Leita í fréttum mbl.is

Angela Merkel laug. Það var ekki hitinn

Til marks um hversu alvarleg staðan er með kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, þá ritskoðaði þýska ARD ríkissjónvarpið nýtt skjálftakast kanslarans burt úr vinsælasta fréttatíma sínum Tagesschau í gær. En í gær fékk þýski kanslarinn nýtt skjálftakast og flestir fjölmiðlar nema í Þýskalandi fjölluðu um það (með silkihönskum ætluðum smábörnum)

Og í þetta skiptið var skjálftakastið ekki vegna hitans, því Merkel var stödd innandyra og afþakkaði þess utan það vatnsglas sem hún sagði síðast að væri það eina sem hún þyrfti á að halda

Annað hvort er kanslarinn á lyfjum sem hún fer í skyndilegt fráhvarfskast vegna, eða þá að hún er geðrænt úrbrunnin eða alvarlega líkamlega veik

En hvað sem heilsu hennar líður, þá var hér ekki á ferðinni neinn leiðtogi hins "frjálsa heims", því Angela Merkel skilur við Þýskaland og Evrópusambandið í rjúkandi rúst. Hún sá fyrir því að leiða í svívirðileg níðingslög reglur um hallalausan rekstur ríkissjóðs Þýskalands á kostnað annarra landa ESB, sem juku bara og juku við hið innra og króníska ójafnvægi innan ESB og evrusvæðis, og hún tvöfaldaði ójafnvægi Evrópusambandsins sem heildar út á við, og sérstaklega gagnvart Bandaríkjunum. Hún sá til þess að næstum ekkert land á meginlandinu virti sáttmálaskuldbindingar sínar við NATO. Hún stundaði og hvatti til holskeflu innrásar ólöglegra innflytjenda frá öðru sólkerfi inn í ESB, og sem núna eru að springa þar út sem eitt samfellt regn hroðalegra tímasprengja á saklausa borgara landanna. Holskefla Merkel-firringar, sem hún árum saman hefur reynt að nauðga upp á aðrar þjóðir og önnur lönd í hinu brennandi Evrópusambandi

Eftirmaður Angelu Merkel, Annegret Kramp-Karrenbauer, telst í dag óhæft kvenkyns viðrini til að gegna stöðu kanslara, nú þegar laglaus Merkel er að syngja sinn síðasta falska söng, sem líka var lygi: Það var ekki hitinn og það er ekki bara vatn í glasi sem hún þarf á að halda. Í Angelu Merkel sést hrakandi heilsufar og hnignun bæði Þýskalands og Evrópusambandsins

Samferða Bjarna Benediktssyni hér heima, mun Angela Merkel í Þýskalandi renna frá sem einn lélegasti stjórnmálaforingi Þýskalands og á Vesturlöndum á síðari tímum, og skilja við flokk sinn, eins og Bjarni, sem rjúkandi rústir einar. Og í sömu stöðu eru leiðtogalausir þýskir sósíaldemókratar, eins og samfylkingar-sossarnir hér heima eru líka. Þrjár útbrunnar pólitískar klessur stjórnað af hreint ótrúlegum kjánum og afglöpum

Lesendur geta rétt reynt að ímynda sér hvernig fjölmiðlar hefðu brugðist við ef það væri forseti Bandaríkjanna, þ.e. leiðtogi hins frjálsa heims, sem hér væri um að ræða. Hann hefði ekki fengið þessa silkihúfumeðferð hjá hinum kengrugluðu glóbal-vinstri-líberalistum sem ráða för þorra fjölmiðla vesturlanda til heljar, og þaðan yfir í verðskuldað gjaldþot, sérstaklega ríkisfjölmiðlarnir

Tengt

Miðflokkurinn tekur flugið

Fyrri færsla

Yfirvofandi fréttir af vinstra veðri DDRÚV


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Merkel og May.

Halldór Jónsson, 28.6.2019 kl. 13:10

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ekki hægt að orða þetta betur.

Sigurður Kristján Hjaltested, 28.6.2019 kl. 13:37

3 Smámynd: Óskar Kristinsson

Ætli Gulli Þór sé kominn með skjálftuna,var að heira að fallega prumphænan mundi taka alfarið við keflinu af gulla,með op/3.

Kv að Sðurlandi

Óskar Kristinsson, 28.6.2019 kl. 13:57

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Gunnar. Það vita allir að ESB borgar fyrir skrif þeim í hag ekki bara á Íslandi heldur víla um Evrópu. Þetta gerir Soros fyrir sín áhugamál eins og þegar hann lagði inn milljónir til Brussel manna. 

Í raun gætum við farið fram á rannsóknarstyrk hjá ESB og líka það eru sem eru að múslíma og svertingjavæða landið okkar.

Valdimar Samúelsson, 28.6.2019 kl. 21:01

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hið fullkomna eintak og fyririrmynd hvíta kynstofnsins hann Valdimar lætur ekkert tækifæri ónotað til að ausa hatri og fyrirlitningu yfir aðra "kynstofna" til að undirstrika mikilfengleik sinn, jafnvel þótt það hafi ekkert að gera með blogginn sem hann skrifar athugasemdir við. 

Er ekki rétt að hann haldi þessum sauraustri innan eigin bloggforar?

Bara svona pæling.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.6.2019 kl. 02:30

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum kærlega fyrir innlitið og skrif.

Já Halldór: Þursaleg þaulseta þaulsetunnar vegna gildir um of þarna. En þar sem tími frú May var svona stuttur eins og hann varð, þá verður hún að teljast enn verri fyrir landið sitt og kjósendur en Merkel hefur verið sínu landi. Þess utan minntist Merkel á heilsufar sitt þegar hún "tók að sér" núverandi kjörtímabil, en útskýrði það samt ekki nánar fyrir þjóðinni. Hún gekk greinilega valdasýkislega of langt í þeim efnum. Ekki gott fyrir neinn og allra síst fyrir hana sjálfa.

Jón Steinar: Valdimar er alveg ágætis eintak af okkur Íslendingum. Hann veit af eigin reynslu frá Ameríkudvöl sinni hvað lítill en framandi minnihluti, eins og til dæmis svertingjar voru -og eru enn í Bandaríkjunum- getur haft í för með sér af vandamálum fyrir heilt þjóðfélag. Við myndum aldrei ráða við það sem Bandaríkin ráða við í þeim óæskilegu efnum, en sem þau samt ráða ekki allskostar við enn, eftir öll þessi hundruð ára með kynþáttavandamálum.

Ef eitthvað gengur bara rétt svona skítsæmilega þar (í Bandaríkjunum) í þessum efnum, þá mun það alls ekki ganga hér heima og verða algert stórslys og hryllingur. Bandaríkin naga sig árhundruð í handabökin fyrir syndir forfeðranna í þessu máli. Mikið hefði nú verið gott að hafa verið laus við þær, og öll hin afleiddu vandamál syndanna þar.

Litlar þjóðir eru mjög viðkvæmar í þessum efnum og það þarf ekki mikil til að eyðileggja þær. Svo hér þarf að fara með ýtrustu aðgát og aldrei að valta yfir það sem virkar, með því sem virkar ekki, og margsannað er.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 29.6.2019 kl. 03:32

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón Steinar. Þú komst með orðið fyrirlitning og hatur en það finnur þú ekki hjá mér. Það skildi þó ekki vera að það sért þú sem fyrirlítur blökkufólk en það er alveg ljóst að þú fyrirlítur landa þína ef þá að þú sért Íslendingur. Þakka Gunnar og jón Steinar aftur þú munt hvergi finna svona litla þjóð sem er svona áköf í blóðblöndun. Það versta er að að við höfum of mikið góðviljað fólk eins og þig sem svífst einskis með að mergsjúga landa sina. Gömlu konurnar myndu segja svei þessum manni. Svei er sterkt orð sem smýgur í gegn um merg og bein. Já svei þér Jón Steinar. Þú ert þjóðarskömm... Steinar minn ég er ekki alveg vaknaður en þá hefði þetta orðið verra. ;-)  

Valdimar Samúelsson, 29.6.2019 kl. 09:15

8 identicon

Þýski skjálftinn er hafinn.

Tapa alltaf, aftur og aftur.

Næst er það krampinn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 29.6.2019 kl. 20:42

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þar sem ég var lokaður úti þá langar mig að sína hvernig Probaganda maskína ESB náði tjekkoslóvakíu á sínum tíma. Eiginkona mesta pro ESB yfirmans fékk yfirmannsstöðu áróðursdeildar ESB þar í landi. Slóð þar sem allt sukkið kemur fram. Er ekki þetta sama módel á Íslandi... https://www.brugesgroup.com/media-centre/papers/8-papers/786-federalist-thought-control-the-brussels-propaganda-machine Kv V

Valdimar Samúelsson, 29.6.2019 kl. 21:58

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mér þykkir leitt að heyra að lokað hafi verið á þig Valdimar. Ég vona að úr því rætist.

Og þakka þér fyrir krækjuna á Bryggjuhópinn (e. The Bruges Group), sem Margrét Thatcher var heiðursforseti fyrir, og sem ég hef verið áskrifandi hjá síðan að það varð hægt á netinu. Þetta er auðvitað ótrúleg lesning eins og flest er viðkemur innri virkan ESB. Ég mæli líka með Hringur úr gadddavír (Circle of Barbed Wire) eftir Bernard Connolly á sama stað.

Þeir sem hafa ekki lesið bók Bernards Connolly, "The Rotten Heart of Europe, The The Dirty War for Europes Money", ættu að gera það. Hún sýnir svart á hvítu hversu rotin, ill og ömurleg hin svokallaða "Evrópusamvinna" er. Bókin er sennilega besta sögulega sönnunargagn sem til er um hið rotna eðli Evrópusambandsins og flestu er því tengist. En Bernard sat þar sem fulltrúi Bretlands í Brussel þegar ERM3pakkinn var í smíðum (EMU => evran). Honum blöskraði og gaf út þessa bók um málið. Fyrir það var hann var rekinn og dæmdur útlægur og myndir af honum hengdar upp í byggingum í Brussel eins og að um landráðamann væri að ræða, og þögult starfandi einkaleyniþjónustu Brusselelíta sigað á hann. Síðan var hann af Brussel lögsóttur og dæmdur sekur í Evrópu-gervidómstól sambandsins (ECJ), sem ávallt dæmir evrópusamruna-hugmyndinni í hag, enda til þess eina máls gerður. Hér er dómurinn - og hér má lesa kynningarformála Bernards að nýju upplagi sem kom út árið 2012, því bókin hafði árum saman verið uppseld og ófáanleg.

Maður yrði þakklátur fyrir að fá að heyra eitthvað annað en pólitískt bókhaldaraþvaður af EES-grautarsort í Schengensalerni --sem getur ekki virkað, sé það tengt veruleikanum, og notað til annars en verndað vinnusvæði fyrir glæpamenn-- um svo mikilvægt mál eins og orkupakki3 er fyrir Ísland og fullveldi okkar Íslendinga í eigin málum. Pakkinn er slæmt og svæsið framhald af slæmu og getur aðeins boðað enn meira illt verra, því hann er rangt sem getur ekki orðið rétt, frekar en Icesave. Bókhaldaraþvaður frammámanna í Sjálfstæðisflokknum um þetta mál, er ekki á borð berandi fyrir íslenska þjóð, sem kaus um lokasprettinn inn í þjóðfrelsið með 99,7 prósentum atkvæða í rúmlega 98 prósenta einhuga kosningaþátttöku árið 1944. Það fólk í þeim turni verður að taka sig á, því annars verður að skilja flokkinn að á ný í Íhaldsflokk og flokk örendra Brusselsleikjandi skriffinna hins vegar. Nýtt ískalt mat lætur enginn bjóða sér, nema þeir sem veifa ESB-grautarsleifum út um glugga Valhallar til að berja fylgið af flokknum, aftur og aftur. Þannig flokki er ekki hægt að berjast fyrir.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.6.2019 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband