Leita í fréttum mbl.is

Hvað ætti svo sem að ræða?

Kappræður um úrslit þjóðaratkvæðis; kanntu annan betri!

Málið snýst eingöngu um að ganga úr Evrópusambandinu. Það snýst ekki um neitt annað. Jeremy Hunt kaus á móti bresku þjóðinni og vill vera áfram í ESB þrátt fyrir vilja þjóðarinnar. Boris Johnson kaus með þjóðinni og vill að breska þjóðin ráði för. Hann vill ekki að önnur tyggjóklessa á borð við Theresu May, er liggur nú sem útflött grá sletta á gangstétt, ráði aðför ESB-elítunnar að bresku þjóðinni á ný. Breska þjóðin hefur talað og nú er að hlýða henni, ellegar hafa hryllilega verra af. Búið er að ræða málið. Það var gert 2016

Alveg sama þó svo að Boris hafi kannski og kannski ekki rifist við konuna sína eða skipað hundinum að hunskast burt af fartölvunni um helgina. Skiptir engu máli. Slíkt er einungis enn eitt ekki-mál fjölmiðla

Og hefði Boris klipið í fram/bakenda vinstrivanstilltrar nágrannakonu sinnar, þá hefði það ekki haft nein áhrif á hvítar fullveldissinnaðar breskar konur, sem kalla ekki allt ömmu sína. Ekki frekar búningsherbergissagan af Trump hafði áhrif á hvítar bandarískar konur, þeim megin Atlantsála. Meirihluti þeirra kaus samt Trump. Enda hefur metoo-ruglið þegar breyst í einskonar marxíska holdsveikishreyfingu um að öllum sé skylt að trúa konum, alveg sama hvað

Flestir fjölmiðlar vesturlanda eru ónýtir, en þeir reyna að breiða yfir það með því að klípa í heilabú lesenda (virkar betur en klofið)

Fyrri færsla

Já Páll. Rétt hjá þér: Löskuð ríkisstjórn


mbl.is „Ekki vera bleyða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

"Flestir fjölmiðlar vesturlanda eru ónýtir".

Þar hefur þú rétt fyrir þér.

Allt virðist ganga út á að leita að og flagga ógæfu-atburðum, Hollywood-slúður og boltaleikir.

----------------------------------------------------------------------

Ég myndi vilja sjá forseta íslands skrifa blogg á hverjum degi

og leiða þjóðina sína hinn rétta veg inn í framtíðina.

Eru ekki hlutverk LEIÐTOGA AÐ LEIÐA? 

=Að vísa veginn?

Jón Þórhallsson, 24.6.2019 kl. 13:56

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Illumanti-ómenningin er víða í fjölmiðlum.

Sú ómenning vinnur að þvíað auka á ringulreið þjóða í gegnum fjölmiðla og menningarstjórnun með skipulögðum hætti.

=Þannig geta þau knésett þjóðir innanfrá

án þess að fólkið í landinu átti sig á því sjálft.

Hugsanlega er 78% af dagskránni á rúv nú þegar smituð af allskyns ljótleika og vitleysisgangi.

Ekkert leiðir til framþróunar að neinu leiti.

Jón Þórhallsson, 24.6.2019 kl. 14:23

3 identicon

Á sama hátt:

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti ályktun gegn 3. orkupakkanum.

Landsfundur er æðsta vald flokksins.

Þetta er ekki flókið:

Annað hvort víkur forystan eða flokkurinn yfirgefur forystuna.

Þeir sem ekki yfirgefa forystuna, hafa vanvirt og spottað samþykktir flokksins. 

Þeir sem yfirgefa forystuna eru heilir og hreinir, en hinir fláráðar druslur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.6.2019 kl. 14:30

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón.

Já sammála þér og líka sammála þér með DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar Jón.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 24.6.2019 kl. 16:17

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já sammála þér.

Nú virðist vera í tísku að gera "skoðanakannanir" þar sem fólk er til dæmis spurt að því hvort að það kjósi flokk "mikið" eða "bara lítið". Eða sé "mikið" eða "lítið" andvígt eða fylgjandi til dæmis ESB-orkupakka3. Samt mun atkvæðagreiðslan um hann fara fram með aðeins jái eða neii. Hvorki verður boðið upp á lítið já eða lítið nei á Alþingi.

Skoðanakönnuðir hafa breytt sér í sálarrannsóknarfélaga þar sem fólki er boðið upp á að kjósa flokk lítið eða mikið, eða vera mikið eða lítil hlynnt til dæmis pólitískum morðum.

Þetta eru hinar nýju afstæðiskenningar í stjórnmálum sem allt eru að drepa.

Þarna klípa þeir heilbú fólksins enn og aftur, og komast upp með það.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 24.6.2019 kl. 16:27

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ja hérna.

Mbl. áðan: 16 millj­ón­ir í lög­fræðiálit.

Hold da kjæft mand. Hér er aldeilis rakað til sín!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.6.2019 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband