Leita í fréttum mbl.is

Flóttaleið úr Evrópusambandinu opnast

Fyrst er það hið leiðinlega og skammarlega; Það er runnið upp fyrir mér að utanríkisráðherra Íslands er bara fésbókhaldari. Og að forsætisráðherrann okkar hefur ekki stjórn á því sem hann á að hafa stjórn á. Þetta er leiðinlegt og skammarlegt. Ég skammast mín fyrir hönd Íslands og ríkisstjórnarinnar. Til hvers var ég að kjósa ykkur? Það skil ég lítið í þessa dagana. Út vellur ruglið og inn veltur dópið og lögleysan um hafnir landsins, og hver veit hvað vellur inn um EES-svartholið frá Evrópu. Traust mitt til ykkar hefur minnkað. Það versta er að þetta virðist ekki vera undantekningarástand eins og það sem varir enn í Frakklandi, heldur bara venjuleg skrílslæti á æðstu stöðum lýðveldis okkar, sem Bandaríkjamenn viðurkenndu fyrstir allra. Takið ykkur vinsamlegast á ef við eigum að þola og halda ykkur uppi

En svo er það hið góða; Á minna en viku hefur forseta Bandaríkjanna tekist að reka fleyg niður um kokið og til botns Evrópusambandsins. Á botni þess voru illvirkjar að semja áætlanir fyrir útgöngustyrjöld ESB gegn Stóra Bretlandi. Donald J. Trump hefur á minna en viku séð til þess að Evrópusambandið þorir ekki að snerta hár á höfði Bretlands. Og hann hefur í leiðinni rekið fleyginn svo rækilega niður í elítusvað Evrópusambandsins, að þau lönd sem eru komin með krónískt ofnæmi fyrir þýskri Evrópu, eins og frú Thatcher varaði við, já þau eygja nú von sem þau höfðu ekki áður. Að mögulegt sé ef til vill með vernd Bandaríkjanna að losna úr ESB-hryllingnum. Að gamall vinur sé þrátt fyrir allt ennþá til

Þetta var ein vika. Haldið þið þarna á þingi að þið getið ef til vill hagað ykkur sæmilega í eina viku? Og látið nú dómarann í friði

Fyrri færsla

Gengur Donald J. Trump í skrokk á Þýskalandi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábær Gunnar sem oftar, og heilar þakkir fyrir að beina sjónum manna (aftur) að einmitt þessum málum og með svo skýrum hætti. 

Jón Valur Jensson, 1.2.2017 kl. 12:00

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér sömuleiðis Jón Valur og sendi þér einnig samúðarkveðjur mínar vegna handlangaraaðför þessa óútreiknanlega stóðs gegn þér, þínum skoðunum og þinni persónu. Þá herferð er ljótt að horfa uppá. Ákaflega ljótt og skammarlegt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 12:46

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Ég veit ekki til þess Gunnar, að það hafi verið nokkurn tíma erfitt fyrir Bretland né aðra þjóð að ganga úr ESB. Það er öllum aðildarríkjum full frjálst að yfirgefa ESB. Málið er einfaldlega það, að bretar sjá sjálfir mest eftir þessari ákvörðun, enda vitað að forystufólk Brexit voru á harða hlaupum frá yfirlýsingum sínum, eins og t.d. 340.000.000,- punda á viku sem rynni til ESB, sem gera mætti kleift að reka heilbrygðiskerfið fyrir, að þeirra sögn, sem auðvitað var tóm lygi. Bandaríkin koma aldrei til með að vera það sama og ESB fyrir England, á öllum sviðum, alveg sama hversu lengi þú lemur hausnum í steininn með það. Þarft bara að líta á landfræði og menningarlegu hliðina til þess að sjá það.

Jónas Ómar Snorrason, 1.2.2017 kl. 13:21

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jónas Ómar

Það er ekki bannað að segja satt. Þér er það heimilt Jónas. Það er heldur ekki bannað að hefja styrjöld. Og það er ekki bannað að varpa kjarnorkusprengjum á lönd. En menn verða þó að taka afleiðingunum séu þeir svo heimskir að halda að þeir komist upp með það. Og það er ekki bannað að fara til Mars. Þér er það heimilt Jónas.

Til marks um geggjunartal þitt um málefni eins og það sem þú bryður fram hér, þá vitna ég í einn af stofnendum evrunnar. Hann er einn af byggingarmeisturum hennar:

Engin leið út úr evru án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs

"Fyrrverandi seðlabankastjóri belgíska seðlabankans, Alfons Verplaetse, segir að við hönnun myntbandalags Evrópusambandsins hafi því alls ekki verið veitt nein athygli að lönd gætu sagt sig úr myntbandalaginu aftur - þ.e. að ríkin sem einu sinni ganga í myntbandalagið gætu skilað evrunni sem gjaldmiðli ef þeim líkaði hún illa sem gjaldmiðill þjóðar sinnar. "Þetta var einfaldlega ekki rætt því allir vissu að það eitt að segja sig úr myntbandalaginu aftur myndi þýða "þjóðfélagslegt og efnahagslegt sjálfsmorð" fyrir ríkin" (socio- economic suicide). Þetta var samhljóða skoðun allra þeirra sem stóðu að stofnun og hönnun myntbandalagsins, segir Verplaetse."

All the euros creators thought a pullout would be socio- economic suicide, Verplaetse, 79, said in a March 4 interview in Brussels. "You cannot exclude that, but we never talked about that."

Að segja sig úr ESB er gerræðislega erfitt mál og enn erfiðara er að segja sig úr evru. En það þýðir einfaldlega ekki að ræða þetta mál við veruleikafirrtan ESB-þig, svo hér læt ég staðar numið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 14:26

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála er ég þér, Gunnar, og hjartans þakkir.

Jón Valur Jensson, 1.2.2017 kl. 14:34

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

þakka þér svarið Gunnar. Kannski í einfeldni minni, þá var mér það á að telja þig vera að ræða úrgöngu breta úr ESB, mér vitanlega hafa þeir ekkert með evru að gera, eru því algerlega óháðir því sem þú rumsaðir út úr þér sem svar, bæði á (útl)ensku sem íslensku. Af 28 löndum ESB, bráðum 27, þá eru 8-9 með evru, mörg hver(stærstu), stofnendur bandalagsins. Er hins vegar sammála þér, það hlítur að vera snúið fyrir evru þjóð að segja sig úr ESB, alla vega við fyrstu sýn. 

Jónas Ómar Snorrason, 1.2.2017 kl. 16:17

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jónas

Af 28 löndum Evrópusambandsins (27 eftir að Bretland er farið) eru 19 af þeim með evru. Öllum 28 löndum nema Bretlandi og Danmörku er þó skylt að taka upp evru um leið og þau uppfylla skilyrðin fyrir upptökuna. Bretland og Danmörk eru með sérstakan sáttmála sem staðfestur er af 27 þjóðþingum 27 landa um sáttmálabundna undanþágu frá síðasta og þriðja fasa ERM, sem er evran og EMU.

Til að geta sagt sig úr ESB þarf Bretland fyrst að taka hundrað þúsund blaðsíðna lagabálk Evrópusambandsins og gera hann að Breskum lögum og síðan að segja sig úr ESB og svo að fara úr ESB, og síðan að lifa það af að fara úr ESB, og síðan að ræða afnám hvers einasta laga og regluverks ESB úr úr Breskum lögum, og afmá alla þá hrikalegu aðlögun sem farið hefur fram á Breska konungsríkinu undir veru þeirra í ESB. Þingið gæti orðið upptekið í áratugi við að afnema þessi lög og reglur undir hrossabrestum ESB sinna sem engan lýðræðisvott virðast bera í hjörtum sínum. 

Illvirkjar Evrópusambandsins ætluðu að reyna að láta útgönguna mistakast og taka 10 ár til þess að gera eins og Sovétríkin gerðu þegar þau réðust inn í Austur-Evrópulönd til að sýna þeim hvað gerist þegar lönd sýna minnsta vott frelsislöngunar og þykjast ætla að yfirgefa alræðið. ESB er bara ný uppskrift til alræðis.

Donald J. Trump hefur nú gereytt valdastöðu þessarar elítu illvirkja Evrópusambandsins. Bretland hefði ekki getað gert það eitt og sér og Ísland hefði aldrei getað það, væri fyrst búið að eyðileggja landið okkar með Evrópusambandsaðild.

Svo þegar þú blæst þig út af ESB blaðri þá væri til tilbreytingar ákaflega ánægjulegt að sjá bara minnsta vott af sannleiksást, svona til tilbreytingar í öllu því lýðskrumsflóði sem sullast hefur út úr ESB-aðildarsinnum hér á landi í nú meira en 10 síðustu ár. Heil 10 ár hafið þið fyllt upp af lygum, lýðskrumi og þvælu um þetta bölvunarsamband Evrópu. Svei ykkur!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 18:33

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jónas

Nettó-framlag Bretlands til reksturs Evrópusambandsins var tæplega 15 milljarðar evra á árinu 2015. Bretar borguðu 15 milljarða evra meira til ESB en þeir fengu þaðan. Til samanburðar þá var nettóframlag Frakklands til sambandsins 7,2 milljarðar evra það árið. Beint fjárhagslegt framlag Bretlands var því tvöfalt stærra en framlag Frakklands. Og það munar um minna. Það munar um tvö Frakkalönd.

Það er því mjög líklegt að þessi tala sem þú nefnir sé mjög nálægt veruleikanum sem mun birtast í tölunum fyrir síðasta ár. 

Þegar Bretland er farið þá hefur áhuginn á lýðræði sem pólitísku stjórnarfyrirkomulagi minnkað í heild um 60-70 prósent í öllu Evrópusambandinu, og var hann ekki sérlega mikill fyrir. Allt niður í 40 prósent í mörgum ESB-ríkjum. Yfirgnæfandi verður restin af ESB hinu vaxandi einræði sennilega mjög fegin, því þeir sem eftir sitja trúa flestir mikið á einn "sterkan mann". Og Þýskaland er ennþá í gangi með frumtilraun sína til lýðræðis, og ferst það ákfaflega illa úr hendi, eins og sést á ríkisstjórn landsins, sem ennþá er næstum því bankakerfið að innan og utanþings.

Núverandi sjö ára fjárlagatímabili Evrópusambandsins lýkur árið 2020. En löngu áður þarf að koma sér saman um rammann fyrir næsta sjö ára fjárlagatímabil. Það verður skrautleg samkunda. En á hverju ári þurfa aðildarríkin og framkvæmdastjórn sambandsins að koma sér fyrir innan þess ramma, sem áratugum saman aldrei hefur fengist samþykktur af endurskoðenda, og semja í kröppum dansi um bókhaldslega falsaða tilvist sína þar. Þeir sem fá mest vilja að sjálfsögðu dansa harðast á bökum annarra. Þeir sem borga mest dansa ekki við neinn. Hvorki Svíþjóð né Finnland hafa nokkru sinni fengið einn grænan eyrir frá ESB, nema Finnland sem árið 2001 fékk smávægilega nettógreiðslu frá ESB. Eru þau farin að þreytast á dansinum og fyrir alvöru byrjuð að tala um brottför. Finnaland kemst hvergi því það er frosið fast í evru sem gerir landið fátækara með hverju árinu sem líður í skrúfstykki evrunnar.

Um fátt er að velja fyrir þau 27 ríki sem eftir eru í sambandinu, því að 11 af þeim eru gömul Sovétríki og geta ekki borgað. Þá eru vonandi 16 ríki eftir til að borga brúsann. En 5 ríki af þeim 16 eru gjaldþrota, geta ekki borgað og bíða eftir að fá að komast í þjóðargjaldþrot á réttum tíma. ESB-aðildin byggði upp gjaldþrot Grikklands á 30 aðildarárum þess með fé annarra ríkja og tókst að koma landinu í eina samfellda rjúkandi rúst, sem er heimsmet, fyrir 113 milljarða evra í ekki neitt!

Þá eru heil 11 ríki eftir. En 9 af þeim 11 ríkjum sem þarna eru eftir og sem ekki eru enn gjaldþrota eða orðin að gömlum Sovétríkjum, eru einungis smáríki sem engan veginn geta haldið fimm gjaldþota og ellefu Sovétríkjum uppi. Þá er bara um tvenn stór ríki að ræða sem eftir eru á listanum.

Og hvað skyldi nú þeim tveim stórríkjum, sem eftir eru, detta í hug til að leysa fjármögnunarvandann.

Banakerfi Þýskalands hristist og skelfur og Frakkland getur ekki mikið lengur nauðgað sér og barið niður franska byltingarandann, sem varðveita átti neista hennar öllu landinu til framtíðar lífsviðurværis, án þess að hún endurtaki sig sjálfkrafa. Atvinnuleysi í Frakklandi er 10 prósent og hefur verið svo áratugum saman. Og Þýskaland hefur bara blásið út og gnæfir nú algerlega yfir því.

Það verður fróðlegt að sjá hvaða nýja tröllslega og eyðileggjandi skattheimta verður lögð á þau ríki sem yfir höfuð eru enn sköttunarleg í sambandinu, því ekki mun báknið sætta sig við minna spillingar- og mútufé til sinna umráða.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 19:20

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það hljómar kannski ekki fallega, en þar sem ég veit hve ESB er rotið í gegn, þá vona ég að Trump takist að sprengja það í frumeindir sínar. Ekki með loftárásum, heldur fjármagni og stjórnmálastefnu sinni.

Það segir í frægri bíómynd: Fjármagn er byssa. Stjórnmál er að vita hvenær á að taka í gikkinn. Sjálfstæði þjóða Evrópu er eina leiðin til farsælla samfélaga, sem ekki er fjarstýrt af möppudýrum í Brüssel sem enginn kaus.

Theódór Norðkvist, 1.2.2017 kl. 21:44

10 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Gunnar, satt best að segja gef ég ekkert fyrir þessa rullu þína, alhæfing af þessu tagi er allt of bundin gefini skoðun, sem er fyrst og síðast andstaða við ESB, sem út af fyrir sig er fullkomlega góð og gild, sem slík og ekkert út á það að setja. Er þó ekki að tala um fjölda þeirra sem evru hafa, en ég taldi: Finnland, Benelux, Þýskaland, Frakkland, Spán, Portúgal, Ítalíu, Grikkland, Maltu og Kýpur, 12 lönd(mín mistök), hver eru fleiri? Ef það er ósk þín að BNA séu að fara að taka þessi lönd upp á arma sér, þá ferðu villtur vegar. Og ef það er ósk þín að upplausn verði innan Evrópu, þá er meira en lítið að hjá þér, þó einungis sé bara tekið tillit til Íslands. Það kom fram sú skoðun í Kastljósþætti í kvöld, hvort möguleiki væri á því að BNA væru að liðast í sundur, ekki í fyrsta sinn sem það heyrist.

Kær kveðja.

Jónas Ómar Snorrason, 1.2.2017 kl. 21:52

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þakka góðan pistil, Gunnar. Megi spillingar og kommisarakerfið innan esb liðast í sundur, sem fyrst. 

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 1.2.2017 kl. 22:07

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Theódór

Það verður fróðlegt að fylgjast með fallbyssum Peter Navarro á næstunni. Hann er viðskiptastjóri Hvíta húss Donalds Trump. Þær eru einmitt núna við það að miða Þýskaland út sem einn versta gengisfalsara veraldar.

Þegar hleypt verður af þeim, þá mun enginn smá hvellur heyrast. Þetta mun taka smá tíma, að miða rétt, en þegar miðið er orðið rétt stillt og það gerist þá mun framhaldið heyrast sem brak og nótnabrestir níundu rúgbrauðssymfóníu ESB, - um allan heim.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 22:21

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið Halldór Egill.

..just a momemnt..just a moment..

"As of today, we are officially putting Iran on notice.”

Blaðamannafundur Hvíta hússins rétt áðan:

Krækja: https://youtu.be/F855i1Tzx_g?t=9m31s

Þarna er bara alls ekki slegið slöku við. Og James Mattis á leið til Suður-Kóreu að hrista hrísgrjón

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 22:26

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jónas

Upplausnin sem nú ríkir í Evrópu er afleiðing sjálfrar tilvistar Evrópusambandsins:

1. Ef að Evrópusambandið hefði ekki verið til, þá væri ekki 1/3 af hagkerfi Grikklands horfinn. Aðild Grikklands að Evrópusambandinu hefur eyðilagt landið.

2. Aðild Finnlands að Evrópusambandinu og evru hefur valdið verstu kreppu í sögu Finnlands síðan 1929. Evran hefur rústað Finnlandi til langframa.

3. Skattgreiðendur Norður-Evrópu-ESB-landa hafa verið píndir til að bjarga bönkum landa sinna sem káluðu sér í ESB-geggjun í Suður-Evrópu og um leið einnig þeim löndum suðursins sem þeir störfuðu í. Þetta er afleiðing Evrópusambandsins og evru og hefði ekki getað gerst án tilvistar ESB.

4. Evrópa hefur aldrei staðið eins sundruð og hún er í dag síðan í miðri Síðari heimstyrjöld. Þessi sundrung er afleiðing Evrópusambandsins.

5. Öfgaflokkar eru á uppleið í Evrópu vegna Evrópusambandsins. Þeir eru afleiðing tilvistar Evrópusambandsins.

6. Öll bankakerfi Evrópulanda eru lömuð og geta ekki sinnt hlutverkum sínum sem vatnsveitur hagkerfanna. Þau eru í þessu ástandi vegna Evrópusambandsins. Þetta er afleiðing Evrópusambandsins. 

7. Aldrei áður hafa 23 milljón manns staði atvinnulaus í Evrópu síðan sennilega bara aldrei áður. Þetta er afleiðing Evrópusambandsins. 

8. DDRÚV er ómarktæk klessa og skömm á lýðveldinu. Það er varla að maður trúi veðurfregnum þar lengur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2017 kl. 23:18

15 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Vil þakka þér fyrir greingóð svör Gunnar, er sumu sammála, öðru ekki eins og gengur og gerist.

Kveðja.

Jónas Ómar Snorrason, 2.2.2017 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband