Leita í fréttum mbl.is

Samvinna er langt því frá af hinu góða

Endalaust er staglast á hugtakinu "samvinna" í tíma og ótíma. Þeir sem eru heilbirgðir vita að samvinna er aldrei betri en sú vinna sem fram fer. Samvinna samvinnunnar vegna er orðin klisja sem heilbrigt fólk veit að er þvæla. Eiginlega er búið að sérhanna hugtakið sem stólbök þeirra öfugmælaflokka sem nú sitja eins og klessur á alþingi og skófla þar inn peningum fyrir að vera til dæmis þau fífl að samþykkja orkupakka, kynóra og fósturdráp og sjá jafnvel helst fyrir sér barnadráp í stað barnaskírnar

Það þurfti til dæmis mikla samvinnu til að safna Gyðingum saman til að geta myrt þá á meginlandi Evrópu. Þingið, ríkisstjórnin, embættismenn, ráðuneyti og lögregla þurfti að funda stíft og ákaft og kalla til sín vísindamenn á sviði mannfræði, læknisfræði og stjórnmálafræðinga. Manntalsskrifstofur, ættfræðingar, lánastofnanir, bankar og sparisjóðir og járnbrautarfélög með yfir 100.000 starfsmenn og "heilbrigðiskerfið" urðu einnig að vera í náinni samvinnu við hin efri lög stjórnsýslunnar. Að sækja til dæmis 400 þúsund Gyðinga inn á heimili þeirra í Ungverjalandi og flytja þá síðan til útrýmingar í öðru landi, krafðist mikillar samvinnu þvert á landamæri. Þarna kom Evrópuhugsjónin sér vel, hver svo sem hún er á hverjum tíma

Þarna var næstum öll Evrópa nasísk að meira eða minna leyti og miklir bandamenn voru einnig í múslímaríkjum Mið-Austurlanda. Íberíuskagi var að hluta til "hlutlaus" eða kinkaði kolli og dinglaði að meira og minna leyti með. Samvinna var samvinna, og varla mátti láta eitthvað eins og nasisma koma í veg fyrir "frjáls viðskipti" á milli landa. Rússland sem vann með hverjum sem var, framan af, sá til dæmis hinu þýska apabúri "æðri hugsjóna" á meginlandi Evrópu fyrir hráefnum svo hægt væri að brenna breskar borgir niður. Þess utan var "flokkurinn" í Rússlandi þá þegar orðinn sérfræðingur í innanríkismorðum sem byggðu á samvinnu í öllum lögum þess stórveldis í smíðum. Þessi samvinna á meginlandi Evrópu endaði ekki fyrr en maður með vindil stöðvaði lauflétta sigra sem byggðust á fyrirvaralausum árásum á nágranna sína, og samvinnulegheitum sem tóku svo á sig nýja mynd innan hvers þess lands sem ráðist var á. Nóg framboð varð þá af þjóðsvikurum í öllum hinum hernumdu löndum sem stunduðu samvinnu. Allir hljóta að sjá að samvinnan er það sem allt veltur á

Þeir sem geta ekki klórað sér í rassinum nema sem alþjóðleg samvinnuhreyfing, eru auðvitað ekkert annað en aular dagsins í dag, eins og ávallt áður. Getið þið ekki vinsamlegast hlíft manni við þessu samvinnukjaftæði og alveg sérstaklega klisjunni um "alþjóðlega samvinnu", því hún er ekki til frekar en hryggsúla sem fuglategund

Nú er til dæmis alveg ljóst að það sem kallað er "þingflokkur" er ekki flokkur. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er ekki til og má ekki verða til. Aðeins eru til þingmenn flokksins. Það eru flokksmenn sem eru flokkurinn. Þingmenn geta ekki verið flokkur og mega heldur ekki vera það. Þeir eru aðeins þingmenn kjósenda. Og það eru þeir, kjósendur, sem veita þingmönnum það umboð sem þeir hafa. Ekkert annað umboð er til. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa til dæmis ekki umboð til að rotta sig saman og hefja samvinnu gegn kjósendum sínum. En það gera þeir núna í orkupakkamálinu (eins og í Icesavemálinu áður) því þar eru þeir orðnir þingmenn Samfylkingar, Viðreisnar (hvað sem það nú er) og Pírata (hvað sem það nú er líka)

Þessi samvinna ykkar er ólögleg og hún er gerræðisleg. Hreint gerræðisleg. Hún er svik. Takið ykkur vinsamlegast saman. Þið vitið vel að þið eruð að gera rangt. Það sést alla leið, hvert sem er. Og það er líka komin lykt af ykkur og hún er vond; verri en síðast. Mun verri

Að vera góð fyrirmynd er best. Enga samvinnu þarf til þess

Fyrri færsla

Loftbelgur Esbéson fallinn saman


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!!!

Fimm stjörnur fyrir þennann pistil. Maður fær sko grænar þegar sést eða heirist í einhverju af þessum ORKUPAKKAFÍFLUM.

Auðvitað vita þeir hvað þeir eru að gera, þess vegna verður þeim aldrei FYRIRGEFIÐ.

Björn Bjarnason hélt eg að væri mektarmaður, hann hagar sér í þessu máli eins og fábjáni, svo vægt sé tekið til orða.

Og einn vileg nefna sem eg hafði tröllatrú á Páll Magnúson sem eg tók þátt í að hjálpa inn á þing.

PÁLL snúðu af villu þíns vegar og hafnaðu þessu GERRÆÐI, sem er OP/3 4og5.

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 19.7.2019 kl. 08:30

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það má alltaf treysta þér til að komast að kjarna málsins, Gunnar.

Ragnhildur Kolka, 19.7.2019 kl. 09:38

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Það er eins og við manninn mælt að Miðflokkurinn mælist nú með rétt rúmlega fjögurra prósentustiga minna flygi en Sjálfstæðisflokkurinn, samkvæmt nýjustu könnun MMR. Miðflokkurinn æðir upp, enda hefur hann staðið sig best allra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn æðir niður.

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í það allra lægsta sem flokkurinn nokkru sinni hefur farið, eða 19 prósent.

Plebbahöll ræður för með Bjarna bleyjubarn, Þórdísi ofsatrúarglóbalista og Áslaugu humarsuðukonu stuttbuxnadeildarinnar við stjórnleysisvölinn, á meðan Guðlaugur Þór ofsatrúarlíberalisti er úti að ulla sinni talandi glóbalistatungu á hundasundi hinumegin á jörðinni, þar sem grasbalar hans eru núna.

Bjarna hefur tekist að eyðileggja flokkinn með ættarglans óvitans.

Best gæti ég trúað því að Miðflokkurinn verði stærsta stjórnmálaafl landsins í næstu kosningum.

Aldrei hafa aðrir eins getuleysingjar og vanvitar sést eins og þeir sem eru við stýrið í Valhöll núna. Þeir hafa breytt henni í Plebbahöll. Sölumaður dauðans hefur komið í heimsókn og selt kjánaveldinu þar vítissóda sem þeir taka samviskusamlega inn hvern einasta dag ársins.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.7.2019 kl. 14:43

4 identicon

Takk Gunnar fyrir frábæran pistil.

Og nú er það að byrja sem við vissum og spáðum, eins og snilldar athugasemd þín greinir frá:

ESB þingflokkur "Sjálfstæðisflokksins" er byrjaður að hrynja og molna niður og það fylgishrun er bara rétt að byrja og mun enda í dæmigerðu búrasamfylkingarfylgi, í kringum 12%. 

Já, Miðflokkurinn mun verða stærsti flokkur landsins og ná vel yfir 22% fylgi. Allt sjálfstætt fólk veit að Miðflokkurinn er flokkur þess og mun  kjósa Miðflokkinn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.7.2019 kl. 17:36

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já og nú kemur náttúrlega samfylkingarloftblandari DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar með rishallaréttskeiðina sína á skjáinn í náfréttatíma DDRÚV, til að útskýra fyrir þjóðinni að það sem hann þuldi þar síðast fram af framhaldsþvælu sinni um Miðflokkinn og fyrrum formenn xD, hefði samt verið rétt miðað við að þá hefði staða stjörnumerkjanna Bjarna og Grétu á Thunberg apaplánetunni verið önnur. Að nú sé hann með þetta á hreinu.

Hmpf!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 19.7.2019 kl. 18:46

6 identicon

Hún er sorgleg afstaða Styrmis Gunnarssonar að hann ætli að kóa áfram með ættarvitunum.

Líkast til alveg þar til -En Marche, Já,áfram,  alla leið- ættarvitarnir hafa þjösnað hverri innleiðingu búrakrata pakka á fætur annarri.

Hann kýs að samfylkja með Birni Bjarnasyni.

What a pity! 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.7.2019 kl. 20:49

7 identicon

"Samvinna samvinnunar vegna er klisja"

Rétt Gunnar.

Samfylking með ættarvitum, samfylkingarinnar vegna

er ekki bara klisja, það er beinlínis að kóa með ættarvitunum og að bera þar með samábyrgð á innleiðingu 3. orkupakkans.  

Til hamingju

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.7.2019 kl. 21:15

8 identicon

Já, til hamingju Styrmir Gunnarsson.

Já, til hamingju Guðni Ágústsson.

Já, til hamingju Ögmundur Jónasson.

Hangið allir á roði eigin hégómleika.

Dreymið allir um að verða gerðir að

heiðursfélögum ykkar stimpilflokka.

Hræsnarar!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.7.2019 kl. 21:27

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér aftur Símon Pétur.

Afstaða Styrmis er alveg klár: Hann er algjörlega á móti innleiðingu þriðja orkupakka ESB á Íslandi og hann er algjörlega á móti ESB-friðþægingarstefnu Sjálfstæðisflokksins. Borið saman við Styrmir Gunnarsson er Valhöll hrein Viðreisn núna. Hann ætlar ekki að láta "bola" sér út.

Hvað menn svo gera inni í kjörklefanum er allt annað. Það er fullt af xD fólki sem ætlar ekki að skrá sig úr flokknum þó svo að það muni kjósa annað. Það vill ná sér niðri á setuliði Valhallar í næstu prófkjörum með því að þurrka það út.

Sjálfur mun ég ekki hika við að skipta um flokk, fyrst að Valhöll er búin að berja burt það sem gerði flokkinn að þeim flokki sem ég gekk í.

Mér líst vel á Miðflokkinn en afar illa á framtíð Sjálfstæðisflokksins. Ég efast um að Sjálfstæðisflokkurinn eigi sér lengur viðreisnar von. Tími hans gæti verið liðinn fyrir fullt og allt og skaðinn sem þetta lið hefur valdið, gæti vel verið ólæknandi fullnustu-meinsemd sem drepa mun flokkinn að fullu og öllu um aldur og ævi. Sjálfur er ég ekki flokkshollur maður heldur fyrst og fremst trúr landi mínu, sjálfstæði þess og fullveldi.

En já, þú hefur rétt fyrir þér hvað varðar blinda flokkshollustu. Hún er skaðræðisafl fyrir framkvæmd nauðsynlegra breytinga. Fólkið er flokkurinn, en ekki gestabókin.

Gunnar Rögnvaldsson, 19.7.2019 kl. 21:54

10 identicon

Já, svo sannarlega er blind flokkshollusta

"skaðræðisvald fyrir framkvæmd

nauðsynlegra breytinga."

Hræsnarnir vilja einmitt vera áfram í liði

með skaðræðisvaldinum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.7.2019 kl. 22:36

11 identicon

Ég vil taka það fram að ég hef lengi borið virðingu fyrir Styrmi og ekki efa ég það að hann sé algjörlega á móti 3. Op.

En nú þegar hann jarmar um að "Sjálfstæðisflokkurinn" sé "lýðræðislegur flokkur"

þá er því til að svara að flokkur sem velur þingmenn sína á þann hátt að þeir skuli allir vera sem viðloðandi graftrarbólur á ættarvitanum og svíkja landsfundar samþykktir um leið og þeir komast inn á fundi með Steingrími Icesave sem "fylgihlutir" á hinum kaunum og graftarbólgna setta ættarvita

er alls ekki lýðræðislegur flokkur.

Hann var það og var þá með um 40% fylgi.

Hann hefur slefað í kringum 25% fylgi undir "forystu" hins graftarbólgna ættarvita.

Hann hefur slefað þar eftir Icesave 3 svikin.

Hann er í ný-frjálsu falli vegna svikanna í öllu er varðar svik hans vegna innleiðinga reglugerðarfargans Brussel og innlimunatferlis hans að ESB.  Þ.m.t. verstu svikin vegna 3. Op.

Nei, ESB flokkurinn með lögheimili í Valhöll er alla ekki lýðræðislegur flokkur.

Ég vorkenni Styrmi fyrir barnaskap hans.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.7.2019 kl. 12:55

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Samvinna er fyrst og fremst góðir mannasiðir.

Að tengja illvirki nazista við samvinnu og gera með því

samvinnu ábyrga fyrir helförinni er nú varla svaravert.

ESB er hinsvegar ekki í rótina nein samvinnuhreyfing þó reynt

sé að koma þeim stimpli á reglugerðafrumskóginn.

Þetta er hugmyndafræðileg mistök sem margfalt fleirum en vilja

viðurkenna er orðið ljóst fyrir löngu.

Þar rífast um bestu bitana sérhagsmunaöfl sem eru lítið skárri

en hryggjarstykkið í Sjálfstæðisflokknum. 

AGS og ESB náðu í sameiningu næstum að klára það sem gamli 

helmingaskiptadúettinn hóf með bankasöluklúðrinu - að koma 

Íslandi á vonarvöl. 

Árni Gunnarsson, 21.7.2019 kl. 23:00

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Árni og kærar þakkir fyrir innlitið. Langt síðan síðast.

Mér varð hugsað til þín þegar ég var að slá með orfi og ljá um daginn.

En hvað um það. Þú minnir mig á framsóknarmann sem hellti sér yfir mig vegna "fordóma" minna. Hann sagðist trúa því að allt væri í eðli sínu gott í heiminum. Ég ætti að trúa því líka. Þá sagði ég, að honum væri varla alveg sama um hvaða flokk hann kysi, þó svo að honum fyndist allt vera svona gott. Og þá kom það; hann sagðist aldrei myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það myndi hann adlrei gera.

Þú minnir mig á þennan mann. Allt bara spurning um "mannasiði", nema þá siði manna sem ekki eru sammála honum. Hvorki Stalín né Hitler né eyðilegging Grikklands frá 2009 var verk eins manns. Það þurfti mikla og djúpa samvinnu til.

Miklu betra er að vera góð fyrirmynd heldur en að í samvinnu taka upp afmyndir annarra. ESB er slæm hugmynd og enginn ætti að vinna saman að henni, því hún er þvæla eins og Vinstri grænir eru einungis alþjóðleg kommaþvæla í nýjum lit: gamli alþjóðaisminn færður í nýjan lit. Rautt er vont og verður alltaf vont.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2019 kl. 23:23

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sæll aftur. Það gladdi mig að sjá þessa tengigu mína við orfið.

Ég er líklega svolítil risaeðla i þessu samfélagi og hef ekki af því áhyggjur.

En það er vont ef góðir mannasiðir hætta að vera keppikeflið.

Mannasiðirnir eru ýmist vodir eða slæmir, rétt eins og stefnur 

stjórnmálum sem sveiflast gjarnan í þeim efnum eins og pendúll

í klukku.

Illvirki hafa verið unnin undir ýmsum fögrum fyrirheitum.

Kommúismi er líklega góð grundvallarstefna í pólitík en hún

mun aldrei ná því að uppræta græðgina í hugum þeirra sem 

komast í að sjá um að útdeila sameiginlegum afrakstri.

Góðar kveðjur!  

Árni Gunnarsson, 22.7.2019 kl. 15:09

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér aftur og kærlega Árni.

Já. Orfið sameinar okkur Árni.

Já það er þetta með græðgina. Ég hef tekið eftir því að að smábörn borða yfirleitt betur og meira þegar þau eru í leikskólanum, heldur en heima hjá sér. Í leikskólanum eru þau hrædd um að hin börnin borði allt frá þeim. Þau herða sig því við matinn af ótta við að fá ekki neitt.

Sama gildir um tvíbura við matarborð foreldranna. Þeir vita nákvæmlega hvað hinn er að hugsa og ætla sko ekki að láta hann borða sig út á gaddinn, og reyna því að troða hraðar í sig en hinn getur troðið í sig. Þeir þekkja hvorn annan út í gegn og engu er hægt að leyna.

Held ekki að það sé hægt að gera neitt í þessu Árni. Þetta er öryggismál erfða okkar. Sama gildir um pólitíska græðgi. Og svo vill auðvitað enginn sem eldar matinn að allt sé étið frá honum af þeim sem ekkert lögðu af mörkum við öflun hans, og éti hann sjálfan út á gaddinn. Þá hættir hann að nenna að elda.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.7.2019 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband