Leita í fréttum mbl.is

ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3

HOLA Í SMÍÐUM

Nú er komið í ljós að Þýskaland hafði ekki heimild til að samþykkja né hafna lagningu gasleiðslu Rússlands til Þýskalands. Og enn fremur: Þýskaland hafði heldur ekki heimild til að ákveða hver réði yfir leiðslunni og orkunni sem um hana kemur. NordStream2 gasleiðslan (orkustrengurinn) frá Rússlandi hefur verið tekin úr höndum Þýskalands, Þýskalandsmegin, og færð yfir til þið vitið verra. Jú engra annarra en orkupakkamanna3: ACER ESB

Ágreiningsefnið var hvort að ESB-löggjöfin um orkupakka3 næði til orkuleiðslu sem kæmi inn í Evrópusambandið frá landi sem væri ekki aðili að sambandinu, eins og til dæmis frá Rússlandi - og svo einnig frá landi eins og Íslandi, en sem hins vegar er í EES. En á fundi í Brussel föstudaginn 8. febrúar, síðast liðinn, var ákveðið að svo væri. ESB ræður þessu um það, eins og næstum öllu öðru

Þýskaland var þarna rekið heim með samningsgerð þess við Rússland, og Pútín var gert að missa lagalegt áhrifavald yfir því hver fengi orkuna frá Rússlandi og hver mætti taka hana, og selja áfram, og hvert

Upphaflegur samningur Rússlands og Þýskalands heimilaði ekki Þýskalandi að selja orkuna sem kom í gegnum leiðsluna, áfram til þriðja aðila (annarra landa). En með einum fundi og pennastriki í Brussel missti Rússland Pútíns ákvarðanavaldið í því máli líka. Dreifing orkunnar var aðskilin frá framleiðslu hennar, eins og Paul Gregory, prófessor emeritus bendir á hér. Og Þýskaland var að sjálfsögðu aðskilið enn frekar frá kjósendum þess. Því var gert að viðurkenna að það væri Brussel, en ekki Þýskaland, sem hefði fullveldi í málinu

Gífurleg særindi hafa því tekið sér sæti í kansleríinu í Berlín. Merkel hélt að hún, eins og næstum alltaf, gæti stólað á að Frakkland myndi standa með sér í þessu máli og að þau tvö réðu öllu. En svo reyndist ekki, því Frakkland hefur ekki sömu þjóðarhagsmuna að gæta og Þýskaland í þessu máli

Það eina sem Pútín getur huggað sig við er það, að Rússland er ekki aðili að EES. Hann getur því skrúfað fyrir orku-útflæðið heima hjá sér, þegar honum sýnist, en það gæti hann hins vegar ekki ef að Rússland hefði misst fullveldið til þess, eins og forysta Sjálfstæðisflokksins reynir að láta Ísland missa það með okurpakka3

Hvenær ætlar hænuhaus rað-dómgreindarskertrar forystu Sjálfstæðisflokksins, knúinn VG-lofttegund, að velta sér af röngunni og yfir á réttuna. Halló, er einhver heima? Borgarísjaki framundan!

SVONA MYNDAST HELVÍTISHOLUR

Ef þú rífur allt af þjóðum og ætlar að stóla eingöngu á markaðsreglur sem allsherjar guðspjall, þá hætta þjóðir að vera þjóðir og markaðir að vera markaðir. Og alveg sérstaklega: þá hætta þeir að vera frjálsir makaðir

Takið eftir að í ávarpi Roosevelts forseta til þingsins 1942 (e. State of the Union Address) talar hann um að vera frjáls frá einhverju. Frjáls frá innlimun, frjáls frá ótta. Hann er þarna alls ekki að fara í það að frelsa heiminn til þess að fólk öðlist frelsi til að eyðileggja hann, þjóðir, lönd og heimsálfur (þvaður-frelsi). Nei. Hann ætlar að beita sér fyrir því að við verðum frjáls frá því að þurfa að þola slíkt (freedom from want, and freedom from fear everywhere in the world)

Ef þú eyðileggur þjóðir og þjóðríki það mikið að þjóðin og landið hættir að snúast um það að við björgum til dæmis Vestmannaeyingum frá hamförum sökum þess að þjóðarsamheldnin hefur verið eyðilögð, með því að markaðsreglur séu einu gildin og guðspjöllin sem viðhöfð eru um allt í þjóðinni, þá dettur þjóðin í sundur, splundrast og hættir að vera samstæð og samheldin (e. cohesive)

Þá gerist það, að það er ekki hægt að halda landinu saman nema með ofbeldi (e. force). Og um leið hætta frjálsir markaðir að vera til og þeir breytast í helvítisholur í helvítisholum

Og það er þetta ástand sem þegar er hafið í ESB-Evrópu. Eina leiðin til að halda Evrópusambandinu saman er að beita löndin sem eru í því sífellt þyngra og svæsnara ofbeldi. Þar eru svo kallaðir "frjálsir markaðir" því að liðast í sundur. Og allir sem hugsa bara smá, vita ósköp vel hvað gerist næst. Sambandið er að breytast í Helvítisholu (stór stafur, því Helvíti er staðarheiti)

Roosevelt fór því í krossferð gegn heiðni. Til dæmis gegn þeirri ESB-heiðni sem við sjáum í dag:

"They know that victory for us means victory for religion. And they could not tolerate that. The world is too small to provide adequate "living room" for both Hitler and God. In proof of that, the Nazis have now announced their plan for enforcing their new German, pagan religion all over the world--a plan by which the Holy Bible and the Cross of Mercy would be displaced by Mein Kampf and the swastika and the naked sword"

Mein Kampf Evrópusambandsins er til dæmis orkupakki3 og allir orkupakkar þess líka, ásamt næstum öllum öðrum pökkum þess, sem þjóðir ESB-landa reyndu að hafna, en fengu bara í hausinn aftur, til að kjósa um, þar til rétt niðurstaða fengist

Enginn getur neitað því að samheldni íslensku þjóðarinnar hefur minnkað frá og með innleiðingu EES-samningsins hér í okkar landi. Hún hefur ekki aukist, heldur minnkað. Verndari valda of margra hér á landi er Brussel. Evrópusambandið er að sundra íslensku þjóðinni

Þingmenn standa ekki með þjóðinni lengur og eru sífellt minna fulltrúar kjósenda, eins og sést svo vel í orkupakkamálinu núna og þar á undan í Icesavemálinu. Enginn kaus þingmenn Sjálfstæðisflokksins til þessara eyðileggingastarfa. Tortímandi þeytivinduaflið frá formanni flokksins sem snýst eins og skopparakringla, og sem hætti að þora að draga þjóðarandann af ótta við skuggamyndina af sjálfum sér, er að rífa flokkinn okkar í tætlur. Eins og þjóðir rifna í tætlur og verða að helvítisholum

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Tengt:

Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?

Fyrri færsla

OP3: Dularforysta Sjálfstæðisflokksins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

"Hvenær ætlar hænuhaus rað-dómgreindarskertrar forystu Sjálfstæðisflokksins, knúinn VG-lofttegund, að velta sér af röngunni og yfir á réttuna. Halló, er einhver heima? Borgarísjaki framundan!"

Þetta er ein best orðaða áskorun sem ég hef séð til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Eggert Guðmundsson, 7.5.2019 kl. 18:37

2 identicon

Hárrétt athugað Gunnar.

Allt þetta byrjaði með innleiðingu EES samningsins á valdatíma Viðeyjarstjórnar DO og JBH.  Síðan kom helmingaskipti gömlu valfaflokkanna og einkavæðingu bankakerfisins í stjórnartíð DO og HÁ.

Mikið sem DO mætti einu sinni skrifa aðeins meyr um það sem hann gerði, viðurkenna ærlega að hann hafi hlustað of mikið á Hannes Blair Gissurar jarls sonar.  Þannig mætti hann, a.m.k. einu sinni, viðurkenna að hann skóp farveg Engeyinganna.

Mikillar ógæfu eru þær eyjar, Viðey og Engey og allt það sem þær hafa fóstrað og við þær er kennt.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2019 kl. 18:47

3 identicon

Þessi pistill þinn Gunnar, er reyndar mögnuð lýsing á aðdraganda þess sem mun gerast:

Þegar Bretarnir verða horfnir úr EU, þá munu Þjóðverjar þurfa að borga meira fyrir brúsann, og þá munu þeir verða brjálaðir.  Þar að auki eiga þeir við þann lýðfræðilega vanda að þeim fækkar og það er ekki auðvelt að breyta hælisleitendunum í iðjusama og aðhaldssama Þjóðverja.  Þýskaland er púðurtunna Evrópu. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2019 kl. 20:19

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Davíð Oddsson skrifar í leiðara Morgunblaðsins í dag að:

"Það er mikið um­hugs­un­ar­efni að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hafi ákveðið að gefa sjálf­um sér og stuðnings­mönn­un­um tvennt í 90 ára af­mæl­is­gjöf í þess­um mánuði. Það fyrra er að neyða at­lög­una að stjórn­ar­skránni niður um kokið á hvor­um tveggja með góðu eða illu og sanna að þar hafi menn ekk­ert lært af óför­un­um í Ices­a­ve. Samt segja þeir að málið sé ekki um neitt. Það sé ekk­ert í því. Það taki ekk­ert vald af Íslandi og færi ekk­ert vald yfir til ESB.

En hvers vegna þá? Hvers vegna að ulla á allt þetta fólk og það út af engu? Það get­ur ekki ein­göngu verið gert í til­efni dags­ins.

Eina svarið og það sem á að duga til að efna til átaka við al­menn­ing er að ella muni samn­ing­ur­inn um EES hanga á bláþræði og það sé "skemmd­ar­verk" að stofna til þess. Af hverju mundi hann hanga á bláþræði út af máli sem er ekki um neitt og snýst ekki um neitt?

Samn­ing­ur­inn um EES ger­ir bein­lín­is ráð fyr­ir því að aðild­ar­ríki hans geti hafnað slík­um til­skip­un­um. Væru ekki slík­ir fyr­ir­var­ar hefði samn­ing­ur­inn ekki staðist stjórn­ar­skrá. Sé það rétt að slík­ir fyr­ir­var­ar séu ómark er ljóst að meiri­hluti þings­ins braut stjórn­ar­skrána 1993.

Stefán Már var spurður um það í gær af "RÚV" hvort rétt væri að yrði látið und­an ótta al­menn­ings færi EES-samn­ing­ur­inn í upp­nám. Pró­fess­or­inn brosti góðlát­lega og gat ekki séð hvernig það fengi staðist."

Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á málum, þá er það þannig að þjóðir skipta um skoðun í takt við framvindu sönnunargagna og í takt við framvindu veruleikans.

Nú er reynt að gera það að grunsamlegum hlut ef að einhver núverandi eða fyrrverandi íslenskur stjórnmálamaður hefur skipt um skoðun í þessu bölvaða orkupakka-níðingsmáli Evrópusambandsins.

En í millitíðinni hefur heimurinn sannarlega breyst og sannanir gegn ESB og ákærur á hendur því hafa hrannast upp í óendanlega stórum bunkum, sem stækka hvern einasta dag ársins. Vesturlönd og 1945-uppsetning þeirra hrundi 2009 vegna þess að búið var að njörva þau saman þannig, að ef einn banki fór á hausinn, þá fóru allir bankar á hausinn. Ef að eitt land gerði sig að helvítisholu þá urðu helst öll lönd að gera sig að helvítisholu líka. Bæði Roosevelt-andinn og Reagan-Thatcher-Vatíkan-andinn höfðu verið sviknir. 

Hérna er ágætis svar við því þegar ein þjóð skipti um skoðun á öllum pökkum Evrópusambandsins og fékk bágt fyrir hjá pakkamönnum. Hér er þessu fólki og fjölmiðlabröskurum þeirra með sannleikann svarað fullum hálsi!

Þjóðarhagsmunir Íslendinga er það sem þingmenn hafa unnið sinn eið að á Alþingi. Þeirra eiga þeir að gæta sem ófáanlegra gersema Íslands. Fótum troðin stjórnarskrá Íslands er ekki það sem Íslendingurinn mikli, Davíð Oddsson, mun una.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.5.2019 kl. 20:39

5 identicon

Geri alls ekki ágreining við þig um það

að leiðari Davíðs er elegant í hæðni og snilld.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.5.2019 kl. 21:00

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Meira:

1.Pistill Jóns Bjarnasonar í dag hittir einnig naglann á höfuðið: Einkavæðing Landsvirkjunar og "Orkupakki" ESB

2. Og ekki er Styrmir Gunnarsson síðri: Vísvitandi blekkingar hjá tveimur ráðuneytum?

3. Og Páll Vilhjálmsson er eins og alltaf, hnífskarpur: Áslaug, smámálið þitt er stórt, stærra en flokkurinn

4. Grein Tómasar Inga Olrich í Morgunblaðinu í dag, ættu allir að lesa, þar sem hann meðal annars segir:

"Það teng­ist umræðum um þriðja orkupakk­ann, hvort áform eru um að tengja Ísland við orku­markað ESB/​EES. Á heimasíðu Lands­virkj­un­ar kem­ur fram mik­ill áhugi á slíkri teng­ingu. Þegar litið er á rök­stuðning stofn­un­ar­inn­ar fyr­ir lagn­ingu sæ­strengs er ljóst að þar er um mjög póli­tísk álita­mál að ræða.

Ég hef spurst fyr­ir um það í blaðagrein hvort stofn­un­in stundi stjórn­mál í tóma­rúmi eða hvort hún styðjist við vel­vilja rík­is­stjórn­ar­inn­ar í þessu máli. Því ætti að vera hægt að svara vafn­inga­laust. Það hef­ur á hinn bóg­inn ekki gerst, svo mér sé kunn­ugt."

Já. Þannig er það í dag.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.5.2019 kl. 21:41

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein og upplýsingar Gunnar. Já nú ætti Putinn að stoppa þessa vitleysu og pressa á ESB að þeir fái ekkert gas nema þegar og ef hann vilji selja þeim. Rósvelt vissi að það eru öfl sem reyna að ná heimsyfirráðum og eru að enn í dag. 

Valdimar Samúelsson, 8.5.2019 kl. 17:00

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Davíð góður okkar maður eins og alltaf.

Valdimar Samúelsson, 8.5.2019 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband