Leita í fréttum mbl.is

Vesturlöndum bannað að reisa kirkjur í múslímaríkjum og 5G-net í Kína

Hin blinda Rachel Flowers leikur Ráðgátuna endalausu eftir Emerson, Lake og Palmer

****

SAGA "MANNS" OG KÁLHAUSA

Best að hafa fyrirsögnina svona, því hún fær kannski eitthvert kálhöfuðið til að nota hið eina kálblað sem það hefur til umráða, því restin af höfðum of margra virðist ónothæft og sopið svartkál úr háskólum, sem orðnir eru lágskólar, eða því sem næst svæsnar blaðurkompur og oft með lítið sem ekkert markaðsfæranlegt notagildi fyrir þá sem þangað álpast inn, og taka á sig þung lán fyrir. Um er of oft orðið að ræða einar lélegustu og hættulegustu fjárfestingar sem hægt er að gera fyrir venjulegt fólk. Háskólanám er að of mörgu leyti að verða hættulegra basl en kauphöllin er fyrir kjána. Fólk er jafnvel rænt vitinu sem þangað álpast inn, því oft kann það minna er það kemur út

En við skulum hins vegar byrja þennan pistil á því að hið svo kallaða "alþjóðasamfélag" –sem er ekki til og hefur aldrei verið til og verður aldrei til– hefur ekkert gert í því að handhefja alþjóðleg hafréttarlög á Suður-Kínahafi, þrátt fyrir alþjóða-fetisma þeirra er það kál fastvaxið hafa á sínum herðum, og sópað var burt af einni slíkri nú nýlega, meira að segja íslenskri. Þannig úrskurðaði Haagdómstólinn 2016 að Kína hefur ekki löglegt tilkall til þess hafsvæðis sem það er að hrúga upp sandbunkum á, og skrúfa síðan eldflaugabatterí kommúnistaflokksins á þær flokksgerðu kryppur hans upp úr hafinu

Þarna ætlar "maðurinn" –sem enginn hefur séð og ekki er til, því aðeins eru til Bretar, Íslendingar, Kínverjar, Rússar, Keníamenn og svo framvegis í veröldinni– ekki að byggja neitt, heldur er það kínverski kommúnistaflokkurinn og kommúnistar hans sem eru að byggja þarna land á alþjóðlegum siglingarleiðum og hafsvæði. Enginn hefur séð "manninn" –sem alþjóðaistar bjuggu til uppi í kálhöfðum sínum– að verki þarna. Auðvitað ekki, því enginn "maður" er til, aðeins einstaklingar sem allir eiga sér ákveðið heimaland, átthaga og uppruna í þjóð eða ættbálki, og enginn þeirra er með það sama innanborðs í toppstykkinu, hvorki skoðanir, tungumál, uppeldi, viðhorf né bragðskynsskala. Þeir eru allir ólíkir eins og Newton komst að raun um er hann gafst upp á kauphöllinni og snéri sér að svartagaldri, því að í kauphöllinni gat hann ekki einu sinni spáð þrjár mínútur inn í framtíðina um gjörðir "mannsins" - sem er ekki til. En hann gat hins vegar spáð fyrir um gang himintungla, tíu þúsund ár inn í framtíðina

Enginn "maður" eða "maðurinn" er til frekar en sá rökhyggju-guð sem kálkobbar Frönsku byltingarinnar reyndu að finna upp í staðinn fyrir Guð, og fengu því í staðinn jarðbundinn einræðisherra með miklu meiri völd en konungurinn sem steypt var hafði. Þarna sortnaði framtíð Frakklands og við tók því sem næst ættjarðarlaus útópía með reimleika sem stjórnarfar. Feluleikar hófust; og kálið varð guð. Bretar fóru betur út úr þessum tímum því þeir losnuðu við "fjölbreytnina" sem Frakkland leið fyrir, því Bretland var ekki með annan fótinn fastan í Miðjarðarhafinu, sem þá hafði breyst í eins konar stofufangelsi og er það enn

Já, Bandaríkin sem fram að þessu hafa verið meira hlutlaus en ekki á Suður-Kínahafi, hafa nú skipt um gír og eru vegna skorts á "manni alþjóðasamfélagsins" byrjuð að lögga Suður-Kínahaf og koma þar á þeim lögum-og-rétti sem Kína hefur skrifað undir. Njóta Bandaríkin þar stuðnings allra ríkjanna sem hlut eiga að máli við Suður-Kínahaf, nema auðvitað Kína, sem er glæpamaðurinn í málinu

Hafnbanns- og áhrifageta og stuðningur við Bandaríkin í þessu máli nær frá Aleuteyjum í Beringshafi niður til Japans, þaðan yfir til Suður-Kóreu til Taívan og þaðan yfir til Filippseyja, niður til Indónesíu, Ástralíu og Nýja Sjálands, svo við minnumst ekki á Indland og öll hin ríkin á borð við Víetnam. Hvergi er stuðning við stefnu Kínverska kommúnistaflokksins að finna. Enginn styður Kína nema þá helst íslenskir kjánar í hinum ótrúlegustu flokkum, sem segir allt sem segja þarf um þá fallandi flokka. Kálhausar og ættjarðaróvinir þar vaxa í Schengenstækju landssölumanna

Enda er Kína fallandi veldi en ekki rísandi. Það er meira að segja svo fallandi að það þurfti að installera Xi-einræðisherranum til að stífa landið af 2013. Annars hefði það hrunið. En hrynjandi er það nú samt, eins og sést ágætlega á Suður-Kínahafsmálinu og síðan þeirri staðreynd að Kommúnistaflokkurinn hefur tekið upp á því að kýla einu viðskiptavini landsins beint í andlitið og varpa á þá veirum. Svo fallandi veldi er Kína að flokksforystan í Peking hefur meiri áhyggjur af framtíð sinni en Júríj Andropov, Konstantín Tsjernenkó og Mikhaíl Gorbatsjev höfðu af framtíð kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Gálginn bíður. Hann fer ekkert – og forystan veit að hann er stór í svo fjölmennu landi fátæklinga

"Dreggjar Evrópu" voru Bandaríkin ávallt kölluð því þau byggðust upp af fátækum Evrópubúum sem ekkert áttu í elítu- og aðalsmannalöndum þeirrar álfu, sem er sú næstminnsta í heimi. Í dag er þetta fátæka fólk hins vegar kallað "hvítt forréttindafólk" (e. white supremacists) af þeim sem útskrifast sem kálhausar úr kálhausadeildum háskólanna, er reknir eru af eins konar yfirkálhausum sem hafa það of gott og eru því orðnir krónískir hugleysingjar. Í toppum stjórnmalaflokka Íslands sjást þess konar kálhausar afar vel í dag, því frá þeim geislar hugleysið, getuleysið og heimskan. Ekki "mannsins" heldur þeirra eigin

Þannig að núna lögga þrjú bandarísk flugmóðurskip heimshlutann sem inniheldur Suður-Kínahaf og með þeim í för eru hinar áföstu carrier strike groups eða árásarhópar sem samanstanda af skipum, flugvélum, kafbátum og því bandaríska góðgæti sem er úti í geimnum. Líklegt er að stigmögnun verði upp að vissu marki, en hún verður þó ekki með vopnum

Þeir kjánar sem héldu að Kína gæti boðið Vesturlöndum það sem Vesturlanda er, fá í þetta skiptið að hugsa sig um á svipaðan hátt og í hruni Kína 2015, en sem samkvæmt þeim átti ekki að geta gerst. Takið vinsamlegast eftir gullfiskaminninu. Vesturlönd treysta eðlilega ekki Kína fyrir að byggja innviði á borð við 5G, ekki frekar en Kína fær að byggja hernaðartækni Bandaríkjanna. Og nú þegar Kína hefur ekki lengur aðgang að öruggri bandarískri örgjörvatækni þá treysta ekki Bretland, Tékkland, Danmörk, Eistland, Lettland, Pólland, Rúmenía og Svíþjóð Kína fyrir 5G tækni í þeim löndum. Frakkland treystir Kína reyndar ekki heldur, en það þegir um málið á svipaðan hátt og franski herinn er kallaður hin þögli her. Ekkert kjarnorkuveldi Evrópu og Ameríku treystir Kína og það gerir Rússland ekki heldur, því það þekkir nágranna sína og eigin fortíð of vel. Hrein símafélög Indlands, Japans, Ástralíu og Suður-Kóreu hafa einnig bannað kínverska 5G tækni í innviðum sínum

Örgjörvahönnun hefur náð því stigi að vonlítið er fyrir pure-play framleiðendur á borð við til dæmis TSMC að koma í veg fyrir svik og pretti í hönnun þeirra og þar með framleiðslu líka. Og eins og sést á hinum nýju Silicon-skrefum Apple, sem hófust 2007 og felast í því að hanna eigin örgjörva með það fyrir augum að harðsjóða (e. hard-wire) öryggið inn í sjálfan vélbúnaðinn, sem fyrirtækið stjórnar líka, í stað þess að fela stýrikerfum öryggismálin, þá er þetta ekkert smámál. Steven Sinofsky fyrrum forseti Windows-stýrikerfisdeildar Mirosofts og þar áður Mac-forritari MS, varpar því þeirri spurningu fram hvort að með tilkomu Apple Silicon örgjörvans séu dagar Wintel (Windows+Intel) hugsanlega að verða taldir

Öryggismálin eru hér alfa og ómega og hið sama gildir einnig um hraðann, því nú nálgast bæði hönnuðir og framleiðendur endimörk nanómetra-skala efnisfrumeindanna. Ekkert nýtt og byltingarkennt bíður handan hornsins í þessum efnum, allra síst skammtatölvun því hún er til lítils nema í afar sérhæfðum aðgerðum. Tölvun er því að nálagst það markaðskapítalstig sem bílaiðnaður komst á í kringum 1960. Bestu dagar og stærstu peningar bransans eru að baki. Undanrenna tölvunar sem koncepts bíður því þessa eina geira Vesturlanda sem haft hefur álíka efnahagsleg áhrif og tilkoma rafmangs og bílaiðnaðar

Ekkert nýtt í stað núverandi tölvunar mun koma frá Kína, Asíu, Miðausturlöndum, Afríku né Suður-Ameríku. Lítið nema kál, veirur og áframhaldandi dauðadýrkun íslams mun koma þaðan

Fyrri færsla

Upp-nám á þröskuldi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert mildur í dag Gunnar.

Minnist ekkert á Ísland og fjarskiptakerfi

kínverska kommúnistaflokksins hér á landi

í boði íslenskra stjórnvalda.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.7.2020 kl. 12:09

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Leiðari Morgunblaðsins í dag er með þá hlið málsins sem snýr að metoo geggjunardeildinni í Gelgjuhöll. Hann fer líka varlega í málið því að um raðdómgreindarskert börn með snuð er að ræða, til alls ömurlegs trúandi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2020 kl. 12:33

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nú er fylgi þýskra græningja fallið um rétt tæplega 40 prósent á síðustu 12 mánuðum og allir orðnir svo leiðir á græna litnum á rauðu nútíma kommunum þeim, að það hálfa væri nóg.

Nú eru meginlandsmenn í fjötrum ESB komnir yfir í vetnisþvæluna þar, því rafmagnsþvælan gekk hvorki upp né út.

Meira að segja endurskoðendur eru byrjaðir að gera grín og hlægja opinberlega að svikamyllu Evrópusambandsins í svo kölluðum umhverfismálum. Vitandi það að þar er allt í krónísku sukki innanborðs, bæði hugarfarslega, pólitískt og vitsmunalega.

Það styttist í endalok púðasambandsins sem safngripur í húsagötu við Genfarvatn. Enginn hlustar á fyrirbærið lengur og allra síst fólkið, sem bað aldrei um það, en byggir löndin sem í því eru. Allt er lygi sem frá Evrópusambandinu kemur.

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2020 kl. 13:06

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Tilkynning frá bandaríska utanríkisráðuneytinu barst í dag, miðvikudaginn, 15. júlí 2020

U.S. Imposes Visa Restrictions on Certain Employees of Chinese Technology Companies that Abuse Human Rights

Lausleg efnisleg þýðing:

"Bandaríkin hafa löngum verið ljósviti vonar fyrir kúgaðasta fólk veraldar og rödd þeirra sem þaggað hefur verið niður í. Við höfum talað sérlega um misþyrmingar Kínverska kommúnistaflokksins á mannréttindum, sem eru einar þær verstu í heiminum.

Frá og með í dag setja Bandaríkin takmarkanir á vegabréfsáritanir fyrir vissa starfsmenn kínverskra tæknifyrirtækja sem skaffa kúgunarstjórnum um allan heim tæknileg kúgunarverkfæri. Þessu fólki verður meinuð landganga í lögsögu Bandaríkjanna, hafi utanríkisráðherrann ástæðu til að ætla að þeir hafi alvarlegar neikvæðar afleiðingar fyrir framkvæmd utanríkisstefnu Bandaríkjanna.

Þau fyrirtæki sem verða fyrir þessari ákvörðun (þings og ríkisstjórnar; GR) eru Huawei sem er lögreglu- og persónunjósnaarmur Kínverska kommúnistaflokksins, sem ritskoðar pólitískar skoðanir andstæðinga hans og aðstoða við rekstur hreinsunar-, heilaþvottar,- og einangrunarbúða í massavís í Xinjianghéraði, og veitir álíka aðstoð við aðgerðir gegn þjóðinni allri um allt Kína, með verkfærum frá  Huawei. Vissir starfsmenn Huawei sjá um að skaffa Kommúnistaflokknum kúgunarverkfærin."

Ennfremur segir í tilkynningunni:

"Símafyrirtæki um allan heim ættu að líta á sig sem verandi í hættu á því að þessar aðgerðir bandarískra stjórnvalda nái einnig til þeirra sjálfra og starfsmanna þeirra: Ef þau eru í viðskiptum við Huawei þá eru þau í viðskiptum við kúgara."

Gunnar Rögnvaldsson, 15.7.2020 kl. 20:33

5 identicon

A.m.k. Nova, fjarskiptafyrirtæki Björgólfs Thor notast við kerfi kínverska kommúnistaflokksins.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.7.2020 kl. 23:10

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert hrópandinn í eyðimörkinni Gunnar!

Halldór Jónsson, 16.7.2020 kl. 00:06

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Halldór og skírir vel það sem koma skal.- Þökk sé honum.

Helga Kristjánsdóttir, 16.7.2020 kl. 03:11

8 identicon

Hvað er það eina sem bandarísk stjórnvöld

hafa beðið íslensk að gera ekki?

- Bjarni, ekki setja íslenska skattpeninga í Belti og braut kínverska kommúnistaflokksins.

- Bjarni, ekki setja íslenska skattpeninga í innviðabanka kínverska kommúnistaflokksins.

- Bjarni, Gulli, Þórdís Reykás og "what's his name?" samgöngudúddinn, dýralæknirinn, ekki leyfa Deutsche Bank gaurnum að setja upp fjarskiptakerfi kínverska kommúnistaflokksins á Íslandi, Nova dúddanum.

Það er með ólíkindum hvernig hin búrkratíska  forystusveit Sjálfstæðisflokksins hefur virt góðar óskir bandarískra stjórnvalda að vettugi.

En þóknast þeim mun meira kínverska kommúnistaflokknum, X-D = CCP.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.7.2020 kl. 12:48

9 identicon

Og það er vert að muna að það sem félaga í

kínverska kommúnistaflokknum, Huang Nubo,

tókst ekki á sínum tíma  

rennur nú hins vegar léttilega í gegn

undir stjórn Bjarna Benediktssonar, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Þórdísar Reykás og Sigurðar Inga Jónssonar, undir forsæti Katrínar Steingríms Jóhanns Sigfússonar.

Það er okkur öllum algjörlega óþolandi!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.7.2020 kl. 13:27

10 identicon

Björn Bjarnason ritar um margt fróðlegan pistil um málið í dag.

Það sem fróðlegast er það sem hann lætur ósagt.

Þannig minnist hann ekki einu orði á náfrænda sinn

hvað varðar Belti og braut og innviðabanka

kínverska kommúnistaflokksins.

Af hverju skyldi það vera?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.7.2020 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband