Leita í fréttum mbl.is

Ísland viðurkenni Taívan

Tsai Ing-wen forseti Taívan talar við Donald Trump

Mynd: Tsai Ing-wen forseti Taívan talar í síma við Donald J. Trump, forseta Bandaríkjanna

****

Öngþveiti og leiðrétting

Hvaða leiðréttingarkerfi slær inn þegar ný stefna er að leysa gamla stefnu af hólmi á heimsvísu. Jú, þá er það öngþveitið sem slær inn, sem hið sjálfgefna leiðréttingarkerfi. Öðruvísi gerast breytingar ekki. En nú er þokunni byrjað að létta. Það leiðréttingarkerfi sem sló inn þegar árið 2008 sló heiminum næstum út, er byrjað að skila niðurstöðum. Það sem við sjáum í dag eru síðustu krampaköst hins gamla heims sem hófst árið 1945. Á næstu örfáum árum er hann svo farinn. Í staðinn verður margt af því sem gagnaðist nítjándu öldinni nógu vel, tekið í notkun á ný og endurbætt. Flestir ismar 20. aldarinnar voru sannkölluð plága fyrir mannkynið og þar með talinn er glóbal-isminn, sem var síðasta isma öskur hins gamla heims sem til varð árið 1945

Og nú er búið að fóðra kommúnista-Kína á öllu því sem hægt var að fóðra það á áratugum saman. En ekkert hefur samt breyst. Landið er eina ferðina enn sokkið enn dýpra niður í það einræðis- og alræðisstjórnarfar sem einkennt hefur Kína frá því að fámenn glæpaklíka kommúnistaflokks tók þar völd og hrakti síðustu réttkjörnu ríkisstjórn landsins frá völdum og út í eyjuna Taívan, þar sem sæti hennar er enn þann dag í dag. Tók svo kommúnistaklíkan til við að tortíma lífum allt að 60 milljónum manna af sínu eigin fólki uppi á meginlandinu. Það klíkufólk kommúnistaflokksins er nú að sauma sér herafla utan um það fé sem Vesturlönd fóðruðu það á, og sem byrjað er að beita á nágrannaríkin, langt út á höf og þar á meðal með Rússum í Eystrasalti

Af hverju hefur Ísland ekki viðurkennt Taívan sem sjálfstætt Kína og ríki á ný, eins og við gerðum fram til ársins 1971. Og af hverju hefur Ísland ekki tekið upp stjórnmálasamband við landið? Þetta er frekar óskiljanlegt í ljósi þess sem gerðist við Eystrasalt þegar kommúnistamúr Evrópu féll. Á Taívan er þó lýðræði og kosið er til bæði forsetaembættis og löggjafarsamkundu, með fjöldann allan af glæsilegum stjórnmálaflokkum og forsetaefnum í framboði

Í Kínverska lýðveldinu á Taívan búa tæplega 25 milljón manns með miklar tekjur og tæknikunnáttu og tæknigetu. Taívan er sjöunda stærsta hagkerfi Asíu og hagtölur þess eru þar að auki réttar. Samvinna við þá í til dæmis sameiginlegu átaki með Bandaríkjunum, gæti jafnvel að hluta til leyst af hólmi þann ferðamannaiðnað sem hér er byrjaður að anda út sem kólnandi hamskiptur óborgari

Ísland ætti að ráðfæra sig við sinn besta bandamann í þessu máli: þ.e. Bandaríki Norður-Ameríku. Margt bendir til að þau séu að endurskoða afstöðu sína til kommúnista-Kína, alveg niður í kjölinn og jafnvel enn dýpra. Það eru ekki bara tollar sem Bandaríkin eru með í smíðum á Kína, heldur einnig heilir hafstraumar af viðurlögum og breiðsíðum

Hér gæti Ísland orðið fyrst til, í stað þess að reyna að vera fyrst til með gamla rauðgræna alræðisstefnu í samgöngumálum, sem á endanum mun kosta okkur borgarana dýrmætt ferðafrelsið og enn meira

Þingmenn frá Taívan komu hingað í heimsókn árið 1998 og varaforseti Taívans kom hingað árið áður og ræddi við íslenska ráðamenn. Það ferli ætti að setja í gang á ný. Árið 1971 er liðið

Fyrri færsla

Eyðileggjandi fólksflutningar að rústa Evrópu 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Hvernig veistu að hagtölur Taiwan séu réttar?

Ertu að leggja til að við hættum að viðurkenna stjórnina í Peking og förum að líta á stjórnina á Taiwan sem löggild stjórnvöld þar?

Hvað eru að meina?

Það er stundum erfitt að átta sig á hvert þú ert að fara vegna skrúðmælgi.

Borgþór Jónsson, 30.9.2018 kl. 10:22

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Gunnar.

Það er sannarlega oft gaman að lesa vangaveltur þínar um stöðu mála hér á jörðu.

Oft mætti þó segja að þú ættir að líta þér nær, því ég er t.a.m. sannfærður um að spilling er meira þrúgandi fyrir almenning hér á Íslandi, heldur en í Kína, sem þú virðist óttast öllu fremur, en það er önnur saga.

Ástæða þess að ég verð stundum að láta í ljós skoðun mína, eða jafnvel leiðrétta þig, er eins og núna, þegar þú að því virðist í fúlustu alvöru að Íslendingar ættu að byrja að troða illsakir við Kínverja og það helst til að þóknast Bandaríkjamönnum, sem þú svo undirlægjulega kallar okkar bestu bandamenn, sem þó spörkuðu í okkur Íslendinga þegar við lágum og þörfnuðumst aðstoðar, eins og mig furðar reyndar að þú skulir ekki muna.

Ég mæli með að þú verðir þér úti um nýlegt viðtal Loga Bergmanns við Ólaf Ragnar Grímsson og hlustir með athygli á frásögn hans af ólíkri framkomu þessara rísandi og fallandi stórvelda gagnvart NATO smáríkinu Íslandi á þessum erfiðu tímum.

Jónatan Karlsson, 30.9.2018 kl. 10:42

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sælir

Enn aftur hittir þú naglann á höfuðið þegar þú segir að öngþveitið sé áhrifamáttur breytinga. Í vikunni fór fram fyrsta uppgjör í Guðmundar og Geirfinnsmálinu. Sniðið til að vekja sem minnstan óróa á rannsókn og  dómum sem voru út úr kú á sinum tíma. Allt þetta öngþveiti sem þú lýsir er partur af mannlegri tilveru. Hef trú á að Kínverjar leysi sín sameiginleg vandamál.

Þegar Me too andhófið er komið inn í stjórnmálin er verið að hleypa yfirþrýstingi úr blöðrunni. Bandaríkjamenn virðast ekki kveinka sér við það. Á Taívan eru menn að aðlagast breyttum háttum. Í viku hverri fá þúsundir íbúar Taívan leyfi til að heimsækja meginlandið og til búsetu.

Eitthvað sem ekki var hugsanlegt fyrir nokkrum misserum. Viðskiptasamningur milli Íslands og Kína sem Össur utanríkisráðherra átti heiðurinn af var mikill framþróun. Fyrir örríkið Ísland er betra að fylgjast með símtölum Herra Trump. Hann hefur komið á samtali Kóreuríkjanna. Treysta áfram á farsæla stefnu hans og einbeita okkur að innlendum vandamálum eins og Jónatan nefndir.

Sigurður Antonsson, 30.9.2018 kl. 12:55

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Sigurður.

Trump kom ekki á  samtali Kóreuríkjanna.

Hann gat ekki komið í veg fyrir samtal Kóreuríkjanna.

Ertu búinn að gleyma æfingunum á Ólympíuleikunum þegar Pence var sendur til að stoppa þessi samskifti. Sem betur fer var hann hundsaður.

Það sem kom á þessum samskiftum var að Kóreumenn kusu forseta sem hafði allt aðra stefnu í þessum málum en fyrirennarar hans og fylgdi þeirri stefnu eftir. Fjölmiðlar okkar kjósa að nefna þetta aldrei. Ef hans nyti ekki við væri ástandið með allt öðrum hætti,jafnvel stríð.

Borgþór Jónsson, 30.9.2018 kl. 13:25

5 identicon

Sæll Gunnar

Þetta er kolvitlaus stundi til að gera það sem þú leggur til. Núna þegar geysar proxy stríði á milli bna og kína, þá er ekki rétti tíminn til að fara þykjast vera vinir bna.

Best er að anda létt og ekki vekja athygli á sér á meðan trump er í embætti. Fyrir Ísland að taka aftsöðu á þessum tímapunkti væri mjög óskynsamlegt, og til hvers? Til að sleikja Trump upp? Eins og ég sagði, það er gott á meðan Trump veit ekki af tilvist Íslands.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 30.9.2018 kl. 13:50

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Það er frekar ámátlegt að horfa hér upp á fjóra harða vinstrimenn koma hingað á bloggsíðu mína til að láta afkomendur okkar fara hjá sér, þegar fram líða stundir.

Sem sagt. Mann- og réttlætismál á einungis að hugsa um í heilabúum vinstrimanna þegar það kemur sér vel fyrir vinstrimenn en illa fyrir hægrimenn.

Ég geri ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn láti þetta mál til sín taka, og taki þetta mál upp í ríkisstjórn til að halda merki Íslands á lofti, ásamt  því að vinna heiminum, eins og hann er, eitthvað gott gagn í stað ógagns. 

Næst á eftir því að bjarga strax þeim Íslendingum sem eru að deyja hér á biðlistum núna, með því að heilbrigðisráðherra Íslands segi af sér strax í dag, í stað þess að ætla að bjarga fjarlægum heimsálfum frá einhverju sem enginn veit hvort verður eftir tvö hundruð þúsund ár, með kukli eftir 10 ár, þá er þetta mál sem allir sanngjarnir Íslendingar ættu að geta sameinast um.

Kína tókst í fyrra að grafa undan stjórnmálasambandi El Salvador við Taívan með því að lofa þeim fjárfestingum í hafnarmannvirkjum. Viðbrögð bandarísku ríkisstjórnarinnar komu samstundis. Hún kallaði sendiherra sinn í El Salvador heim og lét það ekki nægja, heldur gerði það sama með sendiherra Bandaríkjanna í Panama og Dóminíska lýðveldinu. Blaðafulltrúi Hvíta hússins, Sara Sanders, sagði að sú ákvörðun El Salvador að selja stjórnmálasambandið við Taívan fyrir peninga, hefði skaðað stjórnmálasambandið við Washington svo mikið að það myndi taka áratugi að bæta úr.

Og Sigurður, ég sagði ekki að "öngþveitið sé áhrifamáttur breytinga". Ég sagði að það leiðréttingarkerfi sem slær inn þegar ný stefna er að leysa gamla stefnu af hólmi á heimsvísu, sé öngþveitið, sem þá  slær inn, sem hið sjálfgefna leiðréttingarkerfi. Svipað og bíll sem hrekkur úr gír hrekkur sjálfkrafa í lömunarástand hins óvirka gírs sem kallaður er hinn hlutlausi. Öðruvísi gerast breytingar ekki (gírskipti). Það er áhrifamáttur breytinga sem kallar öngþveitið fram. Skoða ber því þau öskur sem nú heyrast með þeim augum. Þau eru einkenni um að breytingar séu nú þegar að fara fram, og að áhrifin sem þær valda koma fram sem öskur úr heilabúum þeirra sem reyna að halda fast í heim sem er að hverfa. Heimurinn heldur áfram að snúast þó svo að þessar breytingar séu að fara fram. Það er vitað.

Stjórnmálasamband Íslands við Taívan er mál sem taka þarf fyrir og skipta um skoðun á, vegna þess að heimurinn er að breytast og er nú þegar orðinn töluvert mikið breyttur miðað við bæði 2008 og nóvember 2016.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.9.2018 kl. 15:46

7 Smámynd: Borgþór Jónsson

Gunnari sést yfir þá einföldu staðreynd að Taiwan er ekki ríki og hefur mér vitanlega ekki gefið til kynna neina löngun til slíks.

Ég vil endilega taka upp stjórnmálasamband við Sjáland. og Korsíku. Væri það ekki gaman.

Atburðirnir í El Salvador eru einkenni um breytta tíma. Nú er komið annað land auk Bandaríkjanna sem getur keyft ríkisstjórnir. Þetta er afar jákvætt af því að nú kemur markaðsverð ríkisstjórna til með að hækka verulega. Fleiri ríki eiga eftir að bætast í hóp kaupenda. Þetta er afar mikilvægt,af því að einokun í þessum efnum er afar óheppileg. Þetta er kallað "multipolar world" og er að taka við af lamandi einokun Bandaríkjanna. 

Það eru miklar breytingar í lofti,ég vil segja vor í lofti,en þær verða alls ekki með þeim hætti sem Gunnar óskar sér. 

Nú eru að hefjast átök Bandaríkjanna annarsvegar og Evrópu ,Rússlands og Kína hinsvegar. Feimnislega eru Evrópuríkin að stíga gætileg skref til sjálfstæðis. Þetta hefur ekki gerst í hundrað ár.

Bandaríkjamenn eru borubrattir að venju,en í þetta sinn er hljómurinn svolítið holur. Bandaríkin eru ekki lengur það ofurvald sem þau voru. Evrópubúar eiga nóg af skotfærum ef þeir ákveða að láta sverfa til stáls.

Bæði Kína og Rússland eru með tæki til að slökkva ljósin í Bandaríkjunum og ég er ekki að tala um vopn.

Þessi ríki eru sem betur fer hófsöm í framgöngu og vilja vinna þetta verk með sem minnstum aukaverkunum. Bandaríska heimsveldið verður kyrkt hægt og rólega. Þeir ákveða svo hvað þeir vilja sprikla mikið. Kannski verða þeir eins og Hitler sem vildi kveðja með sem mestum hvelli. Kannski verða þeir eins og Gorbachev sem sá að það var best að gefa eftir án blóðsúthellinga.

Tíminn leiðir þetta í ljós.  

Borgþór Jónsson, 30.9.2018 kl. 19:18

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Taívan, þ.e. Kínverska lýðveldið (e. Republic of China, skammstafað ROC)  er vissulega ríki og það er vissulega mörgum sinnum meira ríki en Kína kommúnistaflokksins á meginlandinu, þar sem klíka kommúnista hrifsaði til sín völdin eins og að mafía hefði hrifsað til sín völd í hvaða ríki sem er.

Kínverska lýðveldið Taívan átti sitt fasta sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem Kína, fram til 1971, þegar það tapaði því vegna þess að Sino-Sovét-öxullinn brotnaði í Kalda stríðinu sem Sovétríkin töpuðu og sem Rússland er nú að reyna að endurreisa. Taívan varð fórnarlamb Kalda stríðsins, sem snérist um að hefta útbreiðslu hins banvæna kommúnisma 20. aldar og sem er banvænn enn, eins og sést á einræðisherradæmi Pekings í dag.

En nú eru tímarnir breyttir og rétti tíminn er runninn upp til að viðurkenna Kínverska lýðveldið á Taívan sem hið eina rétta Kína og jafnvel hætta að viðurkenna þá Peking-klíku sem aldrei átti að viðurkenna sem Kína, því hún er algerlega umboðslaus valdaránsklíka einræðisherradæmis og hin stóra skömm Jarðar.

Gunnar Rögnvaldsson, 30.9.2018 kl. 21:54

9 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þó einhver eyja segist vera ríki ,er hún ekki ríki nema vera viðurkennd sem slík á alþjóða vettvangi og Taiwan hefur ekki slíka viðurkenningu,og sækist ekki eftir henni.

Það eru nokkur ríki sem viðurkenna Taiwan sem stjórnvöld í Kína,mest smáeyjar í Kyrrahafinu og Karabiska hafinu.

Eftir að hafa hinkrað við í 21 ár og sjá hver þróunin yrði,ákváðu þjóðir heims árið 1971 með miklum meirihluta að viðurkenna stjórnina í Peking sem fulltrúa Kína hjá sameinuðu þjóðunum.

Það var í raun ekkert annað hægt,hvort sem mönum líkaði vel eða illa við þesa stjórn. Það var öllum ljóst að þessi stjórn var komin til að vera og stjórnaði þessu landi án nokkurs vafa. Taiwanstjórnin hafði ekki lengur nokkurt umboð frá meginlandskínverjum til að stjórna Kína eða nokkur áhrif á gang mála í því landi. Það var því algerlega óraunhæft að hanga á því lengur. 

Ég er að sjálfsögðu ekki kunnugur Taiwönsku þjóðarsálinni,en mér segir svo hugur að ef Taiwan búum gæfist kostur á að sameinast Kína aftur,mundu þeir ekki vilja það.

Taiwan búar lifa við umtalsvert betri kjör en Kínverjar og þeir mundu einfaldlega tínast í Kínverska ríkinu. Þetta yrði einskonar öfug sameining Þýskalands þar sem fátæki hlutinn mundi draga hinn ríkari niður,en ekki öfugt. Stjórnarfarið og stjórnvöld mundi líka verða allt önnur,en Taiwanbúar mundu einfaldlega týnast í fjöldann. Það er ekki eins og núverandi Taiwan stjórn geti bara yfirtekið hreysið og stjórnað upp frá því 

Ég held að þessi yfirráðaárátta Taiwanstjórnar yfir Kína sé bara eitthvað sem þeir orna sér yfir við eldinn á kvöldin,en vilja síst af öllu að raungerist. Þeir græða líka svolítinn pening á að halda þessu við og tryggja öryggi sitt í leiðinni.

Það er því fyrir bestu Gunnar að þú hættir við þessi áform þín um sameiningu þessara Kínversku landshluta. 

Borgþór Jónsson, 1.10.2018 kl. 09:26

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jónatan Karlsson er iðinn við kolann,ekki er maður fyrr búinn að mæla með dugmiklum pólitískum lýðræðis elskandi flokki,þegar hann finnur meinbaug á mannavali þeirra. Við sem kjósum þá treystum þeim fyrir Íslandi. 

Hverjir voru við stjórn þegar BNA hafnaði aðstoð við okkur,engir aðrir en glóparnir Hillary og Obama. 

Lýðræðisríki getur komið óvinsælum ráðamönnum frá,sem kommúnistaríki geta ekki.

 Vitetnömsk kona sem hjálpar mér stundum,segir mér að Kínverjar hefðu stundað það að höggva fætur undan dráttardýrum (uxum),þannig að Víetnamar neyddust til að kaupa traktora sem þeir voru farnir að framleiða. Er hægt að hugsa sér stjórnir lýðræðisríkja ganga svona fram.

Helga Kristjánsdóttir, 1.10.2018 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband