Fimmtudagur, 23. ágúst 2018
Lýðræði hefur sín takmörk
Styrmir Gunnarsson skrifar í dag um skort á staðreyndaeftirliti eða sannleikseftirliti. Styrmir býr núna í miðju auga lýðræðislegasta augnabliks mannkynssögunnar, og hefur árum saman kallað eftir þeirri stund. Internetið færði honum hana. Það veraldarnet lækkaði markaðsfærslukostnaðinn við stjórnmál. Allir geta verið með og allir geta látið glepjast og allir geta blekkt fyrir bara brot af þeim kostnaði sem pólitískar blekkingar kostuðu, frá upphafi alda og fram til ársins 1997. Áður fyrr kostaði það menn miklu meira að blekkja, hanna, laga og hagræða sannleikann það vel til -vinkla hann- að hann rynni niður hjá kjósendum. Til dæmis má nefna stofnun og sjósetningu evrunnar, sem var fölsun á efnahagslegum og pólitískum staðreyndum frá upphafi til enda. Evran var byggð á lygum
Þetta eru því erfiðir tímar fyrir þá sem reka dagblöð. Þetta segi ég ekki í háði, því árum saman keypti ég auglýsingar í dönskum prentmiðlum sem kostuðu allt að þrjár til fjórar milljónir króna stykkið. Og ég gat mælt hvað þær gáfu, því ég seldi tískuföt í pósti um allt landið og víðar, en þó einum til miðborgarbúa Kaupmannahafnar, þar sem tískuverslanir voru flestar. Þær mælingar og samtöl við hundrað þúsund Dani, leiddu mig svo að þeirri niðurstöðu að dálkapláss prentmiðla væri mörgum sinnum of hátt verðlagt. Hefðbundnar verslanir vissu hins vegar ekkert um hvað þær voru að gera, þær eyddu peningum eigendanna blint. Þetta var fyrir tíma netsins þar sem katalógar og póstþjónusta voru okkar stórmagasín. Í dag er búið að lýðræðisvæða markaðsfærslu alls og þar með einnig skoðana svo mikið, að allir geta verið með. Kostnaðurinn er á færi allra. Þetta vissu stofnendur Bandaríkjanna að myndi gerast. Þess vegna stofnuðu þeir Lýðveldi, en ekki Lýðræði. E. Republic en ekki Democracy
Íslendingasögurnar eru því sannar. Ekkert lýðræði kom nálægt útgáfu þeirra og enginn Íslendingur var nógu ríkur til að skálda þær upp, því þær kostuðu heilan foss fjár
Þeir sem agíterað hafa fyrir svo kölluðu "beinu lýðræði" ættu að endurskoða þá afstöðu sína í ljósi dagsins í dag, því dagar styttast og vetur nálgast
Fyrri færsla
Nú segjast þeir geta í evrum í ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. ágúst 2018
Nú segjast þeir geta í evrum í ESB
Gengisþórun nokkura gjaldmiðla frá því í apríl, miðað við Bandaríkjadal
****
Utanríkisráðherra Þýskalands, Heiko Maas, segir að til þess að "bjarga" því súra bruggi sem Barack Obama samdi um við Íran -þ.e. kjarnorkumálin- að þá verði Evrópusambandið að búa til alþjóðlegt greiðslukerfi sem Bandaríkin geti ekki truflað, svo að ESB-löndin geti haldið áfram viðskiptum við íranska klerkaveldið sem er með þróun kjarnorkuvopa á sínum prjónum
Stutt er að minnast þess er seðlabanki Bandaríkjanna bjargaði í tvígang evrunni frá vissum dauða með því að opna gjaldmiðlaskiptagátt til handa ECB-seðlabankanum upp á gátt, svo bjarga mætti evrunni frá því að leysast upp sem peningakerfi - og Evrópusambandslöndum frá þjóðargjaldþrotum með því að Bandaríski seðlabankinn bjargaði AIG, sem tryggði flestar skuldir fjármálakerfa evrulanda, og sem voru svo hátt upp-gíruð, miðað við eiginfé, að þau eru ekki enn komin út úr mýrunum sem evran gróf þau föst í með fölsunum á lífsins staðreyndum. Fjármálakerfin á evrusvæðinu gátu þá ekki lengur staðið við skuldbindingar sínar í Bandaríkjadölum, vegna þess að heimurinn beið eftir því að allt evrukerfið léti þarna lífið, er loksins á það reyndi. Það stóðst ekki álagið og enginn vildi eiga viðskipti við það í öðrum gjaldmiðlum en Bandaríkjadölum. Þarna kom í ljós að hin stofnanalega og afskræmda hugmyndafræðilega uppsetning peningakerfis evrunnar hvíldi á sandi. Ekki tókst því að halda kerfinu á lífi, því allir vissu að það var að enda líf sitt í þurrð (e. non liquid) og fjármagnsflótta á milli evrulanda í takt við yfirboð ríkisstjórna um ríkisábyrgðir, um miðjar reykfylltar nætur. Aðeins ótakmarkað aðgengi að bandarískum dölum úr hirslum bandaríska seðlabankans bjargaði evrukerfinu frá vissum dauða - í tvígang
Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig bandaríski seðlabankinn bregst við næst, nú þegar margir útflutningsmarkaðir evrulanda eru vel hugsanlega að sogast inn í nýja alþjóðlega gjaldeyriskrísu, með helstu eldsupptök í Tyrklandi, ásamt nokkrum öðrum stærri þróunarríkjum jarðar. Þetta er sérstaklega áhugaverð spurning í ljósi þess að yfirvöld evrusvæðis misnotuðu þá aðstoð sem bandaríski seðlabankinn veitti þeim síðast, því sú aðstoð var notuð til að ná sér niðri á þeim ríkjum sem hétu ekki vissum nöfnum og bjuggu helst í suðri. Nefna má til dæmis Grikkland, Írland, Portúgal, Spán og Ítalíu, svo ekki sé minnst á Ísland. Útkoma krísunnar í myntbandalagi ESB var gerð háð þjóðerni, þó svo að allt öðru hafi verið haldið fram þegar löndin gengu í það og skuldsettu sig á þeim forsendum
Skuldastaða ríkisstjórna á evrusvæðinu í heild, miðað við landsframleiðslu, er mun verri í dag (87%) en hún var þegar síðasta kreppa skall á myntsvæðinu 2008 (69%) og sem lítið hefur gengið að draga úr. Sú kreppa varir því að stórum hluta til enn á evrusvæðinu, 10 árum síðar. Og þar sem fyrirkomulag alþjóðaviðskipta er farið að snúast um að Alþjóðaviðskiptastofnunin WTO muni ekki geta innihaldið Bandaríkin mikið lengur, sé Kína þar meðlimur líka, þá er ekki líklegt að mynt kínverska kommúnistaflokksins geti bjargað evrusvæðinu fyrir næsta horn. Og ekki eru það útgjöld til varnarmála sem íþyngt hafa ríkisstjórnum evrulanda, þvert á móti
Væri ég Donald Trump myndi ég íhuga að skilyrða næstu aðstoð því, að gengið verði fram hjá ECB-seðlabanka Evrópusambandsins og hún aðeins veitt beint til seðlabanka þjóða, því aðeins þjóðir geta verið trygging og ábyrgar fyrir því að greitt sé til baka, og þar með því að aðstoðin sé ekki misnotuð eins og síðast - og sem að mörgu leyti varð til þess að gera Evrópusambandinu kleift að halda efnahag heimsins í gíslingu
Ronald Reagan gagnrýndi stundum ákvarðanir seðlabanka Bandaríkjanna og hélt honum við tvíþættar frumskyldur sínar. Hið sama er byrjað að sjást hjá Donald J. Trump í dag
Fyrri færsla
Einn plús einn látinn laus úr pólitískum fangabúðum Erdogans og Merkels
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þriðjudagur, 21. ágúst 2018
Einn plús einn látinn laus úr pólitískum fangabúðum Erdogans og Merkels
Mynd: frá myndskeiði DoD 2017
****
Erdogan Tyrklandsforseti lét leysa þýsk-tyrkneska blaðamanninn Mesale Tolu úr haldi í gær. Forsetinn lét búra hana og mann hennar inni á pólitískum ostalager Tyrklands, svo hún gæti þroskast þar og borist á borð við hátíðarpólitísk tækifæri, eins og það sem gafst í síðustu viku. En þá bara varð forseti Rússlands sí svona að hitta kanslara Þýskalands, og öfugt, til að minna hana kurteislega á þá fimm milljón íslamísku flóttamenn sem sitja í Tyrklandi, Jórdaníu og Líbanon og bíða boðskortanna frá kanslara Merkel eins og síðast, en sem nú er valdalaust pólitískt viðrini og líklega hataðasta persóna Evrópu. En það mál var hins vegar bara forrétturinn
Í aðalrétt minnti aðframkominn Pútín hana þá þann akút 400 milljarða dala endurreisnarkostað í Sýrlandi sem komið gæti í veg fyrir síðari sveiflu íslams upp til ESB-Þýskalands hennar, og sem hann Rússlandur sjálfur hefur ekki séns á að borga. Og svo vildi til að sá aðalréttur málsins var borinn á borð fyrir þau á sama tíma og boðskortið frá Erdogan datt með aðstoð tvisvar sinnum dýrara frímerkis á diskinn þeirra en í fyrra, og hið sama gildir að sjálfsögðu um afborgunarbyrði Tyrklandsforseta af því erlenda skuldasafni sem hvílir nú sem einn gengisfelldur hálfmáni á hans herðum - og þar með á kanslara Merkels að miklu leyti líka
Þýska gerviþingið Bundestag -án stjórnarandstöðu áratugum saman- er nú meira rússneskt er bara fyrir ári síðan. Ostpolitískt límósíana embættismannaveldis SDP, sem sér enn lífsrými sitt þar, tosar austur og sama gerir AfD. Merkel blaffrar því um hið pólitíska svið sameinaðs Þýskalands, sem verulega hratt er að breytast í sömu gömlu sviðnu jörð og síðast. Og það var hún sem kveikti í
Á sama degi og hér efst, var Grikkland látið laust úr Berlínar-þýskum fangabúðum evru og mun á næstu áratugum deyja drottni sínum ESB, þökk sé kanslara Angelu Merkel. Enginn fagnaði þó í tilefni þess dags, því Grikklandið er svo gott sem tekið af lífi, af kanslara Angelu Merkel. Þegar Aþena svo fréttir af fyrirhuguðum íslamískum afborgunum Þýskalands til Rússlands-Sýrlands og Tyrklands, undir ESB-borði Brussels, þá er aldrei að vita hvað gerist í Grikklandi næst. Það er því mikið rétt að hin pólitíska gjaldþrotamiðja Evrópu nálagst nú Berlín
Varsjáryfirlýsing Donalds J. Trump stendur hins vegar enn. Hún gildir fyrir allt það 300 milljón manna svæði sem mætist í einum spíss á flóa Gdansk, þar sem Rússar sökktu Wilhelm Gustloff í janúar 1945 og drápu 9400 manns. Má kannski bjóða yður upp í einn Trump í Intermarium
Fyrri færsla
Angela Merkel heimsækir fangaverði sína
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 19. ágúst 2018
Angela Merkel heimsækir fangaverði sína
Innheimtur
Angela Merkel er önnum kafin við að heimsækja þá sem gæta hennar í fangelsinu. Rússland skrúfar þá kannski ekki fyrir hitann hjá henni í klefanum í vetur. Og hugsast getur því að þjóð hennar lifi veturinn af. Forseti Tyrklands sem geymir pólitískt líf Merkels í hendi sér, mun þá kannski ekki heldur sleppa lausum þeim milljónum af íslamískum fátæklingum sem hún óttast mest. Hún hefur mútað honum til að halda þeim til baka í vissan tíma. "Wir schaffen das" reyndist einungis vera jugend plakat-blaður ættað frá DDR. Þýskir gátu þetta bara alls ekki og landið þeirra logar pólanna á milli, þannig að CSU mælist nú hrunið úr 47 prósent niður í 37 prósent í Bæjaralandi á aðeins rúmu ári, en þar verður kosið við "við-getum-þetta" DDR-hryllingsundirleik Merkels í október
En nú er Tyrklandsforsetinn kominn í viss vandræði, því íslam er hætt að geta brauðfætt þjóðina. Og gengi tyrknesku lírunnar fellur og fellur vegna skulda Tyrklands í erlendri mynt, sem þá hefur ekki lengur efni á innflutningi frá Merkel, sem er óðaöldrunar-kanslari útflutningaháðasta hagkerfi heims. Hið sama gildir um Íran, þaðan frá sem þýsku Deutsche Telekom og hið ríkisrekna Deutsche Bahn tilkynntu fyrir helgi að væru að hypja sig út og heim, til að lenda ekki í notbremsenresistent lestarkerfi Trumps. Þar getur íslam hvorki brauðfætt þjóðina, hýst hana né menntað. Merkel gæti þó hugsanlega gripið til þeirra efnahagslegu ráðstafana sem hún hefur notað svo vel síðastliðin 10 ár. Já, hún gæti kveikt í enn einu evrulandinu í viðbót, til dæmis í Ítalíu, og lækkað þannig gengi evrunnar svo að þýskir gámar hendist betur út úr höfninni í Hamborg. Já, og komið þannig til móts við brauðgengi Tyrklands í íslam. Hún gæti líka sett upp slæður að hætti Mogherini og flutt rússnesku loftvarnarbatteríin sem Erdogan (í NATO!) er að kaupa, með sér í töskunum til Ankara, fyrir hinn fangavörðinn hennar, hann Pútín, til að tryggja sér og þýskum þannig hita alla leið til páska
Þetta er að verða þungamiðjan í Evrópu. Ekki vegna þess að Tyrkland, Íran og Rússland séu kjarnarnir í Evrópusambandi Þýskalands. Nei nei. Heldur aðeins vegna þess að í kjarna Evrópu er ekkert, því þar er einungis svartholið Þýskaland í sínu peningapokalega singularity, og sem er sjálf þungamiðjan og sökkvaldurinn í Evrópu og víðar
Svo eru það hin þekktu fjögur skilyrði Bandaríkjanna fyrir titlinum gengisfalsari (e. currency manipulator) og sem sett voru í forsetatíð Obama. Þýskaland uppfyllir þau öll, með glans. Hvað skyldi Trump gera í því. Í síðustu viku tók hann spænskar ólífur fyrir. Þær eru niðurgreiddar með styrkjum frá Brussel. Tollur kom því á þær - og tollur mun sennilega brátt koma á þið vitið hvern, jú hina niðurgreiddu mynt Þýskalands, sem greidd er niður af örkumla löndum í evru
Fyrri færsla
Bandarískir fjölmiðlar í dauðadansi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 17. ágúst 2018
Bandarískir fjölmiðlar í dauðadansi
Afkoma bandarískra dagblaða er nú svo slæm að þau gera örvæntingarfulla tilraun til að rétta búskap sinn við með því að ráðast í sameiningu að þjóðkjörnum forseta landsins. Upplag þeirra snarféll eftir að mörg virtustu dagblöð landsins háðu viðurstyggilega kosningabaráttu gegn Donald J. Trump, fyrir hönd Hillary Clinton og gengis hennar, sem lét Donna Brazile frá CNN leka fyrirfram spurningum til hennar fyrir sjónvarpskappræður við Trump. Svo brugðið var lesendum blaðanna í Bandaríkjunum, að ritstjórnir þeirra neyddust eftir kosningar til að senda út afsökunarbeiðnir til áskrifenda með loforði um bót og betrun. Kom í ljós 80 prósent kosningaumfjöllunar blaðanna þar sem greina mátti skoðun, beindist gegn Doland J. Trump, samkvæmt Harvard Kennedy School í fjölmiðlun
Upplag blaðanna féll úr 41 milljón eintökum fyrir forkosningar og niður í 33 milljón eintök eftir kosningar. Uppátæki þeirra í gær bendir til að niðurtúrinn sé yfirstandandi enn, bæði upplagslega og tekjulega séð. Eina efnahagslega von þeirra er Donald J. Trump. Blöðin virðast hafa gleymt því að sjálfur líberalistinn þeirra, Franklin D. Roosevelt, reyndi að koma því í lög að gagnrýnar fréttir í hans garð yrðu gerðar refsiverðar. Það mistókst að sjálfsögðu, þökk sé stjórnarskrá Bandaríkjanna. En henni tókst þó ekki að koma í veg fyrir að Barack Obama léti dómsmálaráðuneytið njósna óviðeigandi og á laun um fréttamenn Associated Press og hlera James Rosen blaðamann Fox News. Obama sem talaði næstum aldrei sjálfur við fréttamenn blaðanna, lét sér bara nægja að svífa fram hjá þeim og segja swift, og var það kallað góð fréttamennska, af því að það var jú hann, þeirra maður. Donald J. Trump er greinilega ekki þeirra maður, því hann svífur hvorki hjá um háloftin blá né segir swift, heldur svarar spurningum þeira með svörum sem þeir þola ekki að heyra
Bandarísku blöðin eru reið yfir því að þeirra maður skyldi tapa kosningunum og að eini maðurinn úr röðum Repúblikana sem yfir höfuð gat unnið þær, skyldi einmitt sigra. Vanmáttarreiði þeirra kom svo út sem samhæfðir og prentaðir hefndar-leiðarar í dagblöðunum gær. Þessir fjölmiðlar eru nú valdalausir því enginn hlustar á þá lengur, nema efstu lög taparanna í embættum
Í tilefni aðfarar dagblaðanna að forseta Bandaríkjanna hefur verið minnst á ummæli Thomas Jeffersons um þær mundir er bandaríska stjórnarskráin var samþykkt 1787. Hann á þá að hafa sagt að hann vildi frekar lifa án ríkisstjórnar en dagblaða, yrði hann að velja. En þá var Thomas Jefferson í Frakklandi, sem betur fer fyrir Bandaríkin, því Jefferson var líberalisti og fyrirleit flest breskt og var aðdáandi úniversalistans John Locke, sem var kenningasmiður úniversal-sósíalisma líberalista sem rifu niður Frakkland
Íhaldsmennirnir Alexander Hamilton frá New York og James Madison frá Virginíu gátu því án Jeffersons og undir stjórn George Washington frá Virginíu lagt lokahönd á bandarísku stjórnarskránna, og búið svo um hnútana að hún kæmi í veg fyrir að Bandaríkin gætu orðið eins og Frakkland varð. Stjórnarskráin tók því lítið sem ekkert úr pólitískri heimspeki sósíalistans Locke, heldur kom stærsti hlutinn úr Gamla testamentinu í gegnum helstu Íhaldsmenn Englands á borð við John Selden og John Fortescue. Petition þeirra of Rights rann því beint inn í bandarísku stjórnarskránna ásamt öðrum tilvistarlega mikilvægum hugsunum Íhaldsmanna. Jefferson var þurrkaður út
Stuttu síðar þegar búið var að meina hluta frönsku þjóðarinnar að tilheyra henni, og fjarlægja hann úr þjóðinni með því að myrða hann, þá skrifaði Jefferson heim og sagðist frekar vilja sjá helming jarðar lagðan í rúst en að franska byltingin mistækist. Hún mistókst að sjálfsögðu svo hroðalega að Frakkland er nú misheppnað land þar sem stofnað hefur verið fimm lýðvelda, því úniversalismi byltingarinnar tortímdi því sem hægt var að byggja á, og á annan tug franskra stjórnarskráa hefur verið hent í ruslið. En án árangurs, því nú er rætt um enn eitt nýtt franskt lýðveldi, sökum þess hve misheppnað það fimmta er
Jefferson tókst því miður að koma í veg fyrir bandaríska þjóðkirkju að fyrirmynd þeirrar ensku, því það mál hafði af höfundum stjórnarskrárinnar verið sett í vald fylkjanna sjálfra eins og England hafði sína ensku þjóðkirkju og Skotar skosku þjóðkirkjuna, því Bandaríkin byggðu á kristni. Jefferson óð yfir þetta með túlkun sinni á Fyrstu stjórnaskrárbreytingunni sem gerð var 1791 og hélt því fram að hún hafnaði þjóðkirkju, sem er ekki rétt. Fylkin eru enn að melta það mál
Síðasta valdaránstilraun hersins í glundroðaríki líberalista í Frakklandi fór fram 1961. Enginn efast nokkru sinni um hollustu bandaríska hersins við stjórnarskrá Bandaríkjanna
Sú hollusta sást best í borgarstyrjöldinni 1861 til 1865, þar sem Abraham Lincoln eiðsvarinn forseti Bandaríkjanna varði stjórnarskránna með bandaríska hernum gegn uppreisnarmönnum í svo kölluðum suðurríkjum, sem héldu að þau gætu sagt sig úr Bandaríkjunum og stofnað nýtt ríkjasamband, sem hefði orðið eins og Evrópusambandið. Hálf milljón manna létu lífið. Ekkert fylki getur farið úr Bandaríkjunum því það er bandaríska þjóðin sem ein heild, sem er ósundrandi fullvalda þjóð undir Guði. Það þurfti því ekki að "innlima" uppreisnarríkin í Bandaríkin á ný eftir styrjöldina, því þau höfðu aldrei yfirgefið þau, einfaldlega vegna þess að slíkt er ekki hægt
Tengt: Ritgerð: Hvað er Íhaldsmaður og Íhaldsstefna?
Fyrri færsla
Íhaldsmenn sluppu við Kommúnisma-eitt og tvö
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fimmtudagur, 16. ágúst 2018
Íhaldsmenn sluppu við Kommúnisma-eitt og tvö
Kommúnismi-1 réði í loftslögum menntamanna í kringum aldamótin 1900. Hann átti að gera heiminn réttlátan og voru menntamenn vissir um sigur hans yfir fátækt og kúgun í heiminum. Alveg vissir. Handvissir. En hann endaði sem versta fátæktargildra mannkynssögunar í framkvæmd og abstraktsjón. Og hann endaði einnig sem heil úthöf full af blóði þeirra sem frelsa átti frá kúgun og fátækt. Þessi kommúnismi endaði með að drepa 100 milljón manns þegar hann var leystur af hólmi árið 1990
Kommúnismi-2 er alþjóðavæðingin (abstrakt útópía í anda Kommúnisma-1) og svo kölluð "frjáls-viðskipti" (afskræmd abstraktsjón). Sú útópía hófst þar sem útópía númer eitt endaði. Hún átti einnig að gera heiminn frjálsan og réttlátan og voru ákafir menntamenn handvissir um sigur hans yfir fátækt og kúgun í heiminum. Sérstaklega ef svo kölluð "frjáls viðskipti" réðu för. Alþjóðavæðingin og hin "frjálsu viðskipti" byggjast einnig á því að láta aðra borga og blæða. Og þannig viðskipti hafa ekkert með upprunalegu kenninguna um frjáls viðskipti að gera, en sú kenning byggist á jafnvægi. Þetta segir til dæmis skákmaðurinn Peter Thiel sem stofnaði greiðsluþjónustuna PayPal. Og ef menn nenna ekki að hlusta á það sem Michael Pettis hefur að segja um "frjáls viðskipti", þá sjá brátt allir að hinir heyrnarskertu synda naktir
Þessi kommúnismi-2 lét lífið víða hér á jörð, og sérstaklega, skyldi maður ætla, hér á landi árið 2008. Nema kannski í forstokkuðum vested interest pörtum Sjálfstæðisflokksins, að sjálfsögðu. En þrátt fyrir brottför hinna forstokkuðu harðlínukomma-2 úr flokknum yfir í Viðreisn, þá er samt enn kropið of mikið við 1991-altarið enn, af gömlum en heilaþvegnum vana. Og menntamennin, já menntamennin, sem höfðu ekki snefils vit á Sovétríkjunum og hruni þeirra, né á því sem gerðist frá 1991 til 2008 og vita ekki enn, halda enn kommamessur-2 sínar í Valhöll og í útibúum Austur-Berlínar Reykjavíkur. Nú á að fá það menntalið sem vissi ekkert frá upphafi til enda hvaða böl ESB-aðild var og þýddi: og sem vissi ekkert um hvaða og hvers konar böl EMU var og þýddi (peningapólitískt myntbandalag ESB og lokafasi hins örkumlandi ERM): og sem vissi ekkert um hvaða böl alþjóðavædd banka- og fjármálabóla var og þýddi: og sem vissi bara alls ekkert um hvaða böl Icesave var og þýddi, en sem mælti samt með þessu öllu og hótaði Norður-Kóeru og Kúbu ef þjóðin gengi ekki fyrir kommabjörg þeirra: já nú á að láta þetta uppblásna fólk úr sinni eigin örorkuskapandi menntabólu -sem er jú orðin dýrasta bóla sem Vesturlönd hafa mátt bæði þola og fjármagna- já nú á að láta þetta fólk segja íslensku þjóðinni hvað hún á að hugsa um síðasta tilbrigðið úr töfraflautum menntamanna, nefnilega hinn þriðja orkumálapakka ESB-pakksins í Brussel: ACER!
Að enn skuli ekki kvikna tært og sýnilegt vitavarðarljós á perum neins staðar í Valhöll, sýnir okkur það, að þá höll þarf brátt að gasa með svo þykkum taðreyk að ilmurinn hverfi þaðan aldrei, því sá gamli er greinilega horfinn og nýkommafýlan sest þar föst
Sért þú hins vegar Íhaldsmaður, þá komstu hjá því já, og slappst við það já, að láta bæði kommúnisma eitt og tvö bora út á þér hausinn. Kerlingabókunum í Sjálfstæðisflokknum þurfa flokksmenn að kveikja í, eða tortímast ella. Þessi dauðhættulegi divergens frá edrú upphafinu, gengur ekki lengur
Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Tíu ár liðin frá gjaldþroti sérfræðinnar 2008
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 12. ágúst 2018
Tíu ár liðin frá gjaldþroti sérfræðinnar 2008
Mynd: Lesa hér. Horfa: Pettis hafði rétt fyrir sér um Kína á meðan allir aðrir höfðu rangt fyrir sér
****
Fyrir rétt rúmlega 10 árum síðan, þann 7. ágúst 2008, réðst Rússland inn í Georgíu. Sex vikum síðar féll Lehmans-bræðra bankinn. Þessir tveir atburðir mörkuðu endalok þess heims sem varð til í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar. Frjáls verslun hafði ekki gert heiminn öruggan og sérfræðingar klesstu alþjóðavæddum heiminum með sölu á hlutum sem þeir vissu ekkert um og sem reyndust loft. Þeir reyndust ekki vera sérfræðingar
Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðastofnanir höfðu heldur ekki komið í veg fyrir þessi endalok, heldur þvert á móti stuðlað að þeim. Evrópusambandið hafði heldur ekki komið í veg fyrir neitt, heldur aðeins gert Evrópu verri en hún var
Áratuga "frjáls viðskipti" höfðu ekki læknað heiminn og allur sá ofboðslegi massi fólks sem naut ekki góðs af þeim, sat mun verra eftir í sínu og leiddist biðin eftir árangrinum, á meðan hinir fáu böðuðu sig í fossandi alþjóðapeningum í vissum hverfum vissra stórborga heimsins
Kína hafði ekki breyst úr vondu í gott við allt það sem að þeim var rétt úr vösum hinna mörgu sem biðu svo lengi eftir kraftaverkum frjálsra viðskipta, fastir á fjóshaugum Vesturlanda. Kína varð einungis að hættulegu einræðisríki með vindil
Sérfræðingarnir héldu að Rússland væri að eilífu hætt að hugsa um þjóðarhagsmuni sína - og þeir yfirtóku NATO. En Rússland mætti aftur til sögunnar, þrátt fyrir ESB-skriffinna NATO
Bændur urðu lægst launaða stétt Vesturlanda á þessu tímabili "frjálsra viðskipta" á meðan sérfræðingarnir skófluðu í sig
Já það er nú það. Kristian Thulesen Dahl, formaður danska Þjóðarflokksins, sem er næst stærsti stjórnmálaflokkur Danmerkur, sagði því á flokkssamkomu á miðvikudaginn að Danmörk ætti ekki að segja sig úr Evrópusambandinu alveg strax. "Við leggjum ekki til útgöngu fyrr en að valkostur við ESB-aðild liggur fyrir. En strax og Bretland er komið út, þá er sá valkostur fyrir hendi", sagði hann
Ungverjaland tók í sömu vikunni ákvörðun um að hætta fjármögnun á "kynjafræðum" í háskólum landsins. Þær námsgreinar verða því aflagðar í ungverskum háskólum. "Háskólapróf eiga að byggja á vísindum. Kynjafræði snúast meira um Marx-Lenínisma og álíka hugmyndafræði en um vísindi", sagði Bence Rétvári í mannauðsráðuneyti Ungverjalands. En þau "fræði" þekkja Ungverjar allt of vel frá fyrri tíð svartra sovéskra fræða
Nú er sem sagt eftirstríðs-heimurinn liðinn undir lok, og miklar breytingar eru nú þegar að eiga sér stað, - og enn meiri eru jafnframt í vændum. Aldir Íhaldsmanna eru líklega að renna upp á ný og leiðir Líberalista og Íhaldsmanna eru skilja. Þeir voru aldrei eitt og sama stjórnmálaaflið, þó svo að þeir snéru bökum saman í baráttunni við alræðisöfl tuttugustu aldar
Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Gengisfall í evru-Evrópu og nágrenni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 10. ágúst 2018
Gengisfall í evru-Evrópu og nágrenni
Benedikt evru-Bimbo verður varla hress í dag. Tyrkneska líran hefur dregið evruna hans niður um rúmlega eitt prósent í andrá dagsins, því líran er fallin um 17 prósent í dag. Þýskir gíslar í evrulandi komast þá ekki til Íslands í ár né heldur á þeim næstu, því gjaldmiðill þeirra er evran sem stöðvar hér enn frekar innflutning á íslenskri ferðaþjónustu til þýskra gísla evrulands, sem hafa ekki efni á neinu, því raun-kaupmáttur þeirra hefur ekkert lagast í 18 ár, þökk sé evru
Bankar evrulands fóru líka á samstundis-hálfhvolf í dag og seðlabankastjóri ECB-aukaseðlabanka Þýskalands hefur áhyggjur af smitum á hina nú þegar fárveiku stórbanka evrulanda. Þannig hrundi Deutsche Bank um rúm fimm prósent í einum grænum og frönsku stórbankarnir tveir um BNP-fjögur prósent og SOC um þrjú prósent. Hið þýska útibú Akbank, sem er stærsti banki Tyrklands, hrundi um 23 prósent í Frankfurt dag. Svo koma Spánarbankar og evrustórslys Ítalíu eftir helgi og hella glóandi hömsum út á evrusteypuna, sem er réttur dagsins alla daga, því með þýskan ritvéla-gjaldmiðil hefur aðeins yfirstéttin efni á ekta saltfisk. Bilbao-bankinn og UniCredit gáfu mínus fimm til sex prósent tóninn í dag
Bimbo-evra Benedikts grefur undan ferðaþjónustuútgerð á Íslandi í takt við upplausn Evrópusambandsins. Evran er nú fallin um tæp 30 prósent gagnvart Bandaríkjadal, frá því að fjármálabóla ECB-aukaseðlabanka Þýskalands fyllti öll bakherbergi evrusvæðis af reyk, og setti á svið 100 þátta neyðarfundarseríu fyrir það vonlitla fólk sem búa þarf við gerspillt stjórnarfar Evrópusambandsins og evru, þar sem engin gengis-skóstærð evru passar neinum, nema hinu uber-útflutningsháða óðaöldrunarhagkerfi Þýskalands
Fyrri færsla
Tuttugu og þrjú ár síðan að fyrsta internet-fyrirtækið var skráð á markað
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 9. ágúst 2018
Tuttugu og þrjú ár síðan að fyrsta internet-fyrirtækið var skráð á markað
Í dag eru 23 ár liðin frá því að fyrsta internet-fyrirtækið var skráð á markað sem almenningshlutafélag. Það var fyrirtækið Netscape Communications sem þá var 16 mánaða gamalt. Verð eins eignarhluta var 28 dalir. Hluturinn fékkst keyptur eða seldur í Nasdaq-hlutabréfaversluninni. Verðlagningargata Bandaríkjanna sér um verðskrár slíkra verslana og heitir hún Wall Street
Bandaríkin hafa umbylt heiminum einu sinni enn og eru nú í gangi með aðra umskipun. Hún gengur út á að sparka útidyrunum aftur í hurðagöt heimsins, sem hangir að mestu á herðum Bandaríkjanna. Bara Bandaríkin geta slíkt sovétstopp
Á meðan hefur Evrópusambandið svo gott sem dottið úr sambandi við heiminn. Sést táknmynd algerrar stöðnunar Evrópu best á beinagrindasafninu Deutsche Bank, sem er ári eldri en sjálft Þýskaland. Flest í Þýskalandi ætti með réttu og fyrir löngu að vera orðið gjaldþrota vegna nýjunga. En þær verða bara ekki til í elítuvæddum fyrirbærum á borð við ESB. Þar má ekkert nýtt gerast sem stuðlað getur að því að ritvélaiðnaður ESB-elíta svitni. Evrópusambandið er enn sem komið er frekar mjúk útgáfa af sovétríki. En það mun breytast því sambandið getur aðeins valið um að forherðast enn frekar eða deyja
Fyrri færsla
Blað (möl)brotið í sögu kínverska hersins
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 8. ágúst 2018
Blað (möl)brotið í sögu kínverska hersins
Xi Kínaforseti (möl)braut blað í sögu kínverska hersins þann 1. ágúst síðastliðinn, með því að neita að tilnefna nýja hershöfðingja úr röðum liðsafla hersins. Hann þorir ekki að taka áhættuna á að útnefna nýja hershöfðingja, því óvíst er um tryggð lægra settra manna við einræðisherrann Xi. Kínverski herinn er, eins og ég hef áður bent á, fyrst og fremst lífvöður kommúnistaflokksins gegn fólkinu í landinu
Stjórnarfar þar sem líf hins pólitíska höfuðs landsins veltur á tryggð hersins, er öskuhaugamatur. Herinn er fyrst og fremst grunnstofnun þjóðríkis borgaranna, eins og lögregla, en ekki búlla einstaklinga
Þá vitið þið það. Kína er búlla kommúnistaflokksins og lífvöður búllunnar er herinn. En það vissu íslensk stjórnvöld að sjálfsögðu er þau gerðu fríverslunarsamning við búllu og gengu í fjárfestingar-svindlnúmer búllu sem kallast AIIB. Er íslenska utandíkisráðuneytið kannski búlla líka?
Þegar á reynir mun kínverski herinn að sjálfsögðu ekki virka neitt öðruvísi en búlla
Fyrri færsla
Pólland spyr hvort að þetta sé rétt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 124
- Sl. viku: 730
- Frá upphafi: 1404479
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 472
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008