Leita í fréttum mbl.is

Lygaferð Pútíns að enda á vegg sanninda

Klesst

Til að gera langt mál stutt þá vísa ég á endursögn Varðbergs um þá frétt í gær að sannleiksást Pútíns Rússlandsforseta í Skrípalmálinu hafi nú klesst á vegg. Reyndar segi ég sjálfur að allt frá byrjun alls hans ferils, hafi sú ást verið komin langt fram yfir síðasta söludag. Hér má líka sjá frétt Telegraph um málið

Næst

Leiðari Morgunblaðsins vitnar í Václav Klaus annan forseta Tékkneska lýðveldisins. Sá segir að Trump sé að gera það sem þarf að gera. Svo kemur þetta hjá honum eins og hjá flestum á hinum bónuðu gólfum:

"Klaus segir að Trump sé sennilega ekki maður sem hann myndi sækjast eftir að fá sér kaffibolla eða bjórkollu með. „Stíll hans og nálgun er ekki endilega að mínum smekk. En stefnumál hans og skilningur á stöðunni var nauðsyn fyrir Bandaríkin og reyndar heiminn allan."

Sem sagt

Við hér í húsinu erum að kafna út skít, klósettið er stoppað, vaskurinn flæðir yfir og amma er hætt að geta andað því lyktin er svo hrikaleg. Píparinn er kominn, við verðum þakklát, en við getum svo sannarlega ekki drukkið með honum hvorki kaffi né bjór

Ef um Pútín hefði verið að ræða þá kæmi rullan um að "mér líkar ekki pólitík hans" en hann er svo geðþekkur maður að við dönsum samt valsinn með honum. Pútín er of landfræðilega nálægur til að fá ekki það kaffi sem Trump er neitað um, vegna þess að píparinn Trump lyktar

Hér er sama gamla evrópska friðþægingartuggan á ferð og 1930. Staðreyndin er auðvitað sú að Rússlandsforseti, sama hvert nafn hans er, mun alltaf taka allt það sem Vesturlönd leyfa honum að taka. Og inn á milli mun hann taka það með vopnum. Svo klárast kakan, kaffið er tekið af borðunum og sovétið dekkar það til með sínu stelli. Eru menn fæddir í gær, eða hvað?

Ekki minn fyrsti valkostur, en..

Um daginn kom Bandaríkjamaður í heimsókn á góðan stað og spurði hvert álit Íslendinga væri á Trump. Þá var honum sögð frá persónulegri skoðun einnar persónu: Sú sagði "hann er að gera margt gott fyrir Bandaríkin, en ég er ekki hrifinn af persónu hans" (lyktinni)

Daginn eftir sagði ég við Íslendinginn: engin persóna sem getur gert það sem Trump er að gera, getur verið það sem öllum fellur við. Það er ekki hægt. Enginn með þessa hæfileika, getu og orku mun falla í geð þeirra sem vilja fá verkgetu píparans en ekki lyktina

Ég myndi drekka kaffi með Trump alla daga ef ég gæti. Svona elítu-snobb þoli ég ekki

Svíþjóðarklessan

Enn ein Svíþjóðar-heimtunin birtist sem grein blaðamanns í Mogganum í dag. Sama er á ferðinni þar. Ekkert er að í Svíþjóð og desímaltölur þínar passa ekki. Þar náði ég þér

Allir vita að Svíþjóð er ein klessa. Landið er óþekkjanlegt miðað við 1980. Landið stiknar af hinni gömlu nasistapólitík sænskra Sósíaldemókrata, sem eins og sósíaldemókratískur rúmfélagi þeirra, gorgonsólaður borgarstjórinn í Reykjavík, rústuðu öllum meiriháttar borgum og bæjum Svíþjóðar með eyðileggingu og illvilja. Þar hefur flestu verið tortímt og þar er hið nakta torg veraldarhyggjunnar svo nakið að fólk þarf að loka sig inni á heimilum sínum til að spyrja hvað klukkan sé. Trúmal, pólitík eða allt það sem með skoðanir hefur að gera, er bannað á hinum nöktu torgum Svíþjóðar. Þar er það RÍKIÐ sem er guð. Til fjandans með þennan nýmarxisma, segi ég bara. Svona naktir ryðdallatogarar sökkva þegar á þá reynir. Svíþjóð er að sökkva og slíkt kemur aldrei fram í gagnabönkum sænsku hagstofunnar, þvi ef það gerði það þá væri heiminn ekki eins klesstur og hann varð 2008, - af öllum fjandans sérfræðingunum sem klessu honum: Jáh, það voru þeir!

Næstum allt það meginland Evrópu sem Htiler hernam ekki, var pró-nazi, þ.e. aðhylltist stefnu Hitlers, ljóst og leynt. Öll Íbería, Sviss, Svíþjóð og svo Tyrkland og stór hluti Norður-Afríku og Mið-austurlanda. Þessi Evrópa er enn sú sama og þá. Og hún er að staðfestast í gömlum gloríum í dag. Þar er flest enn vont og ekki gott. Jafnvel Þýskaland er að bakka inn í gamla og mislita fjóshauginn sinn á ný. Það er byrjað á að gefa út diktöt til hægri og vinstri á ný um; efnahagsmál, peningamál, skuldamál, stjórnarfar og hvaða skoðanir löndum leyfist að hafa eða ekki. Hver á þá að vera Píparinn þegar salernið fyllist?

Já Winston var kallaður öllum illum nöfnum og er það enn. Þannig er það með þá sem brjóta samhljóminn í heimi taparanna. Evrópa er meginland taparanna

Hmpf! Hvort er það. Gott eða slæmt?

Afstæðiskenning meginlands Evrópu, Rússlands og Kína um muninn á Guði (gott/rétt) og Djöflinum (rangt/slæmt), er að kála þeim öllum. Og sú gamla kálun 20. aldar hefur verið áratugi í smíðum. Ekkert getur stoppað afstæðiskenningar landmassa Evra-Asíu lengur. Hið opinbera torg er nakið. Þið vitið hvað kemur næst

Fyrri færsla

Bretland hefur skellt á Evrópusambandið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sagan sem þessir kumpánar buðu upp á var ekki aðeins ósannfærandi, hún var hreinlega óskiljanleg. Sagan var bein ögrun við vitsmuni vesturlandbúa. Pútin hlýtur að hafa velst um af hlátri þegar viðtalið var endurflutt á öllum  heimsins sjónvarpsstöðvum.

Hvað varðar Trump, þá finnst mér hann ekki sérlega geðfeldur karakter, en ég er nógu gömul til að vita að útlit og framkoma fólks segir lítið um innri mann eða hvaða hæfileikum hann er gæddur.

Fjölmiðlar klöppuðu hann upp til að bregða fæti fyrir aðra frambjóðendur  repúblikana, en hann snéri á þá. Hann fjasar og masar en hann heldur sínu striki og nú eru fjölmiðlamenn vopnlausri gegn honum.

Ragnhildur Kolka, 27.9.2018 kl. 17:24

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Tja Ragnhildur -

"that these dead shall not have died in vain - that this nation, under God, shall have a new birth of freedom - and that government of the people, by the people, for the people, shall not perish from the earth"

Þetta er það: ríkisstjórn fólksins.

Trump hafði aldrei verið stjórnmálamaður. Svo við hverju bjuggust menn. Bjuggust þeir við vel talandi Obama Swift?

Fáir börðust harðar fyrir breytingunum á "U.S. Community Reinvestment Act 1995" en stjórnmálamaðurinn Barack Obama frá Chicago, þar sem undirmálslán skyldu tryggð af Fannie Mae og Freddie Mac. Árangurinn þekkja flestir. 

Ég er ekki viss um að Linclon hefði þótt mikið til hinnar pólitísku stéttar Washingtonborgar úti í mýri koma í dag. Þar sem Clinton- og Obama hjónin starfrækja útbú sín sem pólitíska-fjárfestingarbanka samkvæmt óðalshefðum.

Er ansi hæddur um að Lincoln hefði kastað upp.

Svo eru það lærisveinar trésmiðsins. Sjómenn og þannig lýður. Ég hlustaði til dæmis á Gústa guðsmann á torginu þegar ég var polli og varð ekki meint af. Það þótti ekki beint fínt þá. En núna þykir það hins vegar frekar fínt.

Blaðamenn, þ.e. "fjölmiðlar"; Ætti maður að hlusta á þá núna? Finnst einhverjum það virkilega lengur? - eftir allt sem á undan er gengið, og fram af flestum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2018 kl. 22:34

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú þarft ekki að snúa upp á handleggina á mér til að sannfæra mig um að Trump er val fólksins. Vissulega þurfti fólkið á honum að halda því enginn annar var tilbúinn að standa með því. Hann er rétt kjörinn. Trump féll bara ekki að þeirri ímynd sem élítan telur viðeigandi enda ekki ataður þeirri snákaolíu sem hún á að venjast.

Það sem vill hins vegar gleymast er að samkvæmt stjórnarskrá BNA er sérhver réttborinn Bandaríkjamaður kjörgengur til starfs forseta.

Ragnhildur Kolka, 27.9.2018 kl. 23:36

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Taldi nú litla þörf á neinum verulegum pyntingum hér, heh, Ragnhildur.

En stundum er gott að rifja þetta upp, svona með sjálfum sér, á þessum síðustu tímum ný-miðalda.

Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2018 kl. 23:58

5 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta eru undarlegir hugarórar eins og venjulega.

Ég veit ekki til að Putin hafi tekið nokkurn skapaðann hlut frá vesturlöndum,og sennilega er ekkert á vesturlöndum sem hann ágirnist.

Það eina sem hann og aðrir Rússar vilja er að lifa í friði og losna við þessar stöðugu ofsóknir sem þeir verða fyrir. Ástæðan fyrir þessum ofsóknum er alltaf sú sama,gríðarlegur auður Rússlands.

Það er sama hvort maðurinn heitir Hitler eða Trump,þeir eru reknir áfram af sömu ágirndinni,sama rasismanum.

Þú kannt að halda í einfeldni þinni að þú græðir eitthvað á þessu,en þessi auður er ekki merktur þér. Husunarlaust vafrar þú áfram í lífinu og kyndir undir ófriði sem hefur staðið í áratugi og valdið okkur öllum gríðarlegu tjóni. 

Við borgum kostnaðinn við þessar herferðir,oligarkarnir hiða auðinn ef einhver ávinningur verður.

Þó að Trump hafi "very very big brain" eins og hann segir,er hann í besta fali asni sem skilur ekki ástæðuna fyrir viðskiftahalla Bandaríkjanna og fer nú með ófriði á hendur öðrum þjóðum til að reyna að lækna þetta innanmein.Það verður þó að gæta réttlætis og segja að forverar hans voru alveg jafn vitlausir og hann,ef ekki verri.

Í 35 ár hafa Bandaríkjamenn lifað um efni fram,og enn hefur ekki komið fram stórnmálamaður sem hefur þorað að segja þjóðinni frá því. Þjóðarbúið hefur dragnast áfram á lántökum og seðlaprentun. Samfélagið hefur drabbast niður í skítinn. Sameignir þjóðarinnar eru að hruni komnar.

Svar Trumps var að auka gegndarlausann fjárausturinn í vopnammafíuna og minnka enn fjármagn til að endurbæta innviði landsins.

Trump þorir heldur ekki að segja fólki þetta og reynr nú að kúga penng út úr öðrum þjóðumm til að laga meinið. Þetta mun ekki takast,meira að segja Evrópskir stjórnmálamenn sem hafa í áratugi verið vilalaus handbendi Bandaríkjamafíunnar hafa nú fengið nóg og reynan nú feimnislega að feta sig í átt til sjálfstæðis.

Ég er samt ekki bjartsýnn á þetta af því að sagan kennir okkur að Evrópubúar eru ófærir um að snúast til varnar gegn ofbeldi. 

Síðast björguðu Sovétmenn þeim frá Nasistum. Rússar eru hinsvegar ekki tilbúnir að úthella blóði í þetta skifti fyrir hönd Evrópu. Pútin sagði þeim beint út að þeir yrðu að finna út úr þessu sjálfir,þegar Merkel og Macron komu vælandi til Moskvu.

Gallinn er að stjórnmálamenn okkar vesturlandabúa eru búnir að búa sér til gerviveröld sem þeir hafast við í. Nú passar gerfiveröldin ekki lengur við raunheiminn og þá fjarar undan.

Óþarflega margir lifa með þeim í þessum gerfiheimi ,eins og dæmin sanna  

Það er ekki gott þegar svona stórþjóð eins og US er stjórnað af ofvöxnu barni. Það bætir ekki úr skák að Frakklandi er líka stjórnað af samskonar barni, Þýskalandi af útbrunnum stjórnmálamanni sem er að missa völdin og Bretlandi af ráðalausum og vanhæfum raðlygara.

Eina sem hefur bjargað okkur frá tortímingu er ótrúlegt langlundargeð og sáttfýsi Putins.Það er með ólíkindum hvað hann sýnir mikla stillingu. 

Þetta er stórhættulegt ástand,börn eiga ekki að fara með eld. 

Þó að Kim Il Jung sé skrítinn er hann allt í einu farinn að virka frekar eðlilegur í þessumm samanburði. Ég treysti honum orðið betur fyrir kjarnorkuvopnum en Trump. Þó Kim hafi lengstum aktað eins og einhverskonar vanviti virðist vera að hann hafi tekið sig á og ber nú höfuð og herðar yfir Trump hvað alla framgöngu og vitsmuni snertir.

Ég er viss um að Kim mundi ekki  gefa út í dag að hann hafi "very very big brain". hann hefði kannski getað sagt svona fyrir 5 árum.

Stjórnmálamenn um allann heim gera sér grein fyrir að þetta aumingja barn heldur um stærsta kjarnorkuvopnatakka heims og þeirra eina leið er  að reyna tala róandi við hann eins og geðsjúkling til að hann sprengi ekki allt dótið í loft upp.

Ég var einn af þeim sem gladdist þegar Trump ver kosinn forseti. Það hvarflaði hreinlega ekki að mér að hann væri svona brenglaður.Hann virtist einhvernveginn betri kostur heldur en Hillary ,sem er forhertur stríðsglæpamaður og þjófur.   Ég er ekki lengur viss.

Mér þykir vandséð að hún hefði verið verri en þetta rekald sem við höfum nú í embætti.

Borgþór Jónsson, 28.9.2018 kl. 00:47

6 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þú munt seint eða aldrei vita Gunnar, af hvað rótum þetta Skripal mál er sprottið. Leyniþjónustur framleiða sönnunargögn í svona málum eftir pöntunum. Að taka afstöðu eykur bara á skrípaleikin og þjónar ekki hagsmunum neis nema illvirkjanna sem við vitum ekki hverjir eru.

Guðmundur Jónsson, 28.9.2018 kl. 09:14

7 Smámynd: Borgþór Jónsson

http://img.amur.info/res/news/7303/9ffc109b97e3bcf4ea73c6997e84de88.jpg

Hérna fyrir ofan er linkur á mynd þar sem nemendur í Rokovkossky herskólans leggja blómsveig að minningarvegg um fallnar hetjur.

Fyrir framan styttuna af Rokovkossky ,stofnanda skólans, logar hinn eilífi eldur sem er ætlað að halda minningu þeirra á lofti um eilífð.

Slík minnismerki eru mörg í Rússlandi og reyndar eru þau víða um heim.

Til að komast á þennan vegg þarf að uppfylla ýmis skilyrði ,meðal annars að viðkomandi hafi fengið gullstjörnuna sem fylgir nafngiftinni "Hetja Rússlannds"

En skilyrði númer eitt er samt að viðkomandi þarf að vera dauður.Ég hef líka grun um að viðkomandi þurfi líka að hafa látið lífið við skyldustörf ,en er samt ekki viss.

 Vinstra megin á veggnum eru þeir nemmendur skólans sem hlutu þessa upphefð á Sovéttímanum,en hægra megin þeir sem fengu hana í tíð núverandi Rússlands.

Bellingcat fær nafnið Anatoly Vladiommirovich Chepiga af þessum vegg,sem þýðir einfaldlega að hann er dauður,og hefur verið það um nokkuð skeið.Ásæðan fyrir að þessi viðurkenning sem hann fékk er "scrouded in secrecy" eins og Bellingcat orðar það,er einfaldlega sú að maðurinn var ekki á lífi þegar hann fékk hana. Honum var því um megn að veita viðurkenningunni viðtöku.

Þegar einhverjum er veitt þessi viðurkenning "posthuman" fer fram látlaus athöfn þar sem ekkjunni eða nánasta ættingja er afhent gullstjarnan ásamt meðfylgjandi skjölum. Slík athöfn er "scrouded in secrecy" eins og Bellingcat orðar það.

Líklega er frægasti maður sem hefur fengið Gullstjörnuna,maður að nafni Alexander Prokhorenko. Hann kallaði yfir sig loftárás eigin flughers til að lenda ekki í klóm Bandarískra málaliða í Sýrlandi. Það eru engar myndir eða video frá því þegar ekkjunni var afhent þessi viðurkenning. Hún er afhent í kyrrþey.

Með orðum Bellincat  " It is shrouded in secrecy"

Borgþór Jónsson, 28.9.2018 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband