Leita í fréttum mbl.is

Svíþjóð misheppnuð. xD líka?

Úttekt á veiru-viðbrögðum sænska ríkisstjórnarhermisins í ESB kom út fyrr í þessari viku. Þar segir að Svíþjóð hafi mistekist að glíma við einu frumskyldur sérhverrar ríkisstjórnar í mannheimum; sem eru þær að vernda líf, limi og eigur borgaranna. Allt annað geta borgararnir sjálfir séð um sé út í það farið, nema dómsmálin og löggæsluna

Allt hefur mistekist í glímu ESB-ríkisstjórnarhermis Svíþjóðar við kínversku Wuhanveiruna: 1) smitvarnir, 2) meðferð sjúklinga, 3) rekstur sjúkrahúsa og 4) hvíldar- og hjúkrunarheimila. Sem sagt fullt sovét þar

Síðar í vikunni kom svo hugrakkur Karl Gústaf Svíakonungur fram og sagði hið sama, eftir að hafa ráðfært sig við pappírsbunka rannsóknarinnar, sem er rúmlega 300 blaðsíður, því aldrei bregðast Svíar pappírnum, þó svo að þeir bregðist á öðrum sviðum. Vilji maður losna við Svía þá hendir maður pappírsbunka fyrir hann og er hann þá úr sögunni. Ekkert þarf samt að standa í þeim og eru þeir þá sænsk tré, eins og Danir segja

Eftir að Sovétríkin féllu er Svíþjóð eina land heimsins þar sem hugtakið borgari vekur sjálfvirkar og genetískar grunsemdir um svik við alræði kommúnismans. Það eru því engir borgarar í Svíþjóð lengur, eins og sést

Á meðan hefur stór hluti þingamanna Sjálfstæðisflokksins gert sig að eins konar viðrinum þegar að kínversku Wuhanveirunni kemur. Bjarni Benediktsson formaður flokksins og stjórnarmaður í imperíal AIIB-banka Kínverska kommúnistaflokksins, hoppaði sem sannur ESB-vinstrimaður upp úr grunni sjálfstæðisstefnunnar er Donald J. Trump forseti lokaði á alla Schengen-stalínveituna, eins og hún hafði þá lagt sig sem stjórn,- ábyrgðar,- og umboðslaust viðrini Evrópusambandselíta, og mörgum sinnum verri en ekkert

Guðlaugur Þór utanríkisráðherra og fóstureyðingarfrömuður hinna hálfsovésku vinstrimanna pantaði í samskonar vitstola ESB-kommakasti símafund með utanríkisráðherra Bandaríkjanna og gerði sig að allsherjar gerpitrýni sem æðsti diplómat Íslands, ásamt fullkomlega clueless ferðamálaráðherra xD sem hafði mestar áhyggjur af komum ferðamanna þess ríkis sem flutti Wuhanveiruna út yfir heimsbyggðina á meðan öllu var skellt í lás heima og fólk logsoðið fast inni í híbýlum sínum eða sett í gúlag

Það er heldur betur munur á honum og Gunnari nafna mínum Braga, sem sá um að höggva af landinu okkar hina gerspilltu og ógeðslega illa fengnu umsókn Vinstri grænna og Samfylkingar inn í Evrópusambandið. Takk SDG og Gunnar Bragi! En Gunnar Bragi var æðsti diplómat Íslands og þar með Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sjálfstæðismanns er þá var æðsta pólitíska höfuð Íslands sem forsætisráðherra. Eins og menn eiga að vita þá dílar Evrópusambandið ekki við þjóðþing landa heldur aðeins við pólitísk yfirhöfuð ríkja (e. heads of States)

Aldrei hefðu Bjarni Ben og Guðlaugur Þór afrekað slíkt. Það er öruggt. Hundrað prósent öruggt. Þeir hefðu hummað allt fram af sér því um viðreisnarsjúkdóm kratismans er hjá þeim að ræða. Er hann smitsamur vinstrisjúkdómur í báðum flokkum xD-kratismans

Síðan koma Sigríður Á. Andersen og LoL-frístundastjórnmálarinn Brynjar Enn, sem ofan í Bjarna og Guðlaug hafa opinberað sig sem verandi álíka jarðsambandslaus viðrini og þeir. Það gerðu þau með því að afneita því eina sem hægt er að gera í veirumálinu, vilji menn koma í veg fyrir byltingar og stjórnlausan tréballaisma sem leiðir til myndunar nýrra sovétríkja

Winston hefði sennilega neyðst til að stinga þessu xD-fólki inn á stríðstímum, þar sem það gæti starfrækt kenningardeild eða leshring um einstaklingsfrelsi í Maófötum í friði

Hefði þetta fólk nú eytt bara einu grammi af orku sinni í það að koma í veg fyrir að fullveldi Íslands í orkumálum væri sent til útlanda, í stað þess að eyða henni í ofangreindar grasbjánasyrpur, þá hefði kannski verið hægt að kjósa þau næst. En nei; það gerðu þau ekki, enda er ekkert þessa fólks sjálfstæðismenn. Þau eru öll pólitísk viðrini og dómgreindarskertir allaballar í eins konar Mí Tú Plebbahöll

Enginn þessara þingmanna Sjálfstæðisflokksins veit hvað né hvar Íhaldsstefnan er, enda er flokkurinn okkar að sökkva sem botnlaust rekald undir þeim. xD er því orðinn botnlaus, raðdómgreindarskertur og fullveldistortímandi miðstöð viðrina. Sný ég mér því annað næst, eða að minnsta kosti á meðan sökk xD heldur áfram á vakt þessa vinstrisinnaða ESB-tvíburafólks í xD og Viðreisn

Fyrri færsla

Hver verður næsti dómsmálaráðherra Bandaríkjanna undir Trump?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Betra er að setja traust sitt á Guð

en búrakratana.

Undarlegt að maður þurfi að minna á 

svo einfaldan sannleika. 

En þegar móðurflokkur íslenskra stjórnmála 

er orðinn að biskupuðu viðrini, þá er vert 

að minna á hin sígildu sannindi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.12.2020 kl. 15:59

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Já þessi ömurlegi kafli Sjálfstæðisflokksins undir vonlausri formennsku Bjarna Benediktssonar og liðs hans er að verða flokknum og Íslandi dýrkeyptur.

Ég vona að EES- og Schengen-tenging okkar sé ekki að seinka fyrir með bóluefni til okkar. Breska Telegraph skrifar í dag að Evrópusambandið sem áður fylgdi vinnuaðferðum Breta við prófun og samþykki bóluefna sé að seinka bólusetningum í ESB-löndum til að sýna fram á að það sé komið með sínar eigin aðferðir. Að fólkið í ESB deyi á meðan, því fyrir umboðslausu sambandinu sé mikilvægara að láta líta svo út að það stjórni ferðinni en ekki þjóðríkin.

1) Í dag var tilkynnt um 3.982 ný dauðsföll í löndum Evrópusambandsins á áðurgengnum sólarhring.

2) Á sama tíma var tilkynnt um 186.220 ný tilfelli af Wuhan-veirusmitum í löndum ESB.

3) Er þá heildafjöldi látinna kominn í 393.678 manns í ESB.

4) Virk tilfelli eru 4.911.086 í ESB-löndum núna og ljóst er því að nógur efniviður er þar í enn fleiri ný dauðsföll. Þarna gengur ekki vel.

FT skrifaði áðan á forsíðu að ekkert væri hæft í fréttum um seinkun afhendinga á bóluefnum frá Pfizer, né heldur af framleiðsluvandamálum. Þekki ég það mál þó ekki sjálfur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.12.2020 kl. 22:48

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég sé ekki betur en að heildarfjöldi látinna í Svíþjóð verði um 2000 færri en spá í upphafi árs gerði ráð fyrir (áður en veirutímar tóku við): 

https://geiragustsson.blog.is/blog/geiragustsson/entry/2258790/

Sennilega er það sambland margra ástæða:

- Þeir öldruðu sem létust í vor hefðu látist um haustið en gerðu ekki (dánartíðni í haust vel undir því sem var búist við, sjá t.d. hér: https://www.euromomo.eu/graphs-and-maps#z-scores-by-country)

- Aðrir hafa passað andlega og líkamlega heilsuna svo vel með því að njóta lífsins á kaffihúsum, í ræktinni og meðal vina og ættingja að þeirra líf hafa lengst

Stefnir því í gott ár í Svíþjóð með fleiri lifandi en menn reiknuðu með í byrjun árs.

Geir Ágústsson, 18.12.2020 kl. 12:56

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Geir.

Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki þráhyggju þína við að vilja nota eldra fólk sem fallbyssufóður til þess eins að þú getir setið á kaffihúsi eða bar. Þráhyggja þín minnir mig á herstjórn Stalíns sem notaði fólk sem fallbyssufóður til að bæta upp fyrir heimsku sína. Stríðskænska er það að vinna baráttuna með því að fórna engu mannslífi umfram það sem óhjákvæmilegt er. Og það tekst að venju aðeins í lýðræðisríkum.

Sænsk stjórnvöld hafa sólundað mannslífum Svía í ekki neitt. Efnahagsleg áföll vegna veirunnar þar eru svipuð og jafnvel meiri en þau eru í nágrannaríkjunum. Fólk er ekki heimskt. Svíar loka sig enn meira inni og það ekki að ástæðulausu, því enginn er við stjórnvölinn í landinu. Þeir vita það og haga sér því samkvæmt því.

Eftir þetta stjórnlausa og pólitíska klúður stjórnmálastéttar Svíþjóðar vita Svíar enn betur en áður að þeir eiga engan að í elítunni sem keyrir landið eins og að um sósíalistískan einkaklúbb hennar einnar sé að ræða í eins konar Kreml.

Það að Karl Gústaf konungur stígi fram og segi umbúðalaust að sænskum stjórnvöldum hafi mistekist að vernda líf og limi þjóðarinnar, er meira en nægt ástæða fyrir því að öll ríkisstjórnin eins og hún leggur sig segi af sér, og sé send úr landi og ríkisborgarétturinn hirtur af henni allri og að hún fái hann ekki aftur fyrr en að hafa afplánað.

Ansi er ég nú hræddur um að annað hljóð væri í þínum kút ef um börn og ungmenni væri að ræða, og sem öll deyja á endanum líka.

Þú veist vonandi að mannfjöldatölfræðin (d. beflokningsstatistik og befolkningsbevægelser) vinnur enn hægar en uppgjörstölfræði landsframleiðslunnar, og sem hvert einasta ár er verið að leiðrétta mörg ár aftur í tímann. Þannig að lítið er enn að marka ársuppgjör í þeim efnum, hvað þá árshlutauppgjör. Þess fyrir utan eru dánartölur hver árs fyrir sig í heild mjög mismunandi og nemur þar mörgum tugum þúsunda í landi á stærð við Svíþjóð. Og þar er engu hægt að spá.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 18.12.2020 kl. 13:33

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Gunnar,

Hugleiddu eftirfarandi:

Í venjulegu árferði hlaupa veirur á milli manna. Þegar þær eru skæðar forðast fólk að heimsækja ömmu og afa eða umgangast ófrískar konur. Það fær veiru, og nær sér. Myndar varnarvegg.

Nú er enginn slíkur varnarveggur. Líkurnar á að veiran nái til þeirra sem eru veikastir fyrir henni. 

Ég vil varnarvegg og að unga fólkið manni hann með því að hittast í skólum og partýum og vinahópum, til verndar eldra fólkinu. 

Svo nei takk, þú vænir mig ekki um að vilja fórna þeim sem ég vil fórna mér til að vernda. Og ég hef ekki áhyggjur af börnunum mínum né annarra - 3 ára frændi minn greindist með COVID-19 um daginn en varð aldrei veikur, slappur né þreyttur. Hann fékk samt að dúsa í stofufangelsi í 14 daga, greyið.

Geir Ágústsson, 18.12.2020 kl. 13:48

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gangi þér vel í kenningarheimi þínum við skrifborðið Geir. 

Við þetta má síðan bæta þeirri staðreynd að sænska þjóðin er skattpíndasta þjóð Vesturlanda og hefur verið það í að minnsta kosti síðastliðin 70 ár. Þeir sem elstir eru hafa borgað mest til heilbrigðiskerfis og í reynd skapað það, en eru nú verðlaunaðir með litlu sem engu (að minnsta kosti með klúðri, stjórnleysi og stalínístísku grobbofstæki) og kannski líkkistunum einum saman.

Á hvaða rökum ætla menn nú að byggja skattheimtu framtíðarinnar í Svíþjóð? Mér er spurn.

Gunnar Rögnvaldsson, 18.12.2020 kl. 13:55

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Það fer enginn í þinn kufl þegar kemur að því að messa yfir lýðnum um forn gildi, sem hafa staðist tímans tönn, sjálfstæði þjóða, sjálfsbjargarviðleitni þeirra, það að vera manneskja sem stendur keik gegn upplausn mennskunnar í umróti nútímans sem á sér hvorki sögu eða framtíð.

Það mætti til þín drengur með skegg sem virðist vera ættleiddur, á hvorki fortíð, það er foreldra, afa eða ömmur, eða framtíð, að eiga sjálfur eftir að eldast og verða virðulegur, og sagði að þetta fólk hefði dáið hvort sem er í haust eða seinna í vetur.

Í vor sáum við fjölgun dauðsfalla í Svíþjóð sem átti sér ekki samsvörun frá því í hungursneyðinni sem hrakti fjórðung þjóðarinnar til USA á síðustu áratugum 19. aldar.  Núna hefur einhver tölfræðisnillingurinn reiknað út að þeir sem dóu, hefðu hvort sem er dáið.

Þetta hefði hvort sem er verið deyjandi fólk.

En hvaða hafa þeir fyrir sér í því??

Að fólk sem er komið á aldur eða á hjúkrunarheimili sé réttdræpt, að það sé þakkarvert að æðri máttarvöld sendu veiru sem kæfði það lifandi svo álag á skattgreiðendur myndi minnka??

Má vera, það er svo margt garúgt í Svíþjóð, veit frá fyrstu hendi að veiran smitar þar ekki eins grimmt og hér, þar hefur fólk komist upp með að haga sér eins of fífl, hundsa sóttvarnir, og samt ekki smitast þó nánir samverkamenn hafi fengið veiruna.

Ef svo væri glóbal, þá væri ekki verið að loka á samskipti um allan heim, þetta væri bara vírus eins og Geir lýsir.  Sem smitar lítt og drepur fáa.

Nema það er ekki svo og furðulegt að fólk sem kennir sig við hinn vitiborna mann skuli rífast við þær staðreyndir.

En við getum þakkað sóttvörnum það að margir lifa í dag, sem hefðu annars dáið.  Vegna mengunarsjúkdóma (minni umferð, minni loftmengun), vegna umferðaslysa, vegna inflúensu sem hefur ekki náð sér á strik því sóttvarnir gegn kóvid virka líka á þá leiðinlegu umgangspest.

Samt stendur eftir heimskan sem gleypir svona tölfræði hráa, örugglega er það rétt að dauðsföll í Svíþjóð eru kringum meðaltal.

Ekki vegna þess að kóvid er umgangspest, heldur vegna þess að með sóttvörnum tókst þó að hemja hana.

Þú þarft að vera mikið fífl, og það áunnið því enginn er svona heimskur frá náttúrunnar hendi, að bera saman dauðsföll í venjulegu árferði, og dauðsföll í faraldri  þar sem strangar sóttvarnir halda smitsjúkdómnum í skefjum.

Samt gerir fólk þetta og er stolt af.

Þá munar virkilega um menn eins og þig Gunnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.12.2020 kl. 15:40

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ómar.

Þakkaðu frekar þér Ómar minn, því þarna átt þú miklu meira inni.

Ég lét mikið heyra í mér fyrst þegar enginn virtist ætla sér að taka þetta mál alvarlega, og þá auglýsti ég eftir hörðum aðgerðum og viðurkenningu á staðreyndum sem um hefði munað og brætt úr bylgju eitt. En þegar menn svo tóku við sér bæði á opinberum vettvangi og á ritstjórnum þá andaði ég rólegra. Í mínu ferska minni voru steindrepandi smit í fjármálageira veraldar ekki horfinn enn, og þar þýddi ekkert annað en grjótharðar aðgerðir.

Það er algerlega nýtt fyrirbæri í sögunni að eldra fólk sé baggi á því yngra. Öll mannkynsagan fram til Maófataverslunar póstmódernismans, hefur meðal annars fjallað um það hvernig ungt fólk hefur níðst á gamlingjum og lokkað þá til að afsala sér bæði tilverurétti og auðæfum.

Sjálfur átti ég aldrei krónu umfram það nauðsynlegasta fram yfir fimmtugt og ég býst við að þannig sé það hjá flestum. Þrisvar missti ég aleiguna við bara það eitt að vera til og taka þátt í lífinu og áhættum. Þannig að ef eitthvað er, þá er það yngra fólkið sem er baggi á Reynslubankastofnun hinna eldri.

Ég hef stundað rekstur, viðskipti og ráðgjöf það lengi -ásamt því að stunda fjárfestingar á almenningshlutabréfamarkaði- að ég veit hve lélegur áttaviti tölfræði- og kúrfukonan er þegar fólk leitar til hennar um yfirdrátt. Og sem einmitt þá er yfirdráttur. Síðan hellist hið óséða yfir vígvöllinn og breytir síðasta yfirdrætti í svartan og glampandi kattaskít í tunglsljósi; þ.e. í smáatriði.

Þetta er ekki búið enn og engar varnir mál niður leggja, né slaka á. Út með fjandann saman.

Bestu kveðjur til þín

Gunnar Rögnvaldsson, 18.12.2020 kl. 18:28

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þetta er svo miklu víðtækara og dýpra sem ég er að vísa í með orðum mínum.  Í sjálfan slaginn við tómhyggju nútímans sem á sér hvorki sögu eða rætur, og er svo firrt að að hún skilur ekki hvað það er sem tryggir samfellu sögunnar, samfellu sem við köllum dags daglega framtíð.

Þessi orð mín snúa ekki að gárum yfirborðsins, út frá mismunandi útgangspunktum eða hvorum megin jafnvægisásins við erum og skilgreinum orð okkar og sýn, við getum þess vegna rifist eins og hundar og kettir næstu mánuði eða tekið langa kvöldstund í sátt yfir guðaveigum ættuðum frá norðurhjara hins byggilega heims, Skotlandi.

Þau snúa að kjarnanum sjálfum, dýptinni, eldinum sem knýr skrif þín áfram.

Megi sú glóð, sem sækir funa sinn í hinn glóandi kjarna mennskunnar, glóa lengi og ylja okkur hinum hér á Moggablogginu.

Hér er allavega góðmennt.

Kveðja að austan. 

Ómar Geirsson, 18.12.2020 kl. 20:59

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Ómar, ég skil og þú skilur. Það eru þá að minnsta kosti tveir. Tek undir með þér.

...það datt inn frétt.....

föstudagur, 18. desember 2020 kl. 21:07:13

Nýjar sóttvarnarreglur í Svíþjóð banna frá og með í dag að hópar gesta á veitingahúsum séu stærri en fjórar persónur.

Sala áfengis eftir kl. 20 verður bönnuð.

Mælt er með grímuskyldu í almenningssamgöngum.

Settar verða enn meiri takmarkanir á mannfjölda í verslunarmiðstöðvum og stórmörkuðum.

Fjarkennsla í menntaskólum fram til að minnsta kosti 24. janúar n.k..

Allar sóttvarnarreglur í Svíþjóð verða skerptar var sagt á blaðamannafundi í dag.

===

Sænsku leiðin hafa knúið á um þetta, með aðstoð konungs þjóðarinnar. Eftir stendur sóun á þúsundum mannslífa, algjörlega til einskis.

Kveðja að vestan

Gunnar Rögnvaldsson, 18.12.2020 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband