Leita í fréttum mbl.is

Samvinna er langt því frá af hinu góða

Endalaust er staglast á hugtakinu "samvinna" í tíma og ótíma. Þeir sem eru heilbirgðir vita að samvinna er aldrei betri en sú vinna sem fram fer. Samvinna samvinnunnar vegna er orðin klisja sem heilbrigt fólk veit að er þvæla. Eiginlega er búið að sérhanna hugtakið sem stólbök þeirra öfugmælaflokka sem nú sitja eins og klessur á alþingi og skófla þar inn peningum fyrir að vera til dæmis þau fífl að samþykkja orkupakka, kynóra og fósturdráp og sjá jafnvel helst fyrir sér barnadráp í stað barnaskírnar

Það þurfti til dæmis mikla samvinnu til að safna Gyðingum saman til að geta myrt þá á meginlandi Evrópu. Þingið, ríkisstjórnin, embættismenn, ráðuneyti og lögregla þurfti að funda stíft og ákaft og kalla til sín vísindamenn á sviði mannfræði, læknisfræði og stjórnmálafræðinga. Manntalsskrifstofur, ættfræðingar, lánastofnanir, bankar og sparisjóðir og járnbrautarfélög með yfir 100.000 starfsmenn og "heilbrigðiskerfið" urðu einnig að vera í náinni samvinnu við hin efri lög stjórnsýslunnar. Að sækja til dæmis 400 þúsund Gyðinga inn á heimili þeirra í Ungverjalandi og flytja þá síðan til útrýmingar í öðru landi, krafðist mikillar samvinnu þvert á landamæri. Þarna kom Evrópuhugsjónin sér vel, hver svo sem hún er á hverjum tíma

Þarna var næstum öll Evrópa nasísk að meira eða minna leyti og miklir bandamenn voru einnig í múslímaríkjum Mið-Austurlanda. Íberíuskagi var að hluta til "hlutlaus" eða kinkaði kolli og dinglaði að meira og minna leyti með. Samvinna var samvinna, og varla mátti láta eitthvað eins og nasisma koma í veg fyrir "frjáls viðskipti" á milli landa. Rússland sem vann með hverjum sem var, framan af, sá til dæmis hinu þýska apabúri "æðri hugsjóna" á meginlandi Evrópu fyrir hráefnum svo hægt væri að brenna breskar borgir niður. Þess utan var "flokkurinn" í Rússlandi þá þegar orðinn sérfræðingur í innanríkismorðum sem byggðu á samvinnu í öllum lögum þess stórveldis í smíðum. Þessi samvinna á meginlandi Evrópu endaði ekki fyrr en maður með vindil stöðvaði lauflétta sigra sem byggðust á fyrirvaralausum árásum á nágranna sína, og samvinnulegheitum sem tóku svo á sig nýja mynd innan hvers þess lands sem ráðist var á. Nóg framboð varð þá af þjóðsvikurum í öllum hinum hernumdu löndum sem stunduðu samvinnu. Allir hljóta að sjá að samvinnan er það sem allt veltur á

Þeir sem geta ekki klórað sér í rassinum nema sem alþjóðleg samvinnuhreyfing, eru auðvitað ekkert annað en aular dagsins í dag, eins og ávallt áður. Getið þið ekki vinsamlegast hlíft manni við þessu samvinnukjaftæði og alveg sérstaklega klisjunni um "alþjóðlega samvinnu", því hún er ekki til frekar en hryggsúla sem fuglategund

Nú er til dæmis alveg ljóst að það sem kallað er "þingflokkur" er ekki flokkur. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er ekki til og má ekki verða til. Aðeins eru til þingmenn flokksins. Það eru flokksmenn sem eru flokkurinn. Þingmenn geta ekki verið flokkur og mega heldur ekki vera það. Þeir eru aðeins þingmenn kjósenda. Og það eru þeir, kjósendur, sem veita þingmönnum það umboð sem þeir hafa. Ekkert annað umboð er til. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa til dæmis ekki umboð til að rotta sig saman og hefja samvinnu gegn kjósendum sínum. En það gera þeir núna í orkupakkamálinu (eins og í Icesavemálinu áður) því þar eru þeir orðnir þingmenn Samfylkingar, Viðreisnar (hvað sem það nú er) og Pírata (hvað sem það nú er líka)

Þessi samvinna ykkar er ólögleg og hún er gerræðisleg. Hreint gerræðisleg. Hún er svik. Takið ykkur vinsamlegast saman. Þið vitið vel að þið eruð að gera rangt. Það sést alla leið, hvert sem er. Og það er líka komin lykt af ykkur og hún er vond; verri en síðast. Mun verri

Að vera góð fyrirmynd er best. Enga samvinnu þarf til þess

Fyrri færsla

Loftbelgur Esbéson fallinn saman


Loftbelgur Esbéson fallinn saman

Allt sem ESB tekur sér fyrir hendur -þó mest fætur sem sparka í lönd- mistekst og verður að skorpnum afbökum sem elítuveldi þess snæðir í lokuðum brakherbergjum sambandsins. Ekkert stendur upp úr eftir 61 árs tilvist þess í næstminnstu heimsálfu veraldar. Myntin virkar ekki, hún drepur og hún eyðileggur lönd. Peningaskömmtun ríkir enn í því landi sem tilvonandi forseti framkvæmdarstjórnar ESB eyðilagði með kollegum sínum á valdaöxli Berlín-Parísar. Einn fjórði hluti hagkerfis Grikklands er enn horfinn, á meðan AGS, samkvæmt WSJ, upplýsir að 60 prósent af öllum eignum og hagnaði þýskra fyrirtækja sé í lokaðri einkaeigu hins lokaða aristókratíska ESB-aðals Þýskalands, langt fyrir utan allt gagnsæi markaða fyrir almenningshlutafélög. Þýska þjóðin er ennþá bara leiguliði í sínu eign landi og hún á ekkert nema bílinn sinn sem Merkelsossar ráðast nú á

"But this economic structure has other negative consequences. According to a report from the International Monetary Fund this week, about 60% of corporate assets and profits in Germany are generated by closely held firms, contributing to rising wealth inequality in Germany, the biggest divide in Europe behind the Netherlands and Austria.

“The concentration of privately held and publicly listed firm ownership in the hands of industrial dynasties and institutional investors is especially prevalent in Germany,” the IMF report said."

Og á sama tíma er franska hagkerfið það lokaðasta í OECD

Enginn tekur því eftir því að Galileo-staðsetningarkerfi ESB-loftbelgsins er hætt að virka á fastri sporbraut um jörðu. Kerfið átti að vera að fullu starfandi skömmu eftir aldamót, en hefur aldrei virkað sem skyldi og því aldei komist í gagnið. Það er því að sjálfsögðu að mestu leyti hætt að virka í dag, en enginn tekur þó eftir því að svo sé. Þýska Faz segir að ESB hafi á sínum tíma auglýst Galileo sem verandi "fullkomnasta" staðsetningarkerfi veraldar. Spagettístöð þess á jörðu niðri, með ESB-sarg á heilanum, bjó til tómatsósukóða handa þessu stakkels geimfari ESB fyrir ofan brunarústir þess á meginlandinu. Allir í Evrópu verða því áfram að reiða sig á það GPS-kerfi sem Rússar geta ruglað. Moskva lætur ESB-menn bara aka fram og til baka um sjálfa sig, eins og henni sýnist, og hlær sig svo máttlausa að teið skvettist framan í Kreml

Sömu sögu er að segja um Schengen glæpa,- þjófa-, og sjúkdómaveituna, plús "fjárfestingaráætlun" Jean-klodsmajors Junckers anno 2014, sem er sami gjaldþrotni sirkus og allar áætlanir Kína eru erlendis. Plús auðvitað ESB-bankabrandaralagið anno 2012, og nú síðast hallargarðssalernið Instex sem átti að miðla greiðslum til og frá Íran til að berja á forseta Bandaríkjanna sem sér um varnir ESB, til þess eins að helferðarþjálfað Þýskaland fái þar löglega afsökun fyrir því að koma sér upp sínum eigin kjarnorkuvopnum. Engin greiðsla né færsla hefur orðið til í því apparati sem ESB þorir ekki að hýsa í einu landi, heldur hefur dritað því niður í þrjú öxullönd þess svo að hvergi sé hægt að draga það til ábyrgðar. Ítalska mafían hefði ekki getað gert þetta betur. Ekkert nema eitt stórt ESB-núll er á ferðinni þarna. Bara enn einn brostni ESB-vindbelgurinn sem nærist á algeru umboðsleysi alls og rekur sem ryðhrúgudallur draugaskipsins ESB um heimshöfin, öllum til ama og eilífrar skammar um alla jörð

Reyksprengjur ESB blinda þó enn heilan krunkandi her svívirðilegs orkupakkaliðs ESB úr plasti hér á Íslandi. Það væri gustukaverk að stinga því liði andartak í samband við móðurjörðina, og hleypa svo eins og einum Kárahnjúk á. Almannagjáin á milli þings og þjóðar stækkar bara og dýpkar, þökk sé hug- og getulausu ESB/EES setuliði Íslands. Þetta verður að taka enda. Svona algjörlega von- og huglaust stjórnmálasetulið úr plasti á ekki að líða á Alþingi Íslendinga. Nóg er komið af krónískum Icesaveaulahætti á alþingi

Fyrri færsla

Orkupakka-Brusselræða Bjarna Ben á Alþingi? (varalestur?)


Orkupakka-Brusselræða Bjarna Ben á Alþingi? (varalestur?)

Er þetta kannski hún?, sem varalestur til vara? (smella)

Þarna á Alþingi sagði formaður Sjálfstæðisflokksins:

Raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB

Kvennabúr Bjarna Ben formanns Sjálfstæðisflokksins hefur greinilega bundið formanninn á höndum og fótum og keflað hann, því nú heyrist ekki múkk frá honum lengur, miðað við það sem hann sagði alþjóð þarna á Alþingi Íslendinga í fyrra. Einhverskonar flokksskemmdarráð hefur yfirtekið það sem hann var landsfundarkjörinn til að gera; að leiða flokkinn áfram, en ekki til að leggja hann niður með raðdómgreindarskorti. Varla hefur sést eins ístöðulaus og dómgreindarskertur formaður í stjórnmálum, það getur varla verið. Hann er greinilega viljalaust verkfæri sem ekkert erindi nokkru sinni átti upp á stjórnmálasviðið

Og ekki tekur betra við frá þeim þingmönnum sem allir vita hvers vegna eru þarna; jú vegna þess að það vill svo til að þeir eru konur. Annað hafa þeir ekki til brunns að bera. Og allir vita, en gera samt ekkert í því, að slíkt er ekki nóg til að flokkur geti þrifist. Það sást á kvennaframboðinu sem var mikið, en eftirspurn eftir því nánast engin, eða fimm, tíu, átta og svo fimm prósent frá 1983 til 1995, og þá lagt niður í dós og lokað. Sérstöku karlaframboði hefði ekki farnast betur. Kyn- og ættarflokkar eiga lítið erindi við Íslendinga. Fólk sem heltekið er af kyni ætti ekki að vera í stjórnmálum. Þannig merkimiða-stjórnmál eru banvæn fyrir alla pólitík og öll lönd, því þjóð er ekki kyn. Þjóð er mikli meira en það. Hún er allt, sagan líka

Allir vita að orkupakkar ESB eru vondir fyrir Ísland. Mjög vondir. Og allir vita að þriðji orkupakkinn innheldur valdaframsal sjálfsásákvörðunarréttinda íslensku þjóðarinnar yfir okkar málum; að stjórna alfarið raforku og hitaveitumálum okkar sjálf í okkar eigin landi. Þjóðin á þetta land og hún byggði það upp, þessa vinnslu og kerfin líka. Vald yfir þeim málum er með orkupökkum ESB fært yfir á erlendar hendur með lúalegum framhaldsaðferðum af verstu sort. Þeir sem halda að stjórnmál eigi að snúast um að gera landi sínu vont, ættu ekki að vera í stjórnmálum. Allir vita að með þessum esb-pökkum er verið að gera Íslandi vont og kaupa sér frið, og allir vita hvernig þannig friðþægingarkaup enda; það sést vel á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum núna. Þetta gætu verið þeirra síðustu dagar, því flokksskemmdarráð þeirra hafa virkað. Þjóðfrelsið skal plokkað með augnabrúnaplokkara-aðferðum af þjóðinni á meðan ritarinn kjánar sig glórulaus í kaf. Þetta fólk er glatað fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þar með fyrir Ísland líka

Á meðan syndir Guðlaugur Þór samfylkingarhundasund um heimshöfin hinumegin á jörðinni. Gat þetta endað örðuvísi. Gat þetta lið endað flokkana öðruvísi en nýtt síðasta hrun; taka tvö, sökkið

Fyrri færsla

Stuttar: Nytsamur bjáni og skipsrotta skipta um fæðutegund


Stuttar: Nytsamur bjáni og skipsrotta skipta um fæðutegund

Breski sendiherrann úr mýri Washingtonbæjar, sem enginn Bandaríkjamaður nennir að hlusta á né horfa til, og sem nota átti sem nytsaman bjána til að ná til Boris Johnson, sagði auðvitað af sér vegna þess að hann var orðinn ónytsamur bjáni

Amber Rudd ráðherra atvinnu- og eftirlaunamála hjá Theresu May hefur skipt 180 gráður um skoðun og styður nú allt í einu útgöngu Bretlands af Egyptalandslögsögu Evrópusambandsins í upplausn, án svo kallaðs samnings. Hún vill halda vinnu sinni því hún vill ekki verða atvinnulaus þegar Boris tekur við. Forystulaus forysta Sjálfstæðisflokksins með Guðlaug Þór úti í metoo-sundlauginni ætti að íhuga þetta líka, áður en hún sogast út með samfylkingarvatninu

Frakkland setti í vikunni þrjú prósent sí svona skatt á bandarísk stórfyrirtæki á sviði tölvunartækni og internetssamskipta. Trump hefur þegar sett í gang rannsókn byggða á 301. grein viðskiptalaga bandaríska þingsins frá 1974. Hann á vísan stuðning þingsins í alþjóðlegum viðskiptamálum og meira en það. Þingið er orðið enn harðara en Trump í þeim málum. Kannski verður niðurstaðan sú að Frökkum verði gert að líma myndir af skorpulifur og grátandi börnum á allar vínflöskur sem seldar eru til Bandaríkjanna

Það er aldrei að vita, nú þegar heimurinn er að jafna sig á undantekningar-afbrigðilegheitum þeim sem ríkt í hafa í heiminum frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Þar sem Evrópusambandið er á leið með að verða eins konar frímúrararegla, ásamt Sameinuðu þjóðunum, NATO og IMF-Evrópu. Enginn hvellur mun heyrast þegar þessar stofnanir enda líf sitt, heldur aðeins lágvær stuna, því hrunferlið er þegar hálfnað eins og sést á hundasundi Guðlaugs Þórs

Við munu taka hin sterku og þrautreyndu og mannkynssögulega endingarmiklu hápólitísku einingar trúmála, kynþátta, þjóða- og ættflokkamála, sem alltaf, nema í vísindaskáldsögum vorra tíma, hafa verið hornsteinar mannlegrar tilvistar þessa heims. Þar mun Veraldarvefurinn enda lífið sem samskonar lágvær stuna og allskonarnetin taka við, hvert öðru lélegra og ófrjálsara, nema á því neti sem Bandaríkin munu stjórna. IBM-Global verður kannski endurlífgað í einni eða annarri mynd, hver veit. Engu verður þó treyst fyrirfram. Heimurinn verður eðlilegur á ný

Kyssi ég því íslensku krónuna, því blessað er myntsvæði hennar

Fyrri færsla

Ógerningur að reka alþjóðlega fjármálastofnun í ESB


Ógerningur að reka alþjóðlega fjármálastofnun í ESB

Myntbandalagið sekkur

Deutsche Bank dregur sig út úr alþjóðlegri bankastarfsemi vegna sovétríkis ESB

Enn ein af óteljandi björgunaraðgerðum til handa reddingar Deutsche Bank frá þroti, var sjónsett á ESB-leiksviðinu um helgina. Tæplega 20 þúsund starfsmönnum, eða einum af hverjum fimm, verður gert að missa vinnuna út um allt. Því sem með þessu sparast á síðan að troða sem 288 milljörðum evra ofan í það svarthol sem eignasafn bankans er, og sigla því síðan út úr bankabyggingu Deutsche í Frankfurt, sem þrotarústum sérfræðingaveldis ESB á háum launum, undir heitinu "a bad bank" eða ruslakista

Það skyldi ekki undra neinn að útrás bankans færi svona á 20 árum, því sósíaldemókratinn Gerhard Schröder, með alla sína 10 þumalfingur ofan í bönkum ESB og Rússlands, heimtaði að ESB (lesist Þýskaland en ekki Bretland) myndi koma sér upp banka sem keppt gæti við Wall Street, Lundúnir og Sviss. Slíkt var náttúrlega fáránleg hugsun frá byrjun, því að myntin sem Deutsche á heima í er ónýt og bankahæf lögsaga seðlabanka hennar er ekki til

Þegar að fjármálakreppan skall á komu yfirburðir þjóðríkislögsögu seðlabanka í fullvalda og sjálfstæðum þjóðríkjum í ljós og bandaríski seðlabankinn gat skipað öllum lánshæfum bönkum í lögsögu hans að íklæðast björgunarvestum alveg sama hver staða þeirra væri og að endurfjármagna sig úr hirslum hans og borga síðar, ef með þyrfti, eða deyja og drepast. Ekkert pókerspil um hvar í fjármálakerfinu svarti pétur ætti heima mætti verða til. Svo nú eru það Wall Street og Lundúnir sem yfirtaka algerlega hlutverkið sem alþjóðlegur banki á meðan Deutsche pakkar saman og gerir eins og stjórnandi hans sagði: verður þýskur banki í (fornaldar) Þýskalandi á ný

Allur hagnaður hans hefur farið í að borga skatta til ECB-seðlabankalings ESB sem er með neikvæða vexti á innistæðum, þ.e. inneign Deutsche er skattlögð því að vansköpun myntarinnar evru kallar á að bankar séu þvingaðir til að lána út þá peninga sem þeir hafa umfram. En til hvera ætti að lána þá veit enginn því flestir viðskiptabankar ESB eru fullir af rusli sem stjórnmálastétt ESB bjó til. Til dæmis því rusli sem Gerhard Schröder þvingaði Deutsche til að kaupa árið 2004 og hét Postbank. Angela Merkel tók svo yfir og hefur staðið í því mánuðum saman að þvinga Deutsche til að yfirtaka brunarústina Commerzbank, á meðan vinnulöggjöfin og verkalýðshreyfingar Þýskalands gera slíkum brunarústum algerlega ókleift að keppa við Lundnúnir, Wall Street og þjóðríkið Sviss. Og svo eru það 1300 brunarústir í eigu þýska ríkisins og fylkjanna sem þýska ríkisstjórnin neitar að endurfjármagna og halda ofansjávar því þetta er jú Evrópusambandið, ekki satt! Þar má ekkert fyrir fjórfrelsinu, svo kallaða

Þarna höfum við svart á hvítu það sem ég spáði, að enginn með fullu viti mynd flytja neitt að ráði frá Lundúnum yfir til meginlands Evrópu þegar að Bretland færi út. Enda segja stjórnendur Deutsche að veikburða tilvistarleg staða Evrópusambandsins, seðlabanka þess, útganga Bretlands og viðskiptastríð um víða veröld (sem ESB með 100 prósent öryggi mun tapa) séu ástæður þess að Deutsche, sem fyrir löngu ætti að vera kominn á hausinn, pakki saman og hörfi heim. Bankinn er einu ári eldri en sjálft Þýskaland og ætti fyrir löngu og með réttu að vera farinn í þrot og steindauður, hefðu markaðslögmál fengið að ráða einhverju um örlög hans og annarra steinrunninna fyrirtækja þýska aðalsins

Það eru aðeins vanhæfir fáráðlingar og esbsinnar sem halda að lausnin á öllu sé ESB og EES. Viðhorf þeirra er svipað þegar að tölvunartækni kemur. Þeir menn halda að tölvunartækni sé einskonar töfrasproti (á í reynd ónýtum og úr sér gengnum stýrikerfum, hriplekum gagnageymslum og tengingum) á meðan þeir sem þekkja þá tækni best hrista hausinn og hlægja að fávisku slíkra kjána

"Fjártæknifyrirtæki" munu ekki stinga neinu mikilvægu undan alvöru bönkum. Þvert á móti þá munu alvöru bankar vita best hvernig nýta megi fyrirtæki tölvunarbransans út í ystu æsar, til að koma alvöru bankaþjónustu inn í stafræn tæki neytenda á öruggan og gróðavænlegan hátt

Margir vita að alvöru bankar eru ávallt skrefinu lengra komnir í notkun tækni en hinn almeni tölvunargeiri. Sá geiri er nú í svo miklum tilvistarvandræðum að hann reynir að troða vanbúinni tækni sinni inn í kaffivélar og straujárn með hörmulegum afleiðingum fyrir hinn almenna borgara. Alvöru bankar munu bjóða þessum fyrirtækjum mergð og heilan regnboga API-enda inn í bankavöruhús sín, því án alvöru bankaþjónustu á tækjum sínum eru hin svo kölluðu fjártæknifyrirtæki fyrirfram steindauð. Þau geta aldrei orðið bankar og þau geta aldrei ráðið til sín það fólk sem bankar hafa alltaf haft, og sem alltaf er skrefinu framar í öllu sem varðar löggjafavaldið á vesturlöndum og innleiðingu tækni sem uppfyllir kröfur þess og eftirlit

Rauntímavinnsla íslenska bankakerfisins er einstök í heiminum og innviðir á borð við Reiknistofu bankanna er hnossgæti sem fá lönd geta státað af. Hins vegar eru það esb-stjórnvöld og löggjöf þeirra sem hvíla eins og þrumuský yfir nánast öllu hér á landi, og koma í veg fyrir áræðni, nauðsynlega áhættutöku og því að snilligáfa íslenskra bankamanna fái að njóta sín til fulls. "Alþjóðlega fjármálmiðstöðin Ísland" hefði vel getað staðist ef við værum ekki í EES. Þá hefði hún sérhæft sig, vaxið sjálfbært og væri enn á lífi í dag, á meðan sólin sest í hinsta sinn á sokkið sovétríki Evrópusambands í smíðum

Það er ekki nein tilviljun að Warren gamli Buffet er að skófla til sín bréfum í bönkum. Hann sagði að bankar verða ekki svona ódýrir eins og þeir eru í dag eftir 10 ár. Ég spái alvöru bönkum í alvöru þjóðríkum bjartri framtíð. Það var í tísku að vera illa við þá eftir hrun og að tala þá niður, en tíska er hins vegar háð tíma og stað. Þess vegna var dýrasta ilmvatni veraldar hleypt af stokkunum í dýpasta öldudal Kreppunnar miklu á síðustu öld, og það fæst því enn. Sókn er oftast besta vörnin. Því skal öllum orkupökkum ESB hent í ruslið, því þar eiga þeir sannarlega heima

Leiðari Wall Street Journal fjallaði um "sápu óperu" Deutsche Bank og ESB í gær: As the Deutsche Bank Turns ($)

Fyrri færsla

Málamiðlun um EES-samninginn heitir dómstóll


Málamiðlun um EES-samninginn heitir dómstóll

ESB-ORKUPAKKI-3

Forsenda EES-samningsins var að íslenskar sjávarafurðir nytu tollfrelsis inn á hið evrópska efnahags-sértrúarsvæði ESB, sem nú er vitað að virkar ekki hið minnsta umfram það að vera ekki aðili að því. Þær frumforsendur samningsins hafa ekki verið uppfylltar. Að því leytinu er samningurinn markleysa. Frumforsendur hans halda ekki

Og til öryggis var samþykki Íslands á EES-samningnum háð þeirri stöðluðu og sjálfsögðu lágmarksmálamiðlun fullvita manna, að leitað yrði til dómstóla með þau mál sem eiga ekki við um Ísland, og sem skerða fullveldi íslenska lýðveldisins og sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar

Málamiðlun í þriðja orkupakkamálinu er sú að annað hvort sé málinu, eins og vera ber, vísað til úrskurðar hjá sameiginlegu EES nefndinni og undanþága frá honum fáist þar, eða ekki. Og fáist hún ekki þá skal EES-samningnum sagt upp og honum hætt, því þá er honum hvort sem er sannarlega sjálfhætt

Þetta, eins og í icesavemálinu, er eina málamiðlunin sem þjóðin getur boðið embættismannaþingmönnum landsins. Annars er það út að leita að nýrri vinnu utan efnahags-sértrúarsvæðis ESB, sem í reynd er að breytast í eitt versta efnahagsvæði hins þróaða hluta veraldar

Ísland ætlar ekki að verða ólæknandi ESB-eyðni að bráð

Tengt

Innlend afskipti af verðlagningu rafmagns bönnuð í OP#4 (Bjarni Jónsson)

Fyrri færsla

Dvergríki ESB-Kína og Co


Dvergríki ESB-Kína og Co

4. JÚLÍ 2019

Donald J Trump

****

Þeir sem taka eftir því sem gerist, en ekki bara því sem sagt er, hafa komið auga á eftirfarandi:

Aldrei í sögunni frá lokum Síðari heimsstyrjaldar hafa Bandaríkin eins mikið og óskert vald yfir því hvernig best sé að glíma við til dæmis klerkaveldið Íran. Þar eiga Bandaríkin sviðið alveg ein og án íhlutunar annarra. Slík staða hefur ekki verið tilfellið áratugum saman, bendir til dæmis VDH-bóndi á hér 

Ef Íran grandar olíuskipum þá skiptir það Bandaríkin næstum engu máli. Þau eru stærsti orkuframleiðandi heimsins núna og verða á næsta ári stærsti útflytjandi olíu og gass. Að granda olíuskipum eða loka Hormuz-sundi bitnar ekki á Bandaríkjunum heldur á Kína sem í gegnum Norður-Kóreu hefur skaffað Íran kjarnorkuvopnatækni og fær samtímis helming olíu sinnar frá Mið-Austurlöndum, hverra helmingur viðskipta er við Kína líka. Skák og mát

Þorri Mið-Austurlanda hatar Íran meira en Ísrael og treystir Ísraelsmönnum fyrir að hafa til fullra og óskertra umráða kjarnorkuvopn sem þau mega ekki einu sinni hugsa til að Íran nái að koma sér upp. Engin aðstoð kemur þaðan til Írans, og öll eru þau orðin hundleið á hátt í hundrað ára kúgunartaktík Platstínu og Co. Ísrael hefur aldrei verið eins öflugt og núna. Skák og mát

Valdastéttin í Þýskalandi og Frakklandi og í gervihnattalöndunum á sporbraut um þau þolir Íran og Rússland betur en hún þolir Bandaríkin og Trump í Vestri. Það sem sameinar þau er hins vegar það sem gildir líka um Kína, sem einnig er háð því að Trump verndi áfram alþjóðlegar siglingarleiðir olíuskipa með yfirþyrmandi herstyrk sínum á heimsvísu

Evrópa blaðrar, en getur ekkert aðhafst í eigin túngarði frekar en ávallt fyrr frá lokum síðasta brjálæðiskasts álfunnar. ESB er kálskólagarðasambandið og Rússland er landlæst hrávöruríki á leið til baka inn í þriðja heiminn. Því hefur mistekist að umbylta sér. En það er samt enn landlæst öflugt herveldi sem ekki ætti að vanmeta sem framtíðarfjandmann eða bandamann Bandaríkjanna, ef að meginland Evrópu skyldi hrökkva í gamla stuðið aftur, sem alls ekki ætti að útiloka. Rússland er einnig siðmenningarlega mikilvægt fyrir Vesturlönd og ef til vill kjörinn hlutleysisaðili ef svo ber undir. ESB er skák og mát og Rússland er bara Rússland sem alltaf er á móti öllu sem Bandaríkin gera, nema þegar það þarf á aðstoð að halda. Skák og mát

Klessuverk Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hefur breytt sér í súpueldhús í hliðargötu eftir að Donald Trump tók frá flokkum það sem hann hefur nærst á frá því að New Deal Roosevelts var rennt sem kjölfestu undir hann 1936. Trump tók verkalýðinn frá alþjóðasinnuðum Demókrata-elítuflokkum og veitti honum húsaskjól á ný í milli- og efri-millistétt Bandaríkjanna og hann kom aftur á upprunalegu íhaldsjafnvægi Bandaríkjanna í dómsmálum og hæstarétti. Framgangurinn í atvinnu og launum í námuvinnslu, byggingarbransanum, framleiðslu, einkaþjónustu, verslun, vöruflutningum, vöruhýsingu, afþreyingu og gestgjafabransanum er tvöfalt meiri og betri en á öllu síðara kjörtímabili Obama-elítuforseta Bandaríkjanna, sem dekraði fyrst og fremst við alþjóðastóð fjármálamarkaða með ókeypis lánsfé. Fylki eins og Nevada, Flórída, Ohio, Pennsylvania, Iowa, Indiana og svo Bandaríkin í heild, storma fram á meðan líberalistum Demókrataflokksins hefur tekist að búa til þriðja heims land úr frjósamri Kaliforníu. Þaðan er bara flúið núna og það sama gildir um flestar stórborgir Bandaríkjanna. Fólkið tekur gömlu kirkjugluggana úr borginni með sér og byggir nýjar á ódýrri lóð á nýjum stað, þar sem borgarstjórinn með eigið fyrirtæki gengur með kúrekahatt og segir já frú, skal gert. Fimm herbergja hús á lágu verði bíður barnafólks í nýjum bæjum á landsbyggðinni í innri fylkjum Bandaríkjanna, með nýjum skólum og fyrirtækjum sem flýja pappírsveldi góbalistanna við sjávarsíðuna

Trump getur gert hvað sem honum sýnist með Íran fyrir Demókratafólkinu, því það fólk hefur snúið sig úr hálsliðnum með því að hneykslast á Trump fyrir að hafa ekki nú þegar ráðist á Íran og hafið hefndaraðgerðir og stríð. Trump liggur hins vegar ekkert á og mun líklega bíða þar til 40-ára terror-útflutningsríki klerkaveldisins falli friðsamlega saman undan sjálfu sér. Og þegar Íran stígur í spínatið og kálar bandarískum mannslífum, þá mun Trump þurrka úr þetta eða hitt í Íran án þess að hið Nýja vinstrigelgju-deal Demókrata svo mikið sem íhugi friðarmótmælaloftslags-hinsegintrans-latínókonumetoo-glóbalgöngugleðirafbílaglingur með nefhringa sína fastneglda við malbikaða Muellerrússafóbíu í hliðargötum þess sem einu sinni var. Innanborðs í þeim flokki er barist um á blóðugum Nikestrigaskóm, með eða án fánafíflum, um að finna taparann sem tapað getur forsetakosningunum á næsta ári, en unnið frambjóðendatitil flokksins, sem allsherjar brunarúst glóbal-elítu-vinstri-líberalismans á heimsvísu

Fyrri færsla

Stjórnmálamaður skipaður ECB-seðlabankastjóri evru


Stjórnmálamaður skipaður ECB-seðlabankastjóri evru

Gúrkutíminn sem daglega kemur út í ESB, færir okkur eftirfarandi tíðindi af þráðbeinóttu uppskerunni í ESB, samkvæmt síðustu-, þar síðustu og þar á undan síðustu 10-ára áætlunum Evrópusambandsins, um að verða ríkasta, frið- og hagsælasta hagkerfi veraldar, en sem mistekist hefur fullkomlega alltaf og að eilífu

0. Frá hlaðborði pólitískra hrossakaupa Evrópusambandsins

Ekkert gekk við 62-tíma borðhaldið í hallarsölum Brussel í þeim efnum að fara eftir því sem fara átti eftir; þ.e. "oddvitareglu" (bla bla) um hver yrði nú hvað í toppi Evrópusambandsins. Þar eins og annars staðar í málefnum ESB er útkoman háð þjóðerni. Forseti Frakklands sem varð forseti þess lands, og bara þess lands, til að koma í veg fyrir að önnur persóna yrði forseti, og sem hefur því 24,01 prósentu stuðning þeirrar þjóðar á bak við sig til að gera eitthvað mögulegt í stað þess að koma í veg fyrir allt, stormaði 62-tíma hlaðborðhaldið með pólitísku hrossunum á, og sagði að það, borðið, og sjálfur fundurinn um að tapið sé fundið, væri vanvirðing við alla og allt fólkið fyrir utan höllina, sem fengið gæti þá skoðun sína staðfesta að hér inni væri bara sirkus í gangi. Fólkið gæti einnig farið að halda að fundurinn snérist ekki um heildarhagsmuni Evrópu, sagði Emmanuel Macron með 66,10 prósent umboð til að stöðva hann (síðari umferðin). En það gerði hann auðvitað ekki, þar sem hann er með 24,01 prósent umboð kjósenda til að gera eitthvað mögulegt (fyrri umferðin)

Evrópa hefur ekki og getur auðvitað ekki haft "heildarhagsmuni" því hún er ekki land, né heldur heldur getur hún haft sameiginlega hagsmuni -nema örfáa- og alls ekki sameiginlega tilvistarhagsmuni af dýpstu tegund. Löndin í Evrópu hafa hins vegar öll sína þjóðarhagsmuni. Og þá hagsmuni má ekki og er heldur ekki hægt að láta liggja, reka og sullast um svona hlaðborð fyrir pólitísk hrossakaup, nema auðvitað í Evrópusambandinu, og hvergi annars staðar á byggðu bóli. Þarna á þessu hlaðborði hafa þjóðarhagsmunir landanna verið gerðir að skiptimynt á hinu pólitíska kauphallargólfi ESB-landa, sem öll eru því orðin reköld og tilvistarleg viðrini, en sem Bandaríki Norður-Ameríku hafa ábyrgst að verja. En þó líklega ekki mikið lengur, því ekki er hægt að verja lönd ESB gegn sjálfum sér

1. Stjórnmálamaður skipaður seðlabankastjóri evru

Þarna kom það loksins. Hrossakaupmenn Evrópusambandsins hafa gert fyrrverandi fjármálaráðherra Frakklands, Christine Lagarde, að næsta bankastjóra ECB-seðlabanka evru. Það styttist heldur betur í að hesturinn Gengiskan verði gerður að allsherjarráðgjafa Evrópusambandsins, sýnist mér. Það hlýtur bara að vera, vegna þess að Evrópusambandið sagði öllum frá 1993 til 2019 að ekkert slíkt gæti gerst í heilagri reglu ECB-munkaklausturs evru. Þetta væri "stofnun" sem hafin væri yfir allt slíkt. Hér á Íslandi báru menn meira að segja seðlabankastjóra þjóðar okkar út, en sem björguðu okkur þó frá miklu og mestu, með skírskotun til ECB-reglunnar í Evruhrópinu. Jóhanna og Steingrímur veifuðu þá heilögu flaggi á 2000 km löngu kústskafti frá Brussel með heilagri gulrót á endanum, en sem hér með reynist bara vera gömul sneið af hringormalagaðri Brusselgúrku

Og ekki nóg með það þá var Christine Lagarde dæmd í frönskum rétti fyrir vanrækslu í starfi fjármálaráðherra Frakklands árið 2008, en refsing var ekki útmæld (þið vitið náttúrlega hvers vegna). Hún brást sem fjármálaráðherra Nicolas Sarkozy, sagði rétturinn. Það er líka óskiljanlegt að Jóhanna ess og Steingrímur hungurjóðl skuli ekki hafa hlotið dóm og refsingu fyrir að brjóta Stjórnarskrá Íslands og nauðga Seðlabanka Íslands þegar það vanstillta pólitíska ofstækispar tróð norskum Stoltenbergara hér inn í Seðlabanka Íslands sem bankastjóra, þvert á lög landsins. Af hverju eru þau ekki í fangelsi núna. Má ég brjóta lögin svona?

Ef að Lagarde tekst ekki að sprengja evrusvæðið endanlega í loft upp, þá er enginn skortur á ráspútín-hæfileikaríku fólki innan furðuheima Evrópusambandsins. En nóg er samt að minnast bara aðfarar Lagarde að Grikklandi og öðrum evruríkum á barmi þjóðargjaldþrots, en sem hún neitaði þeim um af tillitssemi við gúrkuveldið í Brussel

2. Vextir tveggja seðlabanka

a) Bandaríkin (Nýi heimurinn): 2,5 prósent innlánsvextir fyrir fjármálastofnanir (e. federal funds rate). Síðasta ákvörðun tekin 19. júní 2019. Ástand: eðlilegt

b) Evrusvæðið (Gamli heimurinn, aðallinn og Deutsche Bank, sem er ári eldri en Þýskaland, og hyggst segja upp 20 þúsund manns á næstu 12 mánuðum): -0,4 prósent skattur tekinn af innistæðum fjármálastofnana (e. deposit facility). Síðasta ákvörðun tekin á 36 tommu snjóþrúgum úti á næfurþunnu peningagólfi evrusvæðis, þann 6. júní 2019. Dósinni sparkað áfram niður götuna til að minnsta kosti á síðari hluta næsta árs, því að lítið sem ekkert gengur með að koma hvorki peningapólitískum markmiðum, efnahagsmálum né peningamálum myntsvæðisins í lífvænlegt horf. Ástand: mjög óeðlilegt, en þó í samræmi við hinn pólitíska Frankenstein peningamála sem evran er. Hún hefur ekkert með efnahagsmál að gera, því evran er 100 prósent pólitísk mynt

Valdarán segja þýskir

Ágætt er að enda þennan pistil dagsins með krækju á leiðara Wall Street Journal í dag: A Politician for the European Central Bank ($) - og svo á því að þýskir telja að valdarán Frakklands innan ESB hafi ráðið för við skipan í toppembætti sambandsins að þessu sinni - og að þýskar valdastéttir, fjölmiðlar, sossar og græningjar froðufella vegna skipan Ursulu von der Leyen (varnarmálaráðherra úr flokki CDU og stórríkissinna) í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB, og hóta að koma í veg fyrir hana. Það væri þó of mikið af gúrkusneiðum á lesendur lagt að fjalla um það í einum og sama pistlinum, um gúrkuveldi ESB. Meira um það síðar þegar að spægipylsan hefur verið sneidd á hlaðborð leynifélags ESB, sem hvorki fundargerðir né upptökur ná til

Fyrri færsla

Angela Merkel laug. Það var ekki hitinn


Angela Merkel laug. Það var ekki hitinn

Til marks um hversu alvarleg staðan er með kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, þá ritskoðaði þýska ARD ríkissjónvarpið nýtt skjálftakast kanslarans burt úr vinsælasta fréttatíma sínum Tagesschau í gær. En í gær fékk þýski kanslarinn nýtt skjálftakast og flestir fjölmiðlar nema í Þýskalandi fjölluðu um það (með silkihönskum ætluðum smábörnum)

Og í þetta skiptið var skjálftakastið ekki vegna hitans, því Merkel var stödd innandyra og afþakkaði þess utan það vatnsglas sem hún sagði síðast að væri það eina sem hún þyrfti á að halda

Annað hvort er kanslarinn á lyfjum sem hún fer í skyndilegt fráhvarfskast vegna, eða þá að hún er geðrænt úrbrunnin eða alvarlega líkamlega veik

En hvað sem heilsu hennar líður, þá var hér ekki á ferðinni neinn leiðtogi hins "frjálsa heims", því Angela Merkel skilur við Þýskaland og Evrópusambandið í rjúkandi rúst. Hún sá fyrir því að leiða í svívirðileg níðingslög reglur um hallalausan rekstur ríkissjóðs Þýskalands á kostnað annarra landa ESB, sem juku bara og juku við hið innra og króníska ójafnvægi innan ESB og evrusvæðis, og hún tvöfaldaði ójafnvægi Evrópusambandsins sem heildar út á við, og sérstaklega gagnvart Bandaríkjunum. Hún sá til þess að næstum ekkert land á meginlandinu virti sáttmálaskuldbindingar sínar við NATO. Hún stundaði og hvatti til holskeflu innrásar ólöglegra innflytjenda frá öðru sólkerfi inn í ESB, og sem núna eru að springa þar út sem eitt samfellt regn hroðalegra tímasprengja á saklausa borgara landanna. Holskefla Merkel-firringar, sem hún árum saman hefur reynt að nauðga upp á aðrar þjóðir og önnur lönd í hinu brennandi Evrópusambandi

Eftirmaður Angelu Merkel, Annegret Kramp-Karrenbauer, telst í dag óhæft kvenkyns viðrini til að gegna stöðu kanslara, nú þegar laglaus Merkel er að syngja sinn síðasta falska söng, sem líka var lygi: Það var ekki hitinn og það er ekki bara vatn í glasi sem hún þarf á að halda. Í Angelu Merkel sést hrakandi heilsufar og hnignun bæði Þýskalands og Evrópusambandsins

Samferða Bjarna Benediktssyni hér heima, mun Angela Merkel í Þýskalandi renna frá sem einn lélegasti stjórnmálaforingi Þýskalands og á Vesturlöndum á síðari tímum, og skilja við flokk sinn, eins og Bjarni, sem rjúkandi rústir einar. Og í sömu stöðu eru leiðtogalausir þýskir sósíaldemókratar, eins og samfylkingar-sossarnir hér heima eru líka. Þrjár útbrunnar pólitískar klessur stjórnað af hreint ótrúlegum kjánum og afglöpum

Lesendur geta rétt reynt að ímynda sér hvernig fjölmiðlar hefðu brugðist við ef það væri forseti Bandaríkjanna, þ.e. leiðtogi hins frjálsa heims, sem hér væri um að ræða. Hann hefði ekki fengið þessa silkihúfumeðferð hjá hinum kengrugluðu glóbal-vinstri-líberalistum sem ráða för þorra fjölmiðla vesturlanda til heljar, og þaðan yfir í verðskuldað gjaldþot, sérstaklega ríkisfjölmiðlarnir

Tengt

Miðflokkurinn tekur flugið

Fyrri færsla

Yfirvofandi fréttir af vinstra veðri DDRÚV


Yfirvofandi fréttir af vinstra veðri DDRÚV

Nú hefur grænpólís DDRÚV-vinstrisins náð þeim merka fréttaáfanga að skeggið á Marx hefur stökkbreyst í herra Mosaskegg Marx. Skeggþræðir hinna yfirvofandi MarxDDRÚV-frétta ná nú um alla plánetuna (ekki "í kring"), nema þann hluta hennar sem hlýðir ekki kalli Katrínar komma í veðurtunglinu. Bylgjur af skegghita hins rauðgræna Marx eru sagðar geisa um Evrópu núna -samkvæmt DDRÚV- sem nýlega birti marxíska hreyfimynd af ísjaka, hinum komandi heimsendi kapítalismans til sönnunar. Og þess vegna verður auðvitað að samþykkja að orkupakkið ræni þjóðir fullveldinu yfir orkuauðlindum sínum. Sumir reyna að minnsta kosti að halda þannig geðklofinni firru fram þegar þeir halda ekki vatninu af hreinni skömm, sem er að breyta þeim sjálfum í þjóðarskömm

Þetta minnir mig pínulítið á hitabylgjuna í Evrópu árið 1982. Þá vann ég útivinnu á Skáni allt sumarið í steikjandi hita og við hjónin ókum í sumarfrí, með nýfædda dóttur okkar og foreldra mína góðu niður til Mósel í Vestur-Þýskalandi. Á meðan sagði Alexander Haig af sér hjá Reagan, og Bad Godesberg stundi þungt af þeim sökum og ekki neinum öðrum. Þá var hitinn á daginn oft 45 gráður og fór niður í 39 á nótunni. Allt sumarið fram að þessu hafði verið heitt víða um Evrópu. Hitamælirinn inni í bílnum gat sýnt max 60-70 gráður og var í botni þegar maður kom að honum. Og allar filmur sem í honum voru geymdar urðu hitanum að bráð og komu svartar úr framköllun. Hinn gestrisni Herbert kráareigandi í Zell fræddi mig um að Berlínarmúrinn myndi aldrei falla. Aldrei á okkar tímum, sagði hann

Þæfingur Ó. Þverrason frá Heyrðukeldum hefur hins vegar hér heima gegnt stöðu Veðurstofustjóra, það sem af er þessu sumri. Með hans vísindum hefur mér hér í Borgarfirði verið spáð rigningu af og til í sex vikur en hún hefur bara aldrei sést. Alltaf þegar að því kemur að spáin með regninu í eigi að rætast, þá flytur Þæfingur mublur Veðurstofunnar aftar í spánna, og sú stund sem rigningin á að koma á, rennur því aldrei upp. Þannig virka loftslagsvísindin, bæði stór og smá. Lítið er að marka þetta finnst mér. Kauphöllin er mun skárri því þar er að minnsta kosti hægt að shorta hreina þvælu og vísindaskáldsögur

Fyrri færsla

Hvað ætti svo sem að ræða?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband