Leita í fréttum mbl.is

Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er

Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?

ER ÞETTA HEILBRIGT?

Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni

Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum

Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar

Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?

Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?

ENN ALLT Í KLÚÐRI

Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB

Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf

Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast

Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina

Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi

HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR

Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!

Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis

Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar

AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI

Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma

Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt

HEFND

Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!

Fyrri færsla

Jólagjöfin: Kórónuveiran breytist í EES-veiruna


mbl.is Bóluefni tryggt fyrir 127% Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú varar læknir, Carrie Madej, sem er sérfræðingur í meðferð bóluefna, við bólusetningu við COVID19 veirunni. Segir að bóluefnið sér stórhættulegt. 

www.youtube.com/watch?v=XW3H6PBkrbU

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 23.12.2020 kl. 03:46

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðmundur Örn.

Það er búið að prófa þau bóluefnin sem hafa verið samþykkt á tugum þúsunda manna. Ekkert lyfjafyrirtæki sendir frá sér bóluefni sem er óöruggt, því þá fara þau einfaldlega á hausinn. Strax.

Það er áthætta við öll lyf. Winston Churchill var -eins og Trump- varaður við því og gagnrýndur fyrir að taka inn ósamþykkt tilraunalyf er hann vektist hastarlega í Síðari heimsstyrjöldinni. Það hét pensillín.

Ef þú vilt ekki framfarir, þá þú um það. Ekkert er öruggt í þessum heimi nema dauðinn. Þú ræður.

Ég ætla að láta bólusetja mig, en ég mun helst ekki þiggja bóluefni frá hvaða framleiðanda sem er. Þeir skipta máli. Oft öllu máli.

Ég kýs heldur ekki hvaða stjórnmálaflokk sem er.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2020 kl. 05:02

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er margt virt fólk sem að er að vara við

þessu bólusetningar-sulli

sem að  ég vil meina að séu aftökusprautur

frá New World Order/Illumanati:

Skoðið allt sem að er á þessari síðu: 

https://www.bitchute.com/video/7J2g60NC6KAJ/?fbclid=IwAR2fuaCnM1t54DGJoccnFCz_HZSe_y1176NQj1XG2HMY0Xx_swJGGESxbF0

Jón Þórhallsson, 23.12.2020 kl. 10:29

4 identicon

Þessir vitleysingar, Kata og Svavarsdóttir

sitja í stólum sínum með vitund og einbeittum

vilja formanns Sjálfstæðisflokksins.

Taglhnýtingar ESB sovétsins?  Já.

Er þetta sjálfstæðismönnum heilbrigt?  Nei.

"Janssen" og eitthvað lubbedí "sanófí"? 

Þetta lið væri ekki hæft nokkurs staðar.

Enda þurfti Bjarni að láta Steingrím J.

afskrifa 500 milljarða Engeyjarskuldavafningaruglið eftir hrunið.

Þess vegna sitjum við uppi með þetta stjórnarrugl, Bjarna Ben. og Steingríms Icesave.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.12.2020 kl. 11:06

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ef til vill ættum við að biðla til Margrétar Þórhildar að aumkva sig yfir oss upp á gamlan þegnskap

LIVE Pressemøde om udrulningen af coronavaccinen i Danmark | Politik | DR

en Danir pöntuðu einhverja miljónir skammta framhjá ESB apparatinu

Grímur Kjartansson, 23.12.2020 kl. 13:32

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Sviss er byrjað að bólusetja, enda hvorki í ESB né EES. Og Bretar sem heldur ekki eru í ESB/EES byrjuðu að bólusetja 8. desember, og svo Kanada þann 12. og um svipað leyti hófu Bandaríkin bólusetja 20 milljón manns í þessum mánuði og svo 30 milljón manns í janúar, sem myndi svara til þess að búið væri að bólusetja 51 þúsund Íslendinga í janúar, í stað örfárra þúsunda manna eins og EES-ríkisstjórnarlíki Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er búin að klúðra málunum.

ESB og EES hefur aðeins verið til trafala og spellvirkja í þessu veirumáli frá upphafi til enda og hefur fyrirbærið heldur betur stuðlað að útbreiðslu veirunnar, lömunar á vörnum og sóttvörnum í ríkjunum og vann það ávallt af ákafa gegn aðgerðum landanna.

Annað eins þjóðskaðandi sovétríki hefur varla sést síðan á alsovéttímum vinstrisins. Fólk deyr sem bein afleiðing af ESB og EES-misfóstrinu. Það sást svo greinilega þegar Schengen-batterí ESB neitaði að gera neitt í málunum og Ítalía hélt áfram að taka á móti beinu flugi frá Wuhan í Kína og síðan að breiða veiruna út til meira en 50 landa Evrópu. Voru þeir á Ítalíu sem vildu loka kallaðir rasistar af esb-liðinu. Regluverk Schengen bannar beinlínis að sóttvarnir séu viðhafðar á landamærum ríkjanna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2020 kl. 14:31

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hvernig er annars með viðskiptabannið sem Gunnar Bragi kom á við Rússa og búið er að kosta okkur miljarða. Útilokar það að við getum keypt bólefni af þeim?

Allar aðrar þjóðir virðast eiga eðlileg viðskipti við Rússa en Gunnar Bragi klúðraði þessu illilega

Grímur Kjartansson, 23.12.2020 kl. 15:56

8 Smámynd: Grímur Kjartansson

Var að horfa á RUV fréttir

RUV er eins og venjulega með sína náglun á bóluefni

Íslendingar eiga að gefa eftir sitt bólefni til fátækra þjóða og láta bara gamla og veikburða íslendinga drepast til að bjarga hinum

Grímur Kjartansson, 23.12.2020 kl. 19:29

9 identicon

Nú þegar flestir jarðarbúar bíða í biðröðum í örvæntingu eftir að fá bóluefni gegn hinni banvænu Kínaveiru, varar Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, þegna sína við að bólusetningunni getii fylgt mjög alvarlegar aukaverkanir.

Bolsonaro kom nýlega fram opinberlega í Porto Seguro, í Brasilíu og sagðist þá ekki sjálfur þurfa bóluefni gegn COVID-19 þar sem hann hefði nú þegar fengið kórónuveiruna fyrr á þessu ári.

Hann brýndi fyrir löndum sínum að hver og einn bæri ábyrgð á sjálfum sér ef þeir fengju bólusetningu. Ríkisstjórn hans myndi ekki bera ábyrgð ef bólusetningin hefði í för með sér alvarlegar líkamlegar og andlegar afleiðingar eins og hann óttast.  Hann kvað jafnvel hugsanlegt að menn gætu afmyndast og orðið líkari krókódílum en mönnum.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 23.12.2020 kl. 21:44

10 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll nafni.

Það sem er vitað er að í fyrstu sendingu koma 10þ skammtar og síðan 3þ skammtar á viku þar til 50þ skömmtum er náð. Þetta er í hendi og ekkert annað.

Minna fer fyrir umræðunni um að af fyrsta skammti verða bara 5þ bólusettir og einungis 1500 á viku eftir það, þar sem geyma þarf helming efnisins til að framkvæma seinni sprautun.

Því er ljóst að búið er að tryggja bólusetningu fyrir 25þ manns. Hvenær kemur að hinum 343þ sem eftir eru vitum við ekki en ljóst að það mun dragast, jafnvel fram á næsta vetur.

Heilbrigðisstarfsfólk í landinu er á bilinu 5-10þ manns, þannig að fyrsta sending dugir ekki fyrir það. Hvað gamlafólkið er margt veit ég ekki nákvæmlega, en ljóst er að það fær lítið úr fyrsta skammti, þ.e. ef eitthvað er að marka ráðamenn, sem hafa alla tíð haldið því fram að fyrst eigi að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk og síðan gamla fólkið.

En eins og oft áður er lítið að marka ráðamenn. Konan mín er í hópi heilbrigðisstarfsmanna og vinnur á heimili fyrir sjúkt aldrað fólk. Í dag fékk hún póst um að hennar tími í sprautun yrði ekki fyrr en í febrúar en byrja á að bólusetja vistmenn um áramót. Miðað við það magn sem þegar hefur verið tryggt er líklegt að ekkert bóluefni verði til þegar kemur að henni.

Hvernig stjórnvöld hafa staðið að málinu er til skammar og fátt meira um það að segja. Réttast væri að taka það fólk og rassskella það opinberlega, í fyllstu merkingu!

Við munum því horfa fram á covid ástand á landinu langt fram á næsta ár, jafnvel út árið. Þökk sé kommúnískum ráðamönnum, sem telja að allt gull heimsins sé geymt í Brussel.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 23.12.2020 kl. 23:39

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir nafni minn Gunnar.

Þú ert glöggur að vanda og kemur auga á það sem mörgum yfirsést. Og frásögn þín af þínum nánustu í umönnunargeiranum er hreint átakanleg.

Mikið og innilega tek ég undir orð þín um fólkið sem þykist vera að stjórna landinu, en gerir það ekki. Þessi hryllingur á heldur betur eftir að vinda uppá sig og hafa afleiðingar.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.12.2020 kl. 00:57

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og nú er Bjarni Benediktsson formaður flokks míns búinn að endursanna sig sem raðdómgreindarskertur auli, barnafullorðinn böver og fábjáni, einu sinni enn. 

Þvílíkt og annað eins. Bjarni fer með flokkinn okkar í gröfina. Það var aldrei nein ástæða til að gera hann að formanni Sjálfstæðisflokksins önnur en ættarmál. Það er deginum ljósra.

Maður sér fyrir háfættan barnastól með Bjarna reyrðan niður í hann, enn slefandi í smekkinn sinn um fimmtugt.

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.12.2020 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband