Leita í fréttum mbl.is

Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis

Telegraph: "Europe’s vaccination fiasco threatens to become the EU’s biggest failure

The politicisation by Brussels of Covid vaccines is turning into an economic and political black swan event – with a huge price to pay"

Niðurlag greinar AEP: "Ef að elítur Evrópusambandsins skilja ekki enn að þetta mál [bóluefnismálið] mun vinda sig upp í einn mesta, alvarlegasta og misheppnaðasta atburð í sögu sambandsins, þá munu þær komast að því bráðum." – Ambrose Evans-Pritchard viðskiptaritstjóri Telegraph þann 23. desember 2020

****

UM EKKERT-FLOKKANA

Nú þegar ljóst er að nær allir stjórnmálaflokkar Íslands eru orðnir batik-kerlingaklúbbar umhverfis EES-klúðurelda ríkisstjórnarinnar í bóluefnismálum, þá er vert að taka eftirfarandi fram og undirstrika:

ÖRYRKJABANDALAGIРESB

Evrópa frá og með tilurð Evrópusambandsins 1992, er orðin meginland sem snýst ekki um neitt annað en innanríkismál. Og mun það jafnframt aldrei geta snúist um neitt annað. Heimsálfan hefur engin áhrif út á við í heiminum og er hún jafnframt algjörlega misheppnuð elítustappa innávið. Ekkert meginlandsríki Evrópu hefur áhrif á neitt sem er að gerast í heiminum og hafa þau jafnframt lítil eða jafnvel enn minni áhrif á gang eigin mála. Þau fljóta bara stjórnlaust um í ESB-skólpinu og eru öll að farast, hvert á sinn hátt. Varla er hægt að ímynda sér verra ástand fyrir neitt ríki veraldar en það að vera í Evrópusambandi og EES

Telegraph: "In my view we are heading into a year where German popular support for the European Project will be stress-tested like never before. Two grave matters will intersect. It will become clear to all that the fundamental health security of the country has been endangered by EU politics. At the same time, monetary union will go through another spasm of tension." – AEP

LANDLÆST

Einu lönd álfunnar sem nokkru sinni haft hafa heimsáhrif, eru þau ríki sem liggja út við Atlantshaf. En um leið og Spánn og Portúgal, þ.e. Íberíuskagi, gengu í ESB, hurfu þau eins og Svíþjóð hvarf inn í svarthol Evrópusambands Þýskalands og Frakklands, og urðu þar með landlæst ríki sem ekkert geta. En þau tvö, þ.e. Þýskaland og Frakkland eru æðstu prestar Evrópusambands í einskonar innvortis og útópísku Kant-þorpi, sem klemmt og lokað er inni á milli Rússlands í austri, Tyrklands og Miðausturlanda í suðri, og Bretlands og Bandaríkjanna í vestri. Því meira ESB, því meira líkjast ríkin í sambandinu ríkjum Norður-Afríku, eða eins konar kalífat-stöppum þess heimshluta

Þessi nú landlæsti og seigfljótandi massi af mestu töpurum mannkynssögunnar, er það sem eftir er af Evrópusambandinu eftir að Bretland fór. Athugið að brottför Breta jafngildir því að hagkerfi þessara 19 landa yfirgæfu sambandið sama daginn:

Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki

Það tekur sig ekki einu sinni að nefna Frakkland –þar sem búið var að bólusetja 125 manns í gær– á nafn lengur, því einnig áhrifamáttur þess á heimsvísu er orðinn að barmafullum og landlæstum afþýðingarbakka neðst í merkantílisma-ísskáp Stór-Þýskalands, sem er nýlenduherrann yfir þessu "öllu". Hefur Þýskaland heldur ekki nein áhrif í veröldinni önnur en þau að halda nýlenduherradæmi sínu saman með nýlendumyntinni evru, og að sjúga upp, en ekki skapa, eftirspurn frá borgurum annarra ríkja. Þýskaland er algjörlega ófært um að skapa sína eigin eftirspurn innanlands, svo getulaust og úrkynjað er það orðið sem sennilega mesti tapari mannkynssögunar, og er það því enn á örorkubótum frá Bandaríkjunum þegar að tilvistarlega mikilvægum málefnum lífsins kemur; þ.e. sjálfu lífinu og dauða

ESB og EES ER HEILABILUN

Það jafngildir því heilabilun að húkka sig EES-fastan við þennan sökkvandi ryðhrúgudall sem Evrópusambandið er. Og sést það skýrast á nýjasta nýlenduklúðri ríkisstjórnar Íslands þegar að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni kemur. Hvílík smán fyrir okkur Íslendinga að vera í EES. Já hvílík smán!

Ég óska lesendum gleðilegs nýs árs og þakka ykkur fyrir þau liðnu

Ég læt þó það standa áfram sem ég sagði um ríkisstjórn okkar í þessum málum á Þorláksmessu. Það var og er þetta hér:

****

Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er

Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?

ER ÞETTA HEILBRIGT?

Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni

Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum

Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar

Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?

Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?

ENN ALLT Í KLÚÐRI

Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB

Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf

Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast

Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina

Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi

HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR

Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!

Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis

Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar

AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI

Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma

Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt

HEFND

Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!

Fyrri færsla

Bjarni brýtur reglur og brýnir enn fallöxina á flokkinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk meistari Gunnar fyrir enn eina eldmessu þína.

Gleðilegt ár, takk fyrir öll þín eldskrif á síðasta ári, sem og allt annað.

Áramótakveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.12.2020 kl. 18:34

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Takk innilega síðasta pistil!!!+

Manni verður alltaf orða vant eftir að lesa þig.En við stjórnvölinn eru bara AUMINGJAR. bara  athyglissjúkir aumingjar. Innleiddir EES vanvitar. Og sjá þar byrtist þér forsætisráðherra með 32ja % fylgi sem framhaldsráðherra. manni verður verulega illt.

Gleðilegt nýtt ár Gunnar

Óskar Kristinsson, 31.12.2020 kl. 19:27

3 identicon

Kærar þakkir Gunnar fyrir þennan magnaða pistil, sem og aðra þína fyrri.

Tek undir hvert orð.

Óska þér og fjölskyldu góðs og farsæls komandi árs.

Megi Guð gefa okkur styrk til að losna undan viðjum EES/ESB. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.12.2020 kl. 20:58

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Mér tókst ekki að ljúka lestrinum var hjá hópi af barnabörnum mínum sem vildu að ég sæi myndir fra þeim út á landi.Þessi pistill er já magnaður og svo laukrétt sem þú segir þar.

Helga Kristjánsdóttir, 1.1.2021 kl. 04:06

5 identicon

Við getum ekki losnað undan EES nema að skipta um stjónmálamenn.

Eins og staðan er í dag er alltaf sama moðsuðan niðurstaðan. Ef einhver ætlar að vinna fyrir þjóðina þá er hann svældur í burtu. Það er ekki oft sem einhver slæðist inn á þing sem stefnir á að vinna fyrir kaupinu sínu eins og SDG sem er honum einum að þakka að ná 600 milljörðum af hrægammasjóðum að þá leggjast allir á eitt með að losna við slíka persónu og kjósendur með. Þetta lítur ekki vel út en sjáum til.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 1.1.2021 kl. 13:03

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Frábær pistill hjá þér að venju og svo sannur.

Takk fyrir liðna árið og ósk um að nýtt ár

muni verða betra en það fyrra.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 1.1.2021 kl. 13:49

7 identicon

Kristinn Bjarnason orðar kjarna málsins.

Og minnir á að það var fyrst og fremst SDG

að þakka að 600 milljörðum var náð af hrægammasjóðunum og það skipti öllu máli í endurreisninni eftir hrunstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og helferðarstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna.  Á þeim tíma hafði hins vegar Bjarni Benediktsson helst talið bjargráðin fólgin í upptöku evru, sbr. fræga grein hans, að endemum, og Illuga þar um.

Sjálfstæðismenn ættu að minnast þessa; það var SDG sá eini sem vann landi og þjóð til heilla;

sjálfstæði og fullveldi lands og þjóðar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.1.2021 kl. 14:12

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Gleðilegt nýtt ár Gunnar og þakka þér fyrir allan þann fróðleik sem þú hefur fóðrað okkur á á árinu sem nú er liðið.

Ragnhildur Kolka, 1.1.2021 kl. 15:59

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka ykkur öllum fyrir góðar kveðjur og lesturinn.

Því meira sem hugsað er um þessa stöppu af getuleysi og allsleysi sem Evrópusambandið og EES-samningurinn standa fyrir, því meira svimar mann af öllu því Sovéti sem einkennir hugsunarhátt þeirra sem þau illfygli styðja. 

Hafið þið einhvern tíma heyrt un yfirlæknir á 500 milljón manna sjúkrahúsi sem kominn er með lyfin við því sem lagt hefur fólksmassann inn, en sem síðan segir: "Enginn fær lyfið við sjúkdómnum fyrr en allir í byggingunni eru vaknaðir, komnir af gjörgæslu, klæddir og komnir á ról og hafa viðurkennt að þeir geti ekkert sjálfir."

Nei, enginn hefur heyrt um þannig samstöðu með dauðanum, nema náttúrlega þeir sem lifðu og dóu í Sovétríkjunum og biðu eftir nýja sovétmenninu, sem færa átti þeim nýju sovétvísindin.

Og vona Íslands vegna að þeir sem aðhyllast ESB og EES vakni til vitundar um að þeir eru fyrir löngu síðan farnir að hugsa algjörlega sovéskt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.1.2021 kl. 17:45

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ein dæmisagan enn hjá þér Gunnar sem minnir á bók bókanna.

Um leið og ég vona að flestum lítist vel á tillögu sem kviknaði hjá mér er ég las skrif Kristins og Simons Péturs,að megnið af þeim sem skrifa hér myndi öflugan flokk með aðalmarkmið útganga úr EES.-Miðflokkurinn er geysisterkur og yfirmáta málefnalegur væri vel hægt að mynda bandalag með honum.. Geri mér grein fyrir að mörgum er ekkert um það gefið að bjóða sig fram en eg trúi að menn gerðu það fyrir þjóð sína. 
 Eru ekki allir á góðum aldri hérna (svo hinir sem eru út um viðan völl að skrifa og tjá sig um einræðistilburði (ráð)-stjórnar Íslands. Óska öllum Gleðilegs Nýárs! Vona ég eigi eftir að sjá merkisviðburði okkar hljóta virðingu raðamanna sem þeim ber.  


Helga Kristjánsdóttir, 2.1.2021 kl. 00:57

11 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Góð áramótakveðja frá Svíþjóð til þín Gunnar með þökkum fyrir víkinaskrif þín hér á blogginu. Það eru fáir pennar jafn hreinskilnir, sannir og vaskir og þú og skaltu heiður hafa af. 

Stöndum saman í baráttunni gegn kommúnistaKínaveirunni, íslenskum stjórnarskrárbrotsþrjótum og þeim vesalingum sem lifa af því að mjólka landann hvort sem það er í ríkisstjórn, ríkisstofnunum eða sveitarfélögum eins og t.d. í þrotabúi Reykjavíkurborgar.

Gústaf Adolf Skúlason, 2.1.2021 kl. 10:23

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Gústaf.

Ég sendi góða áramótakveðju um hæl til þín og þakka þér sömuleiðis fyrir.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.1.2021 kl. 14:13

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Hinn bitri sannleikur um ræfildóm okkar ráðamanna sem oft áður hjá Gunnari Borgfirðingi.

Halldór Jónsson, 2.1.2021 kl. 15:14

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Halldór minn.

Rétt. Já "ráðamanna" okkar.

En ekki SDG. Hann er ekki með Eurosclerosis (esbees-eyðni). Hann er ekki aumingi.

Þú verður að muna að efri deild Alþingis er í Brussel svo lengi sem við erum í aumingjaklúbbi EES. Við getum ekki rekið þá sem þar sitja svo lengi sem við erum í EES-dópinu.

En nú geta Bretar rekið hvern sem þeim sýnist í hverjum kosningum. Hin varanlega pólitíska stétt ráðamanna þar er horfin. Henni var hent í sjóinn. Hún er dauð og drukknuð.

Gleðilegt ár sjálfstæðir Bretar!

Lengi lifi Stóra-Bretland. Húrra!

Gunnar Rögnvaldsson, 2.1.2021 kl. 15:50

15 identicon

Það er full ástæða til að óska Bretum velfarnaðar, og til hamingju með áfangann.

En rétt eins og Brendan ONeill segir í langri grein á spiked, þá er þetta ekki lok Brexit stríðsins, heldur markar það fyrst og fremst upphaf hinnar eiginlegu og lýðræðislegu baráttu gegn gjörspilltri remainer elítu Bretlands.

Því gleymum því aldrei, að engin þjóð afsalar sér lýðræði sínu, sjálfstæði og fullveldi til alþjóðlegra yfirstofnana; þar véla hins vegar um vargar í véum:  embættismannahirð hvers lands sem svikið hefur þjóð sína og hugað fyrst og fremst að sérhagsmunum sínum, Trójuvargarnir, en fórnað lýðræðinu og almannahagsmunum.  Hreinsa þarf því Trójuvargana út.  Hér sem í Bretlandi.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.1.2021 kl. 17:51

16 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Dálkahöfundur -NYT- Roger Cohen segir að Trump forseti geri atlögu að hjarta lýðræðisins og beri ekki virðingu fyrir sannleikanum....Hér tökum við undir með Gunnari sem minnir okkur reglulega á hreint óþolandi framkomu stjórnvalda sem draga Ísland í aumingjaklúbbinn EES.- Afhverju svíkja menn þjóð sína? Sé það rétt að það séu peningar og völd,gerðum við bara í þvi að eyða hvorutveggja,jú allur heimurinn væri eftir allt með; Það finnast önnur ráð.

Helga Kristjánsdóttir, 3.1.2021 kl. 01:07

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir Helga.

Ég les ekki New York Times og mun aldrei lesa það aftur, því það er ónýtt rusl og skólpveita.

Svar:

Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja er gert óverjanlegt með hálf-sovéskum samningum, sem stjórnmálamenn þola ekki að umgangast, þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið.

Um þetta snýst Evrópusambandið og ekkert annað. Það er svarthol fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóða. Það er dópstöðin fyrir pólitíska dópista.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2021 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband