Leita í fréttum mbl.is

Bandarískir fjölmiðlar í dauðadansi

Afkoma bandarískra dagblaða er nú svo slæm að þau gera örvæntingarfulla tilraun til að rétta búskap sinn við með því að ráðast í sameiningu að þjóðkjörnum forseta landsins. Upplag þeirra snarféll eftir að mörg virtustu dagblöð landsins háðu viðurstyggilega kosningabaráttu gegn Donald J. Trump, fyrir hönd Hillary Clinton og gengis hennar, sem lét Donna Brazile frá CNN leka fyrirfram spurningum til hennar fyrir sjónvarpskappræður við Trump. Svo brugðið var lesendum blaðanna í Bandaríkjunum, að ritstjórnir þeirra neyddust eftir kosningar til að senda út afsökunarbeiðnir til áskrifenda með loforði um bót og betrun. Kom í ljós 80 prósent kosningaumfjöllunar blaðanna þar sem greina mátti skoðun, beindist gegn Doland J. Trump, samkvæmt Harvard Kennedy School í fjölmiðlun

Upplag blaðanna féll úr 41 milljón eintökum fyrir forkosningar og niður í 33 milljón eintök eftir kosningar. Uppátæki þeirra í gær bendir til að niðurtúrinn sé yfirstandandi enn, bæði upplagslega og tekjulega séð. Eina efnahagslega von þeirra er Donald J. Trump. Blöðin virðast hafa gleymt því að  sjálfur líberalistinn þeirra, Franklin D. Roosevelt, reyndi að koma því í lög að gagnrýnar fréttir í hans garð yrðu gerðar refsiverðar. Það mistókst að sjálfsögðu, þökk sé stjórnarskrá Bandaríkjanna. En henni tókst þó ekki að koma í veg fyrir að Barack Obama léti dómsmálaráðuneytið njósna óviðeigandi og á laun um fréttamenn Associated Press og hlera James Rosen blaðamann Fox News. Obama sem talaði næstum aldrei sjálfur við fréttamenn blaðanna, lét sér bara nægja að svífa fram hjá þeim og segja swift, og var það kallað góð fréttamennska, af því að það var jú hann, þeirra maður. Donald J. Trump er greinilega ekki þeirra maður, því hann svífur hvorki hjá um háloftin blá né segir swift, heldur svarar spurningum þeira með svörum sem þeir þola ekki að heyra

Bandarísku blöðin eru reið yfir því að þeirra maður skyldi tapa kosningunum og að eini maðurinn úr röðum Repúblikana sem yfir höfuð gat unnið þær, skyldi einmitt sigra. Vanmáttarreiði þeirra kom svo út sem samhæfðir og prentaðir hefndar-leiðarar í dagblöðunum gær. Þessir fjölmiðlar eru nú valdalausir því enginn hlustar á þá lengur, nema efstu lög taparanna í embættum

Í tilefni aðfarar dagblaðanna að forseta Bandaríkjanna hefur verið minnst á ummæli Thomas Jeffersons um þær mundir er bandaríska stjórnarskráin var samþykkt 1787. Hann á þá að hafa sagt að hann vildi frekar lifa án ríkisstjórnar en dagblaða, yrði hann að velja. En þá var Thomas Jefferson í Frakklandi, sem betur fer fyrir Bandaríkin, því Jefferson var líberalisti og fyrirleit flest breskt og var aðdáandi úniversalistans John Locke, sem var kenningasmiður úniversal-sósíalisma líberalista sem rifu niður Frakkland

Íhaldsmennirnir Alexander Hamilton frá New York og James Madison frá Virginíu gátu því án Jeffersons og undir stjórn George Washington frá Virginíu lagt lokahönd á bandarísku stjórnarskránna, og búið svo um hnútana að hún kæmi í veg fyrir að Bandaríkin gætu orðið eins og Frakkland varð. Stjórnarskráin tók því lítið sem ekkert úr pólitískri heimspeki sósíalistans Locke, heldur kom stærsti hlutinn úr Gamla testamentinu í gegnum helstu Íhaldsmenn Englands á borð við John Selden og John Fortescue. Petition þeirra of Rights rann því beint inn í bandarísku stjórnarskránna ásamt öðrum tilvistarlega mikilvægum hugsunum Íhaldsmanna. Jefferson var þurrkaður út

Stuttu síðar þegar búið var að meina hluta frönsku þjóðarinnar að tilheyra henni, og fjarlægja hann úr þjóðinni með því að myrða hann, þá skrifaði Jefferson heim og sagðist frekar vilja sjá helming jarðar lagðan í rúst en að franska byltingin mistækist. Hún mistókst að sjálfsögðu svo hroðalega að Frakkland er nú misheppnað land þar sem stofnað hefur verið fimm lýðvelda, því úniversalismi byltingarinnar tortímdi því sem hægt var að byggja á, og á annan tug franskra stjórnarskráa hefur verið hent í ruslið. En án árangurs, því nú er rætt um enn eitt nýtt franskt lýðveldi, sökum þess hve misheppnað það fimmta er

Jefferson tókst því miður að koma í veg fyrir bandaríska þjóðkirkju að fyrirmynd þeirrar ensku, því það mál hafði af höfundum stjórnarskrárinnar verið sett í vald fylkjanna sjálfra eins og England hafði sína ensku þjóðkirkju og Skotar skosku þjóðkirkjuna, því Bandaríkin byggðu á kristni. Jefferson óð yfir þetta með túlkun sinni á Fyrstu stjórnaskrárbreytingunni sem gerð var 1791 og hélt því fram að hún hafnaði þjóðkirkju, sem er ekki rétt. Fylkin eru enn að melta það mál

Síðasta valdaránstilraun hersins í glundroðaríki líberalista í Frakklandi fór fram 1961. Enginn efast nokkru sinni um hollustu bandaríska hersins við stjórnarskrá Bandaríkjanna

Sú hollusta sást best í borgarstyrjöldinni 1861 til 1865, þar sem Abraham Lincoln eiðsvarinn forseti Bandaríkjanna varði stjórnarskránna með bandaríska hernum gegn uppreisnarmönnum í svo kölluðum suðurríkjum, sem héldu að þau gætu sagt sig úr Bandaríkjunum og stofnað nýtt ríkjasamband, sem hefði orðið eins og Evrópusambandið. Hálf milljón manna létu lífið. Ekkert fylki getur farið úr Bandaríkjunum því það er bandaríska þjóðin sem ein heild, sem er ósundrandi fullvalda þjóð undir Guði. Það þurfti því ekki að "innlima" uppreisnarríkin í Bandaríkin á ný eftir styrjöldina, því þau höfðu aldrei yfirgefið þau, einfaldlega vegna þess að slíkt er ekki hægt

Tengt: Ritgerð: Hvað er Íhaldsmaður og Íhaldsstefna?

Fyrri færsla

Íhaldsmenn sluppu við Kommúnisma-eitt og tvö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Þetta er bara kynþáttahatur, það er fínt að ljóshært og bláeygt fólk ... og þessu öllu kennt um að þeir séu "hitlersæskan", og aríar.  Bullið er alveg botnlaust ... ekkert af "vinum" hitlers voru ljóshærðir eða bláeygðir. Þeir voru allir, með tölu, littlir svarthærðir og snaggaralegir.

Örn Einar Hansen, 17.8.2018 kl. 19:00

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Orðið "Aryan"  er bara alþjóðlegt orð yfir hvíta kynstofninn

það segir t.d. ekkert til um það

hvort að fólkið sé gott eða slæmt:

https://www.youtube.com/watch?time_continue=6&v=GuogZYJMyIM

----------------------------------------------------------------

Það er ekket að því að vilja standa vörð um hvíta kynstofninnn,

það er ekki þar með sagt að fólk þurfi þá að fara

að berja á öðrum kynstofnum.

Jón Þórhallsson, 17.8.2018 kl. 19:51

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar flott grein. Fyrir ekki löngu þá voru Kaliforníu menn að hóta því að ganga í sambandinu en ég hélt að þeir gætu það ekki eins og þú segir í greininni. 

Valdimar Samúelsson, 17.8.2018 kl. 20:10

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ja Bjarne.

Dagblöðin líkja forsetanum við Hitler og Stalín fyrir það eitt að líka ekki við þau og við fréttamenn þeirra og ýmissa annarra fjölmiðla.

Almenningur trúir ekki lengur því sem blöðin skrifa því falskar fréttir er það þegar blöðin skrifa og prenta að Trump hefði fjarlægt brjóstmynd af Martin Luther King úr Hvíta húsinu. Það gerði hann ekki. Það voru lygar úr fréttamönnum blaðanna.

Framburður James Comey hjá FBI staðfesti að forsetinn hafði ekki fundað með "útsendurum" rússnesku leyniþjónustunnar, eins og stórblaðið New York Times hafði skrifað.

Forseti Rússlands neitaði í viðtali við NBC að hafa skaðlegt efni í fórum sínum um bandaríska forsetann, þrátt fyrir að NBC hefði áður sagt og skrifað að Pútín hefði ekki neitað því að hafa slíkar upplýsingar.

Listinn af svona fölskum fréttum blaða og fjölmiðla er endalaus og það er því ekki undarlegt að bandarískur almenningur trúi ekki lengur á starfsemi dagblaða og fjölmiðla og að forsetinn sjálfur segi að þau pressan sé óvinur fólksins.

Að ljúga og falsa staðreyndir og birta milljónir af gerræðislegum ásökunum á hendur þjóðkjörnum forseta er einmitt það að vera óvinur fólksins.

Ekkert má gerast í landinu án þess að fréttamenn dagblaða og fjölmiðla tryllist og kenni forsetanum um morð, slys, ófarir og svik, næstum því hvar sem slíkt gerist. Kenna honum um með hreinum lygum, aðdróttunum og falsi. Þessi listi hér er til dæmis algerlega gerræðislegt að sjá. Þetta á ekkert skylt við fjölmiðlun. Þetta eru rusl-fjölmiðlar af verstu sort.

Ef ég ætti hlutabréf í fjölmiðli þá myndi ég selja hann strax ef það er þá yfirhöfuð hægt að selja þannig hluti. Bæði ritstjórar og fréttamenn halda greinilega að peningar til rekstursins og peningar almennings til kaupa á efni fjölmiðla vaxi á trjánum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2018 kl. 20:22

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Valdimar.

Ha ha ha ha. Þar sem Kalifornía tekur til sín einn þriðja hluta allra þeirra fjármuna sem hið opinbera í öllum Bandaríkjunum eyðir í aðstoð til fólks sem býr við bág kjör (Demókratar hafa fyllt fylkið upp með ólöglegum innflytjendum frá Mexíkó til að breyta kjörsskránni varanlega sér í hag) þá er þetta frekar hlægilegt að heyra, fyrir utan vanþekkinguna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2018 kl. 20:30

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jón. Forsetinn er forseti allra Bandaríkjamanna óháð húðlit, kyni og skoðunum. Reyndar er flygi bandarískra blökkumanna við Donald J. Trump að aukast en ekki að minnka.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2018 kl. 20:47

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Helsta hlutverk fjölmiðla er að upplýsa almenning um það sem er að gerast. Um hluti eins og til dæmis það sem gerðist í dag:

1. Deutsche Telekom dregur sig út úr Íran.

2. Hið þýska ríkisrekna fyrirtæki á sviði járnbrauta, Deutsche Bahn, dregur sig úr út Íran.

Bæði þessi fyrirtæki draga sig út úr Íran vegna þess að Evrópusambandið og Þýskaland hafa enga burði til að standa á eigin fótum í heiminum og geta því ekki annað gert en að fylgja Bandaríkjunum að málum vegna kjarnorkumála í Íran. ESB getur ekki verið án viðskipta við Bandaríkin, en Bandaríkin geta hins vegar þrifist án viðskipta við ESB.

Svo tala sumir um "einangrun" Bandaríkjanna, þegar ljóst er að einangrun bíður frekar þeirra sem geta ekki staðið á eigin fótum í heiminum.

Bandaríkin geta ekki einu sinni tekið ákvörðun um innkaup á banönum án þess að setja heimsmarkaðinn fyrir banana í uppnám. Slíkt er vægi þeirra í heiminum og það er einfaldlega ekki hægt að einangra. Allt einangrunartal um Bandaríkin er einungis sprenghlægileg firra svo kallaðra fjölmiðla.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.8.2018 kl. 22:45

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er rétt hjá þér Gunnar, það er nálykt af þessum samsöng bandarísku dagblaðanna. Dálítið eins og umkringdur her að kasta síðasta kjötlærinu út fyrir virkisvegginn. 

Allt tal um að Trump sé að æsa til illinda gegn þeim er bara til að breiða yfir hvernig fjölmiðlar hafa lagst á eitt við að rakka hann niður. Það er ekki einu sinni hægt að tala um hlutfall neikvæðra frétta um karlinn því allar fréttir af honum eru neikvæðar. Og þegar ekkert er að frétta þá er bara spunnið út í eitt. 

Eflaust má margt segja um Trump en eitt er á hreinu - hann kann öll klækjabrögð fjölmiðlanna og svarar í sömu mynt. Fjölmiðlar sem eru vanir að stýra umræðunni eiga erfitt með að þola að aðrir taki orðið af þeim. 

Ragnhildur Kolka, 18.8.2018 kl. 17:00

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ragnhildur.

Skondið þetta með (i) "eflaust má margt segja um Trump" plús (ii) "hann var ekki minn fyrsti kostur" og svo kemur yfirleitt (iii) "en". Allt þetta sagði og segir fólk enn og sem kaus hann, en þorði ekki að segja frá því vegna þess að fjölmiðlar reyna að vera það sem aðallinn var: smekksdómari og handhafi leyfisveitinga um hvaða skoðanir má hafa og hvaða smekk má þola.

Vandamálið með breytingar er ávallt það að þær eru breytingar. Breytingar þýða læti og "umdeilur" og allt það sem breytingar þýða. Engar breytingar þýða engin læti og engan mishljóm. Að vera stilltur og sitja kjurr á stól í miðju herbergi er ekki beint agentúr fyrir breytingar. Kjósendur kusu breytingar.

Það er til dæmis áfall fyrir pukurstjórnmálamenn að Trump skuli keyra utanríkispólitík Bandaríkjanna upphátt, en ekki fyrir luktum dyrum. Það tekur glansinn og glamúrinn frá mörgum.

Og já, það er nú það:  hvenær akkúrat fjölmiðlar drápu pólitíska viðtalið við stjórnmálamenn, man ég ekki lengur því það er svo langt síðan. En þeir drápu það - og sjálfa sig í leiðinni. Það tekur því ekki að opna fyrir þá lengur.

Stalín-tímabili fjölmiðla er lokið. Öngþveiti hefur tekið við og það er alls ekki slæmt. Við þurfum ekki á Stalínistískum fjölmiðlaveldum að halda.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 18.8.2018 kl. 22:22

10 Smámynd: Örn Einar Hansen

Alveg rétt hjá þér, Gunnar. Trump hefði ekki verið minn fyrsti kostur ... en. Maðurinn segir það sem rétt er, og hann vogar að segja það.

Hvað eiga Putin og Trump sameiginlegt? ekkert, annað en að þeir eru báðir ljóshærðir og bláeygðir. Báðir taka í hendur hins, skaka, brosa og segja eitthvað jákvætt ... það er í verkahring þeirra sem leiðtoga þjóðarinnar. Þegar þeir síðan koma heim, er allt annað á teningnum. Þeir hafa lítið sem ekkert sameiginlegt.

En fjölmiðlar jagast á þessu, með hitlersæskuna, aría bullið og annað eins. Ég bý hér í Svíþjóð og get ekki gengið á götum úti án þess að það sér hrækt á mig. Fyrir hvað? Ég er nákvæmlega "enginn", en bara ljóshærður og bláeygður ... svona hefur maður alið upp á hatri gegn okkur, að fólk hrækir á mig á götum úti ... hefurðu einhvern tíma haft ókunnugt fólk, að hrækja á þig á götunni? Geturðu ímyndað þér, hvaða örvinlan fylgir? Ég vil ekki ganga úti, berskjaldaður ... ég er ljóshærður og bláeygður, ekkert annað ... nákvæmlega enginn af mínu fólki átti aðild að síðari heimstyrjöldinni. Þvert á móti, ef afi minn hefði ekki fengið hæli á Íslandi ... væri ég ekki til. Þarf ég að segja meir? Þarf ég að fara í saumana á málinu?

Svona slæmt er þetta... og hvað tekur við?

Örn Einar Hansen, 18.8.2018 kl. 23:43

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne.

Já við erum vondir. Svakalega vondir. Þetta er því miður að verða hárrétt hjá þér. Mér þykir ákaflega leitt hvernig Svíþjóð er að enda. Ég bjó þar frá 80-82 og kom þar oft á árunum frá 1985 til 2010. Manni hryllir við þróuninni og bara skilur ekki hvað hin pólitíska stétt í landinu er að hugsa. Að halda að þetta geti gengið svona lengur er að verða geðbilun. Þetta endar annaðhvort með þvinguðu þjóðarsjálfsmorði eða borgarastyrjöld. Að drekkja sér í þágu annarra er geðbilun. Það að Svíum finnist þeir vera orðið útlendingar í sínu eigin landi er blikkandi rautt merki um svik stjórnmálastéttarinnar við þjóðina; þjóðsvik, ekkert minna en það. Ef ekkert verður að gert er það aðskilnaðarstefna sem bíður sem stjórnarfar í Svíþjóð. Og vel menntaðar sænskar konur flýja landið sitt unnvörpum. Ljóshærðar, skollitaðar og dökkhærðar. Bara pakka saman og fara. Búnar að fá nóg.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.8.2018 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband