Leita í fréttum mbl.is

Repúblikanar að vakna upp við 1984-ástand?

Donald J Trump

Mynd: Forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump

****

Flestum þótti sögulega öruggt að þar sem Repúblikanar hafa Hvíta húsið, að þá myndu þeir ekki hafa mikinn áhuga á þingkosningum núna í nóvember. Þetta öryggi virðist nú vera að slettast á vegg og gufa upp. Vegna 1984-legra tilrauna vinstrisinnaðra fjölmiðla og Demókrata til að myrða persónu tilnefnds manns í stöðu hæstaréttarfdómara án dóms og laga, eru Repúblikanar að vakna upp við vondan draum og segjast í mun meira mæli hafa áhuga á að mæta á kjörstað og kjósa til þings í næsta mánuði. Þetta segir ný NPR/PBS NewsHour/Marist könnun sem kom út í gærkvöldi. Full 80 prósent Repúblikana segja nú að kosningarnar séu mikilvægar. Aðeins 68 prósent þeirra sögðu það sama í júlí. Hjá Demókrötum er hlutfallið 82 prósent núna -og munurinn á flokkunum því vel innan fjögurra prósenta skekkjumarka- en það var hins vegar 78 prósent í júlí. Tölfræðilegur munur á flokkunum tveimur er því enginn, samkvæmt könnuninni

Repúblikönum líst sem sagt ekki á blikuna lengur. Þeir sjá stjórnmálaflokk Demókrata í rúst eftir forsetatíð Barack Obama. Og sú rústun hefur reitt næstum alla stærri fjölmiðla í Bandaríkjunum til reiði, því þeir eru flest allir vinstrisinnaðir. Og þar sem flokkur þeirra er getulaus (mamma biluð), þá hafa þeir allar götur frá sumrinu 2015, háð kosningabaráttuna fyrir Demókrataflokkinn, vegna hinna miklu skemmdarverka sem Barack Obama vann á honum. Ekki nóg með það að Obama skilaði flokknum af sér í rúst, heldur var flokkurinn svo kyrfilega eyðilagður undir honum að enginn nema allra lélegasti forsetaframjóðandinn, Hillary Clinton, hafði séns á að sigra, því hún var næstum jafn lélegt forsetaefni og Obama. Flokkurinn og fjölmiðlar hans fyrirlitu hana og allt það sem Obama hafði gert flokknum. Svo það sem við sjáum núna, er vinstrisinnað fjölmiðlaveldi Bandaríkjanna í kosningabaráttu

Það voru sem sagt ekki fjölmiðlar sem bjuggu til kosningasigur Donalds J. Trump, eins og margir hafa haldið fram. Það var Barack Obama sem eyðilagði stjórnmálagrundvöll Demókrata og gerði öllum þeim sem á eftir honum komu ómögulegt að halda merkjum flokksins á lofti meðal bandarísks almennings. Vinstrisinnaðir fjölmiðlar tóku því við keflinu og sú sundrung sem við sjáum í dag, er einmitt kosningaherferð þeirra. Og hún er ekki beint glæsileg, eins og sést. Hún er fullur Obama-pakki pólitískt sundrandi auðkenna

Eini forsetaframbjóðandinn sem skildi allt það fólk Bandaríkjanna sem ekki bjó í þremur glóbalista-stórborgum landsins, var Donald J. Trump. Hann var eini framjóðandinn sem yfir höfuð gat sigrað á landsvísu

Wall Street Journal skrifar í morgun að Hvíta húsið hafi eftir að sjöundu rannsókn FBI á Kavanaugh dómara er lokið, ekki fundið neitt sem styður nýlegar ásakanir á hendur honum. Málið fer því hina réttu boðleið áfram til öldungadeildarinnar

Fyrri færsla

Angela Merkel nálgast fylgi Sjálfstæðisflokksins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég er afar sammála þér Gunnar hvað þetta varðar. Það er talað um Trump sem sundrungarafl en maður horfði upp á hvernig bandarískt samfélag gliðnaði í stjórnartíð Obama. Þar sannaðist að oft er flagð undir fögru skinni.

Ragnhildur Kolka, 4.10.2018 kl. 09:33

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Já þetta er orðið svona.

Helstu talsmenn Demókrataflokksins, nú orðið, er uppstoppað Hollywood-lið úr plasti og svo glóbalista-og-warming fólkið um borð í Google- og Facebook fyrirtækjunum sem sjálft býr á bak við þriggja metra háa múra á dýrustu lóðum glóbalista-bólu-borganna og sem æpir á "opin landamæri", en engan múr fyrir hina lægra launuðu sem búa ekki við það öryggi sem þetta lið býr sjálf við á bak við sína múra. Þaðan er æpt, "takið Trump af lífi", "hann er nýr Hitler" og svo kemur heil súpa af öðru eins, plús heill  sundrungarpottur af minnihluta-hópunum sem Obama og Hillary gerðu út á (the Jordan Peterson fractioning-syndrom; nicht possible).

Sjálfir forkólfar Demókrataflokksins eru svo ömurlegir að þá er varla hægt að sýna lengur, því ekki er lengur hægt að andlitslyfta þeim án þess að þeir skeggist til á óvæntum stöðum.

Hinumegin Atlantsála féllu grískir bankar um 30 prósent í gær og er vart hugað líf eftir að Brusselbjörguninni lauk með svona miklum glans.

Og svo er það ríkisstjórn Macrons Frakklandsforseta sem komin er í pólitíska tilvistarkrísu eftir að annar ráðherrann sagði af sér á nokkrum vikum, með því að birta uppsagnarbréf sitt í Le Figaro á þriðjudaginn. Hroki Macrons er sagður slíkur að ekkert minna en það dugði til til að koma sér í burt.

Það verður fróðlegt að sjá hversu margir réttarríkis-kjósendur Repúblikana mæta á kjörstað í nóvember. Þarna er ekki allt sem sýnist, enn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2018 kl. 10:45

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Sæll Gunnar nú ertu komin í essið þitt. Ég tala nú ekki um þegar þú ert að lýsa demókrötunum eins og t.d. Pelósí sem getur ekki talað rétt lengur og það eru fleiri svoleiðis.Líklega einhvað heilatengt.

Mér finnst skuggalegt hve margir þessir demócrara og þeirra fylgifiskar eru og í raun er alvöru borgarastyrjöld sem þeir hvetja og ýta undir svo ég reikna með að Trump verði að setja á Herlög til þess ná einhverjum töku á þessu ástandi en nóg er það slæmt. 

Valdimar Samúelsson, 4.10.2018 kl. 15:46

4 identicon

Ef þú prómótar populisma opinberlega Gunnar þá verður þú flokkaður sem slíkur.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 4.10.2018 kl. 16:28

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar.

Leiðari Wall Street Journal segir í dag: "We are all deplorables now 

- "The Kavanaugh fight isnt about Trump. We are all deplorables now" - "við erum öll komin í körfu hinna fyrirlitlegu núna" - stimpill og enn eitt pólitíska auðkennið sem Hillary Clinton gaf öðrum helming bandarískra kjósenda. Demókratar hata alla sem eru ekki eins og þeir, segir leiðarinn.

Já, skíthælaveldi bandarískra vinstrimanna er að opinbera sig sem einmitt það. Þeir brjálast þegar þeir missa völd. Þeir og vesælir fjölmiðlr þeirra ganga um hótandi hverjum sem er og kjörnum fulltrúum með morðum, limlestingum, byltingum, ofsóknum og 1984-réttarhöldum. Og ekki er hægt að halda því fram að WSJ hafi verið mesti aðdáandi Trumps, þvert á móti.

Svo þetta er frábært hjá Demókrötum að hafa loksins tekist það kraftaverk að sameina stjórnmálaflokk Repúblikana gegn sér og um það sem hann gengur út á: þ.e. frelsi, en ekki útópíska fullkomnun og jöfnun alls við jörðu, sundrungu og upplausn.

Það er ekki bara tilviljun að það voru Repúblikanar sem afnumdu þrælahald, byggðu upp Bandaríkin og bundu enda á Víetnamstríðið sem Demókratar hófu og stóðu fyrir. Það er sorglegt að sjá flokk Demókrata fara svona með sig og landið sitt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2018 kl. 16:39

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigþór.

Það má alltaf reyna að gefa pólitískum andstæðingum sínum hin eða þessi nöfn, og flokkar geta einnig reynt að gefa sjálfum sér þau nöfn sem þeir vilja að andstæðingar þeirra taki til sín og noti á þá til að gera þá sjálfa að fíflum.

Bandaríski Popúlistaflokkurinn rann saman við Demókrataflokkinn árið 1896.

Þegar róversku herdeildirnar snéru loksins heim út stríði þá gengu þær fólkinu á hönd þegar hermenn þeirra sáu að valdastéttin sem sent hafði þá burt til að berjast, hafði sölsað undir sig jarðir og búgarða þeirra á meðan. Minnir á það sem glóbalisminn hefur áorkað hjá þeim sem vinna ekki hjá Google og Facebook.

En munurinn á Róm og Bandaríkjunum er hins vegar sá, að stofnendur þeirra vissu þetta vel og sáu að það voru góðar stofnanir sem héldu lífinu í Lýðveldum en ekki hollusta við einstaklinga eða flokka.

Þannig að þegar Donald J. Trump fer frá völdum þá mun Bandaríkjaher ekki fylgja honum, heldur mun hann flygja bandarísku stjórnarskránni að málum, en sem Demókratar eru að reyna að brjóta og mölva hve mest núna. Slík er líka í gangi hér heima meðal sömu eitruðu vinstri pólitísku afla og humarhala-stjórnmála.

En staðreyndin er samt enn sú að frá upphafi siðmenningar hafa stjórnmál snúist um aðeins tvennt: frelsi einstaklingsins til lífs og athafna - og svo hins vegar vegar um jöfnuð (sovétríkin snérust um jöfnuð). Það sem ber á milli er það sem við köllum stjórnmál í dag.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2018 kl. 17:38

7 identicon

Það stendur það sem ég skrifa. Þú ert svo populískur að þú skrumskælir polulisma, það gera bara sannir populistar.

Ég er ekki pólitískur andstæðingur þinn Gunnar, ég vil frelsi einstaklingsins sem mest, en ekki í gegnum poplískar leiðir sem hefur verið sannað að virka ekki.

Þetta er fjögra þrepa ferli Gunnar, þú ert í öðru þrepinu. Þrepin eru: 1. Kapítalisti 2. Populisti 3. Fasisti 4. Nasisti (mögulega ef þú verður nógu harður)

Farðu nú og fáðu þér viskí og öskraðu upp í rokið, það gæti hresst þig við?

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 4.10.2018 kl. 19:41

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka svarið Gunnar þetta er mikið rétt og nú er spurning hvað skeður hjá Demókrötunum um helgina.

Það fara allar mótspyrnuhreyfingar í gang ásamt MeToo og hver veit hvað eða kannski nennir fólk þessu ekki lengur enda eru demókratar bæði útbrunnin og úrkynjaður flokkur.  

Valdimar Samúelsson, 4.10.2018 kl. 20:49

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta var frekar fyrirsjáanleg niðurstaða hjá þér Sigþór. Sem verandi bara enn einn vinstri-græni samfylkingar píratinn, þá er það kapítalisminn sem er rót alls ills í þínum kokkabókum. Þú hefðir varla getað komið málefnadagskrá vinstrimanna betur heim og saman eins og þú gerir hér: Sem sagt: Kapítalisminn elur af sér popúlisma (hvað sem það nú er) og leiðir þar með óhjákvæmilega til fasisma og sem endar með nasisma, því þetta er "fjögurra þrepa ferli" eins og þú orðar það. En í fáfræði þinni gerir þú þér samt ekki grein fyrir því að nasismi er sósíalismi sem krefst þjóðnýtingar á fólkinu og stjórnmálum þess í þágu ákveðins málstaðar, eins og evrópusimi ESB gerir líka. En með því einfaldlega að banna kapítalismann þá er framtíð mannkyns tryggð á vorri (ofhitnandi) jörð. Þá getur allt hitt ekki orðið til. Er þetta ekki frábært og tær snilld, eða hitt þó heldur.

Afstæðiskenningar flestra sósíalista, allra kommúnista, nasista og fasista (þ.e. 20. aldar ismar Evrópu) um muninum á réttu og röngu, er það sem sameinar alla þessa isma um það vonda sem gerðist á 20. öld. Tilgangurinn helgar öll meðul þeirra til útrýmingar á kapítalismanum. Það verður hreinlega að ganga frá kapítalismanum.

Þú ert ekki einn um þessa afstöðu, því miður. Og hér er svo hægt að bæta umhverfisisma okkar daga við sem nýrri alræðisstefnu 21. aldarinnar, en með rót sína í banvænum ismum 20. aldar.

Gunnar Rögnvaldsson, 5.10.2018 kl. 01:16

10 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gott svar Gunnar Sigþór verður að fá að þroskast ekki satt.:-)

Valdimar Samúelsson, 5.10.2018 kl. 10:25

11 identicon

Allt þetta sem þú skrifar um mig er tóm þvæla. Þú veist ekki hver ég er og hefur enga hugmynd um mínar pólitísku skoðanir. Þú stilla mér upp sem einhverju steríótípísku heimsku fyrirbæri sem kemur út úr skoðanakönnun í vísir. Það er ekki ég Gunnar, það ert þú.

Kapitalismi þarf ekki að vera slæmur, en hann getur verið það og stefnir þangað. Chile var verst í þeim efnum þ.e. það sem íhaldið bauð upp á. Núna byggir þetta á mikið græðgi og því fleyri fíklar í bönkum sem keyra ruglið áfram. Nú svo má minnast Bjögga Thor og bitcoin söfnun á suðurnesjum, þar sem orkuþörfin er meiri en hjá öllum heimilum landsins. Þetta er brilliand "business" eða hitt þó heldur. Er það þetta sem við eigum að vera berjast fyrir?

Gunnar, hvers virði er frelsi sem er þvingað? Það er ekki frelsi, það er þveröfugt við það. Þú kannski fattar þetta einhvertíman.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 5.10.2018 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband