Leita í fréttum mbl.is

Skelfilegt: stjórnmálamaður sem meinar það sem hann segir!

Mikið fát og fum er að grípa um sig. Í Hvíta húsið er sestur maður sem meinar það sem hann segir. Og sem ætlar að framkvæma það sem hann lofaði kjósendum. Þessu eru menn ekki vanir. Það er náttúrlega algerlega skelfilegt að kjósendur fái ekki bara eitthvað fyrir atkvæði sitt; heldur fái það sem þeim var lofað

Eitt af því sem Trump segist ætla að gera hefur hann sagt á sem breiðastan hátt til að halda sem flestum leiðum opnum fyrir hvernig hann ætlar að ná því markmiði sínu; að uppræta Ríki íslams (ISIS). Að hann segi þetta, þýðir að Bandaríkin álíta "öfga-íslam" ógn við hagsmuni Bandaríkjanna í heiminum. Alvarlega ógn sem þau verða að takast á við sem fyrst

En það er bara einn hængur á því máli, en sem forsetinn mun þó finna út úr, því hann gefst ekki upp; hvernig á að skilja á milli pólitísks-íslam og ópólitísks-íslam? Svarið við þeirri spurningu er þetta; það er bara alls ekki hægt, því að hið eina rétta íslam er ávallt pólitískt íslam

Þegar íslam er í sínu eðlilega og rétta ástandi, þá er það pólitískt trúarafl og ríkis-stjórnin sjálf. Það mjúka íslam sem Vesturlandabúar hafa lært að þekkja að nokkru leyti er, já, það er hin mölbrotna og ónýta útgáfa af íslam fyrir 1,2 milljarða múslíma á veraldarvísu. Rústirnar af réttu íslam

Hin eina eðlilega og rétta birtingamynd íslams er pólitískt íslam sem bæði og samtímis er trúarlegt,- pólitískt,- og lagalegt yfirhöfuð lágrétts ríkisfyrirkomulags er nefnist kalífat

Þetta þarf Trump að glíma við. Það getur hann, því að virki hans er hið lórétta ríkisfyrirkomulag Vesturlanda sem hinar Heilögu ritningar gáfu heiminum; þjóðríkið. Og þau stjórna heiminum að mestu leyti af því að þau virka. Þau eru meistarar "nútímunar" nútímans (e. modernity)

Þau þurfa ekki að virka öll í einu af því að þau eru lóðrétt ríkisfyrirkomulag. Kalífatið er annaðhvort af eða á, alls staðar í einu, þvert á landamæri , ef það á að virka. Það er lágrétt ríkisfyrirkomulag

Takist Bandaríkjunum þetta ekki, þá verður birtingarmynd hins rétta íslams í fæðingarhríðum sínum eins og fæðingarhríðir byltinga Evrópu voru á einum stað í einu: fjöldamorð út í gegn - en þá bara alls staðar í einu, um allt kalífatið gjörvallt út í gegn

Trump mun sýna þeim hversu glötuð hreyfing þeirra er. Hversu vonlaust þetta er fyrir þá. Hversu mikið ofurefli þjóðríkið Bandaríkin eru miðað við kalífatið. Og það er nóg. Það er nóg að stilla drekanum upp og sýna íslam-x-y fram á ofurefli hans

Þetta munu Bandaríkin geta og jafnframt gera, af því að Evrópa er orðin algerlega getulaust fyrirbæri sem klikkað Evrópusamband álfunnar við ekki neitt. Þar er allt sambandslaust dinga ling gaga gúkk og nuts. Evrópusambands-kalífatið er svik við Vesturlönd, við þjóðríkið, og Evrópa mun þurfa að ganga í sjálfa sig aftur, ef hún á að virka á ný. Sú útganga útaf fyrir sig, mun ekki endilega ganga friðsamlega fyrir sig, - eins og við nú þegar erum byrjuð að sjá. Og það vita íslamistar ákaflega vel. Og það veit Donald J. Trump líka

Fyrri færsla

Fjölmenningarsamfélagið Sýrland


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það er ekki alltaf hægt að draga samasemmerki á milli góðs stjórnanda og þess, að hann meini það sem hann segir. 

Til dæmis var Hitler stjórnmálamaður sem meinti það sem hann sagði og gaf það meðal annars út í bók sinni "Mein kampf" 

Sumt af því sem hann sagði frá upphafi var þess eðlis, að menn trúðu því ekki að hann myndi reyna að framkvæma það á þann hátt sem hann gerði samt. 

Í einni af ræðum Trumps, sem ég hlustaði á, lýsti hann því yfir að önnur og þriðja kynslóð múslima í Bandaríkjunum yrðu lang hættulegastir. 

Hann sagðist því ætla sér að margfalda veldi ´Bandarísku leyniþjðonustunnar svo að þetta fólk yrðu undir nákvæmu eftirliti. 

Sem sagt: Bandarískt Gestapo/STASI. 

Og nú hefur hann skýrt og skorinort gefið það opinberlega út, að hann gefi undirmönnum sínum í leyniþjónustu og lögreglu skotleyfi á að beita þeim sem handteknir eru, verstu pyntingaraðferðum, sem hingað til hafa verið bannaðar. 

Á maður að falla fram og tilbiðja mann sem meinar það sem hann segir þegar áformin eru af þessum toga?

Ómar Ragnarsson, 26.1.2017 kl. 14:21

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið og skrif Ómar

Nú ætla ég að fá mér lúr eins og Ólafur Thors gerði. Þú vekur mig kannski ef þetta er rangt mat hjá mér.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.1.2017 kl. 15:04

3 identicon

 Öll evrópulönd segja það sama -önnur og þriðja kynslóð múslima er hættulegust.
Ekki man ég hvaða ár sjálsmorðsmúslimarnir sprengdu sig í London, en þeir voru önnur kynslóð, aldir upp í Englandi.
Taimour Abdulwahab í Stokkhólmi 2010 var af annari kynslóð. Þessar kynslóðir fara á bak við foreldrana og stunda ofstækis moskur þar sem ofstækis immar heilaþvo með haturumræðu, sem er daglegt brauð, gagnvart heimamönnum og vesturlandabúum yfirleitt.
Er það ekki salafisti sem fékk aðgang að félagsheimili Fríkyrkjunar til að predika haturorðræðum yfir heilaþveginn múslima söfnuðinn? Allavega er Salman Tamimi ekkert of hrifinn af honum.


valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 26.1.2017 kl. 16:25

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið Valdimar

Tilvonandi nýr sendiherra Bandaríkjanna í einhverju sem eins og er kallast "Evrópusambandið", er sagður hafa sagt að evran sé að leysast upp og að hann myndi skortselja hanna ef hann væri "fjárfestir".

Hann sagði einnig að það sé jafnframt líklegt að ekkert Evrópusamband verði til fyrir Bretland til að eiga í neinum samningaviðræðum við, þegar að þeim kæmi.

Tékkland virðist hugsa eins. Það segist vilja eiga í beinum viðræðum við Bretland. En það má það ekki því Tékkland er ekki fullvalda ríki, af því að það er í Evrópusambandinu.

Pronto:

..og flissa ofan í kaffið mitt

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.1.2017 kl. 21:10

5 identicon

 Sæll Gunnar.

Heyr! Sannarlega orð í tíma töluð!

Hinir fersku vindar sem nú blása um
sjórnmál í BNA munu áreiðanlega skila sér
sem flóðbylgja til Evrópu og vekja af svefni
almenning sem setið hefur hljóður hjá og
leiða til forystu þau öfl sem líklegust eru
til athafna eins og Marion Le Pen í Frakklandi
og AfD í Þýskalandi. Von er til að þar með
ljúki martröð Þjóðverja loksins.

Innsetningarræða Trumps barst milljónum
og tugmilljónum til eyrna þar sem geislaflóð
hrundi yfir alla viðstadda og endurkastaðist
í glitrandi daggarperlum sjálfum herra uppskerunnar
til lofs og dýrðar en lýðskrumurum til sérstakrar
áminningar.

Þeim er vorkunn að nú skuli rödd þeirra ein vera
sú að bölva lýðræðinu og kenna þjóðernishyggju
um ófarir sínar.

Stjórnarskrá Sovétríkjanna sálugu var talin sú
lýðræðislegasta sem samin hefur verið en menn
fóru bara ekkert eftir henni!

Enn ein áminningin lýðskrumurum til handa
að líta sér nær.

Húsari. (IP-tala skráð) 28.1.2017 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband