Leita í fréttum mbl.is

Eyðileggjandi fólksflutningar að rústa Evrópu

Svíþjóð er komin í pólitíska kreppu sem ekki sér fyrir endann á um langa og svarta framtíð fyrir Svía, sem einu sinni voru þjóð í sínu eigin landi. Í dag er það stjórnarkreppa sem er nýjasti tilvistar-kreppuréttur dagsins í landi hnefarétta sænskra sósíalista

Þar sem Svíþjóð, eins og Evrópa, er byggð á Biblíunni, þá hefði þetta ekki átt að geta endað svona, því þar segir í Rutarbók: "þitt fólk er mitt fólk og þinn guð er minn guð"

Það er stór og mikil ástæða fyrir því að þetta stendur í Gamla testamentinu. Þetta er hvorki meira né minna en niðurstaðan úr þeim hörmungum sem stjórnlausir fólksflutningar leiddu til. Þetta er aðvörun til þeirra sem á eftir komu

Það fólk sem fær að gerast borgarar í nýju landi verður að skipta um bæði þjóð og guð ef hið nýja heimili á ekki að enda eins og það heimili sem farið var frá. Bandaríkin eru eina landið á jörðinni þar sem ein ósundrandi þjóð af mörgum ættbálkum og litum varð ein velmegandi heild og þjóð. En jafnvel því tókst Obama að reyna klúðra með því að byrja að tala um "týpískan hvítan borgara". Slíkt hugtak hafði ekki verið notað í bandarískum stjórnmálum frá því á forsetatímum Wilsons, sem var einn misheppnaðasti forseti Bandaríkjanna. Þarna atti Obama öllum upp á móti öllum með þeim ættbálkaauðkennum sem eru að leika bandarísk stjórnmál svo grátt í dag

Í Evrópu verður hryllingurinn hins vegar hundraðfaldur. Evrópa þolir ekki svona innflæði eins og vakúm-pökkunarvélin Angela Merkel frá Austur-Þýskalandi lifir í og pakkar þeim vandamálum inn með, sem hún á að leysa, en getur ekki, vegna þess að hún sjálf er pólitískt tómarúm af verstu sort sem hugsast gat. Hún er uppgjafarvélin sem framleiðir þær útópísku þvælur sem koma af því að sökum þess að við (Vesturlönd) erum ekki fullkomin, að þá erum við ónýt ef við erum það ekki

Það eina sem Vesturlönd þurfa á að halda er að vera eru nógu góð en ekki fullkomin, og það er það sem Donald Trump er. Hann gerir og framkvæmir á meðan hún getur ekkert nema fórnað Svíþjóð, og svo fórnað Póllandi fyrir að vera ekki vesalingaland eins og hún er sjálf, og sem Svíþjóð er á leið með að verða. Þegar svona vakúmpökkunarvélar eins og frú Merkel eiga ekkert eftir til að fórna og henda fyrir úlfana, þá stígur lítill maður með yfirvaraskegg inn á leiksviðið til að brenna þær Biblíur sem hún hvorki skildi né hugsaði um. Þetta hlýst af að láta þann sjálfsákvörðunarrétt og það fullveldi þjóða sem Biblían boðaði, af hendi. Slíkt er banvænt og þess vegna er Evrópusambandið að kveikja í álfunni eins og sér-evrópskir ismar gerðu á 20. öld. Evrópuisminn er sama þvæla

Pólitískar lausnir Íhaldsmanna byggja á Biblíunni þar sem það er mögulegt, eins og til dæmis stofnun og stjórnarskrá Bandaríkjanna gerðu. Að öðrum kosti er lausnir fundnar með sögulegum fordæmum sem staðist hafa þrotlaust álag tímans og virka. Evrópusambandið er einungis enn eitt imperíal misfóstrið sem Biblían varar við, með því að sýna fram á hörmungar þeirra sem hús fjötranna, og með því að setja þjóðum landamæri og fá þeim sjálfsákvörðunarrétt til að vera nógu góðar, en ekki fullkomin þvæla eins og frú Merkel og ESB. Þegar Trump er búinn að framkvæma nógu gott fyrir Bandaríkin, þá verður Evrópa enn fullkomin þvæla evrópskar líberalisma-heiðni sósíalista á borð við ESB, Merkel, Pútín, Lenín, Hitler, Stalín, Mússó og annarra biðstofumanna útópískrar fullkomnunar. Rúst eða himnaríki og ekkert þar á milli, það var lagið. Eftirstríðsfriðurinn er því búinn, hann þótti nefnilega ekki nógu góður fyrir þetta vesæla imperíal-valdapakk

Fyrri færsla

Lygaferð Pútíns að enda á vegg sanninda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Hvaða vitleysa í þér Gunnar.

Putin er ekki heiðinn. Þvert á móti sínir hann ýmis merki um að vera hallur undir kirkjuna og það má sjá þetta í ýmissi löggjöf sem hann hefur sett,auk þess sem hann sækir reglulega kirkju.

Þetta er einmitt eitt af mörgu sem Nýliberalistum mislíkar svo mjög í fari hans.

Ég veit ekki af hverju þú ert að spyrða Putin saman við þetta pakk. Þetta er afar ósanngjarnt.

Trump er hinsvegar heiðinn,gerðist ekki kristinn fyrr en hann fór í forsetaframoð ,enda er það skilyrði fyrir þá sem ætla að ná atkvæðum Republikana. Svipað og Ólafur Ragnar um árið.

Trump er ekki íhaldsmaður ,hann er tækifærissinni sem villtist óvart í forsetastólinn en ræður svo ekkert við verkefnið. Trúlegast er að hann hafi aldrei ætlaðað verða forseti,enda hafði hann ekki glóru af því hvað hann ætlaði að gera þegar hann mætti á staðinn. Og veit það ekki enn. Hann hefur heldur enga staðfestu eða aðra burði til að hrinda einhverju í framkvæmd.

Trump er réttilega afar hrifinn af Putin og í fantasíum sínum hefur hann vafalaust séð sjálfan sig feta í fótspor hans og hreinsa til í gjörspilltu stjórnmálalífi og embættismannakerfi Bandaríkjanna.  Gallinn er sá að Trump hefur enga vitræna burði til að feta í þá slóð.

Borgþór Jónsson, 28.9.2018 kl. 15:05

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það er gaman að geta þess af því að þú minnist á Stalín að nýjustu rannsóknir sýna að Stalín hafi í að mörgu leiti verið ágætis maður þrátt fyrir  skapgerðarbresti.

Á árunum kringum 1936 gerði hann tilraun til að lýðræðisvæða Sovétríkin,en varð undir í baráttunni. Hann skrifaði af þessu tilefni nýja stjórnarskrá sem aldrei varð að veruleika,en var að mörgu leiti framsækin. Hann skrifaði meðall annars út úr stjórnarskránni allt um kommúnisma.

Hann var líka mikill talsmaður þess að kjósendur láti til sín taka og kjósi burt óhæfa stjórnendur. Mig hefur alltaf grunað að menn hafi allt of mikið einbínt á dekkri hliðar Stalíns og ekki látið hann njóta sannmælis. 

Borgþór Jónsson, 28.9.2018 kl. 16:53

3 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það er bara engin leið að ná þér a flug í dag. Ég hélt að þessi Stalín saga mundi duga. :))

Borgþór Jónsson, 28.9.2018 kl. 20:55

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Dekkri hliðar Stalíns" voru kolsvartar, Borgþór!

Jón Valur Jensson, 28.9.2018 kl. 23:09

5 Smámynd: Borgþór Jónsson

Já Jón,þær voru svartar og ljósu hliðarnar voru líka dökkar. 

Það sem mér finnst einkenna hann mest er algert miskunnarleysi.

Aðgerðir hans voru oft logiskar og skiluðu árangri,en þær voru framkvæmdar algerlaga á tillits til hvernig þær komu við fólk. Oft með hræðilegum afleiðingum.

En það er bara svo gaman að tröllast aðeins í Gunnari,af því honum er svo illa við kommúnista.

Nú heldur Gunnar úti síðu sem er að hluta Stalínisk og kannski er einhver orðin Stalínisti af því hann skoðaði síðuna hans. Væri það ekki skemmtilegt? 

Borgþór Jónsson, 29.9.2018 kl. 11:04

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nú skil ég þig aðeins betur, þína ertni, Borgþór. laughing

En það er ekki Stalínismi að vera harðákveðinn í skoðunum, ekki frekar en það er einhver Göbbelsismi. Gunnar er líberalisti í efnahags- og fleiri málum, hefur mér sýnzt, ekki aðdáandi neinnar alræðishyggju. Þess vegna varar hann líka við vaxandi valdhyggju og lagasetningarofforsi Evrópusambandsins.

Jón Valur Jensson, 29.9.2018 kl. 13:59

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þessir fólksflutningar væru ekki svona eyðileggjandi nema vegna þess að velferðarkerfi vesturlanda (rándýru fyrir skattgreiðendur) standa undir þeim.  Með framfærslu og ýmissi fyrirgreiðslu við aðvífandi, verðuga eða ekki.  Þegar Gunnar nefnir að þeir rústi Evrópu þá á hann fyrst og fremst við þetta. Svo fylgir þjóðfélagsleg upplausn í kjölfarið. Seinna.

Kolbrún Hilmars, 29.9.2018 kl. 14:34

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Það er ekki til neitt sem heitir líberal íhaldsstefna. Og það er ekki til neitt sem heitir að vera illiberal (ólíberalismi eða ófrjálslyndir). Því ef slíkt væri til þá væru allir sem ekki eru vinstrimenn kallaðir óvinstrisinnaðir.

Íhaldsstefna er stjórnmálastefna með upphaf sitt á 14. til 15. öld.

Líberalismi er hins vegar stjórnmálastefna með upphaf sitt mörg hundruð árum síðar. Fyrsta meiriháttar pólitíska afurð líberalista var franska byltingin, sem var allsherjar-geggjun útópíumanna líberalismans.

Og það er ekki til neitt sem heitir "líberalisti í efnahags- og fleiri málum". Annað hvort er maður Íhaldsmaður eða ekki. Íhaldsmenin stunda ekki viðskipti samkvæmt universalisma líberalista. Íhaldsmenin krefjast ekki að öll viðskipti séu stunduð samkvæmt úniversal-kerfum á borð við til dæmis ESB og annarra kerfa fjölþjóðaismans. Íhaldsmenn vilja frjálst framtak samkvæmt hefðum hvers lands fyrir sig og það frjálsa framtak er fyrst og fremst stundað til að auka við auð og velmegun þess lands og þeirrar þjóðar sem það á heima í og sem ól það af sér.

Ég mæli með krækjunni í bloggfærslunni hér að ofan.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2018 kl. 18:53

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott svar frá þér, Gunnar. Ég ber virðingu fyrir þessu.

Jón Valur Jensson, 30.9.2018 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband