Leita í fréttum mbl.is

Vald sótt til útlanda til að hrifsa eigur þjóðarinnar úr hennar höndum

Það sem stendur upp úr þegar fræðst er nánar um raforkumálið, og sem líka mun snerta hitaveitur landsins, er það að rangt er að tala um orkupakka. Það er rangnefni á því orkumáli sem hér er rætt um að tilskipan Evrópusambandsins

Réttnefnið á þessu er ESB-einkavæðingarpakki-3 á sviði orkumála. Það er það heiti sem málið fékk í Danmörku, þar sem eingöngu er talað um það sem einkavæðingu (d. liberalisering/privatisering af el/energimarkedet). Og það er einmitt það sem það er. Munið það: ESB-einkavæðingarpakki-3 á sviði orkumála

Taka á það sem er grunnþjónusta í eigu og undir stjórn þjóðfélagsins og umturna því yfir í vöru, til þess að Evrópusambandið fái fullt vald yfir henni undir því sem kallað er "fjórfrelsi" (en sem of oft er hórfrelsi)

Og til að hrifsa þessar eigur úr höndum þjóðarinnar þá ætla íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel), til að ná þessum eigum úr höndum þjóðarinnar, með erlendum lögum. Annars væri það nefnilega ekki hægt. Með EES-samninginn að vopni sækja þeir sér erlendan verndara valda sinna

Og þeir reyna að matreiða málið þannig að ekkert sé hægt að gera; Sorrý þetta er ekki lengur á okkar höndum. Þetta er á þeirra höndum. Þeir þarna úti ráða þessu. Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta" og við getum ekki annað en hlýtt

"Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram, og enn fastar, sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Kjósendum sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

Það er svona sem elítuvætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með svörtum og hvítum lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu

Hér eru geigvænleg óheillindi á ferð. Varið ykkur Íslendingar. Varið ykkur!

Ekki orkupakki3, heldur ESB-einkavæðingarpakki-3

Það er ekkert mál að segja nei við þessu. Það eina sem þarf, er að gera það: NEI. Það er það allra minnsta sem hægt er að krefjast af stjórnmálamönnum okkar. Það allra minnsta

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum  

Fyrri færsla

"Einangrunin" loksins rofin á orkupakkafundi [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr, heyr Gunnar. Nákvæmlega svona er þetta,

sem þú lýsir í pistlinum:

Bjarnabófa elítan sækir sér vald til að ræna orkuauðlindum þjóðarinnar skv. forskrift júrókratakommanna í Brussel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 29.4.2019 kl. 20:25

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Líklega hittir þú þarna naglann á höfuðið

“...íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel)” 

Löggjöf í umhverfismálum er orðin svo flókin. Sjáðu bara allt ferlið vegna leyfa til að virkja t.d. Þjórsá eða vestur á Ströndum svo ekki sé talað um fiskeldi í sjó eða vegagerð um Teigsskóg. Kæruleiðirnar eru óendanlegir. Það er hægt að drepa öll mál með því einu að einhver hrópa - UMHVERFI! Nú síðast Finnafjörður sem enginn hefur nokkurn tímann heyrt minnst á eða komið í. Ekki frekar en Kárahnjúka áður en Jökla var virkjuð. 

En með því að taka við tilskipunum að utan - búmm bang- málið dautt. Sama gildir um einkavæðinguna.

Ragnhildur Kolka, 29.4.2019 kl. 23:16

3 identicon

Heill og sæll GUnnar,

ég vona að þú fyrirgefir mér að hafa vitnað í þennan magnaða og stórgóða sannleikspistil þinn í athugasemdum mínum við pistil Ómars Geirssonar, "Einu sinni og einu sinni enn."

Mbkv., Símon Pétur frá Hákoti

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 29.4.2019 kl. 23:28

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Símon Pétur og Ragnhildur.

Forysta Sjálfstæðisflokksins ræður ekki lengur yfir sjálfri sér vegna þess að hún hefur misst eignarhaldið á raforkulínunni sem liggur upp í heilabú hennar og er kölluð mæna.

Forystan hefur selt erlendum og innlendum óligörkum aðgang að mænunni, þannig að sprikl hennar er svona eins og það er, sérstaklega miðað við það að Bjarni Benediktsson frumsýndi óvart frumútgáfuna af sjálfum sér á Alþingi hér, áður en mænulína hans rann á annarra hendur, sem tappa af henni rafmanginu eins og þeim sýnist og senda xD-flokknum okkar reikninginn, en sem hann getur ekki borgað.

Þið þekkið þetta. Ein lína sem flytur rafstraum, og sem er náttúrulegt einokunarfyrirbæri af hinu góða og Guðsgjöf, er látin í hendur 50 aðila sem allir fá strauminn úr þessari einu og sömu línu, og er sú þvæla kynnt sem "framfarir". ESB-ætlast svo til að þeir sem voru eigendur gerist leiguliðar og skipti um mænublóðsugur minnst 50 sinnum á ári, til að eitthvað sem kallað er "markaður" geti orðið til úr einum og sama nagla þess, sem framleiddur er í helvíti.

Nú er málið náð það langt að milljón sjálfseignarnotenda Radíus-orkuveitan á Norður-Sjálandi í Danmörku er að renna á erlendar hendur vogunarsjóða, sem hyggjast kaupa hana til að hækka verðið. Þetta er ESB-einkavæðingarpakki-3.

Danska ríkisstjórnin sem skrifaði undir þetta án þess að vita hvað hún var að gera, skelfur nú svo á beinunum af hræðslu að það heyrist alla leið til Brussel, því að þeir sem áttu þetta allt, Danir sjálfir, eru brjálaðir af reiði og ætla að reyna allt sem þeir geta til að stoppa þetta. Allt!

En sem þeir geta auðvitað ekki stöðvað, nema kannski í þann tíma sem skjálftinn varir í litla mænubúinu á Kristjánsborg, sem er ekki stórt, og sem fremsti skattalögfræðingur Dana og lektor í skattarétti og sem sat sem stjórnarformaður í fyrirtæki mínu, þegar ég bjó þarna og starfaði, kallaði Bjørnebanden, sem spýtir út nýjum lögum og reglum eins og úr vélbyssum. Fólk sem hefur ekki minnstu hugmynd um hvað það er að gera, sagði hann. Hann var svo öflugur að dönsk skattayfirvöld notuðu lagabókasafn hans meira en þeir notuðu ríkiseigur mænusóttarinnar.

Hér í mínum dal í Skessuhornsumdæmi eru erlendir eigendur, Danir, að smálóð með kaldavatnsbóli sem þeir keyptu á slikk í hruninu, að reyna að hækka kaldavatns reikninginn um mörg hundurð prósent til íbúanna, vegna þess að ríkisstjórn og Alþingi gerði þeim það mögulegt með hórfrelsinu.

Afsakið á meðan ég æli

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.4.2019 kl. 00:46

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég fæ útrás á reiði minni með snilld þinni og skammast mín ekki að kalla Valhallar hriðrir Gaukshreiðrið! Sástu kvikmyndina.

Helga Kristjánsdóttir, 30.4.2019 kl. 03:03

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

leiðrétt; hreiðrið.

Helga Kristjánsdóttir, 30.4.2019 kl. 03:04

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga.

Já ég sá hana.

Og ég sá líka Fimm létt stykki.

Bjarni Ben ætti að gera þetta. Horfa í spegilinn. Fast!

Biðst velvirðingar á stafavillu hér fyrir ofan. Það vantar stóran staf í staðarheitið Helvíti.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.4.2019 kl. 03:49

8 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk fyrir Gunnar, þú kant að beita þeim vopnum sem þú hefur og þorir að nota þau.  En það er merkilegt hvað Íslensk orð virðast njóta lítilla vinsælda hjá Íslenskum alþingismönnum og ráðherrum.  Guðlaugur Þór talar helst ekki nema erlendis svo helst lítur út sem hann haldi að þá heyrum við ekki og Bjarni Ben segir sem minnst, þar sem það er auðvita ábyrgðar minnst.  

Ég hef lengi haldið því fram að Íslenskum alþingismönnum og ráðherrum sé ekki treystandi fyrir svona samningi eins og EES samningurinn er.  Þess vegna er Íslenskri þjóð brýn þörf á að losna við þann marðar samning sem fyrst.  En á Alþingi eru karlar og kerlingar sem geta ekki með nokkru móti hugsað án þessarar undirförulu sníkjuleiðar Evrópusambandsins.  

 Það er líka önnur andskotans óværa sem hefur verið að plaga þingstörf svo freklega að á stundum er það nánast óstarfhæft og það eru of margir flokkar sem að veldur því að þingstörf verða að skipulagslausri óreiðu öllum kjánum Alþingis til mikillar hamingju.  

Sumir segja að það sé ekki hægt að stemma stigu við fjölda flokka á Alþingi.  Margir flokkar sína bara það, að alþingismenn eru vangefnir að því leiti að þeir kunna ekki að vinna saman. Menn sem ekki kunna að finna málum sínum stað innan fjögurra flokka, eru óhæfir til samstarfs og því óhæfir til setu á Alþingi okkar Íslendinga.       

Hrólfur Þ Hraundal, 30.4.2019 kl. 06:44

9 identicon

Bjørnebanden, á íslensku:  Bjarnabófarnir.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.4.2019 kl. 09:40

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur.

"Ég hef lengi haldið því fram að Íslenskum alþingismönnum og ráðherrum sé ekki treystandi fyrir svona samningi eins og EES samningurinn er."

Já þetta er rétt hjá þér. Þeim er ekki treystandi eins og sést.

Á friðartímum og undir mikilli velmegun, koma yfirleitt verstu hætturnar í hverju ríki innanfrá. Það er staðreynd sem allir sagnfræðingar þekkja. Frá Aþenu, Róm, til Clinton-gengisins og Evrópusambandsins núna.

Stór hluti Íslendinga er farinn að hafa það hættulega gott fyrir bæði land og þjóð. Úrkynjun er byrjuð að taka sinn toll. Úrkynjun vegna of mikillar velmegunar. Sjálfsbjargarviðleitnin fær útrás í niðurrifi á því sem forfeður okkar byggðu upp. 

Þannig rústa ríki sér innanfrá.

Þú hefur rétt fyrir þér. Þau hafa rangt fyrir sér.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.4.2019 kl. 10:16

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt, voru hér á árum áður kallaðir uppalningar lutu engum aga,sem kallast í dag Athyglisbrestur,eða hvað?

Helga Kristjánsdóttir, 30.4.2019 kl. 20:30

12 Smámynd: Júlíus Valsson

I like

Júlíus Valsson, 1.5.2019 kl. 13:47

14 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Kolka, nefndi Finnafjörð, og mig langaði að sýna henni þetta, hér fyrir ofan.

Jónas Gunnlaugsson, 2.5.2019 kl. 12:20

15 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka sendinguna Jónas. Þetta er á kortinu eins og sæstrengurinn. Svo verður okkur sagt að ekki verði til baka snúið.

Ragnhildur Kolka, 2.5.2019 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband