Þriðjudagur, 21. maí 2019
Frá varðstöðu Miðflokksins á Alþingi síðustu nótt
Einn á vakt í þágu þjóðar. Einn góður flokkur og annar
Nokkrir góðir menn Miðflokksins stóðu vaktina gegn orkupakkaveldi ESB á Alþingi síðustu nótt. Orkupakkaveldi ESB er fjarlægt, umboðslaust og skattfrjálst heimsveldi sem borað hefur út að innan þá flokka sem þjösna vilja réttindum þjóðarinnar fyrir borð, í sjóinn og út úr heiminum. Þá flokka skyldi enginn að kjósa án þess að hafa verra af, því lengi getur vont versnað eins og löng saga okkar sannar. Fólk ætti hins vegar að kjósa þá flokka sem standa gegn þeim flokkum sem við minnsta goluþyt hrökkva skelkaðir á sjálfskiptingunni í brauðið, og neita að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar. Þannig flokka er ekki á neinn vetur setjandi. Þeim á að refsa hart. Þeir flokkar sem hins vegar standa gegn orkupakkaheimsveldi ESB eru Miðflokkur og Flokkur fólksins. Svona gekk varðstaða Miðflokksins fyrir sig á Alþingi Íslendinga, frá mínu kjördæmi séð, síðustu nótt. Þakka ég forfeðrum mínum fyrir að hafa endurreist Alþingi, fært okkur fullt vald í okkar málum (annars væri um ekkert að ræða) og fyrir 200 sjómílur, hitaveitur og raforkuveldi Íslendinga í þágu þjóðar. Takk
Umræður héldu þó áfram, nú fram á miðvikudag 22. maí 2019 til kl. 08:42. Í meira en 12 stundir. Heilar 19 klukkustundir segir hér
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:06:50
Umræða stendur yfir á Alþingi Íslendinga um ESB-orkupakka3. Reyna á að troða honum með illu niður kok íslensku þjóðarinnar og algerlega gegn aðkomu hennar og þjóðarvilja. Anað er inn í enn eina ESB-helferðina engum til gagns, en öllum til ógagns. Þetta er endurútgáfa bankapakka ESB/EES, sem var misfóstur. Þetta er og verður stærra misfóstur en Icesave. Áföll fyrir þjóðina áratugum saman
Miðflokkurinn stendur vaktina
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:39:08
SDG segir að OP3 sé kynntur sem bein afleiðing OP1+OP2. Og þegar næsta högg frá ESB kemur, að þá verði það kynnt sem bein afleiðing af því að hafa látið berja einu sinni, tvisvar og þrisvar. Þá kemur fjórbarningurinn og svo fimmbarningurinn
Ísland verður því barið þar til það segir stopp. Aftur og aftur. Allir sem láta berja sig verða barðir aftur og aftur þar til þeir segja stopp og taka málin í sínar eigin hendur
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn notbremsenresistent vegna duglausrar forystu. Hann húrrar því áfram stjórnlaus til heljar eins og plokkfiskur löngu kominn fram yfir síðasta örugga neysludag
Forystu xD vantar allan þann fælnimátt sem hún var kosin til að viðhafa þegar um þjóðarhagsmuni okkar er að ræða. Hún á að vera deterrence fyrir hönd Íslands, en er því miður einungis liðleskja og viljalaust verkfæri í höndum annarra
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:59:26
Jón Þór Þorvaldsson segir:
Yfirþjóðlegt vald ACER staðfest
Auðvitað er ACER hluti af yfirríki ESB. Danska orkustofnunin segir það líka
Og NS2 var hrifsað úr höndum Þýskalands með yfirríkislegu valdi sem er með ACER undir sér. Sjá hér: ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3
OP3 mikilvægur því þá hætta OP1+2 að vera bara innanríkismál og verða milliríkjamál (cross border mál með ACER sem "resolution mekanisma" eins og að um cross-border banka væri að ræða)
Þrýstingur settur á íslensk stjórnvöld. Íslandi liggur ekkert á í þessu máli. Þetta er mál annarra, en ekki okkar hér á Íslandi. Við erum að missa forræðið. Þess vegna er þrýst á okkur. Við eigum að segja nei
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 01:34:59
Karl Gauti Hjaltason segir að við séum að neyta íslensk grænmetis vegna raforku okkar og nýtingu jarðvarma, og Jón Þór Þorvaldsson segir að við séum að missa fullveldið í þessum málum okkur til mikils skaða. Mikil þróun á túrbínum í vændum sem við ættum að huga að. Já eins og við þróuðum síldveiðar fyrstir allra
Karl Gauti Hjaltason segir að við eigum að flagga hér rauðu því verið sé að læðast með þjóðarréttindamál fram hjá íslensku þjóðinni. Engir fyrirvara munu halda
Gunnar Bragi Sveinsson segir að sjálft ferli málsins sé það að við verðum aðilar að orkusambandi þar sem lög yfirríkis ESB gilda
Karl Gauti Hjaltason segir fordæmið í þessum málum sjáist í innflutningi á matvælum til skaða fyrir Ísland og landbúnað okkar. Þar sem valtað var yfir allt Ísland og alla fyrirvara þess. Sé þetta innleitt verður ekki snúið til baka. Að sjálfsögðu ekki. Yfir-ríki er jú yfirríki
Gunnar Bragi Sveinsson segir að við séum að innleiða hugmyndafræði sem sé okkur framandi og ógnandi. Já að sjálfsögðu, enda bað enginn Íslendingur um þetta. Enginn Íslendingur hefur beðið um þetta. Þetta eru einkavæðingarpakkar þar sem súrefni þjóðarinnar á að gera að braski í höndum innlendra og erlendra óligarka
Karl Gauti Hjaltason segir að þetta mál allt geti verið tifandi tímasprengja undir orkuhagkerfi Íslands
Jón Þór Þorvaldsson segir segir að við eigum að segja nei, því þá höfum við valkost. Já algerlega óþolandi að láta stilla þjóðinni svona upp við vegg eins og að ESB sé aftökusveit og EES vopn þess
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 01:51:28
Gunnar Bragi Sveinsson segir að ákvæðið um "frjáls viðskipti" þýði að Íslandi verði gert að tengjast, alveg sama hvað. Það sé þannig
Já. Það missa allir virðingu fyrir þjóð sem afsalar sér valdi sem hún þarf ekki að gera. Það verður að láta reyna á þetta fyrir rétti. Það verður. Það er algjör lágmarkskrafa
Laga mér kaffi og fæ mér snúða sem konan mín bakaði og fer út og tala við hrossagaukinn og rjúpuna. Hún svarði mér um daginn
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 02:14:12
Þorsteinn Sæmundsson segir að ekkert hafði breyst í hans afstöðu. En það sé hins vegar rannsóknarefni hvað varð um afstöðu þingflokks Framsóknarflokksins um að ekki ætti að afhenda útlendum orkumálefni okkar. Hið sama gildir um þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Hlaupið frá öllu
Já vel á minnst. Í svakalega góðri grein Viðars Guðjohnsen í Morgunblaðinu mánudaginn 20. maí 2019 áréttar hann eftirfarandi:
Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929 við sameiningu Frjálslynda flokksins og Íhaldsflokksins í kringum tvö ófrávíkjanleg aðalstefnumál sem birtust m.a. í Morgunblaðinu daginn eftir stofnun flokksins. Fyrsta aðalstefnumálið var að "Ísland taki að fullu og öllu sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina" en hitt var "að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum." Markmið þessi eru enn þann daginn í dag bundin í lög flokksins. Mikilvægi þeirra má m.a. sjá á staðsetningu þeirra í lögum flokksins en fyrrnefnd aðalstefnumál má finna strax í annarri grein laganna (fyrsta greinin fjallar um nafn flokksins). Það mætti með réttu segja að aðalstefnumálin tvö hafi hitt þjóðina í hjartastað því Sjálfstæðisflokkurinn varð strax frá stofnun að pólitískri burðarstoð sem setti Ísland og fullveldið í fyrsta sætið [..]
En hvað gerðist! Já hvað gerðist. Árið 2019 hittir xD íslensku þjóðina með eiturörvum í hjartastað. Hvar eru greinar Bjarna Ben um hjarta Íslands. Það eina sem frá honum kemur er kúguð þögn, þöggun og einstöku stafur um að Íslandi sé best borgið á altari útsölubrasks
Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi Íslendinga
Böðla á þessu máli í gegn. En þarna er Miðflokkurinn eina viðspyrna þjóðarinnar
xD liggur í rúst
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 02:38:16
Birgir Þórarinsson segir hvar værum við stödd ef við hefðum látið stjórnast af þeim ótta sem notaður er til að kúga orkupakka ESB ofan í þjóðina. Þá hefðum við enga landhelgi í dag. Nei, auðvitað hefðum við hana ekki, og heldur engar stórvirkjanir. Við VERÐUM að fá betri niðurstöðu í þetta mál en þá sem ríkisstjórnin með kratatöflu-stapparann að vopni er að troða niður kok þjóðarinnar
Já það er einmitt svona sem ESB kemur inn í þjóðríki þjóðanna; sem tundurspillir sem tekur súrefnið frá þjóðum. Tilgangurinn er að sundra, spilla, etja fólki saman og upp á móti þjóðfélagi sínu og koma þjóðríkinu fyrir á biðlistanum eftir engu nema þeim hægfara dauða sem ég kynntist svo vel á meginlandi Evrópu
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:07:53
Bergþór Ólafsson segir mikið vill meira. Aflands aflátsbréfasala í orkumálum stunduð
Já einmitt, alþjóðlegt pornó af verstu embættismannasort
Þorsteinn Sæmundsson talar um möguleika íslenskrar garðyrkju. En á sama tíma er lögð fram tillaga Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar framboðs (og eftirspurnar) um að slátra garðyrkjubændum. Já þetta er enn verra en svo. Danir þurfa að henda bestu tómötum landsins frá Fjóni vegna innflutnings rusls frá 50 þusund tonna eiturbrasi á ökrunum í Suður-Evrópu þar sem uppskeran er pínd upp með þúsundum tonna af eitri
Birgir Þórarinsson orkupakkar 1+2 hafa ekki orðið Íslandi til góðs. Þvert á móti. Þeir bönnuðu að sérþörfum Íslendinga væri sinnt og hægt að uppfylla. Stjórnmálamenn hafa ekki staðið sig í að verja þjóðarhagsmuni Íslands. Ömurleg þjóðarvakt. Þjóðin beygð
Já og svo brotnar hún. Takmarkað ríkisvald getur aldrei þrifist í kúgunarkerfum. Það verður alltaf ótakmarkað ríkisvald eins og við erum að upplifa hér og nú. Og þá er aðeins hægt að halda löndum saman með sífellt svæsnara ofbeldi. Þetta er leiðin til ánauðar
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:30:30
Wolfgang Munchau ESB-fíkill skrifaði einu sinni um sjálfstortímingarferil Evrópusambandsins, því sannarlega er einmitt um það að ræða þegar takmarkað ríkisvaldi hverfur af sviðinu. Hann sagði að Evrópusambandið væri orðið notbremsenresistent fyrirbæri. Ekkert þýddi að nota neyðarbremsunar því sambandið væri orðið ónæmt fyrir þeim. Staða Sjálfstæðisflokksins er orðin sú sama. Hrun hans er orðið notbremsenresistent
Birgir Þórarinsson talar um uppnámskenningar-þvælu ríkisstjórnar um ESS. Já þetta er sama þvælan og viðhöfð er um allt í öllum löndum sambandsins. Þegar andstaða er við mál og málefni tengd yfirríki ESB. Þá breytast jafnvel lönd á miðju meginlandi Evrópu í að verða að útkjálkalöndum og allsherjar Kúba er alltaf á næsta leyti. Eins og að ESB sé einmitt ekki Kúban sjálf í sjálfu sér, og sem ávallt kallar á að Kúbversk stjórnmál séu viðhöfð. Það er einmitt þannig
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:34:39
Miðflokkurinn stendur enn einn vaktina fyrir íslensku þjóðina á Alþingi Íslendinga
Hattur ofan!
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:50:39
Þorsteinn Sæmundsson biður Steingrím J. Sigfússon þingforseta um að gera grein fyrir pólskiptum sínum í málinu
SJS er sá sem sveik kjósendur flokks síns svo hrikalega að aldrei hefur annað sést í sögu Íslands. Þetta þjóðvikagengi sem þarna ræður för er algjörlega óþolandi fyrir land og þjóð. Þessu verður að linna. Takið ykkur saman vesalingar!
Hvaða undirliggjandi duldir hagsmunir eru hér á ferð spyr Jón Þór Þorvaldsson. Af verju er þetta svona?
Þorsteinn Sæmundsson, það er eitthvað afl hér á ferðinni annað en Íslenska þjóðin. Þjóðin má ekki verða fyrir þessu tjóni sem hér er í uppsiglingu
Jón Þór Þorvaldsson spyr. Ætla stjórnarliðar þá að kalla Jón Sigurðsson forseta lýðskrumara eða popúlista, eins og þeir kalla þann mikla meirihluta þjóðarinnar sem hér er algerlega andvígur?
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:08:21
Athugasemd barst frá Helgu bloggvinkonu minni, þar sem hún sagði frá því að Jón Baldvin Hannibalsson hefði sagt að raforka á Íslandi væri takmörkuð auðlind
Þakka þér Helga. Já hún er takmörkuð. Það eina sem er ótakmarkað er heimska ríkisstjórnarinnar og svik flokka hennar við kjósendur sína
Jón Þór Þorvaldsson spyr. Af hverju lætur utanríkisráðherra eins og málið sem hann lagði fram sé ekki til
Birgir Þórarinsson segir ekkert að marka það sem stendur í stjórnarsáttmála um að efla Alþingi. Enginn úr stjórnarliðinu lætur svo lítið að virða þingið og þjóðina viðlits í þessu máli
Af hverju er það mál sem átti að vera um ekkert og engu máli skipta svona mikilvægt að heimurinn er sagður hrynja sé því ekki kyngt. Auðvitað vegna þess að hér er verið er reyna að svíkja þjóðina
Hvernig getur ríkisstjórnin verið svona algerlega úr takti við þá þjóð hverrar hagsmuna hún er kjörin til að verja. Já þetta er gerræðislegt!
Ríkisstjórnin virðist veða galeiða þræla sem búið er að skera tunguna úr. Engin rök. Bara sjálfstýring. Steypa er hollur matur, segir hún. Étið og kyngið
Þetta er sovéskt!
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:48:32
Enn stendur Miðflokkurinn einn vaktina á Alþingi Íslendinga
Jú raforkan á Íslandi er takmörkuð. Alveg eins og fiskveiðistofnar í landhelgi Íslands eru takmörkuð stærð
Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orkudreifingarfyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?
Birgir Þórarinsson segir að svokölluð "neytendavernd" (ha ha ha) í þessu máli sé þvæla. Íslendingar missa vernd sinna þjóðkjörnu fulltrúa í orkumálum og standa eftir einir og berskjaldaðir vegna gunguskaps Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar framboðs, við lófaklapp Viðeirsnar, Samfylkingar og Pírata
Já. Þessir flokkar hanga nú eins og myllusteinn um háls þjóðarinnar
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:59:34
Er þá hugmyndafræði kvótakerfisins fallin líka? Fyrst að eitt er ekki látið yfir allar takmarkaðar auðlindir Íslands jafnt ganga
Orkupakkar ESB eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Einkavæða á súrefni þjóðarinnar. Taka af henni vopnin í hinu eilífa kalda stríði okkar við kuldann. Láta súrefni þjóðarinnar í hendur óligarkískra braskara sem koma munu öllu á hausinn og láta þjóðina um tapið
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:13:42
Þorsteinn Sæmundsson spyr hvort að þetta geti endað með því að Landsvirkjun þjóðarinnar verði höggvin upp og seld í bútum til vogunarsjóða (eins og í Danmörku, eftir 100 ára eignarhald þeirra þjóðar á sínu)
Já auðvitað verður hún höggvin upp. Þetta er nýr ESB-bankabraskpakki2, þar sem allar útkomur áfalla eru háðar þjóðerni. Þetta eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar enda var eingöngu talað um þetta mál undir þeim formerkjum í Danmörku d. privatisering/liberalisering
Getulausa braskliðinu sem kom Íslandi næstum á hausinn vantar ný leikföng til að tapa á og þurrka tapinu yfir á þjóðina. Vantar að geta borað Ísland út að innan
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:30:14
Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi
Jón Þór Þorvaldsson talar um skyndilegan áhuga braskliðs Íslands á orkumálum
Já þetta eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Það verða menn að hafa efst í huga. Og til að hrifsa þessar eigur úr höndum þjóðarinnar þá ætla íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel), til að ná þessum eigum úr höndum þjóðarinnar, með erlendum lögum. Annars væri það nefnilega ekki hægt. Með EES-samninginn að vopni sækja þeir sér erlendan verndara valda sinna
Bjarni Ben er jú ekki beint þekktur fyrir að vera ekki í braskliðinu. Vantraustið á Bjarna vegna þessa liðs fer ekki. Það er límt fast við formennsku hans. Það fer ekki og Sjálfstæðisflokkurinn fer því niður með honum
Ólafur Ísleifsson talar um þokulúðrasveitina sem spilar þokubakkana um svo kallaða "fyrirvara". Þjóðin er leidd inn í þokubakka. Þeir taka á sig alls konar nýjar skuggamyndir hvern einasta dag sem líður
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:40:13
Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi
Jón Þór Þorvaldsson talar um að norska ríkisstjórnin hafi verið kærð fyrir að brjóta stjórnarskrá landsins vegna orkupakka3
þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:43:26
Þingforseti slítur fundi og málinu er frestað
Hattur ofan fyrir þingmönnum Miðflokksins!
099 SIGNOFF
Fyrri færsla
Evrópusambandið er að leysast upp segja kjósendur í ESB - telja styrjöld á næsta leiti
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2019 kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Mánudagur, 20. maí 2019
Evrópusambandið er að leysast upp segja kjósendur í ESB - telja styrjöld á næsta leiti
Mynd, evruupptakari: Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki vissum tveimur nöfnum. Allar útkomur úr áföllum í ESB eru háðar þjóðerni
****
Evrópusambandið mun liðast í sundur á næstu 10-20 árum
Ný könnun European Council on Foreign Relations, sem lét YouGov kanna viðhorf 60 þúsund kjósenda í 14 löndum Evrópusambandsins í mars og apríl 2019, kemur eins og krepptur hnefi framan í elítur ESB, nú rétt fyrir kjördag til gúmmístimpilsþings þess, dagana 23. til 25. maí næstkomandi
Í öllum löndum sem könnunin nær til, nema á Spáni, segir meirihluti kjósenda raunhæft eða líklegt að Evrópusambandið leysist upp á næstu 10-20 árum. Í niðurstöðum könnunarinnar er þó aðeins sagt frá afstöðu kjósenda í fimm löndum til einmitt þessarar spurningar. Ætla má að í hinum löndunum hafi tölurnar varðandi þessa spurningu verið svo harðar þrúgur reiðinnar, að þær séu ekki birtar af ótta við það sem þær segja
Í Frakklandi sega 58 prósent þeirra sem tóku afstöðu að Evrópusambandið muni liðast sundur á næstu 10-20 árum. Í Þýskalandi var þessi tala 50 prósent. Á Ítalíu er hún 57 prósent og 57 prósent Pólverja sögðu hið sama. Aðeins á Spáni var talan undir 50 prósent, eða 40 prósent
Styrjöld milli landa Evrópusambandsins innan 10 ára
Spurt var einnig hversu líklegt kjósendur teldu að styrjöld muni skella á á milli landa Evrópusambandsins á næstu 10 árum. Í Frakklandi telja samtals 35 prósent kjósenda að styrjöld muni skella á innan næstu 10 ára. Mestar áhyggjur hefur yngra fólkið í Frakklandi. En 35 prósent (24-34 ára) og 46 prósent (18-24 ára) yngri Frakka á kosningaaldri telja styrjöld skella á innan næstu 10 ára
25 prósent Þjóðverja segja hið sama, en 30 prósent ungs fólk þar í landi segir svo verða. Sem sagt: fjórðungur Þjóðverja segir að styrjöld skelli á innan næstu 10 ára og þýskir á aldrinum 25-34 ára hafa mestar áhyggjur, eða 36 prósentur þeirra
Í Hollandi telja 38 prósent kjósenda að styrjöld skelli á innan næstu 10 ára. Þar segja 51 prósentur ungs fólks á aldrinum 18-24 ára, að svo verði raunin. Og 43 prósent þeirra sem eru 25-34 ára núna. Þroskaðra fólk í Hollandi er jafn áhyggjufullt og í Frakklandi, en þar liggja tölurnar á milli 27 og 41 prósent
Í næsta nágrenni Þýskalands segja 35 prósent Austurríkismanna að styrjöld skelli á innan 10 ára og helmingur(!) fólks á aldrinum 25-34 ára í því landi segir svo verða. Svipaða sögu er að segja frá Tékklandi, Póllandi og Ungverjalandi
Minnstar áhyggjur hafa Danir í þessum efnum, eða 17 prósent, en yngra fólk á aldrinum 24-34 ára hefur þó mestar áhyggjur í Danmörku, eða rúmlega fjórðungur þess. En Svíar eru hins vegar jafn svartsýnir Þjóðverjar, og einnig þar eru ungir Svíar áhyggjufyllstir um framtíðina. Innflytjendamál, íslam og öfgar er púðurtunna fyrir alla Evrópu, segja kjósendur í löndum hennar. Í öllum löndunum er áberandi hversu ungt fólk er svartsýnt á framtíðina
Danmörk er enn nokkuð söm við landfræðilega varnargetulausa sjálfa sig, já, því viku fyrir innrás Þjóðverja í apríl 1940, skrifaði dagblaðið Politiken að Winston Churchill væri hættulegur stríðsmangari sem enginn Dani skyldi taka mark á. Ekkert á því blaði hefur að sjálfsögðu breyst síðan þá, nema það að upplag blaðsins jafnaði sig aldrei. Það er enn hrunið, svipað og Sjálfstæðisflokkurinn er að hrynja núna, því sá flokkur er lentur undir gervigrasrúllum forystunnar. Þar fer nú fram annað orkuspark gervigrasræktenda Valhallar, til okkar flokksmanna og kjósenda á innan við 10 árum. Ekki ætla ég að lenda undir astrótorfrúllum Valhallar á Andrómedu
Minni tækifæri en foreldrarnir höfðu
Í engu landi sem könnunin segir frá, telur fólk að það njóti meiri og betri tækifæra en foreldrar þess höfðu. Og aðeins 20 prósent kjósenda myndu sakna myntarinnar evru, þegar Evrópusambandið leysist upp. Og aðeins 25 prósentur kjósenda myndu sakna sjálfs hins stofnanalega tilgangs Evrópusambandelíta, þegar hann fer í ruslið. En hann var alltaf -og er enn- sá að reyna að ná og skáka Bandaríkjum Norður-Ameríku í veldi, hagsæld, ríkidæmi og framförum. Þess eina lands veraldar sem ábyrgist þjóðaröryggi næstum allra þeirra landa sem tóku þátt í könnuninni, og hefur getu til þess
Tómir kjörkassar og astrótorf
Þessar fréttir eru vissulega áfall nú nokkrum dögum fyrir kjördag. Enda er það engin tilviljun að þær birtast núna. Reyna á að reka fólk inn í kjörklefana til að koma í veg fyrir 13 prósent kosningaþátttöku eins og í Slóvakíu síðast (2014), er kostið var til gervigrasþings ESB, þar sem enginn hefur tillögurétt, nema ókjörin elíta framkvæmdastjórnar sem hvorki er hægt að reka né kjósa burt. Í heild var kosningaþátttakan 42,61 prósent árið 2014. En hún hefur verið hrynjandi í takt við þróun ESB, eða frá og með kosningunum 1979, þegar þær í fyrsta sinn fóru fram, en þá tóku 61,99 prósent þátt í þeim. Árið 1999 var þátttakan komin undir 50 prósentin og fróðlegt verður að sjá hvernig astrótorf elíta sambandsins kemur upp úr gúmmíkjörkössum ESB á næstu vikum
Að lokum: Nóbels-friðarþvæla viðskipta
Bók Norman Angell, The Great Illusion, fékk miklar viðtökur þegar hún kom út í Evrópu árið 1909. En þar sagði hann að styrjöld milli landa Evrópu væri óhugsandi sökum þess hve þétt, samofin og mikil viðskipti væru orðin milli landa álfunnar. Fimm árum síðar hófst því Fyrri heimsstyrjöldin. Höfundurinn fékk samt friðarverðlaun Nóbels árið 1933, fyrir framlagið, og hófst því Síðari heimsstyrjöldin sex árum síðar. Hún hófst sem réttinda- og landamæraerjur og var álitin staðbundið framhald af þeirri fyrri. Þær erjur fengu svo nafnið Síðari heimsstyrjöldin þegar Þýskaland réðst inn í Rússland og lýsti stríði á hendur Bandaríkjunum í desember 1941, og hvers kanslari að hætti glórulausrar ESB-Merkels, spurði hvar Perluhöfn væri á landakortinu. Þar með fékk Stríðið mikla frá 1914 til 1918 nafnið Fyrri heimsstyrjöldin, og sú sem þar með geisaði þá, um allan heim, fékk nafnið Síðari heimsstyrjöldin
..og um það sem ekki sést
Makró-pólitískir atburðir hafa oft þá tilhneigingu að þeim slær fyrirvaralaust niður til jarðar ofan úr hinu pólitíska stratósferi háloftanna, þar sem stórar grunnpólitískar hugmyndir eigast við. Fjölmiðlar fylgjast ekki með í þeim loftslögum. Þeir fylgjast aðeins með í hinum mikrópólitíska heimi þar sem poppkornin skoppa um alla daga ársins. Þeir sáu ekki hrun Sovétríkjanna fyrir. Þeir sáu ekki Fyrri heimstyrjöldina fyrir, og heldur ekki þá síðari. Þeir sáu ekki Brexit fyrir, og allra síst sáu þeir kjör Donalds J. Trump fyrir. Og ef menn fletta dagblöðum og tímaritum veraldar, þá stendur ekkert um 70 ára fæðingarhríðir nýs ríkis í heiminn, Ísraels, á síðum neinna fjölmiðla. Þar er söguna ekki að finna, þó svo að framvinda hennar hafi farið fram í mannaheimum, beint fyrir framan nef flestra fjölmiðla heimsins
Það er ekki bara Bjarni Ben sem borðar astrótorf með því að hafa sagt í fyrra að "raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB". Það sagði hann á Alþingi Íslendinga. En svo kom vagninn með astrótorf-rúllum og tók hið viljalausa verkfæri sem formaður Sjálfstæðisflokksins er, og sem þorir jafnvel ekki að standa í litlutá, og fór með hann alla leið til Andrómedu
Smellið til að horfa á varanlega dómgreindarskertan Bjarna Ben, fyrir astrótorf, í mars 2018, en eftir Icesave
Fyrri færsla
Baráttan gegn orkupakkaveldi ESB á Alþingi síðustu nótt [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.5.2019 kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Fimmtudagur, 16. maí 2019
Baráttan gegn orkupakkaveldi ESB á Alþingi síðustu nótt [u]
Mynd tekin kl. 06:30 fimmtudaginn 16. maí 2019, eftir varðstöðu alla nóttina á Alþingi Íslendinga. Þingmenn (varðmenn) Miðflokksins; Karl Gauti Hjaltason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birgir Þórarinsson, Bergþór Ólason og Jón Þór Þorvaldsson
****
Miðflokksmenn stóðu vaktina á Alþingi Íslendinga alla síðustu nótt. Eini flokkurinn sem ásamt Flokki fólksins þorir að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar. Alla nóttina voru þessir Miðflokksmenn á vaktinni á meðan hinir sváfu Icesavesvefninum langa, og sem engu hafa gleymt en ekkert lært, og eru því aftur hrokknir í brauðið. Ég fylgdist með og fékk þarna kærkomið tækifæri til að kynnast þessum öfluga hóp þingmanna Miðflokksins. Svona sá ég varðstöðu Miðflokksins, héðan frá úr mínu kjördæmi
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 00:37:22
Það er hryllingur að hlusta á orkupakkalið-ESB á vef Alþingis núna. Ég tek hatt minn ofan fyrir Miðflokksmönnum í þessu máli hér og nú fimmtudaginn, 16. maí 2019 kl 00:37, þar sem umræða stendur enn yfir
Fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:04:54
Handjárnaglamrið í þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í þingsalnum leynir sér ekki.
Þingmenn Framsóknar virðast hafa verið lokaðir niðri í bunker ríkisstjórnarinnar með gasgrímur, til að halda þeim sofandi á vaktinni um hagsmuni íslensku þjóðarinnar.
Nema að innflutt og ESB-niðurgreitt kjöt standi fyrirvaralaust fast í hálsi þeirra.
Hvílík skömm
Fyrirvarar = varalitur manna sem sjást varla lengur.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:18:16
Og þjóðin að engu leyti sammála því sem þarna fer fram í skjóli myrkurs.
Er þetta fullveldisvakt Íslands?
Og Íslendingar fá engu um neitt ráðið og hafa aldrei fengið að kjósa um neitt af þessum EES-málum.
Svona er allt sem tengist ESB; Myrkraverk.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:32:21
Ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er á bankamáli.
Þegar bankar lána fyrir regnhlíf þá heimta þeir yfirleitt alltaf að fá hana til baka, um leið og það byrjar að rigna.
Ekki má láta reyna á neitt, því ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er bankamáli.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:43:11
Afsakið.
Framsóknarþingmenn eru með innfluttan ost í eyrunum. Sennilega Danbo, sem útskýrir hið djúpa dauðadá þeirra.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:56:24
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og höfundur handjárnayfirlýsingarinnar um ESB-mál, gekk rétt í þessu fram hjá ræðustól, með járnin skröltandi um lúna leggina.
"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðs mál ESB" - sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í fyrra. (sic)
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 03:15:16
Í Danmörku er eingöngu talað um orkupakka ESB sem löggjöfina um "einkavæðingu orkumála" eða d. privatisering/liberalisering af el- og energimarkedet.
Enginn almennur Dani þekkir hugtakið "orkupakki".
Þess vegna kom þetta hér: Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 04:13:33
Ljóst er á umræðunni sem fer fram á Alþingi Íslendinga á skrifandi stund nú í nótt, að ríkisstjórn Íslands þorir ekki að standa á réttindum þjóðarinnar. Og að Sjálfstæðisflokkurinn er í svo slæmum félagsskap að hann þorir ekki að gagnast kjósendum sínum og íslensku þjóðinni, vegna kúgunar frá einhverjum sem annað hvort er í ríkisstjórn, eða stendur með hamar utan þingsins. Enginn gerir lengur ráð fyrir að siðferðislega pervertur forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir standi á neinum réttindum þjóðarinnar. Enginn. Eini flokkurinn sem stendur vaktina fyrir þjóðina á Alþingi er Miðflokkurinn.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 05:02:54
Enn standa umræður yfir á Alþingi.
Er hugsanlegt að íslenska ríkisstjórnin sé að verja norsku ríkisstjórnina falli í þessu máli? Með því að koma í veg fyrir að málið fari fyrir rétta aðila og að norska þjóðin fái nánara innsýn í eðli málsins?
Þetta er jú málið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt að skipti engu máli. En samt leggur hann höfuð sitt í gapastokk vegna málsins.
Hér er eitthvað margt og meira skýrið undir steini.
Íslenskir þingmenn eiga að gæta þjóðarhagsmuna Íslendinga, en ekki Norðmanna. Til þess eru þeir kjörnir.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:06:37
Enn er rætt um orkupakkamálið á Alþingi Íslendinga, þar sem aðeins einn flokkur, já bara einn flokkur, stendur á réttindum íslensku þjóðarinnar. Og það er Miðflokkurinn.
Málið er svo stórt að aðeins hefur verið hróflað við yfirborði þess. Þetta er nýtt Icesave sem troða á niður kok þjóðarinnar, og helst án þess að fjallað hafi verið um það í hlutfalli við risavaxið mikilvægi og þjóðarhagsmunalega stærð málsins fyrir almenning.
Já. Aðeins einn flokkur stendur í lappirnar.
Skyldi forysta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa lesið annað en síðunúmer málsins og hlustað á sömu tegundar sérfróðu rugludallana og gert var í Icesavemálinu?
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:18:53
Þingfundi var skyndilega slitið í einum grænum hvelli og málinu frestað.
Furðuleg fundarstjórn þarna á Alþingi Íslendinga, verð ég að segja
Enn er allt á huldu um þetta furðulega mál.
fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:25:36
Líklegt verður að teljast að þingforseti (Samfylkingarinnar) vilji ekki að málið sé flutt á meðan þjóðin er vakandi. Um leið og þjóðin rís úr rekkju til að fylgjast með, slítur hann þingfundi og slær málinu út af.
PWRDWNSYS
099 SIGNOFF
****
Uppfært: laugardagur, 18. maí 2019 kl. 17:49:30
Ég bendi lesendum á að að ávörp Ingu Sæland og Ögmundar Jónassonar á Austurvelli, núna í dag, laugardag, smá sjá hér: https://www.facebook.com/magnusthor/videos/10220753634377589/
Fyrri færsla
Spái því að breiðfylking um aflúsun Íslands sé í smíðum
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.5.2019 kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Miðvikudagur, 15. maí 2019
Spái því að breiðfylking um aflúsun Íslands sé í smíðum
Eftir framferði hinna pólitísku flokka; svínslega kæruleysislega og lágkúrlega umgengni þeirra við EES-samninginn og kjósendur; undanfarna mánuði; þá hlýtur flestum að vera orðið það ljóst, að slíkan samning er ekki hægt að leggja á stjórnmálamenn okkar að umgangast, frekar en orðið er, því þeir spillast svo mikið við hann
Sú þverpólitíska fylking sem myndast hefur gegn þriðja orkupakka Brusselveldisins hér á landi, Orkan okkar, verður ekki kveðin niður. Því spái ég, að breiðfylking þessi muni breytast í þverpólitíska andspyrnuhreyfingu gegn EES-samningum og fái því framgengt, með þjóðaratkvæðagreiðslu og jafnvel setu á þingi, að honum verði sagt upp hið fyrsta. Annað getur varla verið í kortunum en einmitt það
Mikið verður þá til dæmis ánægjulegt að geta sett okkar eigið viðskiptabann á Kína fyrir að ræna eyjum, starfrækja gúlagkerfi og nauðga löndum, í stað þess að refsa Rússum endalaust fyrir að hafa svona sögulega mikla tengingu við Krím og Sevastópol, þar sem hildarleikurinn um nánast allt fór fram og vannst. Svo gætum við viðurkennt Taívan og boðið Trump í rafmagnað tepartí um bætt gagnkvæm viðskipti við Taívan og betri samskipti hans við Rússland
Þegar Bretland er komið út, fylgir Danmörk á eftir. Og þegar hún er komin út þá fara Svíþjóð og Finnland aftur í þjóðbúning sinn og flagga fánum Norðurlanda við landamærin gegn suðri - og sírenusuði þess um endalaust afsal fullveldis. Noregur er þegar á leið út úr EES, en norskir stjórnmálamenn hafa bara ekki fattað það enn, því þeir fatta allt mikilvægt síðastir allra, eins og venjulega, sbr. brexit
Í EES reyndust vera örorkupakkar af meira en lamandi sort. Af spillandi og myrkvandi sort, er víst við hæfi að álykta núna, og það með fullkominni vissu. Við þurfum ekki hækjur og við þurfum ekki kryppumyndandi yfirríkispúða á bak þjóðarinnar
Nánast endalaust magn gæða er að finna í Íslandspakkanum okkar. Nefna má til dæmis sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar og full yfirráð yfir okkar eigin landi, þar sem íslensk lög gilda, en Brusselsk ekki
Ég hugsa við við höfum nú þegar tvo flokka með okkur; Miðflokkinn og Flokk fólksins
Fyrri færsla
Ofur-firring Sjálfstæðisflokksins í O3-málinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Þriðjudagur, 14. maí 2019
Ofur-firring Sjálfstæðisflokksins í O3-málinu
Upptaka Alþingis:
Firrtur? Snýst 15 gráður á mánuði, að meðaltali?
****
Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn er í afar hættulegum félagsskap með forystu flokksins í ríkisstjórn
Haustið 2008 skrifaði Óli Björn Kárason greinina Flokkur í ólgusjó. Hún fjallaði um að Sjálfstæðisflokkurinn ætti við "innri og ytri vandamál" að etja
"Sjálfstæðisflokkurinn á við innri og ytri vanda að glíma. Takist flokknum ekki að leysa vandann er líklegt að hann verði ekki lengur stærsta og áhrifamesta stjórnmálaafl landsins. Staða flokksins hefur aldrei, á síðari tímum, verið viðkvæmari og erfiðari. [...] Ef sjálfstæðismönnum (?) auðnast ekki að leysa þau vandamál sem blasa við getur flokkurinn átt á hættu að verða dæmdur í pólitíska útlegð með svipuðum hætti og breski Íhaldsflokkurinn. Vandi Sjálfstæðisflokksins er hins vegar í nokkru meiri en breskra íhaldsmanna, þar sem forystumenn hans hafa alið við brjóst sér pólitíska nöðru í mynd Samfylkingarinnar." (spurningarmerki GR)
Þetta er ekki úr bókinni Þeirra eigin orð, eftir Óla Björn Kárason 2009. Nei þetta er úr grein Óla Björns Kárasonar í Þjóðmálum árið áður. Og upptakan af Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins á Alþingi Íslendinga, hér fyrir ofan, er frá því í mars í fyrra. Hér er kannski komið efni í nýja bók, Þeirra eigin orð II, framhald af fyrri orðum eins og til dæmis þessum:
"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB"
- Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga, 22. mars 2018
Í dag er hins vegar árið 2019. Ellefu ár eru liðin. Og Óli Björn er orðinn "innri vandi" og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem elur nú við brjóst sér pólitískt perverta nöðru í mynd Vinstri grænna. Í gær sagði formaður Vinstri grænna - og forsætisráðherra - á Alþingi Íslendinga, að hún í Kremlar- og Pekingstíl sovétlýðvelda, vildi leyfa konum að ráða því sjálfar hvenær á meðgöngu þær eyddu fóstrum beggja foreldra fram að fæðingu. Sá flokkur hefur að minnsta kosti aðskilið sig algjörlega frá Kirkju, það má hann eiga. En þó ekki enn frá ríkinu sjálfu, því allur flokkurinn lifir á því og mergsýgur. Og það var einmitt það sem flokkar á meginlandi Evrópu gerðu á fyrrihluta 20. aldar. Þeir aðskildu sig og ríki sitt frá Kirkju. Því fór sem fór og 70 milljón manns létu lífið, plús hundrað milljónir manna í viðbót, í fyrrum dásemdarríkjum vinstri heiðni á borð við þá sem forsætisráðherra Íslands boðar í ríkisstjórn, saman með hinum innri vanda Sjálfstæðisflokksins
Já. Ég vissi þetta með "innri og ytri vanda Sjálfstæðisflokksins". En ég vissi hins vegar ekki að hann fælist í því að flokkurinn væri enn á lífi
Og ekki nóg með það. Formaður Sjálfstæðisflokksins snýst eins og skopparakringla um þau grundvallarmál sem skipta íslensku þjóðina ofboðslega miklu máli - og Óli Björn og allur þingflokkurinn snúast með. ESB-orkupakka þrjú ætlar allur sá þingflokkur hins innri vanda Sjálfstæðisflokksins, og með offorsi, að troða niður um kok þjóðarinnar. Já, íslenskrar þjóðar sem á allt raforkukerfi landsins eins og það leggur sig, byggði það upp líka og oft með berum höndum
Nú þegar Björn Bjarnason á Andrómedu skrifar um firru, þá segi ég, að ljóst er orðið að firran í þing- og forystuliði Sjálfstæðisflokksins er orðin fullvaxin pólitísk risanaðra, sem hefur kyrkingartak um háls, hendur og fætur bæði forystu og klappliðs þriðja orkupakkaflokks xD. Nema að þarna séu hálstök óligarka á ferðinni, sem þó væri enn verra, en samt skiljanlegra fyrir órofið fólk úr frumuklasa hins ytri vanda Sjálfstæðisflokksins, sem kallast kjósendur
Hver er með slíkt yfirþyrmandi firringarvald yfir flokksforystu Sjálfstæðisflokksins? Og hvor firrt flokksforysta flokkanna tveggja skyldi örendast fyrr í baráttu þeirra gegn þjóðum sínum: Sjálfstæðisflokkurinn eða Breski Íhaldsflokkurinn? Sá danski er nefnilega sannarlega dauður nú þegar, því ég horfði á hann deyja. Ég er meira að segja með sjálft dánarvottorðið í mínum fórum
Óli Björn Kárason - nú hinn innri - endaði síðan pólitíska greiningu sína á Sjálfstæðisflokknum á þessum orðum, árið 2008 (e.Kr):
"Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum og glímir við innri og ytri vanda. Hvernig forystumönnum og liðsmönnum flokksins tekst að leysa vandann getur haft gríðarleg áhrif á þróun íslenskra stjórnmála og þjóðfélagsins alls. Hagsmunirnir sem eru í húfi eru miklir og þar skipta hagsmunir Sjálfstæðisflokksins minnstu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðustu áratugum verið kjölfesta í íslenskum stjórnmálum og ef sú kjölfesta brestur getur þjóðfélagið allt skaðast."
Naðra var það lagsmaður. Naðra
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Finnland: Mikil mistök að taka upp evru
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Sunnudagur, 12. maí 2019
Finnland: Mikil mistök að taka upp evru
FRÁ PAKKASAMBANDI
Björn Wahlroos, stjórnarformaður Nordea bankans og Sampo Group samsteypunnar, segir að það hafði verið stór mistök að Finnland skyldi hafa tekið upp myntina evru. En Finnar hafa verið læstir fastir inni í evru frá og með 1999
"Finnland hefur næstum engan hagvöxt haft frá og með árinu 2007". En síðan þá eru liðin 12 ár. "Á þessu tímabili hefur sænska hagkerfið hins vegar vaxið um meira en 20 prósent", segir Wahlroos. "Það hefur kostað Finnland ofboðslegt fé að sitja uppi með þýska mynt á finnskum vinnumarkaði" segir hann. "Þegar þú ert með vonlausa verkalýðshreyfingu á vonlausum vinnumarkaði eins og í Finnlandi, þá verður þú að hafa þína eigin mynt". Fjárfestar vilja ekki festa fé sitt í svona landi, sagði Wahlroos
Sem sagt: evran hefur kostað Finnland heilt heilbrigðiskerfi plús allt skólakerfið, á aðeins 12 árum, eða sem svarar til eins fimmta af stærð hagkerfisins. Á endanum mun hún kosta Finnland lífið, verði ekkert að gert
Allir pakkar Evrópusambandsins eru svona. Án undantekninga. Þess vegna er Evrópa eins og hún er: púðurtunna
Það er gott að íslenska ASÍ ætlar ekki að fremja harakiri saman með finnsku evru-verkalýðshreyfingunni. ASÍ segir því nei við örorkupakka ESB númer þrjú.
Hin svo kallaða "finnska leið" Jóhönnu-stjórnarinnar var þá eftir allt saman bara leiði Finnlands í grafreit evrunnar. Þar deyja nú fleiri en fæðast og allt er á leiðinni suður og niður
Krækjur: hhb.fi og friatider.se
Enginn ætlar að flytja til Finnlands, þvert á móti
Verða grafir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks teknar þar sem Finnland liggur núna? Ég spyr, því xD hyggst með orkupökkum gera íslensk heimil að örorkubótaþegum ESB, eins og Framsóknarflokkur er að ganga frá íslenskum landbúnaði dauðum. Svipað og þegar niðurgreidd ræktun rúsína í ESB kom bændum á hausinn í Kaliforníu, þar sem verðið á þrúgum reiðinnar varð að lækka úr 1400 dölum tonnið og niður í 400, ef bændur þar á bæ áttu að lifa af. Sem þeir gerðu auðvitað ekki, heldur voru þeir boðnir upp á spottprís til stóriðnaðar og sumir þeirra tóku sitt eigið líf. Allt vegna niðurgreiðslna Evrópusambandsins
Þessu þarf að mæta með fullri og óskorinni hörku. Fylla þarf síkið umhverfis Ísland af eitri til að drekkja ósanngjörnum keppinautum í. Það er hlutverk stjórnvalda. Að gæta hagsmuna þjóðarinnar með því að nota fullveldi íslenska lýðveldisins
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Orkupakkar ESB snúast ekki um hagsmuni íslensks almennings
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Fimmtudagur, 9. maí 2019
Orkupakkar ESB snúast ekki um hagsmuni íslensks almennings
Mynd: Gunnfáni USS Harry S. Truman, sem vel varðir ráðamenn okkar heimsóttu í fyrra. Um borð var ein og hálf Kárahnjúkavirkjun undir fótum þeirra og sem knýr skipið áfram. Ættum við íslenskur almenningur ekki bara að nota þennan gunnfána sjálf í baráttu okkar við orkupakkaelítur ESB og RVK101?
****
Verð á rafmagni átti að lækka í kjölfar stærstu almennings-fjárfestinga Íslandssögunnar, Kárahnjúkavirkjunar, en gerði það hins vegar ekki. Helsti rekstrarkostnaður vatnsaflsvirkjana er sem betur fer vaxtakostnaður, en ekki innflutt eldsneyti. Og þegar sá kostnaður minnkaði þá átti verðið að ganga niður. En nei, þvert á móti; þá hækkaði raforkuverð! Það hækkaði vegna orkupakka 1+2
Með orkupökkum 1+2 var mörgum skipum sleppt lausum til að elta eina og sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands. Þeir pakkar voru nefnilega fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Þeir eru algerlega og fullkomlega gagnslaust gerpitrýni embættismannaaðals ESB, á kostnað íslensks almennings. Alger plága fyrir allan almenning. Algjört þvaður frá upphafi til enda fyrir okkur hér á Íslandi
Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orku(dreifingar, ha ha)fyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?
En þriðji orkupakki ESB, svarar hins vegar til þess að fiskimið íslenska lýðveldisins séu öll sett undir erlent vald. Hvorki meira né minna. Því getur enginn neitað. Vald er sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum
Raddir hagsmunasamtaka atvinnulífsins birtust því sem brandaragrein í Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram Pezkarlaveldi þeirra sem um daginn sóttu hart að sem minnst "samvinna" væri um að eyða hagnaði fyrirtækja með þeim sem starfa fyrir þau. Já, kjarasamningar snúast um "samvinnu" atvinnurekenda og launþega um að eyða hagnaði eða dekka tap fyrirtækja, þegar vel eða illa árar. Það mál var þó mjög svo torsótt. En sjá: eldingu laust niður af fjallinu með brandaragrein Pezkarlanna. Þar var skyndilega kominn nýr og holufylltur tónn um "samvinnu". Hvort á maður að kasta upp eða springa út hlátri?
Og sjá. Já sjá; Allt í einu vilja Pezkarlarnir eiga í "samvinnu" með útlendingum um að eigum íslensks almennings sé ráðstafað til útlendinga, ásamt til þessara venjulegu íslensku óligarka, sem gera helst ekki út bara einn vesælan öngul, nema frá Bern í Sviss, sem eins og kunnugt er, er ekki beint íslenskt sjávarþorp við vestfirska alpa, og sem varla má hrófla við fyrir bólumarteins-góðafólkinu með nagladekk á heilanum, úti á ESB-miðunum í miðri Reykjavík Alþjóðadóttur, sjálfrar 101. reglugjörðastöðvar Evrópusambandsins, sem orðinn er ESB-bunkerinn þaðan sem íslenska utanríkisráðuneytið kallar eftir hótunum erlendis frá
DDRÚV er krónískt hlynnt öllu sem frá ESB kemur og það er hlynnt öllum orkupökkum ESB, vegna þess að DDRÚV sjálft er efnahagslegt örorkufyrirbæri á borð við Evrópusambandið: þ.e. kumbaldi, sem mjög svo fáir myndu vilja borga fyrir, fengju þeir að ráða nokkru um það mál sjálfir
Tókuð þið eftir því að loksins þegar eini maðurinn sem allt veit um evruna og hið efnahagslega örorkusamband ESB, Mervyn King, mætti loksins í DDRÚV, að þá var hann að sjálfsögðu (af tillitssemi við samfylkingarflokka 101 og Benedikt evrusvitabol og Viðreisnargengi hans, sem áður var til húsa í Valhöll og messaði þar á sömu nótum og ráðherrar xD messuðu þar yfir flokksmönnum orkupakkaguðspjall þrjú) já þá var hann ekki spurður að neinu sem viðkom evrunni og Evrópusambandinu. Mervyn King var nefnilega bankastjóri breska seðlabankans og sá maður sem allt veit um myntina evru, sem er að rústa meginlandi Evrópu, en sem DDRÚV hefur trúboðað hér heima árum saman. Þess vegna mátti ekki minnast á neitt það sem King vissi með algerri vissu
Og nú á að taka eina skattaskjólið sem íslenskur almenningur hefur haft, og byggði reyndar upp sjálfur, raforkuna okkar, og færa það eina skjól hans, í orkupökkum ESB, yfir á hendur útlendinga og auðmanna sem sérfæðingar eru í þannig skjólum, en sem hins vegar, og því miður of oft, eru eins og beljur á svelli utan þeirra
Er þetta ekki bara yndislegt. Þingmenn standa ekki með þjóðinni lengur og eru sífellt minna fulltrúar kjósenda, eins og sést svo vel í orkupakkamálinu núna og þar á undan í Icesavemálinu. Enginn kaus þingmenn Sjálfstæðisflokksins til þessara eyðileggingastarfa
Tortímandi þeytivinduaflið frá formanni flokksins sem snýst eins og skopparakringla, og sem hætti að þora að draga þjóðarandann af ótta við skuggamyndina af sjálfum sér, er að rífa flokkinn okkar í tætlur. Svipað og þjóðir rifna í tætlur og verða að helvítisholum. Forysta xD er að gera flokkinn okkar að holu með þessu máli. Að holu!
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þriðjudagur, 7. maí 2019
ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3
HOLA Í SMÍÐUM
Nú er komið í ljós að Þýskaland hafði ekki heimild til að samþykkja né hafna lagningu gasleiðslu Rússlands til Þýskalands. Og enn fremur: Þýskaland hafði heldur ekki heimild til að ákveða hver réði yfir leiðslunni og orkunni sem um hana kemur. NordStream2 gasleiðslan (orkustrengurinn) frá Rússlandi hefur verið tekin úr höndum Þýskalands, Þýskalandsmegin, og færð yfir til þið vitið verra. Jú engra annarra en orkupakkamanna3: ACER ESB
Ágreiningsefnið var hvort að ESB-löggjöfin um orkupakka3 næði til orkuleiðslu sem kæmi inn í Evrópusambandið frá landi sem væri ekki aðili að sambandinu, eins og til dæmis frá Rússlandi - og svo einnig frá landi eins og Íslandi, en sem hins vegar er í EES. En á fundi í Brussel föstudaginn 8. febrúar, síðast liðinn, var ákveðið að svo væri. ESB ræður þessu um það, eins og næstum öllu öðru
Þýskaland var þarna rekið heim með samningsgerð þess við Rússland, og Pútín var gert að missa lagalegt áhrifavald yfir því hver fengi orkuna frá Rússlandi og hver mætti taka hana, og selja áfram, og hvert
Upphaflegur samningur Rússlands og Þýskalands heimilaði ekki Þýskalandi að selja orkuna sem kom í gegnum leiðsluna, áfram til þriðja aðila (annarra landa). En með einum fundi og pennastriki í Brussel missti Rússland Pútíns ákvarðanavaldið í því máli líka. Dreifing orkunnar var aðskilin frá framleiðslu hennar, eins og Paul Gregory, prófessor emeritus bendir á hér. Og Þýskaland var að sjálfsögðu aðskilið enn frekar frá kjósendum þess. Því var gert að viðurkenna að það væri Brussel, en ekki Þýskaland, sem hefði fullveldi í málinu
Gífurleg særindi hafa því tekið sér sæti í kansleríinu í Berlín. Merkel hélt að hún, eins og næstum alltaf, gæti stólað á að Frakkland myndi standa með sér í þessu máli og að þau tvö réðu öllu. En svo reyndist ekki, því Frakkland hefur ekki sömu þjóðarhagsmuna að gæta og Þýskaland í þessu máli
Það eina sem Pútín getur huggað sig við er það, að Rússland er ekki aðili að EES. Hann getur því skrúfað fyrir orku-útflæðið heima hjá sér, þegar honum sýnist, en það gæti hann hins vegar ekki ef að Rússland hefði misst fullveldið til þess, eins og forysta Sjálfstæðisflokksins reynir að láta Ísland missa það með okurpakka3
Hvenær ætlar hænuhaus rað-dómgreindarskertrar forystu Sjálfstæðisflokksins, knúinn VG-lofttegund, að velta sér af röngunni og yfir á réttuna. Halló, er einhver heima? Borgarísjaki framundan!
SVONA MYNDAST HELVÍTISHOLUR
Ef þú rífur allt af þjóðum og ætlar að stóla eingöngu á markaðsreglur sem allsherjar guðspjall, þá hætta þjóðir að vera þjóðir og markaðir að vera markaðir. Og alveg sérstaklega: þá hætta þeir að vera frjálsir makaðir
Takið eftir að í ávarpi Roosevelts forseta til þingsins 1942 (e. State of the Union Address) talar hann um að vera frjáls frá einhverju. Frjáls frá innlimun, frjáls frá ótta. Hann er þarna alls ekki að fara í það að frelsa heiminn til þess að fólk öðlist frelsi til að eyðileggja hann, þjóðir, lönd og heimsálfur (þvaður-frelsi). Nei. Hann ætlar að beita sér fyrir því að við verðum frjáls frá því að þurfa að þola slíkt (freedom from want, and freedom from fear everywhere in the world)
Ef þú eyðileggur þjóðir og þjóðríki það mikið að þjóðin og landið hættir að snúast um það að við björgum til dæmis Vestmannaeyingum frá hamförum sökum þess að þjóðarsamheldnin hefur verið eyðilögð, með því að markaðsreglur séu einu gildin og guðspjöllin sem viðhöfð eru um allt í þjóðinni, þá dettur þjóðin í sundur, splundrast og hættir að vera samstæð og samheldin (e. cohesive)
Þá gerist það, að það er ekki hægt að halda landinu saman nema með ofbeldi (e. force). Og um leið hætta frjálsir markaðir að vera til og þeir breytast í helvítisholur í helvítisholum
Og það er þetta ástand sem þegar er hafið í ESB-Evrópu. Eina leiðin til að halda Evrópusambandinu saman er að beita löndin sem eru í því sífellt þyngra og svæsnara ofbeldi. Þar eru svo kallaðir "frjálsir markaðir" því að liðast í sundur. Og allir sem hugsa bara smá, vita ósköp vel hvað gerist næst. Sambandið er að breytast í Helvítisholu (stór stafur, því Helvíti er staðarheiti)
Roosevelt fór því í krossferð gegn heiðni. Til dæmis gegn þeirri ESB-heiðni sem við sjáum í dag:
"They know that victory for us means victory for religion. And they could not tolerate that. The world is too small to provide adequate "living room" for both Hitler and God. In proof of that, the Nazis have now announced their plan for enforcing their new German, pagan religion all over the world--a plan by which the Holy Bible and the Cross of Mercy would be displaced by Mein Kampf and the swastika and the naked sword"
Mein Kampf Evrópusambandsins er til dæmis orkupakki3 og allir orkupakkar þess líka, ásamt næstum öllum öðrum pökkum þess, sem þjóðir ESB-landa reyndu að hafna, en fengu bara í hausinn aftur, til að kjósa um, þar til rétt niðurstaða fengist
Enginn getur neitað því að samheldni íslensku þjóðarinnar hefur minnkað frá og með innleiðingu EES-samningsins hér í okkar landi. Hún hefur ekki aukist, heldur minnkað. Verndari valda of margra hér á landi er Brussel. Evrópusambandið er að sundra íslensku þjóðinni
Þingmenn standa ekki með þjóðinni lengur og eru sífellt minna fulltrúar kjósenda, eins og sést svo vel í orkupakkamálinu núna og þar á undan í Icesavemálinu. Enginn kaus þingmenn Sjálfstæðisflokksins til þessara eyðileggingastarfa. Tortímandi þeytivinduaflið frá formanni flokksins sem snýst eins og skopparakringla, og sem hætti að þora að draga þjóðarandann af ótta við skuggamyndina af sjálfum sér, er að rífa flokkinn okkar í tætlur. Eins og þjóðir rifna í tætlur og verða að helvítisholum
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Tengt:
Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?
Fyrri færsla
OP3: Dularforysta Sjálfstæðisflokksins
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.5.2019 kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 5. maí 2019
OP3: Dularforysta Sjálfstæðisflokksins
Mynd: Zil. Moskvu-játningar þingmanna xD hafnar
****
ÞETTA ER AFAR MERKILEGT
Ekki nóg með það að gjá sé milli þings og þjóðar í ESB-einkavæðingar-orkupökkum 1+2+3 (þar sem ESB-orkueinkavæðingarpakkar eitt og tvö voru innanríkismál, en pakki þrjú einnig milliríkjamál) þá er líka fullkomin gjá milli forystu Sjálfstæðisflokks annars vegar og hins vegar flokksmana og kjósenda hans. Hvernig getur slíkt gerst. Gjá ofan í gjá. Aftur og aftur
Og hvernig stendur á því að þetta er í annað skiptið á minna en tíu árum að forysta flokksins neitar að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar, og með henni. Enginn kaus forystu flokksins til að ganga berserksgang knúin VG-lofttegund, en ekki kjósendum flokksins. Það er af og frá
Utanríkisráðherrann Guðlaugur virðist vera orðinn grænt grasker með grýlukertum innan í og formaður flokksins er orðinn einangrunarsinni og felur sig inni í skáp fyrir kjósendum. Er þetta forysta flokksins í dag
Á heila þessarar svo kölluðu forystu hafa pólitísk auðkennismál einnig lagt sig þungt, eins og bráðnað kertavax úr grænum graskerum utanríkisráðherrans. Þau eru þessi:
1. Aldur (þeir sem eru á rögnum aldri: afskrifaðir)
2. Kyn (þeir sem eru ekki af réttu kyni: afskrifaðir)
og
3. Metoo
4. Humar
5. Og bráðnandi ísjaki með Bjarna Ben á
Þetta er dálitið merkilegt séð í ljósi þess að til dæmis í Bandaríkjunum eiga og reka þeir sem eru 55 ára og eldri 33 prósent af öllum smærri fyrirtæjum landsins. Þessi tala var 26 prósent fyrir aðeins sex árum síðan, vegna þess að sífellt hlutfallslega færra ungt fólk á og rekur eigið fyrirtæki. Og ekki nóg með það, þá eru 15 prósent af öllum nýstofnuðum fyrirtækjum stofnuð af fólki sem er eldra en 55 ára. Bandaríkin eru svo sannarlega ekki land forystu Sjálfstæðisflokksins, því þar myndi enginn kjósa flokkinn til eins né neins, með núverandi forystu hans innanborðs
Forysta Sjálfstæðisflokksins er greinilega að ganga í sjálfsbjörg Vinstri grænna og orðin þar metoo, með heilan humar í heimamund; þ.e. inn á Hvíldarheimili opinberra starfsmanna í efnahagslegu örorkubandalagi við Evrópusambandið
Mynd: Styrmir Gunnarsson í vöfflukaffi hjá Flokki fólksins í dag; um ESB-einkavæðingar-orkupakka3
En hér er til dæmis einn síungur maður sem myndi sæma sér vel sem nýr formaður Sjálfstæðisflokksins; sjálfur Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri í vöfflukaffi hjá Flokki fólksins í dag. Hér má sjá hann flytja erindi og svara spurningum venjulegs fólks:
Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orkufyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka
Mynd: Úr bók Sverris Kristjánssonar 1961. Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar
Og þannig er það. Abraham Lincoln hafði það sennilega eftir Jóni Sigurðssyni að Guð hefði sérstak dálæti á venjulegu fólki. "Þess vegna bjó hann til svona mikið af því", sagði Lincoln. Þúkýdídes sagnfræðingur Forn-Grikkja sagði hið sama: e. "ordinary men usually manage public affairs better than their more gifted fellows"
Mikilvægt er að Íslendingar muni þetta
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?
![]() |
Veita ekki afslátt af loftslagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.5.2019 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 3. maí 2019
Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?
"Það hefur aldrei þurft kjark
til að guggna og gefast upp"
- sagði Davíð Oddsson um Icesavemálið
****
ORKUPAKKAR Í DANMÖRKU
"Husholdningernes elpris (faste priser, uden afgifter) var i 1995 33% højere end industriens, men i 2008/2009 var forskellen vokset til 70%."
Orkupakkar 1+2 voru innanríkismál. En orkupakki-3 er hins vegar einnig milliríkjamál. Evrópusambandið vinnur alltaf svona. Fyrst kemur það sem tundurspillir inn í þjófélög til að sundra þeim innan frá. Þannig stefna getur einnig komið innan frá úr þjóðríkinu með aðstoð og fyrir tilstilli utan að komandi ESB-afla, eins og við erum sennilega að upplifa í dag. Tilgangurinn er að brjóta upp og útrýma því súrefni eða jarðvegi sem alið getur af sér þjóðríki borgara sem hafa með sér sameiginlegan tilgang og markmið. Koma í veg fyrir að þrifist geti þjóðríki sem sjálf setja sér þau lög sem þau lifa í samræmi við
Þess vegna, þ.e. vegna súrefnisskorts sem leiðir af uppgufun fullveldis, hefur verðið á rafmagni í Danmörku með orkupökkum 1+2 til danskra heimila hækkað mikið (40%) og langsamlega mest. Árið 1995 var það 33% hærra en til iðnaðarfyrirtækja (á föstu verðlagi, þ.e. verðbólga hreinsuðu út) og án gjalda og skatta. En eftir að ESB-orkupakkar 1+2 (einkavæðing innanlands) hafa spilað sig út á markaðnum þar, og mjög illa fyrir hinn almenna borgara, þá var staðan svona árið 2008/2009: Þá hafði rafmangsverð hækkað mjög mikið en samt miklu meira fyrir dönsk heimili en iðnaðinn, sem þá þurftu að borga 70% prósent hærra verð en iðnaðarfyrirtækin. Þetta má lesa um í greiningu Ea Energianalyse fyrir dönsku orkustofnunina hér (PDF)
Í Danmörku er aldrei talað um "orkupakka" í þessu máli. Þar er aðeins talað um liberalisering eða privtatisering á raforku (d. liberalisering/privatisering af elmarkedet). Sem sagt: einkavæðing. Og strax þarna, eftir innleiðingu orkupakka 1+2, hefur hlutur heimilanna í neyslu landsframleiðslunnar verið minnkaður. Færður yfir til fyrirtækjanna, sem síðar munu skipa honum úr landi sem hagnaði með aðstoð orkupakka3 (athugið: þegar sparnaður verður til hjá fyrirtækjum, stundum á kostnað heimila, þá heitir hann hagnaður)
Sömu leið fer eignarhaldið á raforkuinnviðum landanna líka. Því verður skipað út og það verður þrætt upp á lyklakippur erlendra aðila og vogunarsjóða. Tilraunir til að selja dönsku Radíus-orkuveituna úr landi núna, með milljón notendur á Norður-Sjálandi, hefur kallað fram svitabað hjá Dönum, sem áttu hana sjálfir
En þar á undan, með orkupakka ESB í höndunum, stóð sósíaldemókratinn Helle Thorning-Schmidt (Gucci-Helle á dönsku), þá forsætisráðherra, fyrir því að selja hluta af danska orkuframleiðandanum Dong Energy til Goldman Sachs bankans, sem keypti hann með sjóðum til heimilis í skattaskjólum. Það mál leysti upp sjálfa ríkisstjórn Thorning-Schmidt, því samstarfsflokkur hennar gekk út. Og með sölunni á Dong fylgdi dreifingarkerfi og það liggur í félaginu Radius, sem Danir eru sennilega líka að missa eignarhaldið á til útlanda. Þetta skrifaði danska dagblaðið Information um, rétt fyrir síðustu jól
Þannig mun þetta verða á Íslandi, á einn eða annan hátt, séu undirförulir, falskir og huglausir stjórnmálamenn okkar látnir um málið. Og þar á eftir verður raforkunni okkar beint til útlanda, sem þá er orðin "vara" og sæstrengur orðinn svipað fyrirbæri og flutningaskip, sem ekki má stöðva né "mismuna". Þar með er allt runnið af höndum Íslendinga og nýting íslenska auðlinda hefur verið þrædd upp á lyklakippur erlendra aðila: glóbalista
Það er skýlaus réttur þjóðarinnar að sagt sé nei við þessu. Algerlega skýlaus réttur hennar. Eins og Hjörleifur Guttormsson bendir á í umsögn sinni til Alþingis, um þetta fyrirstandandi og algerlega ástæðulausa voðaverk
Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem að forysta Sjálfstæðisflokksins þorir ekki að standa á rétti íslensku þjóðarinnar. Hvað höfum við að gera með svona fólk? Nákvæmlega ekkert. Þetta skulu þeir fá borgað fyrir!
Og sjá: greiðsla frá Geir Jóni Þórissyni, fv. yfirlögregluþjóni, til raðdómgreindarskertrar forystu Sjálfstæðisflokksins, er þegar lögð af stað
TÆKIFÆRIN BLASA SAMT VIÐ
Nú hefur opnast strategískt tækifæri fyrir sátt á Íslandi með því að ASÍ hefur tekið málstað Íslands í stað málstað alþjóðasinna-líberalismans, í einu af mikilvægustu tilvistarmálefnum Íslandssögunnar: orkumálunum: Við búum í köldu og vetrardimmu landi, þar sem kalda-stríði okkar linnir aldrei. Okkur tókst þó að ná yfirhöndinni í því stríði. En samt hyggjast uppgjafaröfl gefa þá yfirhönd okkar burt. Jón Sigurðsson varaði við þannig öflum
Mynd: Úr bók Sverris Kristjánssonar 1961. Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar
Sjálfstæðisflokkurinn á að fylgja ASÍ og opna á sátt um íslensk málefni næstu áratugina. Öllu Íslandi til heilla. Þetta er einstakt tækifæri til samstillingar og vinnufriðar á Íslandi. Enda segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins að "raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál Evrópusambandsins". Það sagði hann sem BÆÐI þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra á Alþingi Íslendinga
Svo þar er ekki við neinn að deila, nema þá sem eru að reyna að grafa undan EES-samningnum með því að nota hann í annarlegum tilgangi: þ.e.í einhverskonar landsölutilgangi, því orkupakkar ESB eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar sem umboðslaust Evrópusambandið notar til að ná enn frekari yfirráðum yfir sem flestu í Evrópu. Til að gera súrefni þjóða að vöru, sem það eitt ræður yfir
Þetta er mál sem ASÍ getur varla horft fram hjá, því ef þeir gera það, þá hafnar íslensk verkalýðshreyfing í sömu aðstöðu og verkalýðshreyfingin í Frakklandi, þar sem Gulu vestin hafa yfirtekið hlutverk hennar sem sá aðili sem atvinnurekendur og stjórnvöld verða að tala við fyrst. Franska verkalýðshreyfingin var því varla viðstödd hátíðarhöldin 1. maí núna, því hún hafði vanrækt hlutverk sitt. Sömu vanrækslusögu er að segja af mörgum löndum Evrópusambandsins
Sé þetta rétt skilið hjá mér, þá útskýrir það aukna alvöru mála hjá ASÍ í þessu sambandi. Þeir ætla kannski ekki að ganga þegjandi inn í sólarlagið og fórna sér sjálfviljugir með sjálfsvígi á altari líberalismans, þ.e. ganga í björg eins og ríkisstjórnarflokkarnir og málaliðar þeirra gera, í þessu tilvistar-mikilvæga máli fyrir íslensku þjóðina. Ferðatöskur fyrir þá flokka og málaliða fara kannski bráðum að seljast vel
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Orkupakkar: Að steypa sig fastan á kamar [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 6
- Sl. sólarhring: 43
- Sl. viku: 610
- Frá upphafi: 1404652
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 382
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008