Leita í fréttum mbl.is

Orkupakkar ESB snúast ekki um hagsmuni íslensks almennings

USS Harry S. Truman battle flag

Mynd: Gunnfáni USS Harry S. Truman, sem vel varðir ráðamenn okkar heimsóttu í fyrra. Um borð var ein og hálf Kárahnjúkavirkjun undir fótum þeirra og sem knýr skipið áfram. Ættum við íslenskur almenningur ekki bara að nota þennan gunnfána sjálf í baráttu okkar við orkupakkaelítur ESB og RVK101?

****

Verð á rafmagni átti að lækka í kjölfar stærstu almennings-fjárfestinga Íslandssögunnar, Kárahnjúkavirkjunar, en gerði það hins vegar ekki. Helsti rekstrarkostnaður vatnsaflsvirkjana er sem betur fer vaxtakostnaður, en ekki innflutt eldsneyti. Og þegar sá kostnaður minnkaði þá átti verðið að ganga niður. En nei, þvert á móti; þá hækkaði raforkuverð! Það hækkaði vegna orkupakka 1+2

Með orkupökkum 1+2 var mörgum skipum sleppt lausum til að elta eina og sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands. Þeir pakkar voru nefnilega fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Þeir eru algerlega og fullkomlega gagnslaust gerpitrýni embættismannaaðals ESB, á kostnað íslensks almennings. Alger plága fyrir allan almenning. Algjört þvaður frá upphafi til enda fyrir okkur hér á Íslandi

Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orku(dreifingar, ha ha)fyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?

En þriðji orkupakki ESB, svarar hins vegar til þess að fiskimið íslenska lýðveldisins séu öll sett undir erlent vald. Hvorki meira né minna. Því getur enginn neitað. Vald er sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum

Raddir hagsmunasamtaka atvinnulífsins birtust því sem brandaragrein í Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram Pezkarlaveldi þeirra sem um daginn sóttu hart að sem minnst "samvinna" væri um að eyða hagnaði fyrirtækja með þeim sem starfa fyrir þau. Já, kjarasamningar snúast um "samvinnu" atvinnurekenda og launþega um að eyða hagnaði eða dekka tap fyrirtækja, þegar vel eða illa árar. Það mál var þó mjög svo torsótt. En sjá: eldingu laust niður af fjallinu með brandaragrein Pezkarlanna. Þar var skyndilega kominn nýr og holufylltur tónn um "samvinnu". Hvort á maður að kasta upp eða springa út hlátri?

Og sjá. Já sjá; Allt í einu vilja Pezkarlarnir eiga í "samvinnu" með útlendingum um að eigum íslensks almennings sé ráðstafað til útlendinga, ásamt til þessara venjulegu íslensku óligarka, sem gera helst ekki út bara einn vesælan öngul, nema frá Bern í Sviss, sem eins og kunnugt er, er ekki beint íslenskt sjávarþorp við vestfirska alpa, og sem varla má hrófla við fyrir bólumarteins-góðafólkinu með nagladekk á heilanum, úti á ESB-miðunum í miðri Reykjavík Alþjóðadóttur, sjálfrar 101. reglugjörðastöðvar Evrópusambandsins, sem orðinn er ESB-bunkerinn þaðan sem íslenska utanríkisráðuneytið kallar eftir hótunum erlendis frá

DDRÚV er krónískt hlynnt öllu sem frá ESB kemur og það er hlynnt öllum orkupökkum ESB, vegna þess að DDRÚV sjálft er efnahagslegt örorkufyrirbæri á borð við Evrópusambandið: þ.e. kumbaldi, sem mjög svo fáir myndu vilja borga fyrir, fengju þeir að ráða nokkru um það mál sjálfir

Tókuð þið eftir því að loksins þegar eini maðurinn sem allt veit um evruna og hið efnahagslega örorkusamband ESB, Mervyn King, mætti loksins í DDRÚV, að þá var hann að sjálfsögðu (af tillitssemi við samfylkingarflokka 101 og Benedikt evrusvitabol og Viðreisnargengi hans, sem áður var til húsa í Valhöll og messaði þar á sömu nótum og ráðherrar xD messuðu þar yfir flokksmönnum orkupakkaguðspjall þrjú) já þá var hann ekki spurður að neinu sem viðkom evrunni og Evrópusambandinu. Mervyn King var nefnilega bankastjóri breska seðlabankans og sá maður sem allt veit um myntina evru, sem er að rústa meginlandi Evrópu, en sem DDRÚV hefur trúboðað hér heima árum saman. Þess vegna mátti ekki minnast á neitt það sem King vissi með algerri vissu

Og nú á að taka eina skattaskjólið sem íslenskur almenningur hefur haft, og byggði reyndar upp sjálfur, raforkuna okkar, og færa það eina skjól hans, í orkupökkum ESB, yfir á hendur útlendinga og auðmanna sem sérfæðingar eru í þannig skjólum, en sem hins vegar, og því miður of oft, eru eins og beljur á svelli utan þeirra

Er þetta ekki bara yndislegt. Þingmenn standa ekki með þjóðinni lengur og eru sífellt minna fulltrúar kjósenda, eins og sést svo vel í orkupakkamálinu núna og þar á undan í Icesavemálinu. Enginn kaus þingmenn Sjálfstæðisflokksins til þessara eyðileggingastarfa

Tortímandi þeytivinduaflið frá formanni flokksins sem snýst eins og skopparakringla, og sem hætti að þora að draga þjóðarandann af ótta við skuggamyndina af sjálfum sér, er að rífa flokkinn okkar í tætlur. Svipað og þjóðir rifna í tætlur og verða að helvítisholum. Forysta xD er að gera flokkinn okkar að holu með þessu máli. Að holu!

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

þegar að austur og vestur þyskaland sameinaðist með tilheyrandi vandamálum að þá stóð þyska markið ekki undir sér og for hnignandi með hverjum deginum sem leið og var að hruni komið og eina leiðin til þess að bjarga þyskaldndi frá óðaverðbólgu og vandamálum var að losa sig við þyska markið og koma upp með evruna, sem að var fyrst og fremst til þess ða  bjarga þyskalandi frá algeru hruni þarna á eftir, enda við upptöku evrunar þá dreifist verðbólgan sem að annars hefði drunið á þyskalandi einu, yfir á hin evru ríkin og þannig náðu þjóðverjar að bjarga sér fyrir horn. ALPAFJALLA SVARTHOLIÐ HEFUR LENGI KUNNAÐ AÐ BJARGA SÉR OG LÁTA AÐRA BORGA BRÚSAN. 

Lárus Ingi Guðmundsson, 9.5.2019 kl. 17:46

2 identicon

Aðalritari FORYSTUNNAR mælti staffírug

í viðtali við Stöð 2 (IceLinkBaugsmiðilsins)

að ESBalræðisOrkupakki 3 yrði samþykktur strax.

Ein, Zwei, Drei, D EU.

Þar vitum við það Gunnar minn.

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að shithole,

þar sem þingmenn flokksins gera þarfir sínar.

Næsta skref:  Exit the Shit hole.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.5.2019 kl. 18:54

3 identicon

Allt rétt sem þú hefur skrifað um málið að undanförnu hefur ræzt.

Vald sótt erlendis frá til áróðurs gegn íslenskum almannahagsmunum.

EXIT D EU.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.5.2019 kl. 19:08

4 identicon

DDRUV með hreinan áróður og eintal Buddubakka, hins aðkeypta áróðursmanns Gulla í Kastljósi kvöldsins.

Þetta er orðið óþolandi yfirgangur.

EXIT SHIT D EU.

Fyrirgefðu mér svo Gunnar minn að skrifa hér 3 athugasemdir í bunu.  Það bara sýður svo á mér.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.5.2019 kl. 20:04

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Lárus Ingi.

Lárus Ingi: þú skýtur ekki fjarri þýska markinu þarna. Reyndar skrifaði ég grein í Þjóðmál 4. hefti 4. árgang veturinn 2008/9, þar sem ég kom inn á einmitt þetta mál:

[..] Hinn 20. mars 1991 lýsti bankastjóri Deutsche Bundesbank, Karl Otto Pöhl, yfir því að hugmyndir og fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um myntbandalag væru vitfirring og til vitnis um endalausa röð af mistökum Evrópusambandsins og sjónhverfingar einar. Hann kvað ríkisstjórn Þýskalands bera ábyrgð á því að hagkerfi fyrrverandi Austur-Þýskalands lægi í rúst. Allar hugmyndir um myntbandalag væru ótímabærar og óraunhæfar. [..] - Sjá: Seðlabankinn og þjóðfélagið

Þakka þér Símon Pétur.

Ekkert að afsaka, hér er nóg pláss. Verst hve ég því miður er sammála þér. Það svíður í sál minni.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.5.2019 kl. 21:51

6 identicon

Sæll Gunnar.

Það væri fróðlegt að vita hvaða nauðir
rekur íslensk stjórnvöld tii að
reka trippin svo rösklega;
leitun á öðru eins niðurbroti
þeirra í nokkru máli.

Hversu oft höfum við ekki séð
þessa gjá á milli orðs og æðis
fyrir og eftir kosningar
þar sem ágætustu menn virðist
standa frammi fyrir einhverju því
ofurefli sem þeir fá ekki ráðið við
og kosturinn einn að gefa afslátt
á flestu því sem áður hafði verið lofað.

Upplýstu mig nú, ágæti Gunnar, hvað
hafa þau leyndarskjöl til 110 ára
að geyma fram yfir sóma hvers manns
sem sá vini og vandamenn sogast inní
hringiðu banka og handrukkara stjórnvalda
þess tíma að ekki skuli vera sá dugur fyrir
hendi að birta það allt frá orði til orðs?

Sérðu fyrir þér að annað eins gæti gerst í nokkru
lýðræðisríki?

Hvað varð um rannsóknarfjölmiðlana?!

Það er með ólíkindum að Íslendingar skuli hafa
gengist undir þetta jarðarmen, þegjandi og hljóðalaust.

Eigum við ekki að fá að sjá þessi skjöl, Gunnar?
 

Húsari. (IP-tala skráð) 10.5.2019 kl. 09:13

7 identicon

Mjög góðar og þarfar spurningar Húsari.

Það er þingmanna og ráðherra allra

Hrun- og Helferðarflokkanna að svara þeim. 

En fyrst og fremst forseta þingsins:

Steingrím Joð Sigfússon, sem situr 

nú sem forseti þingsins vegna greiðans mikla

við Bjarna Junior.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 10.5.2019 kl. 19:02

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Húsari.

Þarna stend ég á gati.

Ertu kannski að meina að 110 ára leyndarskjölin tengist málinu með ESB-orkupakka3 ?? 

En eins og það mál er orðið inni í fataskápunum sem Bjarni Ben snýst eins og skopparakringla, og sem hann og  Sigurður Ingi og Katrín kommi hafa læst sig inni í, til að fela sig fyrir almenningi, vegna þessa máls, tja, þá gæti maður alveg eins látið sér detta það í hug.

Það er svo hryllileg skítalykt af þessu orkupakkamáli að þjóðin fer brátt að hætta að geta dregið andann í sínu eigin landi.

Hvað eru þessi vesælu viðrini á Alþingi að hugsa? Eru þau kannski öll með hálm í heilastað?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.5.2019 kl. 20:47

9 identicon

Sæll Gunnar.

Miðflokkurinn og eftir atvikum þeir aðrir
sem það vildu ætti að leggja fram
þingmannafrumvarp um að aflétta leyndinni
af þessum skjölum.
Með nafnakalli mætti sjá hvernig landið
liggur.

Þrátt fyrir allt gegnsæið og allt
skuli vera uppi á borðum hefur sennilega
aldrei frá hruni ríkt önnur eins leynd yfir
eignarhaldi og nú er.

Velferðin og velvildin virðist snúa
sér í lagi að eignamönnum/fjárfestum.

Skyldi faðir vor kalla á kútinn?!

Húsari. (IP-tala skráð) 11.5.2019 kl. 02:08

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Sannleikurinn birtist í þessum orðum þínum Gunnar:

"Með orkupökkum 1+2 var mörgum skipum sleppt lausum til að elta eina og sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands. Þeir pakkar voru nefnilega fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Þeir eru algerlega og fullkomlega gagnslaust gerpitrýni embættismannaaðals ESB, á kostnað íslensks almennings. Alger plága fyrir allan almenning. Algjört þvaður frá upphafi til enda fyrir okkur hér á Íslandi.

Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orku(dreifingar, ha ha)fyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands?

Ég spyr.

Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?"

Uppskipting í sölu og dreifingu hækkaði allt raforkuverð í landinu EES til dýrðar. Fleiri forstjórajeppar, fleiri fótboltalið til að styrkja, stærri skrifstofur, meira bókhald. Í Kaupmannahöfn má kaupa samskonar kílowatt úr tengli af fjölda einkafyrirtækja. Hérlendis einnig að einhverju leyti. 

Annað fékkst nú ekki út úr þeirri fyrstu lotu einkavæðingar orkulindanna sem yfir okku gekk þá.

Halldór Jónsson, 11.5.2019 kl. 12:13

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir.

Og Amen, Halldór Jónsson!

Mínar bestu kveðjur til þín.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.5.2019 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband