Leita í fréttum mbl.is

Finnland: Mikil mistök að taka upp evru

FRÁ PAKKASAMBANDI

Björn Wahlroos, stjórnarformaður Nordea bankans og Sampo Group samsteypunnar, segir að það hafði verið stór mistök að Finnland skyldi hafa tekið upp myntina evru. En Finnar hafa verið læstir fastir inni í evru frá og með 1999

"Finnland hefur næstum engan hagvöxt haft frá og með árinu 2007". En síðan þá eru liðin 12 ár. "Á þessu tímabili hefur sænska hagkerfið hins vegar vaxið um meira en 20 prósent", segir Wahlroos. "Það hefur kostað Finnland ofboðslegt fé að sitja uppi með þýska mynt á finnskum vinnumarkaði" segir hann. "Þegar þú ert með vonlausa verkalýðshreyfingu á vonlausum vinnumarkaði eins og í Finnlandi, þá verður þú að hafa þína eigin mynt". Fjárfestar vilja ekki festa fé sitt í svona landi, sagði Wahlroos

Sem sagt: evran hefur kostað Finnland heilt heilbrigðiskerfi plús allt skólakerfið, á aðeins 12 árum, eða sem svarar til eins fimmta af stærð hagkerfisins. Á endanum mun hún kosta Finnland lífið, verði ekkert að gert

Allir pakkar Evrópusambandsins eru svona. Án undantekninga. Þess vegna er Evrópa eins og hún er: púðurtunna

Það er gott að íslenska ASÍ ætlar ekki að fremja harakiri saman með finnsku evru-verkalýðshreyfingunni. ASÍ segir því nei við örorkupakka ESB númer þrjú.

Hin svo kallaða "finnska leið" Jóhönnu-stjórnarinnar var þá eftir allt saman bara leiði Finnlands í grafreit evrunnar. Þar deyja nú fleiri en fæðast og allt er á leiðinni suður og niður

Krækjur: hhb.fi og friatider.se

Enginn ætlar að flytja til Finnlands, þvert á móti

Verða grafir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks teknar þar sem Finnland liggur núna? Ég spyr, því xD hyggst með orkupökkum gera íslensk heimil að örorkubótaþegum ESB, eins og Framsóknarflokkur er að ganga frá íslenskum landbúnaði dauðum. Svipað og þegar niðurgreidd ræktun rúsína í ESB kom bændum á hausinn í Kaliforníu, þar sem verðið á þrúgum reiðinnar varð að lækka úr 1400 dölum tonnið og niður í 400, ef bændur þar á bæ áttu að lifa af. Sem þeir gerðu auðvitað ekki, heldur voru þeir boðnir upp á spottprís til stóriðnaðar og sumir þeirra tóku sitt eigið líf. Allt vegna niðurgreiðslna Evrópusambandsins

Þessu þarf að mæta með fullri og óskorinni hörku. Fylla þarf síkið umhverfis Ísland af eitri til að drekkja ósanngjörnum keppinautum í. Það er hlutverk stjórnvalda. Að gæta hagsmuna þjóðarinnar með því að nota fullveldi íslenska lýðveldisins

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Orkupakkar ESB snúast ekki um hagsmuni íslensks almennings


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir hressandi hvatningarpistil Gunnar.

Var að horfa á nokkur hressandi youtube skeið

með Nigel Farage, alvöru sjálfstæðismann,

sem er við það að framkalla þjóðlega sjálfstæðisbyltingu í Bretlandi.

Í einu þeirra frá 2010 varaði hann okkur við að taka upp evru:

"Good old Iceland.  Don't do it!"

ólíkt Bjarna Junior sem vildi ólmur með Illuga í blaðagrein taka upp evru.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.5.2019 kl. 16:47

2 identicon

Brexit Party, sannur sjálfstæðisflokkur, er nú kominn með meira fylgi en Verkamannaflokkurinn og Íhaldsflokkurinn njóta nú samtals.

Þetta er hægt.

Samfylkingin, Vinstri grænir, Viðreisn, Píratar, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn ætla að knýja fram það sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er andvígur.  Að berjast innan þeirra flokka er bull sem skilar engu.

Sannir sjálfstæðismenn ættu að gera sem Farage og stofna samsteypuflokk alvöru sjálfstæðissinna.

Það er kominn tími til. 

Its Now or Never.

Just Do It. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.5.2019 kl. 18:03

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef einhver hefur hugsað sér að tala Bjarna og Illuga til, þá skal ég skaffa tjöruna og fiðrið.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.5.2019 kl. 18:09

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Minn maður Gunnar.

Þetta er ekkert væl;

"Þessu þarf að mæta með fullri og óskorinni hörku. Fylla þarf síkið umhverfis Ísland af eitri til að drekkja ósanngjörnum keppinautum í. Það er hlutverk stjórnvalda. Að gæta hagsmuna þjóðarinnar með því að nota fullveldi íslenska lýðveldisins".

þó einhver vælukjóinn telji kjarnyrta íslensku þína ógna lýðræðinu, og þess vegna ætlar hann að selja það áður skrifræðisvaldinu í Brussel.

Það fær mann bara til að segja, þá riðu hetjur um héruð og ráku ICEsave uppvakninginn af höndum sér.

Og sem betur fer þá ríða hetjur ennþá um héruð.

Kveðja að austan.

 

 

 

Ómar Geirsson, 12.5.2019 kl. 18:41

5 identicon

Jón Steinar lýsir vandanum nákvæmlega.

Það er vonlaust bull að berjast innan þessara flokka og dreifa og eyða þannig kröftunum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.5.2019 kl. 18:41

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Er hægt að gera eitthvað fyrir stjórnmálaflokk sem hugsanlega samþykkir eins konar díalektíkst nasískt orðalag um líf manna í móðurkviði? Líf sem allir hér á jörð þurfa að lifa fyrst.

Ef þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkir stóriðnaðardráp á varnarlausu lífi manna í móðurkviði, hefur hann þá ekki gert sig sjálfan að siðrofinni frumuklessu, sem engan tilverurétt hefur sjálfur.

Ætti maður yfir höfuð að leggja nafn sitt við þannig frumklessu villimennsku?

Mér datt bara ekki í hug að ég þyrfti að hafa áhyggjur af því að flokkurinn minn styddi svona villimennsku. En eftir lestur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins sé ég að svo er ekki.

Er þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kominn alla þessa löngu leið inn í Helvíti? Á maður að trúa því?

Það kemur dagur eftir þennan dag fyrir þá sem eru á lífi. En hins vegar ekki fyrir þá sem teknir eru af lífi.

Hvað er að þessu fólki?

Fósturdráp og orkupakkar!!!!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.5.2019 kl. 20:00

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er einmitt út af svona hlutum sem menn standa ístaðið Gunnar.

Þó það kosti átök.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.5.2019 kl. 20:43

8 Smámynd: Óskar Kristinsson

Þið eruð sko kyngimagnaðir strákar,Alvörumenn á ferðinni.

Það einfaldlega verður að stöðva þessa ósvinnu, helst með góðu,

Ef ekki, með öðrum ráðum.

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 12.5.2019 kl. 21:28

9 identicon

Rétt Óskar.  Ef það tekst ekki með góðu,

þá með öðrum ráðum.  Ráðin eru þekkt frá Bretlandi.  Sagan er þar að skrifa núna leiðbeiningarnar, mínútu fyrir mínútu.  Það þarf pressu innan sem utan flokka. 

En þá fullreynt er innan flokka, en sú stund virðist vera að bresta á, þurfa þeir sem þaðan vilja fara og þola ekki við, að mynda nýjan flokk allra sjálfstæðissinna, þvert á línur gömlu hræanna.  Svo einfalt er þetta.  Við sjáum það gerast í Bretlandi núna og næstu daga.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.5.2019 kl. 22:12

10 identicon

Niðurlagsorð Páls Vilhjálmssonar í nýlegum pistli hans fela í sér mjög raunsanna spá:

"Ef Sjálfstæðisflokkurinn innleiðir 3. orkupakkann verður öllum almenningi það ljóst sem reynt er að fela. 

Að nafninu til er Sjálfstæðisflokkurinn vettvangur almannahagsmuna;

í reynd verkfæri fésýslumanna að koma ár sinni fyrir borð."

Hið sama gildir reyndar um fleiri flokka, sem munu þá afhjúpa endanlega aðför sína að íslenskum almannahagsmunum.

Þeim yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar vanta þá vakost fyrir stefnumál sitt að hrinda aðförinni og blása sem nýr og breiður flokkur sjálfstæissinna til leiftursóknar, landi og þjóð til varnar og heilla.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.5.2019 kl. 22:27

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Dóttir mín var að spyrja mig um þetta fóstureyðingarmál í gær.

Hún, í fullri krefjandi vinnu með smábarn og hefur engan tíma til að fylgjast með í málum dag frá degi, horfir vantrúa upp á þessa viðurstyggð, og var að spyrja mig um málið. Ég sagði henni að það kæmi ekki til greina að flokkurinn okkar myndi styðja þetta mál. Ég sagði "flokkurinn okkar" vegna þess að ég hvatti hana þegar hún, maður hennar og barn fluttu til Íslands fyrir fjórum árum að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.

Ég hef verið önnum kafinn þessa helgi og hafði ekki tíma til að lesa allt Reykjavíkurbréf Davíðs fyrr en eftir að þau fóru frá okkur og óku heim í dag. Svo las ég frumvarp Svandísar Svavarsdóttur frá Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, og sá hvernig málið er innréttað.

Viðbjóður dóttur minnar er einlægur, og kallar hún þó ekki allt ömmu sína.

En, þarna skjátlaðist mér. Það er ekki lengur hægt að treysta forystu Sjálfstæðisflokknum fyrir því að segja manni frá því hvað klukkan er, því hún veit það ekki sjálf. Hún er geimvera.

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 12.5.2019 kl. 22:49

12 identicon

Erum við minni menn en Bretar?

Breski íhaldsflokkurinn er að hrynja,

rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hér.

Breski verkamannaflokkurinn sömuleiðis,

rétt eins og sundrung vinstri manna er hér.

Og það er vegna þess að Bretar treysta þeim ekki.

Bretar leggja nú liðsstyrk sinn, úr báðum þessum flokkum, á vogarskálar Brexit flokksins.

Íslensk stjórnmál hafa lengi horft til Bretlands.

Þar er nú fyrirmyndin komin, eina ferðina enn.

Bretar hafa vaknað til vitundar um skrímslið sem við er að berjast, dragúldna flokka sem hanga á júgrum gyltunnar í Brussel.

Erum við minni menn en Bretar?

Er ekki kominn tími til að vakna til vitundar um það hér á landi?  Að hlaupa undan oki hinna dragúldnu flokka og skynja kall tímans?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 13:56

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað þolir einn gamall Sjálfstæðismaður að heyra mikið af lýsingum á núveröld flokksins án þess að hálfsturlast?

Halldór Jónsson, 13.5.2019 kl. 18:41

14 identicon

Já, Halldór, þetta er orðið algjörlega óbærilegt.

Það nýjasta er að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í skjóli Sjálfstæðisflokksins, segist nú helst vilja að engin tímatakmörk væru fyrir því, hvenær megi framkvæma "þungunarrof," á mannamáli fóstureyðingar, á meðgöngutímanum.  Hún segir treysta konum til að ákveða það, það ættu að vera réttindi þeirra.  

Þetta er skoðun forsætisráðherrans sem Sjálfstæðisflokkurinn hóf til vegs og virðingar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 18:54

15 identicon

Hér lýsir forsætisráðherrann sem Sjálfstæðisflokkurinn hóf til vegs og virðingar, skoðun sinni:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/05/13/hefdi_sjalf_viljad_ganga_lengra/

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 19:06

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Katrín Jakobsdóttir sagði (með díalektísku nasísku orðalagi um líf manna í móðurkviði) á Alþingi Íslendinga:

"Sjálf hefði hún viljað ganga lengra og treysta kon­um til fulls með því að hafa eng­in tíma­mörk á þung­un­ar­rofi."

Nú vantar bara að forsætisráðherrann Katrín, sem xD elur upp sem nýja nöðru sér við hjartastað, birtist í Maófötum með Lenín kaskettið og formaldehýð-sprauturnar til að stinga inn í heilabú barna í móðurkviði og kalli það svo kvenréttindamál.

Þetta er virkilega slæmur félagsskapur þarna á Alþingi. Hvílíkar frumuklessur. Og hvílík viðurstyggð.

Við erum með pervertan sovéskan forsætisráðherra!

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2019 kl. 19:41

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Svona fór atkvæðagreiðslan um fóstureyðingar í dag:

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir

Alex B. Stefánsson

Andrés Ingi Jónsson

Ari Trausti Guðmundsson

Ágúst Ólafur Ágústsson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Ásmundur Einar Daðason

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

Björn Leví Gunnarsson

Bryndís Haraldsdóttir

Guðjón S. Brjánsson

Guðlaugur Þór Þórðarson

Guðmundur Andri Thorsson

Halla Gunnarsdóttir

Halla Signý Kristjánsdóttir

Halldóra Mogensen

Hanna Katrín Friðriksson

Helga Vala Helgadóttir

Helgi Hrafn Gunnarsson

Hjálmar Bogi Hafliðason

Jón Þór Ólafsson

Jón Steindór Valdimarsson

Katrín Jakobsdóttir

Kolbeinn Óttarsson Proppé

Kristján Þór Júlíusson

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Líneik Anna Sævarsdóttir

Logi Einarsson

Oddný G. Harðardóttir

Ólafur Þór Gunnarsson

Rósa Björk Brynjólfsdóttir

Sigurður Ingi Jóhannsson

Silja Dögg Gunnarsdóttir

Smári McCarthy

Steingrímur J. Sigfússon

Svandís Svavarsdóttir

Willum Þór Þórsson

Þorgerður K. Gunnarsdóttir

Þorsteinn Víglundsson

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Nei

Ásmundur Friðriksson

Bergþór Ólason

Birgir Ármannsson

Birgir Þórarinsson

Bjarni Benediktsson

Brynjar Níelsson

Guðmundur Ingi Kristinsson

Gunnar Bragi Sveinsson

Inga Sæland

Jón Gunnarsson

Jón Þór Þorvaldsson

Karl Gauti Hjaltason

Ólafur Ísleifsson

Óli Björn Kárason

Páll Magnússon

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Sigríður Á. Andersen

Þorsteinn Sæmundsson

Sátu hjá

Anna Kolbrún Árnadóttir

Haraldur Benediktsson

Njáll Trausti Friðbertsson

Fjarverandi

Vilhjálmur Árnason

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2019 kl. 20:02

18 identicon

Þórdís Kolbrún Reykás Gylfadóttir, Sjálfstæðisflokki sendi tíst frá Grænlandi

að hún hefði auðvitað ýtt á græna já takkann,

ef hún hefði verið viðstödd atkvæðagreiðsluna á þingi.  Og uppskar mikla gleðiskræki við það tilefni frá systrum sínum í holdi VG, Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata. En þar á hún heima.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 21:57

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Drakk kaffi með lækni í kvöld og við ræddum þetta mál. Hann er hneykslaður yfir þessu þingliði og kvað málið algerlega út í hött og algjör óþarfi. Hrein þvæla.

Þarna er að minnsta kosti ekki hlustað á tíst lífsins. Það er bara fótum troðið og slökkt á því í miðjum bunka af getnaðarvörnum gegn lífinu, og sem virðast vera einu varnirnar sem þetta fólk hefur áhuga á. Varnarliðið gegn lífinu er þetta fólk.

Hvílíkt sovétríki!

Gunnar Rögnvaldsson, 14.5.2019 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband