Fimmtudagur, 8. nóvember 2018
Evrópa ætti að stóla á hernaðarmátt Pútíns
Þar sem stærsti hluti meginlands Evrópu (ESB) stólar á orku frá Rússlandi, er þá ekki eðlilegt að Evrópusambandið stóli einnig á Rússland þegar að hervörnum kemur? Genetískt harðræðisstjórnarfar sameinar Rússland og Evrópusambandið um sama málstaðinn; að halda nýlenduveldi sínu, sem á fagmáli kallast stuðarasvæði (e. buffer zone). Hinn svo kallaði "innri markaður" og evran er stuðarasvæði Þýskalands og einnig Frakklands og hefur hann ekkert með efnahagsmál að gera, nema á auglýsingaskiltum fyrir nytsama kjána. Stjórnarfarið er jú að verða það sama í báðum stuðarasvæðum ESB og Rússlands, og það gengur út á að verjast sjálfsákvörðunarrétti þjóða, með öllum tiltækum ráðum. Kosningar í Rússlandi og Evrópusambandinu eru farnar að líkjast það mikið að bráðum verður hægt að nota sameiginlegan her til að halda kjörstöðum og flokkum frá því að spillast af vestrænu lýðræði. Við skulum ekki tala um bandarískar kosningar og langa blaðamannafundi með þjóðkjörnum forseta fólksins. Slíkt væri nú aldeilis voðalegt ástand fyrir ESB, þar sem enginn er kjörinn
Ákall Emmanuel Macrons ESB-bankaforseta Frakklands um Evrópusambandsher til meðal annars að "verjast Bandaríkjunum"(klikk gong zapp) hlýtur að kalla á spurningar frá alþjóðasamfélagi geðlæknisfræða í co2 gasfræðum (COII). Eins og til dæmis þeirrar spurningar hvers vegna fyrrum forseti Frakklands sagði landið úr þeim eina Evrópuher sem meginland taparanna hafði; þ.e. NATO. Þáverandi franski forsetinn sagði að Bandaríkin myndu ekki koma Frakklandi né Evrópu til bjargar og hvatti með úrsögninni önnur lönd í NATO til að fylgja sér út. En í stað þess að fylgja Frakklandi út, þá trylltust þau úr ótta og það kostaði Bandaríkin endalausan stríðresktur í Víetnam að sannfæra Evrópu um að þau yfirgæfu ekki vini sína, sama hversu illa gengi, og að þau væru meira að segja fær um að glíma risaglímur á tvennum órafjarlægum vígstöðvum, samtímis. Á fínu máli fór Víetnamstríðið því að snúast um trúverðugleika Bandaríkjanna umfram allt annað. Langt umfram strategísk sjónarmið og það var DeGaulle að kenna. Evrópa heimtaði staðfastan bandamann sem verndað gæti meginland taparanna
Frá því að Donald J. Trump kom til valda hafa Bandaríkin aukið fjárframlag sitt til varnarmála í Evrópu úr 789 milljón dölum fyrir Obama-árið 2016, upp í 4,7 milljarða dala á þessu ári og á næsta ári verður það 6,3 milljarðar dala. En ekki nóg með það þá ætla Bandaríkin að eyða 400 milljörðum dala í að endurnýja þá kjarnorkuvopnaregnhlíf sem Evrópa hvílir undir. En hér má auðvitað koma ESB undir rússnesku regnhlífina líka. Hví ekki það, hljóta menn að spyrja sig að, nú þegar þýsk stjórnmál eru að sigla Evrópu inn í enn eitt þýska brjálæðiskastið, sem landið tekur á Evrópu á cirka 50 ára fresti. Þýskaland er þekkt sem mesta geðbilunarríki mannkynssögunnar ásamt Rússlandi. Þau hljóta bara að fara að smella saman á ný
Hið svo kallaða alþjóðlega rafræna skilaboða- og pantanakerfi fyrir greiðslur á milli banka, SWIFT, hefur nú kastað handklæðinu í hringinn í aðalstöðvum sínum í Belgíu, og mun útloka skilaboð um yfirfærslupantanir til og frá mörgum írönskum bönkum að kröfu Bandaríkjanna, sem eru að reyna að koma í veg fyrir að íslamska klerkaveldið komi sér upp kjarnorkuvopnum. En þá bregður svo við að hinn hálf-rússneski orkuneytandi, ESB, með fyrrverandi sósíaldemókratískan Schröder við kranann í Moskvu, segist ætla að koma sér upp intra-kerfi (já flest heitir intra-eitthvað í lokuðum harðstjórnarríkjum) sem á að annast greiðslur á milli Evrópusambandsins og Íran og þannig koma í veg fyrir að Bandaríkin geti lokað á leið Brussels inn í klerkaveldið. En stóra vandamálið er það að ekkert ESB-ríki þorir að hýsa greiðslukerfið af ótta við þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna. Hvorki Frakkland sem heimtar ESB-her til að verjast Bandaríkjunum, né Þýskaland á leið inn í sitt gamla genetíska hel, þora því
Jamen, dét er jo bare dejligt, simpelthen dejligt!
Fyrri færsla
Forseti Frakklands alvarlega veikur á geði ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 7. nóvember 2018
Forseti Frakklands alvarlega veikur á geði ?
Eitt lag enn: Hér má hlusta á hana bresku Jan Johnston í teknó-trance-laginu "ég kalla nafn þitt". Þetta er frá árinu 1999, eða á fyrstu árum teknó-poppsins á netinu. Þá sögðu "sérfræðingar" að heimurinn myndi hætta að virka á miðnætti gamlársdagskvölds. Þarna sló Davíð Oddsson taktinn óaðfinnanlega öruggt og fast sem forsætisráðherra Íslands og Sjálfstæðisflokkurinn var afar vinsæll stjórnmálaflokkur í hans öruggu og takföstu höndum. Í dag segja "sérfræðingar" hins vegar að heimurinn sé að farast í tölvulíkönum yfir lofttegund og Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið óvinsælli flokkur né með hug- og duglausari forystu en nú - og Ísland orðið háskattaland. Þetta helst auðvitað í hendur. Sem sagt: "ég kalla nafn þitt" frá 1999
****
FRAKKLAND
Ég skrifaði um Emmanuel Macron forseta Frakklands í síðustu viku og sagði frá því sem sagt er um heilsufar þessa óvinsæla manns sem virðist vera einhverskonar ofvaxið barn og sem aðeins 20 prósent Frakka eru ánægðir með
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 tilkynnti svo fréttastofan Agence France-Presse (AFP) að franski forsetinn segi að "Evrópa" (lesist Evrópusambandið) verði að byggja upp her til að verjast Rússlandi, Kína og (já hér kemur það) - já verjast Bandaríkjunum! Kva?
"We have to protect ourselves with respect to China, Russia and even the United States of America," Macron told Europe 1 radio
Þetta sagði Emmanuel Macron í tilefni þess að á sunnudaginn eru hundrað ár liðin frá því að Fyrri heimsstyrjöldinni lauk og var forsetinn staddur þar sem Vesturvígstöðvarnar voru í norðaustur Frakklandi, en þar gáfu 15.034 bandarískir hermenn líf sitt í annarri lotu orrustunnar um Somme, sem stóð yfir frá 8. ágúst til 11. nóvember 1918. Þar létu þeir líf sitt við að verja Frakkland gegn útþenslustefnu þýska keisaraveldisins
Alls létu 116 þúsund bandarískir hermenn lífið við að verja Frakkaland í þeirri styrjöld. Hin nýlegu Bandaríki Norður-Ameríku sendu þarna tvær milljónir manna frá Nýja heiminum yfir í Gamla heiminn. Án þessa liðsafla hefði Frakkland varla orðið frjálst land á ný
En það voru dýr mistök að fara ekki alla leið til Berlínar og hernema ekki Þýskaland og að fylgjast ekki í 100 ár með því að það kyngdi Weimarlýðveldinu, eins og John J. Pershing hershöfðingi Bandaríkjahers á Vesturvígstöðvunum vildi. Því stuttu síðar kom sósíalistinn Aldolf Hitler kanslari og bakkaði Þýskalandi út úr lýðveldi og inn í imperíal heimsveldi á ný, því Hitler hataði þjóðríkið, þjóðir og lýðveldi þeirra sem stofnanir
Frá og með 1945 hafa Bandaríkin varðveitt friðinn á meginlandi Evrópu, næstum alfarið fyrir eigin reikning og eru þar enn með hátt í 70 þúsund manns. Og nú segir Emmanuel Macron forseti þessa sama Frakklands að hann þurfi öflugan her til að verjast Bandaríkjunum! Hvað er Frakkland þá að gera í NATO, spyr ég
Ekki skal neinn undra að svo kallaðir "greinendur" velti geðheilsufari franska forsetans fyrir sér. Það hlýtur að verða virkilega erfitt fyrir Macron að taka á móti Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna á sunnudag, nema að hann sé maður laus við samvisku. Gleðistund verður það varla. Það þarf engan greinanda til að segja mér að franski forsetinn á við djúpstæð geðræn vandamál að stríða
Fyrri færsla
Skáldaði upp sögu um að dómarinn hefði nauðgað sér
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 3. nóvember 2018
Skáldaði upp sögu um að dómarinn hefði nauðgað sér
Bandaríska konan sem tilkynnti að Brett Kavanaugh dómari hefði nauðgað sér, mörgum sinnum, hefur játað að um skáldskap var að ræða. Hún sendi þessar ásakanir í bréfi til dómsmálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings þar sem Kamala Harris demókrati kynnti það. Konan er nú fundin og hefur játað að um skáldskap var að ræða sem styðja átti demókratavætt opinbert skrílsníðið gegn dómaranum
Svo kölluðum hatursglæpum hefur farið mjög svo fækkandi í Bandaríkjunum allar götur frá 1996. FBI byrjaði að skrásetja þannig afbrot árið 1992. Miðað við 1996 hefur þessum glæpum fækkað um 30 prósent, fram til ársins 2016. Bráðabrigðatölur yfir síðasta ár sýna litla breytingu á milli áranna 2016 og 2017. Árið 2001 varð þó tímabundin aukning, það eina ár, vegna árásar íslamista á Bandaríkin. En þeir eru darling vinstrimanna
Hatursglæpir eru þó aðeins 3,7 prósent af öllum ofbeldisglæpum í landinu. Stjórnmálagungur dagsins sem líður í dag eru nú farnar að eyða meira af pólitísku skotsilfri sínu í að agítera á þeim vettvangi, en þeir eyða í að herða löggæslu sem tekur á öllu hinu, eins og til dæmis innbrotum, þjófnaði og skrílslátum
Það sem hins vegar er breytt í dag miðað við árið 1996, er það að fallöxi vinstrisinnaðra og nýfranskra byltingarsinna er orðin rafræn og stafræn. Gapastokkaveldi vinstrimanna og ljónagryfjuveldi þeirra á Coloseumleikvangi samfélagsmiða er komið með ratsjárkerfi sem aðeins er einu skrefinu frá því að vera hugsanaeftirlitsmiðlar. Þar stundar vinstriskríllinn aftökur með rafrænum fallöxum, þannig að höfuðin rúlla á meðan lýðurinn klappar, þar til röðin kemur að þeim sjálfum, er þeir óvart sýna andbyltingarlegar hugsanir og nota kannski tvö til þrjú orð sem eru tvo millimetra vitlausumegin við rétttrúnað hverrar vinstri stundarinnar sem líður, og þar undir heyra loftslagsmálin líka, sem eru orðin skrílsstjórnmálhreyfing til tortímingar kapítalisma. Þangað inn hafa flest veikgeðja fífl líðandi stundar látið lokka sig og bíða aftöku, er þeir sjá öll gömlu gúlögin þar inni og vilja bakka út sem kúlakkar, en eru þá komnir með plastpoka yfir tóman hausinn og þar með einungis orðnir einn eitt dómgreindarskert allsherjarfíflið metoo
Fyrri færsla
AfD vonar að vinstra-miðjumorðið haldi áfram - eins og hjá xD [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 1. nóvember 2018
AfD vonar að vinstra-miðjumorðið haldi áfram - eins og hjá xD [u]
Mynd, vinsæll já: Frá Cruz-Trump baráttusamkomu í Texas í þar síðustu viku, sem hundrað þúsund manns reyndu að komast á, en aðeins var pláss fyrir 18 þúsund manns innandyra og 15 þúsund utandyra. Hafði margt af fólkinu beðið í kílómetralangri röð í næstum sólarhring
****
ÞÝSKALAND-ESB
Eins og vinstrimenn á Íslandi vona að sósíaldemókratísk puntudúkku-Schröder-forysta Sjálfstæðisflokksins haldi sjálfsmorðsför sinni með þann flokk áfram til heljar, þá vonar þýski AfD-flokkurinn að það verði uppþornuð Annegret Kramp-Karrenbauer sem taki við flokknum af Angelu Merkel, því hún myndi halda áfram með CDU-flokkinn sem íhaldslausan miðsossaflokk til heljar, eins og Merkel gerði, og sem er að verða búin með hann, og mun klára hann þar til ekkert er eftir nema gamla flóttaleiðin til Suður-Ameríku. En þagnað mun Merkel, öryggis síns vegna, verða að flýja er hún lætur af opinberum störfum, því enginn annar hefur eyðilagt Þýskaland jafn kyrfilega frá því að Adolf Hitler var kanslari, segir flokksforysta AfD. Reiðin vegna brostinna vona til pólitískrar forystu landsins hefur stigmagnast það mikið að allt fer að geta gerst á þýskri grund. Spasminn er að hlaða sig upp og ekkert nýtt leiðtogaefni fyrir CDU er á boðstólum fyrir kjósendur flokksins, nema meira af því sama. Kjósendur segja því bless. Elítur eru auðvitað aldrei í neinu sambandi við fólkið
FRAKKLAND-ESB
Nú spá greinendur í hvort að Emmanuel Macron Frakklandsforseti sé útbrunninn eða bara örmagna af þreytu, því hann neyðist til að taka sér fimm daga frí frá forsetastörfum vegna ofþreytu. Annað hvort er hann svona þreyttur eða þá að hann er útbrunninn, segja greinendur. Og ef hann er útbrunninn þá skiptir fimm daga slökkvistarf engu um þann bruna. Forsetinn missir sífellt oftar stjórn á skapi sínu. Það fór mikið um menn þegar Macron var staddur í Austur-Evrópu um daginn og lýsti því þar yfir að þjóðkjörnir leiðtogar Póllands og Ungverjalands væru úrhrök og lygarar sem lygju þjóðir sínar fullar og að stjórnmálaflokkar þeirra væru fjármagnaðir úr sjóðum ESB. Hvorki meira né minna
MEGINLAND TAPARANNA
En nú er Merkel sem sé pólitískt steindautt epli, en Pólland og Ungverjaland verða hins vegar áfram á lífi, og Stóra-Bretland er að segja bless, á meðan Þýskaland deyr og geldist að innan og forseti Frakklands endar kannski á kleppi, með ósjálfráða augnakippi Dreyfusar yfirlögregluforingja í spennitreyjunni gömlu. Hvað svo tekur við er ekki gott að segja. En áfram sökkva útflutningsmarkaðir Íslands með EES-bindingunni ömurlegu, sem er að kosta Ísland svo mikið að það glittir í framtíðarpólitískt-kalin tún hér heima
HVAR ER GREIÐSLUKERFIÐ ?
Ekkert bólar á því alþjóðlega greiðslukerfi ESB sem standa átti klárt núna í nóvember vegna sleggju Trumps á Íran vegna kjarnorkuvopnaþróunar. Tóma tunnan Federica Mogherini úr ungliðahreyfingu Ítalska kommúnistaflokksins, og sem er utanríkismálaður-kommizzar ESB, og sem sagði að pólitískt íslam ætti að vera hluti af pólitískum (gjaldþrota)grundvelli Evrópusambandsins, er að sjálfsögðu einungis teiknað epli eins og Merkel var sem "leiðtogi hins frjálsa heims". En þar reyndist hún frekar vera leiðtogleður en hitt. Og svo eru það tollar Trumps sem bíða Þýskalands, sem ætti að vera með gengi landsins næstum því tvöfalt hærra gagnvart Bandaríkjadal en það er núna með gengisfölsun evru, sem er fallin um 30 prósent miðað við sumarið 2008. Verðbólgan í Íran mælist nú 274 prósent á ári og október reyndist versti mánuður fyrir þróun olíuverðs síðan 2016, séð frá bæjardyrum framleiðenda
VIÐTAL
Ég ráðlegg öllum að hlusta á viðtal við Bjarna Jónsson verkfræðing, vegna orkumálasvikapakka EES-ESB: hér
Norskir fjölmiðlar slógu því upp í gær að Icelandair "hlypi frá fjárhagsskuldbindingum" og sögðu að eina leiðin til að bjarga fyrirtækinu væri að sameina það WoW-air. Danskir fjölmiðlar löptu samstundis upp norskar hraksögur af Íslandi, samkvæmt fastri venju um skandínavíska skaðafrygð þegar Ísland á hlut að einhverju máli
BANDARÍKIN OG MEGINLAND EVRÓPU
Uppfært: Styrmir Gunnarsson segir í dag að "þungamiðja heimsstjórnmála og alþjóðlegra viðskipta sé að færast til Asíu og Kyrrahafssvæðsins". Það gerðist reyndar þegar árið 1984 að viðskipti Bandaríkjanna yfir Kyrrahaf tóku fram úr viðskiptum þess yfir Atlantshaf. Og að þessu leytinu er NATO úrelt fyrir Bandaríkin vegna þess að NATO gagnast ekki Bandaríkjunum þar sem glíman við sífellt meira brostið Rússland og Kína er að mestu glímd. En bæði ríkin stunda þó leynt og ljóst innrásir inn á meginland Evrópu. Styrmir segir líka "að Bandaríkin séu að missa áhuga á Evrópu". En það er bara ekki rétt, því það er Evrópusambandið, og einna helst tvö stærstu ríki þess, sem misst hafa áhugann á Bandaríkjunum. Þannig mælist Bandaríkjahatur í einu landi nú mest í sjálfu Þýskalandi. Bandaríkin spyrja sig því þeirrar spurningar, hvenær Evrópa ætli að ganga í NATO, því þar er hún ekki, nema til að láta Bandaríkin um að vernda og fóðra sig. Glíman við íslam fer fram í Mið-Austurlöndum og þar eru það Bandaríkin sem hafa verndað Evrópu gegn þeim hættum. En Bandaríkin geta þó ekki varið Evrópu gegn sjálfri sér og Schröder-Merkelisma
Fyrri færsla
Gyðingamorð í Bandaríkjunum - pólitískt hrun í Þýskalandi
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.11.2018 kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. október 2018
Gyðingamorð í Bandaríkjunum - pólitískt hrun í Þýskalandi
Horfa: Sagnfræðingurinn og bóndinn Victor Davis Hanson útskýrir hér í fyrirlestri og svarar spurningum um hvernig eftirstríðs-heimurinn frá og með 1945 er að enda núna, og hvers vegna (YouTube, 1 klst.)
****
BANDARÍKIN
Maður sem hatar Gyðinga, myrti á laugardaginn 11 Gyðinga í bænahúsi þeirra í Pittsburgh í Bandaríkjunum, fyrir það eitt að vera Gyðingar. Áður en maðurinn framdi morðin sagði hann að drepa yrði alla Gyðinga. Það er óþolandi að þetta elsta hatur mannkynssögunnar sé enn að verki og að enn sé kynnt undir því. Þetta er enn óþolandi svartur blettur í samtímanum og Gyðingaandúðin fer versnandi á Vesturlöndum
Það er ekki mikið um Gyðingahatur í Bandaríkjunum miðað við í Evrópu. En það er mest meðal vinstrimanna sem eru með Palestínu á heilanum, og svo í háskólum, segir leiðari Wall Street Journal í dag. Hér á Íslandi má benda á skattafjármagnaða DDRÚV-fjölmiðlamiðstöð vinstrimanna í þessum efnum
Jafnvel áður en lögreglan hafði komist á vettvang, var vinstrisinnaður skríll Demókrata byrjaður að kenna Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna um að hafa knúið á um morðin með einhverju sem hann á að hafa sagt eða látið ósagt. Dóttir Trumps og tengdasonur eru Gyðingar og fáir forsetar Bandaríkjanna hafa notið eins mikillar virðingar meðal Gyðinga og í Ísrael, og einmitt Donald J. Trump. Ásakanir Demókrata lýsa ástandinu í flokki þeirra einkar vel. Engin málefni, bara hatur. Og þá ömurlegu stefnuskrá flokksins sjá of margir af helstu fjölmiðlum Bandaríkjanna um að framkvæma fyrir flokkinn, og hófst sú barátta með því að reyna að ógilda kjör Trumps með Rússarannsókn strax eftir kjör hans, en sem enginn talar um lengur, þó svo að hún standi yfir og hafi staðið yfir í tvö ár! "Rannsóknin" skilar auðvitað engu og er þá er gripið til nakins haturs ofan í þær pólitísku ofsóknir
Forsetanum er kennt um allt sem miður gerist. Hatrið á honum er það eina sem heldur stjórnmálaflokki Demókrata saman núna. Virðist flokkurinn vera að breytast í vinstriskríl eins og reið húsum hér á landi eftir bankahrunið. Hrun Demókrata felst hins vegar í því að þeir hafa misst næstum öll pólitísk völd í Bandaríkjunum, jafnvel næstu 50 árin. Og ekki nóg með það þá eyðilagði Barack Obama flokkinn svo, að hann passar engum sem á eftir honum koma. Hefur demókrataflokkurinn nú breyst í flokk sem er lengra til vinstri en nokkru sinni fyrr og hann hefur ekki lengur fyrir því að þykjast vera jarðtengdur og dálítið íhaldssamur mið-vinstriflokkur 12 mánuði fyrir kosningar, en er svo allur annar eftir kosningar. Nei, nú ríður hann húsum fyrir opnum tjöldum og fer með öskrum, klórar og ber með hnefunum lýðræðisstofnanir bandaríska lýðveldisins að utan eins og hver annar skríll, og þingmenn hans hvetja til að veist og ráðist sé að kjörnum fulltrúum Repúblikana hvar sem til þeirra næst. Nú þurfa demókratar ekki lengur að fara yfir til Bernie Sanders því þeir eru komnir þar sem hann var sjálfur. Jafnvel Trump er kennt beint og óbeint um heimatilbúnar rörsprengjur sem truflaður einstaklingur, og nú hryðjuverkamaður, sendi til frammámanna í Demókrataflokknum. En þó svo að enginn hafði látið lífið né slasast þá er hér um hryðjuverk að ræða
En lítil var samúðin í bandarísku pressunni, meðal Demókrata og hjá síblótandi elítu Hollywoodleikara, þegar Trump-hatari, skotvopnahatari, ákafur fylgismaður Obama og homma- og lesbíuhreyfinga-aðdáandi, sendi í febrúar síðastliðnum syni og tengdadóttur Donalds Trump hvítt duft í pósti sem helltist yfir tengdadótturina og sem fyrir hana þýddi tvær vikur í einangrun á hörðum fyrirbyggjandi lyfjum. Þá sagðist Vanessa Trump hafa óttast að fá aldrei að líta fimm börn sín augum aftur. Þetta var hryðjuverk
ÞÝSKALAND
Angela Merkel, konan sem AfD segir að hafi eyðilagt Þýskaland, og sem margir af íbúum álfunnar segja að hafði eyðilagt Evrópu, kom ekki vel út sem leiðtogi Kristilega CDU-flokksins er kosið var til þings í Hessen-fylki Þýskalands um helgina. Útreiðin var á pari við útreiðina í Bæjaralandi um daginn. CDU-flokkur hennar fór frá 38,3 prósentum í kosningunum 2013, niður í 27 prósentur núna (-11,36). SPD-sósíaldemókratar fóru úr 30,7 prósentum niður í 19,8 (-10,92). Massíft fylgistap hjá báðum þessum samverkaflokkum á landsvísu. Þeir sem unnu á voru AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) sem fór úr 4,1 prósenti 2013, upp í 13,1 prósent núna (+9,09) - og svo Græningjar sem fóru úr 11,1 prósentum upp í 19,8 prósentur (+8,67). Fleiri tölur hér
Ríkisstjórn Þýskalands á ekki marga lífdaga eftir. Og sérstaklega eru pólitískir lífdagar Angelu Merkel taldir. Hún og Sósíaldemókratar hafa eyðilagt flokka sína báða
Fyrri færsla
"Blaðamaður" í Mið-Austurlöndum eða Rússlandi ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 22. október 2018
"Blaðamaður" í Mið-Austurlöndum eða Rússlandi ?
Nokkuð mikið af því sem menn segja fréttir, hafa verið sagðar af stjórnmála- og blaðamanni sem hét líklega Jamal Khashoggi. Í því sambandi er gott að muna eftirfarandi:
Allir blaðamenn í hvorki Sádi-Arabíu, Tyrklandi né Rússlandi eru ekki dauðir, að minnsta kosti ekki enn sem komið er, þó svo að nokkuð margir andstæðingar þjóðhöfðingja þessara þriggja ríkja séu það
- Pútín
- Erdogan
- Konungur Sádi-Arabíu
- - og svo er það Kína
Bandaríkin eru eina stórveldi heimsins. Það, Tyrkland og Sádi-Arabía ásamt Ísrael og nokkrum öðrum ríkum, hafa bundist óformlegu bandalagi sem reynir að sporna við mjög svo auknum áhrifum Írans í Mið-Austurlöndum, sem eru heimshluti
Þrjú ríki berjast um sætið sem heimshlutaveldið í þessum heimshluta; (1) Íran, (2) Tyrkland og (3) Sádi-Arabía
Þau ríki sem til greina koma sem ráðandi heimshlutaveldi Mið-Austurlanda eru þó bara Íran og Tyrkland
En þau tvö ríki sem hins vegar segjast vera leiðtogaríki allra Sunni-múslíma í öllum löndum, eru Sádi-Arabía og Tyrkland. Saga Tyrklands sem leiðtogaríkis Sunni-múslíma er nokkuð löng. En hún endaði þegar Tyrkjaveldið féll alveg snemma á 20. öld, og þegar Sádi-Arabía varð formlega til sem konungsríki 1932. Þá tók Sádi við gæslu tveggja helgustu staða múslíma: Mekka og Medina
Tyrkland vill fá þennan titil aftur. Sádi-Arabía vill ekki missa hann. Og í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar tóku Bandaríkin við af Bretum, sem ábyrgðarmaður þjóðaröryggis Sádi-Arabíu
Óformlegt bandalag þessara ofangreindu ríkja gegn útbreiðslu Írans í Mið-Austurlöndum, eftir fall Ríkis Íslam (ISIS), stendur og fellur með þátttöku Bandaríkjanna. Falli þetta bandalag, þá fellur þjóðaröryggi Sádi-Arabíu líka. Og þá fellur heimshlutinn annað hvort til Írans eða Tyrklands, og með vissu inn í spíral upplausnar og stríða. Ef það gerist, þá geta Vesturlönd kannski um leið ýtt á eject-hnappinn fyrir núverandi velsæld og Pútín blaðamannavinur í Moskvu yrði umsvifalaust stórveldi á ný, því olía hans myndi kannski hækka í 300 til 400 dali tunnan á alþjóðlegum mörkuðum, og efnahagslíkan Íslands falla saman um leið og kúnnar þess falla um víða jörð
Blaðamaðurinn (í Sarajevó) svo kallaði, sem var meira stjórnmálamaður en blaðamaður, var andsnúinn stjórnvöldum Sádi-Arabíu. Þangað vildi hann fá sama stjórnmálaform og nú er að vaxa sig trúarlega stórt og sterkt sem íslamistaríki í Tyrklandi. Þess vegna er Tyrklandi svona vel við tilræðið á blaðastjórnmálamanninum, því það hjálpar því við að grafa undan Sádi-Arabíu og koma þar af stað upplausn, uppreisn eða óförum sem leitt geta til þess að það verði Tyrkland en ekki Sádi-Arabía sem stendur eftir sem leiðtogi Sunni-múslíma í öllum löndum
"Lengra" nær þetta ekki
Einu sinni varð mesti þálifandi fjöldamorðingi mannkynssögunar bandamaður Bretlands og Bandaríkjanna; um var að ræða Jósef Stalín. Þá sögðu Bretar og Bandaríkjamenn; "Hitler er verri. Við skulum fyrst ráða niðurlögum hans í bandalagi við Stalín. Þegar Hitler er farinn, þá snúum við okkur að Stalín. Við þurfum ekki að vera fullkomin. Við þurfum einungis að vera nóg góð"
Og nú skrifar nýsjálenskt dagblað að Evrópusambandið sé orðið það sem sambandið sagðist ætla að koma í veg fyrir að gæti gerst í Evrópu. Var Evrópa kannski ekki nógu góð frá 1945 til 1991? Hún er að minnsta kosti miklu verri í dag en þá. Krækja: "EU has become the kind of dictatorship it aimed to defeat"
Ég er að lesa hina nýju þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna (PDF). Hún kom út í desember 2017 og heitir: A Strategy of Principled Realism
Bless Útópía
Fyrri færsla
Nú eru það loftslags- og umhverfisvafningar sem seljast
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. október 2018
Nú eru það loftslags- og umhverfisvafningar sem seljast
Í aðdraganda og undir, en ekki eftir, fjármála- og bankabóluna voru það fjármálavafningar sem steiktu heilabú þeirra sérfræðimanna sem vita áttu betur en tvævetur í fjármálageirum veraldar. Vafningarnir voru seldir og keyptir. Sérfróðir kjánar seldu og sérfróðir asnar keyptu. Svo sprungu fjármálavafningarnir í andlitið á öllum þeim sem þá snertu, því innihaldið var rusl
Það sama er að gerast með þá sem vit eiga að hafa í dag. Þeir eru núna að kaupa loftslags- og umhverfismálavafninga sem gerðir eru úr sama rusli og fjármálavafningarnir voru gerðir úr, þ.e. heimsku og sósíalisma. Barack Obama barðist til dæmis lengi fyrir undirmálslánum og fékk þau gerð lögleg með ábyrgð. Svo sprakk heimurinn. Sá sem sagði að alls- og atvinnulaus maður ætti ekki fá húsnæðislán, var stimplaður vondur maður. Í dag er til dæmis ég stimplaður vondur, því ég veit að loftslags- og umhverfismálin eru aðeins nýir vafningar fullir af rusli og drasli sérfræðinga, sem eru meingallaðir menn eins og ég. Vörur þeirra eru loftslags- og umhverfisvafningar, fullir af rusli og drasli. Þeir sem tala fyrir þessum nýju vafningum vita ekkert um hvað þeir eru að segja, þó svo að þeir þykist vita það og eru á háum launum við það
Aðeins veiklundaðir menn kaupa þetta nýja drasl sérfræðinganna. Og síðasti söludagur nálgast
Fyrri færsla
Sósíaldemókratar þurrkaðir út í Bæjaralandi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 16. október 2018
Sósíaldemókratar þurrkaðir út í Bæjaralandi
Niðurstaða
Bæverskir sósíaldemókratar (SPD) gátu ekki keppt við hinn flokk þýskra sósíaldemókrata, þ.e. flokk Kristilegra (CSU í Bæjaralandi og svo bandalag þeirra með CDU á landsvísu). Þýskir sósíaldemókratar hafa fundið út úr því að hinn flokkur þýskra (Kristilegra) sósíaldemókrata er að minnsta kosti jafn miðvinstri-sinnaður og gamla SPD-vinstrið. Og hver láir þeim það, eftir að þýskir hægrimenn hafa gert svo í buxurnar að fáum í Bæjaralandi datt í hug að að skipta um skoðun á samsulli CDU/CSU og SPD á landsvísu
CSU í Bæjaralandi fékk nálægt því sama fjölda atkvæða og síðast, þökk sé flótta SDP-manna yfir í CSU. En þar sem kjörsókn var meiri núna, þá þýddi hún hlutfallslega verri útkomu fyrir CSU en síðast. SPD hrundi úr 20,6 prósentum niður í 9,7 prósentur. Hann var annar stærsti flokkurinn í kosningunum 2013, en er nú aðeins fimmti stærsti flokkurinn, eða þriðji minnsti flokkurinn á þingi
Mest áberandi niðurstaða kosninganna er því sú, að flokkur SPD-sósíaldemókrata var næstum þurrkaður út. Hann er tómur flokkur núna og hefur hvergi stuðning nema í 101-hverfum borga sem eru að verða rafmangslausar eða geta ekki lengur borgað hið himinháa verð sem er á raforku í Þýskalandi. Landsbyggðin í efri héruðum Bæjaralands í kringum Alpana, hefur algerlega afskrifað SPD-sósíaldemókrata þannig að staða hans í stjórnarandstöðu er nú verri en engin. Þar er bara eitt sósíaldemókratískt dienbienpúff
Græningjar unnu mikið á, sérstaklega á 101-svæðum, þar sem sósíalstríðsmenn SPD hafa misst sig í sósíal-millimetralýðræði, en vanrækt praktíska hluti eins og húsnæðismál. En það verður einmitt í 101-hverfunum sem græningjar munu tortíma sér með sjálfsmorðssprengingum eins og þeirri sem flokksráðkorsett Vinstri grænna á Íslandi sprengdi nýrun úr flokknum með um síðustu helgi. Flokkslíkami Vinstri grænna er því á ný að fyllast af gömlu eitri í grænum umbúðum
Aðrir flokkar eins og AfD og Frjálsir kjósendur munu líklega mynda nýja stjórn með CSU í Bæjaralandi. Hver veit hvað kemur út úr því. Kannski munu þeir saman lýsa yfir nýju Sovétlýðveldi í Bæjaralandi eins og gerðist þegar Þýska heimsveldið hrundi í kjölfar Fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þannig átti kommúnistískt Bæjarland að verða óháð hinu nýlega stofnaða Weimar-lýðveldi Þýskalands, sem var fyrsta tilraun Þýskalands með lýðræði sem stjórnarfyrirkomulag. Þjóðhollar leifar þýska hersins tóku svo hið bæverska Sovétlýðveldi af lífi í maí 1919. Önnur tilraun Þýskalands með lýðræði sem stjórnarfyrirkomulag er nú í gangi. Og enn er langt því frá öruggt hver niðurstaða hennar verður. Þetta er jú meginland Evrópu; sjálf vagga, marxisma, kommúnisma, nasisma, fasisma og esbisma. Allt saman alræðisleg öfl sem ráðast að stjórnarskrám til að svipta borgarana frelsinu
Hér má sjá hlutfallsleg úrslit kosninganna í Bæjaralandi, sem fram fóru sunnudaginn 14. október 2018
Fyrri færsla
Vinstri grænir vilja fylgja Angelu Merkel inn í alræðið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 14. október 2018
Vinstri grænir vilja fylgja Angelu Merkel inn í alræðið
Bardagafáni bandaríska flugmóðurskipsins USS Harry S. Truman (CVN-75), sem var hér skammt undan um daginn
****
Angela Merkel er í stefnumótunarvinnu núna. Hún vill að Þýskaland (og þar með Evrópa líka?) reyni að líkjast Kína og öðrum útflutningaháðum Asíuríkjum enn meira en orðið er. Hún vill að Þýskaland, sem í 150 ár hefur ekki fundið neitt nýtt upp til að lifa á, reyni að stækka enn frekar þau stóru og úreltu fyrirtæki Þýskalands sem einkenna staðnaðan einkageira landsins svo mikið að þar geta ný Apple, Google og Microsoft bílskúrksfyrirtæki ekki orðið til, vegna þess að tilvist slíkra fyrirtækja myndi ógna aristókratísku veldi iðnaðarfyrirtækja eins og Siemens (stofnað 1847), Bayer (stofnað 1863) og BASF (stofnað 1865). Emmanuel Macron Frakklandsforseti leit undan og kastaði upp er hann frétti af þessu stefnumóti Angelu Merkel við fortíðina
Sést þarna vel í hversu hroðalegum vandamálum Þýskaland er með viðskiptalíkan landsins. Það krefst að nýlendustefna sé viðhöfð á ESB-ríkin, sem handjárnuð eru við Þýskaland með ESB, og svo krefst það þess að Þýskaland leggist flatt fyrir Kína, sem ekkert nýtt getur skapað heldur. Það sem sameinar þessi ríki er krónískur skortur á innri eftirspurn vegna elítu-kúgunar, hnignunar, sósíalisma og áætlanabúskapar
Eins og ég hef áður sagt þá er að mörgu leyti hægt að segja að Þýskaland sé eins konar kína Evrópu. Núverandi tilraun Þýskalands með lýðræði sem stjórnarfyrirkomulag er að fara út um þúfur. Og nú er Donald J. Trump við það að taka Þýskaland á orði þess. Það sagði honum nefnilega að viðskiptahalli Bandaríkjanna við Þýskaland skipti ekki máli. Og þar sem að hallinn (og gengisfölsun Þýskalans) "skiptir ekki máli" þá ætlar Trump að láta Þýskaland fá hallann, því það hlýtur að vera í lagi fyrst að hann skiptir ekki máli. Það sama á við um kína í Kína. Það Kína fær líka hallann sem engu máli skiptir, því það getur varla skipt þessi lönd neinu máli, þar sem hann skiptir ekki máli. En skyldi viðskiptahallinn þá allt í einu fara skipta máli þegar Þýskaland og Kína hafa fengið hann. Það verður mjög svo fróðlegt að fylgjast með þessu máli næstu mörg árin. Ballið er rétt að byrja og handritið fyrir ombytta roller er að skrifast
Það sem skilur þessi útflutningsháðu ríki frá bandarísku atvinnulífi er það, að vestanhafs snýst hið bandaríska hagkerfi að mestu um lítil og millistór fyrirtæki, sem knýja nýsköpun og framfarir áfram og skapa þá eftirspurn sem útflutningsháð lönd eins og Þýskaland og Kína lifa á, því þau sjálfa skapa ekki eftirspurn heldir sjúga þau hana til sín
Töluverður stormur var á mörkuðum í síðustu viku. Margir segja að þar hafi fjárfestar loksins uppgötvað, eða skilið til fulls, að verðið (vextir) á peningum frá seðlabanka seðlabankanna, the Fed, fari hækkandi. En mín skoðun er hins vegar sú að allt það mál hafi fjárfestar fyrir lögnu skilið til fulls. Það sem gerðist í síðustu viku voru hins vegar fyrstu spurningar markaðarins á endastöð heimsins eins og Bandaríkin sköpuðu hann í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar; Spurt var: "Ert þú og og fyrirtæki þitt í Kína? Ef já, þá hendum við bréfunum í þér á haugana, því Kína er að enda, því eftirstríðsheimurinn er að enda í þeirri mynd sem Bandaríkin skópu hann. Nýr heimur er í smíðum, því sá gamli var misnotaður svo herfilega - á kostnað Bandaríkjanna". Hin spurningin var: "Og þar sem Mussolini er þegar byrjaður að fikta við innrásir inn í Eþíópíur og Sómalíur, afsakið, Georgíur, Krím, Úkraínur og Suður-Kínahöf, þá er Trump forseti byrjaður að endurreisa fælingarmátt Bandaríkjanna áður en Mússóar dagsins í dag fá of margar og rangar nýjar hugmyndir um sjálfa sig, úr einmitt þeirri skúffu sem Vinstri grænir hafa alltaf verið föst vöggudýr í, þ.e. í vöggu alræðisins (gleymið græna litnum, hann er einungis felulitur)
Fyrri færsla
Síðasta skip frá Kína í smíðum [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. október 2018
Síðasta skip frá Kína í smíðum [u]
Uppfært: Tímamótaræða Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna um Kína, hinn 4. október 2018, sem haldin var á meðan leikskólaveldi fjölmiðla voru önnum kafin við slúður og falskar fréttir
****
Nú eru ekki nema örfá ár þar til að Kína kemst aftur á bak við það járntjald sem kínversk stjórnvöld elska svo heitt. Að halda að kommúnistískt Kína geti haldið áfram að vera kommúnistískt Kína nema innan veggja síns eigin múrs, var ávallt svo skrýtin hugsun að í dag er hún farin að virka sem móðgun við skynsemi þeirra sem yfir höfuð höfðu bara smáskammt af slíku í sínum höfðum. Aðeins útópískar nálastungur af 1991-árgangi náðu svo langt inn í heilabú manna á Vesturlöndum að formalínið sem í þeim var, steypti heilabú of margra Vesturlandabúa föst í ólæknandi kratisma eins og sést svo víða á þeim vestrænu stjórnmálaflokkum sem eru hnignandi flokkar í dag, en sem ættu bara alls ekki að vera það, heldur ættu þeir flokkar að vera að styrkjast. Dómgreindarskortur og pólitískt hug- og getuleysi er það sem ræður hnignunarför slíkra flokka inn í smjattpattísk grasker
Kína er því að læsast inni í sjálfu sér eins og náttúrulögmál og Bandaríkin munu varla hleypa því út aftur eins og það er. Ekki verður hlustað á væl bandarískra fyrirtækja, né heldur á vol og væl þeirra bandamanna sem byggja þjóðaröryggi sitt á efnahags- og hernaðarlegu heilsufari Bandaríkjanna
Flokksrústir Demókrata í Bandaríkjunum eru því akkúrat núna að byrja að skríða upp úr gígaröð eigin sjálfskaparvíta og leita hælis hjá þeim sem sem halda höfði. Fyrst að Rússlands-harka var demókratísk dyggð, þá hlýtur ný Kína-stefna Trumps og Pence að þýða nýtt pólitískt himnaríki fyrir sanna Demókrata. En til að komast þangað verða þeir að styðja eða kjósa Repúblikana. Annars er það bara hin gamla gígaröð þeirra sjálfra til helvítis, sem bíður
Nýr kafli í endalokum evrunnar er nú að hefjast. Vaxtaálagið á dauðvona ítalska ríkið er orðið slíkt að ítalskir ríkispappírar eru við það að týna húsbónda sínum fyrir fullt og allt. Beðið er með öndina í hálsinum eftir næstu lækkun lánshæfnismats ítalska ríkisins. Og ef matsfyrirtækin setja mínus fyrir aftan nýtt og lægra mat, sem þýðir neikvæðar horfur, þá er næsta þrep þar fyrir neðan, ruslatunnan sjálf
Á meðan dunda S.þ sér við nýjustu súperstrengja-kenningar þeirra "vísindamanna" sem þá misstu vinnuna - og æruna. Við skulum ekki minnast á alla þá sem misstu vinnuna þegar súperstrengja-kenningar vísindamanna peningamála fuðruðu upp árið 2008 og urðu að loftslagi
****
Svo hér að lokum, eitt gott mix eftir einn Kanadamann, frá sumrinu 2003, eiginlega eina mixið sem ég hef haldið upp á. En þá reyndu ýmsir menn að skapa eitthvað nýtt á tónlistarsviðinu. Þessum tókst það ágætlega
Bein krækja: Crystal Tokyo | Allt með Masaki
Fyrri færsla
Hæstiréttur Bandaríkjanna aftur á réttri leið
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.10.2018 kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 28
- Sl. sólarhring: 55
- Sl. viku: 753
- Frá upphafi: 1404502
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 489
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008