Leita í fréttum mbl.is

Spái því að breiðfylking um aflúsun Íslands sé í smíðum

Eftir framferði hinna pólitísku flokka; svínslega kæruleysislega og lágkúrlega umgengni þeirra við EES-samninginn og kjósendur; undanfarna mánuði; þá hlýtur flestum að vera orðið það ljóst, að slíkan samning er ekki hægt að leggja á stjórnmálamenn okkar að umgangast, frekar en orðið er, því þeir spillast svo mikið við hann

Sú þverpólitíska fylking sem myndast hefur gegn þriðja orkupakka Brusselveldisins hér á landi, Orkan okkar, verður ekki kveðin niður. Því spái ég, að breiðfylking þessi muni breytast í þverpólitíska andspyrnuhreyfingu gegn EES-samningum og fái því framgengt, með þjóðaratkvæðagreiðslu og jafnvel setu á þingi, að honum verði sagt upp hið fyrsta. Annað getur varla verið í kortunum en einmitt það

Mikið verður þá til dæmis ánægjulegt að geta sett okkar eigið viðskiptabann á Kína fyrir að ræna eyjum, starfrækja gúlagkerfi og nauðga löndum, í stað þess að refsa Rússum endalaust fyrir að hafa svona sögulega mikla tengingu við Krím og Sevastópol, þar sem hildarleikurinn um nánast allt fór fram og vannst. Svo gætum við viðurkennt Taívan og boðið Trump í rafmagnað tepartí um bætt gagnkvæm viðskipti við Taívan og betri samskipti hans við Rússland

Þegar Bretland er komið út, fylgir Danmörk á eftir. Og þegar hún er komin út þá fara Svíþjóð og Finnland aftur í þjóðbúning sinn og flagga fánum Norðurlanda við landamærin gegn suðri - og sírenusuði þess um endalaust afsal fullveldis. Noregur er þegar á leið út úr EES, en norskir stjórnmálamenn hafa bara ekki fattað það enn, því þeir fatta allt mikilvægt síðastir allra, eins og venjulega, sbr. brexit

Í EES reyndust vera örorkupakkar af meira en lamandi sort. Af spillandi og myrkvandi sort, er víst við hæfi að álykta núna, og það með fullkominni vissu. Við þurfum ekki hækjur og við þurfum ekki kryppumyndandi yfirríkispúða á bak þjóðarinnar

Nánast endalaust magn gæða er að finna í Íslandspakkanum okkar. Nefna má til dæmis sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar og full yfirráð yfir okkar eigin landi, þar sem íslensk lög gilda, en Brusselsk ekki

Ég hugsa við við höfum nú þegar tvo flokka með okkur; Miðflokkinn og Flokk fólksins

Fyrri færsla

Ofur-firring Sjálfstæðisflokksins í O3-málinu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Pistill Styrmis Gunnarssonar í dag, fjallar um orsakir alls þess sem við höfum rætt um í tengslum við fyrri pistil þinn um þetta Gunnar.

Hans pistill gengur út á varúðarorð til forystu flokka sem svíkja grasrót flokka.  Hann nefnir þar sem við, að menn skyldu horfa til þess sem er að gerast í Bretlandi.

Og það er það sem við höfum hamrað á, við höfum fordæmið beint fyrir framan nefið á okkur og ekki verra að vita að Davíð myndi ekki harma það að dauður flokkur fengi dánarvottorðið og hann jarðaður í kyrrþey.

En þá er það að bera gæfu til að dreifa ekki kröftum, heldur virkja þann mikla kraft sem býr m.a. í hinum þverpólitísku samtökum Orkan okkar tl að stofna þverpólitískan og breiðan flokk fyrir næstu kosningar. 

Það er leiðin til sigurs að fylla þingið af þingmönnum þess breiða hóps sjálfstæðissinna sem vilja ekki erlend yfirráð yfir auðlindum lands okkar og lífi þjóðarinnar.  Og það mun verða, því það er vilji meirihluta þjóðarinnar að þjóðin sjálf ráði yfir auðlindum sínum.

Já, Gunnar, breiðfylking um aflúsun Íslands er komin af stað.

Og hún verður ekki stöðvuð.  Hún mun sigra, miklu fyrr en síðar.

Afgerandi meirihluti þjóðarinnar, 82%, treystir ekki þinginu í dag.

Já, Gunnar breiðfylking meirihluta þjóðarinnar er komin af stað.

Þverpólitísk hreyfing sem vill og ætlar sér að aflúsa Ísland

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 11:28

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Góður Gunnar.

Þarft innlegg í umræðuna, og aldrei þessu vant hógvær í orðum.

Takk fyrir mig.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.5.2019 kl. 11:44

3 identicon

Heill og sæll Gunnar

Mig langar svo til að þakka þér alveg sérstaklega fyrir þennan afbragðsgóða og hnitmiðaða pistil.

Með kærri kveðju

Símon Pétur frá Hákoti

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 11:55

4 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Og eg vil segja kærar þakkir líka, Það er svo mikilvægt að finna að svona menn eins og þið eru enn til.

Mér líður líka vel að sjá að DAVíÐ vinur minn er á sömu línu og við.

Hef ekki verið sáttur við flokkinn minn síðan hann Davið fór úr eldlínunni.

Kv 'Oskar

Óskar Kristinsson, 15.5.2019 kl. 13:22

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Ný skoðanakönnun meðal Dana segir að stærri hluti dönsku þjóðarinnar vill frekar Norðurlandasamstarf en Evrópusambandsaðild.

Målingen viser, at danskerne ikke er så overbegejstrede for EU, som vi ofte hører i danske medier. Det kan jeg godt forstå, da det danske folkestyre og vores selvbestemmelse undergraves af EU. Det er derfor på tide, at vi træder ud af EU

Lausleg þýðing:

Thorkil Sohn meðlimur í flokknum Retsforbundet, segir: "Könnunin sýnir að Danir eru ekki hrifnir af Evrópusambandinu, eins og svo oft er látið og sagt í fjölmiðlum. Það get ég vel skilið vegna þess að Evrópusambandið grefur undan sjálfsákvörðunarrétti okkar. Það er því tími til kominn að við segjum okkur úr Evrópusambandinu."

Mikill meiri hluti íslensku þjóðarinnar er á móti innleiðingu orkupakka þrjú.

Ég leyfi mér að benda á: Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.5.2019 kl. 15:46

6 identicon

Það er sorglegt að fylgjast með umræðum á þingi og sjá þar þingmenn Sjálfstæðisflokksins í algörri nauðhyggju og rakalausri þráhyggju dásama EES samninginn við ESB.  "Að missa ekki traust vina okkar" segir nú Óli Björn Kárason og á þar ekki við kjósendur flokksins, heldur við embættismannahirðina í Brussel.  Ég æli.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 19:02

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Fyrir það fyrsta þá er ESB ekki vinur okkar. Menn þurfa að hafa það alveg á hreinu. Og ef menn skyldu ekki hafa það á hreinu þá eru þeir haldnir Stokkhólmsheilkenni gísla í fangatökubúri. Ekki þarf annað en að leiða hugann að bankahruninu sem forysta xD réð illa við á sinni vakt, án utanaðkomandi aðstoðar Davíðs Oddssonar. Og ekki hefur hérastubbavakt flokksins batnað eftir að hún varð Garðabæjarglingurvaktin. Getulaus með öllu og snýst eins og skopparakringla um tóman túkall með gati.

Fyrir það annað, þá sendi til dæmis Pentagon og Bandaríska forsetaembættið harðort bréf til Evrópusambandsins fyrir nokkrum dögum, um að það gæti átt á hættu að leysa upp NATO-samstarfið með því að ætla að útiloka bandarísk fyrirtæki frá því að bjóða í þau verk sem eiga að fjármagnast úr hinum nýja og firrta 13 milljarða evru PESCO-sjóði, sem mun eiga að ráðstafast eins og í hinum venjulegu mafíulegu sjóðum helvítisveldis einkaelíta ESB, sem öllu sem hún kemur nálægt kemur á hausinn.

Undirliggjandi í þessu erindi Pentagon til veruleikafirrtra elíta ESB, er náttúrlega það mál að ESB er að eyðileggja NATO-samstarfið og Bandaríkin þora ekki lengur að ábyrgjast 25-þjóða ólýðræðislegt og kúnstigt klessuverk ófullvalda ríkja, þar sem helmingurinn er á mála hjá þeim óvini sem NATO var stofnað til að halda í skák og mát, því Bandaríkin vita að ef eitthvað gerist að þá eru það bandarísk mannslíf sem kvödd verða á vettvang í bandarískum græjum. Bandaríkin geta ekki lengur vitað hver ESB-ríkin eru á mála hjá óvininum eða ekki.

Og fyrir utan þetta tilvistarlega mikilvæga mál (varnarmálin), þá hefur Evrópusambandið stundað níðst á nágrannanum viðskiptahætti (e. beggar thy neighbour trade and currency policy) alveg síðan að ERM II var sett á laggirnar og haldið því áfram með tvöfaldri forherðingu frá því að evran kom, þannig að sambandið hefur kengriðið veröldinni, og ríkjunum í því sem heita ekki Þýskaland, til hins óþekkjanlega. En nú er ef til vill komið að skuldadögum í þeim efnum.

Óli Björn, hinn Björn og Bjarni Ben eru sannarlega gengnir í björg þumbara. Sjaldan hef ég séð annað eins lið af sönnum og getulasuum afglöpum sem ekkert mark er takandi á. Næstum öll virðing mín fyrir þessu fólki er farin út í verður og vind, vegna máls sem tortíma mun þeim flokki sem ég hingað til hef stutt, en sem hann með öllu réttu, já öllu réttu, getur vel verið án. Aðeins fífl fórna því sem þeirra ekki verið án, fyrir það sem alveg má missa sig. Þetta eru braskarar með fullveldi okkar og sjálfsákvörðunarrétt. Braskarar og hirðfífl Evrópusambandsins!

Nú vita allir að EES-samningurinn gat aldrei farið öðruvísi en einmitt svona.

Hvílík firra: Ofur-firring Sjálfstæðisflokksins í O3-málinu

Gunnar Rögnvaldsson, 15.5.2019 kl. 19:58

8 identicon

Þakka þér Gunnar fyrir gott og efnismikið svar.

Algjörlega sammála og segi því aðeins efninu samkvæmt: Amen.

Verst er þó að vita af Kína daðri Bjarna Junior, en fregnir herma nú að íslensk stjórnvöld íhugi risastóra peninga"gjöf" frá Kína. Frá þessu er nú greint á vefmiðlinum eyjan.is.  

Það er orðið afar brýnt að koma Bjarna Junior, Sigurði Inga og Kola-Kötu frá völdum.  Beinlínis lífsnauðsynlegt þjóðinni.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 20:34

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Horfði á hluta umræðræðna Alþingis í sjónvarpinu bæði í dag og gær,verð að segja að rök OP#3 innleiðinga*sinna halda alls ekki og var málflutningur þeirra keyrður í kaf.-  Mikið er Inga Sæland orðin vösk í málflutningi sínum,þeir höfðu ekki roð við henni.

Helga Kristjánsdóttir, 15.5.2019 kl. 21:44

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga.

Það eru engin rök fyrir þessu máli. Enda var það kynnt til sögunnar sem ekkert-mál um ekkert. 

Þarna stendur forysta þriggja flokka við að kála sér og kjósendum sínum fyrir ekkert-mál um ekkert. Þetta er fyrirlitlegt.

Nú hefur myndast tómt gljúfur sem er sennilega stærra og dýpra en helmingur fylgis kjósenda allra flokka.

Það verður fyllt upp af til dæmis breiðfylkingu af fólki sem þolir ekki pólitískt vændi af þessu tagi.

1. Sjálfstæðismenn sem geta ekki hugsað sér að kjósa hvorki xD, xB, xV né neitt annað en xM og xF og nýja breiðfylkingu um EES-Exit.

2. Framsóknarmenn sem geta ekki hugsað sér að kjósa xB, xD, xV né neitt annað en xM eða xF eða nýja breiðfylkingu um EES-exit

3. Vinstri grænir sem geta ekki hugsað sér að kjósa xV aftur og vilja ekki kjósa neitt annað en nýjan Sósíalistaflokk eða xM eða xF eða nýja breiðfylkingu um EES-exit.

Og í hinni nýju breiðfylkingu eru sennilega ca 20 fyrrverandi þingmenn og ráðherrar úr öllum flokkum sem öllum er misboðið á hinn grófasta máta.

Og svo erum við með forsætisráðherra sem er siðferðilegur pervert. Og ríkisstjórn sem virðist lifa lífinu samkvæmt einhverskonar untergang-bukner-mentalitet.

Gunnar Rögnvaldsson, 15.5.2019 kl. 22:40

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég endurtek:

Aðeins fífl fórna því sem þeir geta ekki verið án, fyrir það sem alveg má missa sig.

Bæði bankahrun og pólitískt-hrun, eru framleidd úr þess konar afglöpum.

Gunnar Rögnvaldsson, 15.5.2019 kl. 23:00

12 identicon

Blessaður Gunnar,

læt hér fylgja með krækju á fréttina um Bjarna Junior og peninga"gjöfina" frá Kína sem íslensk stjórnvöld eru að íhuga.  En eins og við munum að þá sá Bjarni til þess að Ísland var gert að stofnaðila Innviðafjárfestingabanka Asíu (AIIB).

Nú vilja Kínverjar setja peninga"gjöf" á móti og koma að "innviðauppbyggingu" Íslands.  Upphæð "gjafarinnar" væri þvílík að talið er að hún næmi tífaldri Marshall-aðstoðinni.  Kína lítur greinilega á okkur sem bananalýðveldi.  Erum við það nú þegar?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 23:17

13 identicon

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/05/15/islensk-stjornvold-ihuga-risastora-peningagjof-fra-kina-marshalladstodin-bliknar-samanburdi/

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 23:18

14 Smámynd: Egill Vondi

Aðildaþjóðir ESB eru vinir okkar, en ESB sjálft er ekki vinur okkar. Þetta er munurinn sem Sjálfstæðismenn geta ekki skilið.

ESB er ekki einu sinni vinur aðildaþjóða sinna. Sjá meðferð á Bretum, Grikkjum, Ungverjum og Pólverjum.

Egill Vondi, 16.5.2019 kl. 00:16

15 identicon

@Egill vondi

Óli Björn var að tala um búrkrata veldi ESB sem "vini okkar", þ.e.a.s. að embættismannhirðin í Brussel væru vinir Óla Björns og þingmanna og ráðherra.  Hann var ekki að tilnefna einstaka þjóðir, síður en svo.

En ég er hins vegar sammála þér um það að ESB er ekki vinveitt aðildarþjóðum sínum, hvað þá okkur á nokkurn hátt, þó einstaka þjóðir innan þeirra geti talist vera vinveittar okkur og við þeim.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 00:34

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur

Eins og ég hef bent á er lítið á formann Sjálfstæðisflokksins að treysta.

1. Hann hoppaði á kínverska imperíal AIIB-vagninn þrátt fyrir aðvaranir mesta, dýpsta og eina raunverulega bandamanns Íslands, Bandaríkjanna. Hann hoppaði bara af því að vanginn var þarna. Hann sagði 1. júlí 2015:

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum, þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með,".

Bara. Vera með. Hvílíkur kjáni. 

2. Hann stóð ekki með þjóð sinni í Icesave og mun því varla standa með henni í öðrum grundvallarmálum um siðferði, réttlæti og þjóðarhag okkar Íslendinga.

3. Hann sagði fyrir ári síðan að "raforkumál Íslands væru ekki innri-markaðs mál ESB". En nú er hann hins vegar að berjast fyrir því að gera þau það.

Við eigum að vera mjög hrædd um bæði þjóðarhagsmuni okkar og þjóðaröryggi þegar að fólki eins og Bjarna Benediktssyni og siðferðlegum pervert eins og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra kemur, og sem er arftaki eins mesta kosningasvikara Íslandsögunnar, Steingríms J. Sigfússonar.

Íslendum er ekki óhætt undir ríkisstjórnun fólks sem er svona.

Það er hryllingur að hlusta á orkupakkalið-ESB á vef Alþingis núna. Ég tek hatt minn ofan fyrir Miðflokksmönnum í þessu máli hér og nú fimmtudaginn, 16. maí 2019 kl 00:37, þar sem umræða stendur enn yfir

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 00:37

17 identicon

Þakka þér svarið Gunnar.

Enn segi ég amen eftir efninu.

Já, ég hef fylgst með umræðunni og verð að segja að Miðflokksmenn standa sig afburðavel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 00:53

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:04:54

Handjárnaglamrið í þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í þingsalnum leynir sér ekki.

Þingmenn Framsóknar virðast hafa verið lokaðir niðri í bunker ríkisstjórnarinnar með gasgrímur, til að halda þeim sofandi á vaktinni um hagsmuni íslensku þjóðarinnar.

Nema að innflutt og ESB-niðurgreitt kjöt standi fyrirvaralaust fast í hálsi þeirra.

Hvílík skömm

Fyrirvarar = varalitur manna sem sjást varla lengur.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 02:07

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og þjóðin að engu leyti sammála því sem þarna fer fram í skjóli myrkurs.

Er þetta fullveldisvakt Íslands?

Og Íslendingar fá engu um neitt ráðið og hafa aldrei fengið að kjósa um neitt af þessum EES-málum.

Svona er allt sem tengist ESB; Myrkraverk.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 02:18

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er á bankamáli.

Þegar bankar lána fyrir regnhlíf þá heimta þeir yfirleitt alltaf að fá hana til baka, um leið og það byrjar að rigna.

Ekki má láta reyna á neitt, því ríkisstjórnin veit að EES-samningurinn er bankamáli.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 02:32

21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:43:11

Afsakið.

Framsóknarþingmenn eru með innfluttan ost í eyrunum. Sennilega Danbo, sem útskýrir hið djúpa dauðadá þeirra.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 02:43

22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 02:56:24

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og höfundur handjárnayfirlýsingarinnar um ESB-mál, gekk rétt í þessu fram hjá ræðustól, með járnin skröltandi um lúna leggina. 

"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðs mál ESB" - sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í fyrra.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 02:57

23 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 03:15:16

Í Danmörku er eingöngu talað um orkupakka ESB sem löggjöfina um "einkavæðingu orkumála" eða d. privatisering/liberalisering af el- og energimarkedet.

Enginn almennur Dani þekkir hugtakið "orkupakki".

Þess vegna kom þetta hér: Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 03:15

24 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 04:13:33

Ljóst er á umræðunni sem fer fram á Alþingi Íslendinga á skrifandi stund nú í nótt, að ríkisstjórn Íslands þorir ekki að standa á réttindum þjóðarinnar. Og að Sjálfstæðisflokkurinn er í svo slæmum félagsskap að hann þorir ekki að gagnast kjósendum sínum og íslensku þjóðinni, vegna kúgunar frá einhverjum sem annað hvort er í ríkisstjórn, eða stendur með hamar utan þingsins. Enginn gerir lengur ráð fyrir að siðferðislega pervertur forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir standi á neinum réttindum þjóðarinnar. Enginn. Eini flokkurinn sem stendur vaktina fyrir þjóðina á Alþingi er Miðflokkurinn. 

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 04:13

25 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 05:02:54

Enn standa umræður yfir á Alþingi.

Er hugsanlegt að íslenska ríkisstjórnin sé að verja norsku ríkisstjórnina falli í þessu máli? Með því að koma í veg fyrir að málið fari fyrir rétta aðila og að norska þjóðin fái nánara innsýn í eðli málsins?

Þetta er jú málið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt að skipti engu máli. En samt leggur hann höfuð sitt í gapastokk vegna málsins.

Hér er eitthvað margt og meira skýrið undir steini.

Íslenskir þingmenn eiga að gæta þjóðarhagsmuna Íslendinga, en ekki Norðmanna. Til þess eru þeir kjörnir.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 05:03

26 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:06:37

Enn er rætt um orkupakkamálið á Alþingi Íslendinga, þar sem aðeins einn flokkur, já bara einn flokkur,  stendur á réttindum íslensku þjóðarinnar. Og það er Miðflokkurinn.

Málið er svo stórt að aðeins hefur verið hróflað við yfirborði þess. Þetta er nýtt Icesave sem troða á niður kok þjóðarinnar, og helst án þess að fjallað hafi verið um það í hlutfalli við risavaxið mikilvægi og þjóðarhagsmunalega stærð málsins fyrir almenning.

Já. Aðeins einn flokkur stendur í lappirnar.

Skyldi forysta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa lesið annað en síðunúmer málsins og hlustað á sömu tegundar sérfróðu rugludallana og gert var í Icesavemálinu?

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 06:06

27 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 16. maí 2019 kl. 06:18:53

Þingfundi var skyndilega slitið í einum grænum hvelli og málinu frestað.

Furðuleg fundarstjórn þarna á Alþingi Íslendinga, verð ég að segja

Enn er allt á huldu um þetta furðulega mál.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 06:21

28 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Líklegt verður að teljast að þingforseti (Samfylkingarinnar) vilji ekki að málið sé flutt á meðan þjóðin er vakandi. Um leið og þjóðin rís úr rekkju til að fylgjast með, slítur hann þingfundi og slær málinu út af.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2019 kl. 06:25

29 identicon

Heill og sæll Gunnar

Miklar og góðar þakkir fyrir þetta rapport um framkomið hatur og fyrirlitningu þingmanna Sjálfstæðisflokksins á eigin flokki og þjóðinni og þingmenn Framsóknarflokksins aflokaða í bönkerum í sadómasókisma múnderingunni að lemja sjálfa sig til hlýðni við dýralækni.  Og með nokkra Pírata æjandi í hatara takti prógrammeruðu búrakrata þýska kolabandalagsins.

Mundu svo fyrri orð mín um yfirkonu eignasviðs Arion banka, eignarhald þess banka og eiginmann yfirkonunnar.  Það skýrir 180 gráðu viðsnúning Óla Björns.  Þannig selja einnig fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins sálu sína, fyrir eigin hagsmunina eina, en alfarið á kostnað þjóðarinnar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 08:44

30 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Þakka þér fyrir kæri Gunnar og þeim sem þér fylgja aldeilis menn sem ég trúi á í þessu "War 11" gegn esb.  

Helga Kristjánsdóttir, 16.5.2019 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband