sig í aðdraganda 27 ára stríðsins frá 1914-1945. Það stofnaði til illinda við Bretland frá og með 1992 og það ógnar tilvist NATO með því að neita að uppfylla skuldbindingar sínar við það eina bandalag sem dugað hefur til einhvers í Evrópu.

Það má margt segja um Rússland, en þegar að stuðpúðasvæði þess kemur þá er það þrátt fyrir allt Moskva sem sendir peninga út til þess, til að reyna að halda því saman og á sporbraut um sig. Stuðpúðasvæði Þýskalands (hinn innri markaður ESB) er í allt annarri stöðu. Þar er það Þýskaland sem blóðmjólkar löndin sem þar mynda stuðpúðana umhverfis hið inniklemmda og tilvistarlega óörugga Þýskaland, og sendir það þar með miðflóttaaflsáhrif út í það, öfugt við þau aðdráttaraflsáhrif sem Rússland sendir út í sitt stuðpúðasvæði.

En í báðum tilfellum er þó um eins konar meira eða minna dagsljósa nýlendustefnu að ræða. Án evru og "innri markaðar ESB" er Þýskaland komið í þrot því það sjálft er orðið svo úrkynjað að innan vegna einmitt stjórnmálastefnu landsins frá upphafi þess 1871.

En menn eiga hins vegar eftir að komast að því að ekkert hefur breyst innvortis í Þýskalandi miðað við 1940 og nú er komið að næsta rassakasti landsins, því þau koma á 80 ára fresti, þar sem Þýskaland kennir öllum öðrum en sjálfu sér um ófarir þess í heiminum. Kjánar Íslands munu þá bara yppa öxlum og segjast ekki hafa gert sér grein fyrir málunum eins og þeir sögðu 1935.

Ekkert hefur breyst í Evrópu. Þetta er sama heimsálfan og síðast með sömu pólitísku elítur álfunnar við jöturnar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2021 kl. 16:04

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já ég er sammála skoðun þinni mtt. Sigmundar Davíðs og Miðflokksins. Þar fer alvörumaður fyrir efnilegum flokki. SDG er ekki gervimaður.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2021 kl. 16:21

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 3. janúar 2021 kl. 17:49:24

Nú er búið að bólusetja 350 manns!! í Frakklandi.

Frönsk stjórnvöld þora ekki að ýta fastar á það sem ei lengur er ein þjóð í landinu, af ótta við "mótmæli" og "uppreisn" hinna og þessara hlutaþjóða sem nú byggja landið, og sem því er hafnað á barm borgarastyrjaldar og upplausnar.

Þar er að verki "fjölbreytileikinn" sem álfhólar vinstrisins á vesturlöndum hafa boðað vegna málefnanauðar hins úrkynjaða boðskapar vinstrisins eftir að síðasta sovétið þeirra féll steindautt um koll 1990.

Mun nýja bóluefnið við kínversku Wuhanveirunni leysa Frakkland upp í leiðinni? Það er aldrei að vita.

***

Í tilefni af bloggfærslu Páls Vilhjálmssonar í dag um að forsætisráðherra Íslands sé "vandi á höndum" í bóluefnismálum, því að um "nýtt og óreynt"  bóluefni við nýju afbrigði af gömlum sjúkdómi sé að ræða, þá skrifaði ég eftirfarandi athugasemd hjá Páli og sem mér finnst að passi ágætlega vel við þá firru og þann EES-fíknisjúkdóm og annað honum tengt sem hér er rætt um: 

"Það væri svo sem eftir annarri þvælupólitík nútímans að fólk sem trúir á þvaðurkenninguna um loftslagsvá sé sem sagt "vandi á höndum" í því að trúa á bóluefni sem prófað hefur verið á tugþúsundum manna, og sem byggt er á ævistarfi margra afar jarðbundinna vísindamanna, og sem sennilega aldrei myndu trúa á pólitíska þvælustefnu vinstrimanna, sem er græn að utan en rauð að innan.

Fyrst við erum komin á þetta nýja stig Neanderdalmennsku nútímavinstrisins, þá er víst óhætt að segja að hér sem annars staðar á Vesturlöndum ríki stofnanakreppa á háu stigi (e. institutional crisis") nánast hvert sem litið er.

Eini vandinn sem á höndum forsætisráðherrans er, er sjálft sjálfskaparvítið sem hún sjálf hefur skapað með grænþvælu sinni áratugum saman.

Enginn trúir henni."

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2021 kl. 17:50

8 identicon

Takk fyrir þessa skörpu greiningu, Gunnar,

er varðar sífelld rassaköst Þýskalands.

Ég bara skil ekki ofur aðdáun Styrmis á þeim, sbr. pistil hans, "Öld Þýzkalands í Evrópu"

þar sem hann segir að "Það ætti að vera lykilþáttur í utanríkisstefnu Íslands á þessari öld að leggja sérstaka rækt við tengsl okkar við Þýskaland."

Það fer beinlínis um mann hrollur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 18:02

9 identicon

Varðandi bóluefni, þá tel ég hiklaust að við eigum að semja hið snarasta við Breta, um beinan aðgang að Oxford/AstraZeneca bóluefninu.

Sarah Gilbert og hennar Oxford teymi hafa um margra ára skeið aflað sér gríðarlega mikillar reynslu og þekkingar á gerð og háttu Sars veira

Fullvalda þjóð semur milliliðalaust við aðra fullvalda þjóð.  Bretland hefur nú endurheimt sitt, hvað bindur hendur okkar að semji milliliðalaust við bresk stjórnvöld?  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 18:36

10 identicon

Nú berast þau góðu tíðindi að Bretar eru byrjaðir að bólusetja með Oxford/AstraZeneca.

Það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að íslensk stjórnvöld taki gilda vottun Breta á því bóluefni, í stað þess að hanga sífrandi og vælandi með Nonnabækurnar í pilsfaldi mömmu Merkel í meira en mánuð.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.1.2021 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband