Leita í fréttum mbl.is

Orkupakka-Brusselræða Bjarna Ben á Alþingi? (varalestur?)

Er þetta kannski hún?, sem varalestur til vara? (smella)

Þarna á Alþingi sagði formaður Sjálfstæðisflokksins:

Raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB

Kvennabúr Bjarna Ben formanns Sjálfstæðisflokksins hefur greinilega bundið formanninn á höndum og fótum og keflað hann, því nú heyrist ekki múkk frá honum lengur, miðað við það sem hann sagði alþjóð þarna á Alþingi Íslendinga í fyrra. Einhverskonar flokksskemmdarráð hefur yfirtekið það sem hann var landsfundarkjörinn til að gera; að leiða flokkinn áfram, en ekki til að leggja hann niður með raðdómgreindarskorti. Varla hefur sést eins ístöðulaus og dómgreindarskertur formaður í stjórnmálum, það getur varla verið. Hann er greinilega viljalaust verkfæri sem ekkert erindi nokkru sinni átti upp á stjórnmálasviðið

Og ekki tekur betra við frá þeim þingmönnum sem allir vita hvers vegna eru þarna; jú vegna þess að það vill svo til að þeir eru konur. Annað hafa þeir ekki til brunns að bera. Og allir vita, en gera samt ekkert í því, að slíkt er ekki nóg til að flokkur geti þrifist. Það sást á kvennaframboðinu sem var mikið, en eftirspurn eftir því nánast engin, eða fimm, tíu, átta og svo fimm prósent frá 1983 til 1995, og þá lagt niður í dós og lokað. Sérstöku karlaframboði hefði ekki farnast betur. Kyn- og ættarflokkar eiga lítið erindi við Íslendinga. Fólk sem heltekið er af kyni ætti ekki að vera í stjórnmálum. Þannig merkimiða-stjórnmál eru banvæn fyrir alla pólitík og öll lönd, því þjóð er ekki kyn. Þjóð er mikli meira en það. Hún er allt, sagan líka

Allir vita að orkupakkar ESB eru vondir fyrir Ísland. Mjög vondir. Og allir vita að þriðji orkupakkinn innheldur valdaframsal sjálfsásákvörðunarréttinda íslensku þjóðarinnar yfir okkar málum; að stjórna alfarið raforku og hitaveitumálum okkar sjálf í okkar eigin landi. Þjóðin á þetta land og hún byggði það upp, þessa vinnslu og kerfin líka. Vald yfir þeim málum er með orkupökkum ESB fært yfir á erlendar hendur með lúalegum framhaldsaðferðum af verstu sort. Þeir sem halda að stjórnmál eigi að snúast um að gera landi sínu vont, ættu ekki að vera í stjórnmálum. Allir vita að með þessum esb-pökkum er verið að gera Íslandi vont og kaupa sér frið, og allir vita hvernig þannig friðþægingarkaup enda; það sést vel á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum núna. Þetta gætu verið þeirra síðustu dagar, því flokksskemmdarráð þeirra hafa virkað. Þjóðfrelsið skal plokkað með augnabrúnaplokkara-aðferðum af þjóðinni á meðan ritarinn kjánar sig glórulaus í kaf. Þetta fólk er glatað fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þar með fyrir Ísland líka

Á meðan syndir Guðlaugur Þór samfylkingarhundasund um heimshöfin hinumegin á jörðinni. Gat þetta endað örðuvísi. Gat þetta lið endað flokkana öðruvísi en nýtt síðasta hrun; taka tvö, sökkið

Fyrri færsla

Stuttar: Nytsamur bjáni og skipsrotta skipta um fæðutegund


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eiríkur Jónsson, fyrstur með fréttirnar, hittir naglann á höfuðið í örstuttri frétt á síðu sinni:

"“Hinn 14. september nk. er fyrirhugað að sjálfstæðismenn af landinu öllu fagni 90 ára afmæli flokksins saman með málþingi, flokksráðsfundi og kvöldskemmtun sem nánar verður auglýst síðar.”

Þessi stutta tilkynning er birt á vef Sjálfstæðisflokksins og lætur ekki mikið yfir sér en meira býr undir.

Heimildir herma að sjálfstæðismenn um land allt hafi í hópum krafist þess að flokksráðsfundur yrði haldin í ágúst áður en Orkupakki 3 verður samþykktur á Alþingi 3. september. Þar átti að stilla forystu flokksins upp að vegg og stöðva málið ella krefjast afsagnar formanns og jafnvel stjórnarslita. Í staðinn er boðið til kvöldskemmtunar um miðjan september þegar allt er um liðið og Orkupakkinn í höfn.

Sjálfstæðisflokkurinn logar stafnana á milli og líklegt að Bjarni Benediktsson hætti og segi af sér frekar en láta undan. Allt ætti þetta að skýrast á “kvöldskemmtuninni” 14. september ef ekki fyrr."

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.7.2019 kl. 16:12

2 identicon

Sæll Gunnar

Mig langar að vita hvert þitt álit er á braski og bralli Bjarna Benediktssonar í kínverskum banka er.

Mér virðist sem það líti svona út:

Er það eðlilegt að fjármálaráðherra sé orðinn varaformaður bankaráðs í kínverskum "innviðafjárfestingarbanka"?

Er það eðlilegt að brask og brall fjármálaráðherra sé kostað af íslenskum skattgreiðendum?

 

Væntanlega fær hann vel greitt fyrir bankaráðssetu sína í þessum banka.

Þar ráða eiginhagsmunir hans.

 

Allt var það furðulegt þegar Bjarni keypti sig inn í þennan banka með íslensku skattfé.

Nú er stefnt á fjárfestingar í "orkuverkefnum"

af bankaráðsmanni kínverska bankans, Bjarna Benediktssyni junior.

 

Á sama tíma er stefnt að markaðsvæðingu (einkavæðingu) íslenskra orkufyrirtækja, samhliða innleiðingu 3. Orkupakkans sem kveður einmitt á um "markaðsvæðingu" orkufyrirtækja.

 

Viljið þið giska á hvaðan fjármagnið komi til að kaupa upp það sem íslenska þjóðin hefur hingað til átt?  Munið að auðræði örfárra nær þvert yfir öll landamæri og það er gráðugra en grimmustu villidýr.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 14.7.2019 kl. 18:11

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Með þessari forystulausu forhertu forystu Sjálfsræðisflokksins er ekki hægt að tala um sjálfstæðismenn í sama andartakinu. Sjálfstæðismaður er allt annað. Hann er allt annað og betra en þetta orkupakk. Svo ég frábið mér vinsamlegast að þetta sé nefnt saman í sömu andránni í mín eyru.  Núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins á enga samleið með sjálfstæði.

Ég veit að þetta er blaðamaður sem segir þetta þarna, en ekki þú, Símon Pétur, hvað svo sem hugtakið "blaðamaður" þýðir í dag. Í dag þýðir það oftast ekki það sama og áður.

Það logar ekkert í Sjálfstæðisflokknum. Ekkert eldsneyti er þar að finna sem brunnið getur. Sjálfstæðismenn eru farnir og það sem eftir er er bara svarthol sem ekkert ljós sleppur frá, eins og þú hefur orðið var við.

Svona fer þegar reynt er að gera ættarsnuð að einhverju öðru og meiru en það er. Pampers er og verður pampers, eins og snuð er og verður alltaf bara snuð.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2019 kl. 18:20

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Pétur Örn.

Þetta þýðir það að AIIB er á leið í þrot og Bjarni bleyja er settur þar inn til að þurrka af sér á.

Kínversk stjórnvöld hafa viðurkennt að þau hafa ekki efni á að byggja "Belti og vegur" brautir og leiðir fyrir trójanskan hest sinn inn í Evrópu. Þau hafa líka viðurkennt að um hernaðarmannvirki er að ræða. Því komust Nýsjálendingar að um daginn.

Þetta er allt í óþökk besta og dýpasta bandamanns okkar, Bandaríkjanna, sem verja landið okkar. Þau vöruðu bandamenn sína við AIIB.

Þarna er Bjarna Ben best lýst. Það er ömurlegt að honum skyldi takast að troða þessu skaðræðis-viðrini inn á lýðveldið okkar Ísland. En það gerði hann af því að hann er eins og hann er. Hann stekkur á vagna sem hann hefur enga hugmynd um hvert eru að fara:

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum, þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með,".

Sagði hann við Morgunblaðið 1. júlí 2015.

Plebbi!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2019 kl. 18:34

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Pétur Örn.

Þetta eru nákvæmlega sömu fíflin og síðast. Þá voru það líberalista-vinstrimenn sem dáðu Mussolini því hann var með alla "innviða-uppbygginguna" (lestirnar). Og svo fengu hægrimenn öfundarhland fyrir hjörtu sín þegar Hitler var að leggja allar "hraðbrautirnar" og skar eins og hnífur í gegnum "báknið". Og Stalín fékk sitt frá sósíalistum Vesturlanda. Það vantaði bara gardínurnar, sagði Laxness. Allt var annars fullkomið.

Báðar þessar fyrirmyndar-hlandveitur entust illa, pumpan gaf sig og hland þeirra fór banvænt í bæði hjörtu.

Kína, Rússland og ESB eru samskonar áhrifavaldar á veiklunda stjórnmálamenn í dag. Sama sagan og síðast: Kína á tröppunum að "yfirtaka heiminn" og Þýskaland komið til að "ráða öllu" og uber via ESB. Sami söngurinn og sama þvælan. Aðeins fífl falla fyrir þessu. 

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2019 kl. 18:51

6 identicon

Takk kærlega Gunnar fyrir greinargott svar þitt.

Mér virðist sem þér, að Bjarni hafi varla þroska umfram bleyjubarn með bullandi ræpu.  Þingflokkurinn virðist svo helst njóta þess að renna á lyktina af formanni sínum.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 14.7.2019 kl. 19:28

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já eins og ég sagði:

Bjarni Benediktsson hefur sannað sig sem raðdómgreindarskertur plebbi.

Hvort að búið sé að leysa upp allar hryggsúlur þingflokksins í Plebbahöll líka, er ekki enn alveg vitað. En ég býst fastlega við því.

Tannlaust fólk krefst venjulega mjúkrar fæðu. Ég kem ekki auga á neinar tennur þarna. Bara snuð og bleyjur.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2019 kl. 19:45

8 identicon

Myndbandið er bilað sjóv:

Kata hossar sér í ráðherrastólnum, dinglandi með lappirnar, ekur sér og skekur, kippir og rykkir meðan fyrrum landshöfðingi IMF, sjálfur allaherjarráðherra helferðarstjórnarinnar, situr í forsetastól þingsins.  Og svo er það Bjarni í púlti og spyr hvað í ósköpunum gengur á?

Ósköpin öll eru þau að hann kom Icesave hyski helferðarinnar til valda á nýjan leik.  Og að hann sjálfur talar ætíð tungum tveimur og sitt hvað með hvorri.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.7.2019 kl. 20:42

9 Smámynd: Óskar Kristinsson

Takk fyrir Gunnar og gestir!

Þetta er bara VALDARÁN.Og Þjóðinni sendur puttinn með velkom ESB skemmtun eftir ránið.

Er virkilega enginn hemill í svona tilfellum þegar kolruglað fólk kemmst til valda í þjóðríki???

KV af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 15.7.2019 kl. 10:45

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar.

Já ég veit að mörgum sjálfstæðismanninum finnst úníversal-kratakompu-valdarán vera í gangi í Sjálfstæðisflokknum. Og það munu þeir ekki skrifa undir í kjörklefanum.

Það hvarflar að manni að það sé fastur ásetningur klodsmajor-veldis Plebbahallar að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn til þess eins að geta eyðilagt fullveldi og sjálfstæði Íslands.

Geggjunarklikkunar lúnatikk virðist ráða för hvort sem það er í innanríkismálum (heimastjórnarmálum eins og þau voru kölluð hér áður fyrir, og sem úníversal-krata-kompa Plebbahallar virðist stefna að að verði aftur) og svo einnig á sviði utanríkismála, sem Guðlaugur Þór imbahali er að breyta í rænulaus utanvitsmál. Hvílíkur farsi og  þjóðarskömm.

Þetta rímar ákaflega vel við siðferðilega pervertan forsætisráðherrann sem myndi sæma sér vel í öllum sovétríkjum allsstaðar og alltaf.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2019 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband