Leita í fréttum mbl.is

Ísland herðir hengingarólina um háls lýðveldis síns

Hvert eitt skref til viðbótar í þá röngu óvestlægu átt sem leitt hefur heiminn inn í þá stöðu sem hann er að verða kominn í, er nú um daga tekið án þess að hugsa sig um. Síðustu tvö þeirra skrefa hér á landi voru tekin með allt bundið fyrir augun inn í AIIB fjárfestingabanka fyrir Asíu, og með þvagláti þingmanna á Alþingi Íslendinga, svo fátt eitt vont sé nefnt

Í fimm þúsund ár var litli maðurinn lokaður inni í búri elíta. Í 300 ár hefur hann verið nokkuð frjáls og óhlekkjaður, þökk sé Gamla testamentinu, kristnum þjóðkirkjum og bresku iðnbyltignunni

Það var sturlun að stofna Evrópusambandið. Það var sannarlega sturlun. Og það var sturlun að stofna til alþjóðavæðingar sem vann ekki fyrir litla manninn, heldur sem vann gegn honum. Alþjóðavæðingin er öfug bresk iðnbylting og Tóma testamentið. Hún er gerræðislega skaðleg litla manninum. Hún er steypustöð ömurleikans eins og hún er

Og það var svo sannarlega sturlun að standa í ræðustól lýðveldisins og kasta þar af sér þvagi yfir "the last best hope of earth"

Ég hef ekki rjúkandi sönnunargögnin enn. En þetta hefur alla burði til að fara afar illa. Já, afar illa

Fyrri færsla

Sáttmálaörkinni frá 1941 svarinn eiður í Hvíta húsinu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Evrópusambandið snýst ekki um fólk heldur peninga banka og vogunarsjóði, réttindum vinnandi fólk innan þess hefur verið fórnað á altari peningaelítunnar sem kemur almenningur, fólk og þjóðfélag ekkert við, eina markimiðið er að skara eldi að eigin köku. Það sérkennilegasta í þessu öllu er að kratar hafa verið primus mótorar í sköpun þessa ferlis. þeir hafa gersamleg tapað skilning á tilgangi sínum, það verður fróðlegt að sjá hvað verður um beurona í Brussel þegar þetta sturlaða ESB leysist upp í púðurreykjarmekki. 

Hrossabrestur, 3.2.2017 kl. 16:44

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Það er rosalega mikið til í þessari  greiningu hjá þér, og mikið er ég sammála þér um öfugþróun alþjóðavæðingarinnar sem er leitun á samnefnara hins lægsta. 

Og ótal sinnum hefur þú farið nærri um rökveilu útflutningshagkerfa, ef allir leita í þá átt, þá er eins gott að það sé mjög öflug byggð á Mars til að láta dæmið ganga upp, því þessi jafna hlýtur alltaf að leita í jafnvægi.

En mikil er sú blekking að frjálslyndi hinna stóru, kennd við frjálshyggjuna, og síðan glóbalisminn sem fylgdi í kjölfarið, og hefur skapað ómældan auð hjá þeim sem gátu útvistað starfsemi sína, hafi sprottið uppúr engu.

Kringum 1970 var þetta aðeins jaðarheimspeki, Friedman reyndar virtur hagfræðingur en þá innan hefðbundins Keynisma, peningastjórnun hans var þar tilbrigði til sveiflujöfnunar. 

Um 1980 var nýfrjálshyggjan forystuafl í akademíunni, ekki kannski vegna þess að stuðningur við hana væri almennur, heldur leitaði fjármagnið í þá átt. 

Spurningin er hvernig byrjaði þessi aðför að borgaralegu samfélagi sem þú vissulega gerir þér grein fyrir í dag Gunnar.

Þegar eldur kviknar í skóg á mörgum stöðum, án þess að augljóst sé að rekja megi til ofurþurrka, þá er ljóst að brennuvargur er skýringin.  Ef eitthvað sem afregluvæðir fyrir stórrekstur og ofurauðmenn, (hluti þeirra af heimsauðnum hefur stigmagnast frá 1980), verður alltí einu ráðandi, þá er rökrétt að einhver fjármögnun sprota, það er hugveita og meintra "rétt hugsandi" stjórnmálamanna, hafi átt þar stóra sök.

Allavega fyrir 1980 var þetta ekki stefna jafnaðarmanna og annarra vinstra megin við miðju, sem og að frjálshyggjan byrjaði á að ryðja burt eldri borgarlegum íhaldsmönnum, sbr. aðförin að Geir Hallgrímssyni hér eða Edward Heath í Bretlandi.  

Og það er rökrétt að hugsa að þeir sem seinna meir hafa haft mestan hag af hinni frjálslyndu alþjóðavæðingu, að þeir hljóta að hafa fjárfest í þessar hugmyndafræði sem hefur nýst þeim svo vel.

Útvistun framleiðslu, ásamt ofurregluvæðingu heimamarkaðar sem hefur fáan annan sýnilegan tilgang en að drepa niður samkeppnismöguleika smærri fyrirtækja, það er einstaklingsins og fyrirtækja hans, er sannarlega eitthvað sem hefur þjappað saman auði, og aukið stórlega hlutdeild hinna ofurauðugu í heimshagkerfinu. 

En seinna meir brotið niður hagkerfi eins og þú hefur verið óþreytandi að benda á.  Svo það má spyrja, að þegar hinar neikvæðu afleiðingar leita út í kosningar, það er fólk kýs gegn hinu hefðbundna, sama hvar það er statt í litrófi hinna gömlu kreppuskilgreininga á hægri og vinstri, hvar fjárfestir auðurinn þá??

Hvar er bakland Trump???

Maðurinn á götunni??, ókei, en hverjir eru þá í ráðgjafaráði hans??  Milljónamæringar, billjónamæringar, hvor hópurinn skyldi vera fjölmennari??

Sjálfsagt eru rök þín Gunnar að það skipti ekki máli ef tilgangurinn er góður, en þá spyr ég á móti, treystir þú eiturlyfjahring sem sér að auðn dópsins hefur vakið harkaleg viðbrögð í samfélaginu, til að stjórna endurnýjun laga og réttar, til að losa um spillingu þess sem hann sjálfur fjármagnaði??

Trúir þú virkilega að þeir sem urðu ríkir á alþjóðavæðingunni og þú lýsir henni sem   "steypustöð ömurleikans eins og hún er", og sannarlega unnu fyrir þeim gróða með því að fjármagna þau hagviðhorf og stjórnmálastefnu sem voru forsenda hennar, að þeir séu endurfæddir, að fyrst að þeir voru nýfrjálshyggjumenn, að þá geti þeir nýfrelsast, og bætt úr öllum þeim skaða sem þeir sjálfir ollu.  Og sem óvart gerði þá miklu ríkari en þeir voru fyrir daga alþjóðavæðingarinnar??

Einhversstaðar er mótsögn í þessari rökfærslu Gunnar, og greindir menn sjá hana.

Og svarið er ekki að segja að globalismi stórfyrirtækja sé afleiðing af stefnu vinstri manna, stalínisminn var þeirra globalismi, og síðan eru liðnir mjög margir áratugir.

Þó globalisminn sé vissulega aðför að staðbundinni borgarastétt, þá samt er ekki hægt að rekja hugmyndafræðilega uppruna hennar til jafnaðarflokka, og reyndar ekki heldur hefðbundinna kristilegra íhaldsflokka, það eru aðrir sem ábyrgðina báru, kenndir við frjálshyggju.

Það verður ekki bæði sleppt og haldið, vitiborin hugsun er línuleg, ekki hringlaga, og annað hvort er þetta rétt sem þú segir að ofan, eða ekki.

Og ef þetta er rétt, þá eru ekki mikil líkindi þess að þeir sem höfðu hag af þessu, standi fyrir byltingu gegn sinni eigin mjólkurkú, en það er hins vegar bissness að yfirtaka andófið gegn þessari sömu mjólkurkú.

Svo eftir stendur, að ef maður er á móti, þá er maður á móti, andstæðingurinn á ekki að geta blekkt mann til stuðnings þó hann taki upp manns eigin tungutak, því hans eigin stefna er komin út í horn.

Það dugði ekki Þjóðverjum að bjóða Bretum að senda nokkrar herdeildir til London til að stilla til friðar á milli þjóðanna.

Það var enginn svo auðblekktur þá.

Af hverju ættu menn að vera það í dag??

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.2.2017 kl. 01:37

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir innlitið Ómar og skrif þín.

Ég held að þetta sé of flókið hjá þér. Svona kosningaprógramm Ómar, geta allir sett kross sinn einhverstaðar við, en þú gætir hins vegar ekki uppfyllt neitt af þessu, því þetta eru ekki réttu spurningarnar, en lítur samt vel út á blaði. Afsakaðu.

Ef að til dæmis Donald Trump hefur þénað peninga á kerfinu sem hann ætlar að nota til að rústa því, já þá bara skál fyrir því. Ef hann ræður til sín menn sem hafa þekkingu á að rústa kerfinu af því að þeir þekkja það innanfrá, já þá bara skál fyrir því. Ekki ætla ég öllum ríkisstarfsmönnum (til dæmis) það, að vera vondir bara af því að þeir vinna í kerfinu og þéna til lífsins á því. Og mér er alls ekki illa við ríkt fólk. Ég vil að sem flestir séu ríkir og að sem fæstir séu fátækir.

Alþjóðavæðingin er ekki frjálslyndi. Hugtakinu "frjálslyndi" hefur því miður verið snúið á haus. Í dag merkir hugtakið frjálslyndi (e. liberalism) því miður nýja heimsveldisstefnu (e. universal imperialism). Í gamla daga voru hinir raunverulega frjálslyndu alltaf þjóðernissinnar (e. nationalists). Það þótti merki um góðan og göfugan málstað að vera þjóðernissinni: þ.e. að aðhyllast þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt þjóða og að fyrirlíta heimsveldi og þrælaríki og borð við:

- Egypska heimsveldið

- Babylóníuveldið

- Assýríuveldið

- Rómarríki (þrælaríki)

- Heilaga rómverska ríkið (the first Reich)

- Ottómanska ríkið

- Sovétríkið, þrælaríki öreiga með ESB-stjórnarskrá

- Nasista-heimsveldið með þjóðnýttum borgurum

og svo í dag

- Evrópusambandið (þrælaríki þjóðanna), með sovéskri stjórnarskrá.

- Sameinuðu þjóða-heimsveldið (er að verða það). Út með imperíalista þeirrar stofnunar, því hún átti að vera samkunda sjálfstæðra og fullvalda þjóðríkja, en ekki samkunda imperialista (öfugt-frjálslyndra).

- Út með Sameinaða Sjálfstæða Seðlabankaheimsveldið, sem bjargar glötuðum bankabykkjum (er orðið það), og er orðið eins og að menn hefðu sagt að "við ætlum að gera herinn að sjálfstæðri stofnun" og láta hershöfðingjana um allt, því við erum svo hrædd um að kjörnir stjórnmálamenn fólksins hafi ekki þekkingu á þeim málum. Glæsilegt eða hitt þó heldur. Ef menn vilja að trúverðugleiki sé það sem einkennir góða seðlabanka, þá ættu þeir bara að setja tölvu sem seðlabankastjóra. Hún hefur óendanlegan trúverðugleika, ekki satt. Náttúrlega alveg galið.

- Og Alþjóðastofnannaheimsveldið (kom í stað universal kaþólsku). Út með það. Við viljum ekki enn eitt eina-og-sanna símasambandi við Guð, því við höfum okkar eigin símasamband við hann, samkvæmt okkar eigin stjórnarskrá.

Við viljum aftur fá að lesa Biblíuna samkvæmt okkar eigin skilningi á henni, þ.e.a.s. við viljum fá okkar eigin stjórnarskrá og sem er bara okkar eigin stjórnarskrá, en ekki annarra. Þær eru allar, ef góðar, byggðar á hinum Heilögu ritningum. ERGO: Við heimtum að fá aftur hina ekta frjálslyndu ríkjaskipan okkar Mótmælenda sem byggði upp Vesturlönd eins og við þekktum þau, og sem eiga hornstein sinn að rekja til útgöngunnar af þrælaríkisheimsveldi Egyptalands, þ.e. við viljum fá ríkjaskipan byggða á stóra lærdóminum úr Gamla testamentinu og Vestfalíu, um ríkjaskipan og frelsi þjóða. Við viljum nýtt Ísrael. Við viljum ekki fá enn eitt andskotans heimsveldið til að skipa okkar þjóð fyrir um allt. Út með þetta! 

Og ef við sjáum svo mikið sem enn eitt svona universal-heimsveldi ætlandi að gleypa í sig heiminn einu sinni enn, já þá munum við fullvalda þjóðríkin binda okkur saman í bandalag (bilateral en ekki multilateral) og taka svona fyrirbæri í nefið á ný. Þjóðfrelsisaflið er gott afl og af hinu góða, og það hefur, þjóðfrelsisins vegna, endalaust afl til að halda heiminum þannig að enginn ráði yfir honum, því það er ákaflega vont þegar það gerist. Svoleiðis yfirráð eru illska og mannvonska.

En hinir (öfugt)frjálslyndu í dag eru svo heimskir að þeir koma ekki enn auga á hvað þeir og málstaður þeirra er gersamlega glataður í eðli sínu og að hann mun á endanum tortíma þeim sjálfum um leið og hann verður að veruleika. Takk Trump, takk Brexit og skál fyrir þeim. Út með þetta.

Og svo Ómar minn kæri; verður kosið á fjögurra ára fresti samkvæmt stjórnarskrá. Stóri dómarinn sem gaf okkur stjórnarskrá með rétta saftinu í, já hann mun svo fylgjast með og áfram, og hafa illt auga á andskotans universal imperíalistunum til eilífðarnóns.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.2.2017 kl. 03:53

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og þakka þér einnig Hrossabrestur fyrir innlit og skrif

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.2.2017 kl. 03:54

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Ef spurningar eru ekki spurðar, þá er þeim ekki svarað.

Takk fyrir gefa þér tíma í vandað svar Gunnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.2.2017 kl. 11:44

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Í fimm þúsund ár var litli maðurinn lokaður inni í búri elíta. Í 300 ár hefur hann verið nokkuð frjáls og óhlekkjaður, þökk sé Gamla testamentinu, kristnum þjóðkirkjum og bresku iðnbyltingunni.

Má ekki líka þakka Nýja testamentinu? Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin og sannleikurinn kom fyrir Jesú Krist. (Jóhannes 1:17).

Langar að benda á þessa athygliverðu mynd, The Rape of Europe. Breski kristniboðinn David Hathaway sýnir fram á að ESB sé skækjan sem talað er um í Opinberunarbókinni.

https://www.youtube.com/watch?v=66uCnNwLJtM

Hann fjallar líka um draum Nebúkadnesars um öll framtíðarheimsveldi sögunnar fram að endurkomu Krists. Daníel spámaður réði drauminn og nánar má lesa um þetta í Daníelsbók.

Í sem stystu máli, þá dreymdi Nebúkadnessar stórt líkneski. Gullhöfuðið var hans eigið ríki, Babýlónía, brjóstið og armleggirnir af silfri var Persía, kviðurinn og lendarnar af eiri var gríska heimsveldið og leggirnir Rómarveldi.

Fæturnir af járni og leir vísa til ESB og Evrópuríkjanna. Járnið og leirinn vísa til að ESB samanstendur af sterkum og veikum ríkjum, samkvæmt Daníel spámanni og hvernig þetta hefur verið túlkað.

Þýskaland er eflaust dæmi um járnríki. Til dæmis var Otto von Bismarck kallaður járnkanslarinn. Ætli Grikkland sé ekki dæmi um leirríki? cool

Niðurlagið í draumnum er síðan að steinn nokkur losnaði án tilstillis nokkurs mannlegs máttar, sem braut líkneskið, þ.e. hin ríkin og gerði þau að engu. Daníel segir steininn tákna Guðs ríkið, þ.e. ríki Drottins Jesú Krists, sem mun mola hin ríkin (og hefur verið að gera það) en sjálft standa að eilífu.

Ef þessi túlkun er rétt, þá gæti verið stutt í endurkomuna. Hvet alla til að kíkja á þessa mynd á YouTube. David Hathaway vill meina að það gæti orðið Bretlandi til björgunar að hafa losað sig út úr ESB.

Theódór Norðkvist, 4.2.2017 kl. 14:09

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Theódór

Ég er enginn sérfræðingur í þessu, en hinn pólitískt heimspekilega rammi Vesturlanda er að grunni til finna í Gamla testamentinu og bara þar og hvergi annarsstaðar og sem enginn annar heimshluti hafði. Og án hans værum við ekki Vesturlönd. Gamla testamentið var imperíalistum hins Heilaga rómverska ríkis og universal kaþólikkum Páfagarðs ávallt til mikilla pólitískra vandræða, sökum hins póllitíska lærdóms og boðskapar þess. Það var að miklu leyti á Gamla testamentinu sem við byggðum rammpólitísk Mótmæli okkar. Það er sennilega Gamla testamentisins vegna sem við erum Mótmælendur í dag. Við mótmæltum imperíalisma og heimtuðum landamæri og þjóðríki þjóðanna og okkar eigið símasamband við stóra sannleikann (okkar eigin stjórnarskrá)

Nýja testamentið nýttist stjórnmálalega séð meira til pólitískra áhrifa til lífsins eftir þetta líf. Ég tala hér einungis um hina pólitískt heimspekilegu hlið hinna Heilögu ritninganna sem byggðu Vesturlönd, og ekkert annað.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.2.2017 kl. 17:12

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Takk fyrir þessar skýringar, Gunnar. Ég er sammála þér að hinn gyðing-kristni grunnur, er það sem gerði Vesturlönd að því veldi sem þau eru enn í dag, þó því sé ógnað af öðrum óæskilegri áhrifum.

Þær þjóðir sem ákváðu að umfaðma myrkur Múhammeðs, frusu strax í þroska á miðöldum og eru staddar þar enn.

Theódór Norðkvist, 4.2.2017 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband