Leita í fréttum mbl.is

Fjölmenningarsamfélagið Sýrland

James Mattis hermaður til 48 ára, settist standandi í embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna föstudaginn 20. janúar 2017. Undir hann heyrir allur herafli Bandaríkjanna. Fyrsta aðgerð hans var að senda eftirfarandi í skeyti til allra sem að varnarmálum Bandaríkjanna vinna:

"It is good to be back and I am grateful to serve alongside you as Secretary of Defense." - Það er gott að vera kominn aftur (til þjónustu) og ég er þakklátur fyrir að þjóna við hlið ykkar sem varnarmálaráðherra

Síðan hringdi Mattis á sinn kostnað yfir Atlantshafið í bandamenn sína, sem Bandaríkin hafa í samfellt 68 ár vonað að axlir vaxi á, og talaði fyrst við yfirmann NATO, sem er fátækur Norðmaður. Því næst hringdi hann í verðandi fullvalda kollega sinn í Stóra Bretlandi, Michael Fallon, til að láta hann vita að Stóra Bretland nýtur ávallt einstakrar sérstöðu sem grunnstólpa-bandamaður varnamála Bandaríkjanna

Mattis verður látinn um að breyta NATO úr sogröri niður í Bandarikin og í þjóðvarnar-bandalag fullvalda þjóðríkja

Ég hef horft á alla blaðamannafundi Hvíta hússins frá því að Donald Trump tók við embætti forseta þjóðríkis Bandaríkjanna, og ég horfði á Mattis koma fyrir hermálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. sem sjá má hér. Hér er einnig vefslóðin á setur Hvíta hússins á YouTube

Þegar þjóðin, já þjóðin, er numin á brott úr ríkjaskipan veraldar, þá breytist heimurinn í fjölmenningarríkið Sýrland - hættulega spilaborg og sundrungarfélag tundurs. Þetta vita allir nema þeir kjánar sem eiga að vita þetta. Og ríkjaskipan veraldar byggir á grunneiningum sem nefnast þjóðríki. Þeir sem vita þetta ekki, en ættu að vita það, eru í asnaskap að stofna til Sýrlands um alla plánetuna. Þá dreymir um nýtt Sýrland og Júgóslavíu sem nýtt helvíti á þeirra jörð, án þess að gera sér grein fyrir óskum sínum

Margt fólk með ofgreinda greindarvísitölu er í pólitískum rétttrúnaði að reyna að stofna til Sýrlands á tröppum sínum. Lýðskrum þeirra ætti venjulegt fólk ekki að hlusta á. Þessir lýðskrumarar tala í sífellu um "fjölmenningu". Mataruppskriftir frá öðrum löndum er ekki fjölmenning. Ei heldur húðlitur manna. Sýrland er hins vegar fjölmenning. Hafa skal það sem rétt er

Veruleg hætta er nú á að stórir hlutar Evrópu séu að breytast í nýtt Sýrland

Fyrri færsla

Sjálfstæðismaður kominn í Hvíta húsið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég held að Sýrland sé ekki fjölmenningarríki, frekar íslamskt einmenningarríki. Þess vegna er landið rústir einar, eins og spámenn Gamla Testamentisins spáðu fyrir um, u.þ.b. 2500 árum áður.

Hinsvegar hefur sú "fjölmenning" sem framkvæmd hefur verið á Vesturlöndum, í raun verið einmenning Íslam með allri þeirri villimennsku sem henni fylgir, þar sem svokallaðir flóttamenn (lesist: innrásarlið) hafa að mestu leyti verið múslimar. Þ.e. fjölmenning er Trójuhesturinn fyrir innrás Íslam.

Theódór Norðkvist, 25.1.2017 kl. 17:32

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mér leist strax vel á Mattis í embættið, þó ekki væri fyrir annað en að Obama flæmdi hann úr stöðunni sem hann hafði innan hersins. Rétt eins og hann flæmdi general McChristal úr embætti fyrir að segja sannleikann. 

Það er sagt að Trump þoli ekki andmælendur en í það minnsta sýnir val hans á varnarmálaráðherra að hann setur öryggi BNA í fyrsta sæti.

Ragnhildur Kolka, 25.1.2017 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband