Leita í fréttum mbl.is

Orkupakkar: Að steypa sig fastan á kamar [u]

Þjóðaríhaldsmenn allra flokka senda út S.O.S.

RÆS! bank bank, RÆS!
Þjóðar-íhaldsmenn allra landa og flokka vakni og komi sér í brækur, áður en kommúnistar, fasistar og nasistar verða fyrri til á vettvang brunarústa líberalismans

****

TÆKIFÆRIN BLASA VIÐ

Nú hefur opnast strategískt tækifæri fyrir sátt á Íslandi með því að ASÍ hefur tekið málstað Íslands í stað málstað alþjóðasinna-líberalismans, í einu af mikilvægustu tilvistarmálefnum Íslandssögunnar: orkumálunum. Sjálfstæðisflokkurinn á að fylgja ASÍ og opna á sátt um íslensk málefni næstu áratugina. Öllu Íslandi til heilla. Þetta er einstakt tækifæri til samstillingar og vinnufriðar á Íslandi. Enda segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins að: "raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál Evrópusambandsins". Það sagði hann sem þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra á Alþingi Íslendinga. Svo þar er ekki við neinn að deila, nema þá sem eru að reyna að grafa undan EES-samningnum með því að nota hann í annarlegum tilgangi: þ.e.í einhverskonar landsölutilgangi, því orkupakkar ESB eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar sem umboðslaust Evrópusambandið notar til að ná enn frekari yfirráðum yfir sem flestu í Evrópu. Til að gera súrefni þjóða að vöru, sem það eitt ræður yfir

Orkupakkar 1+2 voru innanríkismál. En orkupakki-3 er hins vegar einnig milliríkjamál. Evrópusambandið vinnur alltaf svona. Fyrst kemur það sem tundurspillir inn í þjófélög til að sundra þeim innan frá. Þannig stefna getur einnig komið innan frá úr þjóðríkinu með aðstoð og fyrir tilstilli utan að komandi ESB-afla, eins og við erum sennilega að upplifa í dag. Tilgangurinn er að brjóta upp og útrýma því súrefni eða jarðvegi sem alið getur af sér þjóðríki borgara sem hafa með sér sameiginlegan tilgang og markmið. Koma í veg fyrir að þrifist geti þjóðríki sem sjálf setja sér þau lög sem þau lifa í samræmi við

ORKUPAKKAR 1+2 Í DANMÖRKU

"Husholdningernes elpris (faste priser, uden afgifter) var i 1995 33% højere end industriens, men i 2008/2009 var forskellen vokset til 70%."

Þess vegna hefur verðið á rafmagni í Danmörku með orkupökkum 1+2 til danskra heimila hækkað mikið (40%) og langsamlega mest. Árið 1995 var það 33% hærra en til iðnaðarfyrirtækja (á föstu verðlagi, þ.e. verðbólga hreinsuðu út) og án gjalda og skatta. En eftir að ESB-orkupakkar 1+2 (einkavæðing innanlands) hafa spilað sig út á markaðnum þar, og mjög illa fyrir hinn almenna borgara, þá var staðan svona árið 2008/2009: Þá hafði rafmangsverð hækkað mjög mikið en samt miklu meira fyrir dönsk heimili en iðnaðinn, sem þá þurftu að borga 70% prósent hærra verð en iðnaðarfyrirtækin. Þetta má lesa um í greiningu Ea Energianalyse fyrir dönsku orkustofnunina hér (PDF)

Í Danmörku er aldrei talað um "orkupakka" í þessu máli. Þar er aðeins talað um liberalisering eða privtatisering á raforku (d. liberalisering/privatisering af elmarkedet). Sem sagt: einkavæðing. Og strax þarna, eftir innleiðingu orkupakka 1+2, hefur hlutur heimilanna í neyslu landsframleiðslunnar verið minnkaður. Færður yfir til fyrirtækjanna, sem síðar munu skipa honum úr landi sem hagnaði með aðstoð orkupakka3 (athugið: þegar sparnaður verður til hjá fyrirtækjum, stundum á kostnað heimila, þá heitir hann hagnaður). Sömu leið fer eignarhaldið á raforkuinnviðum landanna líka. Því verður skipað út og það verður þrætt upp á lyklakippur erlendra aðila og vogunarsjóða. Tilraunir til að selja dönsku Radíus-orkuveituna úr landi, með milljón notendur á Norður-Sjálandi, hefur kallað fram svitabað hjá Dönum, sem áttu hana

Uppfært: Þar á undan stóð sósíaldemókratinn Helle Thorning-Schmidt, þá forsætisráðherra, fyrir því að selja hluta af danska orkuframleiðandanum Dong Energy til Goldman Sachs bankans, sem keypti hann með sjóðum til heimilis í skattaskjólum. Það mál leysti upp ríkisstjórn Thorning-Schmidt, því samstarfsflokkur hennar gekk út. Og með sölunni á Dong fylgdi dreifingarkerfi og það liggur í félaginu Radius, sem Danir eru sennilega líka að missa eignarhaldið á til útlanda. Þetta skrifaði danska dagblaðið Information um, rétt fyrir síðustu jól. Þannig mun þetta verða á Íslandi, á einn eða annan hátt, séu undirförulir, falskir og huglausir stjórnmálamenn okkar látnir um málið. Og þar á eftir verður raforkunni okkar beint til útlanda, sem þá er orðin "vara" og sæstrengur orðinn svipað fyrirbæri og flutningaskip, sem ekki má stöðva né "mismuna". Þar með er allt runnið af höndum Íslendinga og nýting íslenska auðlinda hefur verið þrædd upp á lyklakippur erlendra aðila: glóbalista

Þetta er mál sem ASÍ getur varla horft fram hjá, því ef þeir gera það, þá hafnar íslensk verkalýðshreyfing í sömu aðstöðu og verkalýðshreyfingin í Frakklandi, þar sem Gulu vestin hafa yfirtekið hlutverk hennar sem sá aðili sem atvinnurekendur og stjórnvöld verða að tala við, fyrst. Franska verkalýðshreyfingin var því varla viðstödd hátíðarhöldin 1. maí núna, því hún hafði vanrækt hlutverk sitt. Sömu vanrækslusögu er að segja af mörgum löndum Evrópusambandsins. Sé þetta rétt skilið hjá mér, þá útskýrir það aukna alvöru mála hjá ASÍ í þessu sambandi. Þeir ætla kannski ekki að ganga þegjandi inn í sólarlagið og fórna sér sjálfviljugir með sjálfsvígi á altari líberalismans, þ.e. ganga í björg, eins og ríkisstjórnarflokkarnir og málaliðar þeirra gera, í þessu tilvistar-mikilvæga máli fyrir íslensku þjóðina. Ferðatöskur fyrir þá flokka og málaliða fara kannski bráðum að seljast vel

AÐ FESTA SIG VIÐ KAMAR

MSCI SHARE PRICE INDEXES DURING BULL MARKET OF 2009-?

Mynd: Yardeni Research, WSJ Daily Shot

****

Að vera fastur á kamri er ekki gott. En að beinlínis steypa sig þar niður, fastan um aldur og æfi, er ekki bara tragedía, heldur brottrekstrarsök. Myndin sýnir þróun helstu hlutabréfamarkaða heims frá hruni 2009. Og eins og sést er evrusvæðið (EMU) fast á kamrinum og þar með allur þorri almennings þar líka. Það svæði mun ekki lyftast fyrr en að karmar þess springur í loft upp, og sú stund nálgast

Flæði ferskra peninga eftir áföll er oftast svona: 1) Fyrst fara þeir til hlutabréfamarkaðarins, 2) svo fara þeir til fyrirtækja, 3) svo fara þeir til fjárfestinga fyrirtækja, 4) svo koma þeir til til neytenda í launum og framgangi, og 5) svo fara þeir inn í húsnæðismarkaðinn. Sem sagt. Ef hlutabréfamarkaðurinn fer ekki í gang þá gerist litið til batnaðar eftir áföll, og það þýðir einnig að fyrirtækin eru svo áfalla-sködduð að þau geta ekki nýtt sér og tekið við fersku fjármagni (e. structural damage = depression). Þetta vissi seðlabanki Bandaríkjanna og framkvæmdi samkvæmt því og tókst vel til. En á evrusvæðinu fóru málin ekki þannig. Þar á enginn sína eigin mynt og þar virkar því ekkert. Allt er umboðslaust og seðlabankinn er ekki með tvíþætt umboð frá þjóðinni, eins og í Bandaríkjunum

Takið einnig vinsamlegast eftir því að myndin sýnir að elítu-boðaður heimsendir varð ekki í Bretlandi vegna þjóðaratkvæðisins sumarið 2016 um útgöngu Bretlands af Egyptalandi nútímans; þ.e. út af lögsögu Evrópusambandsins. Þvert á móti þá hækkaði markaðurinn sig vegna framtíðarvæntinga um að Bretlandi yrði ekki lengur haldið föstu á ESB-karminum. En svo kom duglaus og huglaus Theresa May og eyðilagði flugtak með hiki, voli, væli og þvaðri eins og orkupakkfíklar Íslands viðhafa núna, og markaðurinn fór í ládeyðu og stagar nú seglin í hliðarvindi (trading sideways). Algerlega að óþörfu. Hugarfar ánauðar ræður öllum hennar gjörðum eins og hjá forystu Sjálfstæðisflokksins núna, og árum saman, þar sem vonlaus forystan þorir ekki að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar

Hvar eru allir gömlu Ameríkumarkaðirnir fyrir sjávarafurðir okkar? Stærstu erlendu fjárfestingar Íslandssögunnar koma frá Bandaríkjunum. Þau fjárfestu hér vegna þess að við erum fullvalda og sjálfstætt réttarríki og ekki í Evrópusambandinu. Við erum með besta sjávarútveg í heimi, vegna þess að við erum ekki í Evrópusambandinu. Við erum heimsmeistarar í raforkuframleiðslu, vegna þess að við erum ekki í Evrópusambandinu. Og við erum með spritt-nýjan ferðaþjónustugeira vegna þess að við erum ekki í Evrópusambandinu. Við erum með okkar eigin mynt og okkar eigin raforkustefnu

Svona hluti er ekki hægt að kaupa, því þeir eru fyrir flest ríki jarðar ófáanlegir. Af hverju þessi dáleiðsla á Evrópu, nú þegar ljóst er að Evrópusambandið er langt komið með að eyðileggja álfuna. Þar er allt fast á einum og sama embættismannakamar. Þar eru hlutirnir sannarlega að verða spursmál um tíma, þar sem þjóðaríhaldsmenn allra landa og flokka verða að vakna og koma sér í brækur, áður en kommúnistar, fasistar og nasistar verða fyrri til á vettvang brunarústa líberalismans. Staðan þar er orðin barátta um tíma. Þýska ríkisstjórnin sýnir nú merki þess, aðeins ári eftir myndun hennar, að hún leysist upp innan frá, síðsumars eða í haust. Eftirmaður hinnar ömurlegu Angelu Merkels, sem skilur við Þýskaland í ljósum logum, hefur þegar misst allar þær þunnu fjaðrir sem hún þótti hafa við fyrstu kynni. Hún er þegar orðin plokkuð hæna áður en hún tekur við. Klukkan tifar á meginlandinu

ENGIN BYLTING - AÐEINS ÞRÓUN, SEM KOMIN ER AÐ ENDIMÖRKUM

Svo kölluð fjórða iðnbylting Þórdísar Kolbrúnar iðnaðarráðherra, er ekki bylting. Það sem einkennir forystu Sjálfstæðisflokksins þessi árin er naívismi, trú á hindurvitni og loftbólur. Engin "fjórða iðnbylting" er í gangi, heldur aðeins þróun stafrænnar tækni sem hófst árið 1941 þegar SIGSALY var að fæðast sem fyrsta stafræna samskiptatæknin, þar sem Franklin D. Roosevelt í Bandaríkjunum og Winston Churchill í Bretlandi, töluðu saman með aðstoð nýrrar og stafrænnar tækni. Þessi tækni var síðan gerð opinbert leyndamál á áttunda áratug síðustu aldar og einkageirinn gat þá farið að taka hana til sín. Þessi tækni kom sem sagt frá eins konar Landsvirkjun Bandaríkjanna og Bretlands. Og þá hafði NATO (önnur Landsvirkjun) þegar lagt í ljósleiðara á Íslandi. Allt sem ráðherrann básnúnar ber þess vott að hún veit of lítið til að geta gert gott. Þeir sem hafa komið í Selfridges-stórverslunina í Lundúnum ættu að hugleiða, að þar niðri í kjallara, 60 metrum ofan í jörð, var fyrstu stafrænu samskiptatækninni komið fyrir árið 1942, af Bandaríkjunum. Þessi tækni kom svo út til markaðsaðila í formi einkaleyfa 40 árum síðar. Hvað Bandaríkin eru að gera í geimsólarorku núna, fáum við sennilega ekki að vita fyrr en þeir segja: "ef þú hagar þér ekki vel, þá beinum við engri orku úr geimnum niður til þín". Það var þetta sem Sádí gerði við okkur 1974, og næstu áratugina. Kannski fá þeir orku, gerist þeir sæmilega þægir

Tölvun eins og við þekkum hana núna er að komast í þrot. Hún er að rekast á múr. ekki bara hugbúnaðarlega séð, heldur einnig í atómum. Og iðnaðurinn reynir því að lappa upp á brostnar hátekjur sínar með því að troða sér inn í kaffivélar og bifreiðar. Tölvunariðnaðurinn er staddur þar sem bílaiðnaðurinn var í kringum 1955. Enginn veit enn hvað tekur við sem sú hvassa egg sem Vesturlönd hafa alltaf lagt svo mikla áherslu á, og sem knúið hefur þau áfram, sem miðstöð tækniframfara heimsins. Vesturlenskur almenningur er kröfuharður. Ekkert nema e. "the bleeding edge" eða hnífseggin fullnægir forvitni hans og löngunum. Þannig fannst Ísland og þannig fannst Ameríka og þannig fóru Bandaríkjamenn til tunglsins. Evrópa kemst hins vegar ekkert. Hún er föst í ESB. Steypt föst á kamar

SIGSALY (sjá), fyrsta stafræna samskiptatæknin. Sjá nánar á sagnfræðimiðstöð bandaríska hersins hér og hér

****

HEIMURINN ER EKKI AÐ FARAST

Öld Asíu er að enda og Bandaríkin verða árið 2050 það land í heiminum þar sem flest börn munu fæðast á hverju ári. Það verður ekki í Kína sem er að enda en ekki að byrja. Já enda. Öld Asíu er að enda áður en hún hefst. Þar er og verður í besta lagi allt hálfklárað verk áður en það fellur saman. Byltingar eru alltaf aðeins hálfklárað verk, og mjög svo oft ömurlegasta byrjun sem hægt er að standa á, séu þær ekki á vegum fólksins

Okkar heimur er hins vegar ekki að enda. Ekki neitt frekar en hann var að enda þegar hippatímabilið gekk í garð upp úr 1965, og þegar KGB stuttu síðar skipulagði svo kallaðar "friðarhreyfingarnar" á Vesturlöndum, til að reyna að grafa undan okkur. Slík merki sjást einnig í dag. Heimur okkar er ekki að enda frekar en þegar flokksþing Demókrata í Chicago 1968 fór fram undir mótmælum tugþúsunda manna í svo kallaðri "friðarhreyfingu", þar sem bæði lögregla og þjóðvarðlið reyndu að halda hinni lýðræðislegu samkundu opinni. Meira en þúsund manns særðust í átökum, lögreglan stormaði kosningaskrifstofur eins framjóðanda flokksins og handtók allt starfsfólk hans.

1968 - Heimurinn að "farast". Nei, sagði hinn þögli meirihluti

Okkar heimur er ekki að enda, ekki frekar en þegar Sjónvarpið sýndi "The Day After" úr Carl Sagan, en þá átti heimurinn sannarlega að vera alveg við það að farast. Bandaríkjaforseti gat varla ferðast til útlanda, fyrir mótmælum og skríl. Nú er ógnin hins vegar sögð liggja í loftinu sjálfu. Allt er aftur sett undir af hippatímabiluðum mönnum á ný. Heimurinn er sagður verða að farast, og jafnvel gömlu sovétríkin eru hætt að líta hreint svo illa út á ný. Þannig er málið matreitt á steikarpönnu hinna nýju hippa í hinu nýja matar-æði þeirra. Massahysterísk geðbilun er að grípa um sig. Sagan endurtekur sig, kannski sem farsi. Og kannski verðum við nýja sovétið, ef við pössum okkur ekki. Þess vegna verða Íslendingar að segja nei við EES-einkavæðingarpakka-3, svo að raforkumálin okkar breytist ekki EES-bankapakka-krakk-2

Heimurinn okkar er aðeins að stilla sér upp í nýrri útgáfu (re-config) eins og gerist eftir meiriháttar áföll, eins og gerðist í kjölfar 1945. Slíkt áfall, en samt öðruvísi, kom 2008/9 þegar þeir sem kölluðu sig "sérfræðinga" klessukeyrðu Vesturlöndum vegna þess að þeir vissu ekki hvað þeir höfðu þegar gert, né hvað þeir voru þá að gera. Þeir reyndust ekki vera sérfræðingar. Og þeir vita það ekki enn, og þess vegna verða Íslendingar að segja nei við EES-einkavæðingarpakka-3, svo að allt það sem er okkar, verði ekki rifið úr höndum þjóðarinnar. Þjóðaríhaldsmenn allra flokka vakni og komi sér í brækur, áður en kommúnistar, fasistar og nasistar verða fyrri til á vettvang brunarústa líberalismans

Sverrir Kristjánsson - 1961 - Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar - setur allt sitt traust á alþýðuna - bls liii 53

Mynd: Úr bók Sverris Kristjánssonar 1961. Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar

****

EN VÍSINDI GETA HINS VEGAR HÆTT AÐ VERA VÍSINDI

Og þannig er það. Abraham Lincoln hafði það sennilega eftir Jóni Sigurðssyni að Guð hefði sérstak dálæti á venjulegu fólki. "Þess vegna bjó hann til svona mikið af því", sagði Lincoln. Þúkýdídes sagnfræðingur Forn-Grikkja sagði hið sama: e. "ordinary men usually manage public affairs better than their more gifted fellows"

Ef einhver segir við mig; Gunnar trúir þú ekki á vísindin? Þá segi ég, jú, stundum. En ég veit hins vegar að á hverju ári koma út 1,4 milljónir vísindapappírar í heiminum (scientific papers). Og þegar þeir eru skoðaðir þá er aðeins hægt að endurtaka 25-35 prósent uppskrifta þeirra, með sömu niðurstöðum og höfundar þeirra fengu. Þannig eru vísindin. Þau snúast að miklu leyti um styrki og eru því slagsmál um peninga og hylli þeirra sem halda um peninga. Þau verða hagsmunaöfl (e. vested interests). Og hin svokölluðu "vísindi" eru líka þannig að allir helstu kjarneðlisfræðingar heimsins trúðu áratugum saman, og störfuðu við, það sem þeir kölluðu súperstrengjakenningu. Hún reyndist hins vegar þvæla frá upphafi til enda. Sundurlemjandi greiningin á þeim mönnum "vísindanna", var svona eins og á myndinni hér fyrir neðan. Og sömu greiningu fengu þeir "sérfræðingar" sem bjuggu til hrunið á Vesturlöndum 2009. Þeir fengu greininguna árið 2016 frá Paul Romer hagfræðingi í Alþjóðabankanum, sem hafði hana eftir Lee Smolin sem skrifaði "The Trouble with Physics" 2007 (vandamálið með eðlisfræðina). Einkennin voru þau sömu:

Screen Shot 2017-02-03 at 16-40-37

Það kemur dagur eftir þennan dag. Heimurinn okkar er ekki að farast. Það eina sem er að farast er pólitíkin. Hún er komin í heljargreipar fólks sem í vösum vafasamra vísindamanna sem eru í vösum annarra, og sem hafa breytt sér í sértrúarsöfnuð. Betra er að fara bara í kirkju og tala við þann alvöru Guð sem Vesturlönd byggja á. Hitt er bara kukl, eins og of oft áður í sögu okkar manna. Við erum nefnilega öll bara menn. Alvöru menn sem segja nei við gervimenni. Nei við EES-einkavæðingarpakka-3

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Formaður Sjálfstæðisflokksins: raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB


Formaður Sjálfstæðisflokksins: raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB

Bjarni Benediktsson

Mynd: Bjarni Benediktsson

"Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi?

"Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana?"

"Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra?"

"Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál."

- Bjarni Benediktsson, mars 2018, á Alþingi Íslendinga

***

Borgarísjaki

Mynd: Borgarísjaki

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Vald sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum


Vald sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum

Það sem stendur upp úr þegar fræðst er nánar um raforkumálið, og sem líka mun snerta hitaveitur landsins, er það að rangt er að tala um orkupakka. Það er rangnefni á því orkumáli sem hér er rætt um að tilskipan Evrópusambandsins

Réttnefnið á þessu er ESB-einkavæðingarpakki-3 á sviði orkumála. Það er það heiti sem málið fékk í Danmörku, þar sem eingöngu er talað um það sem einkavæðingu (d. liberalisering/privatisering af el/energimarkedet). Og það er einmitt það sem það er. Munið það: ESB-einkavæðingarpakki-3 á sviði orkumála

Taka á það sem er grunnþjónusta í eigu og undir stjórn þjóðfélagsins og umturna því yfir í vöru, til þess að Evrópusambandið fái fullt vald yfir henni undir því sem kallað er "fjórfrelsi" (en sem of oft er hórfrelsi)

Og til að hrifsa þessar eigur úr höndum þjóðarinnar þá ætla íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel), til að ná þessum eigum úr höndum þjóðarinnar, með erlendum lögum. Annars væri það nefnilega ekki hægt. Með EES-samninginn að vopni sækja þeir sér erlendan verndara valda sinna

Og þeir reyna að matreiða málið þannig að ekkert sé hægt að gera; Sorrý þetta er ekki lengur á okkar höndum. Þetta er á þeirra höndum. Þeir þarna úti ráða þessu. Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta" og við getum ekki annað en hlýtt

"Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram, og enn fastar, sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Kjósendum sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

Það er svona sem elítuvætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með svörtum og hvítum lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu

Hér eru geigvænleg óheillindi á ferð. Varið ykkur Íslendingar. Varið ykkur!

Ekki orkupakki3, heldur ESB-einkavæðingarpakki-3

Það er ekkert mál að segja nei við þessu. Það eina sem þarf, er að gera það: NEI. Það er það allra minnsta sem hægt er að krefjast af stjórnmálamönnum okkar. Það allra minnsta

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum  

Fyrri færsla

"Einangrunin" loksins rofin á orkupakkafundi [u]


"Einangrunin" loksins rofin á orkupakkafundi [u]

***

ÓHEILLINDI

Hið rétta nafn er einkavæðingarpakkar ESB (d. liberalisering/privatisering). Orkupakkar er rangnefni. Enginn í Brussel ætlar að framleiða neina orku. Þetta eru einkavæðingarpakkar, aðeins: Sjá athugasemdir. Hugtakið orkupakki er hvergi notað í Danmörku yfir þetta mál

****

LOKSINS

Jæja. Sjá viðtengda frétt Morgunblaðsins neðst. Loksins kom að því að "einangrunin" var rifin af alþjóðakaplinum, sem samkvæmt ritstjóra Fréttablaðsins umlykur sem einangrunarhyggja okkur þá Sjálfstæðismenn sem segjum nei við orkupakka3. Og sjá: öll meint einangrun okkar var því skyndilega rofin. Hún bara hætti, þökk sé einum fundi í gær. Mundar ritstjórinn penna sinn sérstaklega á þá Sjálfstæðismenn á borð við Styrmir Gunnarsson, sem voru stofnaðilar að NATO, sem gengur út á að einangra okkur frá óvinum. Já þarna kom Lord Voldemort-orðið fyrir aftur: EINANGRUN!

Með NATO var einangrun lögð umhverfis (nei nei, ekki þannig umhverfis) okkur, og sem einangrar okkur frá óvininum. Rússlandi var þannig haldið úti úr Evrópu, en Bandaríkjamönnum inni og Þjóðverjum á jörðu niðri. Þetta er sjálfur stofntilgangur NATO. Hann er ekki flóknari en þetta

En er þetta þá ekki hin skelfilega og prinsippfasta einangrunarstefna sem ritstjórinn lýðskrumast umhverfður út í í skrifum sínum? Jú jú. Þetta er hún. En það var að sjálfsögðu allt allt öðruvísi mál með Alþjóða kommúnismann. Hann var nefnilega svo góður að hann einangraði allar þjóðir jaðrar frá ríkidæmi þeirra. Einangraði alla frá auði til fátæktar og var því ekki manndrápsorð, heldur gæluorð góða fólksins

KALT STRÍÐ

Hér heima hefur einangrun húsa einnig verið framkvæmd, gagnvart kulda. Kuldinn er læstur úti og því ekki hleypt inn. Þannig er okkar eilífa kalda stríð hér í landi. Okkar eigið kalda stríð sem við alveg ein og sjálf höfum háð og farið með sigur af hólmi í. Það gengur út á að halda í okkur lífinu. Annars staðar gengur einangrunin út á að halda hitanum úti, svo að fólk deyi ekki úr hita inni í híbýlum sínum

Varla vill ritstjóri Fréttablaðursins rífa alla þessa einangrun af eins og gerðist á opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Þar héldu orkupakkamenn að þeir væru í skjóli og einangraðir frá alþjóðlegum skríl, sem hæglega gæti verið alþjóðlegir hryðjuverkamenn, undir vernd fábjána á launum frá skattgreiðendum, án þess að stjórnvöld sem engu stjórna viti neitt sérstakt af eða á um það. Íslenskum skattgreiðendum er gert að halda þessu gerpitrýniliði uppi svo að stjórnmálamenn okkar þurfi nú ekki að selja aflátsbréfin sín. En það eru þau bréf sem ganga kaupum og sölum á hinu alþjóðlega pólitíska kauphallargólfi, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn í viss vandræði vegna spilafíknar

FUNDURINN MIKLI

En á þennan svo kallaða "orkupakkafund" komu Þórdís Kolbrún iðnaðarráðherra og Guðlaugur Þór utanríkisráðherra, íklædd sjálfsmorðssprengjubeltum alþjóðlegrar hryðjuverkahreyfingar glóbalista og ætluðu að sýna fundargestum hvernig sprengja mætti einangrunina utan af raforkukerfi Íslands, þannig að útleiðsla gæti hafist. Orkupakkar 1+2 gengu nefnilega útá innanríkismál, en ekki milliríkjamál eins og orkupakki-3 gerir. En það er vegna orkupakka 1+2 að raforkuverð hefur ekki enn lækkað í kjölfar stærstu fjárfestinga Íslandssögunnar, eins og það átti að gera, því stærstu útgjöld Landsvirkjunar eru vaxtagreiðslur, vegna fjárfestinga í raforku okkur til handa, og sem er bein afleiða stórrekstrar og risavaxinna fjárfestinga í orkufrekri vinnslu hráefna, til verðmæts útflutnings frá Íslandi. Milljón tonn á ári, takk! Orkuverð átti að lækka í kjölfar þessara framkvæmda, en gerði það auðvitað ekki, heldur hækkaði það vegna orkupakka 1+2. Það kostar nefnilega að búa til bákn sem eyðileggur í stað þess að gera gagn og varðveita einfaldleikann og möguleika til hagræðingar í okkar þágu, en ekki í þágu annarra. Það er það sem orkupakkar 1+2 gengu útá: þeir eru í þágu annarra. Ekki okkar. Við höfum ekkert með þá að gera. Þeir eru Brusselskór til að pissa í

FALL-HLÍF

Einhverra hluta vegna hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, haldið sig í mikilli fjarlægð frá þessum tveimur burðardýrum orkupakka-3. Hann veit nefnilega hvað er í þessum orkupökkum Evrópusambandsins, og sagði meira að segja óvart? frá því á sjálfu Alþingi okkar Íslendinga, sem er æðsta stofnun íslenska lýðveldisins. Sjáið hann segja það hér. Sumir segja að sú stofnun, Alþingi, sé jafnvel æðri alþjóðlegum skríl og DDRÚV, sem er burðardýr Richards Attenborough, alveg eins og páfar höfðu líka sín burðardýr á öldum áður, og voru bornir um hinn þá þekkta heim í hásætum sínum, hvert sem þeim til hugar kom að veifa annarri hendinni. Þannig er veldi lofthitasinna orðið. Það er orðið nýtt páfaveldi. Og allir hneigja sig þegar nýPáfinn lætur svo lítið að lenda flugvélum sínum til að tala til lýðsins ofan af fjallinu. Al Gore var bara amatör. Hann var ekkert miðað við BBC

Efast ég þó um að Alþingi sé æðst miðað við þyngdina á sjálfsmorðssprengjubeltum Þórdísar og Guðlaugs. Þau belti virðast öllum málum æðri og breyttust því auðvitað í heilt svitabelti þarna á fundinum. En þegar xD-flokkurinn okkar springur í loft upp þeirra og formannsins vegna, þá ætlar formaðurinn þó að hafa sína fallhlíf á þurrum stað, einangraða frá áhrifamætti pakkans

HANN HEFST

En sjá. Já sjá: Á hinn opna og óeinangraða fund komu líka afurðir hinnar "alþjóðlegu samvinnu" um mannlegt óeðli. Þarna voru sem sé komnir landflótta Íslendingar sem misst höfðu aleiguna í síðasta hruni til að biðja um orðið. Hmm, var það ekki. Nei það var víst ekki þannig, því þeir haga sér ekki svona í þeim löndum sem þeir flúðu til

Nei, það voru sannarlega ekki þeir, því hér var nefnilega kominn sjálfur Glóböllur Alþjóðason, hvorki meira né minna, og friðlýstur alþýðlegur "fjárfestir" og sem var gjaldkeri Samfylkingarinnar í ESB, sem sagaði af sér og er nú hugarburðarsérfræðingur. Hann sér væntanlega stór tækifæri í því þegar að Landsvirkjun og allt raforkukerfi Íslands verður bútað niður í bita og "selt" vegna meira og minna þvingaðrar einkavæðingar frá hallarsölum Brussels, á burðarstóli. Já allt selt þeim sem kalla sig erlenda fjárfesta, sem er sérstök yfirtegund af Glóbelli Alþjóðasyni, þar sem orðið "erlendur" er notað til að undirstrika alvarleika og gæði málsins. Þið þekkið jú bankapakka-1. Erlendur erlendur

"SIT DOWN" SYNDA-RÓM

Á fundinn var sem sagt kominn bæði innlendur og erlendur fjárbrestur. Fundurinn varð því vegna tveggja til þriggja alþjóðlegra skrílsmanna að sjálfsögðu að fara fram á ensku, vegna þess að fundarstjórinn hrökk á sjálfskiptingunni í enska postulínið, sem alþjóðahlandkoppurinn á stofuborðinu er gerður úr. "Sit down, sit down, sit down" slagorðið var því hrópað fundinn út og inn. Er þetta ekki yndislegt? Við erum loksins komin með. Húrra! Litla Ísland okkar er loksins orðið aðili að elítusamfélagi öreiganna. Hinn alþjóðlegi postulínshlandkoppur sem Matthías ritstjóri hataði svo heitt, er kominn upp á sófaborðið og meira að segja í hásætið, því hann er nebbnilega frá útlöndum. Gefum þeim virkjanir þjóðarinnar! Gefum þeim orkuna okkar! Gefum þeim undirstöður Íslands! Gerumst leiguliðar í okkar eigin landi! Það er langsamlega best. Burt með auðvald okkar yfir eigin málum. Burt með auðvald okkar yfir því sem er okkar, en ekki þeirra. Og svo eru það allar hitaveiturnar maður, sem breytt verður í kuldaveitur

SAMA OG SÍÐAST

Hvað betra getur verið til í þessum heimi en að húka sem óeinangraður leiguliði í óeinangruðum kumbalda í köldu landi sem forfeður okkar byggðu upp, en ekki niður. Upp með braggana og niður með einangrunina. Brjótum alla múrana sem múrarar okkar byggðu. Já okkar múrarar. Opnum landamærin. Hleypum Glóbelli inn og burt með þjóðfélagið. Í askana með allt vit. Kæru landsmenn: vinnið vinsamlegast við akkúrat ekki neitt fyrir rafmagnsreikningnum. Sprengið beltin!

Og sjá: Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins (sit-down)

Til þeirra Sjálfstæðismanna sem voru á fundinum með Guðlaugi Þór og Þórdísi Kolbrúnu í Valhöll, sem og annars staðar, segi ég eftirfarandi: Þetta eru nákvæmlega eins fundir og Benedikt Jóhannesson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir héldu. Þar sem landsalan á Íslandi var messuð yfir saklausum Sjálfstæðismönnum. Það er ekkert að marka það sem þau tvö sögðu, að minnsta kosti ekki fyrir okkur Sjálfstæðismenn, né neina aðra. Trúið ekki orðum þeirra

GRUNNUR ALLS [uppfært]

Strategísk og hugmyndafræðileg stjórnmálafærslu-forysta Sjálfstæðisflokksins, sé hún til, og sem sést alls ekki að sé til, verður að gera sér grein fyrir því að í 20 stærstu ríkjum Evrópusambandsins hefur stjórnmálaflokkum á þingi fjölgað úr 160 árið 2008, og upp í 173 flokka árið 2012. Og þaðan upp í 186 flokka árið 2017, og fjölgar enn, mjög hratt. Þrúgur reiðinnar vaxa þar svona hratt. Pólitísk áhætta í Evrópu er orðin svo mikil að þar vill helst enginn þurfa að vera, sem kemst af án þess að vera þar. Og við kæmumst vel af án ESS-samnings sé út í það farið, vegna þess að við erum fullvalda og sjálfstætt ríki

Það eru þessi 20 ríki sem ég tel þarna hins vegar ekki. Þau eru ófullvalda og ósjálfstæð svört framtíð fyrir einum of margt fyrir okkar smekk, og Bandaríkjanna líka, sem óttast að þurfa að verja það sem er að verða algjörlega óverjanleg og stjórnlaus stappa ósjálfstæðra ríkja, þar sem reiðin dafnar og stigmagnast. EES-samningurinn átti aldrei að verða þessi gildra sem þið eruð að kynna og reyna að troða ofan í okkur. Hann er orðinn of dýr aðgöngumiði að mjög svo versnandi mörkuðum og farinn að líkjast gildru. Slíkt kæruleysi getum við ekki leyft okkur. Við verðum að halda möguleikum okkar opnum, en ekki lokuðum inni í skáp í Brussel. Út með orkupakka3. Við höfum ekkert með hann að gera. Nákvæmlega ekkert, og það vitið þið vel

BINDISKYLDA HUGANS

En það sem þið hins vegar virðist ekki vita er það að þið í Valhöll eruð að orðin það sem á ensku heitir vested interests. Og þær eru alltaf plágur fyrir allar framfarir. Þær hrópa sit down á frjálsa menn. Evrópusambandið er ekki að hugsa um Ísland, en það eru þið sem eruð með Evrópu á heilanum. Evrópa getur um ekkert hugsað annað en sjálfa sig, því hún er svo illa stödd og í svo mikilli hættu. Þar bíða lönd í næstum heilt ár eftir því að ríkisstjórn í stærsta landi sambandsins bara fæðist. Þetta stjórnleysi mun bara versna og versna og það mun koma að uppgjöri. Og Bretland er bless, fyrir þá, en ekki okkur

AÐVÖRUN

Þið verðið að vita að geopólitískar staðreyndir heimsálfunnar Evrópu og þar með Evrópusambandsins líka, eru bæði í andstöðu og mótsögn við tilvist frjálsra lýðræðisríkja í þeirri álfu. Þetta hefur aðeins marist og rétt svo hafst með aðstoð Bandaríkjanna fram til þessa. Evrópa, en ekki Ísland, stendur á krossgötum. Það erum ekki við, heldur þeir. Við erum allt annað en meginland Evrópu. Allt annað, eins og Matthías sagði líka. Og staðreyndir eru þrjóskar

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

O3: Það er þetta sem Bjarni Ben þarf að gera; taka stjórnina!


mbl.is Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

O3: Það er þetta sem Bjarni Ben þarf að gera; taka stjórnina!

Þetta á Bjarni Ben að gera:

"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB"

- sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga, 22. mars 2018

****

Það sem merkilegt er við forystu Sjálfstæðisflokksins núna, er hversu miklir einfeldningar ráða þar ríkjum. Ekkert annað er merkilegt við hana

Við erum með formann sem maður gerði sér grein fyrir, eftir Icesave, að erfitt væri að treysta. Og maður sá einnig glitta í sömu veiku hliðar hans þegar SDG lenti í hakkavélinni út af konu sinni, en Bjarni slapp hins vegar með skrekkinn. Hópurinn í kringum Bjarna er einnig sama marki brenndur. Þar fer furðufólk sem lítið veit og lítið skilur, og er ekki í sambandi við þjóðina

En hvað ég vildi segja er þetta; Það er engin leið að skilja sjálfan formann stjórnmálaflokks á borð við Sjálfstæðisflokkinn, sem nú, og í tvígang, er reiðubúinn að fórna bæði flokki sínum og hagsmunum Íslands, fyrir ríkjasamband, þ.e. Evrópusambandið, og sem er með yfirríkisumboð, en sem á fimm ára fresti heldur kosningar sem snúast eingöngu um það hvort að Evrópusambandið sjálft sé lögmæt stofnun eða ekki. Útkoman úr þeim kosningum hefur alltaf verið þannig að sjálft lögmæti Evrópusambandsins hefur aldrei í þeim fengist staðfest

Reynið að ímynda ykkur Alþingiskosningar sem alltaf snúast um þetta eitt: hvort að Ísland sé lögmætt ríki eða ekki. Og að í engum þannig kosningum hafði það nokkru sinni fengist staðfest að Ísland sé lögmætt ríki(!)

Þær kosningar sem standa fyrir dyrum í Evrópusambandinu núna í sumar, snúast auðvitað einu sinni enn um bara þetta: Er Evrópusambandið lögmæt stofnun eða ekki? Og svarið sem kjósendur munu veita núna, verður sennilega þvert nei. Að Evrópusambandið sé ólögmæt stofnun! Wall Street Journal fjallaði til dæmis um þetta í gær, undir fyrirsögninni:

"The only question at issue in the Continent election for parliament is whether the EU is legitimate at all."

Þeir sem skilja eitthvað í herforingja eins og Bjarni ætti að vera, en er því miður ekki, hljóta að skilja nú, að þar fer of mikil tóm tunna sem er allt of gerilsneydd leiðtogahæfileikum og strategískri hugsun. Enda stendur flokkurinn sig illa. Ef formaðurinn hefur ekki minnstu hugmynd um hvað hann er að gera, né heldur hvað hann á að gera, og hvenær, þá er auðvitað ekki við öðru að búast. Hann er þá það sem maður kallar "clueless". Úti að aka leikfang annarra manna

Það sem Bjarni á að gera núna er að segja nei við orkupakka þrjú, vegna þess, fyrir utan allt annað ömurlega hættulegt við hann, að þá á Ísland á ekki að gera frekari samninga við stofnanir sem eru ekki lögmætar. Ísland á heldur ekki að gera samninga við mafíur. En það er það sem kjósendur í Evrópu segja að Evrópusambandið sé, meira eða minna. Að vera skuldbundinn mafíu er alltaf hættulegt. Alltaf

Það sem Bjarni á að gera er að undirbúa Ísland fyrir það að Evrópusambandið liðist upp og samningar þess þar með líka, því Evrópusambandið er ekkert annað en sáttmálabunki, því það er ekki land, og þar að auki er það ekki fyllilega lögmætur sáttmálabunki. Og sennilega frá og með í sumar; þá verður það í kosningum stimplað sem verandi alveg ólögmætur sáttmálabunki. Að gera og vera með samninga við slík fyrirbæri er afar hættulegt fyrir Ísland, hvernig sem á það er litið. Engin veit hvernig það stórslys fer fyrir rétti og hver á hvað og hver skuldar hverjum, eins og sést svo gjörla í brexit sjálfstæðisstríði Stóra-Bretlands við bunkann

Það er þetta sem Bjarni á að gera. Svo verður hann að sparka utanríkis- og iðnaðarráðherrunum því þeir eru miklu verri en engir. Bjarni þarf að taka stjórnina í sínar eigin hendur og fullorðnast. Já fullorðnast. Annars höfum við kjósendur verið blekktir og sviknir. Þú ert einungis með atkvæði okkar að láni. Bara að láni

Kæri Bjarni: vinsamlegast gakktu ekki í þjóðsvikahóp með Vinstri grænum. Þú veist hvað það kostar. Bættu þig og gerðu betur. Þú getur það ef þú vilt. Ekki verða síðastur til að gera það sem er rétt og gott fyrir Ísland, og flokkinn

Hér má horfa á Bjarna Ben afneita orkupakka þrjú á Alþingi, fyrir ári síðan. Þar sagði hann: "raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál". Þarna hafði Bjarni hárrétt fyrir sér

En nú hefur hann hins vegar sogast inn á hið pólitíska kauphallargólf og er byrjaður að treida. Kominn í afleiðurnar. Sjálft gereyðingarvopnið, og situr þess utan við rúllettuna. Stendur ekki

Stattu vinsamlegast í lappirnar Bjarni, áður þú brennir gólfið undan okkur öllum. Bjargaðu þér maður. Og Íslandi og flokknum okkar!

Hvernig væri svo að við aðstoðuðum Grænlendinga í sinni sjálfstæðisbaráttu. Bandaríkin vilja að Grænland verði sjálfstætt ríki og losni úr ábyrgðarlausum klóm Danmerkur sem er í klóm hins ólögmæta Evrópusambands. Hvernig væri það. Að við gerðum bestu og einu bandamönnum okkar þann greiða. Við eigum engan annan raunverulegan bandamann, og það veistu vel

Fyrri færsla 

Bjarni Ben verður borinn út úr Valhöll eins og frú May úr 10-D


Bjarni Ben verður borinn út úr Valhöll eins og frú May úr 10-D

ORKULANDSÖLUPAKKI 3

Brynjar Níelsson þingmaður gefur tækifærissinnað lítið fyrir það sem heitir grasrót Sjálfstæðisflokksins. En það var einmitt hún sem kaus Bjarna Benediktsson sem formann flokksins. Er þá Bjarni eins konar lítið-gefandi-fyrir grasrótarformaður Sjálfstæðisflokksins

"Mér þykir afskaplega vænt um "grasrótina" og er í miklum samskiptum við hana og hlusta (er það?). Ég er hins vegar ekki þannig maður að afstaða mín fari eftir því hvernig vindar blása hverju sinni (nei nei, auðvitað ekki), hvorki hjá "grasrót" flokksins eða annars staðar. Þið hafið kosið rangan mann á þing ef þið haldið það, kæru vinir." (Innskot GR) Tekið af DV

Brynjar snýst ekki ekki eins og vindar blása, nei nei, heldur snýst hann eins og Bjarni Ben snýst, sem grasrótin kaus til að snúast ekki. Bjarni situr því samkvæmt Brynjari sem eins konar tilviljanakennd -og vindblásin?- afleiða af því sem Brynjar þingmaður flokksins gefur lítið fyrir. Innihaldið í Bjarna er þá orðið eins og undirmálslánin, sem sprungu framan í andlitið á þeim sem seldu þau til saklausra kaupenda, og sem síðan sóttu sölumennina til saka. Þau voru skrúfuð saman af sérfræðingum eins og þeim sem hafa þessa menn í vösum sínum

En nú er Bjarni Benediktsson sprunginn framan í Sjálfstæðisflokkinn og þá grasrót sem gerði hann að formanni (horfa á hvellinn á Alþingi hér). Verður hann brátt borinn úr úr Valhöll, því miðað við það sem hann sagði fyrir ári síðan, þá hefur hann ekki þá heilsu sem þarf til að leiða Sjálfstæðisflokkinn, nema til glötunar. Hann snýst eins og skopparavindkringla Brynjars um sjálfan sig, og þingflokkurinn snýst allur með, eins og síðast

Formannstilviljunin Bjarni Ben er byrjuð að ráðast á sjálfa sig og þar með á Sjálfstæðisflokkinn og Brynjar líka. Þetta snýst já. En ekki um kjósendur og ekki um flokkinn né neina grasrót hans, heldur um þá sjálfa. Þeir snérust eins og aular, því þeir eru aular, sem einu sinni enn, hafa guggnað og gefist upp, því slíkt krefst ei kjarks. Og hann hafa þeir ekki. Þeir snúast "eftir því hvernig vindar blása hverju sinni"

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Bjarni Ben: raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB


Bjarni Ben: raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB

Það sagði Bjarni Benediktsson á þingi fyrir rúmu ári síðan. Sjáið og heyrið Bjarna segja þetta hér

STEYPA ER EKKI HOLLUR MATUR

Okkur er sagt að borða hana. Og ef spurt er. Af hverju ætti ég að borða steypu, þá er svarað: bara af því. Þetta er þriðji orkupakkinn. Í honum er einnig þvinguð og tortímandi einkavæðing

Eina ástæðan fyrir því að við höfum sæmilega ódýrt rafmagn er vegna þess að við erum ekki í ESB

Eina ástæðan fyrir því að við flytjum út milljón tonn af áli á ári er vegna þess að við erum ekki í ESB

Eina ástæðan fyrir risavöxnum erlendum og innlendum orkukrefjandi fjárfestingum einkageirans er sú, að við erum ekki í ESB. Íslenska ríkið, þjóðin, bjó til jarðveginn handa þeim þar sem fé þeirra var gróðursett og blómstrar núna og um ókominn langan tíma

Eina ástæðan fyrir því að við höfum arðbæran sjávarútveg er vegna þess að við erum ekki í ESB. Við flytjum úr meira en milljón tonn af sjávarafurðum á ári. Komið var í veg fyrir að 1000 skip eltu sama fiskinn í sjónum og komið var í veg fyrir að landhelgi Íslands kæmist undir erlend yfirráð

Orkupakkar ESB (1+2) hafa hins vegar gengið út á það að 1000 "orkudreifingarfyrirtæki" (þvæla) elti sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands. Þeim óþurftarpökkum ESB þarf að rúlla til baka, áður en þeir skaða íslenska neytendur og þjóðarhag enn meira en þeir þegar hafa gert

Eina ástæðan fyrir því að við höfum íslenskar landbúnaðarvörur er vegna þess að við erum ekki í ESB

Eina ástæðan fyrir því að við höfum ferðamannabransa er vegna þess að við erum ekki í ESB

Orkupakki-3 er það sama og að ganga frá sjálfum sér hálfdauðum. Hann er steypa. Algjör steypa sem hættuleg er fullveldi, sjálfstæði og velmegun íslensku þjóðarinnar

Þess vegna sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi að orkupakki-3 væri steypa og ekki innri-markaðsmál ESB, né neinna annarra, en einmitt okkar Íslendinga sjálfra

Er það ekki Bjarni?

Fyrri færsla

xD opnast í báða enda: Moskvu-játningar þingmanna hafnar [u]


xD opnast í báða enda: Moskvu-játningar þingmanna hafnar [u]

Snýst hann 180 gráður á ári um sjálfan sig

Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga í mars 2018. Smellið á til að horfa á þessa upptöku Alþingis. Þar sagði Bjarni:

"Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana? [..] Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra? [..] Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál."

- Bjarni Benediktsson 

****

MOSKVU-JÁTNINGAR xD-ÞINGMANNA HAFNAR

"steypa ER hollur matur"

Páll Magnússon fyrrverandi DDRÚVari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, já núverandi þingmaður, skrifar grein í Morgunblaðið í dag, laugardaginn 20. apríl 2019, og lýsir því þar yfir að hann hafi verið óhæfur til að hugsa um orkupakka 3. Allt það brjóstvit sem kom honum inn á þing, hefur hann nú afskrifað sem þvælu. Hann hefur því farið á verkstæði til "sérfræðinga" og látið skipta um toppstykkið í sér. Og er nú eitthvað sem líkist ESB-róbót

Það voru jú svona "sérfræðingar" sem klesstu heiminum árið 2008, "sérfróðir" um undirmálslán (þvæla); afleiður (þvæla); og "sjálfstæða seðlabanka" sem áttu að koma í veg fyrir kreppur en gerðu það ekki; evrusvæðið ein þvæla út í gegn; "öryggisgirðingar" Maastricht-sáttmálans gagnvart áhættutöku einkageirans var líka ein stór þvæla, þar sem undir áföllum öllu var bara hent yfir á herðar skattgreiðenda, þvert á gefin loforð "sérfróðra" höfunda hans; orkupakkar eitt og tvö, fullkomin þvæla; ónýti EES-bankapakkinn og hin glataða Icesave-þvæla og svo framvegis. Já þeir "sérfræðingar", það er einmitt það. Endilega að hlusta á þá með já-og-amen hugarfar í heilastað. Það er hins vegar þú sem átt að stjórna þeim, en ekki þeir þér!

Ekki eitt orð frá þingmanninum um það af hverju Ísland ætti að fremja harakiri í orkumálum. Ekki eitt orð um af hverju orkupakki þrjú. Bara þetta: "steypa er hollur matur"

Þessi grein er svo hroðaleg lesning að maður verður að halda sér í armana á skrifborðsstólnum til þess að velta ekki af honum úr hlátri. Játningar efasemdarmanna um Jósef Stalín í Pravda hafa örugglega fylgt svona réttritunarreglum og hljómað svipað á sínum tíma. Greinin minnir einnig á Lilju Mósesdóttur gera grein fyrir Júdasar-atkvæði sínu þann 16. júlí 2009 kl. 13:10. Grein Páls passar því vel við Páskana núna

Nú bíður maður bara eftir því að Bjarni Benediktsson birti játningargrein og lýsi sig þar sem samskonar ómálga mann með smekk-snuð, án vits og tanna á þingi. Hún hlýtur að birtast umhverfðunarskýrslan sú, sem pólskipt munnvatn í smekk

Ég hef bara aldrei séð annað eins. Hvílík þvæla. Hvílík steypa!

Uppfært:

Bjarni Benediktsson (fæddur 30. apríl 1908, dáinn 10. júlí 1970) sagði eitt sinn að það væri þjóðin sem stjórnaði landinu og ríkisstjórn þess. Hafa menn alveg gleymt þessu? Í þessu máli er svarið við þeirri spurningu klárt já, eins og það var í Icesave. Á örstuttum tíma er hér enn eitt samsærið gegn íslensku þjóðinni á ferð, og þeim tening kastaði meðal annarra núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson eldri var örugglega þess meðvitaður að þá hafði Nýfundnaland nýlega misst bæði fullveldi og sjálfstæði sitt inn í bankahólfin í Kanada vegna skulda, vegna þess að þar höfðu menn ruglað "þægri ríkisstjórnun" (e. good governance) saman við ríkisstjórnun fólksins (e. government of the People). Nýfundnaland hætti því að vera til sem ríki árið 1949

Er forysta Sjálfstæðisflokksins kannski orðin samansafn þægra vesalinga? Flokkurinn er ekki með forystunni í þessu máli, svo mikið er víst. Þið eruð komnir út í móa á kaf í keldur. Hugtakið klíka kemur upp í hugann. Hver er með slíkt tangarhald á þingflokknum. Hver?

Svar: Það eru að minnsta kosti ekki við flokksmenn sem höfum tangarhald á þingflokknum okkar í þessu máli og heldur ekki kjósendur hans. Þannig að þeir sem til greina koma sem hafandi tangarhald á þingflokknum okkar eru þessir:

1. Ókjörnir embættismenn?

2. Evrópusambandið?, sem þá væri fjárkúgun

3. Noregur?

4. Íslenskir óligarakr?

5. Erlendir óligarkar?

Hvað gerðist á einu ári Bjarni formaður? Hverjir af þessum fimm eru það?

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Hvað gerðist Bjarni Ben? - þú hefur snúist 180 gráður á einu ári


Hvað gerðist Bjarni Ben? - þú hefur snúist 180 gráður á einu ári

Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga í mars 2018. Smellið á til að horfa á þessa upptöku Alþingis

****

Þar sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins þetta:

"Virðulegi forseti. Bara til að afgreiða þessa síðustu spurningu skýrt: Auðvitað styðjum við EES-samninginn, aðild okkar að honum og betri framkvæmd hans. Um það höfum við haft forgöngu hér í þinginu að ræða og gefið út sérstakar skýrslur í því efni og reyndar utanríkisráðherra með sérstaka áherslu á framkvæmd EES-samningsins.

Það sem ég á svo erfitt með að skilja er áhugi hv. þingmanns og sumra hér á þinginu á að komast undir boðvald samevrópskra stofnana. Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana? (ÞorstV grípur fram í: Við erum þegar undir því.) Já, vegna þess að við erum þegar undir því? Eru það rök, hv. forseti? Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra?

Mér finnst vera svo mikið grundvallaratriði (Forseti hringir.) að við skilgreinum hvað séu innrimarkaðsmál sem við viljum sinna sérstaklega undir EES-samningnum og hvað séu mál sem tengjast ekki beint innri markaðnum. Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál. Síðan eru atriði í löggjöfinni sem við erum þegar búin að innleiða(Forseti hringir.) sem er sjálfsagt að halda áfram að aðlaga að samningnum. (Gripið fram í: Og þið hafið ekki gert.)"

Hvað gerðist Bjarni?

Nú vita allir þeir sem kynnt hafa sér bara lauslega OrkuEvrópusambandið (EU Energy Union), að það þýðir meðal margs ógeðslegs annars það sem á ensku er kallað Ownership unbundling (aflétting eignarhalds t.d. ríkisins og sundurtætingu alls). Og ég ætla ekki að ræða hér allt það annað og ógeðslegt sem er í þessu pakkaviðrini öllu. Að því kem ég síðar

En hvað gerðist Bjarni. Hefur þú guggnað? Ertu nokkuð kominn í ískalt mat á ný, eða settist kannski Erna Solberg ofan á þig og pressaði úr þér loftið. Hver er með þig og þingflokk Sjálfstæðisflokksins í vösum sínum? Hver er að kúga ykkur? Nema að þið séuð að verða eins og 1968-hippafjölskylda sem ákveður að fyrirfara sér saman. Hvað er að?

Staðreyndir málsins eru þessar (á íslensku mannamáli):

Upplausn eignarhalds og þvinguð einkavæðing: Það atriði er eitt af þessum ógeðfelldu málum sem eru í orkupökkum Evrópusambandsins, sem snúast um að búa til eins konar "evrusvæði" fyrir rafmagn. Sameiginlegan "markað" þar sem orkustjórnin er í Brussel, með aðstoð gerviseðlabanka fyrir rafmagn í hverju landi. Svona eins og Rómarríki var stjórnað með aðstoð innfæddra aumingja í hverju landi. Það þarf ekki einu sinni sæstreng til

Þetta á að vera "sameiginlegur markaður" þar sem allar þjóðir missa stjórnina á raformumálum sínum, nema náttúrlega þær þjóðir sem ráða öllu í ESB. Svipað og í peningamálum, landbúnaði og fiskveiðum

Þvinguð einkavæðing er í gangi þar sem börn þjóðarinnar eru rifin frá móðurjörðinni, skilin að og seld í bútum. Óligarkar kaupa ýmist fót, hönd eða nýru og slefa út um bæði munnvik

Á sama tíma, og þrátt fyrir þennan yfirlýsta geislabaug í nafni hins "ósýnilega" markaðsalmættis, eru ESB- og ríkisstyrkir landanna látnir -eftir pólitískum hentugleika- flæða i nýpólitískar dellukenndar tískusveiflur eins og til dæmis (helst þýska) dísilbíla frá 1993-2007, og svo núna í það sem þeir kalla "non-carbon" orkuframleiðslu (kolefnislausa), sem er svo mikill hryllingur efnahagslega séð, að þar er bara tóm og risavaxin hola ofan í jörðina í ESB. Hækkar því bara og hækkar raforkuverðið í löndum Evrópusambandsins, og það hefur einnig hækkað hér heima vegna orkupakka 1 og 2, sem aldrei átti að samþykkja. Aldrei!

Hér heima ganga svo þingmenn okkar um eins og vængbrotnir vesalingar og gogga í sig þau korn sem fyrir þá er stráð úr kjaftflóði embættismanna sem fara með þá eins og búrhænsni

Okkur hér á Íslandi er troðið í sama bás og úrkynja orkumarkaðir margra Evrópusambandslanda eru í. Við sem erum með allt okkar tipp-topp og erum bestir í heimi í bæði raforkuframleiðslu á hvern íbúa og svo í flestu, ef ekki öllu, sem að raforku kemur. Eins og er með fiskveiðar. Við erum sett niður í svínastíur ESB til að bjarga innflutningi á paprikum og kexi frá versta efnahagssvæði heimsins: Evrópusambandinu og evrusvæðinu

Þessu getur enginn mótmælt, nema með þvaðri og útúrsnúningum eins og þeim að "steypa sé hollur matur". Hún er það ekki. Þvert á móti. Hún er eitruð. Þetta er er það eina sem Íslendingar fá að heyra frá orkupakkalýð landsins: að steypa sér hollur matur!

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

O3: Stutt er síðan að bankapakkinn hindraði allar sjálfsvarnir


O3: Stutt er síðan að bankapakkinn hindraði allar sjálfsvarnir

Neyðarlög þurfti til að koma í veg fyrir allsherjarhrun, vegna bankapakka EES/ESB

Það er ámátlegt að lesa þingmenn Sjálfstæðisflokksins útskýra að við eigum að samþykkja eitthvað sem er okkur í besta falli í stífan óhag og þýðir tap í velmegun fyrir Íslendinga. Í besta falli. Það er það besta sem orkupakki 3 hefur upp á að bjóða fyrir Ísland. Ef spurt er af hverju samþykkja eigi þetta mál, þá kemur bara þvaður eða þá að neitað er að svara. Enda er ekkert svar til við spurningunni annað en spuni, blaður og fals. Okkur er því sagt að þetta skipti engu máli, nema því máli að ekki megi segja nei við því. Er þetta boðlegt? Nei þetta er þvaður. Í reynd er verið að segja þjóðinni að hún geti aldrei sagt nei við neinu vegna EES

Og það er virkilega ósmekklegt að skrifa blaðagrein um að almenningi sé einhvern vegin siðferðilega óheimilt að kalla þingmenn illum nöfnum, þegar þeir sjálfir hella sér yfir fólkið í landinu og flokksfélaga sína og haga sér eins og yfirherrar sem þykjast vita allt betur, en vita samt ekki neitt og geta engu öðru svarað en að O3 skipti engu máli, nema því máli að ekki megi segja nei við honum

Þið vissuð ekkert um síðasta áfall (bankamálin) og þið vissuð ekkert um orkupakka eitt og tvö. Og þið vitið ekkert um orkupakka þrjú. Það er ekki ofsagt að málafærsla ykkar fyrir þessum pakka er af landráðalegu kyni. Það er ekki ofsagt. Þið eruð að reyna að troða því ofan í þjóðina sem þið ættuð að troða upp í afturendann á Evrópusambandinu, hefðuð þið kjark til þess

Þið eruð þeir mestu hugleysingjar sem ég hef séð í langan tíma, og hef ég séð margt, til dæmis formann Sjálfstæðisflokksins gera svoleiðis á sig að hann er búinn að því sem næst eyðileggja flokkinn varanlega vegna hugleysis. Algers hugleysis og dómgreinarskorts! Það hefur aldrei þurft kjark til að guggna og gefast upp, svo mikið er víst

Það sem þið eruð að gera núna er að stunda þá eiturfærslu sem Evrópusambandið hefur stundað og heimtað af öllum löndum þess og heitir "co-ordination", eða samhæfing milli landa. Hún er svona: "Ég samþykki að gera mínu fólki eitthvað vont ef að þið samþykkið að gera ykkar fólki eitthvað sem er sambærilega vont". Það er það sem þið eruð að gera. Þessir orkupakkar eiga ekkert erindi hingað til lands og allir vita nú þegar að fyrstu tveir pakkarnir eru algjör þvæla sem gert hefur fólkinu í landinu lífið leitt og kostar bæði peninga og óþægindi. Búið er að taka frá okkur hagræðingarvopn. Búið er að taka frá okkur einfaldleikann, sem er bestur og erfiðast er að finna upp. En við vorum samt búin að því

Hitt orðskrípið í ESB-orðasafninu er "structural reforms" (grunn-"umbætur"). Á mannamáli þýðir það: "vertu eins og ég". Breyttu þér í mig. Það er það sem hér er á ferðinni líka: "Gakktu með hækjur eins og ég, því ég er auli". Og það er rétt: Evrópusambandið ER auli kominn í örorkubyrgð. Varnalega örorkubyrgð. Það er orku-krypplingur. Hvað eigum við Íslendingar að hafa með orkukryppling að gera?

Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orkufyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka

Í versta falli mun orkupakkasafn Evrópusambandsins ræna fullveldinu í orkumálum frá Íslendingum, sem er mjög svo sennilegt, og einnig hafa það af þjóðinni sem er hennar, en ekki ykkar!

Ef þið segið ekki nei við Orkupakka 3, þá segir fólkið í landinu nei við Sjálfstæðisflokknum. Og það er einmitt það sem fólkið hefur gert. Það er ekki ykkur að þakka að hann er enn á lífi. Þjóðin segir nei beint við ykkur.

Hér er einn pakkinn enn sem enga þýðingu átti að hafa: EB-pakkinn. Ekkert er að óttast, var þá sagt, því Evrópusambandið er steindautt, sagði hann

Hvað með að leysa bara fólkið í landinu upp. Þá gætuð þið fengið nýja pakka-þjóð til að hentast ykkur

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

SDG sendir nýja reikninga til Sjálfstæðisflokksins


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband