Leita í fréttum mbl.is

xD opnast í báða enda: Moskvu-játningar þingmanna hafnar [u]

Snýst hann 180 gráður á ári um sjálfan sig

Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga í mars 2018. Smellið á til að horfa á þessa upptöku Alþingis. Þar sagði Bjarni:

"Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana? [..] Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra? [..] Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál."

- Bjarni Benediktsson 

****

MOSKVU-JÁTNINGAR xD-ÞINGMANNA HAFNAR

"steypa ER hollur matur"

Páll Magnússon fyrrverandi DDRÚVari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, já núverandi þingmaður, skrifar grein í Morgunblaðið í dag, laugardaginn 20. apríl 2019, og lýsir því þar yfir að hann hafi verið óhæfur til að hugsa um orkupakka 3. Allt það brjóstvit sem kom honum inn á þing, hefur hann nú afskrifað sem þvælu. Hann hefur því farið á verkstæði til "sérfræðinga" og látið skipta um toppstykkið í sér. Og er nú eitthvað sem líkist ESB-róbót

Það voru jú svona "sérfræðingar" sem klesstu heiminum árið 2008, "sérfróðir" um undirmálslán (þvæla); afleiður (þvæla); og "sjálfstæða seðlabanka" sem áttu að koma í veg fyrir kreppur en gerðu það ekki; evrusvæðið ein þvæla út í gegn; "öryggisgirðingar" Maastricht-sáttmálans gagnvart áhættutöku einkageirans var líka ein stór þvæla, þar sem undir áföllum öllu var bara hent yfir á herðar skattgreiðenda, þvert á gefin loforð "sérfróðra" höfunda hans; orkupakkar eitt og tvö, fullkomin þvæla; ónýti EES-bankapakkinn og hin glataða Icesave-þvæla og svo framvegis. Já þeir "sérfræðingar", það er einmitt það. Endilega að hlusta á þá með já-og-amen hugarfar í heilastað. Það er hins vegar þú sem átt að stjórna þeim, en ekki þeir þér!

Ekki eitt orð frá þingmanninum um það af hverju Ísland ætti að fremja harakiri í orkumálum. Ekki eitt orð um af hverju orkupakki þrjú. Bara þetta: "steypa er hollur matur"

Þessi grein er svo hroðaleg lesning að maður verður að halda sér í armana á skrifborðsstólnum til þess að velta ekki af honum úr hlátri. Játningar efasemdarmanna um Jósef Stalín í Pravda hafa örugglega fylgt svona réttritunarreglum og hljómað svipað á sínum tíma. Greinin minnir einnig á Lilju Mósesdóttur gera grein fyrir Júdasar-atkvæði sínu þann 16. júlí 2009 kl. 13:10. Grein Páls passar því vel við Páskana núna

Nú bíður maður bara eftir því að Bjarni Benediktsson birti játningargrein og lýsi sig þar sem samskonar ómálga mann með smekk-snuð, án vits og tanna á þingi. Hún hlýtur að birtast umhverfðunarskýrslan sú, sem pólskipt munnvatn í smekk

Ég hef bara aldrei séð annað eins. Hvílík þvæla. Hvílík steypa!

Uppfært:

Bjarni Benediktsson (fæddur 30. apríl 1908, dáinn 10. júlí 1970) sagði eitt sinn að það væri þjóðin sem stjórnaði landinu og ríkisstjórn þess. Hafa menn alveg gleymt þessu? Í þessu máli er svarið við þeirri spurningu klárt já, eins og það var í Icesave. Á örstuttum tíma er hér enn eitt samsærið gegn íslensku þjóðinni á ferð, og þeim tening kastaði meðal annarra núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson eldri var örugglega þess meðvitaður að þá hafði Nýfundnaland nýlega misst bæði fullveldi og sjálfstæði sitt inn í bankahólfin í Kanada vegna skulda, vegna þess að þar höfðu menn ruglað "þægri ríkisstjórnun" (e. good governance) saman við ríkisstjórnun fólksins (e. government of the People). Nýfundnaland hætti því að vera til sem ríki árið 1949

Er forysta Sjálfstæðisflokksins kannski orðin samansafn þægra vesalinga? Flokkurinn er ekki með forystunni í þessu máli, svo mikið er víst. Þið eruð komnir út í móa á kaf í keldur. Hugtakið klíka kemur upp í hugann. Hver er með slíkt tangarhald á þingflokknum. Hver?

Svar: Það eru að minnsta kosti ekki við flokksmenn sem höfum tangarhald á þingflokknum okkar í þessu máli og heldur ekki kjósendur hans. Þannig að þeir sem til greina koma sem hafandi tangarhald á þingflokknum okkar eru þessir:

1. Ókjörnir embættismenn?

2. Evrópusambandið?, sem þá væri fjárkúgun

3. Noregur?

4. Íslenskir óligarakr?

5. Erlendir óligarkar?

Hvað gerðist á einu ári Bjarni formaður? Hverjir af þessum fimm eru það?

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Hvað gerðist Bjarni Ben? - þú hefur snúist 180 gráður á einu ári


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Gunnar en grátleg staðreynd sem verður að finna skýringu á. Kannski Alþjóðabannkinn það er einhvað.

Valdimar Samúelsson, 20.4.2019 kl. 20:45

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei, það er ekki Alþjóðabankinn Valdimar, síst af öllum, því hann er, öfugt við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, undir stjórn Bandaríkjanna.

Þess utan er Alþjóðabankinn nú í endurskoðun hjá ríkisstjórn Donalds J. Trump, sem er að athuga sjálft lögmæti hans, og hvort að hann sé  enn að gegna því hlutverki sínu sem hann var stofnaður til að sinna.

Þannig sagði Mike Pompeo utanríkisráðherra í ræðu sinni í þýsku Marshall-stofnun Bandaríkjanna í Brussel 4. desember 2018:

"Stofnanir Alþjóðabankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins voru settar á laggirnar til að endurreisa stríðshrjáð lönd og til að stuðla að fjárfestingum einstaklingsframtaks og hagvexti. Í dag leiðbeina þessar stofnanir oft löndum sem mishöndlað hafa hagkerfi sín, við að innleiða þvinganir, niðurskurð og sultarólar (e. austerity) sem hindra vöxt og þrýstidæla einkaframtaki í landinu út."

Ræðuna má sjá hér. Utanríkisráðherra Trumps: Frelsishlutverk þjóðríkja sé endurreist

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.4.2019 kl. 21:01

3 identicon

Þar sem ég er þjóðlegur íhaldsmaður sem þú Gunnar og fæddur og uppalinn í plássi fyrir norðan með ríg milli sjálfstæðra manna og kaupfélagsins og í sveit þar nærri á sumrin í bæjar blendingi torfbæjar og steinsteypu og með klið árinnar í eyrum, dalalæðunnar sem heiðríkjunnar fyrir augum, ilm nýsleginna túna í vitum og spangólandi með hundinum inn í sumar síðkvöldsins, eða bara að finna friðinn og kyrrðina ... þá skil ég eitt hundrað prósent þennan pistil þinn og fagna því að geta sagt takk fyrir að orða hlutina svo hreint og beint, sem þú gerir hér.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.4.2019 kl. 22:20

4 identicon

Með forakt og fyrirlitningu hefur maður horft niður á þingmenn og ráðherra "SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS" umbreytast í hélaða kremlverja, ríkisstarfsmenn og vesalinga, sem aldrei hafa né munu skilja tengsl hinnar þjóðlegu og sjálfstæðu heiðríkju bláma himins, dala, fjalla og fossa.  Vargar eru nú komnir í vé okkar.  Glóbalkommakratar, þingmenn og ráðherrar "SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS" voma nú yfir véum okkar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.4.2019 kl. 22:31

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Er þetta ekki bara allt í lagi; ACER sér um þetta!
En hvað er svo ACER? Hvað vitum við svosem um ACER?
Hverjir ráða í ACER og hvaðan koma þeir.
Hvernig verður ACER skipað í framtíðinni og af hverjum. 
Enginn hefur gefið sér tíma til þess að útskýra þennan ACER.
Sem stendur þó til að verði okkar yfirvald í orkumálum um alla framtíð!

Kolbrún Hilmars, 20.4.2019 kl. 22:46

6 identicon

Kolbrún, ACER er

Komintern Sjálfjúrókommaflokksins.  

Bjarni Junior er Kommissar hans hér á landi,

er það ekki augljóst? 

Garðabæjar-Berlínar strengurinn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.4.2019 kl. 23:23

7 Smámynd: Júlíus Valsson

Það eina sem BB hefur lært af DO er smjörklípan. Ekkert annað.

Júlíus Valsson, 21.4.2019 kl. 00:20

8 identicon

Hárrétt athugað Júlíus.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.4.2019 kl. 01:10

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Var að koma akandi heim af páskavöku í héraðskirkju minni, sem er elsta athöfn í kristni, þar sem lesið var úr Gamla testamentinu sem skaffaði okkur landamæri þjóða, aðskilnað ríkisvalds, og sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Og svo einnig það, að enginn mætti vera konungur nema yfir sinni eigin þjóð. Take that ESB! og önnur úníversal heimsveldi andskotans sem virða hvorki það né landamæri þjóða. Björgunarbáta þjóða sjálfa.

Mér sýnist svo á öllu að elítur allra íslenskra stjórnmálaflokka, nema tveggja, hafi sett okkur í körfu hinna fyrirlitlegu (basket of deplorables). Við tölum ekki rétt, hugsum ekki rétt, og höfum rangar skoðanir.

En hvað um það, þessu verður ekki unað.

Gleðilega páska.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 21.4.2019 kl. 04:02

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég minni aftur á orð Jóns Sigurðssonar

****

Sverrir Kristjánsson - 1961 - Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar - setur allt sitt traust á alþýðuna - bls liii 53

****

Myndin er úr bók Sverris Kristjánssonar. Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar, 1961.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.4.2019 kl. 04:27

11 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Gleðilega páska til þín og þinna og kærar þakkir fyrir þennan páskapistil sem rís hátt fyrir okkur sem þráum frelsi og lýðræði. Heilaþvottur á háu stigi að segja Íslendinga framleiða rafmagn með kjarnorku og kolum og brenglun á enn hærra stigi að telja umræðu Norðmanna í Íslandsför inngrip í landsmálin á sama tíma og stórríkið, sem menn þykjast ekki vilja ganga í en fæðast fyrir, er með yfirmann staðsettan á Íslandi. Við erum á hraðleið til fortíðarinnar fyrir 1908. Og svo er verið að halda upp á 100 ára fullveldisafmæli! Kveðjur frá Svíríki með orkuverði sem sænska ríkisstjórnin má ekki og getur ekki lækkað.

Gústaf Adolf Skúlason, 21.4.2019 kl. 08:43

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér góðar kveðjur Gústaf.

Og sömuleiðis þakkir til þín fyrir greinar þínar í blöðum og skrif hér á blogginu. Bæði metið mikils og með þökkum.

Já, gleðilega páska og kveðjur til þín í afgöngunum af því sem einu sinni var Svíþjóð. Brunarústaþúst ESB.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.4.2019 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband