Leita í fréttum mbl.is

Stuttar: Nytsamur bjáni og skipsrotta skipta um fćđutegund

Breski sendiherrann úr mýri Washingtonbćjar, sem enginn Bandaríkjamađur nennir ađ hlusta á né horfa til, og sem nota átti sem nytsaman bjána til ađ ná til Boris Johnson, sagđi auđvitađ af sér vegna ţess ađ hann var orđinn ónytsamur bjáni

Amber Rudd ráđherra atvinnu- og eftirlaunamála hjá Theresu May hefur skipt 180 gráđur um skođun og styđur nú allt í einu útgöngu Bretlands af Egyptalandslögsögu Evrópusambandsins í upplausn, án svo kallađs samnings. Hún vill halda vinnu sinni ţví hún vill ekki verđa atvinnulaus ţegar Boris tekur viđ. Forystulaus forysta Sjálfstćđisflokksins međ Guđlaug Ţór úti í metoo-sundlauginni ćtti ađ íhuga ţetta líka, áđur en hún sogast út međ samfylkingarvatninu

Frakkland setti í vikunni ţrjú prósent sí svona skatt á bandarísk stórfyrirtćki á sviđi tölvunartćkni og internetssamskipta. Trump hefur ţegar sett í gang rannsókn byggđa á 301. grein viđskiptalaga bandaríska ţingsins frá 1974. Hann á vísan stuđning ţingsins í alţjóđlegum viđskiptamálum og meira en ţađ. Ţingiđ er orđiđ enn harđara en Trump í ţeim málum. Kannski verđur niđurstađan sú ađ Frökkum verđi gert ađ líma myndir af skorpulifur og grátandi börnum á allar vínflöskur sem seldar eru til Bandaríkjanna

Ţađ er aldrei ađ vita, nú ţegar heimurinn er ađ jafna sig á undantekningar-afbrigđilegheitum ţeim sem ríkt í hafa í heiminum frá lokum Síđari heimsstyrjaldar. Ţar sem Evrópusambandiđ er á leiđ međ ađ verđa eins konar frímúrararegla, ásamt Sameinuđu ţjóđunum, NATO og IMF-Evrópu. Enginn hvellur mun heyrast ţegar ţessar stofnanir enda líf sitt, heldur ađeins lágvćr stuna, ţví hrunferliđ er ţegar hálfnađ eins og sést á hundasundi Guđlaugs Ţórs

Viđ munu taka hin sterku og ţrautreyndu og mannkynssögulega endingarmiklu hápólitísku einingar trúmála, kynţátta, ţjóđa- og ćttflokkamála, sem alltaf, nema í vísindaskáldsögum vorra tíma, hafa veriđ hornsteinar mannlegrar tilvistar ţessa heims. Ţar mun Veraldarvefurinn enda lífiđ sem samskonar lágvćr stuna og allskonarnetin taka viđ, hvert öđru lélegra og ófrjálsara, nema á ţví neti sem Bandaríkin munu stjórna. IBM-Global verđur kannski endurlífgađ í einni eđa annarri mynd, hver veit. Engu verđur ţó treyst fyrirfram. Heimurinn verđur eđlilegur á ný

Kyssi ég ţví íslensku krónuna, ţví blessađ er myntsvćđi hennar

Fyrri fćrsla

Ógerningur ađ reka alţjóđlega fjármálastofnun í ESB


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hressilegur pistill, Gunnar. smile

Og ţú kyssir íslensku krónuna og blessar myntsvćđi hennar, ólíkt Kristínu Ţorst. Fréttablađs-útgefanda í leiđara hennar í dag, en ţar er hún reyndar ađ tjá sig ţveröfugt viđ hinn eiginlega sérfrćđing blađsins í efnahags- og gjaldeyrismálum, Hörđ Ćgisson, ritstjóra Markađarins.

Jón Valur Jensson, 13.7.2019 kl. 16:37

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

... ţví ađ Hörđur hafnar ţví algerlega ađ ţađ sé ráđlegt fyrir Ísland ađ taka upp evru!

Jón Valur Jensson, 13.7.2019 kl. 16:39

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ţakka ţér fyrir Jón Valur.

Kveđja

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2019 kl. 15:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband