Mánudagur, 23. janúar 2017
Landgöngulið Donalds Trump fer í bátana
Sagt er að valdaskiptateymi Donalds J. Trump sé við það að stíga um borð í landgönguprammana og hefja innrás í 30 helstu ríkisstofnanir og ráðuneyti lýðveldisins. Fallhlífasveitir forsetans eru þegar lentar á tröppum þessara stofnana og hafa þær myndað brúarhöfuð sem landgönguliðið vinnur út frá
Fallhlífarsveitirnar munu svo afhenda landgönguliðinu lendingarskjöl forsetans, -segir sá sem fengið hefur að sjá eitt slíkt, en þó ekki fengið að lesa í þeim. Sagt er að hvert slíkt skjal sé um það bil 100 blaðsíðna innrásar,- hreinsunar,- og viðgerðaráætlun fyrir hverja einstaka stofnun. Hver stofnun mun fá að vita hverju hún verður að breyta, hvern á að reka og hverja þarf að ráða. Sagt er að lendingarskjöl forsetans séu þess eðlis og svo ítarleg að útilokað sé annað en að mörg ár hafi farið í að búa þau til
Þetta verða því vesturvígstöðvarnar um langan tíma. Fyrir utanaðkomandi aðila mun þetta stríð líta út sem öngþveiti, þar sem fólk kemur fljúgandi út um gluggana og nýtt er sent inn. Hinir utanaðkomandi, pressan og góða kyrrstöðustóðið, munu á meðan segja að forsetanum haldist illa á fólki
Svo virðist sem að lendingarskjölin innihaldi tvö markmið: að breyta ríkisstofnunum sem hafa komið sér upp stofnanamenningu til óbóta. Og að breyta menningu í þeim stofnunum sem reyna að gera það sem þær eiga að gera, en geta það ekki vegna stofnanamenningar sem lamar og hindrar þær í vinna sitt verk
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. janúar 2017
Trump hellir uppnámi á kerfið
James Mattis svarar einni af spurningum Gillibrand, sem er demókrati frá New York. Allt 3,5 tíma grillið má skoða hér, þar sem nýi varnarmálaráðherrann kom til staðfestingar fyrir nefnd Öldungadeildarinnar. Spennan og fróðleikurinn hefst næstum samstundis
Kellyanne Conway kosninga-strategíu-ráðgjafi Trumps, sagði að hinn nýi forseti myndi senda 98-oktan áfall um allt kerfið um leið og hann settist í embættið. Ræðuna sína skrifaði hann sjálfur, segir hún, en "með aðstoð" góðra manna, smávegis já
Jahá, erhem, pípan..harðfiskur..lýsi..kaffi..tja; Já, kannski eins konar 98-oktan súper trompet-högg sem lamar bráðina og helst rotar hana, en eftir viku vaknar kerfið úr rotinu, startar sér upp, og keyrir á nýjum nótum án þess að fatta hvers vegna það keyrði ekki alltaf svona áður; þ.e. á Trump nótum
Markmið Trumps er að ná fram mjög miklum breytingum á einni viku og ná fram stærra höggi á kerfið fyrir færri dali. Ná fram jarðvegs breytingum sem tæki aðra tólf ár að reyna að framkvæma með talla la la já góðan daginn elsku vinur strategíu
Til að ná þessu fram, þarf að láta alla halda að manni sé til alls trúandi. Einn sólarhringur er nú liðinn og þetta gengur bara ansi vel, verð ég að segja. Þetta er kölluð skapandi eyðilegging og er aðalsmerki kapítalismans; Bigger bang for the buck
Þetta voru mínir fimm aurar. Sofið rótt, Bandaríkin vernda ykkur enn
En á næstu dögum eða vikum, mun Norður-Kórea senda upp ICBM; þ.e. Taepdong2 eldflaug sem getur borið kjarnorkuvopn á milli heimsálfa; e. intercontinental ballistic missile - þ.e. eldflaug með 5-8 þúsund kílómetra drægni, sem þá nær til Íslands (horfa til hánorðurs), Evrópu niður að Spáni, Ástralíu og til norð-norð-vestur strandar Bandaríkjanna. Hvort að tilraunaskotið tekst eða ekki, veit enginn. Suður-Kórea segist hafa njósna-séð neðri hluta 15 metra langrar eldflaugar á flutningavangi í síðustu viku
Hvort að Norður-Kóreumenn þori þessu með 98-oktan manninn í Hvíta Húsinu, veit heldur enginn. En þeir munu ekki vita hvaðan á þá stóð veðrið þegar því verður dælt í þá
Anker Jörgensen var síðasti sósíalista forsætisráðherra Danmerkur sem fór í frí til Norður-Kóreu, sér til heilsubótar, á lúxus hressingarhæli sósíalismans þar í landi. Með sér í skjalatöskunni hafði hann ríkisleyndarmál Danmerkur til aflestrar í hvíld sinni þar (Heimild: UEJ 1996). Þetta var friðarframlag evrópska sósíalismans til NATO-aðildarinnar á þessum árum, og ekki hefur það batnað síðan þá. Svona var NATO-staða hinna "evrópsku bandamanna" Bandaríkjanna um næstum alla Evrópu. Ekki er því hægt að segja annað en að Eyjólfur hafi hresst sig töluvert við í sinni Norður-Kóreu í dag. Á þessum tímum fjármagnaði og skipulagði KGB flestar hinar svo kölluðu "friðarhreyfingar" Vesturlanda. Í dag fjármagna þeir mótmæli og varðelda. Kúnnarnir eru sömu tegundar nytsamir fábjánar og síðast
Frá og með árinu 1975 varð nettóútflutningur Bandaríkjanna til heimsins neikvæður. En þá gerðust Bandaríkin neytandi heimsins til þrautarvarna. Það er búið núna, segir Trump
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.1.2017 kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. janúar 2017
Skyldur Evrópu við Bandaríkin
Í gær skrifaði ég um NATO og Trump. Hægt er að setja tilvistarvanda NATO upp á eftirfarandi hátt:
a) Evrópa hefur áhyggjur af því að Bandaríkin yfirgefi NATO. b) Bandaríkin eru hins vegar enn að velta því fyrir sér hvenær Evrópa ætli að ganga í NATO. Ég velti því einnig fyrir mér hvenær Ísland ætli að ganga í NATO
Hið sama gildir um tilvistarvanda Evrópusambandsins. Rússland þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort og hvenær Rússland ætli að ganga í Rússland, né heldur af því hvort að Rússland muni yfirgefa Rússland. Það sama gildir um Bandaríkin. Þarna haggast ekkert. Enginn þarf að hafa slíkar áhyggjur af þesskonar tilvistarvandamálum þar
En þetta gildir hins vegar ekki um nein 27-lönd Evrópusambandsins, né heldur um Evrópusambandið sjálft sem stofnun. Þar hafa allir í öllum löndum viðvarandi áhyggjur af því að landið þeirra ætli að yfirgefa sjálft sig og ganga úr sér og í öll, en samtímis engin, önnur ákveðin lönd sambandsins. Og sambandið sjálft sem stofnun hefur viðvarandi áhyggjur af því að gufa upp þegar eitt land ákveður að hætta í skrípaleiknum og ganga í sjálft sig á ný. Geðið í þessum félagsskap mun bila, það er ekki spurning, og þegar það gerist þá mun það gerast sem geðbilun
Þetta er tíminn þar sem í ljós mun koma hvort að Bandaríkin og Evrópa eigi yfir höfuð samleið lengur og hvort að Bandaríkin muni láta Evrópu sem heild sigla sinn sjó, og einbeita sér að því eina þjóðaröryggismálamarkmiði sem þau hafa í Evrópu: að koma í veg fyrir að nein ein pólitísk eining geti nokkru sinni ráðið yfir öllum Evrópuskaganum á meginlandi Rússlands. Því markmiði geta Bandaríkin náð með því að einbeita sér að ríkjum Intermarium-svæðisins. Þar er fleygurinn sem skilur á milli lífs og dauða fyrir meginland þess sem þar hefur öldum saman verið. Og það eru bara Bandaríkin sem geta rekið þann fleyg á réttan stað. En ekkert NATO þarf hins vegar lengur til þess. Bandaríkin virðast eiga lítið sameiginlegt með restinni af meginlandi Evrópu, sem er útkjálki út úr meginlandi Rússlands, og það er staða mála sem Evrópa hefur skapað sjálf
Næsti forseti Bandaríkjanna verður sá sem mun segja þetta. Það er alger tilviljun að sá maður heitir Donald J. Trump. Þetta lá í loftinu og hefur legið í loftinu frá því að Evrópa gekk úr sjálfri sér og inn í ekkert
Fyrri færsla
Segir Donald Trump satt um að NATO sé úrelt - eða ekki?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. janúar 2017
Segir Donald Trump satt um að NATO sé úrelt - eða ekki?
Er þetta rétt hjá forsetanum? Og hver hefur áhuga á sannleikanum?
Til að svara því þá verða menn fyrst að spyrja sig þessarar spurningar: Ef við gefum okkur að NATO sé úrelt, fyrir hverja er varnarbandalagið þá úrelt og fyrir hverja það þá ekki úrelt?
NATO var stofnað sem varnabandalag Bandaríkjanna og Evrópu gegn hættu frá Sovétríkjunum. NATO átti að verja Evrópu og Norður-Ameríku gegn hættunni frá Sovétríkjunum.
Evrópa var í rúst vegna heimsveldisdrauma Þýskalands og markmiðs Versalasamningsins um að viðhalda valdaójafnvægi á meginlandinu vissum aðilum í hag, en öðrum ekki. Sá samningur var vopnaða útgáfan af evru og myntbandalagi Evrópusambandsins (EMU)
Efnahagur og sjálfstraust Evrópu var í rúst. Efnahagur Bandaríkjanna var ekki í rúst og sjálfstraust þeirra var í lagi. Efnahagur Íslands var einnig í rúst vegna kúgunar öldum saman og sjálfstraustið var næstum ekki neitt, en fór samt batnandi vegna 1918 og 1944. Vonin bjargaði okkur
Bandaríkin höfðu þá mikilla varnarhagsmuna að gæta á meginlandi Evrópu. Kalda stríðið var tilvistarógn gagnvart þeim og Evrópu og Íslandi
Bandaríkin sáu auman á Evrópu og stofnuðu NATO sér til varnar, og til varnar Evrópu, og Íslandi
Bandaríkin borguðu brúsann - allan
Frá því að þetta var staðan hefur margt breyst þökk sé Bandaríkjunum. Bandaríkin hjálpuðu Evrópu að rísa á fætur með örlátum gjöfum og gerræðislega kostnaðarsamri öryggis regnhlíf sem kom í veg fyrir að Sovétríkjunum rigndi niður á þá sjálfa og Evrópubúa sem voru á vestrænu áhrifasvæði Bandaríkjanna. Evrópa lifði og andaði undir varnarregnhlíf Bandaríkjanna. Vegna þessa varð Evrópa rík, en Sovétríkin og leppríki þeirra urðu fátæk
Sovétríkin detta svo í sundur vegna fátæktar. Þau höfðu ekki efni á sjálfum sér eins og Evrópa hafði ekki efni á sjálfri sér í rústum Þýskalandskeisarans Adolfs Hitlers. Hún þurfti hjálp og fékk hana. Bretland fékk enga hjálp en veitti hins vegar Evrópu og Íslandi hjálp og verndaði hana og okkur
Vegna þessa varð Evrópa rík. Það gat hún orðið vegna þess að hún fékk gjafir og vernd. En núna eru engin Sovétríki til sem ógna Evrópu. En Evrópa getur samt ekki varið sig. Bandaríkin verja hana ennþá. Hagkerfi Evrópu er stærra en hagkerfi Bandaríkjanna. Og 200 milljón manns fjölmennari. Evrópa er rík og hún er rík vegna verndar og gjafa Bandaríkjanna. Ísland er líka ríkt en gerir ekkert. Gerir sjálft lítið sem ekkert sér til varnar. Hvað er að?
NATO á að heita varnarbanalag. En í fyrsta skiptið sem 5. grein sáttmálans var virkjuð, þá brugðust bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu að mestu. Ekki alveg, en samt að mestu. Það gerðist þegar íslamistar réðust á Bandaríkin 11. september 2001. Sólarhring síðar var 5. grein NATO virkjuð vegna ákalls frá Bandaríkjunum til að lögga himininn yfir þeim (operation Eagle Assist, október 2001 til maí 2002). Bandaríkin stóðu næstum því ein, nema að því leyti að NATO gat skaffað AWACS, en sem Bandaríkin áttu þó sjálf. Gagnslaust og úrelt drasl evrópska meginlandsins tók aðeins að litlu leyti þátt í og bara vissum aðgerðum á erlendri grund. Aðeins Bretland stóð að fullu með Bandaríkjunum
Þýskaland og Frakkland neituðu þess utan í kjölfarið að rétta Bandaríkjunum hjálparhönd í bæði fyrsta og öðrum fasa eftirmálans; Afganistan og Írak. Þar breyttist sambandið á milli Bandaríkjanna og annars vegar Þýskalands og Frakklands á afgerandi slæman hátt. Þýskum hermönnum er þess utan bannað að taka þátt í bardögum þar sem þeir koma við sögu í NATO ISAF. Herafli NATO getur ekki einu sinni ferðast yfir landamæri margra NATO-ríkja í sjálfri Evrópu nema með því að bíða í 5 daga eftir leyfi frá yfirvöldum viðkomandi landa. Herveldi Eistlands gegn Rússlandi er til dæmis aðeins sex þúsund manns á friðartímum og helmingur þeirra eru í honum vegna herskyldu. Hinum megin við landamærin, sem fíflkerlingar segja í Evrópu að séu úrelt fyrirbæri, stendur 60 til 100 þúsund manna herafli Rússlands á þessum hluta Vestursvæðis rússneska hersins.
Virkjun NATO gegn Rússum við austurjarðar NATO-svæðisins er næstum því til að hlægja að. Þau fjögur lönd sem kalla sig Visegrad-löndin (V4) -Pólland, Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía- ætla til samans að senda 600 hermenn til Eystrasaltsríkjanna, eða 150 hver, á þessu ári og Þýskaland 200 hermenn með sín kústsköft. Á þessu ári munu Bandaríkin hins vegar sjálf og stranglega tvíhliða hafa sett inn fullvopnaða 5-8 þúsund manna herdeild og tæplega þúsund topp tjúnaða skriðdreka á þessum væng og sem er meira en helmingi meira en allur styrkur NATO er á þessu heita svæði. Allur hinn gangfæri skriðdrekafloti alls Þýskalands er aðeins 220 stykki af úreltum Leopard2 brandara frá 1970. Hvað á þetta að þýða?
Bandarískir skattgreiðendur og mannslíf eru lögð beint að veði beint framhjá NATO til varnar Evrópu! Af hverju er þetta svona? Jú vegna þess að þegar að NATO ríkjum Evrópu kemur þá eru fyrirvararnir svo margir á þátttöku þeirra í aðgerðum, að vonlaust er að eiga við það bákn á neyðarstund. Til dæmis voru í gildi 83 þátttöku-fyrirvarar evrópskra ríkisstjórna NATO-landa innan ISAF-herfaflans í Afganistan
Summa summarum:
Sovét er dautt. Tilgangur NATO var að mæta ógninni frá Sovét. Sjálft skotmark NATO er horfið. Hvað á það þá að miða á? Bara eitthvað út í loftið?
Evrópa er rík og Ísland er ríkt, en Bandaríkin aumkvuðu sig þó samt yfir fyrrverandi leppríki Sovétríkjanna þegar þau losnuðu mölbrotin undan oki þeirra, og samþykktu þeirra vegna að standa áfram sem ábekingur NATO á meðan þau ríki væru að koma sér á fætur og innlima sig sjálf inn í herstjórnarkerfi Vesturlanda, sem er viðamikil stofnun. Síðan þá eru liðnir áratugir
Bandaríkin sjálf njóta lítils gagns af NATO vegna þess að Sovét er dautt. NATO gagnast ekki hagsmunum Bandaríkjanna í Evrópu. Þess vegna snúa þau sér beint til Intermaríum ríkjanna og ganga þar tvíhliða til verks; með tvíhliða samningum um varnir þeirra. Þar er NATO bara til athlægis og jafnvel beinna trafala með sinn hernaðarlega kústskaftaskóg meginlandsins
Ef einhver getur sagt mér að NATO sé ekki úrelt vegna þess að það er gamalt og gagnslítið fyrir þann sem borgar fyrir það, þá má viðkomandi mjög gjarnan svara mér með rökum um að svo sé ekki
Fyrir meginland Evrópu og Ísland er NATO hins vegar ekki úrelt, því þau fá þar allt gratís á kostnað Bandaríkjanna. Þannig félagsskapur er ekki bandalag, heldur sogrör þeirra ofan í Bandaríkin. ergo: NATO er í reynd úrelt stofnun. Donald Trump segir satt
Ísland er ekki mikilvægt fyrir Bandaríkin lengur. Að minnsta kosti ekki eins og er. Það getur hins vegar hæglega orðið það aftur. En hin krónísku pólitísku vandræði við land eins og Ísland, sem virðist ekki kunna að skammast sín, eru svo mikil að landföst herstöð fyrir Bandaríkin er ekki eins álitleg og fljótandi herstöð. Mitt álit er að NATO sé úrelt af því að það er gamalt og að Bandaríkin viti það mjög vel. Og að í stað þess munu koma tvíhliða sáttmálar við hvert ríki fyrir sig eins og er að gerast í Intermaríum ríkjunum
Við verðum að taka málin í okkar hendur og að minnsta kosti vera fær um að lögga lofthelgi okkar eins og landhelgina og sjá um fyrstu varnir í þær klukkustundir sem það tekur Bandaríkin að koma á vettvang og að þeir hafi þá sanngjarnan rétt til að lenda hér og vera hér með sínar ómetanlegu græjur okkur og þeim til varna án hins eilífa pólitíska aumingjakjaftæðis allt of margra í okkar bandarískt blessaða landi. Það er staðreynd að Bandaríkin hafa blessað Ísland og gera enn. En þeir hafa ekki þolinmæði í endalausan aulahátt okkar
En eins og er þá er held ég að skömm okkar sé mikil í augum Bandaríkjanna. Mér finnst það sálfum, en ég vona að ég sé svo illa að mér í þessum efnum að ég hafi algerlega rangt fyrir mér. Ég vona það
Takk
Fyrri færsla
Bretland losar sig við hlut sinn í Evrópusambandinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 18. janúar 2017
Bretland losar sig við hlut sinn í Evrópusambandinu
Bretland hefur ákveðið að losa sig við hlutabréf sín í Evrópusambandinu. Rekstur sambandsins gekk erfiðlega um stund, en eftir að nýtt Þýskaland hóf yfirtöku á flestum atkvæðagefandi hlutum þess, er Bretum nú ljóst að Evrópusambandið hefur ávallt síðasta orðið sem Sameinað Þýskalandi H/F. En það þýðir að kjölfestir hluthafar hafa ekki lengur orðið og að félagið stendur því líklega frammi fyrir afskráningu og einkafélagsformyndugleika. Greinendur eru sammála um mikilvægi þess fyrir Breta að hafa losað sig við hlut sinn í tæka tíð
Áhrifin á Evrópusambandið GmbH verða hins vegar þau að fjármálalegi stöðugtlekinn sem einkennt hefur Evrópusambandið, mun verða enn meiri og gera bankakerfi jafnvel óþörf í löndum sambandsins. Áhrifin á peningastefnu ESB eru þau að hún verður endurskoðuð á kjörtímabilinu sem á ný er þúsund ár
Bretland hefur þó skilið eftir þann helming eignastýringar sem í augnablikinu sér um markaðsvakt á bréfum Rússlands í Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Rúmeníu og Búlgaríu. Hinn helminginn sjá Bandaríki Norður-Ameríku um, vegna þess hve tímafrekt það er fyrir hina innri markaðsvakt Evrópusambandsins sjálfs að sjá um peningatalningu hins innri markaðar Þýskalands í sambandinu
Lýkur þar með þátttöku Bretlands í stjórnmálum 28 annarra ríkja á meginlandi Evrópu. Í framtíðinni mun Bretland einbeita sér að sínum eigin stjórnmálum og hefja viðskipti við heiminn á ný undir merkinu "hinn ytri markaður". Verður vörumerkjastjórn aftur sett í hendur breskra kjósenda undir slagorðinu:
Great Britain!
Fyrri færsla
Auðvitað er NATO úrelt - eins og það er núna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 17. janúar 2017
Auðvitað er NATO úrelt - eins og það er núna
Mikið, ákaflega flott og tilætlað fjaðrafok í kjallaraholum meginlands Evrópu hefur orðið vegna ummæla Donalds Trump um NATO. Hann segir að NATO sé úrelt. Þrjú orð: NATO er úrelt og menn svitna í ESB. Svitna bókstaflega
En það er ekki þar með sagt að hann hafi sagt að sjálft hlutverk NATO sé úrelt. Hann er að segja að NATO eins og það er núna, er ófært um að gegna því hlutverki sem það á að gegna í þerri stöðu sem ríkir núna. Og sú staða er einungis algerlega dæmigerð. Hún er á engan hátt einstæð né hvað þá sérstæð
Menn hafa beintengt NATO um of við (bölvunar) þróun Evrópusambandsins. En það samband hefur verið í upplausnarferli frá því að tilvist þess byrjaði að reyna á það. Það er vonlaus góðvirðisstofnun sem á engan hátt er hægt að tengja við NATO á neinn hátt. En samt hefur það verið gert. Og það er ekki gott. Það er slæmt
NATO sjálft hefur engan her. Það eru meðlimir þess sem hafa her, en það eru í reynd einungis Bandaríkin og Bretland sem hafa raunverulegan her. Hvort að Frakkland er með eða ekki með, veit enginn fyrir víst fyrir utan sex mánaða fyrirvara
Grundvöllur NATO eru útgjöldin sem skapa bandalagið. Og útgjöldin koma frá fullvalda ríkjum sem vilja verjast. Bandaríkin borga 650 milljarða dala af grundvelli NATO sem í heild er 900 miljarðar á verðlagi ársins 2016. Bretland borgar 60 milljarða dala. Kanada borgar 16 milljarða dala. Restin af öllu NATO, þ.e allt meginland Evrópu, borgar 170 milljarða dala. Bandaríkin, Kanada og Bretland halda NATO uppi með því að borga 80,5 prósent af þeim útgjöldunum sem mynda afl NATO - og sennilega borga þau 200 prósent af getu þess inn í framtíðina. Það er að segja: 430 milljón manns á meginlandi Evrópu borgar svo að segja mjög mjög lítið og Ísland borgar að því ég best veit ekki neitt, sem er alger skandall, ef rétt er. Við eigum að minnsta kosti ekki neitt okkur til varna nema loft
Við Íslendingar erum næstum því að helmingi til jafn fjölmenn þjóð og Ísraelsríki var við stofnun þess 1948 og sem barðist þá eitt fyrir sjálfstæði sínu gegn fimm ríkjum samtímis og sigraði: Egyptalandi, Jórdaníu, Írak, Sýrlandi og Sádi Arabíu. En við! já við, eigum ekkert til að verjast með; ekkert! Við getum ekki einu sinni löggað loftrými okkar. Þetta er svo skammarlegt að varla er hægt að segja neinum manni frá þessu. Við ættum nú þegar að hafa fjórar væng-stöðvar á landinu til að lögga lofthelgi okkar með orrustuþotum. En hér er bara hola ofan í jörðina. Tóm hola. Af hverju er þetta svona aumingjalegt!
Ef ég væri Donald Trump þá myndi ég hugsa svona: Helsta ríkið á meginlandi Evrópu er Þýskaland. Þetta ríki þykist eiga Evrópu núna, en gallinn við þetta ríki er að það er svarthol. Og það er ekki hægt að byggja sólkerfi umhverfis svarthol. Það hagar sér þannig. Og af hverju slær þetta ríki þá ekki einnig eignahaldi sínu á vandamál meginlandsins og leysir þau með því að borga fyrir þau. Af hverju hefur meginland Evrópu ekki séð um varnir á austur"strönd" þess, gagnvart Rússum?, sem þess utan eru á brauðbótum eins og er. Af hverju ver Þýskaland ekki Austur-Evrópu gegn Rússlandi? Hvað er að? Jú það sem í raun og veru er að, og þegar til kastanna kemur, er að Þýskaland veit ekki í hvorn fótinn það á að stíga. Það hefur í reynd gamla drauma um að stofna stórveldi saman með Rússlandi, sem storkað getur Bandaríkjunum á veraldarvísu. Þýskaland er geðklofið ríki í þessum málum og það er fæðingargallað 1871-veldi sem enn er að ryðja sér til rúms á meginlandinu, með mestmegnis ömurlegum afleiðingum. Það er enn óþekkt stærð. Og vegna þessa, þá eru það auðvitað ennþá Bandaríkin sem eru ábekingur Austur-Evrópu, en ekki NATO. Allar þær varnaraðgerðir sem gripið hefur verið til í Austur-Evrópu eru á beinum vegum Bandaríkjanna sjálfra og Intermarium ríkjanna (Pilsudski), en ekki NATO, þar sem einróma samþykki allra meðlima þarf til aðgerða
Vegna þessa mun ég, Donald Trump, senda shock, awe og terror skilaboð til meginlands Evrópu og henda mönnum þar sofandi úr söðli sínum. Hrista upp í aulaveldi Evrópu og sjá hvað gerist. Í leiðinni vil ég helst losna við Evrópusambandið sem stofnun, því það stendur í vegi fyrir því að NATO geti orðið það sem það var, og ESB býr samtímis til vandamál sem eru óleysanleg
.."the right of all peoples to choose the form of government under which they will live" - sáttmálaörkin frá 1941
En NATO var frá meira en upphafi þess varnarbandalag fullvalda ríkja - þið munið þetta kannski enn; Atlantshafssáttmálaörk (e. Atlantic Charter) Roosevelts og Churchills frá árinu 1941, sem um borð í skipi á flóa við Nýfundnaland, meitluð var í þeirra daga steintöflur sem staðfesting á Gamla testamentinu um þjóðfrelsið. Hófst þar með samstillt barátta bandalags frjálsra fullvalda þjóðríkja gegn heimsveldi (imperial-state-hönnun) Adolfs Hitlers kanslara Þýskalands, sem var uber-imperialisti og ætlaði sér að ráða yfir öðrum ríkum og vera konungur yfir mörgum ríkjum og hneppa þjóðir þeirra í þrældóm. Þessum tilgangi NATO hafa hinir frjálslyndu, þ.e. imperíalistar nútímans, algerlega gleymt. Og það sem verra er; hinir "frjálslyndu" fatta ekki hvernig þeir eru orðnir sjálfir; þ.e. ný-imperíalistar
Eftir þessi ummæli Trumps, skemmti ég mér konunglega við að horfa á kínverja Evrópu, Þýskaland, svitna við að halda utanum illa feginn gróða sinn af því Evrópusambandi sem er að rústa Evrópu. En rústuð Evrópa þarf ekki NATO, hún þarf leiðtoga eins og Donald Trump til að byggja upp handfestu og staðfestu. Mann sem veður í gegnum sýnilega sem ósýnilega múra á hverjum andskotans degi og tekst það! Hann er líklega öflugasti leiðtogi sem Bandaríkin hafa átt síðan ég veit bara ekki hvenær. En auðvitað sjá menn það ekki núna, því þeir eru svo önnum kafnir við að baktryggja sjálfa sig gegn því að líta úr sem bjálfar, ef leiðtoganum skyldi nú ekki takast það sem takast þarf: að byggja upp Vesturlönd á ný
Eins og James Mattis sagði: "Ef NATO væri ekki til í dag, þá yrðum við að finna það upp". Já, NATO er ekki til í dag. Trump er að finna það upp. Það gengur sennilega svona fyrir sig, subbulega
Stofnun Evrópusambandsins byggðist á því að láta sambandið líta út sem gjafabúð í augum asna til að verða ríkur á. Allir áttu að geta tekið út, en enginn átti að þurfa að leggja neitt inn. Þetta drasl er allt saman algerlega gjaldþrota í dag. ESB er búið að vera. Það er eitrað svarthol, stofnað til höfuðs fullvalda ríkjum. Út með það - og aftur inn með þá ríkjaskipan Gamla testamentisins sem Roosevelt og Churchill meitluðu út í stein og börðust svo hart fyrir; þjóðfrelsi og fullveldi þjóða. Ekkert annað afl en bandalag þeirra geta ráðið niðurlögum ófreskja. Án þeirrar ríkjaskipunar mun heimurinn fara aftur til fjandans
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 16. janúar 2017
Donald J. Trump segir satt
Um helgina birtist viðtal við Donald J. Trump í bresku dagblaði. Financial Times hefur birt glefsur úr því og þær hef ég séð, en þó ekki viðtalið í heild. Ég leyfi mér að líma hér inn smá:
Mr Trump told Mr Gove: "You look at the European Union and it is Germany. Basically a vehicle for Germany. That is why I thought the UK was so smart in getting out."
Trump segist vilja gera fríverslunarsamninga við Bretland. En Bretland er þó ekki fullvalda ríki af því að það er enn lokað og læst fast inni í Evrópusambandinu, en samt á leið út, og það getur því ekki og má ekki gera fríverslunarsamninga við önnur ríki á meðan það er enn læst ófullvalda og ósjálfbjarga inni í Evrópusambandinu. Það getur fyrst gert slíka samninga við Bandaríkin þegar fullveldi Bretlands er endurheimt með útgöngu þess af yfirríkislandsvæði Evrópusambandsins sem varð sjálfstætt ríki með tilkomu Marðarspelkusáttmálans 1992. Fyrst þá hefur fullveldi Bretlands endurheimst úr klóm ESB. Og með fullveldinu kemur rétturinn til samningagerða við önnur fullvalda ríki, en þó ekki við nein ríki Evrópusambandsins því þau eru, eins og áður er sagt, ei fullvalda, heldur bara krypplingar og húmbúkk-einingar í aulaveldi
Þetta er það sem Evrópusambands aulabárðar Íslands vilja að ástkæra og ylhýra landið okkar lendi í og þeir segja ávallt ósatt um málefnið. En sem Bjarni okkar formaður Sjálfstæðisflokksins stoppaði þá svo flott af í að geta. Þeir vilja að Ísland missi sjálfsákvörðunarréttinn aftur af því að þeir eru imperíalistar. Í dag eru það hinir svo kölluðu "frjálslyndu" sem eru imperíalistar heimsins. Þeir fara að gráta á 17. júní og þeir grenja úr sorg þann 4. júlí. Og þegar 14. júlí rennur upp, þá grenja þeir enn meira og tárin fossa stjórnlaust úr þeim þegar að fullveldis-brexitdegi Bretlands kemur, því þeir halda að það sé "frjálslyndi" að vera alþjóðlegur imperíalisti
Þetta halda þeir af því að þeir eru orðnir alþjóðaasnar og trúa á alþjóðakeisarann sem enginn kaus. En Hinar heilögu ritningar Vesturlanda segja hins vegar að maður eigi að skála, fagna og grilla og senda upp flugelda á þessum dögum. Sjálfsákvörðunarréttur þjóða er undirstaða farsældar og friðar í heiminum. Menn fagna frelsinu en gráta ei á þessum dögum og einn af þessum dögum var einmitt brexit. Áður en þessir imbar snéru heiminum á hvolf þá var það sjálfsákvörðunarréttur þjóða sem var sjálft frjálslyndið í heiminum. Hinum Heilögu ritningum vesturlanda eigum við flest að þakka í dag. Þeim hafa alþjóðaimbarnir einnig snúið á hvolf
He also revealed that Mr Trumps team had called EU leaders to ask "what country is to leave next". (ha ha ha ha ha! frábært!)
Trump segir að Evrópusambandið sé öskubifreið Þýskalands sem gúffar í síg ríki Evrópu. Til þess auðvitað að hagnast á þeim og ráða yfir þeim, segi ég. Það er líka rétt hjá honum. Og hann segir líka að allt Evrópusambandið sé að verða eitt Þýskaland. Það er líka rétt hjá honum, því að öllu Frakklandi er að blæða út í þeim dundurskassa sem það hélt að ESB gæti orðið að til halda Þýskalandi önnum köfnu við dundur í. En nú er Þýskaland búið að éta kassann og er byrjað að gúffa Frakkland í sig. Það sést vel á efnahag, stjórnmálum og þjóðfélagsástandinu í Frakklandi í dag. Næstum enginn hagvöxtur í 20 ár og gerræðislegt massíft atvinnuleysi áratugum saman og þjóðfélagsleg ólga sem sjaldan fyrr. Því fyrr sem keisaralegt Evrópusambandið drepst, því betra fyrir þjóðir Evrópu. Hmpf!
Í morgun lækkaði kanadíska matsfyrirtækið DBRS lánshæfnismat sitt á skuldabréfum ríkissjóðs ófullvalda Ítalíu, niður í BBB. Ítalía missti eina A-ið sem það hafði. Evran, mynt Evrópusambandsins, hefur lagt allt bankakerfi Ítalíu í rúst og allir í því hagkerfi eru að verða ólánshæfir -í ýtrasta skilningi orðsins- því útilokað er að koma hagvexti í gang undir mynt Þýskalands. Ítalía er fangi röngu megin við rimla evru-fangaklefans. Það er á bak við rimlana, en ekki fyrir framan þá. Ítalía hefur ekki kjarnorkuvopn til að brjótast út úr mynt Þýskalands, eins og Frakkland þögult hefur
Krækja
FT: Donald Trump takes swipe at EU as "vehicle for Germany"
Fyrri færsla
Gladrabrennur: Karl gat ekki orðið ráðherra vegna þess að hann er ekki kona
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Gladrabrennur: Karl gat ekki orðið ráðherra vegna þess að hann er ekki kona
Þær eru orðnar ansi margar galdrabrennurnar sem kyntar eru í dag undir heilbrigðri skynsemi manna. En segja má að Stalínisminn um kynjakvóta sé eitt það hallærislegasta um þessar mundir - fyrir utan kommúnismann í vísitölusjóðum sem fjárfesta í öllu því drasli sem viðurvist hefur í vísitölum, bara vegna þess að það er í vísitölunni. Hreinn og tortímandi Marx-Lenín sósíalismi af verstu gerð
Mér þykir leitt að maðurinn sem ég kaus í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og sem sigraði stórt í mínu kjördæmi, Norðvestur, Haraldur Benediktsson, skuli ekki hafa getið orðið ráðherra vegna þess að hann er ekki kona. Þetta er hreint brjálæði
Hverslags endemis galdraþvæla og Stalínismi er þetta eiginlega. Eru menn gengnir af göflunum. Hvað verður næst? Ef menn halda að þeir séu að vinna góðum málstað gagn með svona rugli, þá get ég upplýst þá um að þetta er það versta sem hægt er að gera konum og jafnréttismálum yfir höfuð. Þetta eru bara nýjar galdrabrennur. Hafið þið ekkert lært? Er það þetta sem kemur út úr þeim hluta landsframleiðslunnar sem varið er til menntamála. Tóm þvæla!
Ísland barðist ekki fyrir fullveldi og sjálfstæði til að geta orðið skrifræðisríki. Alþingi Íslendinga var ekki stofnað til þess að verða sovésk matrixa. Og embætti forsætisráðherra -hins pólitíska höfuðs lýðveldisins- var ekki hugsað sem bókfærsluembætti
Fyrri færsla
Meginland taparanna: "Evrópusambandið aldrei sundraðra"
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.1.2017 kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Meginland taparanna: "Evrópusambandið aldrei sundraðra"
Mynd: geopólitískt perspektíf Þýskalands á landmassa evrasíu. Svona sér Þýskaland heiminn sinn og Evrópusambandsins. Þessari sýn deilir Austur- og Suður-Evrópa ekki með Þýskalandi, sem á orðið allt ESB
Já þetta er mikið rétt hjá honum Sigmari Gabríel þarna í Þýskalandi (sjá frétt Morgunblaðsins að neðan); Þýskaland þénar mikið og stórt á óförum annarra. Enda var það alltaf tilgangurinn með evrunni og myntbandalagi Evrópusambandsins
Evrusvæði Evrópusambandsins er núna haldið saman með peningapólitísku ofbeldi án skriðdreka til að komið sé í veg fyrir að Þýskaland verði gjaldþrota. Þýskaland er því miður öfugsnúið öldrunarhagkerfi, sögulega ólæst á efnahagsmál og jafnframt vestur-kína Evrópu, sem getur ekki staðist vegna þess að 50 prósent útflutningsfíkn þess af landsframleiðslu þolir ekki að missa neinn gísl úr því gíslatökubúri sem búið er að gera Evrópusambandið að handa Þýskalandi
Þýskaland þolir ekki að neitt land yfirgefi útflutningsmarkað þess sem er hinn svo kallaði "innri markaður" og sem hönnunarlega séð er fyrst og fremst til fyrir Þýskaland, alveg eins og allt ERM dótið sem sprakk 1992 var, og gerði um leið Þýskaland þá að hinum sjúka manni Evrópu. Evran átti hins vegar að halda þessu búri saman
Helmingur alls útflutnings Þýskalands fer til hins svo kallaða innri markaðar. Útflutningsfíkn upp á tæp 50 prósent af landsframleiðslu í fjórða stærsta hagkerfi veraldar með 18 lönd hlekkjuð við sig í læstu gengisfyrirkomulagi, er stærð sem startað getur heimsstyrjöld. Og það er einmitt það sem líklega mun gerast, með dyggri aðstoð frá austur-kína í Kína. Það er ekki hægt að byggja sólkerfi með 18 plánetum í kringum svarthol. Þýska hagkerfið er svarthol. Eyðileggjandi massíft svarthol
Vanti Þýskalandi enn lægra gengi gagnvart umheiminum, þá kveikir það bara í einu landi evrusvæðis í viðbót. Dugi það hins vegar ekki til, þá er milljón manna massa af geimverum með handsprengjur frá öðrum plánetum rétt í þessu sleppt lausum á hin handjárnuðu leppríki sem læst eru föst inni í Evrópusambandinu með evrum undir pervertri peningastefnu, sem einungis er tandurhrein heimsvaldastefna (e. imperialism) í nýjum klæðum
En það er alrangt hjá Sigmari Gabríel að þá myndu "börnin okkar og barnabörn fordæma okkur" fyrir að frelsa Evrópu frá oki evru og ESB með því að leggja sambandið niður. Þau munu hins vegar fordæma foreldra sína fyrir að hafa búið til þann Frankenstein peningamála sem evra Evrópusambandsins er. Fordæma þá eins og heimsvaldasinnaðir nasistar voru fordæmdir fyrir að tortíma Evrópu með imperialisma sem stúta átti öllum þjóðríkjum Evrópu, Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku með líkamlegu ofbeldi. Sagan er að endurtaka sig, en bara í nýju formi. Þetta munu börn Gabríels ekki fyrirgefa. Ekki þarf að hafa neinar áhyggjur af börnum þýska kanslarans, því hún á engin sjálf, nema þau sem hún reynir að kaupa ást frá með brjálæðislegum tilraunum til að drekkja Þýskaland í tifandi tímasprengjum og geimverum
Þegar hrun fjármálabólunnar skall á, og sem í Evrópu var sköpuð með rotnum ECB-seðlabanka Evrópusambandsins sem átti þann veginn --framhjá þýska seðlabankanum og innlendri löggjöf frá Bandamönnum-- að skaffa dauðvona Þýskalandi dulbúinn örvunarpakka með gerræðislegum óábyrgum lánveitingum og peningapólitík sem drekkti gíslum evrusvæðis í suðri í skuldum undir neikvæðum raunstýrivöxtum til þess að búa á þann hátt til eftirspurn eftir þýskum vörum úr norðri, á hinum innri markaði, þar sem gíslar Þýskalands eru læstir inni í, já, þá kom auðvitað í ljós að hagsmunum þjóðríkjanna varð að fórna fyrir yfirríðandi hagsmuni Evrópusambandsins
Á fagmáli heitir þetta heimsveldisstefna e. imperialism. Þetta er jú hún gamla Evrópa og hún er ávallt söm við sig. Evrópumennin hafa langa reynslu í svæsnum pólitískum perraskap. Þau menni hennar blikkuðu ekki einu auga er hálf milljón manna misstu lífið á fyrstu viku Fyrri heimstyrjaldar. Hefði álfan haft kjarnorkuvopn þá og allar götur síðar, þá hefðu villimenn Evrópu notað þau án þess að blikka einu auga
Í frámálakreppunni sem enn blússar á meginlandi Evrópu var þjóðríkjunum fórnað á altari evrunnar til þess að hún gæti lifað af. Ef Þýskaland missir evruna, þá fer það í þrot. Miklu betra er því fyrir það að láta önnur ríki um að bjarga því og um leið leggja sjálf sig niður svo að vér í Þýskalandi getum sest ofan á alla álfuna einu sinni enn. Þetta er sá hvati sem lá að baki stofnun myntbandalagsins og Evrópusambandsins og einnig sjálfs Þýskalands 1871; samkeppnisfyrirkomulag og ekkert annað. Restin var sölugas sem hálfvitar Evrópulanda keyptu
Nú er 30-50 prósent af öllum lánasöfnum ítalska bankakerfisins í vanskilum. Skuldararnir geta ekki borgað því þeir hafa verið lagðir í rúst með evrum. Vel rekin fyrirtæki og heimili geta ekki einu sinni borgað né hvað þá flokkast sem lánshæf til að hægt sér að framlengja lengur og útilokað er að búa til hagvöxt. Þau eru varanlega lögð í rúst með evru. Þessi lánasöfn eru allar þær eignir sem bankarnir hvíla á. Allt hlutafé bankanna er löngu brunnið til ösku og nýtt algerlega ófáanlegt vegna fullkomins vantrausts. Lánasöfnin eru ekki bara í vanskilum, heldur eru þau algerlega brunnin rúst sem rýkur ekki einu sinni úr lengur. Þeim hefur verið framlengt svo lengi og ástandinu haldið leyndu svo lengi til að reyna að blekkja heiminn svo hann farist hreinlega ekki úr evrum
En nú er tíminn svo gott sem úrbrunninn líka og staðreyndirnar á jörðu niðri, teppasprengjugígar evrunnar, fara að tala sínu máli. Orðaforði ECB-seðlabankalings Evrópusambandsins yfir ástandið er algerlega tómur og eiginfé hans mun brátt fara sömu leið og eignasafn ítalska bankakerfisins; í þrot. Þessi seðlabankalingur hefur rústað öllu meginlandi Evrópu, enda var hann og myntbandalagið stofnanaleg hönnun algerra vitfirringa í peningamálum frá upphafi. Algerlega lúnatikk stofnun út í gegn frá upphafi
Þjóðir þjóðríkja Evrópu eru því að hoppa í gömlu björgunarbátana, gamla þjóðríkið sitt sem fyrri heimsveldi reyndu að útrýma. Hoppa í gömlu landamærin sín, fullveldi sitt í peningamálum og sjálfsákvörðunarréttinn. Hægfara en algerlega geigvænleg vatnaskil hafa orðið - og framhaldið verður ekki skemmtiferð því að heimsvaldastefna elur aldrei af sér annað er hörmungar. Það stendur ritað svart á hvítu í Hinum heilögu ritningum sem Vesturlönd voru byggð upp með
En sannleika og mörg þúsund ára reynslu Hinna heilögu ritninga var varpað fyrir róða og tandurhreinn imperialismi eins og þeir kalla ekki hina glötuðu stefnu sína var tekinn upp í staðinn, og þetta er árangurinn: Já, árangurinn er þessi ESB-imperial-state-hönnun sem er að fara með Evrópu og heiminn til andskotans, í stað fullvalda og blómstrandi þjóðríkja. Og síðan alþjóðavæðing hinna "frjálslyndu" sem varð því miður og fljótlega að ferlegum alheims-imperialisma og sem þar með hefur gert hina "frjálslyndu" sjálfa að algerum uber-imperialistum, en sem þeir gera sér þó ekki enn grein fyrir sjálfir. Nýr stóri-ófriður blasir því við. Til hamingju hálfvitar Evrópu, ykkur tókst þetta einu sinni enn!
Það verður fróðlegt að skoða þetta úr þeirri góðu fjarlægð sem Atlantshafið og íslenska krónan veitir okkur svo giftusamlega. Því bráðum, já bráðum, sest eini forseti Bandaríkjanna, sem að sögn fróðra, vit hefur haft á peningamálum í embætti sitt. Þá mun munkaklaustur klikk-fræðimenna seðlabankalings Evrópusambandsins kannski verða enn fróðlegra stjarnfræðilegt fyrirbæri næturhimnum Vesturlanda til að skoða í austri, frá öruggu Vestri
Fyrri færsla
Þess vegna sigraði Sjálfstæðisflokkurinn með Bjarna
![]() |
Evrópusambandið aldrei sundraðra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 3. janúar 2017
Þess vegna sigraði Sjálfstæðisflokkurinn með Bjarna
Í síðustu kosningum var ESB-liðið svælt út úr Sjálfstæðisflokknum og almenningur ákvað þar með að gefa formanninum Bjarna uppreisn icesave-æru og vegna þess hversu ákaflega vel hann stóð sig sem fjármálaráðherra
Það var eins og við manninn mælt, að um leið og ESB-sundrungarsamfylkingin var horfin úr flokknum að þá byrjuðu kjósendur að treysta honum aftur og þökkuðu pent fyrir sig með því að lýsa yfir stórauknu trausti á honum. Hann sigarði í kosningunum. Þetta var merkur tímamóta áfangi og sýnir að stefnufesta í fullveldismálum er alger forsenda fyrir flokkinn, enda sjálft erfðaefni hans
Ég hef ekki viljað vera að skipta mér af stjórnarmyndunarviðræðum flokksforystunnar því ég taldi víst að þetta væri meitlað fast inn í stjórnmálavitund hennar. Flokkurinn þarf ekki að hræðast neitt í komandi kosningum um að ná aftur upp gamla 40 prósent fylginu, svo lengi sem þessi staðfesta um algerlega og skilyrðislausa hollustu við frjálst fullvalda og sjálfstætt Ísland um aldur og ævi, er starfrækt og viðhöfð 24 stundir á dag alla daga ársins um alla eilífð, og að hvergi sér vikið frá stýrinu í þeim málum. Þetta er forsenda farsældar allra annarra mála
En svona til öryggis, eftir sorpblaðadaginn í gær, þá minni ég á þetta. Stattu eins og klettur Bjarni. Stattu eins og klettur. Ekki víkja eina eina eina tommu. Taktu frekar tímabundnu stjórnarmyndunar-strandi en að gefa millímetra eftir í þessum kjarnamálum. Geri þú það, standir fast, þá er framtíðin flokksins og um leið þín. Gangi þér vel
Fyrri færsla
Kólestról veldur hækkun hitastigs jarðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 19
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 1407541
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008