Sunnudagur, 5. febrúar 2017
Brjéf til: Hæstvirtrar Janet L. Yellen formanns seðlabanka
Mynd; Brjéfið
31. janúar 2017
Kæri stjórnarformaður Yellen:
Ég skrifa þér vegna ítrekaðrar þátttöku seðlabanka Bandaríkjanna, Federal Reserve, í alþjóðlegum samkundum um reglugerðir fyrir fjármálastarfsemi. Þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi sent skýr skilaboð um að hagsmunir Bandaríkjanna í alþjóðlegum samningaviðræðum hafi forgang, þá virðist seðlabankinn halda áfram að semja um reglur fyrir fjármálastarfsemi við alþjóðlega skriffinna í fjarlægum löndum, án gagnsæis, ábyrgðarskyldu og heimildar til að gera svo.
Þetta er óásættanlegt.
Áframhaldandi þátttaka í alþjóðlegum samkundum eins og Ráðgjafarnefndar um fjármálastöðugleika (FSB), Baselnefndinnni um bankastarfsemi og eftirlits þess (BCBS) og svo í Alþjóðasamtökum vátryggingaeftirlita (IAIS) grundavallast á því að ná fram markmiðum hinnar nýju ríkisstjórnar. Hún mun líklega krefjast yfirgripsmikillar endurskoðunar á þegar gerðum samkomulögum sem á ósanngjarnan hátt refsa bandaríska fjármálakerfinu á sviðum eins og kröfum til eiginfjár, tryggingum, afleiðum, kerfislegri áhættu og eignastýringu.
Hina leynilegu skipan þessara alþjóðlegu samkunda verður einnig að endurmeta. Samkomulag eins og Basel III samkomulagið um fjármagn var gert og samþykkt af seðlabanka Bandaríkjanna með lítilli vitneskju bandarísks almennings og þær voru niðurstöður ógagnsæs ákvarðanatökuferlis. Alþjóðlegu stöðlunum var síðan snúið yfir í innlenda reglugerð sem þvingaði bandarísk fyrirtæki af ýmsum stærðum til að hækka verulega eiginfjárþarfir sem leiddi til lakari hagvaxtar hér í Bandaríkjunum.
Það er skylda og ábyrgð allra eftirlitsstofnana að styðja við bandaríska hagkerfið, og að gegnumlýsa og rannsaka alþjóðleg samkomulög sem eru að drepa bandarísk störf. Þar af leiðandi verður bandaríski seðlabankinn að stöðva allar tilraunir til að semja um bindandi staðla sem íþyngja bandarísku atvinnulífi þar til að Trump forseti hefur haft tækifæri til að útnefna embættismenn sem veita bestu hagsmunum Bandaríkjanna forgang.
Einlæglega
Patrick McHenry
Varaformaður
Fjármálaþjónustunefndar bandaríska þingsins
****
Já það er nú það. Er þetta kannski upphafið á endinum fyrir svo kallað "sjálfstæði seðlabanka"? Þetta er að minnsta kosti ekki upphafið á "sjálfstæði herafla", þar sem hershöfðingjar eru algerlega látnir einir um herinn með þeim rökum að fulltrúum fólksins sé ekki treystandi til að hafa vit á hermálum og að þeir skaði "trúverðugleika" hersins. Ef að menn eru hræddir um svo kallaðan "trúverðugleika seðlabanka" í höndum fulltrúa fólksins, þá er hægt að leysa það mál með því að skipa tölvu sem seðlabankastjóra, því eins og allir vita, þá hafa tölvur óendanlegan trúverðugleika, ekki satt. Náttúrlega algerlega galið
Verður "sjálfstæði seðlabanka" átlitin samskonar firra eftir 20 ár? Já það getur bara vel verið. Það getur bara vel hugsast
Seðlabanki Bandaríkjanna er peningakerfis- og greiðslustofnun sem þingið bjó til og sem á sig sjálf án þessa að eiga sig sjálf og hún skal skila rekstrarhagnaði, en ekki rekstrartapi. Seðlabanki Bandaríkjanna starfar í umboði bandarísku þjóðarinnar. Enginn á seðlabanka bandaríkjanna en þjóðin á umboð og hlutverk hans og hann starfar í þágu hennar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.2.2017 kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 4. febrúar 2017
Trump kominn í Obama-stöðu
Árið 2015 stöðvaði alríkisdómari á vegum 26 fylkja bandaríkjanna tilskipun Obama forseta um að veita milljónum ólöglegra innflytjenda lagalega stöðu í Bandaríkjunum
DDRÚV, góða fólkið og þvagræstimennin sem þá stefndu á þing hér á landi, ásamt stjórnlaga-óráðsmönnum, kúrðu sig þá sætt og hefðu eflaust dásamað lögleysuna ef þeir hefðu yfirhöfuð tekið eftir henni. En þar sem um vonda fólkið var að ræða árið 2015, þá var haldið aftur af sér á þingi og uppsafnaður vökvinn í góðra manna blöðrunni í staðinn látinn gossa yfir æðstu stofnun lýðveldis okkar í þessari viku
Málið fór að sjálfsögðu fyrir hæstarétt og þar endaði það, því sá réttur komst ekki að annarri niðurstöðu en jafnteflis, og var því dómur alríkisdómarans látinn standa og stendur hann enn. Obama reyndi að brjóta lögin en komst ekki upp með það, því Bandaríkin eru réttarríki. Það verða þau svo lengi sem menn komast ekki upp með að reyna að fylla þau upp af milljónum lögleysu-eininga á borð við þá sem Obama reyndi að dæla inn í landið. Öllum ber að fara eftir lögum landsins. Ólöglegir innflytjendur eru tímasprengja undir réttarríkinu og bandarískri menningu. Takast þarf á við þessa sprengju og er það stefna hins nýkjörna forseta að gera einmitt það. Kjósi menn að drekkja sínu eigin landi í vandamálum annarra, þá hafa þeir á endanum ekkert gott að bjóða umheiminum, þegar upp er staðið
Ég tel hins vegar að Trump forseti muni vinna þetta mál núna, komi það fyrir hæstarétt, sem er sú eina stofnun bandaríska lýðveldisins sem getur ógilt tilskipanir forsetaembættisins
Fyrri færsla
Ísland herðir hengingarólina um háls lýðveldis síns
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 3. febrúar 2017
Ísland herðir hengingarólina um háls lýðveldis síns
Hvert eitt skref til viðbótar í þá röngu óvestlægu átt sem leitt hefur heiminn inn í þá stöðu sem hann er að verða kominn í, er nú um daga tekið án þess að hugsa sig um. Síðustu tvö þeirra skrefa hér á landi voru tekin með allt bundið fyrir augun inn í AIIB fjárfestingabanka fyrir Asíu, og með þvagláti þingmanna á Alþingi Íslendinga, svo fátt eitt vont sé nefnt
Í fimm þúsund ár var litli maðurinn lokaður inni í búri elíta. Í 300 ár hefur hann verið nokkuð frjáls og óhlekkjaður, þökk sé Gamla testamentinu, kristnum þjóðkirkjum og bresku iðnbyltignunni
Það var sturlun að stofna Evrópusambandið. Það var sannarlega sturlun. Og það var sturlun að stofna til alþjóðavæðingar sem vann ekki fyrir litla manninn, heldur sem vann gegn honum. Alþjóðavæðingin er öfug bresk iðnbylting og Tóma testamentið. Hún er gerræðislega skaðleg litla manninum. Hún er steypustöð ömurleikans eins og hún er
Og það var svo sannarlega sturlun að standa í ræðustól lýðveldisins og kasta þar af sér þvagi yfir "the last best hope of earth"
Ég hef ekki rjúkandi sönnunargögnin enn. En þetta hefur alla burði til að fara afar illa. Já, afar illa
Fyrri færsla
Sáttmálaörkinni frá 1941 svarinn eiður í Hvíta húsinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 2. febrúar 2017
Sáttmálaörkinni frá 1941 svarinn eiður í Hvíta húsinu
Rétt í þessu: Sjálfsákvörðunarrétti þjóða svarinn eiður í Hvíta húsinu - bein krækja
Tilvitnun: Donald J. Trump 1. febrúar 2017; .."It is time to bring a clear-eyed focus to foreign affairs, to take a fresh look at the world around us, and to seek new solutions grounded in very ancient truths. These truths include the fact that nations have a right to protect their interests, that all people have a right to freely pursue their own destiny, and that all of us are better off when we act in concert and not in conflict".. - tilvitnun lýkur, og Andrew Jackson, frá mynd á vegg, horfir á
Beint fyrir framan augu okkar eru sögulegir atburðir að gerast. Donald J. Trump er að marka kaflaskipti í sögu mannkyns. Hann er að dusta rykið af og taka aftur í notkun gömlu Atlantshafssáttmálaörk (e. Atlantic Charter) Roosevelts og Churchills, frá árinu 1941, sem um borð í skipi á flóa við Nýfundnaland, meitluð var þar í þeirra daga steintöflur, sem staðfesting á Gamla testamentinu um þjóðfrelsið. Hófst þar með samstillt barátta bandalags frjálsra fullvalda þjóðríkja gegn heimsveldi (imperíal-ríkis-hönnun) Adolfs Hitlers kanslara Þýskalands, sem var uber-imperíalisti og ætlaði sér að ráða yfir mörgum öðrum ríkum, leysa útflæðandi upp sín eigin landamæri og þeirra, flæða út yfir heiminn og vera konungur yfir mörgum þjóðum, og hneppa þær í þrældóm með ofbeldi og 1942-áætlun um sameiginlega mynt, og allsherjar ráðuneyti yfir þeim öllum í Mittelpunkt Europas
.."the right of all peoples to choose the form of government under which they will live" - sáttmálaörkin frá 1941
Rétt í þessu var Rex Tillerson svarinn í embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna eftir að Öldungadeildin samþykkti tilnefningu Trumps á honum í embættið. Donald J. Trump vatt sér immed í innsetninguna eins og hans er venja, þ.e. að framkvæma og framkvæma og framkvæma strax, og hélt stutta en afar merkilega ræðu sem hlýða má á í myndskeiðinu. Hún segir það sem hér fyrir ofan stendur og að neðan:
Donald J. Trump er að taka steintöflurnar aftur í notkun, eftir áratuga rykfellingar, og hann er að endurreisa 1648 niðurstöður og forsendur Vestfalíu friðarins. Sjálfsákvörðunarrétti þjóða úr Gamla testamentinu var þarna svarinn eiður á ný. Já Gamla testamentið er heilög ritning Vesturlanda. Bara og einungis Vesturlönd hafa og höfðu Gamla testamentið og þess vegna eru þau einmitt Vesturlönd; það er ekkert Rómarríki í því og engin Aþena. En í þeim eru hins vegar landamærin, til að halda sér á mottunni innan þeirra, þjóðin og þjóðríkið, aðskilnaður valds og að maður má bara vera konungur yfir sínu eigin fólki, en ekki yfir öðru fólki, og sjálfsákvörðunarréttur þjóða og þjóðfrelsið. Þegar Bretar lásu þetta fyrst á sínu eigin tungumáli í Hinum heilögu ritningum, undir þeirra daga svartnætti, þá vonuðu þeir að Bretland gæti orðið nýtt Ísrael: þ.e. fengið þjóðfrelsi þjóðríkisins sem vörn fyrir litla manninn gegn þeirra daga alþjóðavæðingu al-alsins sem belgdi sig út fyrir landamæri sín og inn í þeirra land
Ég vona að DDRÚV framhalds-trompist eins og vera ber og fari með kommúnistaávarpið af einkatalnabandi sínu, einu sinni enn,- og aftur einu sinni, enn og aftur
**********
Það sem ég hef séð til og lært hingað til um þessa nýju stjórn í Hvíta húsinu, já það er farið að minna mig ansi mikið á þegar að berfættur og brútalt hnífskarpur Steve Jobs kom aftur inn í Apple og framkvæmdi einn stærsta viðsnúning í fyrirtækjasögu mannkyns. Þetta hjá Trump gæti orðið einn stærsti þjóðríkis-viðsnúningur í sögu Vesturlanda. En þetta verður auðvitað mögrum mögrum sinnum erfiðara verk. Og það verður mikið vol og væl hjá mörgum í kringum þetta og fólk mun koma fljúgandi út um gluggana, enda er það eðli breytinga á borð við þessa: að um þær standi gífurlegur styr, gluggaopnanir og hurðaskellir og andstaða allan daginn í langan tíma
Svo virðist sem að viðurkennt samþykki (e. consensus) um "núllvaxtar stöðnun" (e. secular stagnation) í markaðshagkerfi Bandaríkjanna og víðar sé að byrja að leysast upp meðal aðila hins kapítalistíska markaðar. Margir eru farnir að hugsa dæmið upp á nýtt, eftir bara eina viku Donalds J. Trump í embætti. Farnir að sjá hlutina í nýju ljósi
Þetta voru mínir fimm aurar, takk
Fyrri færsla
Flóttaleið úr Evrópusambandinu opnast
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 1. febrúar 2017
Flóttaleið úr Evrópusambandinu opnast
Fyrst er það hið leiðinlega og skammarlega; Það er runnið upp fyrir mér að utanríkisráðherra Íslands er bara fésbókhaldari. Og að forsætisráðherrann okkar hefur ekki stjórn á því sem hann á að hafa stjórn á. Þetta er leiðinlegt og skammarlegt. Ég skammast mín fyrir hönd Íslands og ríkisstjórnarinnar. Til hvers var ég að kjósa ykkur? Það skil ég lítið í þessa dagana. Út vellur ruglið og inn veltur dópið og lögleysan um hafnir landsins, og hver veit hvað vellur inn um EES-svartholið frá Evrópu. Traust mitt til ykkar hefur minnkað. Það versta er að þetta virðist ekki vera undantekningarástand eins og það sem varir enn í Frakklandi, heldur bara venjuleg skrílslæti á æðstu stöðum lýðveldis okkar, sem Bandaríkjamenn viðurkenndu fyrstir allra. Takið ykkur vinsamlegast á ef við eigum að þola og halda ykkur uppi
En svo er það hið góða; Á minna en viku hefur forseta Bandaríkjanna tekist að reka fleyg niður um kokið og til botns Evrópusambandsins. Á botni þess voru illvirkjar að semja áætlanir fyrir útgöngustyrjöld ESB gegn Stóra Bretlandi. Donald J. Trump hefur á minna en viku séð til þess að Evrópusambandið þorir ekki að snerta hár á höfði Bretlands. Og hann hefur í leiðinni rekið fleyginn svo rækilega niður í elítusvað Evrópusambandsins, að þau lönd sem eru komin með krónískt ofnæmi fyrir þýskri Evrópu, eins og frú Thatcher varaði við, já þau eygja nú von sem þau höfðu ekki áður. Að mögulegt sé ef til vill með vernd Bandaríkjanna að losna úr ESB-hryllingnum. Að gamall vinur sé þrátt fyrir allt ennþá til
Þetta var ein vika. Haldið þið þarna á þingi að þið getið ef til vill hagað ykkur sæmilega í eina viku? Og látið nú dómarann í friði
Fyrri færsla
Gengur Donald J. Trump í skrokk á Þýskalandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Þriðjudagur, 31. janúar 2017
Gengur Donald J. Trump í skrokk á Þýskalandi?
Hagnaðurinn á viðskiptareikningi Þýskalands við umheiminn er nú um það bil sá stærsti í veröldinni. Hann er hvorki meira né minna en næstum því stærri en hagnaður Kína er við umheiminn og sem prósent af landsframleiðslu nálgast hann 9 prósent! Sem þýðir 91 prósent geggjun fyrir flest önnur lönd evrusvæðis
Bandaríska fjármálaráðuneytið setti Þýskaland á sérstakan gátlista í október á síðasta ári. Þetta er listi sem blikkar rauðu í mælaborðinu yfir helstu gengisfalsara og nurlara veraldar. Þar blikkar nú þýska hagkerfið beint framan í andlit hins nýkjörna forseta
Obama gerði minna en lítið í þessu á allri sinni forsetatíð eins og flestu öðru, enda fór hann úr embættinu sem óvinsælli forseti en Nixon var og sem meira að segja sagði af sér. Einungis Ford, Truman og Carter mældust hjá Gallup, á tímabilinu frá 1945 til 20. janúar 2017, óvinsælli forsetar en Obama var í embættinu
Donald Trump þarf að glíma við þennan vanda. Hvað gerir maður við land eins og Þýskaland, sem ríður til veislu á bökum mölbrotinna hagkerfa evrusvæðis. Vanti Þýskaland enn lægra gengi til að styðja við útflutningsfíkn sína, þá kveikir það bara í enn einu evrulandinu í viðbót, evran lækkar bang og út hendast enn fleiri gámar frá höfninni í Hamborg. Þetta veit Donald Trump mjög vel
Á meðan eru mörg hagkerfi á evrusvæðinu að deyja í evrum. Þau eru varanlega löskuð. Það er ekki einu sinni hægt að lána þeim peninga því þau eru ekki lánshæf og fleiri peningar gagnast þeim ekki lengur. Þau geta einfaldlega ekki tekið við þeim því þeir gera ekkert gagn því einkageirinn er í öndunarvél. Meira súrefni kálar honum bara. Einkageirinn er; fyrirtæki og heimili. Þetta er finnska leiðið sem koma skal
Fáir hafa veitt því athygli að kosningabaráttan um brexit og svo kosningabarátta Donalds J. Trump, eru sennilega einu slíkar í manns minnum þar sem baráttan gekk ekki að mestu út á krónur og aura, heldur flest annað. Það eru tímamót og frétt til næsta bæjar, en sem enginn hefur sinnt í geggjunaræðisköstum flestra svo kallaðra "fjölmiðla"
Síðasti ráðherra Bandaríkjanna sem gekk í skrokk á Þýskalandi var James Baker. Donald Trump mun sennilega margfalda hann með tíu og hann gæti einnig látið verða af því að rífa suma afskaplega vonda pappíra í þúsund tætlur. Og svo hefur Donald Trump einnig símanúmerið hjá henni Yellen
Fyrri færsla
"Multilateral" eða fjölþjóðaisminn að renna sitt síðasta skeið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 30. janúar 2017
"Multilateral" eða fjölþjóðaisminn að renna sitt síðasta skeið
Stefnur, ismar, líkön og straumar koma og fara. Ein slík stefna á sviði milliríkjaviðskipta var merkantílisminn. Sú stefna og það viðskiptalíkan Evrópulanda ríkti í tæplega þrjár aldir. Merkantílisminn féll svo dauður niður er Bretar og Frakkar gerðu tvíhliða viðskiptasamning á milli landa sinna og sem kenndur er við Cobden og Chevalier, árið 1860. Hann er sagður fyrsti "(frí)verslunar-samningurinn" á milli ríkja. Sá tvíhliða viðskiptasamningur ruddi braut 57 tvíhliða viðskiptasamninga í Evrópu á minna en næstu 20 árum
En auðvitað eru svo kölluð "frí og frjáls viðskipti" ekki til og hafa aldrei verið til, þau eru alltaf pólitísk og ófrjáls að einverju leyti fyrir einhvern. Öðruvísi geta þeir "samningar" ekki orðið til. En viðskipti eru hins vegar sannarlega til, því er ekki hægt að neita. En þau eru aldrei frí né frjáls. Og oft eru þau ferlega klikkuð þegar á heildina er litið, þ.e. fyrir aðalfélagið, sem er þjóðfélag þjóðríkisins. En viðskiptin geta hins vegar verið tollfrjáls. Það geta þau
Á okkar dögum hefur e. "multilateralism" eða fjölþjóðaismi ráðið ríkjum það lengi, að allir eru komnir með lægsta sameiginlega nefnaranefið sitt í slíkum félagsskap, ofan í hvers manns kopp í mörgum löndum, sem þeir eiga ekkert erindi í. Þar þefa rugluð mismennin, kyngja eða skyrpa því sem gerist í öðrum löndum. Ygla sig eða kumpánast allt eftir því hvernig dagurinn er fyrir þá, en ekki hina. Allt er því að verða ein stór steik aftur og einn stór imperíalismi hins lægsta sameiginlega nefnara slíkra fyrirkomulaga. Þetta skeið er nú að renna út, og punkturinn fyrir aftan það er kominn á loft og byrjað að slá niður
Evrópusambandið er eitt gott dæmi um slíkt dulbúið viðskiptalíkan umhverfis svarthol. Bæði ESB og evran eru viðskiptatæki elíta til að stjórna öðrum og til að hagnast helst á þeim. Síðar meir í sögunni verður Evrópusambandið dæmt sem ófriðarbandalagið er tætti Evrópu í tætlur
Það sem tekur við af multilateralismanum, er stóri sannleikurinn úr hinum Heilögu ritningum Vesturlanda: þ.e. þjóðríkið sem hornsteinn velfarnaðar þjóða. Þjóðríkin munu svo gera eða ekki gera þá tvíhliða samninga við önnur lönd eftir því sem þeim sýnist. Þjóðríkið er komið aftur. Og imperíalismi þeirra sem gráta Brexit og fjórða og fjórtánda júlí, fer í kistulagningarferlið: ENDIR
Hér er tímamóta Fíladelfíu-ræða Theresu May í lauslegri þýðingu Björns Bjarnasonar; Theresa May hvetur - og hér má horfa á hana. Allir sem áhuga hafa á veröldinni ættu að kynna sér efni þessarar ræðu. Hún markar tímamót eins og innsetningarræða Donalds J. Trump gerir einnig: og hana má horfa á hér. Tvær stefnumótandi ræður sem marka sömu tímamótin
Fyrri færsla
Skelfilegt: stjórnmálamaður sem meinar það sem hann segir!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 26. janúar 2017
Skelfilegt: stjórnmálamaður sem meinar það sem hann segir!
Mikið fát og fum er að grípa um sig. Í Hvíta húsið er sestur maður sem meinar það sem hann segir. Og sem ætlar að framkvæma það sem hann lofaði kjósendum. Þessu eru menn ekki vanir. Það er náttúrlega algerlega skelfilegt að kjósendur fái ekki bara eitthvað fyrir atkvæði sitt; heldur fái það sem þeim var lofað
Eitt af því sem Trump segist ætla að gera hefur hann sagt á sem breiðastan hátt til að halda sem flestum leiðum opnum fyrir hvernig hann ætlar að ná því markmiði sínu; að uppræta Ríki íslams (ISIS). Að hann segi þetta, þýðir að Bandaríkin álíta "öfga-íslam" ógn við hagsmuni Bandaríkjanna í heiminum. Alvarlega ógn sem þau verða að takast á við sem fyrst
En það er bara einn hængur á því máli, en sem forsetinn mun þó finna út úr, því hann gefst ekki upp; hvernig á að skilja á milli pólitísks-íslam og ópólitísks-íslam? Svarið við þeirri spurningu er þetta; það er bara alls ekki hægt, því að hið eina rétta íslam er ávallt pólitískt íslam
Þegar íslam er í sínu eðlilega og rétta ástandi, þá er það pólitískt trúarafl og ríkis-stjórnin sjálf. Það mjúka íslam sem Vesturlandabúar hafa lært að þekkja að nokkru leyti er, já, það er hin mölbrotna og ónýta útgáfa af íslam fyrir 1,2 milljarða múslíma á veraldarvísu. Rústirnar af réttu íslam
Hin eina eðlilega og rétta birtingamynd íslams er pólitískt íslam sem bæði og samtímis er trúarlegt,- pólitískt,- og lagalegt yfirhöfuð lágrétts ríkisfyrirkomulags er nefnist kalífat
Þetta þarf Trump að glíma við. Það getur hann, því að virki hans er hið lórétta ríkisfyrirkomulag Vesturlanda sem hinar Heilögu ritningar gáfu heiminum; þjóðríkið. Og þau stjórna heiminum að mestu leyti af því að þau virka. Þau eru meistarar "nútímunar" nútímans (e. modernity)
Þau þurfa ekki að virka öll í einu af því að þau eru lóðrétt ríkisfyrirkomulag. Kalífatið er annaðhvort af eða á, alls staðar í einu, þvert á landamæri , ef það á að virka. Það er lágrétt ríkisfyrirkomulag
Takist Bandaríkjunum þetta ekki, þá verður birtingarmynd hins rétta íslams í fæðingarhríðum sínum eins og fæðingarhríðir byltinga Evrópu voru á einum stað í einu: fjöldamorð út í gegn - en þá bara alls staðar í einu, um allt kalífatið gjörvallt út í gegn
Trump mun sýna þeim hversu glötuð hreyfing þeirra er. Hversu vonlaust þetta er fyrir þá. Hversu mikið ofurefli þjóðríkið Bandaríkin eru miðað við kalífatið. Og það er nóg. Það er nóg að stilla drekanum upp og sýna íslam-x-y fram á ofurefli hans
Þetta munu Bandaríkin geta og jafnframt gera, af því að Evrópa er orðin algerlega getulaust fyrirbæri sem klikkað Evrópusamband álfunnar við ekki neitt. Þar er allt sambandslaust dinga ling gaga gúkk og nuts. Evrópusambands-kalífatið er svik við Vesturlönd, við þjóðríkið, og Evrópa mun þurfa að ganga í sjálfa sig aftur, ef hún á að virka á ný. Sú útganga útaf fyrir sig, mun ekki endilega ganga friðsamlega fyrir sig, - eins og við nú þegar erum byrjuð að sjá. Og það vita íslamistar ákaflega vel. Og það veit Donald J. Trump líka
Fyrri færsla
Fjölmenningarsamfélagið Sýrland
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 25. janúar 2017
Fjölmenningarsamfélagið Sýrland
James Mattis hermaður til 48 ára, settist standandi í embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna föstudaginn 20. janúar 2017. Undir hann heyrir allur herafli Bandaríkjanna. Fyrsta aðgerð hans var að senda eftirfarandi í skeyti til allra sem að varnarmálum Bandaríkjanna vinna:
"It is good to be back and I am grateful to serve alongside you as Secretary of Defense." - Það er gott að vera kominn aftur (til þjónustu) og ég er þakklátur fyrir að þjóna við hlið ykkar sem varnarmálaráðherra
Síðan hringdi Mattis á sinn kostnað yfir Atlantshafið í bandamenn sína, sem Bandaríkin hafa í samfellt 68 ár vonað að axlir vaxi á, og talaði fyrst við yfirmann NATO, sem er fátækur Norðmaður. Því næst hringdi hann í verðandi fullvalda kollega sinn í Stóra Bretlandi, Michael Fallon, til að láta hann vita að Stóra Bretland nýtur ávallt einstakrar sérstöðu sem grunnstólpa-bandamaður varnamála Bandaríkjanna
Mattis verður látinn um að breyta NATO úr sogröri niður í Bandarikin og í þjóðvarnar-bandalag fullvalda þjóðríkja
Ég hef horft á alla blaðamannafundi Hvíta hússins frá því að Donald Trump tók við embætti forseta þjóðríkis Bandaríkjanna, og ég horfði á Mattis koma fyrir hermálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. sem sjá má hér. Hér er einnig vefslóðin á setur Hvíta hússins á YouTube
Þegar þjóðin, já þjóðin, er numin á brott úr ríkjaskipan veraldar, þá breytist heimurinn í fjölmenningarríkið Sýrland - hættulega spilaborg og sundrungarfélag tundurs. Þetta vita allir nema þeir kjánar sem eiga að vita þetta. Og ríkjaskipan veraldar byggir á grunneiningum sem nefnast þjóðríki. Þeir sem vita þetta ekki, en ættu að vita það, eru í asnaskap að stofna til Sýrlands um alla plánetuna. Þá dreymir um nýtt Sýrland og Júgóslavíu sem nýtt helvíti á þeirra jörð, án þess að gera sér grein fyrir óskum sínum
Margt fólk með ofgreinda greindarvísitölu er í pólitískum rétttrúnaði að reyna að stofna til Sýrlands á tröppum sínum. Lýðskrum þeirra ætti venjulegt fólk ekki að hlusta á. Þessir lýðskrumarar tala í sífellu um "fjölmenningu". Mataruppskriftir frá öðrum löndum er ekki fjölmenning. Ei heldur húðlitur manna. Sýrland er hins vegar fjölmenning. Hafa skal það sem rétt er
Veruleg hætta er nú á að stórir hlutar Evrópu séu að breytast í nýtt Sýrland
Fyrri færsla
Sjálfstæðismaður kominn í Hvíta húsið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 24. janúar 2017
Sjálfstæðismaður kominn í Hvíta húsið
Einn stærsti atburður meira en bara nútímasögunnar fer nú fram, beint fyrir framan augu okkar
Nýr leiðtogi bandarísku þjóðarinnar er kominn í Hvíta húsið. Hann komst þangað fyrir eigin vélarafli. Hann skuldar engum neitt, nema þeim sem komu honum þangað; þ.e. kjósendum
Enginn bransi kom honum þangað. Engir hagsmunir komu honum þangað. Engir fjármunir annarra komu honum þangað. Enginn fjölmiðill kom honum þangað. Enginn flokkur kom honum þangað. Ekkert opinbert elítubatterí kom honum þangað. Og ekkert alþjóðlegt elítuálit kom honum þangað
Elítur allra fyrirbæra voru á móti honum. Allir valdamestu fjölmiðlar voru á móti honum, nema einn. Þeir ættu reyndar ekki að hafa nein mark á takandi völd, en þeir hafa það samt
Mest öll menningarelítan var á móti honum, sérstaklega sú til vinstri. Flestir pennar voru á móti honum, sérstaklega þeir til vinstri. Flestir hinir gáfuðu, með barnlausu greindarvísitöluna, voru á móti honum. Repúblikanaflokkurinn var að mestu á móti honum. Allt þetta batterí hafði Obama í bakið. Allt!
Donald J. Trump hefur ekkert af þessu. Hann hefur engan, - nema þá sem kusu hann. Hann hefur Bandaríkin. Hann stendur einn með þjóð sinni. En hann mun leiða hana áfram, hvað sem hver segir
Fyrri færsla
Landgöngulið Donalds Trump fer í bátana
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 16
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 1407538
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008