Föstudagur, 7. ágúst 2020
Kaldasti júlímánuður í 22 ár
Danska meðvirka Veðurstofan neyddist til að viðurkenna að nýliðinn júlímánuður var sá kaldasti síðastliðin 22 ár í Danmörku. Hér á Íslandi var hann víst sá næst- eða þriðji- kaldasti á öldinni. Veðurfræðilegir "sumardagar" í Danmörku voru aðeins tveir í mánuðinum. En "sumardagur" kallast það þegar hitinn utandyra fer yfir 25 gráður og hægt er að spara kyndinguna innandyra
Samt tekst dönsku meðvirku veðurstofunni að böggla saman fjögurra blaðsíðna pédéeff-kúluriti um veðrið í júlí án þess að meðvirkum pennum ríkisstofnunarinnar sem allt sitt eiga undir ofsapíndum skattgreiðendum landsins komið, í næstum heila öld, án nokkurs sýnilegs árangurs tækist að formúlera niðurstöður sínar þannig að þær segðu þetta hreint út. Ef að staðan hefði verið öfug, þá væri hún sjálf fyrirsögn pédéeffsins hjá DMI-Brésnéff
Og nú segja menn að Miðjarðarhafið hafi verið þremur gráðum hlýrra á Rómartímunum en það er núna
Svo virðist sem heilasellur margra svo kallaðra vísindadamanna séu orðnar frosnar fastar, þegar lesið er um hvað þeir þykjast sammála um, en eru það auðvitað ekki
Það styttist í að forritaðar-á-fyrirfram-ákveðinn-hátt leitarvélar nýaldarimba hætti að sýna okkur það sem forstöðumenn þeirra vilja ekki að við sjáum. Gerist það reyndar nú þegar, alla daga ársins. Kæru lesendur njótið endilega sílikonvisku sjálfs herraseturs alheimsins
Fyrri færsla
Landsframleiðsla Þýskalands féll um 34,7 prósent. Evrusvæðið enn verra
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Sunnudagur, 2. ágúst 2020
Landsframleiðsla Þýskalands féll um 34,7 prósent. Evrusvæðið enn verra
EKKI-BLAÐAMAÐUR, LANDSFRAMLEIÐSLAN OG HRUNSAMBANDIÐ ESB
Jæja. Víkjum nú blaðamönnum svo kallaðra "fjölmiðla" aðeins til hliðar, en skoðum hins vegar landsframleiðslu-fréttarétti þeirra. Við leyfum þeim þó að halda launum sínum, sem þeir eiga varla skilið, landsframleiðslu- og prósentulega séð. Svipað gildir einnig um CNN-stjórnmálamenn úr sama flokki líberalista
Þar sem Bandaríkin eru næstum eina landið í heiminum sem einnig birtir landsframleiðslubreytingar milli ársfjórðunga útfærða sem breytingu landsframleiðslunnar á ársgrundvelli, þá voru engar fréttir í fjölmiðlum um að samdrátturinn í landsframleiðslu Þýskalands var enn meiri en í Bandaríkjunum á sama tímabili, sé sömu reikniaðferðum beitt
Landsframleiðsla Bandaríkjanna féll um 9,5 prósentur frá fyrsta ársfjórðungi 2020 til og með annars ársfjórðungs 2020. Þetta er prósentubreytingin á milli þessara tveggja fjórðunga. Þessi breyting segir okkur hins vegar ekkert um sjálfan fyrsta fjórðunginn, heldur segir hún okkur bara hvað gerðist á öðrum fjórðungnum miðað við þann fyrsta
Ef mönnum skyldi langa til að vita hvernig árið í heild kæmi út miðað við hagvaxtarhraðann (hraðabreytinguna) sem varð á öðrum fjórðungi (miðað við þann fyrsta) með því að segja að hröðunin (samdrátturinn eða bremsunin) verði óbreytt út allt árið og gera hraðann þar með að árshraða, þá er það gert svona:
Maður fer í uppgjörstöfluna yfir árstíðaleiðrétta landsframleiðsluna í Bandaríkjunum á föstu verðlagi og deilir með fyrsta fjórðungi ársins 2020 (19.010,8 milljarðar dala) í annan fjórðung ársins 2020 (17.205,8 milljarðar dala) og fær út töluna 0,905. Síðan setur maður þá tölu í fjórða veldi til að dreifa ástandinu yfir allt árið (fjóra fjórðunga) og þá kemur út talan 0,671. Frá henni dregur maður síðan töluna 1. Þá kemur út talan mínus 0,329 og hún er síðan margfölduð með hundrað til að fá út prósentutölu: sem er mínus 32,9 prósentur. Þetta er sá samdráttur sem borinn hefur verið á fréttaborð fyrir okkur án þess að sambærilegar tölur frá öðrum löndum sem nefnd eru í sömu andrá séu bornar fram á sama hátt
Til að sleppa við að fara á ónothæft vefsetur nú austurþýsku hagstofunnar (Statistisches Bundesamt) og sem orðin er tæknilega ófær um að starfrækja RSS-efnisveitu að gagni, þá er hægt að fara hingað (inn á einkaframtakið) til að ná í þýsku tölurnar á föstu verðlagi, ásamt slíkum tölum flestra annarra landa heimsins. Þær eru 793,405 milljarðar evrur fyrir fyrsta fjórðung 2020 og 713,136 milljarðar evrur fyrir annan fjórðung 2020. Þegar ofangreindum útreikningum er sleppt lausum á þessar þýsku tölur þá kemur út talan mínus 34,73 prósentur
Landsframleiðsla Þýskalands féll sem sagt enn meira en sú bandaríska á umræddu tímabili eða 34,73 prósentur, sé sömu reikniaðferðum beitt. Það er því ekki hægt að álykta sem svo að lægri dánartölur og færri smit kínversku Wuhan-veirunnar í Þýskalandi hafi komið betur út fyrir þýska hagkerfið, miðað við Bandaríkin. Hinir efnahagslegu vísu (en þó clueless) menn Þýskalands höfðu spáð 4,5 prósentu falli, en ekki því 10,12 prósentu falli sem reyndin varð (hefðbundnir útreikningar sem mæla breytingar á milli fjórðunga í röð). Nein, því höfðu þeir ekki búist við
Tölurnar fyrir eftirfarandi lönd og furðufyrirbæri á borð við evrusvæðið eru þessar, séu bandarísku ársgrundvallar-reikniaðferðirnar notaðar:
Spánn: -55,41 prósent hrun
Frakkland: -46,43 prósent
Ítalía: -41,22 prósent
Portúgal: -45,28 prósent
Evrópusambandið (27 lönd): -39,8 prósent*
Evrusvæðið: -40,25 prósent hrun, miklu verra en í Bandaríkjunum
* Skjáskot af töflu "namq_10_gdp": vonlaust er að krækja breytu-beint á úrelta fornaldartækni Eurostat hagstofu esb (hint: stilla töfluna á "Chain linked volumes, annualized percentage change on previous period")
PS: Það var Eurostat-hagstofa esb sem samdi nóturnar fyrir níundu Ponzy-sinfóníu grísku hagstofunnar sem flutt var viðstöðulaust frá 1993 til 2009. Dirigent var herr Afleiða
BANDARÍKIN: HVAÐ VARÐ UM PENINGANA?
Mynd Landsbanki Kanada: Sparnaður sem hlutfall af ráðstöfunartekjum bandarískra heimila hefur þotið upp
****
Helsta ástæðan fyrir fallinu í bandarísku landsframleiðslunni er sú að einkaneysla (einkum þjónustu) dróst saman og sá samdráttur útskýrir nánast allt fall landsframleiðslunnar á þessum öðrum fjórðungi ársins. Fyrirtækin brugðust hratt við og drógu úr umsvifum. En hvað varð um þá peninga heimilanna sem annars hefðu verið notaðir til að kaupa landsframleiðsluna af fyrirtækjum landsins? Jú þeir voru sparaðir upp og bíða þess að hægt sé að nota þá (og kíkja kannski aðeins við á Nasdaq nú þegar Eplið AAPL verður klofið í fernt þann 31. þessa mánaðar og Jón og Gunna hafa þá betur efni á einum litlum bita). Peningar fólksins bíða eftir að hömlum vegna kínversku Wuhan-veirunnar sé aflétt, vegna þess að framboðskreppa er í gangi hennar vegna. Eftirspurnin er hins vegar í lagi. Fólk fær bara ekki að nota peningana sem það á og hefur til umráða
Þess vegna hef ég minnst á að tómatsósuflöskuáhrif geta orðið þegar veiru-höftunum verður aflétt. Brjálæðislegur hagvöxtur gæti orðið, því Bandaríkin þurfa ekki að bíða eftir neinum öðrum, því þau flytja svo lítinn hluta landsframleiðslunnar út (13 prósentur og helmingur þess fer til Kanada og Mexíkó). Bandaríkin eru ekki útflutningsháð eins og lönd Evrópu og sérstaklega ekki eins og Þýskaland, sem er ofurútflutningsháð óðaöldrunarhagkerfi. Þýskaland mun því líklega sitja eftir á botninum því útflutningsiðnaður mun jafna sig síðastur allra geira hagkerfanna. Það mun varla fara vel í þýska kjósendur. Sérstaklega ekki þegar peningar þeirra enda kannski á krónískt soltnum kistubotni Suðursins í skjóli nýlegra næturfunda í reykfylltum bakherbergjum Brussels - á heilum fimm! snúningum jarðar um sjálfa sig
MUNIÐ: KÆRU LESENDUR
Munið nú kæru lesendur að fara eftir því sem æðstu "heilbrigðisyfirvöld" heimsins (WHO) og hið vellaunaða embættismannarusl þeirrar stofnunar og hangandi ofborgaðir spottar hennar sögðu um allar jarðir:
1. Wuhan-veiran smitar ekki á milli manna (jæja)
2. Ferðatakmarkanir milli landa virka ekki (virka samt)
3. Andlistgrímur virka ekki (virka samt)
4. Lyf þetta og lyf hitt virka ekki (en þau virka samt)
Allt þetta ofborgaða embættismannarusl WHO-stofnunarinnar sem eyðir meira fé í ferðalög og fimm stjörnu hótel en stofnunin notar í baráttuna við eyðni, lifrarbólgu, malaríu og berkla samanlagt á ári, þarf að taka í gegn, reka og leggja stofnunina niður. Það er ekki hægt að bæta hana frekar en DDRÚV-pláguna og hið sama gildir að mestu um sjálfa sukkstofnunina sem er móðir WHO; S.þ.
Þennan 1+2+3+4 söng fengum við líka að heyra hér heima til að byrja með, því hér hugðust embættis- og sjórnmálamenn alls ekki að aðhafast neitt í Wuhan-veirumálinu og ráðherrar hoppuði hæð sína í bræðikasti yfir því að Trump forseti skyldi gera eitthvað í málunum og þvinga þá til aðgerða. Opinberuðu ráðherrar og flestir (en þó ekki allir) þingmenn þannig náttúruleysi sitt og fávitahátt frammi fyrir íslensku þjóðinni, sem heldur þeim uppi. Þetta fólk er lítils virði. Það er ekki launanna virði frekar en aularnir í vesalingaveldi WHO, ESB og Schengen. Þetta þarf að skera niður og burt
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 31. júlí 2020
Rólega... rólega... [u]
Ástæðulaust er að bera verri hagvaxtartölur á borð en innistæða er fyrir
Þegar blaðamenn tala um að landsframleiðsla í til dæmis Bandaríkjunum hafi fallið um 32,9 prósent á öðrum fjórðungi þessa árs, en koma svo með sama-fjórðungs-tölur frá Þýskalandi í næstu línu (11,7 prósent fall) og sem kynntar eru sem verandi af sama sauðahúsi (lesandinn gæti að minnsta kosti haldið það), þá er mikilvægt að halda því til haga hér, að um tvö ólík og ósamanburðarhæf hugtök er að ræða
Fyrri talan, sú frá Bandaríkjunum, sem nefnd er (-32,9%) er tilraun til að árs-gera sjálfan vaxtarhraðann með því að framkvæma "annualization"-útreikninga, þ.e. að breyta hagvaxtar-skammtímatölu yfir í niðurstöðu fyrir allt árið í heild. Dæmi: hjartsláttartala manns í hjartatoppi er árs-gerð
En þegar upp er staðið þá féll landsframleiðslan í Bandaríkjunum um 9,5 prósentustig á milli ára. Þ.e. annar fjórðungur 2020 miðað við annan fjórðung 2019
Í Þýskalandi var fallið enn meira, eða 11,7 prósentustig á sama tímabili
Bandaríski seðlabankinn gerir ráð fyrir því að landsframleiðsla Bandaríkjanna dragist saman um 6,5 prósentur á þessu herrans ári (miðað við síðasta ár í heild). Gert er hins vegar ráð fyrir enn meiri samdrætti á evrusvæðinu og í esb
Þetta er auðvitað allt saman slæmt. En hið góða í stöðunni er þrátt fyrir allt það, að um framboðskreppu er að hér ræða. Eftirspurnarhliðin er hins vegar í góðu lagi og fjármálakerfið er ekki í vandræðum. Fólk vill neyta, en fær það ekki
Og eins og kunnugt er, þá eru það fyrirtæki landsins sem framleiða landsframleiðsluna. Það eru hins vegar heimili landsins (og hið opinbera) sem neyta hennar. Þess sem heimilin ná ekki að neyta, er annaðhvort komið fyrir á lager (birgðir) eða flutt út til annarra landa
Hið opinbera framleiðir hins vegar ekkert, því það er ekki fyrirtæki. Það eyðir bara því sem fyrirtækin skaffa. Engir aðrir peningar eru til. Allir fjármunir hins opinbera koma frá rekstri fyrirtækja. Ef ríkið væri fyrirtæki þá gætum við afskrifað stjórnmálamenn og árstíðaleiðrétt niðurstöður kosninga
Uppfært kl. 13:29
Rétt í þessu sendi hagstofa esb frá sér nýjustu hagvaxtartölurnar eða svokallað skyndimat (e. flash estimate). Þar dróst landaframleiðslan á evrusvæðinu saman um 15 prósentustig (2.fj. 2020 miðað við 2.fj. 2019) og um 14,4 prósentustig í öllu esb. Verst er staðan á Spáni (-22,1 prósentustig) og í Frakklandi (-19 prósentustig) þ.e. af þeim ríkjum sem tilkynningin nær yfir. Staðan á evrusvæðinu er því nálægt því að vera tvöfalt verri en hún er í Bandaríkjunum. Hvernig skyldi standa á því?
Fyrri færsla
Blökkumenn styðja Biden enn síður
![]() |
Kórónukreppan ristir djúpt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 28. júlí 2020
Blökkumenn styðja Biden enn síður
Mynd: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna
****
Um dúkkupússara Demókrataflokksins í kjallaraholunni hjá Biden fer nú skuggalegur kuldahrollur. Staðan er nefnilega sú að Joe Biden sem er væntanlegt forsetaefni hins nú róttæka vinstriflokks svo kallaðra Demókrata, sem nær allar skrílsfelldu stytturnar voru af nýtur enn minni stuðnings meðal bandarískra blökkumanna en Hillary Clintonkona-Bills gerði 2016, þ.e. kona Bills sem dæmdur var fyrir þið vitið hvað (nenni ekki að segja það hér, en það var ekki fallegt)
Og ekki nóg með það, þá hýrast nú blökkumenn í íbúðum sínum í þeim borgum sem demókrataflokkurinn stýrir, og þora varla út vegna demókrataskapaðra óeirða og skorts á löggæslu, og sem haft hefur þær afleiðingar í för með sér að eins konar Al Capone-ástand (löggur í slæmum vösum) hefur myndast þar. Blökkumenn geta því valið á milli þess að loka sig inni, eða farið út til að láta skrílslið Demókrata herja á sig, smitast af veiru sem vegna skrílsmótmæla hefur blossað upp, eða látið glæpona herja á sig. Sala skotvopna til blökkumanna hefur því aukist mikið í borgum Demókrata. Þeir vilja helst ekki fara varnarlausir inn í nóttina, skiljanlega
En nú hefur Trump-maðurinn á hvítum hesti sent þeim löggunar-fulltrúa sína til bjargar og það líkar yfir-Demókrötum í Biden-kjallaraholunni afar illa, því þeir eru svo hræddir um að blökkumennirnir í stofufangelsunum kjósi Trump í staðinn, sem takk fyrir frelsið
Og ekki nóg með það þá hefur Trump-maðurinn sent fulltrúa sína til að vernda og gæta eigna bandarísks almennings í brjálæðisborgum Demókrata. Dómshúsbyggingar alríkisins og alríkis-póstþjónustan hafa til dæmis verið undir áhlaupi frá Demókrataskrílnum, þannig að bara það ástand eitt og sér út af fyrir sig kallaði á að Trump sendi alríkisfulltrúa sína til að gæta eigna ríkisins á borð við þessar og minnismerkja á borð við Abraham Lincoln, sem er eign allra landsmanna Bandaríkjamanna
Hafa Demókrataborgirnar plús Hollywood og vinstra-fjölmiðlaliðið sem aldrei hefur þorað (né viljað) að gera upp við kommúnisma Stalíns nú trompast yfir því að Trump skuli dirfast að gæta lífs, lima og eigna borgaranna, og þannig varið sjálfa stjórnarskrá Bandaríkjanna. Þetta endar því eins og við má búast
Fyrri færsla
SDG-greinin: Tek undir með Jóni Magnússyni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 25. júlí 2020
SDG-greinin: Tek undir með Jóni Magnússyni
Jón skrifar eftirfarandi um tímamótagrein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu í dag:
"Sigmundur Davíð brýtur að mörgu leyti blað með grein sinni, þar sem hann er fyrsti stjórnmálaleiðtoginn á Vesturlöndum sem tekur heilstætt á þeirri atlögu sem nú er gerð að vestrænni sögu, menningu og arfleifð og andæfir gegn öfgunum sem ráðast gegn grunngildum lýðræðisþjóðfélaga."
Ég tek heilshugar undir þetta. Vel að orði komist hjá Jóni
Svona er að hafa hryggsúluna í lagi. Þeir sem þannig eru vaxnir standa uppréttir sem menn. Þeir láta ekki stafla sér
Til hamingju með réttstöðuna Sigmundur Davíð. Hún sést og eftir henni er tekið!
Líberalistar hafa nú tvo kosti. Annað hvort að halda áfram að láta neo-Marxistana éta sig lifandi, eða að slá sér saman í nýtt bandalag með okkur Íhaldsmönum. Við erum þeirra eina von, þegar nánar er að gáð
Fyrri færsla
Sería björgunaraðgerða vegna evrunnar heldur áfram í ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Miðvikudagur, 22. júlí 2020
Sería björgunaraðgerða vegna evrunnar heldur áfram í ESB
NÝR CAMERON
HÆSTA FJALL EVRÓPU ER Í HOLLANDI NÚNA OG HEITIR MARK RUTTE
Evrópa sekkur dýpra í skuldafenið sem evrunni var ávallt ætlað að búa til, þegar nánar var að gáð, enda þótti hagfræðingum fyrirbærið jaðra við tunglsýki. Það styttist því í kröfur um að nýtt Luftwaffe verði stofnað sem ný innheimtustofnun yfir Evrópu. Upphafsstaða Suður-Evrópu í evrunni var 70 prósent fyrirfram-glötuð. Samt var skrímslinu því sleppt lausu
"Europes future is at stake," Ms. Merkel had warned Mr. Rutte during the tense negotiation, said people familiar with the discussion. "If southern countries go bankrupt, we all go bankrupt eventually." blaðamenn WSJ. Leiðari blaðsins segir: "Evrópa hoppar í skuldafenið"
Sú röð fjölda-björgunaraðgerða (e. serial-bailouts) sem tilvist evrunnar hefur kallað yfir meginland Evrópu heldur áfram. En nú af enn örvæntingarfyllri krafti en áður, því helmingur meginlandsins er gangandi gjaldþrota. "Ef við björgum ekki Ítalíu, Spáni og Portúgal og mútum Austur-Evrópu, þá verðum við öll gjaldþrota" sagði Angela Merkel við Mark Rutte forsætisráðherra Hollands á fimmta degi fundarins í skuldasellu evrunnar í Brussel í gær
Nýtt og tólffalt Grikklandsstríð í ESB er því við það að hefjast, eða frá og með næsta ári, en það er fyrst þá sem greiðslur að "uppfylltum skilyrðum" eiga að koma til framkvæmda úr "björgunar- og endurreisnarsjóðnum", sem lítið hefur því með Wuhan-veirumálin að gera, því þau eru núna. Nettóviðtakendur eru lönd Suður-Evrópu, þar sem Ítalir úthluta sjálfum sér árlega 16,2 prósentum landsframleiðslunnar í ríkisfjármagnaðan lífeyrir. Í Hollandi er sú tala 5,4 prósentur. Fái Suður-Evrópa ekki fé til að borga Þýskalandi þá er Þýskaland gjaldþrota líka
Ítalía er gjaldþrota núna í umsjá ríkisstjórnar sem er við það að taka landið út úr ESB, sé því ekki mútað, og þá fengi Þýskaland lítið. Spánn er gjaldþrota og við það að sundrast innafrá. Það er því sem næst kommúnistaríki núna. Portúgal er að deyja hægfara evrudauða í ESB. Grikkland er þegar dautt
Angela Merkel verður líklega hataðasta manneskja Þýskalands er hún loksins fer frá völdum. Þjóðverjar munu segja að hún hafi eyðilagt Þýskaland, að innan sem utan, því þeir álíta að undanlátssemi hennar núna sé vegna þess að hún er að fara frá og hafi "ekki nennt þessu lengur" enda uppalin í DDR, eins og Svavar. Frá henni hafi því komið nýtt stórt bless-spark í gær, og sömu gömlu en nú enn glataðri ESB-dósinni var þeytt lengra niður götuna til glötunar. Sá sem tekur við og mundar sig við næsta spark, verður hvað?? og hver....??
Fjögur ríki í sambandsríkinu Þýskalandi hafa því sent bænaskjal til þjóðþings Bandaríkjanna um að bandarískir hermenn verði ekki kallaðir burt úr þeim, því efnahagur þeirra þoli það ekki. Um er að ræða vesturþýsku ríkin Rínarland-Pfalz, Hessen, Bæjaraland og Baden-Württemberg. Líka þau eru á skallanum, fari bandarísku hermennirnir á brott og annað, með fé bandarískra skattgreiðenda, eða jafnvel heim. Þau vilja einhverra hluta vegna ekki ganga í Frakkland og allra síst í Ítalíu, né hvað þá Rússland
Hefst nú nýtt tímabil í sögu Evrópu þar sem allir verða með nefið enn lengra niðri í koppum hvors annars og blaðamannastéttir allra ríkja meginlands Evrópu munu gera út á að dekka spillinguna í því landi sem fær björgunarpeninga, eins og Eurointelligence bendir á í dag á meðan heimamenn í norðrinu lesa fréttir þeirra og lepja skuldasúpu gærdagsins úr nýrri en næfurþynnri skel. Hatrið og sundurlyndið stigmagnast á meginlandi taparanna. Bretar prísa sig því sæla og verða hið nýja helga land Evrópu, eins og Blake orti um
NÁNAR
Fyrri færsla
Telegraph: "Emmanuel Macron ásakar Holland um breska brexit-hegðun"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 20. júlí 2020
Telegraph: "Emmanuel Macron ásakar Holland um breska brexit-hegðun"
Mynd WSJ: Ríkissjóðsútgjöld eða "efnahagsleg örvun" Bandaríkjanna, annarra ríkja og efnahagssvæða vegna kínversku Wuhan-veirunnar. Hlutfall af landsframleiðslu. Til viðbótar þessu koma síðan aðgerðir Bandaríska seðlabankans
***
LOL: ÞETTA ER SPRENGHLÆGILEGT
"Emmanuel Macron accuses Dutch of acting like Brexit Britain at EU coronavirus summit" segir í fyrirsögn Telegraph í dag og sjá frétt Mbl um málið
Þetta er fyndið vegna þess að Holland er útibú Angelu Merkels og eins konar bremsumiðstöð Þýskalands í Evrópusambandinu. Þannig að þegar Macron skammar Holland þá skammar hann Þýskaland. Á Sovéttímanum var þetta kallað að "taka Albaníu á málin", því þegar umboðslausum Kommúnistaflokkunum í Kreml líkaði ekki það sem eitthvert stærra ríki í USSR-allsherjarverkóinu gerði, þá skammaði Kremlið Albaníu, því hún var svo lítil. Síðan urðu Kremlológar að rýna í bollana og afkóða skammirnar
Sem sagt: "leiðtogar" 27-ríkja hafa verið lokaðir ofan í suðukatli í bráðum fjóra daga til þess að rífast um hámark 0,8 prósentu af samanlagðri landaframleiðslu Evrópusambandsríkja, dreift yfir þrjú ár, eða 350 miljarða evra skv. Eurointelligence í dag
Sovétmenn voru þó aldrei svo heimskir að krefjast sameiginlegrar myntar í öllum ríkjum kommúnismans
Þannig að Þýskaland er sennilega á leið út úr Evrópusambandinu (reyndar sjálfgefið úr þessu), því nú er komið að nýju rassakasti þar: Gertrúd eða Gertút þ.e.a.s nýtt Versalasamnings-rassakast. Við viljum ekki borga (en Grikkland á hins vegar að borga okkur, í okkar mynt). Og við höfum þénað þrefalt inn fyrir kostnaðinum við endursameinungu Þýskalans á myntinni evru og veru okkar í ESB
Samkvæmt þessari mynd hér fyrir ofan þá þokast evrusvæðið núll komma einn millímetra upp súluna eftir þessa fjögurra daga reykfylltu suðu í suðukatli taparanna á meginlandinu. Untergang Evrópusambandsins er fyrir löngu orðinn notbremsenresistent
Massíf tiltök
Mynd WSJ: Fjárlagahalli ríkissjóðs Bandaríkjanna vegna kínversku Wuhan-veirunnar, settur í sögulegt samhengi. Hlutfall af landsframleiðslu. Já ríkissjóðir fullvalda og sjálfstæðra ríkja hafa eyðsluskyldur
Fyrri færsla
Anna Bretaprinsessa gefur lítið fyrir loftslagsþvætting nútímakjána
![]() |
Ekkert samkomulag í Brussel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 19. júlí 2020
Anna Bretaprinsessa gefur lítið fyrir loftslagsþvætting nútímakjána
Viðtal við Önnu Bretaprinsessu í Womens Weekly: Ástralíu- og Nýja Sjálandsútgáfunni (krækja)
****
Til að byrja með er rétt að minna þá á sem hafa ekki tekið eftir í tímunum, segir hún, að það voru Kanadamenn sem gerðu repjuolíu neysluhæfa með erfðabreytingum í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar. Annars væri hún eitruð. En enginn tekur hins vegar eftir þessu, segir Anna prinsessa. Ja hérna...
"Og þar sem við erum svo ósammála, þá eru öll samtöl mín og Karls Bretaprins mjög stutt", segir hún svona til útskýringar í sjaldgæfu netsímaviðtali við ástralskan blaðamann, frá sveitasetri sínu í Gloucesterskíri í Suðvestur-Englandi. Ja hérna..
Og hún bætir í. "Gróðureldar í Ástralíu er ekkert nýtt. Hvernig þeir þróast hefur með landnýtingu að gera", segir hún. Og þar veit hún meira en margur annar um þau mál
Síðan tekur hún loftsslaginn og afheggur hinn vinstrisýkta hluta heilaútibús Karls Marx í mönnum, með eldgömlu og flugbeittu sverði (hertu í blóði), með því að tilkynna (efnislega líka) "að hún aki alls ekki þær platgötur strandaglópa til nýrrar byltingar. Bara alls ekki. Enginn ætti að fara þær". Ja hérna. Já þetta vissi ég líka, því þær liggja nefnilega allar til hins sama gamla helvítis og ávallt áður. Jörðin er ekki flöt, og bloody hell er til
"Loftslag jarðar hefur alltaf tekið breytingum og það hefur verið síbreytilegt allan þann tíma sem jörðin hefur verið til. Fólk verður að læra að lifa með þessu. Þarna er ekkert nýtt undir sólinni. Við verðum að muna að virða lífsins staðreyndir og læra að búa við þær", segir hún einnig
Amen!
PS: Kapítalismi er ekki kerfi, því einnig hann er "staðreynd lífsins" eins og móðurástin og þjóðhyggjan, því hann er færslur manna á milli og ekkert annað; vörur, þjónusta, peningar, greiði, gjafir. Hann er hvorki kenning né kerfi. Þeir sem sætta sig ekki við færslur manna á milli, afneita staðreyndum lífsins (afneitunaraðalssérréttur vinstrimanna)
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.7.2020 kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. júlí 2020
Kva! Án dóms og laga?
Í þessari frétt Moggans á netinu segir:
"Mótmæli gegn kynþáttamisrétti hófust í Bristol í kjölfar þess að lögreglumaður drap George Floyd, svartan mann í Bandaríkjunum. Andlát hans knúði fram mótmæli á heimsvísu, meðal annars í Bretlandi þar sem áhersla hefur verið lögð á nýlendutímann og þann þátt sem Bretar áttu í honum." (mbl.is)
Eitt: Bíddu nú hægur. Er ekki farið heldur betur of hratt þarna. Það er ekki búið að dæma í málinu og það hefur alls ekki verið sannað að lögreglumaður að skyldustörfum hafi drepið blökkumanninn Floyd. Krufning sem gerð var sýndi þess ekki merki að blökkumaðurinn hefði látist fyrir tilstilli lögreglunnar. Síðari "sýndarkrufning", eins konar pappírsrannsókn án líks, var hins vegar aðeins endurskoðun á pappírum frá hinni eiginlegu krufningu. Hún var þess utan fjármögnuð af ættingjum og skyndilegum "vinum" hins látna
Þegar myndin af lögreglumanninum með hné á höfði hins grunaða er stækkuð og skoðuð, þá sést að næstum allur líkamsþungi lögreglumannsins hvílir á hinum fótleggnum, en ekki á þeim sem hvílir á Floyd. Engin mikilvæg æð er á þessum stað höfuðsins og langt er frá hné niður á sjálfan háls mannsins og öndunarveg. Sá hafði kvartað yfir því að geta ekki náð andanum áður en honum var komið í þessa stellingu. Löngu áður. En það vissu hins vegar ekki þeir lögreglumenn sem komu á staðinn síðar, og héldu hinum grunaða í þeirri stöðu sem myndin sýnir
En auðvitað eiga menn helst ekki að deyja í vörslu og umsjá lögreglunnar. En það gerist samt, því aðstæður eru oft þær sem glæpamennirnir sjálfir skapa, og meirihluti þeirra sem þannig enda líf sitt eru reyndar hvítir en ekki svartir, miðað við mannfjölda. Lærdómurinn er því sá að koma sér ekki í kast við verði laganna, því þeir einir hafa lögfestan einkarétt á beitingu ofbeldis. Allir vita að myndavélar ljúga, því þegar maður hittir það fólk sem lítur vel út á endalausum sjálfsmyndum af sjálfu sér, þá er það mjög svo oft bara svipur hjá þeirri sjón sem birt var, og oft jafnvel bara imbasíld í tómri tunnu að innan er það opnar munninn
Annað: Það var ekki "mótmælt á heimsvísu" því það er bannað að mótmæla í nær öllum múslímaríkjum, Kína, Norður-Kóreu, Rússlandi og víðar. Afríkuríkin öll nema þrjú eða fjögur höfðu engan áhuga á þessu máli. Íbúarnir þar höfðu ekki áhuga á tómstundaiðju blökkumanna í Bandaríkjunum, sem er besti blettur jarðar fyrir blökkumenn veraldar að búa. Hvergi á jarðríki hafa blökkumenn heimsins það eins gott og í Bandaríkjunum. Suður-Ameríka yppti hins vegar öxlum því hún hefur meira en nóg af eigin vandamálum, til að bíta í og brenna. Þess utan er Suður-Afríka önnum kafin við að reka þá hvítu menn úr landi sem byggðu hana upp. Hið sama á við um Zimbabwe (áður Rhodesia) sem nú flytur inn matvæli því búið er að rústa því sem þar hafði af hvítum verið byggt upp
En nú er peak-jakobínisma þessa skrílsliðs í Bandaríkjunum og víðar um Vesturlönd sennilega náð. Röðin í fallöxina sem skríllin sá byggði er byrjuð að þynnast, og selfie-smiðirnir sem smíðuðu hana eru farnir að óttast að hún snúi sér að þeim sjálfum næst. Og þar sem fallöxin er litblind þá er hún byrjuð að gúffa þá svörtu í sig líka. Þarna er að verki sama úrverk slæmra vinstrimanna og stofnuðu MeToo-hreyfinguna, sem át sjálfa sig upp til agna á smátíma. Hún var stofnuð til höfuðs Trump, en um leið og sigurför hennar byrjaði að flæða frá Brett Kavanaugh hæstaréttarfdómaraefni Trumps og yfir til Hollywood-plastsins og þaðan yfir á Joe Biden forsetaframbjóðanda? nú Stalín-Demókrataflokksins, þá þagnaði hreyfingin strax og át sjálfa sig. En áður en hún náði því vanþróunarstigi hinnar útópísku vinstrimennsku, hafði hreyfingin breyst í það að vera verkfæri frægðarfólks til að stela störfum og atvinnutækifærum annarra til handa sjálfu sér. Hér á Íslandi hoppaði vitsmunalega- og raðdómgreindarskert fólk í vinstriflokkum á borð við Sjálfstæðisflokk, Framsókn, Vinstri rauðgræna, Pírataskríllinn ásamt nýlendu-Samfylkingar- og Viðreisnarsósíalistunum á þetta illfygli, sem er eins konar glamúr-nýnasistahreyfing á Ittalakristalnótt. Dómgreindarskert fólk flykktist þarna inn og gerði sig fyrir vikið að enn meiri fíflum en það var, jafnvel sem ráðherrar!
Þau 10 prósent Suðurríkjamanna í Bandaríkjunum sem áttu þræla á frumstigi þeirra sem þjóðríkis, hljóta í gröf sinni að vera að springa úr hlátri yfir fávisku og frummannaheimsku þessa skríls, sem nú rasar um götur landsins og tætir og tortímir því sem hann stendur á og nýtur góðs af, því restin af Suðurríkjamönnum (hin 90 prósentin) voru hvítir fátæklingar sem fylgdu aðeins þeim að málum sem stóðu upp í hárinu á því sem þá þótti ofríki norðursins, frá þeirra bæjardyrum séð. Deilan sem hófst í aðdraganda borgarastyrjaldarinnar er geisaði frá 1861-1865, hafði í upphafi minnst með þrælahald að gera. Var hún fyrst og fremst deila um hver hefði réttinn til skipa fyrir í landinu. Þjóðríki fæðast nefnilega ekki með því að gefa út fæðingarvottorð úr pappír. Þau vottorð þjóða eru næstum alltaf úr blóði. Að kalla borgarastyrjöldina þrælastríðið er því rangnefni. Þrælahaldið var upphaflega hliðarmálefni. Allir vissu að dagar þess voru taldir á Vesturlöndum
Flest handskotvopn eru nú uppseld í ríkjum vinstrimanna í Bandaríkjunum. Vinstrimenn þekkja sjálfa sig og stjórnvöldin sem þeir kusu útópíumannamanna best, og búa sig því þannig undir komu fallaxarinnar, sem þeir sjálfir settu í gang. Nóvember verður því sennilega mánuður Wyatt Earp
Nóvember 2020? It All Ends Now!
Við Íslendingar bíðum sem kunnugt er enn eftir afsökun og skaðabótum frá Tyrkjum, ekki satt, því þeir rændu 400 Íslendingum, hnepptu þá í þrældóm og slátruðu mörgum ættingjum okkar líka. Brytjuðu þá í spað. Talan 400 svarar til að 240-þúsund manns í Bandaríkjunum anno 1860 hefðu verið hnepptir í þrældóm og skipað til útlanda
Ergo: Eigum við ekki bara að sleppa þessum sósíalista-dómstólum götunnar og sameinast um réttarríkið sem er forsenda svo kallaðra mann-réttinda. Hugtak sem mér finnst vera orðið klámyrði og hóruungi í meðferð vinstrimanna og helsjúkra fjölmiðla þeirra; Sjá uppsagnarbréf Bari Weiss blaðamanns á stórheimskublaðinu New York (Space) Times, sem býr í geimstöð á plánetu í annarri stjörnuþoku, svipað og DDRÚV: Dear A.G.,. Tilvitnun:
"The paper of record is, more and more, the record of those living in a distant galaxy, one whose concerns are profoundly removed from the lives of most people. This is a galaxy in which, to choose just a few recent examples, the Soviet space program is lauded for its "diversity"; the doxxing of teenagers in the name of justice is condoned; and the worst caste systems in human history includes the United States alongside Nazi Germany."
Hér má einnig lesa svipað aukanúmer hjá Bruce Bawer og er það um reynslu hans af sama sovétblaði, þ.e. New York Times: Quitting the Times
Fyrri færsla
Vesturlöndum bannað að reisa kirkjur í múslímaríkjum og 5G-net í Kína
![]() |
Styttu af svartri konu steypt af stalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.7.2020 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Miðvikudagur, 15. júlí 2020
Vesturlöndum bannað að reisa kirkjur í múslímaríkjum og 5G-net í Kína
Hin blinda Rachel Flowers leikur Ráðgátuna endalausu eftir Emerson, Lake og Palmer
****
SAGA "MANNS" OG KÁLHAUSA
Best að hafa fyrirsögnina svona, því hún fær kannski eitthvert kálhöfuðið til að nota hið eina kálblað sem það hefur til umráða, því restin af höfðum of margra virðist ónothæft og sopið svartkál úr háskólum, sem orðnir eru lágskólar, eða því sem næst svæsnar blaðurkompur og oft með lítið sem ekkert markaðsfæranlegt notagildi fyrir þá sem þangað álpast inn, og taka á sig þung lán fyrir. Um er of oft orðið að ræða einar lélegustu og hættulegustu fjárfestingar sem hægt er að gera fyrir venjulegt fólk. Háskólanám er að of mörgu leyti að verða hættulegra basl en kauphöllin er fyrir kjána. Fólk er jafnvel rænt vitinu sem þangað álpast inn, því oft kann það minna er það kemur út
En við skulum hins vegar byrja þennan pistil á því að hið svo kallaða "alþjóðasamfélag" sem er ekki til og hefur aldrei verið til og verður aldrei til hefur ekkert gert í því að handhefja alþjóðleg hafréttarlög á Suður-Kínahafi, þrátt fyrir alþjóða-fetisma þeirra er það kál fastvaxið hafa á sínum herðum, og sópað var burt af einni slíkri nú nýlega, meira að segja íslenskri. Þannig úrskurðaði Haagdómstólinn 2016 að Kína hefur ekki löglegt tilkall til þess hafsvæðis sem það er að hrúga upp sandbunkum á, og skrúfa síðan eldflaugabatterí kommúnistaflokksins á þær flokksgerðu kryppur hans upp úr hafinu
Þarna ætlar "maðurinn" sem enginn hefur séð og ekki er til, því aðeins eru til Bretar, Íslendingar, Kínverjar, Rússar, Keníamenn og svo framvegis í veröldinni ekki að byggja neitt, heldur er það kínverski kommúnistaflokkurinn og kommúnistar hans sem eru að byggja þarna land á alþjóðlegum siglingarleiðum og hafsvæði. Enginn hefur séð "manninn" sem alþjóðaistar bjuggu til uppi í kálhöfðum sínum að verki þarna. Auðvitað ekki, því enginn "maður" er til, aðeins einstaklingar sem allir eiga sér ákveðið heimaland, átthaga og uppruna í þjóð eða ættbálki, og enginn þeirra er með það sama innanborðs í toppstykkinu, hvorki skoðanir, tungumál, uppeldi, viðhorf né bragðskynsskala. Þeir eru allir ólíkir eins og Newton komst að raun um er hann gafst upp á kauphöllinni og snéri sér að svartagaldri, því að í kauphöllinni gat hann ekki einu sinni spáð þrjár mínútur inn í framtíðina um gjörðir "mannsins" - sem er ekki til. En hann gat hins vegar spáð fyrir um gang himintungla, tíu þúsund ár inn í framtíðina
Enginn "maður" eða "maðurinn" er til frekar en sá rökhyggju-guð sem kálkobbar Frönsku byltingarinnar reyndu að finna upp í staðinn fyrir Guð, og fengu því í staðinn jarðbundinn einræðisherra með miklu meiri völd en konungurinn sem steypt var hafði. Þarna sortnaði framtíð Frakklands og við tók því sem næst ættjarðarlaus útópía með reimleika sem stjórnarfar. Feluleikar hófust; og kálið varð guð. Bretar fóru betur út úr þessum tímum því þeir losnuðu við "fjölbreytnina" sem Frakkland leið fyrir, því Bretland var ekki með annan fótinn fastan í Miðjarðarhafinu, sem þá hafði breyst í eins konar stofufangelsi og er það enn
Já, Bandaríkin sem fram að þessu hafa verið meira hlutlaus en ekki á Suður-Kínahafi, hafa nú skipt um gír og eru vegna skorts á "manni alþjóðasamfélagsins" byrjuð að lögga Suður-Kínahaf og koma þar á þeim lögum-og-rétti sem Kína hefur skrifað undir. Njóta Bandaríkin þar stuðnings allra ríkjanna sem hlut eiga að máli við Suður-Kínahaf, nema auðvitað Kína, sem er glæpamaðurinn í málinu
Hafnbanns- og áhrifageta og stuðningur við Bandaríkin í þessu máli nær frá Aleuteyjum í Beringshafi niður til Japans, þaðan yfir til Suður-Kóreu til Taívan og þaðan yfir til Filippseyja, niður til Indónesíu, Ástralíu og Nýja Sjálands, svo við minnumst ekki á Indland og öll hin ríkin á borð við Víetnam. Hvergi er stuðning við stefnu Kínverska kommúnistaflokksins að finna. Enginn styður Kína nema þá helst íslenskir kjánar í hinum ótrúlegustu flokkum, sem segir allt sem segja þarf um þá fallandi flokka. Kálhausar og ættjarðaróvinir þar vaxa í Schengenstækju landssölumanna
Enda er Kína fallandi veldi en ekki rísandi. Það er meira að segja svo fallandi að það þurfti að installera Xi-einræðisherranum til að stífa landið af 2013. Annars hefði það hrunið. En hrynjandi er það nú samt, eins og sést ágætlega á Suður-Kínahafsmálinu og síðan þeirri staðreynd að Kommúnistaflokkurinn hefur tekið upp á því að kýla einu viðskiptavini landsins beint í andlitið og varpa á þá veirum. Svo fallandi veldi er Kína að flokksforystan í Peking hefur meiri áhyggjur af framtíð sinni en Júríj Andropov, Konstantín Tsjernenkó og Mikhaíl Gorbatsjev höfðu af framtíð kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Gálginn bíður. Hann fer ekkert og forystan veit að hann er stór í svo fjölmennu landi fátæklinga
"Dreggjar Evrópu" voru Bandaríkin ávallt kölluð því þau byggðust upp af fátækum Evrópubúum sem ekkert áttu í elítu- og aðalsmannalöndum þeirrar álfu, sem er sú næstminnsta í heimi. Í dag er þetta fátæka fólk hins vegar kallað "hvítt forréttindafólk" (e. white supremacists) af þeim sem útskrifast sem kálhausar úr kálhausadeildum háskólanna, er reknir eru af eins konar yfirkálhausum sem hafa það of gott og eru því orðnir krónískir hugleysingjar. Í toppum stjórnmalaflokka Íslands sjást þess konar kálhausar afar vel í dag, því frá þeim geislar hugleysið, getuleysið og heimskan. Ekki "mannsins" heldur þeirra eigin
Þannig að núna lögga þrjú bandarísk flugmóðurskip heimshlutann sem inniheldur Suður-Kínahaf og með þeim í för eru hinar áföstu carrier strike groups eða árásarhópar sem samanstanda af skipum, flugvélum, kafbátum og því bandaríska góðgæti sem er úti í geimnum. Líklegt er að stigmögnun verði upp að vissu marki, en hún verður þó ekki með vopnum
Þeir kjánar sem héldu að Kína gæti boðið Vesturlöndum það sem Vesturlanda er, fá í þetta skiptið að hugsa sig um á svipaðan hátt og í hruni Kína 2015, en sem samkvæmt þeim átti ekki að geta gerst. Takið vinsamlegast eftir gullfiskaminninu. Vesturlönd treysta eðlilega ekki Kína fyrir að byggja innviði á borð við 5G, ekki frekar en Kína fær að byggja hernaðartækni Bandaríkjanna. Og nú þegar Kína hefur ekki lengur aðgang að öruggri bandarískri örgjörvatækni þá treysta ekki Bretland, Tékkland, Danmörk, Eistland, Lettland, Pólland, Rúmenía og Svíþjóð Kína fyrir 5G tækni í þeim löndum. Frakkland treystir Kína reyndar ekki heldur, en það þegir um málið á svipaðan hátt og franski herinn er kallaður hin þögli her. Ekkert kjarnorkuveldi Evrópu og Ameríku treystir Kína og það gerir Rússland ekki heldur, því það þekkir nágranna sína og eigin fortíð of vel. Hrein símafélög Indlands, Japans, Ástralíu og Suður-Kóreu hafa einnig bannað kínverska 5G tækni í innviðum sínum
Örgjörvahönnun hefur náð því stigi að vonlítið er fyrir pure-play framleiðendur á borð við til dæmis TSMC að koma í veg fyrir svik og pretti í hönnun þeirra og þar með framleiðslu líka. Og eins og sést á hinum nýju Silicon-skrefum Apple, sem hófust 2007 og felast í því að hanna eigin örgjörva með það fyrir augum að harðsjóða (e. hard-wire) öryggið inn í sjálfan vélbúnaðinn, sem fyrirtækið stjórnar líka, í stað þess að fela stýrikerfum öryggismálin, þá er þetta ekkert smámál. Steven Sinofsky fyrrum forseti Windows-stýrikerfisdeildar Mirosofts og þar áður Mac-forritari MS, varpar því þeirri spurningu fram hvort að með tilkomu Apple Silicon örgjörvans séu dagar Wintel (Windows+Intel) hugsanlega að verða taldir
Öryggismálin eru hér alfa og ómega og hið sama gildir einnig um hraðann, því nú nálgast bæði hönnuðir og framleiðendur endimörk nanómetra-skala efnisfrumeindanna. Ekkert nýtt og byltingarkennt bíður handan hornsins í þessum efnum, allra síst skammtatölvun því hún er til lítils nema í afar sérhæfðum aðgerðum. Tölvun er því að nálagst það markaðskapítalstig sem bílaiðnaður komst á í kringum 1960. Bestu dagar og stærstu peningar bransans eru að baki. Undanrenna tölvunar sem koncepts bíður því þessa eina geira Vesturlanda sem haft hefur álíka efnahagsleg áhrif og tilkoma rafmangs og bílaiðnaðar
Ekkert nýtt í stað núverandi tölvunar mun koma frá Kína, Asíu, Miðausturlöndum, Afríku né Suður-Ameríku. Lítið nema kál, veirur og áframhaldandi dauðadýrkun íslams mun koma þaðan
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 8
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 270
- Frá upphafi: 1404744
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 166
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008