Leita í fréttum mbl.is

Baráttan gegn orkupakkaveldi ESB á Alþingi síðustu nótt [u]

Miðflokksmenn varðstaða Alþingi kl 0630 15 maí 2019

Mynd tekin kl. 06:30 fimmtudaginn 16. maí 2019, eftir varðstöðu alla nóttina á Alþingi Íslendinga. Þingmenn (varðmenn) Miðflokksins; Karl Gauti Hjaltason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birgir Þórarinsson, Bergþór Ólason og Jón Þór Þorvaldsson

****

Miðflokksmenn stóðu vaktina á Alþingi Íslendinga alla síðustu nótt. Eini flokkurinn sem ásamt Flokki fólksins þorir að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar. Alla nóttina voru þessir Miðflokksmenn á vaktinni á meðan hinir sváfu Icesavesvefninum langa, og sem engu hafa gleymt en ekkert lært, og eru því aftur hrokknir í brauðið. Ég fylgdist með og fékk þarna kærkomið tækifæri til að kynnast þessum öfluga hóp þingmanna Miðflokksins. Svona sá ég varðstöðu Miðflokksins, héðan frá úr mínu kjördæmi

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 00:37:22

Það er hryllingur að hlusta á orkupakkalið-ESB á vef Alþingis núna. Ég tek hatt minn ofan fyrir Miðflokksmönnum í þessu máli hér og nú fimmtudaginn, 16. maí 2019 kl 00:37, þar sem umræða stendur enn yfir

Fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:04:54

Handjárnaglamrið í þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í þingsalnum leynir sér ekki.
Þingmenn Framsóknar virðast hafa verið lokaðir niðri í bunker ríkisstjórnarinnar með gasgrímur, til að halda þeim sofandi á vaktinni um hagsmuni íslensku þjóðarinnar.
Nema að innflutt og ESB-niðurgreitt kjöt standi fyrirvaralaust fast í hálsi þeirra.
Hvílík skömm
Fyrirvarar = varalitur manna sem sjást varla lengur.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:18:16

Og þjóðin að engu leyti sammála því sem þarna fer fram í skjóli myrkurs.
Er þetta fullveldisvakt Íslands?
Og Íslendingar fá engu um neitt ráðið og hafa aldrei fengið að kjósa um neitt af þessum EES-málum.
Svona er allt sem tengist ESB; Myrkraverk.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:32:21

Ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er á bankamáli.
Þegar bankar lána fyrir regnhlíf þá heimta þeir yfirleitt alltaf að fá hana til baka, um leið og það byrjar að rigna.
Ekki má láta reyna á neitt, því ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er bankamáli.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:43:11

Afsakið.
Framsóknarþingmenn eru með innfluttan ost í eyrunum. Sennilega Danbo, sem útskýrir hið djúpa dauðadá þeirra.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:56:24

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og höfundur handjárnayfirlýsingarinnar um ESB-mál, gekk rétt í þessu fram hjá ræðustól, með járnin skröltandi um lúna leggina.

"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðs mál ESB" - sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í fyrra. (sic)

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 03:15:16

Í Danmörku er eingöngu talað um orkupakka ESB sem löggjöfina um "einkavæðingu orkumála" eða d. privatisering/liberalisering af el- og energimarkedet.
Enginn almennur Dani þekkir hugtakið "orkupakki".
Þess vegna kom þetta hér: Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 04:13:33

Ljóst er á umræðunni sem fer fram á Alþingi Íslendinga á skrifandi stund nú í nótt, að ríkisstjórn Íslands þorir ekki að standa á réttindum þjóðarinnar. Og að Sjálfstæðisflokkurinn er í svo slæmum félagsskap að hann þorir ekki að gagnast kjósendum sínum og íslensku þjóðinni, vegna kúgunar frá einhverjum sem annað hvort er í ríkisstjórn, eða stendur með hamar utan þingsins. Enginn gerir lengur ráð fyrir að siðferðislega pervertur forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir standi á neinum réttindum þjóðarinnar. Enginn. Eini flokkurinn sem stendur vaktina fyrir þjóðina á Alþingi er Miðflokkurinn.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 05:02:54

Enn standa umræður yfir á Alþingi.
Er hugsanlegt að íslenska ríkisstjórnin sé að verja norsku ríkisstjórnina falli í þessu máli? Með því að koma í veg fyrir að málið fari fyrir rétta aðila og að norska þjóðin fái nánara innsýn í eðli málsins?
Þetta er jú málið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt að skipti engu máli. En samt leggur hann höfuð sitt í gapastokk vegna málsins.
Hér er eitthvað margt og meira skýrið undir steini.
Íslenskir þingmenn eiga að gæta þjóðarhagsmuna Íslendinga, en ekki Norðmanna. Til þess eru þeir kjörnir.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:06:37

Enn er rætt um orkupakkamálið á Alþingi Íslendinga, þar sem aðeins einn flokkur, já bara einn flokkur, stendur á réttindum íslensku þjóðarinnar. Og það er Miðflokkurinn.
Málið er svo stórt að aðeins hefur verið hróflað við yfirborði þess. Þetta er nýtt Icesave sem troða á niður kok þjóðarinnar, og helst án þess að fjallað hafi verið um það í hlutfalli við risavaxið mikilvægi og þjóðarhagsmunalega stærð málsins fyrir almenning.
Já. Aðeins einn flokkur stendur í lappirnar.
Skyldi forysta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa lesið annað en síðunúmer málsins og hlustað á sömu tegundar sérfróðu rugludallana og gert var í Icesavemálinu?

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:18:53

Þingfundi var skyndilega slitið í einum grænum hvelli og málinu frestað.
Furðuleg fundarstjórn þarna á Alþingi Íslendinga, verð ég að segja
Enn er allt á huldu um þetta furðulega mál.

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:25:36

Líklegt verður að teljast að þingforseti (Samfylkingarinnar) vilji ekki að málið sé flutt á meðan þjóðin er vakandi. Um leið og þjóðin rís úr rekkju til að fylgjast með, slítur hann þingfundi og slær málinu út af.

PWRDWNSYS
099 SIGNOFF

****

Uppfært: laugardagur, 18. maí 2019 kl. 17:49:30

Ég bendi lesendum á að að ávörp Ingu Sæland og Ögmundar Jónassonar á Austurvelli, núna í dag, laugardag, smá sjá hér: https://www.facebook.com/magnusthor/videos/10220753634377589/

Fyrri færsla

Spái því að breiðfylking um aflúsun Íslands sé í smíðum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar

Vip þetta næturfundar rapport má nefna, ap "fyrirvararnir" fylgja ekki einu sinn með í þingsályktunartextanum.

Gulli og ráðuneytið segjast setja þá bara inn seinna í reglugerðir, en þingmenn megi ekki sjá þá í þeim þingsályktunartxta aem þeir eiga að samþykkja.  Þetta nær náttúrulega engri átt.  

Gangi þetta eftir er Ísland orðið að skrípalýðveldi, á vakt Sjálfstæðisflokksins. 

En, Miðflokkurinn og einnig Flokkur fólksins stóðu sig vel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 01:38

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég hékk til 4.013 mikið stolt af strákunum -landslið sem á ekki sinn líka við slíkar aðstæður.- Vantaði bara HÚIÐ! Tökum það á laugardag. 

Helga Kristjánsdóttir, 17.5.2019 kl. 02:21

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Já. Vald sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum.

Taka á það sem er grunnþjónusta og í eigu og undir stjórn þjóðfélagsins, og umturna því yfir í vöru, til þess að Evrópusambandið fái fullt vald yfir henni undir því sem kallað er "fjórfrelsi", en sem of oft er hórfrelsi, eins og sést til dæmis svo glöggt á gjörðum ríkisstjórnarinnar í þessu máli núna, sem með aðstoð erlends valds er að blekkja þjóðina.

Til að hrifsa þessar eigur úr höndum þjóðarinnar þá ætla íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel), til þess að ná þessum eigum úr höndum þjóðarinnar, með erlendum lögum. Annars væri það nefnilega ekki hægt. Með EES-samninginn að vopni sækja þeir sér erlendan verndara valda sinna.

Þannig hefur allt Evrópusambandið byggst upp. Skerf fyrir skref. Með lygum og falsi. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu.

Hér eru geigvænleg óheillindi á ferð. Varið ykkur Íslendingar. Varið ykkur!

Það er ekkert mál að segja nei við þessu. Það eina sem þarf, er að gera það: segja NEI. Það er það allra minnsta sem hægt er að krefjast af stjórnmálamönnum okkar. Það allra minnsta. Að þeir standi á réttindum þjóðarinnar. Og þjóðin á rétt á því að hér sé sagt nei.

Annars er ekki til neins að kjósa þetta fólk, sem reynir allt hvað það getur til að gera þetta.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.5.2019 kl. 07:01

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Veit að það er langsótt en forsetinn er seinasta vonin að fólkið í landinu sem meðal annars kaus hann til góðra verka fái að kjósa um þetta mikilvæga mál.

Sigurður I B Guðmundsson, 17.5.2019 kl. 08:41

5 identicon

Geri orð þín, Gunnar, úr eldri pistli þínum héðan í frá að mínum, og þar fara þá tveir saman sem segja við þingmenn sjálfgræðgisflokksins, þá sem sækjs sér vald erlendis frá til að ræna íslenska þjóð:

Þetta skulu þeir fá borgað fyrir.  Og geymt skal það verða, og aldrei gleymast.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 10:06

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Flott hjá þér, Gunnar. Þarna var staðin vaktin um óskert fullveldisréttindi og hag Íslendinga. Og ekki má gleyma því, að Flokkur fólksins var þar líka til varnar, þótt þingmenn hans tveir hafi kannski verið meðal þeirra sem evrókratískur þjónandi forseti Alþingis blekkti til að halda, að þingfundi mundi ljúka um eða upp úr miðnætti.

En svo má líka benda á, að orkupakkinn er sízt til að gæta þjóðarhagsmuna Norðmanna -- 70% almennings þar eru andvíg pakkanum, þótt spillt stjórnmálastétt vinni gegn þjóð sinni í því máli.

Nú er mikilvægt að sem flestir mæti á útifundinn á morgun, laugardag, á Austurvelli, þar sem orkupakkanum verður mótmælt. Enginn meðvitaður um skaðræðisáhrif þessa pakka, vanvirðandi vinnubrögð þeirra, sem bera málið fram á þingi, og áhættusókn þeirra, að vilja ekki leggja gervilega "fyrfirvara" sína undir mat lögspekinga, láti sig vanta frá þeim fundi.

"Vér mótmælum allir" má nú heyrast enn og aftur, í sinni nútímalegu mynd: VIÐ MÓTMÆLUM ÖLL! 

Og hvetjum forsetann til að neita að undirrita orkupakka-svikin, sem þjóðin hafnar og fordæmir.

Jón Valur Jensson, 17.5.2019 kl. 12:33

7 identicon

Sæll Gunnar.

Það var snöfurmannlega gert af þeim
Miðflokksmönnum að standa vaktina
en með því komu þeir einmitt í veg
fyrir að þingforseta tækist ætlunarverk sitt
sem var auðsjáanlega það sem þú nefnir svo
réttilega að:
"...og slær málinu út af.

Þakka þér að öðru leyti fyrir samantektina.

Húsari. (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 23:15

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Framsóknarmaður alla ævi sagði við mér nákomna persónu í dag að hann myndi aldrei kjósa flokkinn sinn aftur eftir þetta myrkraverk sem nú fer fram.

Hvað varðar forseta Íslands, þá held ég ekki að neins sé að vænta þaðan. 

Og hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn minn þá er hann genginn í geislavirk björg. Ekki ætla ég mér að fara þangað með honum, eins og þeir gera, sem aldrei læra neitt nýtt, heldur deyja með gamla útbrunna boltanum sem er að rúlla yfir þá.

Og enginn mun vænta neins frá ríkisbubbaflokki Vinstri grænna, með siðferðilegan pervert í stafni þess draugaskips.

Flest sem ég hef heyrt og séð frá forystu Sjálfstæðisflokksins síðustu 5-7 árin er þvæla af verstu sort. Forystan andar aðeins að sér andhverfa loftinu sem ríkti á Vesturlöndum á árunum frá 2002-2007. Hún skilur ekki að sú bóla sem hefur grafið um sig frá hruni 2008, er aðeins andsvarið við þeirri bólu sem Vesturlönd upplifðu frá 1997-2008. Hægri bólan var banka- og fjármálabóla, en vinstribólan frá 2007 til dagsins í dag, er hins vegar umhverfismál, jöfnuður, ferðalög, græn mygla og þvaður um alþjólegt XY-krómósón, sem aðeins er ný alþjóðleg vinstrihreyfing dulbúin sem gott fólk með hálm í heilastað. Og staða þeirrar bólu eins og þeirrar síðustu, korter fyrir hrun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.5.2019 kl. 23:28

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mér finnst Miðflokkurinn vera á ágætum stað. Að minnsta kosti með jarðtenginu við Ísland.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.5.2019 kl. 23:36

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Því meira sem ég hugsa um þingflokk Miðflokksins því betur líst mér á hann. Á myndina vantar Önnu Kolbrúnu Árnadóttir, sem var til staðar fram eftir nóttu og kom með góðar hugmyndir, og Ólaf Ísleifsson, og svo Þorstein Sæmundsson. Mér líst einkar vel á  Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra, enda er hann úr mínu kjördæmi.

Og svona öflugan formann eins og SDG er, finnur maður hvorki í Sjálfstæðisflokki né Framsónarflokki.

Mér finnst vera samankomið meira vit í þessu fólki, en í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, sem virkar orðið á mig eins og hálfgert gervigras (e. astro turf), sem vex auðvitað ekki, heldur bara slitnar niður. Finnst Ísland vera að finna í þingflokki Miðflokksins.

Framsóknarmaðurinn sem ég nefndi hér fyrir ofan, horfði, eins og ég, á útsendinguna frá Alþingi alla nóttina. Þetta voru lærdómsríkir tímar fyrir okkur báða.

Gunnar Rögnvaldsson, 18.5.2019 kl. 06:53

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Bendi lesendum á að ávörp Ingu Sæland og Ögmundar Jónassonar á Austurvelli núna í dag, smá sjá hér:

https://www.facebook.com/magnusthor/videos/10220753634377589/

Amen

Gunnar Rögnvaldsson, 18.5.2019 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband